PLAY PODCASTS
Fotbolti.net

Fotbolti.net

2,774 episodes — Page 53 of 56

Enska hringborðið - Annað fjórðungsuppgjör

Elvar Geir Magnússon og Tómas Þór Þórðarson fengu til sín góðan gest við enska hringborðið í útvarpsþættinum Fótbolti.net á X-inu FM 97,7.

Jan 7, 2017

Jólakæfan 2016 - Fótboltaárið gert upp

Jólakæfan 2016 var í útvarpsþætti Fótbolta.net á X-inu FM 97,7 í dag.

Dec 31, 2016

Innkastið - Þeir bestu í enska 2016

Það er komið að síðasta Evrópu-Innkasti ársins 2016! Elvar Geir Magnússon og Daníel Geir Moritz fóru yfir liðna umferð í ensku úrvalsdeildinni og litu einnig til Spánar, Þýskalands og Frakklands.

Dec 20, 2016

Fótboltafréttir vikunnar með Hödda Magg

Elvar Geir Magnússon, Tómas Þór Þórðarson og Hörður Magnússon fóru yfir fótboltafréttir vikunnar í útvarpsþættinum Fótbolti.net á X-inu í dag.

Dec 17, 2016

Innkastið - Föst skot innan og utan vallar

Það er sérstaklega mikil gleði þegar leikið er í enska boltanum í miðri viku. Eftir að leikjum kvöldsins lauk fengu Elvar Geir Magnússon og Daníel Geir Moritz sér sæti og tóku upp Innkast vikunnar.

Dec 14, 2016

Freysi gerir upp viðburðaríkt ár kvennalandsliðsins

Freyr Alexandersson, þjálfari kvennalandsliðsins, var gestur útvarpsþáttarins Fótbolti.net á X-inu á laugardag. Heimir gerði upp viðburðaríkt ár kvennalandsliðsins 2016 og er hægt að hlusta á þetta skemmtilega viðtal í spilaranum.

Dec 12, 2016

Formannsumræða og Evrópa gegn Suður-Ameríku

Í spilaranum hér að ofan má heyra brot úr útvarpsþættinum Fótbolti.net á X-inu FM 97,7 sem var á dagskrá í gær.

Dec 11, 2016

Enska hringborðið - Tottenham þema með Hjamma og Hödda

Það var mikið stuð við enska hringborðið á X-inu FM 97,7 í dag en þar var Tottenham þema að þessu sinni. Tveir þekktir stuðningsmenn Tottenham mættu í heimsókn, Hörður Ágústsson sem kenndur er við Macland og Hjálmar Örn Jóhannsson, skemmtikraftur og Snapchat Stjarna.

Dec 10, 2016

Ragnar Bragi: Hugurinn í Pepsi-deildinni

Víkingur R. styrkti sig til muna í gær þegar samningar náðust við Fylki um félagsskipti Ragnars Braga Sveinssonar úr Fylki yfir í Víking. Ragnar skrifaði undir þriggja ára samning við Víkinga, en hann segist hafa metnað til þess að spila á meðal þeirra bestu í Pepsi-deildinni.

Dec 10, 2016

Innkastið - Tíðindamikil boltahelgi að baki

Evrópu-Innkastið er mætt. Fjallað er um liðna fótboltahelgi að vanda þar sem enski boltinn er í algjöru aðalhlutverki. Elvar Geir Magnússon og Daníel Geir Moritz voru við hljóðnemana og ræddu um leiki helgarinnar.

Dec 5, 2016

Gregg Ryder ræðir Newcastle: Klassa ofar en önnur lið

„Kannski er betra að við séum bara í Championship deildinni og vinnum leiki þar frekar en að tapa í hverri viku í úrvalsdeildinni. Núna veit ég hvernig það er að vera stuðningsmaður Mancheter City eða Chelsea, maður býst við sigri í hverri viku," sagði Gregg Ryder, þjálfari Þróttar, léttur í bragði í viðtali í útvarpsþættinum Fótbolti.net á X-inu á laugardag. Gregg er uppalinn í Newcastle og hann styður Newcastle United af krafti. Eftir fall úr ensku úrvalsdeildinni síðastliðið vor þá situr Newcastle á toppnum í ensku Championship deildinni. Í október fór Gregg til Englands þar sem hann sá átta leiki með sínum mönnum Newcastle. Stemningin er mikil á St James' Park þar sem 52 þúsund stuðningsmenn fylla völlinn á hverjum heimaleik.

