
Við skákborðið
182 episodes — Page 1 of 4
Hverjir fara upp? – Gauti Páll Jónsson og Gunnar Freyr Rúnarsson
Björn Þorfinnsson: Ólympíuskák, Asíuveldin og skák á Íslandi
Erum við í raun öll ein skákfjölskylda? - Björn Þorfinnsson, Gunnar Freyr Rúnarsson, Sigurður Þórðarson og Haukur Hauksson
Kristján Örn Elíasson & Björgvin Víglundsson - 16. sept. 2026
Magnús Pálmi Örnólfsson – Hóll, skákævintýri og U2 í hálfa öld
Íslandsmót og víkingar - Björn Þorfinnsson og Gunnar Freyr
Dr. Oddgeir Ágúst Ottesen
Goðsögnin sjötug, Vignir á siglingu og leyndardómar skákminnisins: Helgi Áss Grétarsson, stórmeistari og varaborgarfulltrúi
Björgvin Víglundsson og Halldór Grétar Einarsson
Hvað hefur gerst í íslenskri skák? – Björgvin Víglundsson um skákina, stjórnmálin og framtíðina
Skákin, þorskastríðin, Bobby Fischer og ESB: Sigurður Þórðarson, skákáhugamaður og fv. stýrimaður
Hver er besti skákmaður allra tíma? Sigurbjörn Björnsson ber saman Fischer, Kasparov og Carlsen
Halldór Grétar Einarsson FIDE-meistari sextugur
Þróun byggðarmála í Reykjavík og skák – Björgvin Víglundsson, byggingarverkfræðingur og fyrrverandi landsliðsmaður í skák
Mikið framundan í skákinni: Gauti Páll Jónsson, sagnfræðingur og ritstjóri Tímaritsins Skákar
Friðrik og Fischer: Helgi Ólafsson stórmeistari, rithöfundur og fv. skólastjóri Skákskóla Íslands
Kristján Örn, Jóhann Sigurðarsson & Gauti Sigurðsson
Kristján Örn & Björgvin Víglundsson
Dr. Oddgeir Ágúst Ottesen
Ísland tók bronsið á HM öldungasveita (65+): Þorsteinn Þorsteinsson FIDE-meistari
Sjóðheitur á fullri ferð: Vignir Vatnar Stefánsson, stórmeistari í skák og stigahæsti skákmaður landsins
Kristján Örn & Helgi Áss Grétarsson
Björn Ívar Karlsson

Ep 165Kristján Örn & Magnús Pálmi Örnólfsson & Halldór Grétar Einarsson
Skákin. Kristján Örn og Magnús Pálmi Örnólfsson hagfræðingur og Halldór Grétar Einarsson FIDE meistari 8. apríl 2026
Ep 164Gauti Páll Jónsson, sagnfræðingur og ritstjóri tímaritsins Skákar
Skákin. Kristján Örn stjórnar skákumræðunni í dag. 1. apríl 2026Skákþáttur:Gestur Gauti Páll Jónsson, sagnfræðingur og ritstjóri tímaritsins Skákar.

Ep 163Alþjóðlega Reykjavíkurskákmótið haldið í fertugasta skipti: Skákmeistararnir Björgvin Víglundsson og Gauti Páll Jónsson
Gestur Kristjáns Arnar í skákþættinum í dag er Björgvin Víglundsson, byggingaverkfræðingur og fyrrverandi landsliðsmaður í skák. Þeir ræða alþjóðlega Reykjavíkurskákmótið sem hefst í Hörpunni kl. 15:00 í dag og ýmislegt annað fróðlegt. Metþátttaka er í mótinu að þessu sinni en 422 skákmenn munu sitja að tafli í heila viku en þetta er í fertugasta skipti sem mótið er haldið. Þeir félagar slá á þráðinn til Gauta Páls Jónssonar, ritstjóra tímaritsins Skákar, en hann verður á meðal keppenda í Hörpunni og mætir sterkum tyrkneskum stórmeistara í 1. umferð.

