
Samstöðin
710 episodes — Page 13 of 15

Ep 791Rauða borðið 19. feb - Úkraína, reynsluboltar, spilling, ópera, uppskera og kvóti
Miðvikudagur 19. febrúar Úkraína, reynsluboltar, spilling, ópera, uppskera og kvóti Tjörvi Schiöth doktorsnemi greinir breytta stöðu í Úkraínu og Evrópu eftir stefnubreytingu ríkisstjórnar Trump í samtali við Gunnar Smára. Karl Garðarsson, Guðmundur Þ. Ragnarsson og Steingerður Steinarsdóttir ræða málin við Sigurjón Magnúsi. Víða var komið við, í Úkraínu, hér og þar í Evrópu, í Hvíta húsi Trump, í borgarstjórn og ríkisstjórn. Þórður Snær Júlíusson er gestur Björns Þorlákssonar í umræðu um íslenska spillingu. Þórður er sérfræðingur íslensku efnahagslífi og ræðir það sem hann nefnir strokuspillingu. Þórunn Guðmundsdóttir samdi óperuna Hliðarspor til að framlengja söguna sem hófst í Rakaranum frá Sevilla og hélt áfram með Brúðkaupi Fígarós. Hún segir frá Gunnar Smára frá sýningunni með söngfólki: Hafsteinn Þórólfsson, Þórunn Guðmundsdóttir og Guðrún Brjánsdóttir. Uppskeruhátíð. Listakonurnar Kolbrún Dögg Kjartansdóttir og Margrét M. Norðdahl ræða við Oddnýju Eir um mikilvægi uppskeruhátíða í baráttu fyrir betra lífi. Björn Ólafsson, gamall sjómaður með meiru, ræðir fiskveiðiráðgjöf Hafró við nafna sinn Þorláksson með gagnrýnum hætti.

Ep 790Sósíalísk stjórnarandstaða - 5. þáttur: Samningur SÞ um réttindi fatlaðs fólks
Miðvikudagur 19. febrúar Sósíalísk stjórnarandstaða - 5. þáttur Í þætti kvöldsins er María Pétursdóttir, myndlistarkona, aðgerðarsinni og baráttukona um réttindi fatlaðs fólks. Í þættinum munum við fara yfir samning Sameinuðu þjóðanna um réttindi fatlaðs fólks. í ljósi þess að loksins eigi að leggja samninginn fyrir sem frumvarp til laga á Alþingi í mars.

Ep 789Rauða borðið 18.feb - Nató í neyð, Dylan, kjaramál, kvennasögur, nýr þingmaður og landnámsþorskurinn
Þriðjudagur 18. febrúar Nató í neyð, Bubbi um Dylan, kjaramál, femínísk sagnfræð, nýr þingmaður og landnámsþorskurinn Erlingur Erlingsson hernaðarsagnfræðingur og Kristinn Hrafnsson blaðamaður ræða um upplausn í Nató og öryggishagsmuni Íslands og Evrópu í samtali við Gunnar Smára. Hann fær síðan Bubba Morthens til að segja okkur frá áhrifum Bob Dylan á sig sem tónlistarmanns, skálds, manneskju og ástmanns. Kolbrún Halldórsdóttir ræðir við Björn Þorláks kjaramál og virðingarleysi gagnvart tilteknum starfstéttum. Við hleypum nýjum lið af stokkunum, sem við köllum "óþekkta þingmanninn". Jón Pétur Zimsen, þingmaður Sjálfstæðisflokksins, ríður á vaðið með Birni Þorláks. María Lilja ræðir sagnfræði við Agnesi Jónasdóttur, sem situr í stjórn Sagnfræðingafélags Íslands. Hvað kennir sagan okkur um brautryðjendur í hópi íslenskra kvenna? Í lokin koma Guðbjörg Ásta Ólafsdóttir líffræðingur og Árni Daníel Júlíusson sagnfræðingur og segja Gunnar Smára frá því hvernig þorskurinn hefur breyst frá landnámi, en þá var hann stærri og eldri en hann er í dag.

Ep 788Rauða borðið 17. febrúar: Ræstingar, fjölmiðlar misbeiting valds, Heim og pólitík
Mánudagur 17. febrúar Ræstingar, fjölmiðlar misbeiting valds, Heim og pólitík Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar lýsir fyrir Gunnar Smára hvernig ræstingarfyrirtæki hafa grafið undan lífskjörum ræstingakvenna og í ofan á lag haft af þeim umsamdar kjarabætur. Hiti varð í umræðunni við Rauða borðið vegna Moggans og innflytjendamála í dag þegar Valur Grettisson Heimildinni, María Lilja Ingveldar Þrastardóttir Kemp Samstöðinni og Ólafur Arnarson DV, gestir Björns Þorlákssonar létu gamminn geisa í umræðu um fjölmiðla. Björn Leví Gunnarsson fyrrverandi þingmaður Pírata tekur stöðuna í stjórnmálunum, ræðir við Oddnýju Eir um misnotkun valds og óhjákvæmilega sprengingu. Hrafnhildur Hagalín Guðmundsdóttir leikskáld og Magnús Geir Þórðarson leikstjóri og leikhússtjóri segja frá Heim, nýju verki Hrafnhildar í leikstjórn Magnúsar í spjalli við Gunnar Smára. Vilhjálmur Bjarnason fyrrum þingmaður ræddi um daginn og veginn við Sigurjón Magnús Egilsson og sagði honum sögur.

Ep 787Synir Egils 16. febrúar: Samdráttur og sundrung, pólitíkin og Sjálfstæðisflokkurinn
Sunnudagurinn 16. febrúar Synir Egils: Samdráttur og sundrung, pólitíkin og Sjálfstæðisflokkurinn Bræðurnir Sigurjón Magnús og Gunnar Smári Egilssynir taka á móti gestum og ræða við þá um helstu fréttir og pólitíkina. Að þessi sinni koma þau Helgi Seljan blaðamaður, Jakob Bjarnar Grétarsson blaðamaður og Karen Kjartansdóttir upplýsingafulltrúi og fara yfir skrautlegar fréttir vikunnar, átök og árekstra í pólitíkinni og fjölmiðlum. Þeir bræður taka líka stöðuna á stjórnmálunum og fá síðan sjálfstæðisflokksfólk til að spá í komandi landsfund, stöðu flokksins og val á forystu: Sandra Hlíf Ocares, varaborgarfulltrúi Sjálfstæðisflokksins, Ásmundur Friðriksson fyrrverandi þingmaður og Jón Kristinn Snæhólm stjórnmálafræðingur greina stöðuna og spá í framtíðina.

Ep 784Heimsmyndir - Valur Arnarson
Laugardagur 15. febrúar Heimsmyndir - Valur Arnarson Valur Arnarson verkfræðingur og net-aktívisti kom í þáttinn að spjalla um umræðumenninguna í netheimum og vókið. Þeir Kristinn reyndu að segja allskyns hættulega hluti og verða argir og rífast, en þetta varð ósköp vinalegt spjall.

