
Samstöðin
710 episodes — Page 11 of 15

Ep 894Synir Egils 18. maí: Þjóðarmorð, söngur, löggur, stríð og fasismi
Sunnudagurinn 18. maí Synir Egils: Þjóðarmorð, söngur, löggur, stríð og fasismi Bræðurnir Sigurjón Magnús og Gunnar Smári Egilssynir taka á móti gestum og ræða við þá um helstu fréttir og stöðuna í stjórnmálum. Að þessu sinni koma þau Lára Zulima Ómarsdóttir almannatengsl, Ragnhildur Alda María Vilhjálmsdóttir borgarfulltrúi og Jakob Bjarnar Grétarsson blaðamaður og ræða allt nema veðrið og svo fara þeir bræður yfir stöðuna í pólitíkinni með sínu nefi.

Ep 893Rauða borðið - Helgi-spjall: Andri Snær
Laugardagur 17. maí Helgi-spjall: Andri Snær Andri Snær Magnason rithöfundur segir frá nýjustu ævintýrum sínum í Himalajafjöllum og Feneyjum og fer yfir feril sinn sem rithöfundur og aðgerðarsinni.

Ep 892Rauða borðið - Vikuskammtur: Vika 20
Föstudagur 16. maí Vikuskammtur: Vika 20 Í frjálst spjall út frá fréttum vikunnar mæta þau Brynhildur Björnsdóttir, kabarett-söngkona og höfundur bókarinnar Venjulegar konur -vændi á Íslandi, Arnar Eggert Thoroddsen, félagsfræðingur við Háskóla Íslands og Sigrún Sandra Ólafsdóttir, textíl-sóunar og fata-neyslufræðingur og Ágúst Borgþór Sverrisson, rithöfundur og fréttastjóri Dv og fara yfir fréttir vikunnar með Oddnýju Eir og segja sínar eigin fréttir.

Ep 891Rauða borðið 15. maí Trump, Vesturbugt, kvíði, Starmer, skoðanakúgun og kynjaþing
Fimmtudagur 15. maí Trump, Vesturbugt, kvíði, Starmer, skoðanakúgun og kynjaþing Eiríkur Bergmann prófessor ræðir áhrif Trump á stjórnmálin utan Bandaríkjanna við Gunnar Smára. Gunnar Smári ræðir hverfið sem byggja á vestan við Slippinn við Reykjavíkurhöfn við Ástu Olgu Magnúsdóttur, íbúa á svæðinu og verkefnastjóra, Egil Sæbjörnsson, myndlistarmann og aðgerðasinna í byggingarlist og Pál Jakob Líndal, doktor í umhverfissálfræði og stofnanda Envalys. Sigurður Eyjólfur Sigurjónsson, íþrótta- og æskulýðsfulltrúi og rithöfundur ræðir við Oddnýju Eir um nýútkomna bók sína ,,Ég er ekki fullkominn” þar sem hann fjallar á persónulegan og skemmtilegan hátt um viðureign sína við kvíða. Gunnar Smári slær á þráðinn til Guðmundar Auðunssonar hagfræðings í London og ræðir við hann um stöðuna í breskum stjórnmálum, ekki síst hraðleið Verkamannaflokks Keir Starmer til hægri. Allt snýst um tengsl og klíkur á Íslandi er kemur að störfum og tækifærum segir nemi í félagsráðgjöf og ljósmyndari, Sigga Svanborgardóttir, sem býr í Danmörku. Björn Þorláks ræðir við hana. Oddný Eir ræðir við Auði Önnu Magnúsdóttur, framkvæmdastýru Kvenréttindafélags Íslands, um nýliðið kynjaþing, norræna kvennasamstöðu og stöðuna á kvennasamstöðunni.

Ep 890Auðlindin - 15. maí
Fimmtudagur 15. maí Auðlindin Gestir: Heiða Guðný Ásgeirsdóttir bóndi í Sveinungsvík í Þistilfirði, Haukur S Magnússon tónlistamaður og vert á Messanum Ísafirði, Aðalsteinn Baldursson verkalýðsfrömuður á Húsavík, Eyþór Stefáns, sjómaður á Borgarfirði eystri og bæjarfulltrúi í Múlaþingi og Einar Freyr Elínarson sveitarstjóri Mýrdalshrepps. Hvað er að frétta? Fyrir norðan er það ekki síst að það hriktir í stoðum atvinnulífsins vegna Kísilverksmiðju á Bakka. Veðrið? Hitabylgjan Ferðaþjónustan í sumar? Listir-menning? Lífið? Sjávarútvegur ofl staða sveitarfélaga

Ep 889Sjávarútvegsspjallið - 50. þáttur: Brottkast og framhjálöndun
Sjávarútvegsspjallið - 50. þáttur: Brottkast og framhjálöndun Grétar Mar spjallar við Þórólf Júlían Dagsson og Gísla Gíslason.

Ep 888Rauða borðið 14. maí - Trump, náttúra, vinstrið, reynsluboltar, norðurslóðir og blíðan
Miðvikudagur 14. maí Trump, náttúra, vinstrið, reynsluboltar, norðurslóðir og blíðan Gunnar Smári ræðir við Hilmar Þór Hilmarsson prófessor um ferð Trump til Sádí Arabíu og nágrannalanda og um mögulegar friðarviðræður í Istanbúl á morgun. Björg Eva Erlendsdóttir, framkvæmdastjóri Landverndar, segir Oddnýju Eir hvernig þrengt er að starfi frjálsra félagasamtaka í náttúruvernd. Einar Már Jónsson, sagnfræðingur, rithöfundur og prófessor við Sorbonne-háskóla í París ræðir við Oddnýju Eir um möguleikann á vinstri breiðfylkingu í pólitík dagsins. Reynsluboltar heimsækja Sigurjón Magnús og ræða fréttir dagsins: Erna Indriðadóttir fréttakona, Steingerður Steinarsdóttir ritstjóri og Páll Ásgeir Ásgeirsson fjallamaður. Magnús Árni Skjöld, dósent og stjórnmálafræðingur við Háskólann á Bifröst, ræðir við Gunnar Smára um Ísland og norðurslóðir í breyttum heimi, ekki síst vegna stjórnmálalegrar óvissu í Bandaríkjum Trump. Trausti Jónsson veðurfræðingur upplýsir í samtali við Björn Þorláks að ef undan er skilinn janúar hafi veður hér á landi verið mjög milt og gott allt árið, svo gott að sætir tíðindum.

Ep 887Rauða borðið 13. maí - Fordómar, njósnir, arkitektúr, fegurð, dýravernd og félagsvandi fíkniefna
Þriðjudagur 13. maí Fordómar, njósnir, arkitektúr, fegurð, dýravernd og félagsvandi fíkniefna Við hefjum Rauða borðið á samræðu um leigubílamálið; Íslendingur að nafni Navid Nouri segir svo komið að honum sé ekki stætt að stunda akstur leigubíls, líkt og hann hefur gert að atvinnu í nokkur ár, vegna aukinna fordóma í samfélaginu. Eiginkona Navids, Nanna Hlín Halldórsdóttir mætti með honum til Maríu Lilju. Jón Þórisson, arkitekt, segir frá stríðinu um söguskýringar á hruninu í tengslum við ásakanir á hendur sérstökum saksóknara, ræðir um njósnir og spillingu og segir okkur af samstarfi sínu við Evu Joly eftir hrun. Hildigunnur Sverrisdóttir arkitekt ræðir húsin í borginni í samtali við Björn Þorláks, um pólitík byggingarlistar, vöntun á frumkvæði og fegurð. Ágúst Ólafur Ágústsson, ritari Dýravelferðarsamtaka Íslands, mætir til Maríu Lilju og fer yfir hina meintu öfga í dýravernd. Eru öfgarnar kannski úr hinni áttinni? Við ræðum að lokum um vímuefnavandann. Erla Björg Sigurðardóttir, lektor í félagsráðgjöf og framkvæmdastýra á áfangaheimili fyrir konur, Helena Gísladóttir, dagskrárstjóri meðferðar Krýsuvíkursamtakanna og MA-nemi í félagsráðgjöf og Sara Karlsdóttir löggiltur áfengis og vímuefnaráðgjafi og dagskrárstjóri meðferðar hjá Samhjálp segja Gunnari Smára frá því hvernig félagsleg staða fólks með vímuefnaraskanir getur grafið undan möguleikum þess á bata.

