PLAY PODCASTS
Samstöðin

Samstöðin

710 episodes — Page 9 of 15

Ep 994Fréttatíminn 26. ágúst

Þriðjudagur 26. ágúst FRÉTTATÍMINN Gunnar Smári, María Lilja og Björn Þorláks segja fréttir Samstöðvarinnar með sínu lagi. Hvert er samhengi fréttanna?

Aug 26, 202546 min

Ep 994Raða borðið 26. ágúst - Lög, innflytjendur, skólamál, forsetaframboð og rauði þráðurinn

Þriðjudagur 26. ágúst Lög, innflytjendur, skólamál, forsetaframboð og rauði þráðurinn Gísli Tryggvason lögmaður ræðir lagalegt mikilvægi nýfallins dóms þar sem kona sem varð fyrir ofbeldi hafði betur gegn íslenska ríkinu hjá Mannréttindastól Evrópu. Ekki dugar eitt og sér að bera við skorti á fjármunum eða mannafla ef rannsókn mála er ábótavant. Sabine Lespkof ræðir við Maríu Lilju um mýtuna sem felst í orðræðu hægrisins af hættulega útlendingnum, flóttamanninum sem kominn er til að breyta vestrinu til hins verra og mergsjúga velferðarkerfin. Atli Harðarson prófessor við menntavísindasvið ræðir skólamál við Gunnar Smára, um hástemmda námskrá sem engin leið er fyrir skólana að uppfylla og auglýsingamennsku kringum framhaldsskóla. Fulltrúar valdaflokkanna sóttu fast að Katrín Jakobsdóttir yrði forseti Íslands vegna þess að hún var talin fulltrúi kerfisins og myndi engum bátum rugga. Arnar Þór Jónsson ljóstrar þessu upp í uppgjörsviðtali við Björn Þorláksson. Bjarki Þór Grönfeldt stjórnmálasálfræðingur og fyrrum aðstoðarmaður Guðmundar Inga Guðbrandsson ræðir við Gunnar Smára um stéttabaráttuna, vinstrið og sósíalismann.

Aug 26, 20254h 17m

Ep 993Fréttatíminn 25. ágúst

Mánudagur 25. ágúst Fréttatíminn María Lilja, Gunnar Smári og Björn Þorláks segja fréttirnar með sínu nefi. Hvert er samhengi fréttanna?

Aug 25, 202545 min

Ep 992Rauða borðið 25. ágúst - Blaðamannamorð, hávaxtastefnan, menntamál, Gunnar blaðasali og maraþon

Mánudagur 25. ágúst Blaðamannamorð, hávaxtastefnan, menntamál, Gunnar blaðasali og maraþon Við hefjum leik á samtali Maríu Lilju við formann Blaðamannafélagsins. Sigríður Dögg Auðunsdóttir er slegin yfir þeim hörmungum sem blaðamenn á Gaza þurfa að þola. Hún segir löngu orðið ljóst að sannleikurinn sé orðinn að skotmarki Ísraelsmanna á Gaza. Halla Gunnarsdóttir formaður VR ræðir við Gunnar Smára um hávaxtastefnu Seðlabankans og niðurskurðarstefnu ríkisstjórnarinnar sem saman grafa undan lífskjörum almennings, einkum ungs fólks. Aukið áhyggjuefni í grunnskólum borgarinnar er hve nemendahópur er skiptur eftir hverfum. Þetta segir Ómar Örn Magnússon skólastjóri Hagaskóla. Hann ræðir ýmsar áskoranir menntamála og jöfnuð. Gunnar Gunnarsson var lengi kunnur blaðasali í borginni. Hann glímir við fötlun sem lýsir sér helst í því að hann á erfitt með að tjá sig og fólk á erfitt með að skilja hann. En á bak við þessa fötlun býr frjór hugur sem fylgist vel með og hefur skoðanir á mörgu. Gunnar Smári ræðir við nafna sinn. Mikið hefur verið rætt um ensku- og íslenskukunnáttu menntamálaráðherra undanfarið. Hvað er uppbyggilegt í þeirri umræðu og hvað gæti verið pólitísk atlaga - eða valdbeiting? Eiríkur Rögnvaldsson ræðir málin. Við endum þáttinn á því að heyra í þremur ungum hlaupurum sem þreyttu frumraun sína í Reykjavíkurmaraþoninu um helgina. Þeir eru Kári Hlíðberg, Kári Baldursson og Starkaður Björnsson.

Aug 25, 20253h 40m

Ep 991Synir Egils: Stríð, friður, vextir, verðbólga og húsnæðiskreppa

Sunnudagurinn 24. ágúst Synir Egils: Stríð, friður, vextir, verðbólga og húsnæðiskreppa Bræðurnir Sigurjón Magnús og Gunnar Smári Egilssynir taka á móti gestum og ræða við þá um helstu fréttir og stöðuna í stjórnmálum. Að þessu sinni koma fyrst þau Guðmundur Hálfdanarson sagnfræðingur, Lára Zulima Ómarsdóttir almannatengill og Kolbrún Áslaugar Baldursdóttir þingmaður og ræða fréttir vikunnar og stöðu mála hér heima og erlendis. Síðan koma þeir Ragnar Þór Ingólfsson formaður fjárlaganefndar og Guðmundur Hrafn Arngrímsson formaður Leigjendasamtakanna og ræða húsnæðismál, vexti og verðbólgu, og hvernig þetta grefur undan lífskjörum almennings, einkum þeirra hópa sem síst mega við skerðingu kjara. Í lokin fara þeir bræður yfir stöðuna í pólitíkinni.