Ep 786Sjávarútvegsspjallið - 39. þáttur - Aflafréttir
Fimmtudagur 13. febrúar Sjávarútvegsspjallið - 39. þáttur Grétar Mar og Ólafur Jónsson (Óli ufsi) fá til sín Gísla Reynisson sem heflur úti vefnum aflafrettir.is

Ep 785Sósíalísk stjórnarandstaða - 4. þáttur: Glundroðinn í borginni
Miðvikudagur 12. febrúar Sósíalísk stjórnarandstaða - 4. þáttur Í þættinum í kvöld er gestur þáttarins Atli Þór Fanndal, verkefnastjóri Háskólans á Bifröst. Við stikluðum á stóru um glundroðann í borginni og fórum meðal annars yfir sögu Framsóknar í borginni, viðræður oddvita flokkanna sem leggja allt kapp á að mynda nýjan meirihluta og vonina á bættu ástandi í borginni með velferð borgarbúa í fyrirrúmi.

Ep 784Grimmi og Snar #34 - Kassinn þarf hjálp 📦
Fimmtudagur 13. febrúar Grimmi og Snar #34 - Kassinn þarf hjálp 📦 Heiða Vigdís Sigfúsdóttir kom í Grimma og Snar og master multitaskaði á skrifstofunni 🥷💻

Ep 783Helgi-spjall 15. febrúar: Þórhildur Þorleifsdóttir
Þórhildur Þorleifsdóttir leikstjóri og fyrrum þingkona ræðir um lífið og leikhúsið, uppvöxt og þroska, feminisma, pólitík, átök og sigra.

Ep 782Rauða borðið - Vikuskammtur: Vika 7
Föstudagur 14. febrúar Vikuskammtur: Vika 7 Efnistök að þessu sinni verða, á meðal annars, sviptingar í borginni, ofbeldi í barnaskóla, brim við Þorlákshöfn, Guðrún Hafsteinsdóttir, Trump, Pútín, Úkraína, vopnahlé á Gaza, Kendrick Lamar og Superbowl ofl. Til leiks mæta þau Daníel Thor Bjarnason þroskaþjálfi, Anita DaSilva, úr ungliðahreyfingu sósíalista, Laufey Líndal, tæknimaður og Valgerður Árnadóttir, fyrrverandi varaþingmaður Pírata og dýravinur

Ep 781Rauða borðið 13. feb - Breiðholt, harka í íþróttum, Hafró, ljóð, karlmennska og breytingarskeiðið
Fimmtudagur 13. febrúar Breiðholt, harka í íþróttum, Hafró, ljóð, karlmennska og breytingarskeiðið Hermann Austmar, faðir stúlku í Breiðholtsskóla, segir frá ógnarástandi í skólanum, en margir nemendur treysta sér ekki til að mæta í skólann. Darina Andreys, Hanna Þráinsdóttir og Dzana Crnac spila körfubolta með Aþenu, íþróttafélagi sem Brynjar Karl Sigurðsson veitir forstöðu, þjálfari sem er gagnrýndur fyrir yfirgang og dónaskap gagnvart leikmönnum. Hvað segja stelpurnar? Sá þingmaður sem hefur verið einna mest á milli tanna fólksins í landinu, Sigurjón Þórðarson, mætir á Samstöðina í kvöld og ræðir sjávarútveg, Hafró og fleiri mál ásamt Grétari Mar Jónssyni. Skáldkonan Margrét Lóa kemur að Rauða borðinu í bókaspjall við Vigdísi Grímsdóttur og Oddnýju Eir. Þær fara yfir fjörutíu ára feril skáldkonunnar í ljóðum, hún segir frá nýjustu bók sinni, verðlaunaritinu Pólstjarnan leiðir okkur heim og sýnir okkur hinar ljóðabækurnar sem margar eru bókverk. Ævar Þór Benediktsson þýðandi og leikari og Hilmir Jensson leikstjóri koma og segja frá leikritinu Kapteini Frábærum, sem fjallar um karlmennsku og sorg. Í lokin kemur Elín Ósk Óskarsdóttir óperusöngkona og segir okkur frá því þegar hún veiktist, hvers vegna hún gat ekki sungið og hvernig hún fann röddina aftur.

Ep 780Rauða borðið 12. feb - Spilling, öryggi, pólitík, jaðarljóð, klassík, brúarsmíði og heilnæmi
Miðvikudagur 12. febrúar Spilling, öryggi, pólitík, jaðarljóð, klassík, brúarsmíði og heilnæmi Þorvaldur Logason stjórnarformaður Transparency, Jóhann Hauksson blaðamaður og Þorvaldur Gylfason hagfræðingur eru sammála um að mæliskekkja hafi verið gerð varðandi spillingu á Íslandi fremur en að spilling sé á undanhaldi. Valur Ingimundarson prófessor ræðir öryggismál Evrópu í ljósi ummæla og stefnu Donald Trump. Sigurjón Magnús fær til sín reynslubolta að ræða daginn og veginn: Drífa Sigfúsdóttir varaformaður Landssambands eldri borgara, Ólafur Þ. Harðarson prófessor og Arnar Björnsson fréttamaður fara yfir stöðuna. Þorbera Fjölnisdóttir, varaformaður NPA miðstöðvar og Sigríður Jónsdóttir, aktivisti, listakona, liðskonur Tabú, femínískrar fötlunarhreyfingar, koma að Rauða borðinu og segja okkur frá Ljóðakvöldi RVK Poetics #17: Frá hjartarótum: Skrif eftir fatlaðar konur og jaðarsett kyn. Tónlistarnemarnir Sól Björnsdóttir og Sóley Lóa Smáradóttir taka á móti Hildigunni Halldórsdóttir fiðluleikara og Helga Jónssyni slagverkskennara og ræða tónlist og tónlistarkennslu. Auður Aðalsteinsdóttir, forstöðumaður Rannsóknaseturs Háskóla Íslands í Þingeyjarsveit og Svartárkotssysturnar Sigurlína Tryggvadóttir og Guðrún S. Tryggvadóttir, sauðfjár og ferðaþjónustubændur, huldukonur í stjórn Huldu-Náttúruhugvísindaseturs, ræða um brúarsmíðina til framtíðar. Harpa Fönn Sigurjónsdóttir, lögfræðingur og umhverfissinni og Guðrún Birna le Sage, framkvæmdastjóri SUM og verkefnastjóri Pietasamtakanna segja okkur frá Samtökum um áhrif umhverfis á heilsu, helstu ógnum og mikilvægi heilnæms umhverfis fyrir okkur öll.

