PLAY PODCASTS
Fantabrögð - Wild(card) boys

Fantabrögð - Wild(card) boys

Fotbolti.net · [email protected]

September 24, 2020

Show Notes

2. umferðin í Fantasy Premier League þetta tímabilið sýndi okkur heldur betur hvað þessi leikur getur verið grimmur. Hún kenndi okkur hvað þolinmæði getur verið mikilvæg í þessum leik og spilarar sem héldu tryggð við leikmenn eins og Kane, Son og Mane eftir 1. umferð uppskáru nú ríkulega. En það var ekki staðan hjá Fantabrögðum. Þáttastjórnendurnir þrír áttu allir lélega umferð og sáu ekki annan valkost í stöðunni en að leggja í borðið hið villta spil. Aron, Gylfi og Gunni fóru yfir stöðuna á "nýju" liðunum sínum og reyndu að færa rök fyrir því að hoppa á þetta svo snemma.