Ep 162Alþjóðlega Kópavogsmótið: Halldór Grétar Einarsson, FIDE-meistari og formaður meistaraflokksráðs skákdeildar Breiðabliks
Gestur Kristjáns Arnar er Halldór Grétar Einarsson, FIDE meistari, stofnandi skákdeildar Breiðabliks og formaður meistaraflokksráðs deildarinnar. Þeir ræða Alþjóðlega Kópavogsmótið sem nú stendur yfir, alþjóðlegt mótahald á Íslandi, Reykjavíkurskákmótið sem hefst á miðvikudaginn í næstu viku, gera upp Íslandsmót skákfélaga sem lauk um þar síðustu helgi og margt fleira.

Ep 161Taflfélag Vestmannaeyja Íslandsmeistari skákfélaga: Þorsteinn Þorsteinsson, ritstjóri Hagstofu Íslands og Björn Þorfinnsson, ritstjóri DV
Kristján Örn Elíasson tekur á móti þeim Þorsteini Þorsteinssyni, FIDE-meistara og ritstjóra Hagstofu Íslands og Birni Þorfinnssyni, alþjóðlegum meistara í skák og ritstjóra DV.is. Báðir kepptu þeir með úrvalsdeildarliði Taflfélags Vestmannaeyja sem varð Íslandsmeistari félagsliða í skák um síðustu helgi. Í þættinum ræða þeir "Öskubuskuævintýrið" - eða leiðina að titlinum, undirbúninginn, liðsmenn félagsins, styrktaraðila, einstakar viðureignir og síðast enn ekki síst stressið og dramatíkina sem hefur fylgt þessu öllu eftir. Björn segir: "En það er ólýsanlega skemmtilegt að Taflfélag Vestmannaeyja hafi efir 100 ára tilvist sína loks hampað Íslandsmeistaratitli og ég verð ævinlega hreykinn af því að hafa fengið að taka þátt í því verkefni" en Taflfélag Vestmannaeyja var stofnað í Vestmannaeyjum 26. ágúst 1926. Þeir félagar slá á þráðinn til Kjartans Briem, formanns skákdeildar Breiðabliks og ræða Alþjóðlega Kópavogsmótið sem hófst í gær en mótið er ætlað efnilegum ungum skákmönnum á aldrinum 16–30 ára og miðar að því að skapa sterkt umhverfi fyrir IM- og GM-áfanga.

Ep 160Skák og stjórnmál: Helgi Áss Grétarsson, stórmeistari og varaborgarfulltrúi í Reykjavík
Kristján Örn Elísson ræðir við Helga Áss Grétarsson, stórmeistara og varaborgarfulltrúa í Reykjavík um skákina og stjórnmálin. Helgi hafði nýlega pólitísk vistaskipti þegar hann gekk úr Sjálfstæðisflokknum og yfir í Miðflokkinn. Helgi talar um borgarmálin, svo sem fyrirhugaða borgarlínu, og leggur áherslu á gott samstarf allra flokka um helstu hagsmunamál Reykjavíkurborgar. Þeir Kristján og Helgi spá í spilin varðandi síðari hluta Íslandsmóts skákfélaga sem tefldur verður um næstu helgi og ræða margt annað áhugavert sem er að gerast í skákheiminum.

Ep 159Kristján Örn ræðir við Björgvin Víglundsson um ofurstórmeistarann Jan Timman sem lést nýlega
Björgvin Víglundsson, byggingaverkfræðingur og sterkur skákmeistari er gestur Kristjáns Arnar Elíassonar. Þeir fjalla um hollenska stórmeistarann og Íslandsvininn Jan Timman sem lést í síðustu viku eftir erfið veikindi. Timman var einn besta skákmaður Vesturlanda á síðustu öld. Einnig ræða þeir gömlu skákmeistarana, ólíka skákstíla og margt fleira.