Aug 24, 20252h 15m

Ep 989Rauða borðið - Helgi-spjall: Jón Kalman

Laugardagur 23. ágúst Helgi-spjall: Jón Kalman Jón Kalman Stefánsson rithöfundur sest við Rauða borðið og leyfir hlustendum að kynnast sér og spegla sig í sér, uppruna, uppvexti og leit hans að sjálfum sér sem höfundi og manneskju.

Aug 23, 20252h 23m

Ep 990Vikuskammtur 22. ágúst

Björg Magnúsdóttir fjölmiðlakona, Kristín S. Bjarnadóttir, hjúkrunarfræðingur og stofnandi Vonarbrúar, Natalie G Gunnarsdóttir nemi og Sindri Freysson rithöfundur.

Aug 22, 20251h 22m

Ep 988Fréttatíminn 21. ágúst

Fimmtudagur 21. ágúst FRÉTTATÍMINN Gunnar Smári, Sigurjón Magnús og María Lilja segja fréttir Samstöðvarinnar með sínu lagi. Hvert er samhengi fréttanna?

Aug 21, 202546 min

Ep 987Rauða borðið 21. ágúst - Gaza, Vonarbrú, mænuskaði, konur og örorka og gervigreind

Fimmtudagur 21. ágúst Gaza, Vonarbrú, mænuskaði, konur og örorka og gervigreind María Lilja ræðir við Katrínu Harðardóttur, þýðanda, um ástandið á Gaza í ljósi nýjustu fregna af þjóðarmorðinu. Katrín er í daglegum samskiptum við einstaklinga í austanverðri Gazaborg hvar ástandið tók að versna og árásum fjölga sem aldrei fyrr í morgun. Fólkið hennar á svæðinu tók upp stutt myndskeið af aðstæðum. Þá fáum við Hlyn Má Ragnheiðarson, nema og sjálfboðaliða til að segja okkur hvernig einstaklingar á Íslandi geta auðveldlega borið sig að við að styðja fólkið á Gaza. Ragnheiður Davíðsdóttir ræðir við Auði Guðjónsdóttur, móðir ungrar konu sem lenti í alvarlegu umferðarslysi árið 1988, um áhrif slyssins og afleiðinga þess á líf fjölskyldunnar. Þórdís Bjarnleifsdóttir, félagsráðgjafi og öryrki ræðir skýrslu félagsvísindastofnunar sem kynnt var í gær um örorkulífeyrisþega. Í ljós kom að konur á miðjum aldri. Þorsteinn Siglaugsson heimspekingur og hagfræðingur ræðir við Gunnar Smára um gervigreind og hvaða áhrif hún getur haft á vitund okkar, heimsmynd og sjálfsmynd.

Aug 21, 20253h 15m

Ep 986Miðvikudagur 20. ágúst - FRÉTTATÍMINN

Miðvikudagur 20. ágúst FRÉTTATÍMINN Gunnar Smári, Sigurjón Magnús og María Lilja segja fréttir Samstöðvarinnar með sínu lagi. Hvert er samhengi fréttanna?

Aug 20, 202545 min

Ep 985Miðvikudagur 20. ágúst - Vextir, námslán, reynsluboltar, skógareldar og rauði þráðurinn

Miðvikudagur 20. ágúst Vextir, námslán, reynsluboltar, skógareldar og rauði þráðurinn Vilhjálmur Birgisson formaður Starfsgreinasambandsins ræðir við Gunnar Smára um verðbólgu, vexti og kjarasamninga í tilefni af vaxtaákvörðun Seðlabankans. María Lilja spyr almenning hvort vextir séu of háir á Íslandi. Lísa Margrét Gunnarsdóttir, forseta Landssamtaka íslenskra stúdenta, ræðir við Gunnar Smára um námslánakerfið, sem virkar illa eða alls ekki; styrkir ekki jafnrétti til náms og veldur mikilli atvinnuþátttöku stúdenta og þar með minna tíma til náms. Vilhjálmur Egilsson hagfræðingur, Þórunn Sigurðardóttir menningarfrömuður og Oddný Harðardóttir fyrrverandi fjármálaráðherra fara yfir stöðu mála með Sigurjóni Magnúsi. Kristófer Alex Guðmundsson, talar við Maríu Lilju frá Madrid hvar eldar og miklir hitar hafa mikil áhrif í líf borgaranna. Þau ræddu um tíða skógarelda, viðbrögð almennings og stjórnvalda, vatnsbirgðir, tengingu eldsumbrota við sólarsellur og fleira. Kári Gautason, sjálfstætt starfandi ráðgjafi og fyrrum aðstoðarmaður Svandísar Svavarsdóttur ræður um stéttabaráttu, vinstrið og sósíalismans á okkar tímum. Þetta er hluti af syrpunni um rauða þráðinn, þar sem Gunnar Smári ræðir við fólk um stöðu vinstrisins.

Aug 20, 20253h 26m

Ep 984Fréttatíminn 19. ágúst

Þriðjudagur 19. ágúst FRÉTTATÍMINN Gunnar Smári, Sigurjón Magnús og María Lilja segja fréttir Samstöðvarinnar með sínu lagi. Hvert er samhengi fréttanna?

