
Samstöðin
710 episodes — Page 12 of 15

Ep 844Sjávarútvegsspjallið - 45. þáttur: Litlar útgerðir, strandveiðar og útflutningur
Fimmtudagur 27. mars Sjávarútvegsspjallið - 45. þáttur Grétar Mar fær til sín þá Arnar Atlason og Rúnar Björgvinsson að þessu sinni en þeir ræða litlar útgerðir, strandveiðar, útflutning og fleira.

Ep 843Rauða borðið - Helgi-spjall: Gyrðir Elíasson
Laugardagur 29. mars Helgi-spjall: Gyrðir Elíasson Gyrðir Elíasson, rithöfundur, skáld, myndlistarmaður og þýðandi ræðir um líf sitt og köllun í skáldskap og listum en líka í einmanaleika og jaðartilvist, um vináttutengslin við textann og náttúruna.

Ep 842Rauða borðið - Vikuskammtur: Vika 13
Föstudagur 28. mars Vikuskammtur: Vika 13 Í Vikuskammti við Rauða borðið sitja í dag þau Andrea Róbertsdóttir framkvæmdastjóri Félag kvenna í atvinnulífinu, Þórunn Hrefna Sigurjónsdóttir bókmenntafræðingur, Þórdís Claessen grafískur hönnuður og Hringur Hafsteinsson sköpunarstjóri Gagarín og ræða fréttir vikunnar sem voru fjölbreytilegar og snertu alla strengi mannssálarinnar, færðu okkur harm, gleði og undrun.

Ep 841Rauða borðið 27. mars - Flóttafólk, börn í vanda, orðræða fjölmiðla, framtíð lýðræðis og bókabúðarhljómsveit
Fimmtudagur 27. mars Flóttafólk, börn í vanda, orðræða fjölmiðla, framtíð lýðræðis og bókabúðarhljómsveit Við hefjum leik á nýrri frétt um að flóttafólk er að lenda á götunni hér á næstu vikum. María Lilja Þrastardóttir ræðir við Þóri Hall Stefánsson umsjónarmann gistiskýlis hjá Rauða krossinum. Í dag hafa verið sagðar fréttir um öryggi og auknar eftirlitsheimildir lögreglu. Oddný Eir Ævarsdóttir ræðir við Þórlaugu Borg Ágústsdóttur vefkyrju og doktorsnema um áhrif tækni-kapítalisma á lýðræðið, varnir Íslands, netöryggismál, áróður og fleira. Hvernig horfir MAST-dómurinn í gær við neytendum? Breytir það einhverju til góðs fyrir íslenskan almenning að Hæstiréttur hafi dæmt að starfsfólk MAST og fréttamenn Rúv höfðu rétt á tjáningu um brotalamir kjúklingabús? Við fáum svör með formanni Neytendasamtakanna, Breka Karlssyni, hann ræðir ásamt Tryggva Aðalbjörnssyni fréttamanni sem skúbbaði Brúneggjamálinu á sínum tíma við Björn Þorláks. Við fjöllum einnig um börn í vanda og orðræðu fjölmiðla. Þórhildur Ólafs barnasálfræðingur, Hermann Austmar pabbi stúlku í Breiðholtinu og Óskar Steinn sem vann á Hamrinum, sem er úrræði fyrir erlend börn, ræða það mál við Maríu Lilju. Það er vel geymt leyndarmál meðal Íslendinga að í húsi við Laugaveg hefur verið spiluð lifandi tónlist fyrir erlenda ferðamenn hvert einasta kvöld í þrjú ár. Þetta upplýsa þau Ragnar Ólafsson og Marína Ósk Þórólfsdóttir tónlistarmenn sem líta við og ræða þetta merka og mjög svo þrautseiga menningarframtak.

Ep 840Rauða borðið 26. mars - BNA, reynsluboltar, óþekkti þingmaðurinn, gerjun, víðerni og diplómati deyr
Miðvikudagur 26. mars BNA, reynsluboltar, óþekkti þingmaðurinn, gerjun, víðerni og diplómati deyr. Íslenskir fræðimenn eru farnir að hunsa boð um ráðstefnur í Bandaríkjunum í mótmælaskyni við harðlínustefnu yfirvalda í garð minnihlutahópa og skerðingu málfrelsis þar í landi. Björn Þorláksson fær til sín þá Rúnar Helga Vignisson og Guðmund Hálfdánarson, prófessora við Háskóla Íslands til að ræða breytt landslag. Hinir vikulegu reynsluboltar fara yfir mál málanna hjá Sigurjóni M Egils. Að þessu sinni fær hann til sín þau Oddnýju Harðardóttur, Guðrúnu Öldu Harðardóttur, Þorstein Sæmundsson og Ómar Valdimarsson. Halla Hrund Logadóttir er óþekkti þingmaður þessarar viku á Samstöðinni. Björn Þorláks reynir að skyggnast undir yfirborð nýrra þingmanna og ræðir Halla Hrund kvöldið þegar kappræðan í sjónvarpinu gekk ekki sem skyldi í fyrrasumar en líka kraftinn og gleðina. Maður lærir ekkert í logninu, segir Halla Hrund. Fágun, félag áhugafólks um gerjun á fimmtán ára afmæli um þessar mundir. Þau Helga Dís Björgúlfsdóttir - Formaður, Dagur Helgason - Ritari og Sigfús Örn Guðmundsson - Fyrrverandi stjórnarmeðlimur kíkja til Maríu Lilju og líta yfir farinn veg og segja frá frelsisbaráttu sem ku framundan. Þorvaldur víðförli, ljósmyndari og rithöfundur Til oddnýjar um sveitina og háskólamál. Diplómati deyr heitir ný bók, fyrsta skáldsaga okkar fyrrum forsetafrúar Elizu Reid. Eliza lýsir við Rauða borðið skriftunum og ljóstrar í leiðinni upp þætti Guðna Th. Jóhannessonar sem hún segir að hafi verið gagnlegur yfirlesari.

Ep 839Sósíalísk stjórnarandstaða - 10. þáttur: Breytingaskeiðið og heilsa kvenna
Miðvikudagur 26. mars Sósíalísk stjórnarandstaða - 10. þáttur Gestir þáttarins eru Halldóra Skúladóttir frá Kvennaráð.is, sjúkraliði, markþjálfi, sérfræðingur í fræðslustjórnun og þjálfun starfsfólks og sérfræðingur í breytingaskeiði kvenna, og Oddný Eir Ævarsdóttir, rithöfundur, heimspekingur og blaðamaður á Samstöðinni. Við ræðum um breytingaskeiðið, áhrif þess á heilsu kvenna og bjargráð.

Ep 838Rauða borðið 25. mars - Rektorskjör, sönglist í hættu, sósíalísk hreyfing og trúmál
Þriðjudagur 25. mars Rektorskjör, sönglist í hættu, sósíalísk hreyfing og trúmál Við hefjum leik við Rauða borðið á viðtali Gunnars Smára Egilssonar við rektorsefnin tvö, Magnús Karl Magnússon og Silju Báru Ómarsdóttur. Kosning milli þeirra tveggja fer fram á morgun og hinn daginn. Hver eru einkenni rektorsefnanna? Við ætlum líka að standa fyrir umræðu um stofnanir í listheiminum. Söngnám er í hættu vegna peningamála. Þau Gunnar Guðbjörnsson, Hallveig Rúnarsdóttir og Guðrún Jóhanna koma í heimsókn og segja Birni Þorláks sögur af fjárhagslegu basli en líka ræða þau fegurð listarinnar og tækifæri. Pétur Tyrfingsson, sálfræðingur, ræðir í samtali við Oddnýju Eir Ævarsdóttur ágreining í sósíalískri hreyfingu, rofið í stéttabaráttunni og samræðunni. Við ljúkum svo þættinum á spjalli við sóknarprest einnar stærstu sókar landsins. Arna Ýrr Sigurðardóttir, ræðir Elon Musk, mannúð og skort á henni og aukna þöf landsmanna á að ræða trú með opinskáum hætti.