Dec 5, 2016

„Gylfi er 25 milljóna punda virði"

Chris Wathan, blaðamaður hjá Wales Online, segir að Gylfi Þór Sigurðsson nái sínu besta fram hjá Swansea þar sem gífurlega mikil ábyrgð hvílir á honum. Gylfi er potturinn og pannann í sóknarleik Swansea en hann hefur komið að meirihluta marka liðsins á þessu tímabili.

Dec 5, 2016

Enska hringborðið - Yfirferð úr útvarpsþættinum

Elvar Geir Magnússon, Benedikt Bóas Hinriksson og Magnús Már Einarsson sátu við enska hringborðið í útvarpsþættinum Fótbolti.net á X-inu FM 97,7 í dag. Farið var yfir gang mála og rýnt í baráttuna á toppi og botni.

Dec 3, 2016

Hlustaðu á Heimi gera upp ævintýraár Íslands 2016

Heimir Hallgrímsson landsliðsþjálfari var gestur útvarpsþáttarins Fótbolti.net á X-inu á laugardag. Heimir gerði upp ævintýraár Íslands 2016 og er hægt að hlusta á þetta skemmtilega viðtal í spilaranum.

Nov 28, 2016

Bara álit Dalglish sem skiptir máli í þessu vali

Liverpool-goðsögnin Steven Gerrard lagði skóna formlega á hilluna í síðustu viku. Rætt var við Kristján Atla Ragnarsson á kop.is í útvarpsþættinum Fótbolti.net á X-inu á laugardag.

Nov 28, 2016

Aron Sigurðar: Ætla að pakka næsta tímabili saman

„Eftir fína byrjun á tímabilinu var orðið nokkuð erfitt að vera ekki að spila mikið. Það var mjög gott að ná að enda þetta svona," sagði Aron Sigurðarson, leikmaður Tromsö, í viðtali í útvarpsþætti Fótbolta.net á X-inu FM 97,7 síðasta laugardag.

Nov 22, 2016

Innkastið - Leikmenn Arsenal leiddir fyrir dóm

Evrópu-Innkastið snýr aftur úr landsleikjafríi. Fjallað er um liðna fótboltahelgi að vanda þar sem enski boltinn er í algjöru aðalhlutverki. Elvar Geir Magnússon og Daníel Geir Moritz voru við hljóðnemana en Daníel, sem er stuðningsmaður Arsenal, fékk það verkefni að gefa leikmönnum Arsenal einkunnir fyrir frammistöðu sína það sem af er tímabili.

Nov 21, 2016

Innkastið - Kári og Raggi gera upp magnað ár

Innkastið, hljóðvarpsþáttur Fótbolta.net, er sendur út frá Möltu að þessu sinni en framundan er vináttuleikur þar annað kvöld. Gestir innkastsins eru varnarmennirnir Kári Árnason og Ragnar Sigurðsson. Í innkastinu fara þeir á skemmtilegan hátt yfir magnað ævintýri landsliðsins á EM, sigurinn á Englendingum, samstarf þeirra í vörninni og þeirra framlag í föstum leikatriðum sóknarlega svo eitthvað sé nefnt.

Nov 14, 2016

Innkastið - Jói Berg í ítarlegu viðtali frá Parma

Innkastið, hkjóðvarpsþáttur Fótbolta.net, er sendur út frá Parma á Ítalíu að þessu sinni. Þar eru strákarnir okkar í íslenska landsliðinu að búa sig undir komandi stórleik gegn Króatíu sem verður í Zagreb á laugardag.

Nov 10, 2016

Innkastið - Leikmenn Man Utd dæmdir

Daníel Geir Moritz og Elvar Geir Magnússon eru umsjónarmenn Innkastsins en þeir fóru yfir boltahelgina. Enski boltinn var í brennidepli að vanda.