Aug 19, 202546 min

Ep 983Rauða borðið 19. ágúst - Úkraína, þjóðarmorð, transfréttir, Austur-Asía og grasalækningar

Þriðjudagur 19. ágúst Úkraína, þjóðarmorð, transfréttir, Austur-Asía og grasalækningar Hilmar Þór Hilmarsson prófessor ræðir fund þjóðarleiðtoga í Washington við Gunnar Smára. Erum við nær friðarsamningum eða kannski jafn fjarri þeim og hingað til? Guðný Gústafsdóttir starfsmaður Félagsvísindastofnunar, Ólafur Ingólfsson jarðfræðingur og Hjálmtýr Heiðdal kvikmyndagerðarmaður ræða við Gunnar Smára um skyldur almennra borgara gagnvart þjóðarmorði. Arna Magnea Danks segir Maríu Lilju transfréttir og fréttir af annarri mannréttindabaráttu í háskalegum heimi. Jón Egill Eyþórsson doktorsnemi í kínverskri heimspeki og sjálfstætt starfandi fræðimaður ræðir við Gunnar Smára um Kína, Kóreu og Japan. Anna Rósa Róbertsdóttir grasalæknir og Ingibjörg Birna Ólafsdóttir viðskiptafræðingur segja Gunnari Smára frá Lífgrösum, grasalækningum, þróunarhjálp og mætti kvenna.

Aug 19, 20254h 18m

Ep 982FRÉTTATÍMINN 18. ágúst

Mánudagur 18. ágúst FRÉTTATÍMINN Gunnar Smári, María Lilja og Sigurjón Magnús segja fréttir Samstöðvarinnar með sínu lagi. Hvert er samhengi fréttanna?

Aug 18, 202546 min

Ep 981Rauða borðið 18. ágúst - Strokulaxar, pólitíkin, rauði þráðurinn, strætó og Emmsjé Gauti

Mánudagur 18. ágúst Strokulaxar, pólitíkin, rauði þráðurinn, strætó og Emmsjé Gauti Jóhannes Sturlaugsson, líffræðingur og rannsóknarmaður hjá Laxfiskum ræðir við Maríu Lilju um eldislax í Haukadalsá, ónýta stjórnsýslu og náttúruvána sem vofir yfir vegna skorts á eftirliti með fjársterkum aðilum í sjókvíaeldi. Ólafur Þ. Harðarson prófessor heldur áfram yfirferð sinni yfir stöðu stjórnmálaflokkanna í lok sumars. Sigurjón Magnús ræðir við hann. Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar fer yfir stöðu stéttarbaráttunnar, sósíalismans og vinstrisins í okkar heimshluta í samtali við Gunnar Smára. Sanna Magdalena Mörtudóttir forseti borgarstjórnar, Laufey Líndal Ólafsdóttir plötusnúður og Hildur Embla Ragnheiðardóttir stuðningsfulltrúi nota strætó og ræða þá reynslu við Maríu Lilju. Gauti Þeyr Másson betur þekktur sem Emmsjé Gauti ræðir við Maríu Lilju um nýja plötu, rasisma, líf listamannsins og baráttu snemm-miðaldra rappara við sjálfið.

Aug 18, 20255h 12m

Ep 980Synir Egils 17. ágúst - Friðarviðræður, pólitíkin, innflytjendur, glæpir og rasismi

Sunnudagurinn 17. ágúst Synir Egils: Friðarviðræður, pólitíkin, innflytjendur, glæpir og rasismi Bræðurnir Sigurjón Magnús og Gunnar Smári Egilssynir taka á móti gestum og ræða við þá um helstu fréttir og stöðuna í stjórnmálum. Að þessu sinni koma fyrst þau Sonja Þorbergsdóttir formaður BSRB, Sirrý Hallgrímsdóttir verkefnastjóri og Ásgeir Brynjar Torfason ritstjóri og fara yfir fréttir af stríð og friði, stöðu samfélags og heims. Síðan mun Margrét Valdimarsdóttir afbrotafræðingur, Nichole Leigh Mosty doktorsnemi og Snorri Másson þingmaður koma að borðinu og ræða innflytjendamál og glæpatíðni og rasisma sem oft tengist umræðu um þau mál. Í lokin fara þeir bræður yfir stöðuna í pólitíkinni með sínu nefi.

Aug 17, 20252h 25m

Ep 978Rauða borðið - Helgi-spjall: Snærós Sindradóttir

Laugardagur 16. ágúst Helgi-spjall: Snærós Sindradóttir Snærós Sindradóttir, listfræðingur og fjölmiðlakona ræðir við Maríu Lilju um lífið og tilveruna, pólitík, VG, menningarverðmæti, erfitt fólk, sjálfið, stíl og elegans, vinalegt hægrafólk og hefnd nördanna í skemmtilegu og einlægu samtali.

Aug 16, 20251h 10m

Ep 979Rauða borðið - Vikuskammtur: Vika 33

Föstudagur 15. ágúst Vikuskammtur: Vika 33 Í vikuskammt föstudaginn 15. ágúst mæta til Maríu Lilju þau Askur Hrafn Hannesson, aðgerðarsinni, Helga Ögmundar, mannfræðingur, María Pétursdóttir, myndlistarkona og Alexandra Briem, borgarfulltrúi Pírata. Þau fara yfir fréttir vikunnar sem voru meðal annars fundur Trump og Pútín, Gaza, Lax, plastmengun, biluð tæki á landspítala, bílastæði, ljósmyndir á Facebook, veggjalús, menning og allskonar fleira.