Ep 779Rauða borðið 11. feb - Stjórnmálaátök, karlmennska, íslenskan, list, píanókeppni og Marmarabörn
Þriðjudagur 11. febrúar Stjórnmálaátök, karlmennska, íslenskan, réttindi fatlaðra, píanókeppni og Marmarabörn Við ræðum um stjórnmálaátökin á þinginu og í borgarstjórn, Ágúst Bjarni Garðarsson, fráfarandi þingmaður, Ólína Kjerúlf Þorvarðardóttir, prófessor, Guðmundur Andri Thorsson, rithöfundur og Gunnar Smári Egilsson, blaðamaður spjalla við Sigurjón Magnús. María Lilja veltir fyrir sér karlmensku á krossgötum og fær til sín turnana tvo Frosta Logason, fjölmiðlamann og Þorstein V. Einarsson, kynjafræðing sem hafa tekist á í gegnum árin og þau leita af samnefnara til að bæta megi líðan karla í samfélaginu og mögulega spyrna gegn ofbeldi. Við ræðum um ögrandi áskorun varðandi innflytjendur á Íslandi: Tölum fokking íslensku. Ólafur Guðsteinn Kristjánsson, almannakennari og aðjúnkt í HÍ kemur frá Ísafirði og segir okkur frá afstöðu sinni til íslensku sem annars máls, ræðir hugtakið almannakennari og mikilvægi samfélagslegrar þátttöku í máltileinkun í spjalli við Oddnýju Eir. Brandur Bryndísarson Karlsson lamaðist fyrir neðan háls fyrir rúmum tíu árum síðan. Hann er í dag mikill baráttumaður fyrir réttindum fatlaðra milli þess sem hann sinnir myndlistinni og ferðast en hann er nýkominn heim eftir að hafa ferðast um Nepal öðru sinni. Brandur ræðir takmarkanir vegna fötlunar, myndlistina og ferðalög við Maríu Lilju. EPTA-píanókeppninni sem átti að halda í næsta mánuði í Salnum í Kópavogi hefur verið frestað með skömmum fyrirvara vegna peningaskorts og hringlandaháttar stjórnvalda. Þrír píanókennarar sem allir tengjast keppninni, Ólöf Jónsdóttir, Kristinn Örn Kristinsson og Birna Hallgrímsdóttir ræða málin við Björn Þorláksson. Marmarabörnin Sig¬urð-ur Ar¬ent Jóns¬son og Saga Kjerúlf Sigurðardóttir ræða við Gunnar Smára um sýninguna Árið án sumars, dans-tilraunaleikhús á stóra sviði Borgarleikhússins.

Ep 778Rauða borðið: Borgarpólitík, stefnuræða, voðaverk, fjölmiðlar, Þorsteinn Pálsson og raddir fólks
Fimmtudagur 10. febrúar Borgarpólitíkin, stefnuræða Kristrúnar, voðaverk í Svíþjóð, fjölmiðlar, Þorsteinn Pálsson og raddir almennings Við hefjum leik á greiningu á stefnuræðu hins unga forsætisráðherra á Alþingi, Kristrúnar Frostadóttur. Fjallað verður um síðustu vendingar í stöðu borgarmálanna eftir að Einar Þorsteinsson framdi valdarán gegn sjálfum sér eins og einhver orðaði það. Munu sósíalistar hreppa borgarstjórastólastól Einars er ein spurningin. Jón Óðinn Waage er Akureyringur sem býr í Svíþjóð. Hann lýsir hvernig nánast tilviljun bjargaði því að dóttir hans slapp við að lenda í skotlínu fjöldamorðingjans í Örebro. Hundingjarnir fara á stjá og ræða um stjórnmál á götum úti. Að þessu sinni fær fólkið í borginni að pæla í borgarstjórninni og nýjum borgarstjóra. Hinn gamalreyndi Sigurjón Magnús Egilsson ræðir við fyrrum forsætisráðherra, Þorstein Pálsson um pólitík og þjóðfélagið. Og Henry Alexander Henrysson, doktor í heimspeki, sem er ekki á facebook, upplýsir hvers vegna - samhliða því að fjalla um ýmis siðferðisleg álitamál er varða fjölmiðla og stjórnmálafólk. Rauða borðið hefst á Samstöðinni klukkan 20 í kvöld – í beinni útsendingu.

Ep 777Synir Egils 9. feb - Upplausn, plott, átök og óöryggi
Sunnudagurinn 9. febrúar Synir Egils: Upplausn, plott, átök og óöryggi Bræðurnir Sigurjón Magnús og Gunnar Smári Egilssynir taka á móti gestum og ræða við þá um helstu fréttir og pólitíkina. Að þessi sinni koma þau Finnbjörn A. Hermannsson forseti Alþýðusambandsins, Þóra Kristín Ásgeirsdóttir upplýsingafulltrúi og Svandís Svavarsdóttir formaður Vg og fara yfir viðburðaríka fréttaviku og ræða stöðu stjórnmála og efnahagsmála. Þeir bræður taka púlsinn á pólitíkinni en fá síðan góðan hóp til að ræða stöðuna í utanríkis- og varnarmálum: Pawel Bartoszek, formaður utanríkismálanefndar, Sóley Kaldal öryggisverkfræðingur og stjórnarmaður í Varðbergi, Stefán Pálsson sagnfræðingur og stjórnarmaður í Samtökum hernaðarandstæðinga og Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir, þingkona og fyrrum utanríkisráðherra meta stöðuna, ekki síst út frá orðum og stefnu Donalds Trump.

Ep 775Helgi-spjall 8. febrúar: Sigurður Gylfi Magnússon
Sigurður Gylfi Magnússon, sagnfræðingur segir okkur frá lífi sínu í einsögufræðum og ást, eldmóði, átökum, skáldskap og skynjun, frá hundalílfi og hamskiptum.

Ep 776Rauða borðið - Vikuskammtur: Vika 6
Föstudagur 7. febrúar Vikuskammtur: Vika 6 Við förum um víðan völl enda umfangsmikil fréttavika. Trump og Gaza og Trump og transfólk. Svo kom þing saman, óveður, Halla forseti og Auschwitz, fjöldamorð í Svíþjóð, 75% hælisleitenda frá Úkraínu, Kennarar og flugvöllurinn svo fátt eitt sé nefnt. Gestir eru þau Björg Eva Erlendsdóttir, Sigurður Kári Kristjánsson, Katla Ásgeirsdóttir og Arndís Anna Kristínardóttir Gunnarsdóttir

Ep 774Sjávarútvegsspjallið - 38. þáttur: Hafrannsóknir og fiskeldi
Fimmtudagur 6. febrúar Sjávarútvegsspjallið - 38. þáttur Grétar Mar fær til sín Þórberg Torfason sem segir frá störfum sínum, m.a. fyrir Hafrannsóknarstofnun og Fiskistofu.

