
Samstöðin
710 episodes — Page 14 of 15

Ep 742Rauða borðið 13. janúar: Fuglaflensa, bráðamóttaka, Grænland, framtíð fréttamennskunnar, Gaza

Ep 741Synir Egils 12. jan - Verkefni ríkisstjórnar, kjör, vextir og Sjálfstæðisflokkurinn
Sunnudagurinn 12. janúar: Synir Egils: Verkefni ríkisstjórnar, kjör, vextir og Sjálfstæðisflokkurinn Bræðurnir Sigurjón Magnús og Gunnar Smári Egilssynir taka á móti gestum og ræða við þá um helstu fréttir og pólitíkina. Að þessi sinni koma þau Jovana Pavlović mannfræðingur, Ragnar Þór Ingólfsson þingmaður og Erna Bjarnadóttir hagfræðingur og ræða vettvang dagsins og stöðu samfélagsins. Þeir bræður taka stöðuna á pólitíkinni. Þorvaldur Logason félagsfræðingur, Jón Kristinn Snæhólm stjórnmálafræðingur og Vilhjálmur Egilsson fyrrum þingmaður ræða síðan stöðu Sjálfstæðisflokksins, hvað sá flokkur hefur verið, er og getur orðið.

Ep 740Rauður raunveruleiki - Stéttabarátta, nýfasismi og Twitter
Í Rauðum raunveruleika kvöldsins fjöllum við um aðgerðir Eflingar gegn gervistéttarfélaginu Virðingu, um fasista og nýnasista á Twitter, um Elon Musk, stéttabaráttu, falsfréttir, áróður og um eðli fasismans.Trausti Breiðfjörð Magnússon og Ægir Máni Bjarnason tala við Karl Héðinn Kristjánsson í Rauðum raunveruleika kl. 20:00.

Ep 738Rauða borðið - Helgi-Spjall: Ragna Sigrún Sveinsdóttir
Laugardagur 11. janúar Helgi-Spjall: Ragna Sigrún Sveinsdóttir Ragna Sigrún Sveinsdóttir, leiðsögumaður og lektor emerita segir okkur frá pælingum sínum um keltnesk áhrif á Íslandi og um allan heim, hún hefur um árabil ferðast um landið og heiminn og séð ólík upprunaeinkenni birtast í tengslum við skipulag, ástríðu, listir og stríð ... Hún bjó lengi í París og segir okkur frá lífinu þar og á Víkingavatni í æsku, frá áhrifavöldum lífs síns, rannsóknum á þróun tungumála og vináttunnar.

Ep 739Rauða borðið - Vikuskammtur: Vika 2
Föstudagurinn 10. janúar Vikuskammtur: Vika 2 Í Vikuskammt við Rauða borðið koma í dag þau Svala Magnea Ásdísardóttir formaður Málfrelsis, Margrét Örnólfsdóttir kvikmyndahöfundur, Elín Oddný Sigurðardóttir teymisstjóri Virknihúss og Sigtryggur Baldursson trommari og ræða fréttir vikunnar sem einkennast af afsögn, yfirgangi, stjórnmálafólki á útleið og öðrum á leið til valda.

Ep 736Grimmi og Snar - #32 Athygli er orka 👁️👁️
Fimmtudagur 9. janúar Grimmi og Snar - #32 Athygli er orka 👁️👁️ Hlustið á þennan snilling, danskennara Grimma og Snar 🩰 Dansþerapistann Tómas Odd Eiríksson höfund Yoga Moves 🦶🏽🫱🏽🫲👋🏼🤘🏽👐