Aug 15, 20251h 10m

Ep 977Miðvikudagur 14. ágúst - FRÉTTATÍMINN

Fimmtudagur 14. ágúst FRÉTTATÍMINN Gunnar Smári, María Lilja og Björn Þorláks segja fréttir Samstöðvarinnar með sínu lagi. Hvert er samhengi fréttanna?

Aug 14, 202546 min

Ep 976Rauða borðið 14. ágúst - Málfrelsi, Alaska, ESB & eldislax, heilbrigðiskerfið og drykkja ungmenna

Fimmtudagur 14. ágúst Málfrelsi & þjóðarmorð, Alaskafundur, ESB & eldislax, heilbrigðiskerfið og drykkja ungmenna Ingólfur Gíslason lektor við menntavísindasvið mótmælti fyrirlestri ísraelsk prófessors í Þjóðminjasafninu og hefur verið gagnrýndur fyrir það bæði úr háskólasamfélaginu og frá stuðningsmönnum Ísraelshers. Gunnar Smári ræðir við hann um þjóðarmorðið, málfrelsi, akademískt frelsi og borgaralega skyldu gagnvart þjóðarmorði. Gunnar Smári ræðir líka við Hilmar Þór Hilmarsson prófessor um fund Pútín og Trump á morgun. Er fundurinn þegar sigur fyrir Pútin, er engin góð niðurstaða fyrir Trump og hvað vill Evrópa og Úkraína? María Lilja spyr almenning um afstöðu hans til umsóknar Íslands um aðild að ESB og strandeldis. Ragnheiður Davíðsdóttir tekur við Ólaf Sigurðsson, faðir uppkomins einhverfs/geðfatlaðs manns, en Ólafur hefur barist við kerfið í mörg ár til að fá þjónustu fyrir son sinn. Katrín Ella Jónsdóttir sálfræðingur og fagstjóri sálfélagslegu meðferðarinnar á Vogi ræðir vanda ungra notenda. Því yngri sem við erum þegar við hefjum neyslu alkóhóls því meiri líkur eru á vanda. Björn Þorláks ræðir við Katrínu.

Aug 14, 20253h 36m

Ep 975Sjávarútvegsspjallið - 57. þáttur: Sigurjón Þórðarson

Fimmtudagur 14. ágúst Sjávarútvegsspjallið - 57. þáttur Grétar Mar og Ólafur Jónsson ræða við Sigurjón Þórðarson.

Aug 14, 202559 min

Ep 974Miðvikudagur 13. ágúst - FRÉTTATÍMINN

Miðvikudagur 13. ágúst FRÉTTATÍMINN Gunnar Smári, María Lilja og Björn Þorláks segja fréttir Samstöðvarinnar með sínu lagi. Hvert er samhengi fréttanna?

Aug 13, 202546 min

Ep 973Miðvikudagur 13. ágúst - Reynsluboltar, neytendur, unglingadrykkja og Kína

Miðvikudagur 13. ágúst Reynsluboltar, neytendur, unglingadrykkja og Kína Una Margrét Jónsdóttir, Hörður Torfason og Kristín Ástgeirsdóttir eru gestir Sigurjóns Magnúsar í umræðu reynsluboltanna um fréttir vikunnar og stöðu samfélagsins. Breki Karlsson hjá Neytendasamtökunum ræðir baráttumál íslenskra neytenda með Birni Þorláks. Unglingadrykkja hefur stóraukist seinni ár. Björn Þorláks ræðir við Hörpu Henrysdóttur kennara. Gunnar Smári heldur áfram samtali sínu við Ragnar Baldursson samanburðarstjórnmálafræðing um íina, samfélagið þar og stjórnkerfi, og stöðu Kína í breyttum heimi.

Aug 13, 20253h 37m

Ep 972Fréttatíminn 12. ágúst 2025

Þriðjudagur 12. ágúst FRÉTTATÍMINN Gunnar Smári, Sigurjón Magnús og Björn Þorláks segja fréttir Samstöðvarinnar með sínu lagi. Hvert er samhengi fréttanna?

Aug 12, 202546 min

Ep 971Rauða borðið 12. ágúst - Lög og réttur, Kína, grunnskóli og tollar

Þriðjudagur 12. ágúst Lög og réttur, Kína, grunnskóli og tollar Gísli Tryggvason lögmaður ræðir lögfræðileg álitamál sem oftast tengjast fréttum líðandi stundar. Sauðfé sem bítur blóm í kirkjugörðum og Reynisfjara meðal umfjöllunarefna. Björn Þorláks ræðir við Gísla. Ragnar Baldursson samanburðarstjórnmálafræðingur hefur búið í Kína í 25 ár af síðustu fimmtíu árum. Gunnar Smári ræðir við hann um ris Kína, kínverskt samfélag, stjórnmál og menningu. Meðvirkni og metnaðarleysi ríkin innan grunnskólakerfisins í sumum skólum og gagnast engum að þegja og láta vandann hlaða utan á sig frá degi til dags heldur þvert á móti. Þetta segir Arnar Ævarsson kennslufræðingur í samtali við Björn Þorláks. Þorvaldur Gylfason prófessor ræðir við Gunnar Smára um áhrif tollastefnu Trump á efnahags Bandaríkjanna og heimshagkerfið, en líka áhrifin á pólitíkina heima fyrir og erlendis.