Ep 886Rauða borðið 12. maí - Trillusjómenn, spilling, fjölmiðlar, ofbeldi feðra, Me-dagurinn og heimþrá
Mánudagur 12. maí Trillusjómenn, spilling, fjölmiðlar, ofbeldi feðra, Me-dagurinn og heimþrá Við hefjum Rauða borðið á spjalli Maríu Lilju við trillusjómenn sem voru fastir í landi vegna öldugangs í Faxaflóa. Hún kíkti um borð í Ríkey og ræddi við bræðurna um borð um daginn og sjóinn. Svo ræðir Björn Þorláks við Þorvald Logason spillingarfræðing um siðferðilegar meinsemdir líðandi stundar í þjóðfélaginu, um fjölmiðla og vaxandi ítök útgerðarinnar í upplýsingaheiminum, sölu Íslandsbanka og bankahrunið. Rannveig Ágústa Guðjónsdóttir varði um daginn doktorsritgerð sína um feður sem beitt hafa ofbeldi. Hún kemur að Rauða borðinu og segir Gunnari Smára frá hvers hún varð vísari, veltir fyrir sér hvort ofbeldismenn geti breyst og hvernig samfélagið bregst við ofbeldinu og þeim sem beita því.Eyjólfur Eyvindsson mætir til Maríu Lilju og ræðir fréttir úr ríkjum sósíalismans. Þau fara á ferðalag um heiminn og ræða meðal annars nýtt bandalag Búrkína Fasó við Venesúela. Helga Edwardsdóttir, formaður ME félags Íslands og Stefanía Veiga Sigurjónsdóttir, flugfreyja og aðstandandi, ræða við Oddnýju Eir um ME á Íslandi í tilefni Alþjóðlegs dags ME vitundarvakningar. Æ fleiri glíma við langvarandi afleiðingar sýkinga og við þurfum að vera betur vakandi fyrir alvarlegum áhrifum þeirra á líf okkar. Jasmina Vajzovic sem fæddist í Bosníu en flutti ung til Íslands ræðir tilfinningar eins og heimþrá og ber saman kosti og galla landanna tveggja. Flókið getur verið að skilja táknkerfi Íslendinga, segir Jasmina. Björn Þorláks ræðir við hana í lok þáttar.

Ep 885Synir Egils: Auðlindir, innviðir, traust og svik
Sunnudagurinn 11. maí Synir Egils: Auðlindir, innviðir, traust og svik Bræðurnir Sigurjón Magnús og Gunnar Smári Egilssynir taka á móti gestum og ræða við þá um helstu fréttir og stöðuna í stjórnmálum. Að þessi sinni koma þau fyrst Alma Ýr Ingólfsdóttir formaður ÖBÍ og þingmennirnir Halla Hrund Logadóttir og Sigmar Guðmundsson. Síðan taka þau við Árni Helgason lögmaður og varaþingmaður, Lilja Alfreðsdóttir varaformaður Framsóknarflokksins og Ásgeir Brynjar Torfason ritstjóri Vísbendingar og ræða veiðigjöld, bankasölu og fleira. Í lokin taka þeir bræður stöðuna á pólitíkinni með sínu nefi.

Ep 883Rauða borðið - Helgi-spjall: Pétur Þorsteinsson
Laugardagur 10. maí Helgi-spjall: Pétur Þorsteinsson Í Helgispjalli Ruða borðsins er Pétur Þorsteinsson prestur óháða safnaðarins, sem stendur á tímamótum. Á sunnudag messar hann yfir sóknarbörnum sínum í síðasta skipti, hann kallar það lífslokamessu. Pétur hefur lengi verið þekktur fyrir petrískuna en með gamansömum hætti hefur hann fundið upp nýyrði og gefið út, orð sem gjarnan snúa upp á tunguna. En hver er manneskjan á bak við tunguna og húmorinn? Björn Þorláks reynir að komast undir yfirborðið.

Ep 884Rauða borðið - Vikuskammtur: Vika 19
Föstudagur 9. maí Vikuskammtur: Vika 19 Í Vikuskammti við Rauða borðið sitja í dag þau María Hjálmtýsdóttir kennari, Margrét Örnólfsdóttir handritshöfundur, Haukur Már Helgason rithöfundur og Ása Björk Ólafsdóttir prestur og ræða fréttir vikunnar þar sem finna á njósnir, svik, deilur, þjóðarmorð, frið og nýjan páfa.

Ep 882Rauða borðið 8. maí - Trillur, Grænland, ófriður, trans, þingkona og börn
Fimmtudagur 8. maí Trillur, Grænland, ófriður, trans, þingkona og börn Strandveiði byrjaði í vikunni. Gunnar Smári ræðir við Kjartan Sveinsson, formann Félags strandveiðimanna, um gildi veiðanna og verðmæti fyrir þjóðarbúið. Ný sláandi heimildarmynd um uppljóstrun á áður óþekktu arðráni á Grænlandi er til umræðu hjá Oddnýju Eir. Sólveig Ásta Sigurðardóttir, bókmenntafræðingur og ný-doktor á hugvísindasviði HÍ, Már Wolfgang Mixa, dósent í Viðskiptafræðideild Háskóla Íslands, Bryndís Björnsdóttir, myndlistarkona og doktorsnemi í mannfræði og Linda Lyberth Kristiansen sérfræðingur i málefnum árþjóða hjá Arctic Circle, ræða um Grænland og nýlenduhyggju. Átök hafa brotist út milli Indlands og Pakistan og bæta þau enn við ófriðinn í heiminum. Gunnar Smári ræðir við Hilmar Þór Hilmarsson prófessor á Akureyri um þau átök en ekki síður um stefnu Bandaríkjastjórnar í alþjóðamálum og þá sérstaklega í Evrópu. Arna Magnea Danks, leikkona, leikstjóri, kennari, og mannréttinda-fréttaritari okkar segir Oddnýju Eir frá nýjustu Trans-tíðindin í tengslum við pólitík heima og heiman. Hinn óþekkti þingmaður þessarar viku er tónlistarkonan Ása Berglind Hjálmarsdóttir, ný þingkona Samfylkingarinnar. Ása Berglind ræðir líf sitt á persónulegum nótum við Björn Þorláks en í þættinum eru flest umræðuefni leyfð - önnur er pólitík! Eydís Ásbjörnsdóttir, þingkona og talsmaður barna á Alþingi segir okkur Oddnýju Eir frá helstu baráttumálum í málefnum barna um land allt og sérstaklega út frá sjónarhorni landsbyggðarinnar.

Ep 881Sjávarútvegsspjallið - 49. þáttur
Fimmtudagur 8. maí Sjávarútvegsspjallið - 49. þáttur

Ep 879Rauða borðið 7. maí - Þjóðarmorð, reynsluboltar, fríhöfn, rafmagnsleysi, þroski barna og bridge
Miðvikudagur 7. maí Þjóðarmorð, reynsluboltar, fríhöfn, rafmagnsleysi, þroski barna og bridge Gunnar Smári slær á þráðinn til Qussay Odeh í Jerúsalem og innir hann eftir viðbrögðum Palestínumanna við þjóðarmorðinu og vaxandi kúgun. Sigurjón fær til sín reynslubolta að ræða samfélagsmál: Ásmundur Friðriksson fyrrverandi þingmaður, Erna Bjarnadóttir hagfræðingur og Jón G. Hauksson blaðamaður ræða helstu fréttamál. Ólafur Stephensen framkvæmdastjóri Félags atvinnurekenda segir Gunnar Smára hvernig erlent fyrirtæki sem rekur Fríhöfnina á Keflavíkurflugvelli misnotar einokunarstöðu sína til þrýsta niður verði frá birgjum. Fyrst og fremst til að auka eigin hagnað. Árni Baldur Möller verkfræðingur og Jón Skafti Gestsson hagfræðingur hjá Landsneti ræða um stórfellt rafmagnsleysi á Íberíuskaganum og velta fyrir sér í samtali við Gunnar Smára hvort sambærilegur skaði gæti orðið vegna veikleika flutningskerfisins hérlendis. Að fæðast snemma á árinu er stærri breyta en áður hefur verið talið þegar kemur að því að börn fái tækifæri til að keppa í úrvalshópum í námi og íþróttum. Daði Rafnsson doktorsnemi segir Birni Þorláks frá því hverju það skiptir að fæðast snemma árs eða seint. Bridgeþáttur Samstöðvarinnar fjallar í kvöld um úrslit Íslandsmótsins í sveitakeppni og hið stórskemmtilega kjördæmamót. Aðalsteinn Jörgensen stigahæsti spilari landsins og Ragnar Magnússon menntaskólakennari og glænýr Íslandsmeistari ræða við Björn Þorláks þáttastjórnanda og ber doblaða alslemmu á góma!