Nov 7, 2016

Landsliðsumræða - Hver verður frammi með Jóni Daða?

Elvar Geir Magnússon, Tómas Þór Þórðarson og Magnús Már Einarsson ræddu komandi landsliðsverkefni í útvarpsþættinum Fótbolti.net á X-inu í dag. Komandi leikur gegn Króatíu var ræddur en vika er í leik í Zagreb.

Nov 5, 2016

Enska hringborðið - Lundúnaslagur framundan

Það er ofursunnudagur framundan í enska boltanum en þar ber hæst Lundúnaslagur Arsenal og Tottenham sem verður í hádeginu.

Nov 5, 2016

Innkastið - Falldraugurinn strax orðinn hávær

Daníel Geir Moritz og Elvar Geir Magnússon eru tveir í Innkasti vikunnar en þeir fóru yfir boltahelgina. Enski boltinn var plássfrekur í þætti dagsins. Innkastið var tekið upp strax eftir tap Swansea gegn Stoke í kvöld en þar var meðal annars farið yfir lista yfir atriði sem margir skjátluðust um í upphafi tímabilsins.

Oct 31, 2016

Kristófer Sigurgeirs: Hætti ekki alveg í bröndurunum

Kristófer Sigurgeirsson mun á næstu dögum stýra sinni fyrstu æfingu sem þjálfari Leiknis í Breiðholti. Kristófer hætti sem aðstoðarþjálfari Breiðabliks eftir sumarið og var fljótlega ráðinn til Leiknis.

Oct 30, 2016

Tómas Þór gerðist eigandi allra liða í Pepsi

Brugðið var á leik í útvarpsþættinum Fótbolti.net á X-inu 97,7 en íþróttafréttamaðurinn Tómas Þór Þórðarson gerðist eigandi allra liða Pepsi-deildarinnar.

Oct 30, 2016

Enska hringborðið - Uppgjör umferða 1-9 með góðum gestum

Elvar Geir Magnússon og Tómas Þór Þórðarson fengu til sín góða gesti við enska hringborðið í útvarpsþættinum Fótbolti.net á X-inu FM 97,7.

Oct 29, 2016

Óli Stefán: Hélt að ég vissi allt

Óli Stefán Flóventsson stýrði Grindavík upp úr Inkasso-deildinni á liðnu tímabili og mun á næsta ári þjálfa í Pepsi-deildinni í fyrsta sinn. Óli var gestur útvarpsþáttarins Fótbolti.net á X-inu síðasta laugardag.

Oct 25, 2016

Innkastið - Djöflar í drullunni og óvæntir hlutir

Daníel Geir Moritz, Elvar Geir Magnússon og Magnús Már Einarsson fóru yfir boltahelgina í hljóðvarpsþættinum Innkastið en þátturinn er á dagskrá vikulega. Hlustaðu í spilaranum hér að ofan.

Oct 24, 2016

Hvernig hefur gengið hjá okkar mönnum í Noregi?

Aðeins tvær umferðir eru eftir af norsku úrvalsdeildinni en útvarpsþátturinn Fótbolti.net fékk Andra Júlíusson til að fara yfir hvernig tímabil íslensku leikmennirnir hafa átt. Þrír Íslendingar spila með Rosenborg sem hefur fyrir löngu tryggt sér norska meistaratitilinn með miklum yfirburðum.

Oct 24, 2016

Kjartan Henry: Þjálfarinn hlær og öskrar allan daginn

Nýliðar Horsens í dönsku úrvalsdeildinni hafa verið að gera góða hluti og eru í sjötta sæti af fjórtán eftir fjórtán umferðir. Með liðinu spilar íslenski sóknarmaðurinn Kjartan Henry Finnbogason en hann spjallaði við útvarpsþáttinn Fótbolti.net á X-inu í gær.

Oct 23, 2016

Innkastið - Leiðindi í Liverpool

Daníel Geir Moritz, Elvar Geir Magnússon og Ingólfur Sigurðsson tóku upp Innkastið eftir leik Liverpool og Manchester United í kvöld. Hlustaðu í spilaranum hér að ofan.