Ep 773Rauða borðið 6. feb - Nauðungarvistun, Prójekt 2025, fötlun og menning, Radíó Gaza og bókaspjall
Fimmtudagur 6. febrúar Nauðungarvistun, Prójekt 2025, fötlun og menning, Radíó Gaza og bókaspjall Í upphafi þáttar verður Elín Ebba Ásmundsdóttir, varaformaður Geðhjálpar, gestur Sigurjóns í beinni útsendingu. Magga Stína Blöndal, tónlistakona mætir til leiks ásamt Sigtryggi Jóhannssyni, ljósmyndara en þau eru sérstaklega fróð um málefni Gaza. Þau ræða fréttir af Bandaríkjaforseta sem hyggst nú ásamt ísraelskum stjórnvöldum flytja fólk af Gaza svæðinu til að útbúa þar lúxus-nýlendu. Arna Magnea Danks, transfréttaritari Rauða borðsins segir okkur hinsegin fréttir og frá hinu lífshættulega trömpíska prójekti 2025. Anna Rós Árnadóttir, ný rödd í ljóðaheiminum sem hlaut ljóðstaf Jóns úr Vör og Anton Helgi Jónsson sem þekkir verðlaunin vel, bæði sem verðlaunahafi og dómnefndarmaður, mæta í bókaspjall við Rauða borðið og ræða um verðlaun og ljóð og lífið. Rannveig Traustadóttir, prófessor emerita í fötlunarfræðum við HÍ kemur í lok þáttar til Maríu Lilju og ræðir menningarhátíðina Uppskeru og almennt um listir, fötlun og fræði

Ep 772Rauða borðið 5. feb - Spilling, vítissódi, vextir, leiklist, reynsluboltar og neytendamál
Miðvikudagur 5. febrúar Spilling, vítissódi, vextir, leiklist, reynsluboltar og neytendamál Breki Karlsson, formaður Neytendasamtakanna, kemur og bregst við stýrivaxtalækkun Seðlabankans. Er til góðs að ný ríkisstjórn leggi fram nýtt búvörufrumvarp? Breki svarar því. Sigurjón Magnús Egilsson fær landslið reynslubolta til að ræða ýmis mál. Þau Jakob Frímann Magnússon, Erna Indriðadóttir, fyrrum fréttakona og Einar Kárason rithöfundur láta gamminn geysa – ekki missa af því. Einnig verður áhugaverð menningarumfjöllun í þættinum. Gunnar Smári ræðir við Björk Jakobsdóttur leikstjóra, Óla Gunnar Gunnarsson leikara og handritshöfund og Vigdísi Höllu Birgisdóttur leikkonu. Leikverkið Tóm hamingja verður til umfjöllunar, leikrit sem Gaflaraleikhúsið hefur sett upp í Borgarleikhúsinu. Þorvaldur Logason heimspekingur og rithöfundur og Hallfríður Þórarinsdóttir doktor í menningarmannfræði koma og ræða hvaða áhrif geta orðið af umfjöllun um spillingu á þessu litla og skrýtna skeri okkar. Þorvaldur er höfundur Eimreiðarelítunnar, sem vakið hefur mikla athygli. Við endum Rauða borðið á áhugaverðu deilumáli í Hvalfirði. Þar á að setja mikið magn af vítissóda í sjóinn innan skamms og sýnist sitt hverjum um ágæti þess. Haraldur Eiríksson sem hefur hagsmuna að gæta kemur og ræðir við okkur.

Ep 771Sósíalísk stjórnarandstaða - 3. þáttur: Húsnæðismál öryrkja
Miðvikudagur 5. febrúar Sósíalísk stjórnarandstaða - 3. þáttur Í þættinum í kvöld fáum við til okkar Kjartan Þór Ingason, verkefnastjóra hjá Réttindasamtökum ÖBÍ, og Maríu Pétursdóttur, formann húsnæðishóps ÖBÍ. Þau eru höfundar skýrslu um húsnæðismál fatlaðs fólks, sem kom út í nóvember árið 2023. Stiklað verður á stóru um stöðu fatlaðs fólks á húsnæðismarkaðnum og hvers má vænta af nýrri ríkisstjórn í málaflokknum þegar litið er til nýútgefinnar málefnaskrár hennar.

Ep 770Rauða borðið 4. feb - Alþingi, þýskar kosningar, hinsegin barátta, listir, trúmál og öryggi barna
Þriðjudagur 4. febrúar Valdaumskipti á Alþingi, þýskar kosningar, hinsegin barátta, listir, trúmál og öryggi barna Helga Vala Helgadóttir lögmaður og fyrrum þingkona greinir þau miklu umskipti sem hafa orðið í valdatafli landsmanna með því að flokkar sem vanir eru að sitja í ríkisstjórn eru nú í stjórnarandstöðu og öfugt. Alþingi var sett í dag. Við höldum áfram að ræða um trúmál og fáum til okkar fulltrúa andans að Rauða borðinu, Davíð Þór Jónsson þjóðkirkjuprest og Sverri Agnarsson, fjölmiðlaráðgjafa og múslima. Þau ræða meðal annars aukna kirkjusókn, fordóma gagnvart trúarbrögðum, einn guð og feðraveldið. Auðunn Arnórsson stjórnmálafræðingur fer yfir stöðuna í þýskum stjórnmálum í aðdraganda kosninga. Auður Magndís, Ugla Stefanía og Íris Ellenberger ræða bakslag í hinsegin baráttu. Herdís Storgaard fjallar um öryggi barna og viðureignir við kerfið. Ólöf Ingólfsdóttir dansari og söngvari segir okkur frá endurkomu sinni í listina og ræðir verk sitt Eitthvað um skýin.

Ep 769Rauða borðið 3. feb: Ríkisstjórn, kennaraverkfall, glæpir, rasismi, Mogginn, lágstéttarkona, trú og baskavígin
Mánudagur 3. febrúar Ríkisstjórn, kennaraverkfall, glæpir, rasismi, Mogginn, lágstéttarkona trú og baskavígin Við byrjum á að fara yfir verkefnaskrá ríkisstjórnarinnar og fáum síðan forystu kennara til ræða yfirstandandi og komandi verkföll: Haraldur Freyr Gíslason, formaður leikskólakennar, Mjöll Matthúasdóttir, formaður grunnskólakennara, Guðjón Hreinn Hauksson formaður framhaldsskólakennara og Sigrún Grendal formaður tónlistarkennara mæta að Rauða borðinu. Helgi Gunnlaugsson afbrotafræðingur ræðir um undirheimana og þróun glæpa á Íslandi. Oddný Eir og María Lilja fóru á stúfana og heyrðu hvað fólk á förnum vegi hefur að segja um rasisma, og svo berst talið líka að Grænlandi. Er Morgunblaðið fyrst og fremst í pólitík fremur en sanngjörnum fréttum þessa dagana? Blaðamennirnir Ólafur Arnarson, Jón Ferdinand Esterarson, Oddný Eir Ævarsdóttir og Atli Þór Fanndal ræða málin með Birni Þorláks. Þórey Birgisdóttir leikari og Anna María Tómasdóttir leikstjóra hafa þýtt og staðfært einleikinn Ífigeníu í Ásbrú, sem Þórey leikur snilldarvel í Tjarnarbíói. Verkið fjallar um grimman samtíma okkar, segir sögu stúlku sem við kannski sjáum ekki og viljum ekki sjá. Karlar sækja kirkjuna í auknum mæli, er það jákvæð þróun eða ber það vott um afturhvarf til íhaldsins? María Lilja fær til sín þau Karl Héðinn Kristjánsson og Ingu Auðbjörgu Straumland sem eiga það sameiginlegt að vera forsvarsfólk lífskoðunarfélaga: DíaMat og Siðmenntar. Í Tjarnabíói er annar einleikur um baskavígin, byggður Arisman eftir Tapio Koivukari. Þar fer Elfar Logi Hannesson með hlutverk Jóns lærða sem afhjúpaði glæpa Ara í Ögri (sem Elfar Logi leikur líka). Við fáum hann og dóttur hans, Sunnefu Elfarsdóttur búningahönnuð, ásamt Héðni Birni Ásbjörnssyni formanni Baskasetursins og Ólínu Kjerúlf Þorvarðardóttur þjóðfræðing til að ræða verkið og fjöldamorðin á baskneskum skipbrotsmönnum.