Ep 836Rauða borðið 24. mars: Skemmdarverk, fjölmiðlar, barnsmissir, sekt, fólk og kvár
Rauða borðið 24. mars Skemmdarverk, fjölmiðlar, barnsmissir, sekt, fólk og kvár Friðrik Þór Friðriksson kvikmyndaleikstjóri um gjaldþrot Kvikmyndaskólans, en Friðrik var um tíma rektor skólans. Hvað áhrif hafði skólinn á uppbyggingu kvikmyndagerðar og hver verða áhrifin af hruni hans? Friðrik Þór kemur í spjall við Gunnar Smára. Einyrkjafjölmiðlun og blaðamennska á litlum fjölmiðlum verður til umræðu við Rauða borðið í dag. Mál Ástu Lóu Þórsdóttur verður til umræðu. Þau Frosti Logason, Steingerður Steinarsdóttir og Brynjar Birgisson blaðamenn tala við Björn Þorláks. Laufey Líndal ætlar á næstu vikum að fjalla um barnsmissi frá ýmsum hliðum. Við hefjum umræðuna með frásögn Maríu Pétursdóttur um hennar reynslu og hvernig sú reynsla hefur mótað hana. Lára Magnúsardóttir, sagnfræðingur ræðir um barnamálaráðherramálið í samhengi sakamála sögunnar og hlutverk Ríkisútvarpsins í spjalli við Oddnýju Eir. María og Oddný fara á Eiðistorg og ræða við fólk á förnum vegi um mál málanna. Í tilefni Kváradagsins ræðir María Lilja svo við Reyn Alpha, forseta Trans-Íslands um tímamótin.

Ep 835Synir Egils 23. mars - Afsögn ráðherra og staðan í pólitíkinni
Sunnudagur 23. mars Synir Egils: Afsögn ráðherra og staðan í pólitíkinni Fjórir gestir koma í þáttinn Synir Egils að þessu sinni. Þau eru: Birta Björnsdóttir yfirmaður erlendra frétta, Svanborg Sigmarsdóttir framkvæmdastjóri Viðreisnar, Jakob Bjarnar Grétarsson blaðamaður og Björn Leví Gunnarsson fyrrverandi þingmaður. Staða Ásthildar Lóu Þórsdóttur munu örugglega rata á góma gestanna. Mörg önnur mál bíða umfjöllunnar og verða því á dagskrá þáttarins.

Ep 833Rauða borðið - Helgi-spjall: Heimir Björn Janusarson
Laugardagur 22. mars Helgi-spjall: Heimir Björn Janusarson Heimir Björn Janusarson umsjónarmaður í Hólavallakirkjugarði er gestur í Helgi-spjallsins þessa vikuna. Heimir Björn kann margar sögur úr garðinum. Í spjalllinu segir hann Sigurjóni Magnúsi Egilssyni nokkrar ómetanlegar sögur.

Ep 834Rauða borðið - Vikuskammtur: Vika 12
Föstudagur 21. mars Vikuskammtur: Vika 12 Jódís Skúladóttir, Indriði H. Þorláksson og Sigursteinn Másson eru gestir í Vikuskammti að þessu sinni. Ræddar eru fréttir vikunnar og ekki síst afsögn mennta- og barnamálaráðherra. Þátturinn er í umsjá Björns Þorlákssonar.

Ep 832Frelsið er yndislegt #13 - Ungmenni í vanda - hvað er til ráða?
Föstudagur 21. mars Frelsið er yndislegt #13 - Ungmenni í vanda - hvað er til ráða? Börn eru í dag neyðarvistuð í fangaklefum í Hafnarfirði. Umboðsmenn, bæði barna og Alþingis, hafa gert alvarlegar athugasemdir við slíkt fyrirkomulag (hvorugar þáðu þó boð Afstöðu um að mæta í þáttinn). Barnamálaráðherra hefur sagt að hætt verði að nota fangaklefa til að vista börn um mánaðamótin. Meðan á tökum þáttarins stóð tilkynnti ráðherra barnamála um afsögn sína. Gestir þáttarins eru Gudmundur Fylkisson, lögregluþjónn og Davíð Bergmann, unglingaráðgjafi hjá Fjölsmiðjunni. Stjórnendur þáttarins eru: Íris Ósk Ólafsdóttir og Guðmundur Ingi Þóroddsson. Hægt að ná sambandi við Afstöðu í síma 556-1900 og netfangið [email protected]. Lögfræðiaðstoð Afstöðu er í síma 666-1211.

Ep 831Rauða borðið - Lögregluríkið, brotleg skipafélög, JFK, líðan barna, föstudagspartýbíó og sálumessa
Fimmtudagur 20. mars Lögregluríkið, brotleg skipafélög, JFK, líðan barna, föstudagspartýbíó og sálumessa Þátturinn hefst á umræðu sem spyr spurninga um hvort Ísland sé að verða lögregluríki og hvort aðgreining yfirstéttar og almennings sé að aukast. Við ræðum dóm gærdagsins þar sem níu mótmælendur sem beittir voru harðræði fá ekkert fyrir sinn snúð. Sigtryggur Ari Jóhannsson og Sara Stef Hildar mótmælendur ræða við Björn Þorláks. Hver myrti JFK er spurning sem margir vilja meina að aldrei hafi verið svarað. Guðjón Heiðar Valgarðsson og Haukur Ísbjörn, álhattamenn koma til Maríu Lilju og fara yfir CIA skjöl sem voru opinberuð í vikunni um morðið á JFK. Nokkur umræða hefur orðið um verðkannanir undanfarið. Við ræðum við Breka Karlsson formann Neytendasamtakanna um vöruverð, vexti og nýja niðurstöðu nefndar um áfrýjunarmál sem staðfestir sekt Samskipa og Eimskipa í samráðsmáli. Óli Hjörtur Ólafsson rekstrarstjóri hjá Bíó Paradís segir Lafeyju Líndal Ólafsdóttur frá Föstudagspartýsýningum og öðrum sýningum og uppákomum hjá kvikmyndahúsinu á næstunni. Að þessu sinni verður sýnd kvikmyndin Friday sem var vinsæl á tíunda áratug síðustu aldar. Líðan barna er okkur öllum hugleikin. Hulda Tölgyes sálfræðingur ræðir hvað við getum gert til að vinna gegn kvíða. Hulda safnar fé til að gefa út spil sem á að auðvelda börnum að tengjast fólki og umhverfi sínu. Við endum dagskrána á stórvirki sem fer fram í menningarheiminum um helgina þegar flutt verður sálumessa Tryggva M. Baldvinssonar upp úr Heimsljósi Halldórs Laxness í Langholtskirkju. Gríðarlegur fjöldi listamanna kemur að þessum viðburði. Að rauða borðinu koma til að ræða þennan viðburð Tryggvi M Baldvinsson tónskáld, Magnús Ragnarsson kór- og hljómsveitarstjóri og Hallveig Rúnarsdóttir söngkona.