Ep 880Sósíalísk stjórnarandstaða - 13. þáttur: Veiðigjöld og vald - hver á auðlindina?
Miðvikudagur 7. maí Sósíalísk stjórnarandstaða - 13. þáttur Gestur þáttarins er Kári Jónsson, sósíalisti sem hefur starfað við ýmis störf í sjávarútveginum og hefur séð og fundið þær breytingar sem kvótakerfið hefur haft í för með sér. Fiskurinn í sjónum, hann hefur lengi verið gullkista þjóðarinnar. Í gegnum aldirnar hefur hann fætt okkur, haldið samfélögum gangandi og tryggt Íslandi sess á alþjóðlegum markaði. En á sama tíma hefur spurningin alltaf hangið yfir: Hver á fiskinn? Í þessum þætti ætlum við meðal annars rýna í frumvarp sem nú liggur fyrir Alþingi – um hækkun veiðigjalda. Með öðrum orðum: að útgerðir greiði hærra verð fyrir að nýta fiskimiðin okkar. En hvað þýðir það í raun? Þetta er réttlætismál fyrir land og þjóð. Hlusta má á þáttinn á youtube, í útvarpinu á FM 89.1, í appinu spilarinn.is, sjónvarpi Símans á rás 5 og á öllum helstu hlaðvarpsveitum. Deildu ef þú vilt sjá réttlátara samfélag!

Ep 878Rauða borðið 6. maí: Húsnæðismál, mótmæli, Gaza, Þýskaland, aðkomufólk, hannyrðir og maðkabækur
Þriðjudagur 6. maí Húsnæðismál, mótmæli, Gaza, Þýskaland, aðkomufólk, hannyrðir og maðkabækur Ragnar Þór Ingólfsson, þingmaður Flokks fólksins, er formaður átakshóps ríkisstjórnarinnar um húsnæðismál. Sem eru í tómu tjóni. Ragnar segir Gunnari Smára hvernig hann ætlar að bjarga málunum. María Lilja ræðir við mótmælendur við ríkisstjórnarfundinn í morgun, fólk sem krefst aðgerða íslenskra stjórnvalda vegna þjóðarmorðs í Gaza. Guðný Gústafsdóttir, Júlía Björnsdóttir og Elínborg Angantýsdóttir hafa allar verið í virkum samskiptum við fólk og fjölskyldur sem búa við yfirstandandi þjóðarmorð á Gaza. Þær segja Laufey frá sínu fólki þar og þeirra daglegu baráttu um lífsnauðsynjar. Margt er upp í loft í þýskum stjórnmálum. Ný ríkisstjórn fékk ekki nægan stuðning í þinginu í fyrstu tilraun og vinsælasti flokkurinn í skoðanakönnunum er sagður vinna gegn mannhelgi er hornsteinn stjórnarskrárinnar. Ragnar Hjálmarsson stjórnmálafræðingur í Berlín fer yfir stöðuna í símtali við Gunnar Smára. Halldór S. Guðjónsson, dósent við Háskóla Íslands, vinnur að athugun á hversu margt af því fólki sem hefur flutt til Íslands mun eyða ævikvöldinu á Íslandi og hversu margt snýr til baka. Hann ræðir við Sigurjón um málið. Najlaa Atillah ræðir við Maríu Lilju um mikilvægar hefðir í palestínsku handverki og hvers vegna hún hefur tekið það upp að kenna Íslendingum palestínskan útsaum í miðju þjóðarmorði á fólkinu hennar. Íslenskar „maðkabækur“ eru til sölu á Amazon. Bækurnar fjalla ekki um orma heldur eru þetta matreiðslubækur. Bjarki Ármannsson, doktorsnemi í íslenskri málfræði við Háskóla Íslands, vakti athygli á bókunum á bloggsíðu sinni Bjarkamál en hann ræðir við Maríu Lilju um málvísindi með tilliti til gervigreindar.

Ep 877Rauða borðið: Gaza, Cecot, 500 milljarðar, tollar, kosningar og fangelsi
Mánudagur 5. maí Rauða borðið: Gaza, Cecot, 500 milljarðar, tollar, kosningar og fangelsi Ísraelsstjórn samþykkti í morgun áætlun um að herða hernaðaraðgerðir á Gaza og leggja alfarið undir sig landsvæðið. Stjórnin hvatti íbúa til að færa sig til suðurs og von er á miklum blóðsúthellingum. Ingólfur Gíslason, kennari við menntavísindasvið er vel inni í málunum og ræðir við Maríu Lilju um nýjustu fréttir frá svæðinu. Þórður Snær Júlíusson, framkvæmdastjóri þingflokks Samfylkingarinnar ræðir við Sigurjón M um hve flókið það virðist að eiga næstum 500 milljarða króna á Íslandi amk fyrir stórútgerðina. Donald Trump, forseti Bandaríkjanna, efast um rétt Bandaríkjamanna á réttlátri málsmeðferð, eins og stjórnarskrá Bandaríkjanna kveður á um. Hann hefur sent hundruði “ólöglegra innflytjenda” í öryggisfangelsið Cecot í el Salvador. Eyjólfur Eyvindsson, tónlistamaður er sérfróður um fangelsið og ræðir við Maríu Lilju. Þorsteinn Þorgeirsson hagfræðingur ræðir við Gunnar Smára um tolla og efnahagsstefnu Donald Trump, sem hann segir að byggi á hagfræðikenningum Ravi Batra og sé raunhæf leið til að vinna gegn ójöfnuði í Bandaríkjunum. Páll Þórðarson efnafræðiprófessor í Sydney segir Gunnari Smára frá kosningabaráttunni í Ástralíu þar sem mikill viðsnúningur varð, það sem leit út fyrir að geta orðið stórsigur íhaldsmanna varð á endanum sögulegur ósigur. Er þetta enn eitt merkið um áhrifin af Trump, sem virðist hafa kallað bakslag yfir nýja hægrið. Guðmundur Ingi Þóroddsson, formaður Afstöðu - félags fanga, tekur að sér leiðsegja Gunnari Smára um yfirfull fangelsi og langa biðlista. Hverjir sitja í fangelsi sem ekki ættu að vera þar og hverjir komast ekki í afplánun?

Ep 876Synir Egils 4. maí: Njósnir, verðbólga, veiðigjöld og íþróttir
Sunnudagurinn 4. maí Synir Egils: Njósnir, verðbólga, veiðigjöld og íþróttir Bræðurnir Sigurjón Magnús og Gunnar Smári Egilssynir taka á móti gestum og ræða við þá um helstu fréttir og pólitíkina. Að þessi sinni koma þau Svandís Svavarsdóttir formaður Vg, Sigurður Örn Hilmarsson lögmaður og væntanlegur þingmaður Sjálfstæðisflokksins og Hafdís Hrönn Hafsteinsdóttir fyrrverandi þingkona Framsóknar og ræða fréttir vikunnar, átök og umræðu í samfélaginu. Síðan koma þrír af frambjóðendum til formanns Íþrótta- og ólympíusambands Íslands: Valdimar Leó Friðriksson, Magnús Ragnarsson og Brynjar Karl Sigurðsson og ræða íþróttahreyfinguna. Í lokin fara þeir bræður yfir pólitíkina með sínu nefi.

