
Samstöðin
710 episodes — Page 10 of 15

Ep 944Rauða borðið 7. júlí - Fréttir, peningaleysi í Háskólanum og nýr vinstri flokkur í Bretlandi
Mánudagur 7. júlí Fréttir á Samstöðinni, peningaleysi í Háskólanum og nýr vinstri flokkur í Bretlandi Við byrjum sumarútsendingar á Samstöðinni klukkan sjö vegna fórboltans á Ríkissjónvarpinu. Við reynum fyrir okkur í að segja fréttir og ræðum helstu hitamál, en fáum svo prófessorana Magnús Karl Magnússon og Tinnu Laufeyju Ásgeirsdóttur til að segja okkur frá sviknum loforðum stjórnvalda um aukið fé til reksturs háskólanna í landinu. Síðan segir fréttaritari okkar í London, Guðmundur Auðunsson hagfræðingur, frá nýjum vinstri flokki sem þar er í burðarliðnum.

Ep 943Rauða borðið 30. júní - Vorstjarna, maraþon, Sanna, Shakespeare, ÍNN, ljóð og Krummi
Mánudagur 30. júní Vorstjarna, maraþon, Sanna, Shakespeare, ÍNN, ljóð, Krummi Rauða borðið í kvöld verður með sérstöku sniði, uppgjör eftir maraþon beina útsendingu og með fréttum af aðalfundi Vorstjörnunnar.

Ep 942Rauða borðið - Helgi-spjall: Þóra Karítas
Laugardagur 28. júní Helgispjall: Þóra Karítas Þóra Karítas Árnadóttir, leikkona, höfundur og framleiðandi, segir Oddnýju Eir frá lífi sínu og list.

Ep 941Rauða borðið - Helgi-spjall: Þórarinn Tyrfingsson
Laugardagur 25. Helgi-spjall: Þórarinn Tyrfingsson Þórarinn Tyrfingsson læknir segir okkur baráttusögu sína, frá æsku sinni og uppruna, hvað var það sem mótaði hann, lyfti og skaðaði.

Ep 940Rauða borðið - Vikuskammtur: Vika 26
Föstudagur 27. júní Vikuskammtur: Vika 26 Í Vikuskammti við Rauða borðið sitja í dag þau Elísabet Ronaldsdóttir klippari, Haukur Már Helgason rithöfundur, Hrönn Sveinsdóttir bíóstjóri og Magnús Scheving framleiðandi og ræða fréttir vikunnar sem einkenndust af stríð og vopnahléi, málþófi og svörtum skýrslum, valkyrjum og sjarmerandi mönnum.

Ep 939Rauða borðið 26. júní - Maraþon, fjölmiðlar, Nató, skothvellir, kvíði, kvóti og kettir
Fimmtudagur 26. júní Maraþon, fjölmiðlar, Nató, skothvellir, kvíði, kvóti og kettir Hverju myndi það breyta ef Samstöðin hætti störfum vegna fjárhagsþrenginga? Hvaða samfélagslegur herkostnaður fylgir því að fjölmiðlar heltist úr leik einn á fætur? Óðinn Jónsson og Björg Eva Erlendsdóttir, fjölmiðlafólk og fyrrum fréttahaukar á Ríkisútvarpinu og Atli Þór Fanndal, ræða við Björn Þorláksson. Hilmar Þór Hilmarsson prófessor metur niðurstöður Nató-fundarins í samtali við Gunnar Smára. Umdeilt skotsvæði við rætur Esju verður til umfjöllunar við Rauða borðið í kvöld. Þrír íbúar og einn sérfræðingur gagnrýna kerfið fyrir lausatök en mikill heilsufarslegur skaði hefur orðið hjá fólki sem býr í grennd við skotsvæðið. Ólafur Hjálmarsson, Kristbjörn Haraldsson, Sigríður Ingólfsdóttir og Anja Þórdís Karlsdóttir ræða við Björn Þorláksson. Sóley Dröfn Davíðsdóttir, yfirsálfræðingur hjá Kvíðameðferðarstöðinni, ræðir við Oddnýju Eir um ýmsar sálrænar áskoranir í sumarfríinu. Indriði H. Þorláksson, fyrrverandi skattstjóri, fer yfir veiðigjöld og auðlindarentu með Gunnar Smára. Ættum við kannski að setjast niður, fámenn þjóð í stóru landi með miklum auðlindum, og ákveða hvernig auðlindarentunni er ráðstafað? Sandra Ósk Jóhannsdóttir, meistaranemi í glæpasálfræði og dýrfinna mætir til Maríu Lilju og ræðir um sjálfboðaliðasamtökin sem standa í ströngu alla daga við að finna týnd gæludýr.

Ep 938Sjávarútvegsspjallið - Þáttur 55: Ríkisstyrkur
Fimmtudagur 26. júní Sjávarútvegsspjallið - Þáttur 55 Grétar Mar Jónsson ræðir við Heimi Má Pétursson og Arthúr Bogason um ríkisstyrk.

Ep 937Rauða borðið 25. júní: Utanríkisstefna, reynsluboltar, þingmaður, þjóðin, sumartónleikar og aktivismi
Miðvikudagur 25. júní Utanríkisstefna, reynsluboltar, þingmaður, þjóðin, sumartónleikar og aktivismi Við hefjum leik með viðbrögðum formanns utanríkismálanefndar Alþingis við tíðindum dagsins í Haag. Pawel Bartoszek bregst við tíðindum um að langflest NATO-ríki greiða 5 prósent af þjóðarframleiðslu til varnamála og framlög Íslands stóraukast. Helen Ólafsdóttir öryggissérfræðingur gagnrýnir valkyrjur ríkisstjórnarinnar fyrir að bjóða landsmönnum upp á óbreytta utanríkisstefnu þrátt fyrir gerbreytta heimsmynd. Hún segir Gunnari Smára hvað vantar í stefnuna. Ragnheiður Davíðsdóttir, Guðmundur Þ. Ragnarsson og Gunnar Hólmsteinn Ársælsson ræða það sem hæst ber og tala af reynslu við Sigurjón Magnús Egilsson. Af nógu er að taka þessa dagana hvað varðar þjóðmálin og virðist langt í hina árlegu sumargúrku. Eiríkur Björn Björgvinsson er í hópi nýrra þingmanna. Björn Þorláks rekur garnirnar úr Eiríki og leitast við að kynnast persónulegri hlið hans. Skelfilegt flugslys sem reyndi mikið á Eirík er til umræðu og hvaða mælikvarða hann notaði til að velja sér eiginkonu! Og það verður einnig umræða um að þingmenn tali um ykkur og okkur og með því sé sáldrað efasemdum um að veiðigjöldin séu landsbyggðarskattur - til að skapa efasemdir. Jón Trausti Reynisson ritstjóri skrifaði leiðara um þetta og Sigurjón Magnús ræðir við hann. Benedikt Kristjánsson, söngvari og skipuleggjandi hátíðarinnar Sumartónleikar í Skálholti, 28. júní - 13. júlí, segir okkur frá stórkostlegri dagskrá tónleikanna í ár. Hátíðin fagnar 50 ára afmæli og eru haldnir til heiðurs Helgu Ingólfsdóttur og mun Jean Rondeau leika á sembalinn hennar. Benedikt ræðir líka um sjálfboðaliðun menningarinnar, um tengslin við fjármögnunina, um umboðsmenn og eigin söng. Oddný Eir Ævarsdóttir ræðir við hann. Við ljúkum dagskránni með því að Anahita B, aðgerðarsinni frá Íran ræðir um Íran og réttarhöldin gegn Hval hf. Anahita segir frá stríðinu frá sjónarhóli hins almenna Írana, um hvernig þjóðin upplifir sig í raun fasta milli tveggja elda, stríðinu við kúgandi klerka og stríðinu við vesturlönd en báðir aðilar sjá hag sinn í að hefta frelsi og mannhelgi almennings.

