
Alþjóðlega Reykjavíkurskákmótið haldið í fertugasta skipti: Skákmeistararnir Björgvin Víglundsson og Gauti Páll Jónsson
Við skákborðið · Útvarp Saga
Audio is streamed directly from the publisher (media.transistor.fm) as published in their RSS feed. Play Podcasts does not host this file. Rights-holders can request removal through the copyright & takedown page.
Show Notes
Gestur Kristjáns Arnar í skákþættinum í dag er Björgvin Víglundsson, byggingaverkfræðingur og fyrrverandi landsliðsmaður í skák. Þeir ræða alþjóðlega Reykjavíkurskákmótið sem hefst í Hörpunni kl. 15:00 í dag og ýmislegt annað fróðlegt. Metþátttaka er í mótinu að þessu sinni en 422 skákmenn munu sitja að tafli í heila viku en þetta er í fertugasta skipti sem mótið er haldið. Þeir félagar slá á þráðinn til Gauta Páls Jónssonar, ritstjóra tímaritsins Skákar, en hann verður á meðal keppenda í Hörpunni og mætir sterkum tyrkneskum stórmeistara í 1. umferð.