Ep 875Rauða borðið - Helgi-spjall: GVA
Laugardagur 3. maí Helgi-spjall: GVA Gunnar V. Andrésson ræðir um æsku sína og uppruna og samfélagið sem hann skráði sem ljósmyndari í rúma hálfa öld, en stór sýning með myndum hans sem blaðaljósmyndari verður opnuð í Ljósmyndasafninu í dag.

Ep 874Rauða borðið - Vikuskammtur: Vika 18
Föstudagur 2. maí Vikuskammtur: Vika 18 Stór fréttavika að baki og margt að ræða. Ásamt Maríu Lilju mæta til borðs þau: Guðný S. Bjarnadóttir, stjórnarformaður Vitundar, samtaka gegn kynbundu ofbeldi, Pétur Eggerz tæknistjóri og aðgerðasinni, Birkir Fjalar Viðarsson, metalhaus og þreyttur faðir og Helga Þórey Jónsdóttir, kennari og menningarfræðingur. Saman fara þau yfir þetta helsta og áhugaverðasta eins og t.d. rasisma og falsfréttir, bænastað á Keflavíkurflugvelli og furðulega andstöðu við iðkun trúarbragða á meðal leigubílstjóra. Við ræðum um opinn fund Sjórnskipunar -og eftirlitsnefndar um meðferð mála tengdum Ásthildi Lóu. Kveikur afhjúpaði njósnir lögreglumanna fyrir auðmenn, írsku rapparana í Kneecap og tónleika þeirra á Coachella sem orðnir eru að utanríkismáli í Bretlandi og Bandaríkjunum. Förum yfir nýafstaðna kröfugöngu á 1. maí, rafmagnsleysi á Spáni og fregnir af því að Kári Stef hafi látið af störfum fyrir Erfðagreiningu. Nágrannar hafa fengið nóg af ólykt og öskufalli sem fylgir líkbrennslu í Fossvogi. Þá undirrituðu Bandaríkin og Úkraína milli sín auðlindasamning sem á sér fáar hliðstæður, Ísrael brennur og Palestína bauð fram aðstoð við að ná tökum á skógareldum. Það er ekkert lát á brottvísunum flóttafólks, ástandið á Gaza komst einhvernveginn á nýjan botn í hryllingi. Dómur yfir unglingsdreng sem varð Bryndísi Klöru að bana og undrun margra fjölmiðlaneytenda yfir skipun Heimis Más, fjölmiðlafulltrúa Flokks fólksins í stjórn RÚV. Allskonar að frétta sumt sorglegt annað vont, skrítið eða skemmtilegt.

Ep 873Sjávarútvegsspjallið - 48. þáttur - Trillukarlar
Fimmtudagur 1. maí Sjávarútvegsspjallið - 48. þáttur Grétar fær að þessu sinni til sín tvo trillukarla, Þá Kjartan Sveinsson formann Strandveiðifélagsins og Guðlaug Jónasson.

Ep 872Sósíalísk stjórnarandstaða - Sósíalistar í Hafnarfirði
Miðvikudagur 30. apríl Sósíalísk stjórnarandstaða - 13. þáttur Gestir þáttarins eru félagar í Sósíalistaflokknum, þau Esther Bíbí Ásgeirsdóttir, tónlistarkona og starfskona Kvikmyndasafns Íslands, Jón Hallur Haraldsson forritari, og Sanna Magdalena Mörtudóttir, forseti borgarstjórnar, formaður velferðarráðs og oddviti Sósíalistaflokksins í Reykjavík. Í þættinum munum við beina sjónum okkar að Hafnarfirði, bænum þar sem hraunið mætir hafinu, ræða hvernig er að búa í Hafnarfirði, hvað skiptir þau máli, hvaða mál þau myndu leggja áherslu á og hvort Sósíalistaflokkurinn eigi erindi við íbúa Hafnarfjarðar í næstkomandi sveitarstjórnarkosningum.

Ep 871Rauða borðið 30. apríl: Njósnir, reynsluboltar, Stormur, Húsavíkurradíó og múslimahatur
Miðvikudagur 30. apríl Njósnir, reynsluboltar, Stormur, Húsavíkurradíó og múslimahatur Vilhjálmur Bjarnason ræðir við Sigurjón M. um mál málanna þennan miðvikudaginn, afhjúpun Kveiks en Vilhjálmur er einn þeirra sem voru óafvitandi um nokkurt skeið undir vökulu auga njósateymis á vegum Björgólfs Thors. Reynsluboltar Sigurjóns M. að þessu sinni eru þau Þórunn Sigurðardóttir, Margrét Saunders, og Páll Magnússon. Þau ræða hitamálin í samfélaginu, útgerðina og margt fleira. Una Torfa og Unnur Ösp Stefánsdóttir sömdu söngleikinn Storm sem Þjóðleikhúsið sýnir. Gunnar Smári og Sóley Lóa Smáradóttir ræða við þær um sýninguna, en ekki ungu kynslóðina sem verkið fjallar um. Aðalsteinn Árni Baldursson verkalýðsforingi á Húsavík ræðir við Björn Þorláks á zoom um stöðu atvinnumála, verkalýðshátíðina á morgun og fleira. Hjónin Mahdya Malik og Mansoor Malik mæta til Maríu Lilju og halda áfram samtalinu um útlendingaandúð og aukna hatursorðræðu í garð múslima eftir mikla dreifingu falsfréttar af kynferðisbroti á dögunum.

Ep 870Rauða borðið 29. apríl: Blaðamenn, gervigreind, Trump, Hafró, bólusetningar og pílagrímar
Þriðjudagur 29. apríl Blaðamenn, gervigreind, Trump, Hafró, bólusetningar og pílagrímar Sigríður Dögg Auðunsdóttir formaður Blaðamannafélagsins ræðir harða gagnrýni á rekstur félagsins og veika stöðu blaðamennsku. Pólitísk afskipti af fréttamennsku, fjölmiðlastyrkir og fleira verður til umræðu í samtali hennar við Björn Þorláksson. Þórhallur Magnússon, rannsóknarprófessor og tónlistarmaður, sérfræðingur í skapandi gervigreindarfræðum, ræðir við Oddnýju Eir um hver muni eiga og stjórna gervigreindinni. Haraldur Sigurðsson jarðfræðingur hefur búið í Bandaríkjunum í rúma hálfa öld. Gunnar Smári hringir í hann og spyr hvernig honum líði í ríki Trump. Jón Kristjánsson fiskifræðingur hefur aldrei verið skeptískari á fiskveiðistjórnun og gengur svo langt að tala um hryðjuverk í því samhengi. Björn Þorláks ræðir við hann um stofna sem éta sjálfa sig og meint úrræða- og þjónustuleysi Hafró. Kristjana Hrönn Ásbjörnsdóttir, faraldsfræðingur við Háskóla Íslands, ræðir um bólusetningar og helstu áskoranir og deilur þeim tengdar við Oddnýju Eir. Ólafur Ingólfsson jarðfræðingur hefur gefið út bók um andlega vakningu sem hann varð fyrir þegar hann fór í ansi langan göngutúr. Einelti á vinnustað leiddi til þess að hann gekk 2.200 kílómetra.

Ep 869Rauða borðið 28. apríl - Kynferðisbrot, óréttmæt vitnisburðarvæðing, fjölmiðlar og bókmenntahátíð
Mánudagur 28. apríl Kynferðisbrot, óréttmæt vitnisburðarvæðing, fjölmiðlar og bókmenntahátíð Maria Lilja fær til sín þær Drífu Snædal, talskonu Stígamóta og Dr. Margréti Valdimarsdóttur til að ræða afbrotatölfræði, falsfréttir, rasisma og nauðgunarmál. Gústav Adolf Bergmann Sigurbjörnsson, heimspekingur og ritstjóri Hugar ræðir við Oddnýju Eir um dómstól götunnar og óréttmæta vitnisburðavæðingu. Umræða um fjölmiðla verður á sínum stað eins og alltaf á mánudögum. Ágúst Borgþór Sverrisson, fréttastjóri DV, ræðir í samtali við Björn Þorláks gagnrýni á blaðamenn í viðkvæmum fréttamálum og hvernig auka megi fjölmiðlalæsi almennings og stofnana. Valur Gunnarsson, Maó Alheimsdóttir og Jórunn Sigurðardóttir flytja okkur fréttir frá Bókmenntahátíð með Oddnýju Eir.