Ep 936Rauða borðið, 23. júní, 2025. Íran, Grænland, hægrið, friðurinn, handbók helgihaldsins og Kúrdar
Mánudagur 23. júní Rauða borðið, 23. júní, 2025. Íran, Grænland, hægrið, friðurinn, handbók helgihaldsins og Kúrdar Við hefjum Rauða borðið á umræðu um stríðið í Íran. Kjartan Orri Þórsson Mið-Austurlandasérfræðingur og Hilmar Þór Hilmarsson prófessor ræða við Gunnar Smára um árásir herja Ísraels og Bandaríkjanna á Íran. Við pælum því næst í norðurslóðum. Friðrika Hjördís Geirsdóttir, framkvæmdastýra viðskiptaþings Arctic Circle og mannfræðingur ræðir við Oddnýju Eir um auðlindir Grænlands og tengsl auðlindastjórnunar og pólitísks sjálfræðis á Grænlandi. Ragnar Hjálmarsson, stjórnmálafræðingur ræðir síðan stjórnmálin Evrópu við Gunnar Smára, um uppgang ysta hægrisins og hnignun Þýskalands. Oddný Eir ræðir um möguleika friðarins á stríðstímum við Katrínu Harðardóttur þýðanda og Guttorm Þorsteinsson formann Samtaka hernaðarandstæðinga. Sigríður Guðmarsdóttir, prófessor í hagnýtri guðfræði við Háskóla Íslands skýrir handbókar-málið svokallaða og ræðir við Oddnýju Eir um átök og heift í tengslum við málfræði og tvíhyggju. Jan Fernon, mannréttindalögmaður, aðalritari International Association of Democratic Lawyers og Ceren Uysal, mannréttindalögmaður, í forsvari fyrir European Association of Lawyers for Democracy and World Human Rights (ELDH) mæta að rauða borðinu ásamt Ögmundi Jónassyni og ræða við Oddnýju Eir um réttarhöld á vegum Permanent Peoples' Tribunal um mannréttindabrot gegn Kúrdum í Rojava í Sýrlandi.

Ep 935Synir Egils: Sumarþing, upplausn, heimstyrjöld og sveitarstjórnir
Sunnudagurinn 22. júní Synir Egils: Sumarþing, upplausn, heimstyrjöld og sveitarstjórnir Bræðurnir Sigurjón Magnús og Gunnar Smári Egilssynir taka á móti gestum og ræða við þá um helstu fréttir og stöðuna í stjórnmálum. Að þessu sinni koma fyrst þeir Helgi Seljan blaðamaður, Guðmundur Andri Thorsson rithöfundur og Ásgeir Brynjar Torfason ritstjóri og ræða fréttir og stöðu samfélagsins á miðju sumri, nú þegar dagarnir fara að styttast. Síðan koma þær Theódóra S. Þorsteinsdóttir bæjarfulltrúi í Kópavogi, Líf Magneudóttur formaður borgarráðs og Sanna Magdalena Mörtudóttir forseti borgarstjórnar og halda umræðunni áfram, um ástandið í heimsmálum, landsmálum og í nærsamfélaginu. Í lokin taka þeir bræður púlsinn á pólitíkinni.

Ep 933Rauða borðið - Helgi-spjall: Daníel Magnússon
Laugardagur 21. júní Helgi-spjall: Daníel Magnússon Daníel Magnússon myndlistarmaður, vélstjóri og stólasmiður ræðir um listina, dugnaðinn og drykkjuna, foreldra sína og annað venjulegt fólk sem hefur mótað hann.

Ep 934Rauða borðið - Vikuskammtur: Vika 25
Föstudagur 20. júní Vikuskammtur: Vika 25 Í Vikuskammti við Rauða borðið sitja í dag þau Valgerður Þ. Pálmadóttir rannsóknarsérfræðingur í hugmyndasögu, Hafdís Helga Helgadóttir útvarpskona, Vigdís Halla Birgisdóttir leikkona og Andrés Skúlason verkefnastjóri hjá Landvernd og ræða fréttir vikunnar sem einkennast af loftárásum, málþófi, sumri og nýjum tækifærum.

Ep 932Rauða borðið 19. júní Kvennabarátta, vekni, náttúruspeki, handverk, brids og kvæðakór
Fimmtudagur 19. júní Kvennabarátta, vekni, náttúruspeki, handverk, brids og kvæðakór Við hefjum leik með umfjöllun um konur og kúrda. Í dag, nítjánda júní á hátíðis- og baráttudegi kvenna á Íslandi setur Ögmundur Jónasson kvenréttindabaráttuna á Íslandi í samhengi við baráttu Kúrda fyrir tilverurétti sínum. Kúrdískar konur hafa verið í fararbroddi baráttunnar og Ögmundur segir einnig frá fyrirlestri tveggja mannréttindalögfræðinga á mánudaginn, Jan Fernon og Ceren Uysal. Kristján Kristjánsson heimspekiprófessor í Birmingham ræðir við Gunnar Smára um umræðuhefð á tímum samfélagsmiðla, Marxíska vekni, póstmóderníska og þá sem náði flugi á tímum sjálfsmyndarstjórnmála. Hildur Margrétardóttir, myndlistakona, kennari og fyrrverandi skólastjóri, segir okkur frá nýjum námsleiðum, skapandi námi, náttúruspeki og útinám. Hún ræðir líka um ilminn og útiveruna. Þóra Sif Kópsdóttir, bóndi og víkingur ræðir um handverk og mikilvægi fullnýtingar. Oddný Eir og María Lilja ræða við hana. Í bridgeþætti Samstöðvarinnar ræðir Björn Þorláks við Guðmund Snorrason fyrrum norðurlandameistara í bridds og Matthías Imsland, framkvæmdastjóra Bridgesambands Ísland. Vonbrigði í opna flokknum á Norðurlandamótinu á Laugarvatni verða krufin og leiðir ræddar til að ná betri árangri í framtíðinni. Við endum Rauða borðið með söng. Bjarni Karlsson kórstjóri leiðir Maríu Lilju í allan sannleika um þjóðlagahefðir og Kvæðakórinn sem hann stýrir. Hann tekur lagið um Lækinn.

Ep 931Auðlindin 19. júní
Fimmtudagur 19. júní Auðlindin Gestir Maríu Lilju og Björns Þorláks eru að þessu sinni þau Tinna Ólafsdóttir, Karl Frímannsson, Þórbergur Torfason og Gunnar Gunnarsson.