Aug 12, 20253h 38m

Ep 970Fréttatíminn 11. ágúst - Samstöðin

Gunnar Smári, Atli Fanndal og María Lilja fara yfir fréttir dagsins.

Aug 11, 202546 min

Ep 969Rauða borðið 11. ágúst - Palestína, pólitík, brennivín & sport, ESB og danslög við fiðlu

Mánudagur 11. ágúst Palestína, pólitík, brennivín & sport, ESB og danslög við fiðlu Qussay Oddeh, íslenskur Palestínumaður, ræðir við Gunnar Smára um ástandið í Palestínu. Sem hefur aldrei verið verra. Ólafur Þ. Harðarson og Eva H. Önnudóttir prófessorar í stjórnmálafræði ræða við Björn Þorláks um stöðu ríkisstjórnarinnar, stjórnarandstöðu og gat í hinu pólitíska litrófi. Markaðsöflin vilja normalisera drykkju á íþróttaviðburðum segir Árni Guðmundsson forvarnarfulltrúi í samtali við Björn Þorláks. Er Íslandi betur borgið í ESB eða utan? Vilhjálmur Bjarnason fyrrum þingmaður Sjálfstæðisflokksins, Ágúst Ólafur Ágústsson aðstoðarmaður borgarstjóra og Erna Bjarnadóttir hagfræðingur hjá Bændasamtökunum kryfja málin með Birni Þorláks. Atli Freyr Hjaltason, þjóðfræðingur ræðir við Maríu Lilju um útgáfu Danslaga fyrir fiðlu, gleymd menningarverðmæti Jónasar Helgasonar.

Aug 11, 20253h 37m

Ep 967Bridgeþátturinn 10. ágúst - Noregur og nýliðar

Sunnudagur 10. ágúst Bridgeþátturinn með Birni Þorláks Aron Þorfinnsson, í hópi okkar sterkustu spilara, þekkir bridds í Noregi ansi vel og ber saman okkar briddsmenningu og Norðmanna. Systkinin Harpa og Blæring Henrysbön lýsa upplifun sinni sem nýliðar í bridds.

Aug 11, 202540 min

Ep 964Rauða borðið - Helgi-spjall: Hilmir Snær

Laugardagur 9. ágúst Helgi-spjall: Hilmir Snær Hilmir Snær Guðnason leikari segir frá sér, æskunni, leikhúsinu, listinni, drykkju, sigrum, háska og hamingju.

Aug 9, 20251h 49m

Ep 965Rauða borðið - Vikuskammtur: Vika 32

Föstudagur 8. ágúst Vikuskammtur: Vika 32 Í vikuskammtinn að þessu sinni koma þau Tótla I. Sæmundsdóttir framkvæmdastjóri Barnaheilla, Jakob Frímann Magnússon Stuðmaður og varaþingmaður Miðflokksins, Viktor Orri Valgarðsson, stjórnmálafræðingur og Sanna Magdalena Mörtudóttir borgarfulltrúi og formaður velferðarráðs og ræða fréttir vikunnar við Maríu Lilju. Það var ýmislegt sem gekk á innan lands sem utan en hæst ber að nefna Tolla, Gaza, Trump, óánægju með ferðamannaiðnaðinn, bréfaskriftir sakborninga í gæsluvarðhaldi, hinsegindagar, dvalarleyfi og deilur Verkalýðsforingja, fjúkandi Þjóðhátíðargestir og allskonar fleira.

Aug 8, 20251h 2m

Ep 963Fréttatíminn 7. ágúst 2025

Aug 7, 202540 min

Ep 961Rauða borðið 7. ágúst - Helför á Gaza, Bjarg, ferðamannaplága, fjölmiðlar, matur, rödd skálds og pistahöfundar

Fimmtudagur 7. ágúst Helför á Gaza, Bjarg, ferðamannaplága, fjölmiðlar, matur, rödd skálds og pistahöfundar Inga Þóra Haraldsdóttir helfararsagnfræðingur ræðir um þjóðarmorðið á um Gaza og samsvörun þess við helför nasista gegn gyðingum, eðli zíonismans og áhrif ástandsins á gyðingasamfélagið í heiminum. Grímur Atlason formaður Geðhjálpar og Sigurþóra Bergsdóttir bæjarfulltrúi á Seltjarnarnesi og varaþingmaður Samfylkingarinnar ræða við Maríu Lilju um óánægju bæjaryfirvalda með öryggisvistun fanga á Bjargi, vistheimili fyrir geðfatlaða karla sem fjallað var um á Samstöðinni í sumar. Páll Ásgeir Ásgeirsson leiðsögumaður segir samfélagsbreytingar hér á landi vegna uppgangs ferðaþjónustu einar þær mestu í seinni tíð. Hann líkir aðgreiningu erlendra starfsmanna í greininni við samfélag innfæddra Apartheid. Engin stjórn sé á greininni. Björn Þorláks ræðir við hann. Æ meira hallar á fjölmiðla. Skúli Bragi Geirdal, Fjölmiðlanefnd segir að yngsti aldurshópurinn treysti nú samfélagsmiðlum betur en fjölmiðlum. Björn Þorláks ræðir fárveika stöðu einkarekinna fjölmiðla við Skúla og Ólaf Arnarson, blaðamann á DV. Laura Sólveig, forseti ungra umhverfissinna, ræðir matargjafir náttúru landsins sem eru við hvert fótmál án þess að við vitum endilega af því. Björn Þorláks kynnti sér málið. Jón Hallur Stefánsson útvarpsmaður, skáld og trúbador ræðir við Gunnar Smára um stöðu pistlahöfundar, skálds og trúbadors í samfélaginu.