Ep 768Synir Egils 2. feb - Nató-krísan, verkföll, sparnaður, styrkir og VR
Sunnudagurinn 2. febrúar Synir Egils: Nató-krísan, verkföll, sparnaður, styrkir og VR Bræðurnir Sigurjón Magnús og Gunnar Smári Egilssynir taka á móti gestum og ræða við þá um helstu fréttir og pólitíkina. Að þessi sinni koma þær Andrea Sigurðardóttir blaðakona á Morgunblaðinu, Ása Berglind Hjálmarsdóttir þingkona Samfylkingarinnar og Eva H. Önnudóttir prófessor í stjórnmálafræði og ræða frérttir vikunnar og stjórnmálaástandið. Þeir bræður taka líka púlsinn á pólitíkinni og fá svo frambjóðendur til formanns VR til að ræða félagið, verkalýðsbaráttuna og stöðu launafólks: Bjarni Þór Sigurðsson stjórnarmaður í VR, Flosi Eiríksson viðskiptafræðingur, Halla Gunnarsdóttir formaður VR og Þorsteinn Skúli Sveinsson sérfræðingur hjá Byko setjast að Rauða borðinu.

Ep 767Rauða borðið - Vikuskammtur: Vika 5
Föstudagurinn 31. janúar Vikuskammtur: Vika 5 Í Vikuskammt við Rauða borðið koma í dag þau Árni Kristjánsson aðgerðastjóri, Birgitta Björg Guðmarsdóttir rithöfundur, Gagga Jónsdóttir leikstjóri og Pétur Ben gítarleikari og ræða fréttir vikunnar sem einkenndust af Trump og viðbrögðum fólks við orðum hans og hugmyndum, kjaradeilu kennara, sparnaðartillögum og öðru smálegu.

Ep 766Grimmi og Snar - #33 Andlit á þúsund snákum 🐍
Fimmtudagur 30. janúar #33 Andlit á þúsund snákum 🐍 Underground legend og erkitýpan Berglind Ágústsdóttir ✨🐝 fer með okkur í ferðalag

Ep 765Rauða borðið 30. janúar 2025: Nató í krísu, trans og Trumpismi, heilbrigðisþjónusta, bókaspjall og karlmennska.
Rauða borðið 30. janúar 2025 Nató í krísu, trans og Trumpismi, heilbrigðisþjónusta, bókaspjall og karlmennska. Kristinn Hrafnsson blaðamaður ræðir þá kreppu sem Nató hefur ratað í, hvort Trump hafi breytt eðli Nató eða dregið fram raunverulegt eðli þess. Arna Magnea Danks, leikkona, kennari, áhættuleikstjóri og mannréttindaaktívisti ræðir um mikilvægi umræðu og aðgerða gagnvart herferð Trumps gegn minnihlutahópum. Pálmi V. Jónsson, öldrunarlæknir segir að við þurfum að umbreyta heilbrigðiskerfinu til að geta þjónustað fólk eftir því sem eldist, bæði til að fjölga árum við góða heilsu en líka að nýta fé betur. Hólmfríður Matthíasdóttir (Úa), útgefandi og bókaunnandi kemur í bókaspjall Vigdísar Grímsdóttur og Oddnýjar Eirar og ræðir um bókmenntaverðlaunin og nýbakaðan verðlaunahafa Kristínu Ómarsdóttur. Pétur Eggerz, tæknifræðingur, aktívisti og áhrifavaldur tekst á við hin pól umræðunnar og ræðir karlmennsku hjá Maríu Lilju ásamt Jóni Þormari Pálssyni sem er einnig þekktur sem brotkastmaðurinn Nordic Masculinity. Er hægt að finna sameiginlegan snertiflöt og uppræta rót vandans? Er kynjabaráttan kannski í grunninn bara stéttabarátta?

Ep 764Rauða borðið 29. jan - Hagræðing, spilling, rasismi, reynsluboltar, samkeppni og klassíkin rokkar
Miðvikudagur 29. janúar Hagræðing, spilling, rasismi, reynsluboltar, samkeppni og klassíkin rokkar Sonja Þorbergsdóttir formaður BSRB og og Vilhjálmur Hilmarsson hagfræðingur Visku bregðast við sparnaðartillögum Viðskiptaráðs og ræða hvatningu ríkisstjórnarinnar um hagræðingu. Benjamín Julian verkastjóri verðlagseftirlits Alþýðusambandsins fer yfir verð á matvörumarkaði og spáir í hvort samruni Prís og Nettó muni auka samkeppni. Elvar Örn Friðriksson, framkvæmdastjóri Verndarsjóðs Villtra Laxastofna og stuðningsmaður íbúalýðræðis í Seyðisfirði og Sigmundur Ernir Rúnarsson þingmaður ræða hvort spilling komi við sögu hjá þeim sem helst vilja sjókvíaeldi í Seyðisfirði. Sóley Dröfn Davíðsdóttir, yfirsálfræðingur við Kvíðameðferðarstöðina ræðir um sálfræðilegar rætur rasisma. Reynsluboltarnir miðla af visku sinni í spjalli um allt mögulegt, menningu, þjóðmál, stjórnmál og hvað eina, í þetta sinn koma þær Elín Albertsdóttir, Soffía Karlsdóttir og Þórunn Sigurðardóttir. Tónlistarnemarnir Sól Björnsdóttir og Sóley Smáradóttir koma í Klassíkin rokkar og taka á móti Þórði Magnússyni tónskáldi og Þórunni Ósk Marinósdóttur víóluleikara í tilefni af nýjum fiðlukonsert Þórðar sem verður flumfluttur í Hörpu á morgun.

Ep 763Sósíalísk stjórnarandstaða - 2. Þáttur - Málefni leigjenda
Miðvikudagur 29. janúar Sósíalísk stjórnarandstaða - 2. Þáttur Leigjendasamtökin hafa sent frá sér fréttatilkynningu þar sem þau fagna því að loksins eigi að taka á skammtímaleigu — máli sem samtökin hafa barist fyrir í áraraðir og komst að miklu leiti fyrir tilstilli samtakanna á dagskrá í síðastliðnum alþingiskosningum. En betur má ef duga skal? Við rýnum í málefni leigjenda með þeim Yngva Ómari Sigrúnarsyni varaformanni Leigjendasamtakanna og Jóni Ferdinand Estherarsyni stjórnarmanni í Leigjendasamtökunum.