Ep 830Sjávarútvegsspjallið - 44. þáttur - Loðnan og Hafró
Fimmtudagur 20. apríl Sjávarútvegsspjallið - 44. þáttur Grétar Mar og Ólafur Jónsson fá til sín Jón Kristjánsson fiskifræðing, sem haldið hefur uppi öflugri gagnrýni á vinnubrögð Hafrannsóknarstofnunar og bent á að auka þurfi veiðar til að efla fiskistofna.

Ep 829Sósíalísk stjórnarandstaða - 9. þáttur: Nemendur og rektorskjör í HÍ
Miðvikudagur 19. mars Sósíalísk stjórnarandstaða - 9. þáttur Nemendur og rektorskjör í Háskóla Íslands Gestir þáttarins eru nemendur úr Háskóla Íslands: Úlfur Atlason, BS-nemi í eðlisfræði, Magnea Rut, meistaranemi í heimspeki, Guðni Thorlacius, varaforseti Landssamtaka íslenskra stúdenta (LÍS) og BA-nemi í heimspeki. Við ræddum um rektorskjör, hvað okkur finnst vera mikilvægir eiginleikar hjá næsta rektor og hvaða breytingar við myndum vilja sjá. Kosningar standa yfir frá 18.–19. mars en kosningu lauk kl. 17 í dag.

Ep 828Rauða borðið 18. mars - Solaris, fæðuöryggi, reynsluboltar, þingmaður, maurar og kynlífsverkafólk
Miðvikudagur 19. mars Solaris, fæðuöryggi, reynsluboltar, þingmaður, maurar og kynlífsverkafólk Við hefjum þáttinn á viðtali Laufeyjar Líndal Ólafsdóttur við Maríu Lilju Ingveldar Þrastardóttir Kemp og lögmanninn Gunnar Inga Jóhannsson, um Solaris málið svokallaða en ríkissaksóknari fól lögreglu að rannsaka fjársöfnun og átaksverkefni til að koma fólki út af Gaza. Bændur og búalið hér á landi sjá fram á breytta tíma. Hugsanleg innganga í ESB gefur tilefni til að ræða ógnir og tækifæri að sögn formanns Bændasamtakanna, Trausta Hjálmarssonar. Hann ræðir við Björn Þorláks um stöðuna og Búnaðarþing sem verður sett á morgun. Vikulegi dagskrárliðurinn Reynsluboltar að þessu sinni eru þau Erna Bjarnardóttir, Magnús R. Einarsson og Sigrún Jónsdóttir sem fara yfir helstu mál líðandi stundar. Eðlilega rata þeir Rump og Pútín í umræðuna og svo eru það helstu innanlandsmálin. Óþekkti þingmaðurinn sem þessa vikuna ræðir við Björn Þorláks á persónulegum nótum er Ingvar Þóroddsson. Hann er einnig yngsti þingmaðurinn nú um stundir. Ingvar lýsir með opinskáum hætti hvernig efasemdir um eigin verðleika urðu honum áskorun. Arnar Pálsson og Andreas Guðmundsson líffræðingar mættu til Maríu Lilju með heilt samfélag maura Að lokum koma þau Ari Logn og Renata Sara Arnardóttir en þau eru talsfólk Rauðu regnhlífarinnar og ræða meðal annars kvikmyndina Anora og stöðu kynlífsverkafólks í samfélaginu í dag

Ep 826Sósíalísk stjórnarandstaða - 8. þáttur: Samstarfssáttmáli í borginni
Miðvikudagur 12. mars Sósíalísk stjórnarandstaða - 8. þáttur Gestur þáttarins er hin eina sanna, Sanna Magdalena Mörtudóttir, nýsettur forseti borgarstjórnar, formaður velferðarráðs og oddviti Sósíalistaflokksins. Við förum yfir samstarfsyfirlýsingu Samfylkingar, Pírata, Sósíalistaflokksins, Flokks fólksins og Vinstri grænna. Sögu Sósíalista í Borgarstjórn, árangur og áherslur sósíalista í borginni. Húsnæðismál, íbúaráð, samgöngumál og margt fleira.

Ep 825Rauða borðið 18. mars - Þjóðarmorð, fátækt, klám, orgelleikur og guð
Þriðjudagur 18. mars Þjóðarmorð, fátækt, klám, orgelleikur og guð Fólkið í Gazaborg var vakið upp við loftárásir Ísraela og Bandaríkjanna. Félagið Ísland Palestína stóð fyrir mótmælum í morgun og þrýsti á íslenska ráðamenn um að setja á viðskiptabann og slíta stjórnarsamstarfi. María Lilja fær til sín Svein Rúnar Hauksson, formann FÍP og fara þau yfir fréttir dagsins frá Palestínu. Skylt er að vara við myndefni sem spilað verður í innslaginu en María Lilja klippti saman efni frá blaðafólki og almenningi á staðnum. Vaxtaumhverfi námslána er út úr kú og hafa breytingar sem orðið hafa á kerfinu sumpart aukið efnahagslega stéttaskiptingu. Þetta segir Lísa Margrét Gunnarsdóttir forseti Landssamtaka íslenskra stúdenta en Björn Þorláksson ræðir við hana um slembilukku, tengda pólitískri hugmyndafræði hverju sinni sem veldur því að sumar kynslóðir fá hagstæð námslán en aðrar alls ekki. Við ræðum um ást og klám við Láru Martin, kvikmyndagerðarkonu og kvikmyndafræðing sem ræðir um erkitýpu vændiskonunnar í menningu okkar og gagnrýni kynlífsverkafólks á myndina Anora. Við endum Rauða borðið á umræðu um nýstárlega notkun guðshúsa. Björn Þorláksson ræðir við Kristján Hrannar Pálsson, organista. Stundum er sagt að kirkjurnar, hús í eigu almennings, standi of mikið auðar og að hugsanlega mætti auka nýtingu þessara bygginga sem sum okkar kalla guðshús.Við kynnum okkur nýjung í viðburðastarfi, svokallað orgelbíó sem Kristján Hrannar Pálsson organisti fræðir okkur um og fleira.

Ep 823Rauða borðið 17. mars: Fullveldi, fjölmiðlar, öryggismál, raddir almennings, Reykjanes og skák
Mánudagur 17. mars Fullveldi, fjölmiðlar, öryggismál, raddir almennings, Reykjanes og skák Við hefjum leik á viðtali Oddnýjar Eirar Ævarsdóttur við Harald Ólafsson hjá Heimssýn. Haraldur telur að valkyrkjustjórnin sé að reyna að koma landsmönnum inn í ESB undir fölsku flaggi varnarmála. Einnig verður umræða um fjölmiðla í umsjá Björns Þorláks þar sem blaðamennirnir Páll Ásgeir Ásgeirsson, Sigurjón Egilsson og Bjartmar Oddur Þeyr Alexandersson ræða málin. Gunnar Smári Egilsson ræðir við Helen Ólafsdóttur ráðgjafa um alþjóða öryggismál. Maríu Lilja spyr almenning álits á fréttnæmum fyrirbærum. Við bíðum flest eftir eldgosi á Sundhnúkagígaröð. En hvað teiknast upp ef kvika fer að leita upp á öðrum slóðum en þeim sem hafa verið virkastar á Reykjanesinu? Þorvaldur Þórðarson eldfjallafræðingur ræðir nokkrar sviðsmyndir. Og við ljúkum Rauða borðinu með umfjöllun um skáklistina, stórmót sem haldið var fyrir norðan um helgina. Hermann Aðalsteinsson formaður Goðans í Þingeyjarsýslu og Björn Þorfinnsson sem vann mótið ræða ævintýri skáklistarinnar.