Aug 7, 20254h 41m

Ep 962Sjávarútvegsspjallið - 56. þáttur: Sjóslys

Fimmtudagur 7. ágúst Sjávarútvegsspjallið - 56. þáttur: Sjóslys Grétar Mar ræðir við Egil Þórðarson loftskeytamann um sjóslys í gegnum tíðina.

Aug 7, 20251h 2m

Ep 960Matartíminn - 6. ágúst

Miðvikudagur 6. ágúst MATARTÍMINN Gunnar Smári fær til sín gesti til að ræða um mat, matarmenningu og samfélag. Að þessu sinni koma í heimsókn þau Sólveig Ólafsdóttir þjóðfræðingur og Friðrik V. Hraunfjörð matreiðslumaður, kallaður Friðrik fimmti.

Aug 7, 20251h 38m

Ep 960Rauða borðið 6. ágúst - Spilling, vinstrið, ferðamenn, okur og hinsegin

Miðvikudagur 6. ágúst Spilling, vinstrið, ferðamenn, okur og hinsegin Sigurbjörn Daði Dagbjartsson, blaðamaður á Víkurfréttum, ræðir tengslaspillingu við eftirlit og öryggi í eftirmálum Grindavíkurhamfara. Hann segir í viðtali við Björn Þorláks að tilteknir aðilar hafi hagsmuni af því að maka krókinn fjárhagslega. Drífa Snædal talskona Stígamóta, fyrrum forseti Alþýðusambandsins og framkvæmdastjóri Vg ræðir við Gunnar Smára um stöðu vinstrisins og sósíalismans á Íslandi og í okkar heimshluta. María Lilja tekur púlsinn á almenningi, hvort fólk hafi fengið nóg af túrismanum. Breki Karlsson hjá Neytendasamtökunum ræðir nýtt álitamál við gjaldtöku á bílastæðum, vaxtamun banka og hvers vegna sterkt gengi krónunnar gagnvart dollar skilar sér ekki til íslenskra heimila. Björn Þorláks ræðir við Breka. Ugla Stefanía Kristjönudóttir og Arndís Anna Kristínardóttir Gunnarsdóttir ræða við Maríu Lilju um menningarátök, pólitík og mannréttindi mtt hinseginleikans en hinsegindagar voru settir formlega í dag.

Aug 6, 20254h 0m

Ep 960Fréttatíminn - miðvikudagur 6. ágúst

Miðvikudagur 6. ágúst FRÉTTATÍMINN Gunnar Smári, María Lilja og Sigurjón Magnús segja fréttir Samstöðvarinnar með sínu lagi. Hvert er samhengi fréttanna?

Aug 6, 202543 min

Ep 959Fréttatíminn 5. ágúst - Samstöðin

Gunnar Smári Egilsson, María Lilja Ingveldar Þrastardóttir Kemp og Björn Þorláksson ræða fréttir dagsins.

Aug 5, 202542 min

Ep 958Þriðjudagur 5. ágúst: Utanríkismál, leyniþjónusta, líðan barna, heimsmálin og rauði þráðurinn

Þriðjudagur 5. ágúst Utanríkismál, leyniþjónusta, líðan barna, heimsmálin og rauði þráðurinn Stefán Pálsson sagnfræðingur og hernaðarandstæðingur og Pawel Bartoszek þingmaður Viðreisnar og formaður utanríkismálanefndar Alþingis, skiptast á skoðunum um utanríkismál og stöðu Íslands. Þeir ræða líka kjarnorkuvána sem virðist nær okkur en um áratuga skeið. Björn Þorláks stjórnar umræðunni. Helen Ólafsdóttir öryggis- og þróunarsérfræðingur ræðir hugmyndir um leyniþjónustu Íslands og hverjar eru helstar öryggisógnir í íslensku samfélagi. Björn Hjálmarsson barnageðlæknir ræðir um líðan barna í samtímanum og hvað má gera til að auka öryggi þeirra og sjálfsmynd. Hilmar Þór Hilmarsson prófessor ræðir um breytta heimsmynd út frá sjónarhóli lítilla ríkja á tímum fjölpóla heims. Guðmundur Auðunsson hagfræðingur ræðir um vinstrið í okkar heimshluta og nýja vinstri flokkinn í Bretlandi.

Aug 5, 20255h 25m

Ep 957Laugardagur 26. júlí Helgi-spjall: Mugison

Örn Guðmundsson aka Mugison kemur að Rauða borðinu og segir sköpunarsögu sína, hvernig hann varð til sem manneskja og listamaður. Og hann er með gítarinn með sér og tekur nokkur lög þar sem við á í frásögninni.