Oct 17, 2016

Næsta U21-landslið?

Elvar Geir Magnússon og Tómas Þór Þórðarson ræddu um næstu kynslóð U21-landsliðsins í útvarpsþættinum Fótbolti.net á X-inu FM 97,7 síðasta laugardag.

Oct 17, 2016

Farið yfir einkunnir íslensku landsliðsmannana

Fótbolti.net er með sérstaka einkunnagjöf eftir alla landsleiki Íslands. Nú þegar þremur leikjum er lokið í undankeppninni fóru Elvar Geir og Tómas Þór yfir meðaleinkunnir leikmanna.

Oct 15, 2016

„Ekki raunhæft að stefna beint til Evrópu"

KA-menn eru byrjaðir að undirbúa sitt fyrsta tímabil í efstu deild síðan 2004. Útvarpsþátturinn Fótbolti.net heyrði í framkvæmdastjóra KA, Sævari Péturssyni, í dag og ræddi við hann um leikmannamarkaðinn og vallaraðstæður.

Oct 15, 2016

Innkastið - „Guð minn góður hvað hann var góður"

Það er komið að fimmta þætti Evrópu-Innkastsins þetta tímabilið en þátturinn er með óhefðbundnu sniði þar sem landsleikjaveisla er í gangi. Elvar Geir Magnússon, Daníel Geir Moritz og Tryggvi Guðmundsson fengu sér sæti á Laugardalsvelli eftir sigurinn sannfærandi gegn Tyrklandi í kvöld.

Oct 9, 2016

Hjörvar velur þá bestu og mestu vonbrigðin í Pepsi

Hjörvar Hafliðason sparkspekingur mætti í útvarpsþáttinn Fótbolti.net á X-inu FM 97,7 í gær og gerði upp Pepsi-deildina á skemmtilegan hátt.

Oct 9, 2016

Hjörtur Hermanns: Ekki að fela okkur á bak við afsakanir

„Það er náttúrulega bara spenningur í loftinu," sagði Hjörtur Hermannsson, fyrirliði U21 árs landsliðs Íslands, í viðtali í útvarpsþættinum Fótbolti.net nú áðan. Elvar Geir Magnússon og Tómas Þór Þórðarson ræddu við Hjört á hóteli U21-landsliðsins. Framundan er leikur gegn Úkraínu í undankeppni EM og þar er allt undir. Strákarnir í U21 landsliðinu geta með sigri gegn Úkraínu á þriðjudag tryggt sér sæti í lokakeppninni, sem fram fer í Póllandi, á næsta ári.

Oct 8, 2016

Landsliðshringborð með Bjössa Hreiðars

Elvar Geir Magnússon, Tómas Þór Þórðarson og Benedikt Bóas Hinriksson sátu við hressandi landsliðshringborð á X-inu FM 97,7 í dag. Á línunni var Sigurbjörn Hreiðarsson og farið var yfir dramatíska sigurinn gegn Finnum.

Oct 8, 2016

Innkastið - Tryggvi Guðmunds gerir upp lygilegan leik

Ísland vann ótrúlega dramatískan sigur gegn Finnlandi á Laugardalsvelli í kvöld. Á 90. mínútu var Ísland undir í leiknum en tvö mörk í uppbótartíma snéru dæminu algjörlega við.

Oct 6, 2016

Innkastið - Klukkan er gleði í Liverpool

Það er komið að fjórða þætti Evrópu-Innkastsins þetta tímabilið en fótboltahelgin er gerð upp. Við erum að keyra inn í landsleikjahlé en gerum upp helgina í enska boltanum ásamt því að kíka til Spánar, Þýskalands og Nice.

Oct 3, 2016

Innkastið - Lokaumferðin og lið ársins

Pepsi-deild karla lauk í gær. Elvar Geir Magnússon, Magnús Már Einarsson og Gunnar Birgisson skoðuðu lokaumferðina í Innkastinu. Þá var farið yfir lið ársins sem opinberað var í dag.