Ep 930Sjávarútvegsspjallið 19. júní: Björn Ólafsson og Jón Kristjánsson
Sjávarútvegsspjallið 19. júní Grétar Mar ræðir við Björn Ólafsson og Jón Kristjánsson

Ep 929Rauða borðið 18. júní - Vg, pólitík, Íran, heimsendi, vinstrið og samræmd próf
Miðvikudagur 18. júní Vg, pólitík, Íran, heimsendi, vinstrið og samræmd próf Jódís Skúladóttir, fyrrverandi þingmaður, segir Birni Þorláks að spilling og valdsækni áhrifafólks innan VG, ekki síst Svandísar Svavarsdóttur, skýri bágt gengi flokksins undanfarið. Ólafur Þ. Harðarson prófessor emeritus í stjórnmálafræði upplýsir Björn að traust til Alþingis sé að aukast frá því sem verið hefur. Hilmar Þór Hilmarsson prófessor ræðir við Gunnar Smára um hvort Bandaríkin muni taka frekari þátt í loftárásum Ísraels á Íran. Og um Ísland og Evrópusambandið. Oddný Eir og María Lilja rabba við fólk um hugsanlegan heimsenda, um landamæri, efnahagsflótta, einmanaleika, skattaskjól og önnur hressileg frétta- og ekki-fréttamál. Pétur Tyrfingsson, sálfræðingur og Marxisti, svarar Gunnari Smára um hvers vegna vinstrið og sósíalisminn hafi ekki risið þegar nýfrjálshyggjan féll í Hruninu. Jón Torfi Jónasson prófessor á eftirlaunum talar um skólakerfið við Gunnar Smára og segir hvers vegna hann geldur varhug við samræmdum prófum eins og kallað er eftir.

Ep 928Rauða borðið 16. júní - Íran og Ísrael, Striplab og njósnir, blaðamennskan, Víkingahátíð og listir
Mánudagur 16. júní: Íran og Ísrael, Striplab og njósnir, blaðamennskan, Víkingahátíð og listir Við hefjum Rauða borðið á spjalli við Kjartan Orra Þórsson, Miðausturlandafræðing og sérfræðing í málefnum Írans. Hann ræðir við Gunnar Smára um stríðsátök milli Ísraels og Íran og íranska þjóðerniskennd sem á sér mörg þúsund ára rætur. Ari Logn og Renata Sara Arnórsdóttir, aktívistar í Rauðu regnhlífinni ræða við Maríu Lilju og Oddnýju Eir um strip, femínisma, fordóma á Íslandi og njósnir í Svíþjóð. Ásdís Ásgeirsdóttir blaðamaður á Morgunblaðinu og Skúli Geirdal, Fjölmiðlanefnd, ræða pólaríseringu íslenskra fjölmiðla, starfsskilyrði blaðamanna, vinnubrögð, falsfréttir og traust til fjölmiðla við Björn Þorláks. Samkvæmt óbirtri könnun treysta hægri menn Morgunblaðinu best en Rúv síður. Við heimsækjum Víkingahátíð í Hafnarfirði þar sem sólin skín á tjöld, eldstæði, baráttu og hljómleik. Oddný Eir og María Lilja fóru og ræddu við víkingana um hátíðarhöld, handverk, hefðir og hugmyndir sem kvikna í ullartjöldunum og samverunni. Gunnar Guðbjörnsson, skólastjóri Söngskóla Sigurðar Demetz, ræðir við Björn Þorláks um starfsaðstæður skapandi greina, mikilvægi þess að ungt fólk fái að stunda þá list sem það brennur fyrir og skyldur hins opinbera.

Ep 927Synir Egils 15. júní - Málþóf, mótmæli. loftárásir og skautun
Sunnudagurinn 15. júní Synir Egils: Málþóf, mótmæli. loftárásir og skautun Bræðurnir Sigurjón Magnús og Gunnar Smári Egilssynir taka á móti gestum og ræða við þá um helstu fréttir og stöðuna í stjórnmálum. Að þessu sinni koma fyrst þau Þóra Kristín Ásgeirsdóttir upplýsingafulltrúi, Benedikt Jóhannesson tölfræðingur og Magnea Marinósdóttir alþjóðastjórnmálafræðingur og ræða um málþóf á Íslandi, átökin í Mið-Austurlöndum, mótmæli í Bandaríkjunum og hér heima og fleiri fréttir. Síðan koma þau Halla Gunnarsdóttir formaður VR, Guðrún Margrét Guðmundsdóttir mannfræðingur og Davíð Þór Jónsson prestur og halda umræðunni áfram og ræða líka um skautun og upplausn milli ríkja og innan ríkja. Í lokin fara þeir bræður yfir pólitíkina með sínu nefi.

Ep 925Rauða borðið - Helgi-spjall: Gnarr
Laugardagur 14. júní Helgi-spjall: Gnarr Jón Gnarr segir okkur frá föður sínum og móður, frá föðurnum á himnum, húmor og pólitík, hugrekki sínu og hugsunarleysi, tímanum þegar hann tapaði sér og gildi þess að tala ekki of mikið um hlutina.

Ep 926Vikuskammtur 13. júní: Jovana Pavlović, Birgitta Jónsdóttir, Steinunn Rögnvaldsdóttir og Jón Gísli Harðarson
Vikuskammtur 13. júní Jovana Pavlović mannfræðingur, Birgitta Jónsdóttir skáld, Steinunn Rögnvaldsdóttir kynjafræðingur og Jón Gísli Harðarson rafvirkjameistari.

Ep 924Rauða borðið 12. júní - Kulnun skólamanns, Ný Sýn, gegn rasisma, breytt Bandaríki og skipulagsmál
Fimmtudagur 12. júní Kulnun skólamanns, Ný Sýn, gegn rasisma, breytt Bandaríki og skipulagsmál Við hefjum leik á uppgjöri Valgarðs Más Jakobsssonar, skólameistara Framhaldsskólans í Mosfellsbæ, en hann berskjaldar sig og lýsir einkennum kulnunar í starfi og hvað þurfti að gerast til að hann rambaði á rétta hillu á ný. Björn Þorláksson ræðir við Valgarð. Það eru vendingar á fjölmiðlamarkaði og hefur verið tilkynnt um breytingar á rekstrarfyrirkomulagi Sýnar, Stöð 2 er úr sögunni. Frosti Logason fjölmiðlamaður kemur til Maríu Lilju og ræðir stöðu fjölmiðla og mikilvægi fjölbreytni. Halldóra Jóhanna Hafsteins Âû, stuðningsfulltrúi, Margrét Pétursdóttir, leiðsöguman og Alexandra Briem, borgarfulltrúi Pírata svara kröfum hópsins Ísland þvert á flokka í tengslum mótmælin á Austurvelli sem boðuð eru fyrir helgi. Þær ræða líka við Oddnýju Eir Ævarsdóttur um uppákomuna í Húsdýragarðinum, rasismann og staðreyndir málsins. Oddný Eir ræðir einnig við dr. Áka Jarl Lárusson, líffræðing hjá Hafrannsóknarstofnun, sem ólst upp í Los Angeles, um ofbeldið í Bandaríkjunum, orsakir og afleiðingar. Og Björn Teitsson, borgarfræðingur mætti til Maríu Lilju og ræddið borgarsamfélagið. Þau fóru yfir samræðuna um bílastæði, einkabílinn, opin rými og hvers meirihluti höfuðborgarbúa óski sér í þeim efnum.