Ep 824Rauður raunveruleiki - Átök í Sósíalistaflokknum
Mikið hefur gengið á í umræðunni undanfarna daga. Karl Héðinn skýrir mál sitt og talar við félaga sína í ungliðadeild Sósíalistaflokksins um átökin og framtíð flokksins.

Ep 821Synir Egils 16. mars - Fréttir, pólitík og átök
Sunnudagurinn 16. mars Synir Egils: Vettvangur dagsins er skipaður úrvalsfólki. Þeir eru: Helga Þórðardóttir borgarfulltrúi, Páll Baldvin Baldvinsson rithöfundur, Sigmar Guðmundsson þingmaður og Stefán Pálsson borgarfulltrúi. Málefnin eru mörg. Breyttur heimur, öryggisstefna Íslands, morð í Reykjavík, maður sýknaður af tvöföldu morði, sendiráðið í Moskvu, ákall til formanns Framsóknar um að gera eitthvað áður en skaði flokksins verði meiri en orðið er. Og svo eitt og annað.

Ep 820Helgi-spjall 15. mars: Dagur B. Eggertsson
Dagur B. Eggertsson þingmaður og fyrrum borgarstjóri er gestur Helgi-spjallsins þessa vikuna. Dagur ræðir uppvöxtinn, læknavísindin, pólitíkina, borgina og persónuleg mál við Björn Þorláksson.

Ep 819Rauða borðið - Vikuskammtur: Vika 11
Föstudagur 14. mars Vikuskammtur: Vika 11 Í Vikuskammti við Rauða borðið sitja í dag þau Vilborg Bjarkadóttir doktorsnemi í þjóðfræði, Magnús Jochum Pálsson blaðamaður og gagnrýnandi, Þorkell Heiðarsson deildarstjóri hjá Dýraþjónustu Reykjavíkur og Ester Bíbi Ásgeirsdóttir bassaleikari og ræða fréttir vikunnar sem einkenndust af Trump innan lands og utan en líka slætti og látum í pólitíkinni hér heima.

Ep 818Rauða borðið - Fasísk sveifla, gróandi, ásakanir, heilahvel, tálbeitur, feðraveldi og endurhæfing
Fimmtudagur 13. mars Fasísk sveifla, gróandi, ásakanir, heilahvel, tálbeitur, feðraveldi og endurhæfing Magnús Helgason sagnfræðingur og Friðjón R. Friðjónsson borgarfulltrúI ræða við Gunnar Smára um hvernig Donald Trump er að breyta Bandaríkjunum. Hversu miklar geta þær breytingar orðið? Og munu þær ganga til baka í næstu pólitísku sveiflu. Lexí Líndal, plötusnúður og listakona og Máni Emeric Primel, leikari ræða um reynslu sína af Janus endurhæfingu sem nú á að loka og sorgina yfir því að öll þessi einstaka sérfræðiþekking sem hefur byggst þar upp til endurhæfingar fyrir ungt fólk með einhverfu og fjölþættan vanda sé nú í hættu. Sigurjón Magnús Egilsson ræðir við Helga Gunnlaugsson afbrotafræðing um tálbeitur, en það fyrirbæri er mikið í umræðunni núna í tengslum við hræðilega glæpi á Íslandi. María Pétursdóttir, formaður málefnastjórnar Sósíalistaflokks Íslands og Sara Stef Hildar varaformaður framkvæmdastjórnar ræða við Oddnýju Eir um hitamál flokksins eftir gagnrýni lítils hóps flokksins og uppgjör eins félaga og ásakanir um einelti, útskúfun, þöggun og ólýðræði. Hildur Dagbjört Arnardóttir fer fyrir samfélagsverkefninu Gróanda og hefur byggt upp nytjagarð sl. 9 ár sem fólkið á Ísafirði hefur aðgang að, endurgjaldslaust. Mannréttindafréttaritari okkar, Arna Magnea Danks ræðir um nýjustu aðgerðir Trömpstjórnar og innlends æsings vegna þátttöku sumra í kvennagöngu og spurningarinnar ,,Hvað er kona?” Hún segir okkur frá því hvernig tilvera hennar er ögrun við feðraveldið, eins og fokkmerki og frá nýrri bíómynd sem hún leikur í, Ljósvíkingar sem hefur fengið lof úti í heimi. Elín Agla Briem, þjóðmenningarbóndi, segir frá reynslu sinni af lífinu á Ströndum, af pólitískum átökum sem urðu persónulegar og segir frá nýjum heilahvelsrannsóknum sem setja pólaríseringu í nýtt samhengi og mannskepnuna í ný tengsl við náttúruna.

Ep 817Grænland, spilling, reynsluboltar, neytendamál, sjálfsskrif, fræ framfara og Akureyrarfréttir
Rauða borðið 12. mars Grænland, spilling, reynsluboltar, neytendamál, sjálfsskrif, fræ framfara og Akureyrarfréttir Við hefjum leik á umfjöllun um stjórnmál en aldrei hafa kosningar í Grænlandi vakið meiri athygli en nú. Það skýrist ekki síst af áhuga Bandaríkjaforseta á að sölsa Grænland undir sig og ræðir María Lilja við Ingu Dóru Guðmundsdóttur um niðurstöður kosninganna. Atli Þór Fanndal, sem starfaði við spillingarvarnir um árabil, ræðir spillingu, fjölmiða, siðferðisleg álitamál og neikvæða umræðu gagnvart eftirlitsstofnunum í samtali við Björn Þorláks. Þátturinn Reynsluboltar verður á dagskrá undir stjórn Sigurjóns Egilssonar. SME ræðir við Árna Hjartarson jarðfræðing, Kristínu Ástgeirsdóttur fyrrverandi þingmann með meiru og Viðar Eggertsson leikara. Umræðuefnið er sótt í daginn og veginn. Breki Karlsson, formaður Neytendasamtakanna, ræðir heimilin í landinu og fjárhag almennings. Við spyrjum hvort Neytendasamtökin séu bjartsýn á áframhaldandi vaxtalækkun og fjöllum um óskalista Neytendasamtakanna. Við fjöllum einnig um sjálfsskrif: Róbert Hilmar Haraldsson heimspekingur, Sigurður Gylfi Magnússon sagnfræðingur og Davíð Ólafsson menningarfræðingur ræða við Gunnar Smára Egilsson. Jón Einar Kristjánsson, sagnfræðingur kemur og fjallar um fræ framfara, það er að segja akuryrkju og framfarahugsun á átjandu öld og hvernig megi læra af þeim jarðvegi i dag. Og við endum þáttinn með því að hringja norður til Akureyrar, við heyrum í Skapta Hallgrímssyni ritstjóra sem segir okkur tíðindi úr höfuðstað norðurlands þar sem einna hæst ber að mörg flug eru nú í boði fyrir Norðlendinga beint út í heim.