Oct 2, 2016

Pepsi-kryddsíld útvarpsþáttar Fótbolta.net

Það er lokadagur í Pepsi-deildinni í dag og af því tilefni er hátíðarútgáfa af útvarpsþættinum Fótbolti.net á X-inu 97,7. Elvar Geir Magnússon og Tómas Þór Þórðarson gerðu deildina upp með ýmsum furðulegum flokkum.

Oct 1, 2016

Inkasso-umræða: Gleði og vonbrigði í leikslok

Inkasso-deildinni lauk fyrir viku síðan en í útvarpsþættinum Fótbolti.net var deildin gerð upp á snarpan hátt. Elvar Geir Magnússon, Tómas Þór Þórðarson og Magnús Már Einarsson fóru yfir valið á liði ársins og skoðuðu þau lið sem stóðu ekki undir væntingum.

Oct 1, 2016

Vinir í leikskóla og eru Íslandsmeistarar saman

Böðvar Böðvarsson og Kristján Flóki Finnbogason, leikmenn FH, hafa verið miklir vinir síðan í leikskóla. Í dag eru þeir Íslandsmeistarar saman en þeir voru gestir í útvarpsþættinum Fótbolti.net síðasta laugardag.

Sep 28, 2016

Innkastið - Hátíð hjá Wenger og Fáskrúðsfirðingum

Það er komið að þriðja þætti Evrópu-Innkastsins þetta tímabilið en fótboltahelgin er gerð upp. Í þessum þætti er enski boltinn í brennidepli fyrri hlutann en í þeim síðari er íslenski boltinn til umfjöllunar.

Sep 26, 2016

Gummi Steinars skoðar spennandi 21. umferð

Næst síðasta umferð Pepsi-deildar karla fer fram á morgun en allir leikirnir verða á sama tíma. Það er spennandi umferð framundan en Guðmundur Steinarsson rýndi í umferðina með Elvari og Tómasi í útvarpsþætti Fótbolta.net á X-inu í dag.

Sep 24, 2016

Addó: Erum tilbúnir fyrir skrefið upp

Lokaumferð 2. deildar karla fer fram í dag. Það verða hátíðarhöld í Breiðholtinu þar sem ÍR-ingar fá bikarinn fyrir sigur í deildinni eftir leik gegn Aftureldingu. ÍR hefur verið í 2. deild síðan liðið féll úr 1. deild 2012.

Sep 24, 2016

Innkastið - Agabönn, Evrópa og þjálfaramál

Elvar Geir Magnússon, Magnús Már Einarsson og Gunnar Birgisson gera upp 20. umferð Pepsi-deildarinnar í hljóðvarpsþættinum Innkastið þennan þriðjudaginn. Umferðin var áhugaverð. FH innsiglaði Íslandsmeistaratitilinn og Þróttur féll endanlega. Það er þó enn mikil spenna í Evrópubaráttunni og óljóst hverjir fara með Þrótturum niður.

Sep 20, 2016

Innkastið - Mourinho-basl og besta lið heims

Það er komið að öðrum þætti Evrópu-Innkastsins þetta tímabilið en fótboltahelgin er gerð upp þar sem enski boltinn er í aðalhlverki.

Sep 19, 2016

Bestur í 19. umferð: Býst við að fara aftur út eftir tímabilið

„Ég hef kannski ekki beint svarið við því hver ástæðan er, svona fór þetta bara, en ég á eitt ár eftir og ég býst við því að ég fari aftur út eftir tímabilið," sagði Árni Vilhjálmsson, framherji Breiðabliks, í viðtali í útvarpsþættinum Fótbolti.net á X-inu í dag. Hann var þarna að ræða um dvöl sína hjá Lilleström í Noregi, en hann er í láni hjá Breiðablik út þetta leiktímabil. Árni er leikmaður 19. umferðar í Pepsi-deildinni, en hann skoraði tvívegis í 3-0 sigri Blika á Valsmönnum á fimmtudagskvöldið. Hann hefur fundið sig vel eftir að hann kom aftur til Breiðabliks í félagsskiptaglugganum.

Sep 17, 2016