Jul 26, 20252h 45m

Ep 956Miðvikudagur 23. júlí Fréttir Samstöðvarinnar, stjórnmál að sumri, brjálsemi á miðjunni

Í kvöld er lokaþáttur af sumarþáttunum þar sem fréttir Ríkissjónvarpsins færast yfir á venjulegan tíma á morgun. Við segjum fréttir með okkar lagi á Samstöðinni klukkan sjö, Gunnar Smári, María Lilja og Sigurjón Magnús finna samhengið í fréttunum. Þau koma síðan til að ræða fréttirnar og ástandið í heiminum og samfélaginu þau Þórir Jónsson Hraundal miðausturlandafræðingur, Nichole Leigh Mosty doktorsnemi, Halla Gunnarsdóttir formaður VR og Sigtryggur Ari Jóhannsson, ljósmyndari og blaðamaður. í lokin kemur Soffía Bjarnadóttir að Rauða borðinu og segir frá bók sinni Áður en ég brjálast, um ástina, trans, þunglyndi, ummyndanir, miðaldur og margt fleira sem þar kemur fram.

Jul 24, 20252h 37m

Ep 955Þriðjudagur 22. júlí Fréttir Samstöðvarinnar, Skjöldur Íslands, Evrópusambandið og mótmæli

Jul 23, 20252h 43m

Ep 954Rauða borðið 21. júlí - Fréttir Samstöðvarinnar, ofbeldi gegn konum, pólitík á sumri og heimsmálin

Við segjum fréttirnar með okkar lagi á Samstöðinni, klukkan sjö þegar engar fréttir eru í Ríkissjónvarpinu. Kristín Valberg, forstöðukona Bjarkarhlíðar, Guðný S. Bjarnadóttir, stjórnarformaður Vitundar samtaka gegn kynferðisofbeldi og Silja Höllu Egilsdóttir og Margrét Baldursdóttir, fulltrúar Druslugöngunnar, ræða sýknudóma og vopnavæðingu ný-nasista á kynferðisofbeldi og fleiri mál. Eiríkur Bergmann prófessor á Bifröst tekur stöðuna á pólitíkinni eftir ansi heitt sumarþing og Hilmar Þór Hilmarsson prófessor á Akureyri ræðir varnarsamning Íslands og Evrópusambandsins, Evrópusambandsaðild Íslands og stöðuna í Úkraínu.

Jul 21, 20252h 58m

Ep 953Rauða borðið 17. júlí - Fréttir, strandveiði, stjórnmál, og túristaþorp

Við byrjum á að segja fréttir Samstöðvarinnar með okkar lagi, klukkan sjö þegar fótboltinn rúllar á RÚV. Við heyrum síðan hljóðið í strandveiðimönnum sem eru allt annað en ánægðir með hvernig stjórnarandstaðan stöðvaði þeirra mál í þinginu. Kjartan Sveinsson, formaður Strandveiðifélags Íslands, gerir út frá Grundarfirði, Þórólfur Júlían Dagsson strand- og ufsaveiðimaður gerir út frá Höfn í Hornafirði og Benedikt Bjarnason formaður Eldingar, félags smábátaeigenda á norðanverðum Vestfjörðum, gerir út frá Súganda. Þeir fara yfir stöðuna, baráttuna og óvissuna. Síðan ræða um fréttir vikunnar og stöðuna í pólitíkinni þau Jónas Atli Gunnarsson hagfræðingur hjá Húsnæðis- og mannvirkjastofnun, Ragnhildur Alda María Vilhjálmsdóttir borgarfulltrúi, Ragnar Þór Pétursson kennari og Lísa Margrét Gunnarsdóttir formaður Landssambands íslenskra stúdenta. Og í lokin kynnumst við stórframkvæmdum í Engjaholti í landi Fells í Bláskógabyggð, sem nágrannarnir Þóra Hafsteinsdóttir og Unnar Ragnarsson eru alls ekki ánægð með.

Jul 18, 202530 min

Ep 952Miðvikudagur 16. júlí Fréttir, eldar á Reykjanesi, neytendur og umhverfismál.

Við segjum fréttir Samstöðvarinnar klukkan sjö og ræðum svo eldgosið á Suðurnesjum við Þorvald Þórðarson eldfjallafræðing og Dagmar Valsdóttir gistihúsaeigandi í Grindavík, en þau sem búa og starfa í bænum eru langþreytt á rýmingu og takmörkunum á rekstri. Við ræðum síðan við Breka Karlsson formann neytendasamtakanna um rukkun fyrir bílastæði, ferðir sem Play fellir niður, netsvik, raforkufrumvarpið sem fór í gegn og afurðarstöðvafrumvarpið sem ekki slapp í gegn. Og í lokin kemur Júlíus Sólnes til okkar, en hann var fyrsti umhverfisráðherrann. Hann gagnrýnir að umhverfismál hafi verið sett undir orkumál í ráðuneytinu og vara við vindmyllum sem Jóhann Páll Jóhannsson, núverandi umhverfisráðherra, hefur opnað á.