Ep 816Rauða borðið 11. mars - Breytt staða, húsnæðismarkaður, rektor, símabann, Auður Haralds, samræðan og karlar
Þriðjudagur 11. mars Breytt staða, húsnæðismarkaður, rektor, símabann, Auður Haralds, samræðan og karlar Eiríkur Bergmann, stjórnmálafræðingur, prófessor við Háskólann á Bifröst, ræðir við Björn Þorláks um gjörbreytta stöðu sem blasir við íslensku ríkisstjórninni vegna utanríkismála. Allar líkur eru á því að aðstæður hafi áhrif á ESB-áhuga Íslendinga. Sigurður Stefánsson framkvæmdastjóri Aflvaka greinir hvernig húsnæðismarkaðurinn ýtir undir misskiptingu auðs í samtali við Gunnar Smára. Kolbrún Þ. Pálsdóttir, forseti menntavísindasviðs Háskóla Íslands, er síðasti frambjóðandinn til rektors sem mætir í spjall til Gunnars Smára um háskólann og stöðu hans í samfélaginu. Barnamálaráðherra hefur boðað símabann í öllum grunnskólum landsins frá og með næsta hausti. En er það raunhæft? Björn Gunnlaugsson skólastjóri Laugalækjarskóla og Skúli Bragi Geirdal hjá Fjölmiðlanefnd eru ekki á einu máli - Björn Þorláks ræðir við þá. Auður Jónsdóttir rithöfundur og blaðakona, Guðmundur Andri Thorsson rithöfundur og pistlahöfundur og Katrín Axelsdóttir málfræðingur segja Gunnari Smára frá Auði Haralds, sem var frumkvöðull í bókmenntum og textasmíð og óheyrilega fyndin. Vilhjálmur Árnason, heimspekiprófessor emeritus við Háskóla Íslands, ræðir um mátt samræðu og friðarviðræðna á myrkum tímum ofbeldis og stríð og segir frá sinni reynslu af því að gagnrýna og koma á fót samræðu um samfélagið. María Lilja ræðir við karlmenn á krossgötum, tónlistarmennirnir og metal-hausarnir Birkir Fjalar Viðarsson í Adapt og Karl Thorsten Ställborn Skratti ræða karlmennsku sína og samfélagsins.

Ep 815Rauður raunveruleiki - Stríðsæsingar, vestræn sjálfsmynd og óvinir frelsisins
Jovana Pavlovic, Jökull Sólberg Auðunsson & Halldór Armand koma til Karl Héðins að ræða um stöðu heimsmálanna, stríðsæsingar, vestræna sjálfsmynd, um stöðu Evrópu og Íslands á áhugaverðum tímum. Klukkan 17:30 í beinni á Samstöðinni

Ep 815Rauða borðið 10. mars: Ríkisútvarpið, rektorskjör, blaðamannaverðlaun, rödd almennings og kukl
Rauða borðið mánudaginn 10. mars 2025 Ríkisútvarpið, rektorskjör, blaðamannaverðlaun, rödd almennings og kukl verður á dagskrá Samstöðvarinnar í kvöld. Við hefjum leik við Rauða borðið með þeim Ragnari Sigurði Kristjánssyni, hagfræðingi hjá Viðskiptaráði og Stefáni Eiríksson útvarpsstjóra. Á RÚV að víkja af auglýsingamarkaði? Er Rúv bleiki fíllinn sem er að lama einkarekna fjölmiðlun í landinu? Björn Þorláks stýrir umræðunni. Gunnar Smári Egilsson ræðir við Silju Báru R. Ómarsdóttur prófessor í stjórnmálafræði, sem hefur boðið sig fram til rektors Háskólans. Háskólinn er á margskonar tímamótum, hvernig vill Silja Bára að brugðist verði við? Við heyrum raddir fólksins í landinu. Oddný Eir Ævarsdóttir ræðir við fólk á förnum vegi um varnarmál Íslendinga og utanríkismál. Þá ber tugþraut einnig á góma. Sunna Kristín Hilmarsdóttir, sem stýrir dómnefnd um blaðamannaverðlaun, ræðir verðlaunin ásamt blaðamönnunum Maríu Lilju, Oddnýju Eir Ævarsdóttur og Birni Þorláks. Afhending verðlaunanna fer fram á miðvikudag. Og María Lilja endar þáttinn með samræðu um kukl við Guðrúnu Tinnu Thorlacius. Þær ræða hulduheima og talnaspeki og spá í tarotspil.

Ep 814Synir Egils 9. mars - Öryggisógnir, ágreiningur og bág staða sveitarfélaga
Sunnudagurinn 9. mars Synir Egils: Öryggisógnir, ágreiningur og bág staða sveitarfélaga Bræðurnir Sigurjón Magnús og Gunnar Smári Egilssynir taka á móti gestum og ræða við þá um helstu fréttir og pólitíkina. Að þessi sinni koma þær Eyrún Magnúsdóttir blaðakona, Lilja Rannveig Sigurgeirsdóttir fyrrverandi þingkona Framsóknar og Sóley Tómasdóttir, fyrrum borgarfulltrúi og ræða fréttir vikunnar og stjórnmálaástandið hér heima og erlendis. Þeir bræður taka púlsinn á pólitíkinni en fá svo til sín sveitarstjórnarfólk til að ræða stöðu sveitarfélaganna: Sanna Magdalena Mörtudóttir forseti borgarstjórnar, Margrét Ólöf A. Sanders bæjarfulltrúi í Reykjanesbæ, Theodóra Sigurlaug Þorsteinsdóttir bæjarfulltrúi í Kópavogi og Valgarður Lyngdal Jónsson forseti bæjarstjórnar Akraness greina vanda sveitarfélaganna,

Ep 813Rauður raunveruleiki - Byggjum betur!
Páll Jakob Líndal umhverfissálfræðingur, Egill Sæbjörnsson myndlistarmaður & Magnús Skúlason arkitekt koma og ræða við Karl Héðinn Kristjánsson og Trausta Breiðfjörð Magnússon um arkitektúr, umhverfissálfræði og átakið "Byggjum betur!". Undirskriftarlisti hér: https://island.is/undirskriftalistar/810d7272-e312-46f4-9d80-0aa32ffe3570

Ep 810Rauða borðið - Helgi-spjall: Héðinn Unnsteinsson
Laugardagur 8. mars Helgi-spjall: Héðinn Unnsteinsson Héðinn Unnsteinsson, rithöfundur og ráðgjafi segir okkur frá lífi sínu í punktinum og utan hans, í skáldskap og samveru, einveru og rannsóknum á geði, kerfum, erfðum, áföllum, framsýni, frumefnum, næveru.

Ep 812Rauða borðið - Vikuskammtur: Vika 10
Föstudagur 7. mars Vikuskammtur: Vika 10 0Í Vikuskammti við Rauða borðið sitja í dag þau Guðrún Lína Thoroddsen klippari, Lóa Hjálmtýsdóttir myndlistarkona, Þorsteinn J. Vilhjálmsson fjölmiðlamaður og Þorvaldur Davíð Kristjánsson leikari og ræða fréttir vikunnar sem einkenndust af fyrirferð Donald Trumps, stríðsvæðingu Evrópu, tillögum um sparnað og niðurskurð og allskyns álitamálum.