Ep 923Auðlindin 12. júní
Fimmtudagur 12. júní Auðlindin Gestir Maríu Lilju og Björns Þorlákssonar í landsbyggðaþættinum Auðlindin í dag eru Kristín Magnea Sigurjónsdóttir blaðamaður á trolli.is í Fjallabyggð Margrét Gauja Magnúsdóttir leiðsögumaður og skólastjóri Lýðsskólans á Flateyri og Sigurður Erlingsson landvörður í Vatnajökulsþjóðgarði. Þau ræða fréttir og tíðaranda í héraði, landsmál og fleira.

Ep 922Sjávarútvegsspjallið 12. júní: Jón Baldvin Hannibalsson
Sjávarútvegsspjallið 12. júní Grétar Mar Jónsson og Ólafur Jónsson ræða við Jón Baldvin Hannibalsson um uppboð veiðiheimilda.

Ep 921Rauða borðið 11. júní: Flugvöllurinn, hafið, reynsluboltar, glæpasamtök, huldufólk og umbylting í læknavísindum
Miðvikudagur 11. júní Flugvöllurinn, hafið, reynsluboltar, glæpasamtök, huldufólk og umbylting í læknavísindum Daði Rafnsson hjá samtökunum Hljóðmörk sem berjast gegn óþarfa flugumferð á Reykjavíkurflugvelli og Ólafur Hjálmarsson hljóðverkfræðingur ræða við Björn Þorláks stöðu vallarins, vítaverða og vaxandi hljóðmengun og alvarlegt atvik í gærkvöld. Flugvallarvinir hafa hótað fólki sem vill minnka umferð um völlinn að því er kemur fram í umræðunni. Kristín Vala Ragnarsdóttir, sérfræðingur í sjálfbærni og prófessor emerita í jarðvísindadeild Háskóla Íslands, ræðir við Oddnýju Eir um aðgerðarleysi og hugsanavillur tengdum hagvexti sem ógna hafinu og framtíð okkar. Reynsluboltar vikunnar voru þingkonurnar fyrrverandi; Álfheiður Ingadóttir, Kristín Ástgeirsdóttir og Oddný Harðardóttir. Rætt var um helstu fréttir og stjórnmál. Ekki síst að það vanti fólk á þingi sem talar frá vinstri og hefur áhuga á náttúruvernd. Guðmundur Ingi Þóroddsson, formaður Afstöðu, félags fanga, ræðir við Maríu Lilju um glæpasamtök útlendinga í fangelsi og auknar valdheimildir lögreglu. Auður Aðalsteinsdóttir, bókmenntafræðingur, höfundur, rannsóknarlektor og forstöðumaður Rannsóknaseturs Háskóla Íslands í Þingeyjarsveit segir okkur frá nýjum rannsóknum á tengslum sköpunarkrafts og náttúru og hlutverki álfa, huldufólks í pólitík og menningu samtíma okkar. Páll Þórðarson, efnafræði-prófessor við háskóla í Sydney í Ástralíu segir Gunnari Smára frá umbyltingu í læknisfræði vegna RNA-tækni sem hann vinnur að.

Ep 920Rauða borðið 10. júní - Herinn til LA, Thunberg, Trump, Grímur, lífeyrissjóðir og gervigreind
Þriðjudagur 10. júní Herinn til LA, Thunberg, Trump, Grímur, lífeyrissjóðir og gervigreind Dröfn Ösp Rozas ræðir við Maríu Lilju um mótmælin í LA sem hún segir að sé mikilvægt að kalla ekki óeirðir. María Lilja ræðir við Arndísi Önnu Kristínardóttur Gunnarsdóttur, lögmann og formann Siðmenntar um fleyið Madleen sem stöðvuð var með nauðsynlegar vistir fyrir utan Gaza stendur. Hilmar Þór Hilmarsson prófessor ræðir við Gunnar Smára um Trump og heimsmálin, ástandið í Kaliforníu og Úkraínu, á Gaza og Mið-Austurlöndum og vaxandi stórveldaátök í heiminum. Grímur Grímsson, þingmaður Viðreisnar og fyrrum lögga, segir frá sjálfum sér, þinginu, ofbeldismálum í samfélaginu og ýmsu öðru í samtali við Björn Þorláksson. Björn Þorláksson heldur áfram umfjöllun sinni um lífeyrissjóði. Þórey Þórðardóttir, framkvæmdastjóri Landssamtaka lífeyrissjóða, ræðir kosti og galla íslenska lífeyrissjóðakerfisins. Hvað aðgreinir okkur frá sambærilegum sjóðum utan landsteinanna? Þorsteinn Siglaugsson hagfræðingur ræðir við Gunnar Smára um þá afgerandi samfélagsbreytingu sem gervigreindin mun valda, ekki bara í samfélaginu og völdum innan þess, heldur á sjálfsmynd okkar sjálfra.

Ep 917Rauða borðið - Helgi-spjall: Drífa
Laugardagur 7. júní Helgi-spjall: Drífa Drífa Snædal, talskona Stígamóta og fyrrverandi forseti ASÍ, framkvæmdastjóri Starfsgreinasambandsins, VG og Kvennaathvarfsins segir okkur frá baráttunni, hinu persónulega í pólitíkinni og pólitíkinni í hinu persónulega, frá æsku og uppruna og hversu lengi hún var að finna sig og hvað hún vildi taka sér fyrir hendur. Og um sósíalismann sem hún drakk í sig með móðurmjólkinni.

Ep 919Rauða borðið - Vikuskammtur: Vika 23
Föstudagur 6. júní Vikuskammtur: Vika 23 Það verður líf og fjör í Vikuskammtinum að þessu sinni þegar þau Helga Þórey Jónsdóttir, menningarfræðingur og kennari, Steinunn Gunnlaugsdóttir, myndlistamaður og Atli Bollason, listamaður mætast við Rauða borðið hjá Maríu Lilju. Að þessu sinni verður farið ítarlega í menningarviðburði, störf þingsins, fordóma í samfélaginu, Gaza, Oscar og ríkisborgararéttinn, sumarveðrið, laun ráðafólks, evrópusambandið og margt fleira.

Ep 918Auðlindin 5. júní
Fimmtudagur 5. júní Auðlindin Í Auðlind dagsins ræða María Lilja og Björn Þorláks við fjóra íbúa sem allir eiga það sameiginlegt að búa utan höfuðborgarsvæðisins. Björg Björnsdóttir, safnstjóri Minjasafns Austurlands, ræðir daginn og veginn fyrir austan, Michael Jón Clarke tónlistarmaður í Hrísey og á Akureyri ræðir við okkur útlendingamál og tónlistarviðburð. Berglind Hlín Baldursdóttir bóndi í Húnaþingi styður ekki forystu bænda er kemur að búvörufrumvarpsáherslum og ræðir þá hlið mála og Kristín S. Bjarnadóttir hjúkrunarfræðingur á Svalbarðsströnd ræðir mannúðarmál og fleira.