Ep 762Rauða borðið 28. jan - Ríkið, kosningar í Þýskalandi, Dylan, Harpa og veiðar á fyrri tímum
Þriðjudagur 28. janúar Ríkið, kosningar í Þýskalandi, Dylan, Harpa og veiðar á fyrri tímum Við ræðum sparnað hjá ríkinu og hlutverk ríkisrekstrar á næstu dögum. Björn Brynjúlfur Björnsson framkvæmdastjóri Viðskiptaráðs og Ólafur Stephensen framkvæmdastjóri Félags atvinnurekenda ríða á vaðið. Ragnar Hjálmarsson stjórnmálafræðingur ræðir áhrif af uppgangi fasismans á kosningar í Þýskalandi. Michael Dean Odin Pollock gítarleikari, Dagur Kári Pétursson leikstjóri, Arnar Eggert Thoroddsen félagsfræðingur, Guðni Tómasson framkvæmdastjóri Sinfóníunnar og Kristján Freyr Halldórsson rokkstjóri ræða um Bob Dylan og myndina um hann, A Complete Unknown. Hljóðverkfræðingurinn Ólafur Hjálmarsson gagnrýnir hljóðið í Eldborgarsalnum í Hörpu. Hann segir að bæta verði úr hljóðvistinni. Már Jónsson prófessor og Dalrún Kaldakvísl Eygerðardóttir sagnfræðingur segja okkur frá veiðum Íslendinga fyrir tíma vélvæðingar.

Ep 761Rauður raunveruleiki - Virðing fyrir fólki og lífi / Askur og Kristbjörg
Virðing fyrir fólki og lífi. Fjallað um tímana og fólk á flótta með Aski Hrafni Hannessyni og Kristbjörgu Örnu Elínudóttur Þorvaldsdóttur. Þátturinn er í umsjón Karls Héðins Kristjánssonar og Anitu Da Silvu Bjarnadóttur.

Ep 760Rauða borðið 27. jan - Styrkir til flokka, fjölmiðlar, fasismi, hið ritaða og talaða orð
Mánudagur 27. janúar Styrkir til flokka, fjölmiðlar, fasismi, hið ritaða og talaða orð Björg Eva Erlendsdóttir framkvæmdastjóri Landverndar og Atli Þór Fanndal verkefnisstjóri hjá Háskólanum á Bifröst um lög um stjórnmálasamtök of hvort Flokkur fólksins eigi að skila sínum styrkjum. Freyja Steingrímsdóttir framkvæmdastjóri Blaðamannafélagsins og Jón Trausti Reynisson framkvæmdastjóri Heimildarinnar ræða stöðu blaðamennsku hér á landi, sem sumpart er óviðunandi. Skortur á samstöðu blaðamanna er eitt fjölmargra meina. Eiríkur Bergmann prófessor fjallar um fasisma og Donald Trump, erum við komin á nýtt tímabil stjórnmála í okkar heimshluta. Hallgrímur Helgason ræðir sýningu sína Sextíu kíló og Halldóra Jónsdóttir og Þórdís Úlfarsdóttir ritstjórar orðabóka hjá Árnastofnun segja okkur frá orðabókarstörfum og sýn á framtíð tungumálsins.

Ep 759Synir Egils: Fasismi, forysta, styrkir, virkjanir og verkföll
Sunnudagurinn 26. janúar: Synir Egils: Fasismi, forysta, styrkir, virkjanir og verkföll Bræðurnir Sigurjón Magnús og Gunnar Smári Egilssynir taka á móti gestum og ræða við þá um helstu fréttir og pólitíkina. Að þessi sinni koma þau Benedikt Erlingsson leikstjóri og þingkonurnar Rósa Guðbjartsdóttir og Ragna Sigurðardóttir og ræða fréttir vikunnar og stjórnmálin. Þeir bræður taka stöðuna á pólitíkinni og ræða síðan Donald Trump og hvort hann sé að innleiða fasisma við þau Pontus Järvstad sagnfræðing, Nönnu Hlín Halldórsdóttur heimspeking og Guðmund Hálfdanarson sagnfræðing.

Ep 758Rauða borðið - Helgi-spjall: Stefán Skafti Steinólfsson
Laugardagur 25. janúar Helgi-spjall: Stefán Skafti Steinólfsson Stefán Skafti Steinólfsson, Dalamaður, ræðir um uppvöxt, feðraveldi, stóriðjustörf sín, náttúruna og afahlutverkið.

Ep 757Sósíalísk stjórnarandstaða - 1. Þáttur - Rýnt í stjórnarsáttmálann
Fimmtudagur 23. janúar Sósíalísk stjórnarandstaða - 1. Þáttur Þátturinn Sósíalísk stjórnarandstaða hefur göngu sína, þar sem sósíalistar koma saman til að ræða málefni samfélagsins út frá sósíalískum áherslum. Þáttastjórnendur eru Þórdís Bjarnleifsdóttir og Rán Reynisdóttir. Í þættinum í dag verður rætt um nýju ríkisstjórnina og stefnuyfirlýsingu Samfylkingar, Viðreisnar og Flokks fólksins út frá sósíalískum áherslum. Viðmælendur þáttarins eru sósíalistarnir Sanna Magdalena Mörtudóttir, borgarfulltrúi sósíalista, og Eyjólfur Eyvindarsson, leikstjóri og tónlistarmaður.

Ep 756Sjávrútvegsspjallið - 36. þáttur: Umræður um sjávarútvegsmál og strandveiðar
Fimmtudagur 23. janúar Umræður um sjávarútvegsmál og strandveiðar Gestir Grétars að þessu sinni eru Guðlaugur Jónasson og Atli Hermansson.

Ep 755Rauða borðið - Vikuskammtur: Vika 4
Föstudagurinn 24. janúar Vikuskammtur: Vika 4 Í Vikuskammt við Rauða borðið koma í dag þau Gunni Hilmars tísku og tónlistarmaður, Heiða Eiríksdóttir, tónlistarkona og heimspekingur, Hrönn Sveinsdóttir bíóstjóri og Símon Birgisson kennari og leiklistargagnrýnandi og ræða fréttir vikunnar sem einkenndust af framrás fasisma, komandi verkföllum og handbolta.