Ep 811Frelsið er yndislegt - #12 - Óviðunandi staða kvenna í fullnustukerfinu
Frelsið er yndislegt 7. mars #12 Óviðunandi staða kvenna í fullnustukerfinu Í tilefni af alþjólegum baráttudegi kvenna er í þessum þætti af Frelsið er yndislegt fjallað um (óviðunandi) stöðu kvenna í fullnustukerfinu/ fangelsum. Gestir þáttarins eru Guðbjörg Sveinsdóttir, geðhjúkrunarfræðingur og faglegur ráðgjafi Afstöðu ásamt Tinnu Hilmarsdóttur Konudóttur og Þóru Björgu Sirrýjardóttur sem eru í Vettvangsteymi Afstöðu. Stjórnendur þáttarins eru: Íris Ósk Ólafsdóttir og Guðmundur Ingi Þóroddsson. Hægt að ná sambandi við Afstöðu í síma 556-1900 og netfangið [email protected]. Lögfræðiaðstoð Afstöðu er í síma 666-1211.

Ep 809Rauða borðið 6. mars - Fjármálastríð, Gaza, bakarí, friðarvaka, rektor, bókaspjall, sögur
Fimmtudagur 6. mars Fjármálastríð, Gaza, bakarí, friðarvaka, rektor, bókaspjall, sögur Guðrún Johnsen, hagfræðingur og deildarforseti viðskiptadeildar Háskólans á Bifröst, ræðir við Oddnýju Eir um efnahagslegt ástand heimsins, afleiðingar Trömpismans og fjármálastríð heimsins. Sema Erla Serdarouglu, stjórnarformaður Solaris og Magnea Marinósdóttir, alþjóðastjórnmálafræðingur setjast til borðs með Maríu Lilju og ræða ástandið á Gaza nú þegar vopnahlé er í uppnámi. Þá ræða Maria Lilja og Sema sérstaklega og í fyrsta sinn, frægt kærumál sem hefur verið i gangi gegn þeim persónulega og Solaris. Sigurður Már Guðjónsson, bakara- og kökugerðarmeistari í Bernhöftsbakarí, segir Gunnari Smára frá vanda þeirra sem eru í smárekstri, skilningsleysi stjórnvalda og stjórnmálafólks. Ragnheiður Steindórsdóttir, Sólveig Hauksdóttir og Júlía Hannam tilheyra hópi Leikhúslistakvenna 50+ þær senda út ákall um frið með ljóðalestri og tónlist í fríkirkjunni á laugardaginn eftir Kvennagönguna og öllum er boðið. Gunnar Smári heldur áfram að ræða þau sem vilja verða rektor Háskóla Íslands. Röðin er komin að Birni Þorsteinssyni prófessor í heimspeki sem leggur áherslu á samfélagslegt hlutverk Háskólans. Kristín Helga Gunnarsdóttir kemur í bókaspjall með Vigdísi Grímsdóttur og fer yfir feril sinn, en hún er einn helsti og vinsælasti fjölskyldubókahöfundur Íslands. Sögur kvenna af erlendum uppruna á Íslandi er nýtt íslenskt ritverk sem kemur formlega út um helgina, á laugardag – á alþjóðlegum baráttudegi kvenna. Elinóra Guðmundsdóttir, ein af ritstjórum bókarinnar, ræðir verkið í samtali við Björn Þorláks.

Ep 808Rauða borðið - Brim, reynsluboltar, auðlindir, siðareglur, rektor, hin sagan, öryrkjar, þjóðmenning
Miðvikudagur 5. mars Brim, reynsluboltar, auðlindir, siðareglur, rektor, hin sagan, öryrkjar, þjóðmenning Haraldur Sigurðsson prófessor og doktor í jarðefnafræði ræðir frá Bandaríkjunum við Björn Þorláksson um hækkun yfirborð sjávar sem getur valdið stórskaða í skaðabrimi eins og síðustu daga. Fyrrum þingmennirrnir Ásmundur Friðriksson, Mörður Árnason og Sigríður Ingibjörg Ingadóttir eru reynsluboltarnir að þessu sinni. Kristín Vala Ragnarsdóttir, sérfræðingur í sjálfbærni við Háskóla Íslands, prófessor emerita, segir okkur frá raunverulegum kostnaði hins blóðuga auðlindastríðs sem háð er í heiminum. Friðrik Þór Guðmundsson, blaðamaður til langs tíma, kennari og fræðimaður, ræðir siðareglur Blaðamannafélags Íslands og hvort eða að hve miklu leyti starfsreglur blaðamanna hafa áhrif á efnistök og áherslur fjölmiðla. Gunnar Smári heldur áfram að ræða við frambjóðendur til rektors Háskóla Íslands. Það er komið að Ingibjörgu Gunnarsdóttur, aðstoðarrektor vísinda og samfélags og prófessor í næringarfræði. Rakel Adolphsdóttir, fagstjóri hjá Kvennasögusafni Íslands segir okkur frá afmælishátíð þessa safns, sem geymir hina söguna. Alma Ýr Ingólfsdóttir, formaður ÖBÍ ræðir landsáætlun í málefnum fatlaðra, lögfestingu réttindasamnings SÞ, inngildingu og átakið "fyrir okkur öll”. Árni Björnsson, þjóðháttafræðingur fer yfir uppruna íslenskrar þjóðmenningar og ræðir hefðir á Öskudegi við Maríu Lilju.

Ep 807Rauða borðið 4. mars - Trump, Nató, Háskólinn, þingkona og gleymdar konur
Þriðjudagur 4. mars Trump, Nató, Háskólinn, þingkona og gleymdar konur Gunnar Smári ræðir við Hilmar Þór Hilmarsson prófessor um hvort Trump takist að sveigja Úkraínustjórn og Evrópu undir sín markmið. Við förum síðan í Múlakaffi með Maríu Lilju og hefjum svo viðræðu um háskólasamfélagið við þau sem hafa boðið sig fram til rektors. Magnús Karl Magnússon prófessor í læknadeild ríður á vaðið og ræðir við Gunnar Smára. Björn Þorláks ræðir síðan við Maríu Rut Kristinsdóttur, þingkonu Viðreisnar, baráttukonu frá Flateyri. Hún fjallar hispurslaust um kynferðislegt ofbeldi sem hún varð fyrir og snjóflóðið á Flateyri svo nokkuð sé nefnt. Loks ræðir María Lilja við þær Kristínu I. Pálsdóttur og Halldóru R. Guðmundsdóttur forstöðukonur Rótarinnar og Konukots um vanda heimilislausra kvenna og konur með fíknivanda.

Ep 806Rauða borðið 3. mars: Trump, efnahagurinn, spillingin, Rússland, Anora og einræðisþrá
Mánudagur 3. mars Trump, efnahagurinn, spillingin, Rússland, Anora og einræðisþrá Við ræðum Trump á bolludegi. Fyrst ræðir Gunnar Smári við Þorvald Gylfason prófessor í hagfræði um áhrif stefnu Trump á efnahag heimsins. Hver er stefna Trump og er hún til eftirbreytni? Gunnar Smári ræðir einnig við Jón Ólafsson prófessor í heimspeki um áhrif stefnu Trump á stöðu Rússlands. Í millitíðinni ræðir Björn Þorláks við Henry Alexander Henrysson um hvort brotthvarf Bjarna Benediktssonar boði siðbót, um biðlaun Ragnars Þórs Ingólfssonar og önnur siðræn álitamál. Árni Sveinsson kvikmyndaleikstjóri, Lóa Björk Björnsdóttir útvarpskona og Oddný Eir Ævarsdóttir rithöfundur ræða við Gunnar Smára um Óskarsverðlaunamyndina Anora og María Lilja ræðir við Ásu Lind Finnbogadóttur kennara og Völu Árnadóttur formann Samtaka grænkera um um hlutverk kvenna og pólitík dagsins í dag. Haukur Arnþórsson, stjórnsýslufræðingur ræðir um helstu ógnir lýðræðis í dag við Oddnýju Eir um einræðisþrá tæknirisanna í Kísildalnum, um auðlindastríð og hernaðarlega nýsköpun.