Ep 916Rauða borðið 5. júní: Lagatækni eða mannúð, Evrópumál, auðmagn, persónuvernd, útlendingar og víðerni
Rauða borðið, fimmtudaginn 05. júní: Mannúð og stjórnsýsla, Evrópuáhugi vinstri manns, auðmagn, persónuvernd, útlendingahatur og víðerni eru á dagskrá í kvöld Við hefjum leik á samtali Björns Þorlákssonar við Henry Alexander Henrysson heimspeking og sérfræðing í siðferðislegum álitamálum rsem rökæðir mál Oscars hins kólumbíska ásamt Hauki Arnþórssyni stjórnsýslufræðingi. Þeir eru ekki alveg á einu máli þegar þeir ræða inngrip Víðis Reynissonar formanns allsherjarnefndar Alþingis, en allar líkur eru nú á að Oscar fái ríkisborgararétt. Árni Þór Sigurðsson, sendiherra í leyfi og fyrrverandi þingmaður VG, ræður við Gunnar Smára um alþjóðamál og ekki síður Evrópumál, en ríkisstjórnin ætlar að efna til þjóðaratkvæðagreiðslu um aðildarviðræður Íslands að Evrópusambandinu. Jón Gunnar Bernburg prófessor segir Gunnari Smára frá ólíku auðmagni; peningalegu, félagslegu og menningarlegu og hvernig slíkt auðmagn ræður því hverjir heyrast og sjást og hverjir alls ekki. Helga Þórisdóttir, forstjóri Persónuverndar ræðir um helstu áskoranir dagsins í dag í tengslum við persónuvernd. Oddný Eir Ævarsdóttir ræddi við Helgu. Ole Anton Bieltvedt, samfélagsrýnir, ræðir um útlendingahatur á Íslandi við Oddnýju Eir Ævarsdóttur. Og við endum Rauða borðið með samtali við Þorvarð Árnason, forstöðumann Rannsóknaseturs HÍ á Hornafirði og fræðimanns í umhverfishugvísindum. Hann segir okkur frá nýútkominni bók sinni Víðerni sem er grundvallarrit í nýrri nálgun við náttúruna og ræðir tengsl okkar við hana, bókin er skrifuð fyrir almenning og náttúru í harðri viðureign okkar tíma. Oddný Eir ræðir við Þorvarð.

Ep 915Sjávarútvegsspjallið - 52. þáttur: Hafrannsóknir og vinnubrögð Hafró
Fimmdurdagur 5. júní Sjávarútvegsspjallið - 52. þáttur Grétar Mar ræðir við þá Kára Jónsson og Sigurjón Þórðarson um Hafrannsóknir og vinnubrögð Hafrannsóknarstofnunar.

Ep 914Rauða borðið 4. júní: Aþena, líf og dauði, rasismi, mótmæli, kvóti, samfélagssöknuður, skák og bridge
Miðvikudagur 4. júní Aþena, líf og dauði, rasismi, mótmæli, kvóti, samfélagssöknuður, skák og bridge Darina Andreys, Tanja Ósk Brynjarsdóttir og Anna Margrét Lucec Jónsdóttir spila körfubolta með Aþenu í Efra-Breiðholti og berjast fyrir framtíð félagsins gegn borgaryfirvöldum, sem vilja ekki gefa félaginu aðgang að íþróttahúsi. Þær útskýra stöðuna fyrir Gunnari Smára. Sigurjón Magnús ræðir við reynslubolta um samfélagið, líf og dauða, í bókstaflegri merkingu. Bogi Ágústsson fréttamaður, Helga Jónsdóttir bæjarfulltrúi og Ágúst Ólafur Ágústsson hagfræðingur spjalla um samfélagið og okkur sjálf. María Pétursdóttir, listakona og aktívisti, ræðir við Oddnýju Eir um mátt mótmæla gegn undirliggjandi andúð og um háværa kröfu um að loka landamærunum fyrir hælisleitendum. Ásgeir Daníelsson hagfræðingur hefur tekið saman miklar upplýsingar og samanburð á stöðu sjávarútvegs og svo annarskonar atvinnurekstur. Hann ræðir þetta við Sigurjón. Kristín Amalía Atladóttir lífsnautnakona, segir Oddnýju Eir frá lífi sínu úti í sveit og utanlands og veltir fyrir sér söknuði eftir samfélagi. Tveir fulltrúar kvennalandsliðsins í bridge, Guðrún Óskarsdóttir og María Haraldsdóttir Bender, ræða NM sem hefst á Laugarvatni á morgun. Gunnar Björn Helgason fyrirliði kvennaliðsins mætir einnig í briddsþátt Björns Þorlákssonar. Vignir Vatnar, besti skákmaður Íslendinga nú um stundir, gerði sér lítið fyrir og vann sjálfan Magnus Carslen í netskák fyrir nokkrum dögum. Björn Þorláks ræðir við Vigni Vatnar um þetta mikla afrek.

Ep 913Rauða borðið - Útlendingavandamál, rasismi, áfengi og sport, landsbyggðir, lífeyrissjóðir og goth
Þriðjudagur 3. júní Útlendingavandamál, rasismi, áfengi og sport, landsbyggðir, lífeyrissjóðir og goth Að Rauða borðinu mæta þeir Sigfús Aðalsteinsson, forsvarsmaður hópsins Ísland þvert á flokka og Baldur Borgþórsson, fyrrverandi varaborgarfulltrúi og ráðgjafi, og ræða um mótmælin á Austurvelli, ásakanir um rasisma og hatursorðræðuna á samfélagsmiðlum við Oddnýju Eir og Sigurjón. Snorri Sturluson kvikmyndagerðarmaður ræðir við Gunnar Smára um hvernig rasismi getur meitt og grafið undan öryggi þeirra sem verða fyrir honum. Skólameistari Framhaldsskólans í Laugum í Reykjadal, Sigurbjörn Árni Arngrímsson, geldur varhug við aukinni áfengissölu á íþróttaviðburðum. Hann segir að íþróttayfirvöld ættu að staldra við í þessum efnum. Björn Þorláks ræðir við hann. Dögg Sigmarsdóttir, verkefnisstjóri borgaralegrar þátttöku, Margrét Elísabet Ólafsdóttir, prófessor í fræðum myndlistar í Listaháskóla Íslands og dósent í listkennslu við Háskólann á Akureyri og Njörður Sigurjónsson, prófessor í menningarstjórnun við Háskólann á Bifröst ræða við Oddnýju um skapandi mátt og samfélagslega virkni og samveru í dreifðum byggðum landsins. Samstöðin mun fjalla um lífeyrissjóðsmál næstu vikur með nokkuð reglulegum hætti. Fyrsti viðmælandi er Eiríkur Jónsson, fyrrum formaður Kennarasambands Íslands, hann ræðir rimmur liðins tíma og ögurstund sem hann segir að hafi skipt sköpum. Björn Þorláks hefur umsjón með þáttunum. Árni Sveinsson leikstjóri og Laufey Soffía söngkona í Kælunni miklu segja Gunnari Smára frá heimildarmyndinni Goth í RVK, goth-senunni á Íslandi og erlendis og hversu fáir tónleikastaðir eru eftir í henni í Reykjavík.