Ep 158Norðlenskt skáklíf: Áskell Örn Kárason, sálfræðingur og formaður Skákfélags Akureyrar
Áskell Örn Kárason, sálfræðingur og formaður Skákfélags Akureyrar er gestur Kristjáns Arnar að þessu sinni. Áskell er alþjóðlegur meistari í skák og núverandi Íslandsmeistari öldunga. Þeir ræða skákstarfið fyrir norðan, mikinn vöxt í öldungaskákinni á landinu öllu undanfarin ár, forsetatíð Áskels hjá Skáksambandi Íslands um síðustu aldamót, Heimsmótið í Salnum í Kópavogi árið 2000 þar sem þáverandi heimsmeistari Garry Kasparov og Viswanathan Anand sem síðar varð heimsmeistari voru á meðal keppenda og margt annað fróðlegt og skemmtilegt.

Ep 157Skákskóli Íslands: Björn Ívar Karlsson, skólastjóri Skákskóla Íslands
Kristján Örn Elíasson tekur á móti Birni Ívari Karlssyni, skólastjóra Skákskóla Íslands. Björn er með tvær gráður frá Alþjóðaskáksambandinu FIDE. Hann er FIDE-meistari og FIDE-trainer sem þýðir að á einhverjum tímapunkti á skákferli sínum hefur hann öðlaðst a.m.k. 2300 alþjóðleg skákstig og að hann hafi sótt námskeið og staðist próf hjá FIDE sem leiðbeinandi og þjálfari í skák. Eins og oft áður var umræðuefnið fjölbreytilegt en þeir Björn Ívar og Kristján Örn töluðu um Skákskóla Íslands, Pressukeppnina sem er ný leið skólans til æfinga fyrir ungmenni, fjárfestingu skólans í nýjum stórum 98 tommu skjá og öðrum búnað til fjarkennslu, vinsælan skákróbot sem teflir við nemendur, fartölvur og heyrnartól sem og fjölgun iðkenda skólans, bæði í stað- og fjarkennslu. Tölvulistinn hefur verið aðalstyrktaraðili Skákskóla Íslands að baki þessum fjárfestingum eins og svo oft áður. Tíu nemendur skólans fara á morgun til Fredericia í Danmörku til að taka þátt í Norðurlandamóti unglinga dagana 13.-15. febrúar. Einnig ræddu þeir Tata Steel skákmótið, Speed Chess Championship netskákmótið á Chess.com, mikinn áhuga á Reykjavíkurskákmótinu, nýju heimildarmyndina "Queen of Chess" á Netflix sem fjallar um Judit Polgar sterkustu skákkonu allra tíma og margt fleira.

Ep 156Skák er 90% einbeiting: Björgvin Víglundsson verkfræðingur og Halldór Grétar Einarsson FIDE meistari
Gestir skákþáttarins eru Björgvin Víglundsson, verkfræðingur og fyrrverandi Íslandsmeistari öldunga í skák og Halldór Grétar Einarsson, FIDE meistari og formaður meistaraflokksráðs Breiðabliks. Eins og svo oft áður er farið vítt og breitt í umfjöllun um skák en hlusta má á þáttinn í heild sinni í spilaranum.

Ep 155Þorparinn, togarasjómaðurinn og skákmeistarinn: Ólafur Kristjánsson frá Akureyri
Kristján Örn ræðir við Ólaf Kristjánsson, 82 ára fyrrverandi togarasjómann frá Akureyri en hann er öflugur skákmaður. Ólafur kallar sig "Þorparann" því hann fæddist í Glerárþorpi en Akureyri er skipt upp í tvo hluta, þ.e. norðan og sunnan Glerár. Í þættinum segir Ólafur frá samferðamönnum sínum, sterkum skákmönnum á Norðurlandi. Hann talar um upphaf taflmennsku sinnar, skákmót á Akureyri, Íslandsmót skákfélaga, veru sína á sjó og margt fleira.