Ep 805Synir Egils 2. mars - Átök á vinnumarkaði, á þingi og í öryggismálum
Sunnudagurinn 2. mars Synir Egils: Átök á vinnumarkaði, á þingi og í öryggismálum Bræðurnir Sigurjón Magnús og Gunnar Smári Egilssynir taka á móti gestum og ræða við þá um helstu fréttir og pólitíkina. Að þessi sinni koma þau Helga Vala Helgadóttir lögmaður og fyrrum blaða- og þingkona, Róbert Marshall fjallamaður og fyrrum frétta- og þingmaður og Sunna Valgerðardóttir fyrrum fréttakona og starfsmaður Vg og ræða fréttir vikunnar og stjórnmálaástandið. Þeir bræður taka púlsinn á pólitíkinni en fá líka fólk til að ráða í áhrif stefnu Donald Trump á öryggishagsmuni Íslands og Evrópu: Baldur Þórhallsson prófessor í stjórnmálafræði, Guðmundur Hálfdanarson prófessor í sagnfræði, Ingibjörg Sólrún Gísladóttir fyrrum utanríkisráðherra og Ögmundur Jónasson fyrrum ráðherra spá í hvað Trump vill, hvað hann segir og gerir og hver áhrifin verða.

Ep 803Rauða borðið - Helgi-spjall: Pétur Gunnarsson
Laugardagur 1. mars Helgi-spjall: Pétur Gunnarsson Pétur Gunnarsson rekur ferð sína um hugmyndir og heimsmyndir, hugsjónir sem hafa risið og hnigið, byltingar sem blómstruðu eða koðnuðu niður og aðrar sem runnu sitt skeið og reynir að skilja stöðu heimsins í dag, sem er kannski háskalegri en nokkurn tíma um daga Péturs.

Ep 804Vikuskammtur: Vika 09
Föstudagur 28. febrúar Vikuskammtur: Vika 09 Í Vikuskammti við Rauða borðið sitja í dag þau Margrét Hugrún Gústavsdóttir Björnsson nemi í mannfræði, Freyr Eyjólfsson öskukarl, Theódóra Björk Guðjónsdóttir nemi í félagsráðgjöf og Halldór Auðar Svansson fyrrverandi borgarfulltrúi og ræða fréttir vikunnar sem einkenndust af viðbrögðum við stefnu Donald Trump, nýjum meirihluta í Reykjavík, samningum kennara, hugmyndum um her og mörgu öðru.

Ep 801Sjávarútvegsspjallið - 41. þáttur: Strandveiðar, kvóti og Hafró
Fimmtudagur 27. febrúar Sjávarútvegsspjallið - 41. þáttur Grétar Mar ræðir við Örn Pálsson

Ep 800Rauða borðið 27. febrúar Öryggi, her, hugvíkkun, skipulag, bækur og ljóð
Fimmtudagur 27. febrúar Öryggi, her, hugvíkkun, skipulag, bækur og ljóð Helen Ólafsdóttir ráðgjafi í öryggismálum ræðir við Gunnar Smára um öryggismál Evrópu og Íslands eftir stefnubreytingu ríkisstjórnar Trump. Bjarni Már Magnússon prófessor í lögfræði við Bifröst og Kristján Þór Sigurðsson, doktor í mannfræði takast á undir stjórn Maríu Lilju um hugmynd Bjarna um að kominn sé tími til að Íslendingar stofni her vegna víðsjár í heimsmálum. Mikið er rætt um sveppatripp þessa dagana og hvort lækning gegn áföllum leynist í þeim. Borið hefur á því að þjóðþekkt fólk flíki sveppum og sumir segjast hafa orðið edrú af þeim, þurfi ekki meðferð hjá SÁÁ. Anna Hildur Guðmundsdóttir formaður SÁÁ ræðir málin við Björn Þorláks. Hilmar Þór Björnsson arkitekt og Ásta Logadóttir ljósvistarsérfræðingur eru hluti hóps sem stendur fyrir ákalli um breytt viðhorf til skipulagsmála. Þau útskýra fyrir Gunnari Smára hvers vegna borgin er að þróast eftir hagsmunum fjármagnsins en ekki almennings. Vigdís Grímsdóttir og Oddný Eir ræða við skáld og bókafólk. Að þessu sinni kemur ritstjórinn Guðrún Steinþórsdóttir og ræðir um skynsvið bókmennta. Hvernig bækur geta aukið samlíðan og bætt bæði okkur og heiminn. Síðan kemur Eiríkur Örn Norðdahl að borðinu, nýtilnefndur til bókmenntaverðlauna Norðurlandaráðs fyrir bók sína Náttúrulögmálin.

Ep 798Sósíalísk stjórnarandstaða - 6. þáttur: Fordómar í fjölmiðlum
Miðvikudagur 26. febrúar Sósíalísk stjórnarandstaða - 6. þáttur Gestur þáttarins er María Lilja Ingveldar-Þrastardóttir Kemp blaðamaður á Samstöðinni. Í þættinum ræðum við almennt og vítt um fordóma, fáfræði, menningu í íslensku samfélagi og birtingarmyndir áróðurs sem er oft á tíðum dulinn.

Ep 799Rauða borðið 26. feb - Rannsóknablaðamennska, karlmennska, Ragnar Þór, reynsluboltar og Öskjuhlíð
Miðvikudagur 26. febrúar Rannsóknablaðamennska, karlmennska, Ragnar Þór, reynsluboltar og Öskjuhlíð Við hefjum leik á umræðu um spillingu og skyldum fjölmiðla að sporna gegn spillingu í stað þess að strjúka henni. Hefur fallið á trúverðugleika Fjórða valdsins með flokkadráttum? Sigurjón Magnússon Egilsson og Björn Þorláks ræða málin auk þess sem Sigurjón segir frá erfiðasta fréttamáli sem hann hefur glímt við. Viktor Gunnarsson, mma-kappi og Brynjar Karl körfuboltaþjálfari velta fyrir sér líðan karla og lausnum til að vinna úr vanda þeirra. María Lilja ræðir við þá undir yfirskriftinni Karlmennska á krossgötum. Sigurjón Magnús Egilsson kallar Reynsluboltana til leiks í þjóðmálaumræðunni. Þau Hallfríður Þórarinsdóttir mannfræðingur, Bolli Héðinsson hagfræðingur og Páll Ásgeir Ásgeirsson fjallamaður og fyrrverandi blaðamaður ræða saman um púlsinn í íslensku samfélagi. Einn umtalaðasti þingmaður dagsins í dag, Ragnar Þór Ingólfsson, situr fyrir svörum og ræðir persónulegt líf sitt í seríunni Óþekkti þingmaðurinn. Björn Þorláks spyr nýja þingmanninn spjörunum úr og ber biðlaunamálið á góma. Og Oddný Eir Ævarsdóttir lýkur þættinum með viðtali við Maríu Ericsdóttir Panduro sem kallar skógarhöggið í Öskjuhlíð ekkert annað en eyðileggingu.