Ep 912Rauða borðið 2. júní: Pólland, lýðræði, fjölmiðlar, Palestína, woke, glimmer og blóð
Mánudagur 2. júní Pólland, lýðræði, fjölmiðlar, Palestína, woke, glimmer og blóð Jacek Godek hefur þýtt fjölda íslenskra bóka yfir á pólsku en er líka glöggur samfélagsrýnir. Gunnar Smári slær á þráðinn til Jacek til Gdansk í tilefni af pólsku forsetakosningunum, þar sem frambjóðandi ytra hægrisins sigraði. Kristinn Már Ársælsson prófessor við Duke Kunshan-háskólann í Kína ræðir við Gunnar Smára um hnignun lýðræðis í heiminum og innan samfélaga á Vesturlöndum, ekki síst í Bandaríkjum Trump. Ólafur Arnarson, DV, Lárus Ýmir Óskarsson kvikmyndagerðarmaður og fyrrverandi blaðamaður og Steingerður Steinarsdóttir ritstjóri Lifðu núna, ræða við Björn Þorláks um fjölmiðla, blaðamennsku og samfélagspólitík. Nasista ber á góma. Gunnar Smári slær á þráðinn til Jerúsalem og ræðir við Qussay Odeh, íslenskan Palestínumann sem reynir að fá dvalarleyfi sitt framlengt í Palestínu. Qussay lýsir meiri hörku og kúgun undir hernámi Ísraels og spáir að Palestínumenn muni rísa upp. Bjarki Þór Grönfeldt stjórnmálasálfræðingur ræðir við Gunnar Smára um woke og anti-woke, hvort sú deila eigi sér raunverulegar rætur á Íslandi, en ekki síður um merkingu þess að í gær var tiltölulega fjölmennur fundur á Austurvelli þar sem fólk krafðist stefnubreytingar í málefnum hælisleitenda, vildi færri flóttamenn. Magdalena Lukasiak, ljósmyndarannsóknablaðamaður og hinsegin flóttamaður, fjallar um Glimmer og blóð á heimildasýningu sem er að opna í Núllinu.

Ep 911Synir Egils 1. júní: Sjómenn, veiðigjöld, stjórn og stjórnarandstaða, hægri og vinstri
Sunnudagurinn 1. júní Synir Egils: Sjómenn, veiðigjöld, stjórn og stjórnarandstaða, hægri og vinstri Bræðurnir Sigurjón Magnús og Gunnar Smári Egilssynir taka á móti gestum og ræða við þá um helstu fréttir og stöðuna í stjórnmálum. Að þessu sinni koma fyrst þau Jódís Skúladóttir, lögfræðingur og fyrrum þingkona, Kári Gautason búfjárerfðafræðingur og fyrrum aðstoðarmaður ráðherra og Benedikt Erlingsson leikstjóri en síðan þau Bolli Héðinsson hagfræðingur, Erna Bjarnadóttir hagfræðingur og Stefán Pálsson sagnfræðingur. Í tilefni sjómannadags rifjum við upp ávörp óþekka sjómannsins sem Þröstur Leó Gunnarsson, leikari og trillukarl, flutti og þeir bræður taka púlsinn á pólitíkinni.

Ep 909Rauða borðið - Helgi-spjall: Jósep Blöndal
Laugardagur 31. maí Helgi-spjall: Jósep Blöndal Jósep Blöndal, læknir segir frá lífi sínu og ákvörðunum teknum af rælni og ræðir um líf sitt, ástir og æsku, tónlistina, fíknina og fjölskyldulífið en líka um læknisfræðina, hlustunina, heilahvelin, næringafræðina, heilbrigðiskerfið, einkavæðinguna og uppbygginguna á einstakri verkja-meðferð í Hólminum, hvernig tókst að byggja hana upp með teymisvinnu og nýstárlegri nálgun og verja hana fyrir arðsemishugmyndafræðinni.

Ep 910Rauða borðið - Vikuskammtur: Vika 22
Föstudagur 30. maí Vikuskammtur: Vika 22 Í Vikuskammti við Rauða borðið sitja í dag þau Jóna Benediktsdóttir kennari og formaður stjórnarskrárfélagsins, Kjartan Sveinsson formaður Félags strandveiðimanna, Lóa Hjálmtýsdóttir teiknari og Þrándur Þórarinsson listmálari og ræða fréttir vikunnar og ástandið á samfélaginu okkar í upphafi sumar.

Ep 908Sjávarútvegsspjallið - 51. þáttur
Fimmtudagur 28. maí Sjávarútvegsspjallið - 51. þáttur Grétar Mar fær að þessu sinni til sín þá Ólaf "ufsa" Jónsson skipsstjóra, Jón Kristjánsson, fiskifræðing og Ingimund Elísson stýrimann og skipsstjóra.

Ep 907Rauða borðið 28. maí: Oscar, hamingja barna, Gaza, Rússland, blaðamennska og gervigreind
Miðvikudagur 28. maí Oscar, hamingja barna, Gaza, Rússland, blaðamennska og gervigreind Haraldur Þorleifsson frumkvöðull og tónlistarmaður, Arna Grétarsdóttir, sóknarprestur í Reynivallaprestakalli, Bjarni Karlsson, prestur og guðfræðingur hjá sálgæslu- og sálfræðistofunni Haf, ræða við Gunnar Smára um mál Oscars Anders Florez Bocanegra, 17 ára drengs frá Kólumbíu. Og um hlutverk borgara þegar stjórnvöld brjóta gegn siðferðiskennd þeirra. Inger Erla Thomsen, sérfræðingur í málsvarastarfi UNICEF á Íslandi og Eva Bjarnadóttir, teymisstjóri innanlandsdeildar UNICEF ræða lífshamingju barna við Maríu Lilju. Helen Ólafsdóttir öryggissérfræðingur ræðir við Gunnar Smára um stuðning stjórnvalda í Evrópu við þjóðarmorðið í Gaza og hvort von sé til þess að almenningi takist að breyta þeirri afstöðu. Natasha S. ljóðskáld ræðir um Rússland við Gunnar Smára, vanda þess að vera Rússi á Íslandi og hvernig það er að koma til móðurlandsins í skugga innrásar Pútins í Úkraínu. Blaðamannafélagið kynnti á félagsfundi í gærkvöld nýjar lausnir er varða framtíð fjölmiðla og blaðamennsku. Meðal hugmynda er að tekjur af auglýsingasölu Rúv renni til einkarekinna miðla. Ritstjórnarfulltrúar Samstöðvarinnar, þeir Gunnar Smári Egilsson og Björn Þorláks, ræða hvort lausnirnar séu raunhæfar. Björgmundur Örn Guðmundsson, ráðgjafi í nýsköpun ræðir femínskan vinkil á innleiðingu gervigreindar á vinnumarkaði við Maríu Lilju.

Ep 906Rauða borðið 27. maí - Lýðræði. list og gervigreind, ölæði, Landbúnaðarháskólinn og náttúruvefur
Þriðjudagur 27. maí Lýðræði. list og gervigreind, ölæði, Landbúnaðarháskólinn og náttúruvefur Valur Ingimundarson sagnfræðingur og Jón Ólafsson heimspekingur ræða við Gunnar Smára um lýðræðið í austustu Evrópu og lýðræðisþróun í okkar heimshluta. Trump ber á góma ásamt hinum ýmsu Evrópuleiðtogum í bland við stríð, pólitík og uppgang fasisma. Hlynur Helgason, myndlistarmaður, dósent i listfræði HÍ og varaformaður Sambands íslenskra myndlistarmanna ræðir um gervigreind, myndlist, falsanir og höfundarrétt við Oddnýju Eir. Margt bendir til þess að fjárhagsleg afkoma íþróttafélaga ráði för þegar áfengi er selt á viðburðum í kringum börn. Spurt er hvort vegi þyngra, fjármál eða lýðheilsa barna. Árni Guðmundsson forvarnarfulltrúi segir áfengismenninguna út úr kú. Björn Þorláks ræðir við hann. Christian Schultze, umhverfisskipulagsfræðingur og landslagsarkitekt, sviðsstjóri rannsókna- og alþjóðamála í Landbúnaðarháskóla Íslands kemur þar á eftir til Oddnýjar Eirar og segir okkur frá alþjóðasamstarfi og nýjustu verkefnum og ræðir mikilvægi öflugs rannsóknarumhverfis á sviði landbúnaðar á nýjum tímum. Sólrún Harðardóttir, kennari og námsefnishöfundur lokar svo samtali kvöldsins einnig með Oddnýju og ræðir við hana um nýjan náttúruvef fyrir borgarbörn og önnur náttúrubörn.