Ep 868Synir Egils 27. apríl - Átök og umræða, fréttir og pólitík
Sunnudagurinn 27. apríl Synir Egils: Átök og umræða, fréttir og pólitík Bræðurnir Sigurjón Magnús og Gunnar Smári Egilssynir taka á móti gestum og ræða við þá um helstu fréttir og pólitíkina. Að þessi sinni koma þau fyrst Halla Gunnarsdóttir formaður VR, Heimir Már Pétursson framkvæmdastjóri þingflokks Flokks fólksins og Sanna Magdalena Mörtudóttir forseti borgarstjórnar og síðan þau Ólína Kjerúlf Þorvarðardóttir prófessor, Breki Karlsson formaður Neytendasamtakanna og Guðmundur Andri Thorsson rithöfundur og ræða málin. Þeir bræður taka líka púlsinn á pólitíkinni.

Ep 867Hipp hopp varpið - 4. þáttur: DJ Platurn
Atriðaorðaskrá Madonna U2 MTV, tónlistarsjónvarp Michael Jackson “Billy Jean” Run Dmc, Raising hell Run Dmc & Aerosmith “Walk this way” Pop lock, dans Electric boogaloo West coast electro (vesturstranda elektró/raftónlist) Boom bap Gangstarr KRS-One Techincs SL 1200 plötuspilari Stevie Wonder Otis Redding Old school hipp hopp, snemma á níunda tug síðustu aldar (upp úr 1980) Beastie boys, platan Paul's boutique, lag: “What comes around” Reggae tónlist, "The harder they come" (tónlist úr kvikmynd) Source tímaritið Ice T “I’m your pusher” Curtis Mayfield, platan "Superfly" lag: "Pusherman" Biz Markie, platan All samples cleared Stetasonic, “Talking all that jazz” Trommuheilar, líkt og TR-808 James Brown, “Funky drummer” Quincy Jones Roy Ayers Copenhaguen Jazz festival Jazz tónlist Donald Byrd Dusty fingers safnplötur: https://open.spotify.com/playlist/1hljQ3igAQh4GQ6YNuNcD5?si=e8fefd17e0984780 Fat beats plötubúðakeðja Funk tónlist, Parliament, Funkadelic, George Clinton Hieroglyphics Quannum Blackalicious Dj Shadow Blue note plötuútgáfan G funk, tónlistarstefna innan hipp hopps Akai S-900, glefsutæki (sampler) vinsælt hjá taktsmiðum hipp hopps Eazy-E, platan “Eazy-duz-it” “2 hard muthafuckas” (lag af Eazy-duz-it) Stan the gitar man Blaz Roca Dj Pooh Dj Yella Break dance, danssporið þyrlan Latinos, fólk af rómansk amerískum uppruna Arabian prince, Egyptian lover EDM, raftónlist Arabian prince ásamt N.W.A, lagið “Panic zone” Dr. Dre & Dj Yella, hljómsveitin World class wreckin’ cru Electro taktar og textaspuni (freestyle) Debbie Debb “When I hear music” Kendrick Lamar “I got weekend” Popping culture, dans menningSyrpuspólur (mix tape) Amiba, plötubúð í Berkeley Djplaturn.com 45session, útgáfa á 7” plötum Vínylplötur Dj Magic (Gísli Galdur) Chic, hljómsveit Skífuskank (turntableism) Platurn, á instagram Breaking the ice, syrpa frá Dj Platurn: https://soundcloud.com/platurn/sets/breaking-the-ice Myka 9, úr hljómsveitinni Freestyle fellowship J-Ro, úr hljómsveitinni Alkaholics

Ep 866Rauða borðið - Helgi-spjall: Heiða Björg
Laugardagur 26, apríl Helgi-spjall: Heiða Björg Heiða Björg Hilmisdóttir, Borgarstjóri mætir á persónulegu nótunum í Helgi-spjall hjá Maríu Lilju. Skemmtilegt samtal um sveitastúlku sem verður að Borgarstjóra, áskoranir móður langveiks barns, næringarfræði, grænt gímald, flóttafólk og hlutverk borgarinnar í friðarumleitunum í veröldinni.

Ep 865Rauða borðið - Vikuskammtur - Vika 17
Föstudagur 25. apríl Vikuskammtur: Vika 17 Í Vikuskammti við Rauða borðið sitja í dag þau Steinar Harðarson, athafnastjóri hjá Siðmennt og gjaldkeri Vg, Helga Arnardóttir fjölmiðlakona, Margrét Helga Erlingsdóttir fréttakona og Guðmundur Hrafn Arngrímsson formaður Leigjendasamtakanna og ræða fréttir vikunnar sem einkenndust af deilum og átökum um grundvallarþætti samfélagsins, mannréttindi og frelsi.

Ep 864Rauða borðið 23. apríl: Reynsluboltar, sumar-áformin, óþekkti þingmaðurinn, Dýrið og sagnvandamálin
Miðvikudagur 23. apríl Reynsluboltar, sumar-áformin, óþekkti þingmaðurinn, Dýrið og sagnvandamálin. Við hefjum samræðuna við Rauða borð kvöldsins á Reynsluboltunum. Sigurjón Magnús Egilsson fær til sín fína gesti, þau Oddnýju Harðardóttur, Lárus Guðmundsson, Jakob Frímann og Ragnheiði Ríkharðsdóttur. Þau ræða um mannlífið, pólitíkina hér og erlendis og margt annað, veiðigjöld, skólamat, páfa. María Lilja tók miðbæjarbúana tali á síðasta vetrardegi og spurði um sumar-áform og skil. Ólafur Adolfsson, þingmaður Sjálfstæðisflokksins, mætir til Björns Þorlákssonar sem óþekkti þingmaðurinn í kvöld. Ólafur er nýr þingmaður og hefur frá mörgu að segja. Við fræðumst síðan um Dýrið, nýstofnuð hagsmunasamtök mótmælenda en María Lilja fær til sín Daníel Thor Bjarnason en hann er einn af nímenningunum sem kærðu ríkið, sem var síðar sýknað, fyrir lögregluofbeldi á mótmælum í Skuggasundi. Í bridgeþætti Samstöðvar verður rætt við þá Ómar Olgeirsson og Guðmund Snorrason, sem báðir hafa spilað í íslenska landsliðinu. Þeir eru jafnframt báðir að fara að spila í úrslitum Íslandsmótsins í sveitakeppni sem hefjast á morgun. Í spjalli við Björn Þorláks ræða þeir félagar það helsta í undankeppninni á dögunum. Þá verða tvö sagnvandamál krufin.

Ep 863Hipp-hopp varpið - 3. þáttur: Kalliman Jah og Gnúsi Yones
Föstudagur 18. apríl Hipp-hopp varpið - 3. þáttur Laufey og Sesar fá til sín góða gesti, bræðurna Karl Kristján Davíðsson (Charlie D/KallimanJah/Youze/UC) og Magnús Jónsson (Gnúsi Yones/Magse/Maximus), sem hafa komið víða við í íslenskri tónlistarmenningu og víðar. Bræðurnir segja okkur frá sínum fyrstu kynnum af hipp-hoppi og ferðalagi sínu um menningarheim þess. Lagalista við þennan þátt má finna hér: Spotify: https://open.spotify.com/playlist/0vVKy5JHmSboTswFxMCoAT?si=25c58a52b7f3481f Tidal: https://tidal.com/browse/playlist/df45559d-7bb3-4cd4-b37b-38a58b009ba4 Linkar á SoundCloud: KallimanJah & Askur Yggdrasil Sound: https://on.soundcloud.com/iUC8KrQH6391upPc6 https://on.soundcloud.com/LhJiV6tRmA5efGMs7 https://on.soundcloud.com/MMRtmoDhbERVd8S4A KallimanJah - ný tónlist á Spotify https://open.spotify.com/track/1orDqHvHTDR0PyGjqJyJG7?si=yKaDvyGgRyulwty-whDCtg Heimasíða með myndlist eftir Kalla Youze / KallimanJah: www.ucartwork.com

Ep 863Rauður raunveruleiki - Dystópískir tímar, stéttabaráttan og framtíðin
Davíð Aron Routley, Halldór Ólafsson og Sigurrós Eggertsdóttir tala við Anitu Da Silvu Bjarnadóttur og Karl Héðinn Kristjánsson um nútímann, um sósíalisma og stórtíðindi undanfarinna vikna. Er fólk hræddara við félagshyggju en áframhaldandi kapítalisma? Munu tollar Trump reisa við Bandaríkin? Er enginn valkostur nema áframhaldandi kapítalismi?