Ep 154Skákárið 2025: Sigurbjörn Björnsson FIDE meistari
Kristján Örn Elíasson tekur á móti Sigurbirni Björnssyni FIDE meistara. Þeir stikla á stóru í umfjöllun sinni um fréttnæma atburði og uppákomur sem þeim þótti athyglisverðar á skákárinu 2025. Þeir ræða árangur Vignis Vatnars Stefánssonar, Magnúsar Carlsen og fleiri sterkra og efnilegra skákmanna á heimsmeistaramótunum í at- og hraðskák en teflt var í höfuðborginni Doha í Katar á milli jóla og nýárs. Einnig ræða þeir stöðu íslenskrar skákar og margt fleira.

Ep 153Heimsmeistaramótin í at- og hraðskák: Vignir Vatnar Stefánsson og Benedikt Briem
Vinirnir og samstarfsmennirnir Vignir Vatnar Stefánsson, stórmeistari og þrefaldur Íslandsmeistari í skák árið 2025 og Benedikt Briem næststigahæsta ungmenni landsins eru gestir Kristjáns Arnar. Þeir tala um kennsluvefinn www.vignirvatnar.is, skákmót í Portúgal, fjölbreytt skákmótahald og margt fleira. Vignir ræðir heimsmeistaramótin í atskák og hraðskák, sem fram fara í Doha í Katar á milli jóla og nýárs, en Vignir verður á meðal keppenda á báðum mótunum.

Ep 152Jólasveinarnir: Róbert Lagerman FIDE-meistari og Gunnar Freyr Rúnarsson formaður Víkingaklúbbsins
Kristján Örn fær til sín skákmennina Róbert Lagerman, FIDE- meistara og alþjóðlegan skákdómara og Gunnar Frey Rúnarsson sagnfræðing og formann Víkingaklúbbsins.Í þættinum ræða þeir jólaskákmót Ása, skákkúbbs eldri borgara, þar sem Róbert sigrði með yfirburðum. Þeir gera kröfu um nýja staðsetningu Íslandsmóts skákfélaga, bæta þurfi fyrirkomulag og skipulagningu mótsins, salernismál séu í miklum ólestri auk þess sem mótið sé illa kynnt í fjölmiðlum og þjónusta við keppendur um úrslit og stöðu liða hverju sinni sé ekki til staðar. Gunnar Freyr talar um Víkingaskák en ný taflsett eru komin í sölu, m.a. hjá Spilavinum. Þeir tala um mismunun og tvískinning í afstöðu stjórnar Skáksambands Íslands, m.a. hvað varðar áherslur á eldri skákmenn og auglýsingu sambandsins um léttar veitingar á Íslandsmóti kvenna í hraðskák. Þeir velta fyrir sér hvað sé átt við með hugtakinu "léttar veitingar".Þeir minnast Ólafs Hraunbergs Ólafssonar, fyrrverandi formanns Taflfélags Reykjavíkur, sem lést nýlega en hann vann mikið og gott starf fyrir íslensku skákhreyfinguna. Þeir tala um tillögur aðalfundar FIDE um að Rússar og Hvítrússar fái aftur að tefla á ólympíuskákmótum og að lið frá löndunum séu aftur tekin inn í opinbera mótaröð FIDE.Róbert segir sögu af Boris Spasský og áhuga hans á tímaritinu Playboy á meðan Einvígi aldarinnar árið 1972 stóð yfir. Einnig segir hann sögu þegar sérsveit lögreglunnar í Danmörku stöðvaði flugtak flugvélar sem hann var farþegi í og yfirheyrði hann í tvær klukkustundir sem grunaðan hryðjuverkamann en farþegar vélarinnar þurfu að bíða í vélinni á meðan.