Ep 905Rauða borðið 26. maí: Samstöðin, Mótmæli, Aðildarumsókn, Akureyrar-cóvíd og Þokkabót
Rauða borðið, mánudaginn, 26. maí. Samstöðin, Mótmæli, Aðildarumsókn, Akureyrar-cóvíd og Þokkabót Við hefjum Rauða borðið á smá spjalli um stöðu Samstöðvarinnar og kynnum síðan dagskrá kvöldsins. Við byrjum á því að fara niðrí bæ á mótmæli. María Lilja og Oddný Eir ræddu við fólk sem kom til að mótmæla brottvísun Oscars Andres Florez Bocanegra. Þær hittu fyrir þjóðþekkt andlit og önnur minna þekkt, fólk sem er vant að mótmæla og aðra sem eru að uppgötva samtakamáttinn. Gunnar Smári ræðir því næst við Hilmar Þór Hilmarsson prófessor í stjórnmálafræði um mögulega aðildarumsókn Íslands að Evrópusambandinu, um muninn á krónu- og evruhagkerfinu. Og svo ræða þeir um síðustu skeyti Trump og afstöðu John Bolton, fyrrum öryggisráðgjafa, til stöðu Íslands gagnvart Bandaríkjunum. Gunnar Smári ræðir við Hilmar Þór Hilmarsson prófessor í stjórnmálafræði um mögulega aðildarumsókn Íslands að Evrópusambandinu, um muninn á krónu- og evru-hagkerfinu. Og svo ræða þeir um síðustu skeyti Trump og afstöðu John Bolton, fyrrum öryggisráðgjafa, til stöðu Íslands gagnvart Bandaríkjunum. Í tímaritinu Súlur hefur birst ný grein eftir Grétar Þór Eyþórsson prófessor á Akureyri um covid-tímann á Akureyri. Grétar ræðir rannsóknina að baki þeirri grein í samtali við Björn Þorláks sem og hallarbyltingu sósíalista. Hljómsveitin Þokkabót er komin á kreik á ný en Íslendingar kannast vel við smelli fortíðar úr smiðju hljómsveitarinnar líkt og Litlir kassar. Þeir Lárus Halldór Grímsson, Ingólfur Steinsson og Halldór Gunnarsson ræða við Björn Þorláks um pólitíska texta, listina að hlusta – og margt fleira.

Ep 904Synir Egils 25. maí - Stjórnin, stjórnarandstaðan, flóttabörn og mótmæli
Sunnudagurinn 25. maí Synir Egils: Stjórnin, stjórnarandstaðan, flóttabörn og mótmæli Bræðurnir Sigurjón Magnús og Gunnar Smári Egilssynir taka á móti gestum og ræða við þá um helstu fréttir og stöðuna í stjórnmálum. Að þessu sinni koma þau Helga Vala Helgadóttir lögmaður, Helen María Ólafsdóttir öryggissérfræðingur og Björn Leví Gunnarsson tölvunarfræðingur og fyrrum þingmaður og ræða fréttir vikunnar og stjórnmálaástandið. María Lílja ræðir síðan við Sonju Magnúsdóttur og Svavar Jóhannsson, fósturforeldra Oscars Bocanegra Florez frá Kólumbíu, sem vísa á úr landi. Í lokin fara þeir bræður síðan yfir pólitíkina með sínu nefi.

Ep 903Rauða borðið - Helgi-spjall: Ásdís Thoroddsen
Laugardagur 24. maí Helgi-spjall: Ásdís Thoroddsen Ásdís Thoroddsen, kvikmyndagerðarmaður segir Oddnýju Eir frá lífi sínu og list.

Ep 902Vikuskammtur 23. maí: Vika 21
Föstudagur 23. maí Vikuskammtur: Vika 21 Í Vikuskammtinum að þessu sinni koma að Rauða borðinu ásamt Maríu Lillju þau Guðmundur Ingi Þóroddsson, Formaður Afstöðu félags fanga. Svala Jóhannesardóttir, formaður Matthildarsamtakanna um skaðaminnkun, Sanna Magdalena Mörtudóttir, leiðtogi Sósíalista og formaður velferðarráðs Reykjavíkur og Pétur Eggerz, tæknistjóri og aðgerðasinni. Það hefur margt gengið á innanlands sem utan en hæst ber að nefna margt varðandi Gaza, mótmæli, málþing, rasisma, hnífstungu og mannskæðan bruna. Þá mælti heilbrigðisráðherra fyrir frumvarpi sem segir nikótínpúðum stríð á hendur, Trump lét gamminn geysa um hin ýmsu mál, úttekt Viðskiptaráðs um kostnað ríkis og bæja vegna latra starfsmanna vakti hörð viðbrögð, búvörulögin voru staðfest af Hæstarétti og Perlan seldist. Þá heyrum við jafnan hvað gestir okkar aðhöfðust í vikunni sem leið en þau eru öll sérstaklega iðin við baráttuna fyrir betra samfélagi.

Ep 901Rauða borðið 22. maí: Sérhagsmunapot, fangar, geggjun, Gaza og frumlegur listamaður
Fimmtudagur 22. maí Sérhagsmunapot, fangar, geggjun, Gaza og frumlegur listamaður Við hefjum leik við Rauða borðið á viðtali við framkvæmdastjóra Félags atvinnurekenda, Ólaf Stephensen. Hann er stóryrtur eftir dóm Hæstaréttar í búvörulagafrumvarpinu og segist hissa á ástandinu í hans gamla flokki, Sjálfstæðisflokknum. Fréttir af Gaza verða sagðar við Rauða borðið. Magga Stína var áberandi í fjölmiðlum í gær og hún vaknaði við holskeflu af viðbjóðslegum skilaboðum. Hún ræðir við Maríu Lilju um fréttir af Gaza, áreitið og ofbeldið sem aktívistar verða fyrir, fyrir það eitt að standa gegn barnamorðum. María Lilja mætti á stórmerka ráðstefnu sem Afstaða, félags fanga blés til í tilefni af 20 ára afmæli félagsins. Hún tók nokkra þátttakendur tali. Grímur Atlason, framkvæmdastjóri Geðhjálpar, segir Oddnýju Eir Ævarsdóttur allt að frétta frá geggjað góðri dagskrá um geðheilbrigðismál um síðustu helgi. Við endum þáttinn í kvöld úti á landi. Egill Logi Jónasson, listamannsnafn hans er Drengurinn fengurinn, er nýr bæjarlistamaður á Akureyri og ræðir í samtali við Björn Þorláks kúnstina að vera til og það sturlaða plan að reyna að þrífast og lifa á listinni.