Ep 754Rauða borðið 23. jan - Yfirdráttur, klassík, kjötneysla dýravernd, bómenntir og BNA
Fimmtudagur 23. janúar Yfirdráttur, klassík, kjötneysla dýravernd, bómenntir og BNA Við hefjum leik á Samstöðinni í kvöld með Stefáni Jóni Hafstein sem færir okkur sláandi upplýsingar um umhverfismál. Á morgun, 24. janúar, fer Ísland á ,,yfirdrátt” gagnvart vistkerfunum, það er að segja ef önnur lönd væru með eins stórt vistspor. Við göngum allra ríkja mest á auðlindir. Og rætt verður endurkjör Trump og áhrif þess á umhverfið. Tónlistarnemarnir Sóley Smáradóttir og Sól Björnsdóttir taka því næst á móti Daníel Bjarnasyni tónskáldi og hljómsveitarstjóra og Ingibjörgu Ýr Skarphéðinsdóttur tónskáldi í Klassíkin rokkar. Jóhanna Eyrún Torfadóttir lektor í næringarfræði og Thor Aspelund prófessor í tölfræði koma og ræða um kjötneyslu. Framkvæmdastjóri Dýraverndarsambands Íslands og Katrín Oddsdóttir, mann- og dýraréttindalögfræðingur segja margt bíða nýrrar ríkisstjórnar með tilliti til dýravelferðar sem hafi setið á hakanum vegna vanmáttugs kerfis. Tími sé kominn á að færa Ísland aftur til náttúrunnar en ekki í hendur auðvaldsins og stórfyrirtækja. Vigdís Grímsdóttir og Oddný Eir ræða við skáldkonuna Ásdísi Óladóttur um ljóðabók hennar Rifsberjadalurinn, ljóðlistina, 30 grömmin, geðveikina og sköpunarkraftinn. Við ljúkum þætti kvöldsins með zoom-viðtali við Rósu Guðmunds sem er búsett í L.A. Hún segir okkur frá eldunum sem þar hafa geisað og embættistöku nýs forseta.

Ep 753Rauða borðið 22. jan - Kveikja, Reynsluboltar, Óöld, Heimsendakvíði og Ungfrú Ísland
Miðvikudagur 22. janúar Kveikja, Reynsluboltar, Óöld, Heimsendakvíði og Ungfrú Ísland Í tilefni af opnu húsi fyrir feminista og kvennréttindakonur og í upphafi kvennaárs koma fjórar konur, sem líka eru frummælendur á viðburðinum Kveikja, til spjalls um stöðu baráttunnar og helstu baráttumál. Sara Stef Hildar, Guðný S. Bjarnadóttir, Ólöf Tara Harðardóttir og María Hjálmtýsdóttir. Mjöll Matthíasardóttir formaður Félags grunnskólakennara segir að ofbeldismál innan grunnskólanna sem verði opinber séu aðeins toppurinn á ísjakanum. Reynsluboltarnir taka við í spjalli við Sigurjón Magnús, gestir hans eru þau Viðar Eggertsson, Lísa Pálsdóttir, Hallfríður Þórarinsdóttir og Bjarki Bjarnason. Þau tala um það sem helst brennur á okkur. Sæunn kjartansdóttir, sálgreinir og rithöfundur ræðir um heimsendakvíða, hlýnun jarðar, og gáfaða dýrið sem þarf að hlusta á og ræða við til að komast út úr svart-hvítri heimsmynd og líðan. Við ræðum síðan um Ungfrú Ísland í Borgarleikhúsinu við aðstandendur, um erindi verksins við samfélagið, söguna og okkur sjálf. Auður Ava Ólafsdóttir höfundur, Gréta Kristín Ómarsdóttir leikstjóri, og leikararnir Fannar Arnarsson og Íris Tanja Flygenring koma að Rauða borðinu.

Ep 752Rauða borðið 21. jan - Trump, fjölmiðlar, rasismi, dauðinn og nýlenduhyggja
Þriðjudagur 21. janúar Trump, fjölmiðlar, rasismi, dauðinn og nýlenduhyggja Hvaða áhrif gæti endurkjör Trump haft á upplýsingaóreiðu og fréttamennsku? Blaðamennirnir Jón Ferdinand Estherarson, Guðmundur Gunnarsson, Gunnhildur Arna Gunnarsdóttir og Gunnar Smári Egilsson ræða málin með Birni Þorláks. Við ræðum kynþáttafordóma við Snorra Sturluson og Tryggva Scheving Thorsteinsson, eiga börn sem hafa annan húðlit en við flest. Og sláum á þráðinn til Ásgeirs H. Ingólfssonar skálds og menningarblaðamanns sem fékk þau tíðindi í síðustu viku að hann ætti mögulega bara nokkrar vikur ólifaðar. Og ákvað að efna til menningardagskrár af því tilefni. Í lokin kemur Hlynur Hallsson í heimsókn og ræðir norðrið og nýlenduhyggjuna.

Ep 751Rauða borðið 20. janúar: Vigdís, Valhöll, vopnahlé, kosningaklúður og börn á flótta
Mánudagur 20. janúar Vigdís, Valhöll, vopnahlé, kosningaklúður og börn á flótta Við byrjum á smá yfirferð yfir þættina um Vigdísi en fáum svo Jón Gunnarsson, fyrrum ráðherra og þingmaður Sjálfstæðisflokksins, til að ræða formannskjör og Landsfund. Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir á ekki hans stuðning sem formannsefni. Qussay Odeh íslensk-palestínskur aktivisti fer yfir stöðuna í upphafi vopnhlés. Kristján Sveinbjörnsson, umboðsmaður Samfylkingarinnar í SV-kjördæmi, hefur tekið saman nýtt minnisblað og sent landskjörstjórn vegna ágalla við síðustu þingkosningar. Síendurteknar brotalamir grafa undan trausti. Morgané Priet-Mahéo stjórnarkona samtakanna Réttur Barna á flótta segir að flóttabörn glími við margvísleg vandamál vegna lítils opinbers utanumhalds.

Ep 750Sunnudagurinn 19. janúar - Synir Egils: Virkjanir, verkfall, valdaskipti og vopnahlé
Sunnudagurinn 19. janúar: Synir Egils: Virkjanir, verkfall, valdaskipti og vopnahlé Bræðurnir Sigurjón Magnús og Gunnar Smári Egilssynir taka á móti gestum og ræða við þá um helstu fréttir og pólitíkina. Að þessi sinni koma þær Ragnheiður Ríkarðsdóttir fyrrum bæjarstjóri og þingmaður, María Rut Kristinsdóttir þingkona og Sanna Magdalena Mörtudóttir borgarfulltrúi og ræða fiskeldi, virkjanir, yfirvofandi verkfall kennara, átök og frið. Þeir bræður taka púlsinn á pólitíkinni og Friðjón R. Friðjónsson borgarfulltrúi og Stefán Pálsson borgarfulltrúi ræða valdaskiptin í Bandaríkjunum og vopnahlé á Gaza.