Ep 151Á Hælinu með Don Everything: Róbert Lagerman, alþjóðlegur skákdómari og FIDE-meistari
Róbert Lagerman, alþjóðlegur skákdómari og FIDE-meistari er gestur Kristjáns Arnar. Róbert gengur undir ýmsum nöfnum í skákheiminum eins og Mr. Big Time og Don Everything en hann hefur setið fjölda námskeiða og aflað sér ýmissa réttinda og nafnbóta hjá Alþjóða skáksambandinu FIDE. Því fer það vel að hann kalli sig stundum "Don Everything". Þeir Kristján og Róbert hafa verið góðir félagar í gegnum árin og stofnuðu, ásamt Hrafni Jökulssyni og rúmlega þrjátíu öðrum áhugamönnum um skák, Skákfélag Grandrokks þann 12. september árið 1998. Í þættinum ræa þeir Heilsuhælið í Hveragerði, mataræði og góða aðstöðu þar, þeir spila klippu með Hrafni Jökulssyni þar sem hann talar um Grænland, þeir ræða hugmyndir um meiri samvinnu skákfélaga á Íslandi, slæma nýtingu erlendra stórmeistara sem koma til landsins í tengslum við Íslandsmót skákfélaga, þjálfunarmál, mótahald, einelti, vináttu, framtíðarplön Skákfélags Íslands og margt fleira.

Ep 150Gervigreind og sýndareinvígi: Björgvin Víglundsson skákmeistari og verkfræðingur
Gestur skákþáttarins að þessu sinni er Björgvin Víglundsson, byggingaverkfræðingur og sterkur skákmeistari. Þeir Kristján Örn ræða um skák og gervigreind og spái í spilin hvernig skákin muni þróast með tilkomu gervigreindarinnar. Að mati Björgvins hefur varðveisla skákefnis í stafrænu formi náð því umfangi að gervigreind geti ekki einungis hermt eftir leikjum einstakra meistara heldur líka stíl þeirra. Hann telur raunhæft að endurskapa skákstíl bestu skákmanna allra tíma eins og Wilhelm Steinitz, Aron Nimzowitsch eða Bobby Fischer. Björgvin telur vel hugsanlegt að haldin verði sýndareinvígi þar sem tölvur tefla í nafni sögulegra meistara. Þar gætu til dæmis Fischer, Capablanca og Carlsen tekist á í löngu kappskákeinvígi líkt og Fischer og Spasskí í Reykjavík 1972 en án áhrifa aldurs, líkamlegrar þreytu, tímamismunar eða félagslegra aðstæðna. Slík mót gætu jafnvel gefið vísbendingu um hver hefði verið sterkastur í sögu skáklistarinnar ef allir væru settir á sama lærdómsstig og fengju að þróa leik sinn sem forrit en ekki sem menn.

Ep 149Íslandsmót skákfélaga og afmælis-skákveisla í Garðabæ: Björn Þorfinnsson, alþjóðlegur meistari og ritstjóri DV.is
Kristján Örn tekur á móti Birni Þorfinnssyni, alþjóðlegum meistara og ritstjóri DV.is í stúdíóið. Mikill kraftur er búinn að vera í íslensku mótahaldi að undanförnu og fara þeir Björn og Kristján yfir það helsta í þættinum. Þeir tala um menn og málefni og segja sína skoðun á hvoru tveggja. Taflfélag Garðabæjar hélt upp á 45 ára afmæli sitt á mánudaginn var í Miðgarði, nýja íþróttahúsi bæjarins, en þar hefur félagið fengið góða aðstöðu fyrir starfsemi sína. Afmælisveislan hófst með því að boðið var upp á veitingar og svo lék bæjarstjóri Garðabæjar, Almar Guðmundsson, fyrst leikinn fyrir Erling Jensson í skák hans gegn Vigni Vatnari Stefánssyni. Björn var óstöðvandi í þessu fjölmenna og sterka skákmóti og fékk 9 vinninga í 9 skákum. Hann er því nýr hraðskákmeistari Garðabæjar en í vikunni áður var Björn einnig krýndur skákmeistari Garðabæjar. Þeir félagar, Kristján og Björn, fara um víðan völl í þættinum og ræða vel og lengi um Íslandsmót skákfélaga en fyrri hluti mótsins var tefldur í Rimaskóla um síðustu helgi.