Ep 862Hipp hopp varpið - 2. þáttur: Þórdís Claessen
Föstudagur 11. apríl Hipp hopp varpið - 2. þáttur í þessum þætti ræðir Sesar A við Þórdísi Claessen um hennar fyrstu kynni af, og lífinu með, hipp-hoppi. Þórdís breikaði í Breiðholti, og kynntist Hipp Hoppinu um miðjan níunda áratuginn þegar hún var í barnaskóla. Kraftur þessarar hreyfingar greip hana samstundis og mótaði að einhverju leyti hennar líf. Hún gaf út bók um íslenskt graffíti fyrir nokkrum árum, hefur tekið virkan þátt í tónlistarlífinu og starfað lengi við grafíska hönnun og myndlist. Síðustu árin hefur hún snúið sér að mannlífsskoðun í dagskrárgerð Landans á RÚV og einnig einbeitt sér mikið að bassaleik með sínum hljómsveitum, enda tónlistin hennar næring.

Ep 861Rauða borðið 22. apríl - Flóttabarn, páfi, kvóti, kvikmyndaskóli, ljósvíkingar og torfbæir
Þriðjudagur 22.april Flóttabarn, páfi, kvóti, kvikmyndaskóli, ljósvíkingar og torfbæir María Lilja fer með okkur á mótmæli við dómsmálaráðuneytið vegna brottvísunar Oscar Anders Florez Bocanegra, sautján ára kólumbísks drengs. Gunnar Smári ræðir við Pétur Pétursson guðfræðiprófessor um Frans páfa, sem Pétur hitti á sínum tíma og sem hafði mikil áhrif á hann eins og heiminn allan. Björn Ólafsson, útgerðartæknir og fyrrum sjómaður, gagnrýnir forstjóra Hafró og ósannindi sem tengjast loðnu, humar og þorski í samtali við Björn Þorláks. Böðvar Bjarki Pétursson stofnandi um Kvikmyndaskólann segir Gunnari Smára sögu skólans, sem hann segir að hafi verið drepinn af embættismönnum. Trans-fréttaritari Rauða borðsins, Arna Magnea Danks, mannréttinda-aktívisti, áhættuleikstjóri og leikkona, ræðir við Oddnýju Eir um myndina Ljósvíkingar. Sigurjón B. Hafsteinsson, prófessor við Háskólann og mannfræðingur, segir Birni Þorláks frá því þegar torfbæir voru víðast hvar jafnaðir við jörðu á öld steinsteypunnar.

Ep 860Rauða borðið - Vikuskammtur: Vika 15
Föstudagur 11. apríl Vikuskammtur: Vika 15 Í Vikuskammtinn mæta að þessu sinni Rauða borðs-liðar Samstöðvarinnar og gera upp samræðu vikunnar og ársins og ræða um persónuleg tengsl sín við páska. Gunnar Smári og Sigurjón Magnús, Björn, María Lilja og Oddný Eir ásamt Laufeyju Líndal spyrja hvert annað spjörunum úr.

Ep 859Rauða borðið 9. apríl - Stjórnarandstaða, tollastríð, reynsluboltar, dauðastríð, þingmaður, vá og ópera
Miðvikudagur 9. apríl Stjórnarandstaða, tollastríð, reynsluboltar, dauðastríð, óþekktur þingmaður, vá og ópera Er Sjálfstæðisflokkurinn að missa það? Þannig spyr einn af þingmönnum ríkisstjórnarinnar, Sigurjón Þórðarson sem ræðir um grímulaust málþóf minnihlutans, fýlu, frekju og eignarhald í spjalli við Björn Þorláks. Már Wolfgang Mixa, dósent við viðskiptafræðideild HÍ, ræðir um tolla og efnahagsstefnu Trump við Gunnar Smára. Reynsluboltarnir koma í spjall við Sigurjón Magnús: Bolli Héðinsson, hagfræðingur Einar Kárason rithöfundur Kristín Ástgeirsdóttir sagnfræðingur og fyrrum þingkona. Mest bar á umræðunni um veiðigjöld útgerðarinnar. Og auðvitað Donald Trump. Fyrsta langreyðurin sem Hvalur hf. skaut eftir að veiðar hófust á ný, eftir tímabundna stöðvun, háði 35 mínútna dauðastríð. María Lilja fær til sín þær Rósu Líf Darradóttur, lækni og formann samtaka um dýravelferð og stjórnarkonu Hvalavina auk Valgerðar Árnadóttur, nema í stjórnmálafræði og talskonu Hvalavina sem eru á einu máli um að ekki sé mögulegt að veiða stórhveli með mannúðlegum hætti. Óþekkti þingmaðurinn í þessari viku er Guðmundur Ari Sigurjónsson. Hver er hann? Hverjar eru hans persónulegu hliðar, hvað leynist bak við yfirborðið? Hvernig fékk hann örið á andlitinu? Björn Þorláks ræðir við nýjan þingmann á Alþingi. Þorgerður María Þorbjarnardóttir, jarðfræðingur og Guðmundur Steingrímsson doktorsnemi ræða um véfengingu Frosta Sigurjónssonar og fleiri um vá sem steðjar að okkur vegna hlýnunar jarðar af manna völdum. Friðrik Margrétar-Guðmundsson tónskáld og Hanna Dóra Sturludóttir söngkona segja okkur frá Brím, nýrri íslenskri óperu sem tekur á heitri umræðu um kúltúrbörn.Er Sjálfstæðisflokkurinn að missa það? Þannig spyr einn af þingmönnum ríkisstjórnarinnar, Sigurjón Þórðarson sem ræðir um grímulaust málþóf minnihlutans, fýlu, frekju og eignarhald í spjalli við Björn Þorláks. Friðrik Margrétar-Guðmundsson tónskáld og Hanna Dóra Sturludóttir söngkona segja okkur frá Brím, nýrri íslenskri óperu sem tekur á heitri umræðu um kúltúrbörn.

Ep 858Rauða borðið - Trump, Woke, varnarsamningur, vindmyllur, Gaza, ríkisborgararéttur og Geðbrigði
Þriðjudagur 8. apríl Trump, Woke, varnarsamningur, vindmyllur, Gaza, ríkisborgararéttur og Geðbrigði Hagfræðingarnir Þorsteinn Þorgeirsson og Gylfi Magnússon ræða um um tolla og efnahagsstefnu Trump. Og eru ekki á sama máli í samtali við Gunnar Smára. Þorsteinn segir þá leiða til góðs en Gylfi til ills. Brynjar Karl Sigurðsson körfuboltaþjálfari og Valgerður Þ. Pálmadóttir, kennari í Háskóla Íslands í kynjafræði og hugmyndasögu koma í spjall við Rauða borðið og fara yfir í líflegri samræðu við Oddnýju Eir og Björn Þorláks yfir átökin um kynjafræðina, wókið, umræðuna, ofbeldið, rétttrúnaðinn og samræðuna. Guttormur Þorsteinsson formaður Samtaka hernaðarandstæðinga og Elvar Ástráðsson skjalavörður samtakanna ræða um leyni-varnarsamning íslenskra stjórnvalda við Bandaríkin þar sem bandaríski herinn hefur allan rétt að leggja undir sig land og innviði. Andrés Skúlason, verkefnisstjóri hjá Landvernd og Kristín Helga Gunnarsdóttir rithöfundur í stjórn Landverndar ræða um yfirgengileg áform um vindmyllugarða á Íslandi og fórnarkostnaðinn. Hjálmtýr Heiðdal formaður félagsins Ísland Palestína segir fréttir af þjóðarmorði ásamt Maríu Lilju.Natan HK, Íslendingur í Kaleforníu, gagnasérfræðingur og forritari segir frá umsókn sinni um íslenskan ríkisborgararétt og frá ljónunum í veginum. Agnes Ósk Ægisdóttir og Ásthildur Emma Ingileifardóttir meðlimir hljómsveitarinnar Geðbrigði, sigurvegarar Músíktilrauna mæta til Maríu Lilju ásamt Esther Bíbí bassaleikara Kolrössu sem jafnframt eru fyrrum sigurvegarar keppninnar.