Ep 797Rauða borðið 25. feb - Lögregluofbeldi, þýsk stjórnmál, kvikmynd um flóttafólk og landbúnaður
Þriðjudagur 25. febrúar Lögregluofbeldi, þýsk stjórnmál, kvikmynd um flóttafólk og íslenskur landbúnaður Daníel Thor Bjarnason, Pétur Eggerz, mótmælendur og Oddur Ástráðsson lögmaður ræða við okkur um Mótmælin í skuggasundinu, afleiðingar þess og málaferlin við ríkið. Við spyrjum almenning og heyrum skoðanir fólks á valdbeitingu lögreglumanna. Halldór Guðmundsson bókaútgefandi með meiru rýnir í úrslit kosninganna í Þýskalandi. Hann segir uppgang fasisma mikið áhyggjuefni og ræðir nýja stöðu Íslands í alþjóðlegu tilliti í varnarmálum. Anastasia Bortuali og Helgi Felixsson kvikmyndagerðarfólk segja okkur frá heimildamyndinni Temporary Shelter sem frumsýnd var í gær. Anastasia er flóttakona frá Úkraínu og vill með myndinni byggja brú milli tveggja heima; flóttafólks og innfæddra. Erna Bjarnadóttir, hagfræðingur hjá Mjólkursamsölunni, ræðir landbúnað, stóra ostatollamálið, ESB og stöðu bænda hér á landi nú um stundir. Hún segir að þungt hljóð hafi verið hjá bændum sem fjölmenntu á fund með Kristrúnu Frostadóttur forsætisráðherra í síðustu viku.

Ep 796Rauða borðið 24. febrúar: Langtíma-covid, femínismi, Bændablaðið, brennivín og sósíalismi
Rauða borðið 24. febrúar: Langtíma-covid, femínismi, Bændablaðið, brennivín og sósíalismi Gunnar Svanbergsson sjúkraþjálfari ríður á vaðið í dagskránni með áhrifaríku viðtali við Björn Þorláks. Gunnar segir þúsundir langveikra Íslendinga hafa fallið milli skips og bryggju hjá heilbrigðisyfirvöldum. Gunnar er sjálfur í hópi þeirra sem þjást af ,,longcovid." Hann lýsir persónulegum áskorunum sem felast í raun í því að læra að lifa upp á nýtt. Þau Guðrún Hulda Pálsdóttir, fráfarandi ritstjóri Bændablaðsins, og Skúli Bragi Geirdal hjá Fjölmiðlanefnd ræða stöðu blaðamennsku hér á landi. Bændablaðinu hefur í fyrsta skipti í Íslandssögunni tekist að verða meira lesið en Mogginn á höfuðborgarsvæðinu. Mahdya Malik, Najlaa Attaallah og Zara Amad frá Samtökum kvenna af erlendum uppruna tala við Maríu Lilju um það sem kallast: Minn hijab mitt val! Þær ræða kvenréttindi og óréttlætið í hvítum femínisma sem og valdeflingu sem felst í því að vera með hijab. Við segjum einnig fréttir frá ríkjum sósíalismans. Eyjólfur Eyvindsson og Kristbjörg Eva Andersen Ramos fara yfir það sem helst er að eiga sér stað í Suður Ameríku. Og við ljúkum þætti kvöldsins með gagnrýninni umræðu um áfengismál. Á sama tíma og WHO hrósar Íslendingum fyrir aðhaldsstefnu hyllir undir breytingar sem gætu gert illt verra. Árni Guðmundsson forvarnarráðgjafi ræðir áfengismál og lýðheilsu.

Ep 795Synir Egils 23. feb - Verkföll, meirihluti, átök og upplausn í Evrópu eftir Trump
Sunnudagurinn 23. febrúar Synir Egils: Verkföll, meirihluti, átök og upplausn í Evrópu eftir Trump Bræðurnir Sigurjón Magnús og Gunnar Smári Egilssynir taka á móti gestum og ræða við þá um helstu fréttir og pólitíkina. Að þessi sinni koma þær Guðlaug Svala Steinunnar Kristjánsdóttir verkefnastjóri, Katrín Júlíusdóttir almannatengill, María Sigrún Hilmarsdóttir fréttakona og Sanna Magdalena Mörtudóttir forseti borgarstjórnar og ræða fréttir vikunnar og stöðuna í stjórnmálum. Síðan kemur Hilmar Þór Hilmarsson prófessor og greinir stöðu öryggismála í Evrópu eftir stefnubreytingu Bandaríkjastjórnar.

Ep 794Rauða borðið - Vikuskammtur: Vika 8
Föstudagur 21. febrúar Vikuskammtur: Vika 8 Grín á Alþingi, heimur á heljarþröm, nýr borgarmeirihluti, landsfundur sjalla, hrútspungafýla og fleiri spennandi umræðuefni verða krufin með gestum Rauða borðsins í dag klukkan 16 í Vikuskammti af fréttum. Í beina útsendingu mæta Snorri Ásmundsson listamaður, Kristín Erna Arnardóttir kvikmyndagerðarkona, Karl Héðinn Kristjánsson fræðslufulltrúi og Lenya Rún lögfræðingur. Þátturinn er í umsjá Björns Þorláks

Ep 793Rauða borðið 20. feb - Trump, hjúkrun, próf, sjálfshatur, trans og tengslabylting
Fimmtudagur 20. febrúar Trump, hjúkrun, próf, sjálfshatur, trans og tengslabylting Sveinn Máni Jóhannesson sagnfræðingur ræðir um áhrif Trump á Evrópu og alþjóðastjórnmálin við Gunnar Smára. Hann ræðir síðan við þær sem vilja verða formenn Félags hjúkrunarfræðinga um kjaramál, starfsaðstæður og heilbrigðiskerfið. Helga Rósa Másdóttir, Jórunn Ósk Frímannsdóttir Jensen og Hulda Björg Óladóttir koma að Rauða borðinu. Björn Þorláks hringir í Þorlák Axel Jónsson, kennara við Háskólann á Akureyri, sem minnir á að samræmd próf voru tekin upp til að vinna gegn stéttaskiptingu. Inga Sigrún Atladóttir, kennari, skólastjórnandi, guðfræðingur, rithöfundur ræðir við Oddnýju Eir um aðgerðir gegn því sjálfshatri sem börn virðast þróa með sér innan skólakerfisins. Arna Magnea Danks ræðir við Oddnýju Eir um áframhaldandi útrýmingu trans fólks og setur í samhengi við almenna mannréttindabaráttu Ólafur Grétar Gunnarsson fjölskyldu- og hjónaráðgjafi segir Gunnari Smára frá tengslabyltingu karlmanna, lakari kvenheilsu og álagi á barnafjölskyldur.

Ep 792Sjávarútvegsspjallið - 40. þáttur
Fimmtudagur 20. febrúar Sjávarútvegsspjallið - 40. þáttur Grétar Mar fær til sín Ólaf Ragnar Sigurðsson, skipsstjóra, útgerðarmann og bónda.