Ep 148Tímaritið Skák: Gauti Páll Jónsson ritstjóri
Kristján Örn Elíasson ræðir við Gauta Páll Jónsson sagnfræðing og ritstjóra tímaritsins Skákar. Umfjöllunarefnið er nýjasta tímarit Skákar sem kemur út á morgun eða á sama tíma og úrvalsdeild fyrri hluta Íslandsmóts skákfélaga hefst í Rimaskóla. Þeir ræða Heimsbikarmótið á Indlandi en margir af sterkustu skákmönnum heims hafa þegar helst úr lestinni. Einng tala þeir um Íslandsmót Símans í netskák, EM ungmenna í Svartfjallalandi sem er nýlokið, Le Kock mótaröðina hjá Vigni Vatnari og velheppnaða skákferð hans og Benedikts Briem til Portúgals og fleira.

Ep 147Draumar, blóðþrýstingur, ástin og gervigreind: Magnús Pálmi Örnólfsson, skákmeistari og hagfræðingur
Magnús Pálmi Örnólfsson, skákmeistari og hagfræðingur (MBA), er gestur Kristjáns Arnar Elíassonar. Magnús er 1. borðsmaður skákdeildar Dímonar frá Hvolsvelli en ný skáksveit félagsins hefur unnið sig úr 4. deild og upp í 2. deild á aðeins tveimur árum eða frá því að skákdeildin var stofnuð og hóf að tefla á Íslandsmóti skákfélaga. Magnús segir frá ferðalagi skáksveitarinnar á Evrópumót taflfélaga á Ródos í Grikklandi sem lauk fyrir skemmstu og "varpar upplýsingasprengju" inn í 2. deild fyrrihluta Íslandsmót skákfélaga um liðskipan skákdeildar Dímonar. Magnús Pálmi ræðir um nýtt skáksetur sem hann er að setja upp í Bolungarvík; hann ræðir um drauma, ástina, heilsuna, blóðþrýsting, kolesteról og auðvitað skák. Þeir félagar tala um Heimsbikarmót FIDE en teflt er í Resort Rio í ríkinu GOA á Indlandi dagana 1.-26. nóvember. Þrír eftstu á Heimsbikarmótinu tryggja sér sæti í Áskorendakeppni FIDE á næsta ári þar sem átta skákmenn munu tefla um réttinn til að há 14 skáka einvígi við ríkjandi heimsmeista, Gukesh D frá Indlandi, um heimsmeistaratitilinn í skák.

Ep 146Skáksviðið: Helgi Áss Grétarsson stórmeistari í skák
Gestur þáttarins er Helgi Áss Grétarsson, stórmeistari í skák og varaborgarfulltrúi Sjálfstæðisflokksins í Reykjavík. Helgi varð heimsmeistari í skák 20 ára og yngri árið 1994. Hann hefur verið virkur á skáksviðinu og sinnt skrifum og lögfræðilegri ráðgjöf. Helgi hefur einnig kennt við lagadeild Háskóla Íslands og skrifað mikið um stjórn fiskveiða og önnur málefni. Þótt Helgi sé fjölhæfur þá ræða þeir Kristján Örn þó eingöngu um skák í þættinum. Þeir félagar fóru yfir árangur Íslendinga á nýloknu Evrópumóti taflfélaga og töluðu um Evrópumót ungmenna sem hófst í dag en 15 keppendur frá Íslandi taka þátt í mótinu. Helgi fer yfir Meistaramót Bandaríkjanna þar sem Caruana stóð uppi sem sigurvegari, skemmtilegt fjögurra manna einvígi þriggja stigahæstu skákmanna heims, Carlsen, Nakamura og Caruana auk ríkjandi heimsmeistara í skák, Gukesh, í St. Louis. Þeir ræða fráfall rúmenska stórmeistarans Mihai Suba sem lést í vikunni og getgátur um fráfall bandaríska stórmeistarans og streymarans Daniel Naroditsky sem fannst látinn á heimili sínu um þarsíðustu helgi en fyrrum heimsmeistari, Vladimir Kramnik, hefur um langt skeið ásakað Naroditsky og aðra sterka skákmenn um svindl á netinu.