Ep 857Rauður raunveruleiki - Vistkerfiskrísa kapítalisma: Sósíalískir Umhverfissinnar
Á degi jarðarinnar, 22. apríl, fer fram formlegur stofnfundur baráttuhópsins Sósíalískir Umhverfissinnar. Hópurinn mun beita sér fyrir lífvænlegu og sjálfbæru umhverfi og félagslegu réttlæti! Arnar Páll Gunnlaugsson, Sigurrós Eggertsdóttir og Stefán Örn Ingvarsson Olsen ræða við Karl Héðinn Kristjánsson um stofnun baráttuhópsins Sósíalískir Umhverfissinnar.

Ep 855Synir Egils: Ríkisfjármál, veiðigjöld, tollar, pólitík og öryggismál
Sunnudagurinn 6. apríl Synir Egils: Ríkisfjármál, veiðigjöld, tollar, pólitík og öryggismál Bræðurnir Sigurjón Magnús og Gunnar Smári Egilssynir taka á móti gestum og ræða við þá um helstu fréttir og pólitíkina. Að þessi sinni koma þau Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar, Ragnhildur Alda María Vilhjálmsdóttir borgarfulltrúi og Hallgrímur Helgason rithöfundur og ræða fréttir vikunnar og stöðuna í pólitíkinni, hér heima og erlendis. Björn Þorláksson fær Kristrúnu Frostadóttur í heimsókn og ræðir við hana um öryggismál og annað sem ríkisstjórnin vill endurmeta og breyta. Þeir bræður taka svo stöðuna á pólitíkinni með sínu nefi.

Ep 854Hipp-hopp varpið - 1. þáttur - Sesar A og Laufey
Atriðaorðalisti: Hipp hopp varpið 1.þáttur Þjóðviljinn Rokk í Reykjavík Grace Jones Bob Marley Prince, Purple rain Poppkorn (tónlistarþáttur)Skonrokk (tónlistarþáttur)Eric B & Rakim, “Microphone fiend” Mc Lyte, platan: Lyte as a rock Eric B & Rakim, “Follow the leader” Wham, hljómsveit Duran duran, hljómsveit Mc Lyte, “Cappucino” - platan: Eyes on this EPMD, “So what cha sayin” Duran Duran, “Wild boys” Sugar hill gang, “Rappers delight” Spray can art & Subway art, bækur um graffiti Sesar A, “List ein” Do the right thing (Breyttu rétt), Spike Lee kvikmynd 1989 Public Enemy, “Fight the power” Do the right thing (soundtrack), tónlist úr myndinni “Breyttu rétt” LL cool J, platan: Walking with a panther Dj Jazzy Jeff & the Fresh Prince, platan: He’s the dj, I’m the rapper Dj Cash Money, transformer scratch Ultramagnetic Mc’s, Kool KeithDj Kool Herc, afmælisveisla Cindy systur hans HMT Empire Windrush Dub tónlist Reggae tónlist Rastafari Soul II Soul, hljómsveit Trip hop, tónlistarstefna Acid house, tónlistarstefna Acid jazz, tónlistarstefna Ninja tune, plötuútgáfa Jah Shaka Sound System (London) Aba Shanti-I Sound System (London) Ragga twins, hljómsveit Jungle, tónlistarstefna James Brown, “Funky drummer” Drum n’ bass, tónlistarstefna Sound system, tónlistarsena Blandspóla (mix tape) Jazz ballett, danstegund Curtis Mayfield, tónlistarmaður Break beat, taktbrots tónlist Jøden (Jótinn), danskur rappari Óvinir ríkisins, bók eftir Guðna Th. Jóhannesson Pinochet, einræðisherra í Chile Viktor Jara Violeta Parra Break machine Public Enemy, platan: It takes a nation of millions to hold us back Public Enemy “Don't believe the hype” House, tónlistarstefna Mk Asanti (Skáld og fræðimaður USA)Grandmaster Flash Dj Melle Mel Crack epidemic Sandinstas, Nicaragua Contras, Honduras C.I.A. Ronald Reagan Grandmaster Flash and the furious five, “the message”; “the message II” Ice T Úlfur Kolka Source magazine Ice Cube Africa Bambaataa Zulu nation Afro centric Disco (tónlistarstefna)Chic “Good times” Native tongues A tribe called quest, plöturnar: People instinctive travels…; Low end theory De la Soul Jungle brothersBlack Sheep Queen Latifah Monie Love Q-Tip, the Abstract A tribe called quest “Buggin’ out” De la soul, plöturnar: 3 feet high and rising; De la soul is dead Blaz Roca Sesar A, platan: Stormurinn á eftir logninu

Ep 853Rauða borðið - Helgi-spjall: Ólöf Arnalds
Laugardagur 5. apríl Helgi-spjall: Ólöf Arnalds Ólöf Arnalds, söngvaskáld, kemur í helgi-spjall og segir frá ástinni á tónlistinni og á öllu hinu, ræðir um sönginn, sorgina, gleðina og samruna skynsviðanna.

Ep 852Rauða borðið - Vikuskammtur: Vika 14
Föstudagur 4. apríl Vikuskammtur: Vika 14 Ingibjörg Reynisdóttir, leikkona og jógi - Maren Freyja Haraldsdóttir, félagsfræðingur - Björgvin Gunnarsson blaðamaður á Mannlífi og Egill Viðarsson, rafbókaframleiðandi og tónlistarmaður koma í vikuskammt til Maríu Lilju í dag.

Ep 851Sjávarútvegsspjallið - 45. þáttur: Litlar útgerðir, strandveiðar og útflutningur
Fimmtudagur 27. mars Sjávarútvegsspjallið - 45. þáttur Grétar Mar fær til sín þá Arnar Atlason og Rúnar Björgvinsson að þessu sinni en þeir ræða litlar útgerðir, strandveiðar, útflutning og fleira.

Ep 850Rauða borðið 3. apríl: Flóttafólk, bridge, fréttagagnrýni, dómsdagsmálmur og loftslagsmál
Rauða borðið 3. apríl Flóttafólk, bridge, fréttagagnrýni, dómsdagsmálmur og loftslagsmál Vilhjálmur Árnason þingmaður Sjálfstæðisflokksins, Fida Abu Libdeh varaþingmaður Framsóknarflokksins, Þorbjörg Þorvaldsdóttir bæjarfulltrúi Garðarbæjarlistans og verkefnisstjóri S78 og Saga Kjartansdóttir sérfræðingur í vinnumarkaðsmálum ASÍ fóru yfir málefni flóttafólks og kerfislegar hindranir með Maríu Lilju í mjög heitum umræðum við borðið. Björn Þorláks fær góða gesti til sín til að ræða bridge, eitthvað sem Bjössi hyggst bjóða uppá reglulega næstu vikur. Þetta eru þau Matthías Imsland, Sigurpáll Ingibergsson, María Haraldsdóttir Bender, Anna Guðlaug Nielsen og Hallveig Karlsdóttur. Finnur G Olguson, leikmyndasmiður mætir til Oddnýjar með harðorða gagnrýni i garð fréttastofu RÚV í tengslum við þjóðarmorðið á Gaza. Reykjadoom er nýleg tónlistar og menningarhátíð af harðari gerðinni sem fer fram núna um helgina. Hörður Jónsson, einn skipuleggjenda leiðir okkur í allan sannleikann um Doom metal og fara yfir dagskránna með Maríu Lilju. Frosti Sigurjónsson, fyrrum alþingismaður ræðir um efasemdir sínar um loftslagsbreytingar af mannavöldum.