Jul 17, 20252h 0m

Ep 951Þriðjudagur 15. júlí Fréttir Samstöðvarinnar, kynlífsverkafólk og mansal, heilbrigðiskerfið í lamasessi og hingaðkoma Ursölu van der Leyen

Við segjum fréttir með lagi Samstöðvarinnar og ræðum síðan við Renötu Söru Arnórsdóttur og Ara Logn frá Samtökum kynlífsverkafólks um aðgerðir lögreglunnar gegn mansali og vændi. Steinunn Þórðardóttir, formaður Læknafélags Íslands og Unnur Berglind Friðriksdóttir, formaður Ljósmæðrafélags Íslands hafa bent á, ásamt öðrum formönnum heilbrigðisstarfsfólks, að vandinn sem ríkisendurskoðun benti á innan heilbrigðiskerfisins hafi legið fyrir árum saman. Samt gera stjórnvöld ekkert. Í lokin hringjum við til Sómalíu þar sem Helen Ólafsdóttir öryggissérfræðingur starfar, ræðum við hana um ástandið þar en ekki síður um stefnu Evrópusambandsins gagnvart þjóðarmorðinu í Gaza, en fullyrða má að Ursala van der Leyen formaður framkvæmdastjórnarinnar styðji þjóðarmorðið.

Jul 15, 20252h 17m

Ep 950Rauða borðið 14. júlí - Fréttir, geðheilbrigðisþjónusta, þingveturinn, Gaza og mótmæli.

Mánudagur 14. júlí Við byrjum á nýjum fréttatíma Samstöðvarinnar, ræðum söguleg tíðindi hér innan lands og erlendis og förum yfir öll mál ríkisstjórnarinnar sem döguðu uppi í deilum á þingi. Hafsteinn Michael Guðmundsson, fyrrum starfsmaður Mannvirðingar sem hrökklaðist úr starfi vegna kulnunar, lýsir starfsaðstæðum að Jafnaðarseli, nú Reynimel og ræðir um slæman starfsanda, stjórnunarhætti, launagreiðslur undir taxta og öryggi starfsfólks og skjólstæðinga sem er ábótavant innan geðheilbrigðisþjónustunnar. Ólafur Þ. Harðarson prófessor fer yfir þingveturinn sem nái fram yfir mitt sumar og stöðu flokkanna að honum loknum. Við birtum viðtöl við fólk sem var að mótmæla Íslandsheimsókn Ursula von der Leyen.

Jul 15, 20252h 25m

Ep 949Rauða borðið 10. júlí - Fréttir, Bjarg, upplausn í þinginu og pólitík á suðupunkti

Við byrjum sumarþátt Samstöðvarinnar klukkan sjö með fréttatíma, förum yfir pólitíkina hér heima sem er við suðumark og segjum aðrar fréttir. Þórhallur Guðmundsson, stjórnsýslufræðingur og félagsráðgjafi, ræðir við Maríu Lilju um frétt okkar um Bjargið. Og síðan förum við yfir fréttir vikunnar og eldfima pólitíkina með góðum gestum: Kristín Helga Gunnarsdóttir rithöfundur, Guðmundur Hálfdánarson prófessor í sagnfræði, Ásgeir Brynjar Torfason ritstjóri Vísbendingar og Andrea Sigurðardóttir blaðamaður og þingfréttaritari greina stöðuna og túlka.

Jul 11, 20251h 56m

Ep 948Rauða borðið - Helgi-spjall: Páll Óskar

Fimmtudagur 10. júlí Helgi-spjall: Páll Óskar Páll Óskar Hjálmtýsson segir okkur frá No Borders-tónleikunum sem hann ætlar að syngja á, frá leið sinni út úr skápnum, frá baráttusögu sinni, listinni og ástinni sem hefur heltekið hann.

Jul 10, 20252h 25m

Ep 947Miðvikudagur 9. júlí Fréttir, Bjarg, ekki kært, veik sveitarfélög og leigjendur

Við byrjum sumarþátt Samstöðvarinnar klukkan sjö vegna fótboltans á Ríkissjónvarpinu með fréttayfirlit, förum meðal annars yfir sláandi lýsingar á aðstöðunni á Bjargi, heimili fyrir geðfatlaða. Við ræðum síðan málefni Bjargs við Grím Atlason, framkvæmdastjóra Geðhjálpar og um ákvörðun saksóknara að ákæra ekki menn sem misnotuðu þroskahefta konu við Önnu Láru Steindal, framkvæmdastjóra Þorskahjálpar. Guðmundur Hrafn Arngrímsson, formaður Leigjendasamtakanna, kemur til okkar og ræðir húsnæðismarkaðinn en líka stöðu fámennra sveitarfélaga gagnvart ásælni auðugs fólks með virkjunaráform, en Guðmundur er Strandamaður og barðist gegn Hvalárvirkjun.

Jul 9, 20251h 57m

Ep 945Þriðjudagur 8. júlí. Fréttir, vindmyllur, strandveiði, veiðigjöld og heimsmálin

Við byrjum sumarþáttinn á Samstöðinni klukkan sjö vegna fótboltans á Ríkissjónvarpinu. Við byrjum á fréttatíma Samstöðvarinnar og förum yfir hitamál hér heima og erlendis. Halla Hrund Logadóttir þingmaður og Andrés Skúlason stjórnarmaður í Landvernd ræða síðan við okkur um vindmyllur í Garpsdal og orkustefnu stjórnvalda. Lilja Rafney Magnúsdóttir þingkona segir okkur frá mikilvægi þess að fá samþykkt lög um veiðigjöld og strandveiði og Hilmar Þór Hilmarsson prófessor fer yfir áhrif Trump Bandaríkjaforseta á stríð og efnahag.

Jul 9, 20251h 54m