Ep 145Skákskóli Íslands og EM taflfélaga: FIDE-meistararnir Björn Ívar Karlsson og Halldór Grétar Einarsson
Gestir í skákþættinum eru FIDE-meistararnir Björn Ívar Karlsson, skólastjóri Skákskóla Íslands og Halldór Grétar Einarsson, formaður meistaraflokksráðs Breiðabliks. Þeir ræða Evrópumót taflfélaga sem nú stendur yfir í Ródos í Grikklandi en tugir Íslendinga taka þátt í mótinu. Björn Ívar segir frá skáklífinu í Skákskóla Íslands, Halldór Grétar ræðir tölfræði og ber saman meðalaldur og meðalskákstig keppenda á EM taflfélaga, á Reykjavíkurskákmótinu síðasta og í úrvalsdeild síðasta Íslandsmóts skákfélaga. Í upphafi þáttar er viðtal við Gauta Pál Jónsson, ritstjóra tímaritsins Skákar, sem Kristján Örn tók við hann í morgun en Gauti Páll er einn af 38 Íslendingum sem nú sitja að tafli á EM taflfélaga í Grikklandi. Farið var yfir fréttir um skyndilegt andlát bandaríska stórmeistarans Daniel Naroditsky sem lést síðastliðinn sunnudag en hann var aðeins 29 ára gamall. Hann var á meðal sterkustu skákmanna heims í hraðskák og atskák, vinsæll skákskýrandi og streymari, dáður og vinamargur í skáksamfélaginu út um allan heim.

Ep 143Víkingaskák og EM landsliða: Gunnar Freyr Rúnarsson og Halldór Grétar Einarsson
Gestir skákþáttarins eru Gunnar Freyr Rúnarsson formaður Víkingaklúbbsins og Halldór Grétar Einarsson, FIDE meistari og formaður meistaraflokksráðs Breiðabliks. Gunnar ræðir sögu Víkingaskákarinnar á Íslandi en það var hugvitsmaðurinn Magnús Ólafsson sem fann upp Víkingaskákina árið 1967. Hugmyndina fékk hann þegar hann sá sexhyrnda ró í skrúfuhrúgu en Magnús hafði áður fengið þá hugmynd að hanna séríslenskt manntafl og var niðurstaða hans stórmerkileg. Halldór Grétar kemur símleiðis inn í síðari hluta þáttarins og ræðir árangur íslensku liðanna á Evrópumót landsliða sem lauk í Batumi í Georgíu í gær.

Ep 144Gunnar Freyr Rúnarsson og Halldór Grétar Einarsson

Ep 142Bankar, skák og Litla kaffistofan: Stefán Þormar Guðmundsson fv. banka- og veitingamaður
Stefán Þormar Guðmundsson, skákmaður og fyrrverandi banka- og veitingamaður er gestur Kristjáns Arnar Elíassonar. Stefán talar um skákmenninguna í íslensku bönkunum hér á árum áður og segir að mikið hafi verið teflt og mörg sterk skákmót hafi verið haldin í bönkunum og á vegum þeirra. Hann segir að mikil samkeppni hafi verið á milli bankanna og þeir keppst við að ná til sín sterkustu skákmönnunum. Stefán telur upp fjölmörg nöfn öflugra skákmanna sem skipuðu sveitir Búnaðarbankans, Landsbankans og Útvegsbankans. Hann talar um Jóhann Þóri Jónsson og Helgarskákmótin og þá sérstaklega mótin í Vík í Mýrdal og í Grímsey. Stefán Þormar rak Litlu kaffistofuna við Suðurlandsveg í aldarfjórðung og kom sér þar upp miklu safni með úrklippum af íþróttasíðum dagblaðanna auk trefla, fána og annarra muna sem tengjast knattspyrnu, handbolta og körfubolta. Stefán segir margar sögur eins og af Draugahlíðsbrekkunni sem er brekkan fyrir ofan Litlu kaffistofuna, forræðishyggju veðurfræðinga sem spá leiðindaveðri og skipti sér af því hvort fólk eigi að vera að ferðinni eða ekki og þegar hettuklætt par vopnað hnífi og hafnarboltakylfu reyndi að ræna Litlu kaffistofuna.