Ep 849Sósíalísk stjórnarandstaða - 11. þáttur: Sósíalistar á Akranesi
Miðvikudagur 2. apríl Sósíalísk stjórnarandstaða - 11. þáttur Gestir þáttarins eru félagar í Sósíalistaflokknum, þeir Valdimar Andersen Arnþórsson frístundabóndi og Jón Þórir Guðmundsson garðyrkjufræðingur sem eru búsettir á Akranesi. Í þættinum munum við kynnast þeim, félagsstarfi sósíalista á Akranesi og þeirra hugarefnum, kjördæminu, sveitarfélaginu þeirra og væntanlegum sveitarstjórnarkosningum sem fara fram 16. maí 2026.

Ep 848Rauða borðið - Fiskur undir steini, brottvísun, Reynsluboltar, Borgarahreyfing og tækniauðvald
Miðvikudagur 2. apríl Fiskur undir steini, brottvísun, Reynsluboltar, Borgarahreyfing, fólkið og tækniauðvald Byrjum þáttinn á Stiklu úr umræðuþætti frá 1974 um Fisk undir steini og förum svo í viðtal við þá Ólaf Hauk Símonarson leikskáld og Þorstein Jónsson kvikmyndaleikstjóra sem gerðu á sínum tíma heimildarmyndir fyrir Ríkissjónvarpið, meðal annars Fiskur undir steini sem fjallaði um menningarneyslu í sjávarþorpinu Grindavík. Sú mynd verður sýnd á Pálmasunnudag í Bíó Paradís. Af því tilefni segja þeir félagar Gunnari Smára frá myndinni og ekki síður harkalegar viðtökur sem myndin fékk. Þá flytjum við frétt af brottvísun, Jón Sigurðsson lögmaður segir frá máli Zahra Hussein (móðir) og Farah Mohamed dóttur hennar. Mál þeirra er flókið, föður hefur verið vísað frá landi, hann var settur í herinn um leið og hann snéri aftur og síðast þegar spurðist til hans var hann særður en síðan eru nokkrir mánuðir. Ekki hefur verið tekin afstaða til erfiðra veikinda sem leiddu til fötlunar móður og skólagöngu stúlkunnar sem gengur í flensborgarskóla. Reynsluboltar Sigurjóns að þessu sinni eru þau Ólína Kjerulf Þorvarðardóttir, Ólafur Þ. Harðarson, Kristinn Sigmundsson og Kristjám Möller rætt er um fréttir vikunnar sem eru af ýmsu tagi að venju. Margrét Tryggvadóttir rithöfundur segir Gunnari Smára frá deilum og átökum innan Borgarahreyfingarinnar, stjórnmálahreyfingar sem klofnaði og sprakk. María Lilja og Oddný Eir réðust að fólki með hljóðnema á lofti á Þjóðarbókhlöðunni og spurðu gesti um fjölmiðla og gervigreind. Guðröður Atli Jónsson, tæknimaður, ræðir að lokum við Oddnýju um ógnir tækniauðvaldsins, gervigreind og framtíðina.

Ep 847Rauða borðið 1. apríl - Flóttafólk, fjármálaáætlun, Breiðholt, tungumál, Kristni og Íslam
Þriðjudagur 1. apríl Flóttafólk, fjármálaáætlun, Breiðholt, tungumál, Kristni og Íslam Fundur stjórnmalafræðinema um málefni flóttafólks fór fram í HÍ í dag. Við María Lilja og Pétur Fjelsteð vorum þar og tókum Vilhjálm Árnason þingmann sjálfstæðisflokks tali eftir fund. Hann sagði á fundinum að helsta hindrun frjáls flæðis á landamærum væri í raun verkalýðshreyfingin og við þurftum að vita meira. Ásgeir Brynjar Torfason ritstjóri Vísbendingar ræðir um fjármálaáætlun ríkisstjórnarinnar. Hvað breytist, ef eitthvað, frá stefnu fyrri ríkisstjórnar? Birna Gunnlaugsdóttir kennari í Breiðholtinu blandar sér í umræðu um skólamálin. Kann að vera að umræðan um grunnskólana litist af fordómum? Lítum við sama vandann ólíkum augum eftir því hvaða hverfi um ræðir? Björn Þorláks ræðir við Birnu Ólafur Guðsteinn Kristjánsson, rithöfundur og íslenskukennari við Háskóla Íslands og áhugamaður um tungumálalega fjölbreytni og framgang íslenskunnar, segir okkur frá frumlegum tungumála-viðburði sem verður á bókasafninu á Ísafirði á föstudaginn; Tungumálaskipti/Tandem language sem er einhverskonar tungumála-tinder-stefnumót. Muhammed Emin Kizilkaya, doktorsnemi í félagsfræði við Háskóla Íslands og meðlimur í Félagi Horizon, sr. Matthildur Bjarnadóttir, prestur í Vídalínskirkju og MA í trúarbragðafræði og sr. Sigurvin Lárus Jónsson prestur í Vídalínskirkju og doktor í nýjatestamentisfræðum ræða við Gunnar Smára um kristni og Islam á Íslandi, fordóma milli trúarbragða og hvernig skapa megi frið og sátt í samfélaginu.

Ep 846Rauða borðið 31. mars: Fjölmiðlar, skattur, veiðigjöld, No Other Land og útskriftartónleikar
Rauða borðið 31. mars Fjölmiðlar, skattur, veiðigjöld, No Other Land og útskriftartónleikar Í dag eru tvö ár liðin síðan Fréttablaðið fór á hausinn og hætti starfsemi. Stórt gat varð til í fjölmiðla- og þjóðmálaumræðu landsmanna sem hefur ekki verið fyllt. Þau Sigurjón Magnús Egilsson, María Lilja, Gunnar Smári og Björn Þorláks ræða áhrifin af falli Fréttablaðsins og stöðu fjölmiðlunar í dag. Töluverðri orku hefur verið varið í umræðu um hvort veiðigjöld séu skattur eða ekki. Og skiptir skilgreiningin einhverju máli? Gísli Tryggvason lögmaður ræðir skilgreiningar við Rauða borðið sem virðast vera ólíkar eftir því hvaða fræðigrein á í hlut. Arnar Atlason, framkvæmdastjóri Tor fiskvinnslu og formaður Samtaka fiskframleiðenda, ræðir um breytingar á veiðigjöldum og fjölgun strandveiðidaga. Hans sjónarmið eru allt önnur en þau sem stórútgerðin heldur á lofti. Palestínska Óskarsverðlauna Heimildarmyndin No Other Land verður sýnd í Bíó Paradís í þessari viku, Unnur Andrea Einarsdóttir, myndlistarkona kom og ræddi myndina og þjóðarmorðið við Maríu Lilju. Þessa dagana eru nemar við Menntaskóla í tónlist að ljúka framhaldsstigi og útskrifast frá skólanum og verður mikil tónleikaröð næstu daga þar sem almenningur getur komið í Hörpu og hlustað á framtíð Íslands. Þau Fannar Árni, Oddný Þórarinsdóttir og Þórdís Árnadóttir, 18-20 ára brottfararnemendur Menntaskóla í tónlist, ræða við Björn Þorláks um tímamótin.

Ep 845Synir Egils 30. mars - Veiðigjöld, átök, börn og Flokkur fólksins
Sunnudagurinn 30. mars Synir Egils: Veiðigjöld, átök, börn og Flokkur fólksins Bræðurnir Sigurjón Magnús og Gunnar Smári Egilssynir taka á móti gestum og ræða við þá um helstu fréttir og pólitíkina. Að þessi sinni koma þau Þórður Snær Júlíusson framkvæmdastjóri þingflokks Samfylkingarinnar, Sonja Þorbergsdóttir formaður BSRB og Sanna Magdalena Mörtudóttir forseti borgarstjórnar og ræða fréttir vikunnar og stöðu stjórnmálanna. Salvör Nordal umboðsmaður barna kemur og ræður stöðu barna, en mörg mál hafa komið upp undanfarið sem benda til þess að þau börn sem eru í vanda séu ekki gripin. Styr hefur staðið um Flokk fólksins undanfarnar vikur. Inga Sæland félags- og húsnæðismálaráðherra og formaður flokksins ræðir pólitíkina, ríkisstjórnina og flokkinn.