Ep 749Rauður raunveruleiki - Sjáum samfélagið / Viðar Halldórsson
Viðar Halldórsson í frábæru samtali um samfélagið og nýju bókina hans „Sjáum samfélagið“. Rætt var um mikilvægi félagslegra tengsla, um varhugaverða þróun samfélagsins að undanförnu. Mögulegar orsakir aukins kvíða, einmanaleika, kulnunar og jafnvel siðrofs. Rannsóknir hafa sýnt fram á það að það sem veitir fólki mestu lífshamingjuna eru ekki veraldlegir hlutir eða velsnægtir heldur frekar þau félagslegu tengsl sem við myndum yfir ævina, við okkar nánustu, nærsamfélagið og samfélagið í heild sinni. Það er mikilvægt að staldra annað slagið við og spyrja okkur hvert samfélagið er að þróast. Fiskar í vatni geta átt erfitt með að átta sig á því að þeir séu í vatni. Og hvert vatnið gæti verið að taka þá. Þetta og fleira á Samstöðinni klukkan 20:00 í kvöld!

Ep 747Rauða borðið - Helgi-spjall: Pétur Guðjónsson
Laugardagur 18. janúar Helgi-spjall: Pétur Guðjónsson Pétur Guðjónsson húmanisti, rithöfundur, stofnandi Flokks mannsins og maðurinn sem tók Fidel Castro í bakaríið á sínum tíma, er gestur Björns Þorláks í Helgi-spjallinu þessa vikuna. Pétur ræðir lífssögu og viðhorf, slys í bernsku sem breytti hugmyndum hans og námskeiðin sem hann heldur enn og standa almenningi opin.

Ep 748Rauða borðið - Vikuskammtur: Vika 3
Föstudagur 17. janúar Vikuskammtur: Vika 3 Gaza, Hvammsvirkjun, frönsk kvikmyndahátíð, Bárðarbunga og fleira verður til tals í Vikuskammtinum að þessu sinni. Það eru þau Margrét Baldursdóttir, túlkur og Þórir Hraundal, prófessor HÍ, sem ræða fréttir vikunnar við Maríu Lilju.

Ep 746Rauða borðið 16. jan - Samtakamáttur, hjólabúar, sálfræðingar og Pusswhip
Fimmtudagur 16. janúar Samtakamáttur, hjólabúar, sálfræðingar og Pusswhip Við hefjum leika á þremur Seyðfirðingum hjá Oddnyju Eir sem segja okkur frá baráttu íbúa Seyðisfjarðar gegn áformum um sjóakvíaeldi. Þetta eru þau Guðrún Ásta Tryggvadóttir, kennari Benedikta Guðrún Svavarsdóttir og Magnús Guðmundsson. Geirdís Hanna Kristjánsdóttir, baráttukona og hjólabúi missti allt sitt í bruna og ræðir við mig um áfallið og stríðið við borgina sem ekkert hefur aðhafst. Hans Hektor Hannesson, sálfræðingur ræðir um kjaramál stéttarinnar nú þegar samningar eru lausir. Þórður Ingi Jónsson, Lord Pusswhip tónlistarmaður ræðir LA lífið, tónlistina og allt þar á milli.

Ep 745Sjávarútvegsspjallið - 35. þáttur - Vinnubrögð Hafró
Fimmtudagur 16. janúar Sjávarútvegsspjallið - 35. þáttur Grétar Mar, Ólafur (ufsi) Jónsson og Jón Kristjánsson fiskifræðingur ræða vinnubrögð Hafrannsóknarstofnunar og aðgerðaleysi stjórnvalda.

Ep 744Rauða borðið 15. jan - Vopnahlé, reynsluboltar, Carbfix, handbolti og hótanir
Miðvikudagur 15. janúar Vopnahlé, reynsluboltar, Carbfix, handbolti og hótanir Í tilefni nýrra frétta um að vopnahlé verði jafnvel tilkynnt í Quatar í kvöld ræðir María Lilja við Dr. Kristján Þór Sigurðsson, mannfræðing og kennara í HÍ um þýðingu vopnahlés á Gaza. Þau ræða síðan um pólitík, kjör eldri borgara, lífið eftir vinnu og fleira við Sigurjón Magnús Egilsson, þau Kristín Ástgeirsdóttir fyrrum þingkona, Steingerður Steinarsdóttir ritstjóri, Þorsteinn Sæmundsson varaþingmaður og Þröstur Ólafsson hagfræðingur og miðla af langri reynslu og innsýn. Íbúar í Hafnarfirði hafa margir sameinast í andstöðu við stórfellda iðnaðar-uppbyggingu nálægt íbúahverfum. Áformin hafa tekið stökkbreytingum og fjarlægast æ meir vilja almennings. Við fengum tvo íbúa til að koma og lýsa sínu sjónarhorni og segja okkur frá því sem hefur verið kallað Carbfix-klúðrið, þau Björg Helga Geirsdóttir, leikskólastjóri og Davíð Arnar Stefánsson, sjálfbærnifulltrúi Lands og skógar útskýra hvernig hagsmunir íbúa hafa ítrekað verið hundsaðir.Það hefur ekki farið framhjá mörgum Íslendingnum að HM í handbolta hefst á morgun. Einar Jónsson handboltaþjálfari fer yfir stöðuna og spáir í gengi strákanna okkar í spjalli við Björn Þorláksson sem er mikill áhugamaður um handbolta. Þorgerður María Þorbjarnardóttir formaður Landverndar ræðir ýmis umhverfismál og þar á meðal að tugir skemmtiferðaskipa hóta að hætta við komu til landsins vegna innviðagjalds.

Ep 743Rauða borðið 14. jan - Brottvísun barns, leigjendur, stjórnarskráin, kennaranámið og veikindadagar
Þriðjudagur 14. janúar Brottvísun barns, leigjendur, stjórnarskráin, kennaranámið og veikindadagar Lítil stúlka og fjölskylda hennar standa nú frammi fyrir brottvísun til Venesúela eftir tvo daga þrátt fyrir að stúlkan sem er þriggja ára þurfi á flókinni læknisaðgerð að halda sem framkvæma á hér á landi í febrúar. Jón Sigurðsson, lögmaður fjölskyldunnar og formaður Félags talsmanna umsækjenda um alþjóðlega vernd, spjallar við Maríu Lilju um málefni flóttafólks. Guðmundur Hrafn Arngrímsson, formaður Leigjendasamtaka Íslands tekur stöðuna í málefnum leigjenda við stjórnarskipti og ræðir um sérlega ósanngjarna skattheimtu sem á sér enga líka. Þór Martinsson, sagnfræðingur og verkefnisstjóri ráðstefnu um stjórnarskrána segir okkur frá dagskrá ráðstefnunnar sem haldin verður um helgina og af hverju mikilvægt er að ræða stjórnarskrána í þessu samhengi núna. Jón Pétur Zimsen, skólamaður og þingmaður, vill stytta kennaranám úr fimm árum í þrjú. Hann telur unnt að bæta gæði kennara og greiða þeim hærri laun fyrir skemmri námstíma.Veikindahlutfall starfsmanna Reykjavíkurborgar er 8,7% að meðaltali hvern einasta vinnudag ársins á sama tíma og veikindahlutfall er 2,5 prósent á mannauðs- og umhverfissviði borgarinnar. Fyrrum þingmaður og borgarfulltrúi, Vigdís Hauksdóttir, vill rannsókn.