Ep 141Skákin hreinsar hugann: Jón Steinn Elíasson, skákmaður og fv. eigandi Toppfisks
Kristján Örn ræðir við Jón Stein Elíasson skákmann og fyrrverandi eiganda Toppfisks. Þeir ræða skákina, fiskvinnsluna, dvölina á Spáni, gjaldþrot Toppfisks eftir 40 ára starfsemi, gjaldþrot lággjaldaflugfélagsins Play og áhrif þess á Íslendinga með dvalarstað eða búsetu á Spáni og margt fleira. Jón Steinn segir að í erfiðum atvinnurekstri sínum í gegnum tíðina hafi skákin gert honum kleift að gleyma amstri dagsins, hreinsa hugann og safna kröftum.

Ep 140Ungir og efnilegir: Haukur Víðis Leósson og Pétur Úlfar Ernisson
Gestir Kristjáns Arnar í skákþættinum í dag eru þeir Haukur Víðis Leósson, 11 ára, og Pétur Úlfar Ernisson, 9 ára, tveir efnilegir og áhugasamir ungir drengir úr Taflfélagi Reykjavíkur. Þeir hafa tekið skákina föstum tökum undanfarin 3 ár og hafa m.a. báðir orðið Íslandsmeistarar í sínum aldursflokki. Kristján heimsækir þá á æfingu og ræðir við þá um það hvernig þeir fengu áhuga á skák og hvaða vinnu þeir leggja í til að bæta sig, eftirminnilegar skákir, skákmót, þjálfara, vini við skákborðið og nýafstaðið Haustmót TR þar sem þeir Haukur og Pétur háðu mikla orrustu við Kristján Örn um sigur í C-flokki á mótinu. Með þeim í þættinum er Torfi Leósson skákkennari, einn þeirra sem komið hafa að þjálfun ungu drengjanna.

Ep 139Skákfréttir: Ingvar Þór Jóhannesson, formaður TR og ritstjóri Skák.is
Þeir Ingvar Þór Jóhannesson, formaður Taflfélags Reykjavíkur og ritstjóri Skák.is og Kristján Örn halda áfram að segja fréttir af erlendum og innlendum skákvettvangi en Ingvar Þór var einnig gestur þáttarins í síðustu viku. Ingvar og Kristján fóru yfir mótasenuna bæði hér heima og erlendis og var af nógu að taka! Í upphafi síðari hluta þáttarins hringja þeir í Björn Ívar Karlsson, skólastjóra Skákskóla Íslands en Skákskóli Íslands stendur fyrir skákþjálfaranámskeiði dagana 29. og 30. september. Námskeiðið er opið öllum áhugasömum og er sérstaklega sniðið fyrir þá sem sinna skákþjálfun innan skóla eða skákfélaga eða hafa áhuga á því að reyna fyrir sér í skákþjálfun. Kennarar á námskeiðinu verða Björn Ívar Karlsson FIDE trainer og skólastjóri Skákskóla Íslands og Jóhanna Björg Jóhannsdóttir forseti SÍ og barnasálfræðingur. Námskeiðið fer fram í húsnæði Skákskóla Íslands, Faxafeni 12. Einnig verður námskeiðið sent út í gegnum fjarfundabúnað fyrir þá sem komast ekki á staðinn. Slóð á frétt og nánari upplýsingar um skákþjálfaranámskeiðið.