Ep 900Auðlindin - 22. maí
Þau Jóhanna Bergmann Þorvaldsdóttir, geitabóndi á Háafelli, Stebbi Jak tónlistarmaður og Hildur Þórisdóttir, bæjarfulltrúi Múlaþings ræða mál líðandi stundar innan héraðs sem utan í þættinum Auðlindin í umsjá Maríu Lilju og Björns Þorláks. Í þættinum verður leitast við að bregða upp sjónarmiðum fólksins sem velur að búa úti á landi.

Ep 899Rauða borðið 21. maí - Gaza, Reynsluboltar, misskipting, Nigel Farage, arkítektúr, Færeyjar og bridge
Miðvikudagur 21. maí Gaza, Reynsluboltar, misskipting, Nigel Farage, arkítektúr, Færeyjar og bridge Í byrjun þáttar fer María Lilja yfir það helsta sem er að frétta af þjóðarmorðinu á Gaza. Reysluboltar Sigurjóns M eru á sínum stað. Þau Hörður Torfason - Ragnheiður Davíðsdóttir - Drífa Sigfúsdóttir ræða ýmis hitamál. Vaxtalækkun Seðlabankans mun ekki endilega gera hlutskipti leigjenda bærilegra, dæmi eru um hið gagnstæða. Þetta segir Guðmundur Hrafn Arngrímsson formaður Leigjendasamtakanna. Hann ræðir húsnæðismálin og pólitískt stefnumót sósíalista um næstu helgi ásamt Sönnu Magdalenu Mörtudóttur borgarfulltrúa. Björn Þorláks ræðir við þau. Gunnar Smári hringir til London og ræðir við Guðmund Auðunsson hagfræðing um bresk stjórnmál, einkum ensk, og ekki síst um hvaða fyrirbrigði Umbótaflokkur Nigel Farage er. Mikið vantar á að hugað sé að tilhlýðilegum lífsgæðum íbúa er kemur að húsbyggingum síðustu ára - þéttingarstefnan bitnar á ljósi og hljóði og spyrna þarf við fótum með róttækum hætti ekki seinna en strax. Þetta kemur fram í eldsnörpu og gagnrýnu spjalli Hildigunnar Sverrisdóttur arkitekts, Ólafs Hjàlmarssonar hljóðverkfræðings og Àsta Logadóttur verkfræðings sem er sérfræðingur í ljósi. Björn Þorláks ræðir við þau. Stórskáldið færeyska, Carl Jóhan Jensen, segir okkur fréttir frá Færeyjum og ræðir um heimsókn Kristrúnar, varnarmál, nýlenduhyggju, bókmenntir og annað sem hæst ber. Það styttist í einn stærsta briddsviðburð um langt skeið hér á landi. Á Laugarvatni fer fram í byrjun næsta mánaðar Norðurlandamót og ræða þeir Matthías Imsland, framkvæmdastjóri Bridgesambands Íslands, og Magnús Magnússon landsliðsmaður horfurnar, auk þess sem Magnús segir frá því hvernig hann varð briddspilari í fremstu röð. Björn Þorláks hefur umsjá með bridsþætti Samstöðvarinnar.

Ep 898Rauða borðið 20. maí - Samherjastríð, rasismi, netöryggi, borgarskipulag og fuglahvísl

Ep 897Rauður raunveruleiki - Lagabreytingartillögur Sósíalista á Akureyri um svæðisfélög
Við ræðum við félagsmenn Sósíalistaflokksins í NA kjördæmi sem hafa lagt fram lagabreytingartillögu um svæðisfélög fyrir komandi aðalfund flokksins 24. maí. Karl Héðinn Kristjánsson ræðir við þá Ara Orrason, Guðberg Egill Eyjólfsson og Jón Þór Sigurðsson um lagabreytingartillögu þeirra og sósíalista á Akureyri.

Ep 895Rauða borðið 19. maí: Gaza, geðheilsa, málþóf, óþekkti þingmaðurinn, sósíalismi og torfbær
Rauða borðið 19. maí Gaza, geðheilsa, málþóf, óþekkti þingmaðurinn, sósíalismi og torfbær Ennþá versnar ástandið á Gaza, María Lilja fylgist náið með næstu daga. Í kvöld fær hún til sín Kötlu Ásgeirsdótttur, plötusnúð og aktívista og fara þær yfir nýjustu fréttir. Þá er endurflutt ræða Páls Óskars frá liðinni helgi. Ræðan var frumflutt á baráttufundi fyrir frelsi Palestínu fyrir gesti við Austurvöll. Elín Ebba Ásmundsdóttir varaformaður Geðhjálpar mætti ásamt listamönnunum Ægi Mána Bjarnasyni og Karli Kristjáni Dávíðssyni, auk Kolbrúnar Guðmundsdóttur, konu Karls Kristjáns, að tala um geðheilbrigðismál. Þau segja okkur frá nýrri viðbót í geðheilbrigðisþjónustu, jafningjastuðningsins, ásamt því að fara yfir fordóma, heimilisleysi og fleiri áskoranir sem fólk með geðrænar áskoranir þarf oft að glíma við auk veikinda sinna. Björn Leví Gunnarsson, tölvunarfræðingur, fyrrum þingmaður, útskýrir fyrir okkur mikilvægi málþófsins á Alþingi og ræðir um júróvisjón-atkvæðin, nefndirnar, skautunina, vókið og tilfinningatjáningu, áróður og gagnsæi. Snorri Másson ræðir við Björn Þorláks sem óþekkti þingmaðurinn þessa vikuna. Skoðanir Snorra eru umdeildari en gengur og gerist. Hver er maðurinn á bak við pólitíkina? Eyjólfur Eyvindsson kemur í vikulegt spjall við Maríu Lilju með fréttir af hnattræna suðrinu. Hannes Lárusson myndlistarmaður ólst upp í torfbæ til tíu ára aldurs. Hann lítur íslenska torfbæinn öðrum og jákvæðari augum en margir aðrir Íslendingar eins og fram kemur í samtali hans og Björns Þorlákssonar og vill að torfbærinn fari á heimsminjaskrá UNESCO.

Ep 896Rauður raunveruleiki - Lagabreytingartillaga ROÐA um Samvisku / Trúnaðarráð
Lagabreytingartillaga ROÐA um Samvisku / Trúnaðarráð er kynnt í þættinum af Karli Héðni Kristjánssyni, Sigurrós Eggertsdóttur og Sigurði Erlends Guðbjargarsyni.Það er skýrt ákall um breytingar á Samvisku og við teljum að tillaga okkar sé skref í rétta átt.Næsta fimmtudag munum við kynna lagabreytingartillögu okkar. Opin umræða og gagnrýnar spurningar eru velkomnar.Verið hjartanlega velkomin á kynningarfund ROÐA um lagabreytingartillögu okkar um Trúnaðarráð / Samvisku!Fimmtudaginn 22. maí kl. 17.Aðalfundurinn er síðan laugardaginn 24. maí kl. 11 í Bolholti 6, Reykjavík. Lesið allar lagabreytingartillögur sem lagðar hafa verið fyrir aðalfund flokksins á vef flokksins:https://sosialistaflokkurinn.is/.../tillogur-um.../