Ep 737Rauða borðið 9. jan - L.A. logar, Grænland, Yerma, brúðuleikhús og Samúel Jónsson
Los Angeles brennur; Jakob Frímann Magnússon, fyrrum þingmaður og tónlistarmaður er sérfræðingur í málefnum borgarinnar sem aldrei sefur, nema kannski á verðinum yfir loftslagsvánni ræðir stórbrunann og afleiðingar hans við Maríu Lilju. Þá taka við þau Oddný Eir og Jón Helgi Þórarinsson, tölvuleikjasmiður sem áður bjó í Grænlandi hvar eiga sér nú stað miklar vendingar í pólitíkinni varðandi sjálfstæði þjóðarinnar. Gísli Örn Garðarsson leikstjóri, Gunnlaugur Briem trommari og tónskáld og leikararnir Nína Dögg Filippusdóttir og Björn Thors ræða jólasýningu Þjóðleikhússins, Yermu, erindi verksins og umfjöllunarefni. Helga Arnalds og Sólveig Guðmundsdóttir segja okkur frá þverfaglega tilraunabrúðuleikhúsinu Tíu fingur sem setur á svið heilandi og má segja terapískar leiksýningar fyrir börn og fullorðna, nú síðast Líkaminn er skál í Tjarnarbíói en Tíu fingur fagna nú tíu ára afmæli með áhugaverðri dagskrá sem snertir mörg ólík svið lífs, lista og fræða.Í lokin koma Ólafur J. Engilbertsson menningarmiðlari og Kári Schram kvikmyndagerðarmaður og segja okkur frá Samúel Jónssyni og verkum hans, byggingum og líkneskjum sem finna má í Selárdal.

Ep 735Sjávarútvegsspjallið - 34. þáttur: Smábátaeigendur
Fimmtudagur 9. janúar 34. þáttur - Smábátaeigendur Grétar Mar Jónsson ræðir við Artúr Bogason, formanns Félags smábátaeigenda um áform nýrrar ríkisstjórnar.

Ep 734Rauða borðið 8. jan - Arfleið Bjarna Benediktssonar
Miðvikudagur 8. janúar Arfleið Bjarna Benediktssonar Bræðurnir Sigurjón Magnús og Gunnar Smári Egilsson fá gesti til að ræða arfleið Bjarna Benediktssonar, formanns Sjálfstæðisflokksins, sem sagði af sér þingmennsku á mánudaginn. Fyrst koma Þórður Gunnarsson hagfræðingur, Marinó G. Njálsson tölvunarfræðingur og Margrét Helga Erlingsdóttir fréttakona og ræða Sjálfstæðisflokkinn undir Bjarna, hvernig flokk tók hann við og hver er flokkurinn í dag. Gunnar Smári ræðir síðan við Ásgeir Brynjar Torfason ritstjóra Vísbendingar um ríkisfjármálin og efnahagsmálin undir Bjarna. Í lokin fær Sigurjón gesti til að ræða um spillingu á tíma Bjarna; Atli Þór Fanndal upplýsingafulltrúi, Þór Saari fyrrverandi þingmaður, Birgitta Jónsdóttir og Björn Þorláksson blaðamaður meta áhrif Bjarna á siðferði í stjórnmálum.

Ep 733Rauða borðið 7. jan - Sprúttsalar, Færeyjar, loftlagsmál, umhverfi og byggðamál
Þriðjudagur 7. janúar Sprúttsalar, Færeyjar, loftlagsmál, umhverfi og byggðamál Vegna hávaða af framkvæmdum er þáttur kvöldsins snöggsoðinn (og í sumum viðtölum má heyra bornið í fjarska). Árni Guðmundsson forvarnarfulltrúi ræðir ólöglega áfengissölu og siðlausa áfengisframæleiðendur og Carl Jóhan Jensen rithöfundur segir fréttir fra Færeyjum, títt af bókmenntum og pólitík. Árni Finnsson hjá Náttúruverndarsamtökum Íslands auglýsir eftir fleiri talsmönnum umhverfisverndar og Andrés Skúlason ræðir umhverfis- og byggðamál.

Ep 732Rauða borðið 6. jan - Bjarni, veður, leikhús, þrettándinn, Carter
Mánudagur 6. janúar Bjarni, veður, leikhús, þrettándinn, Carter Við byrjum á að ræða frétt dagsins, afsögn Bjarna Benediktssonar. Og ræðum síðan veðrið við Trausta Jónsson veðurfræðing. Förum á Köttur á heitu blikkþaki og ræðum sýninguna við aðstandendur: Þorleifur Örn Arnarsson leikstjóri og leikararnir Sigurður Ingvarsson, Hilmir Snær Guðnason og Ásthildur Úa Sigurðardóttir ræða grimm samskipti og leyndarmál. Eru jólasveinar byltingarmenn? Þjóðfræðingarnir Jón Jónsson, Dagrún Ósk Jónsdóttir og Kristinn Schram ræða þjóðfræði þrettándans og ýmsa forna og samtíma galdra. Í lokin segir Tjörvi Schiöth okkur frá Jimmy Carter, fyrrum Bandaríkjaforseta, sem lést nýverið í hárri elli.

Ep 731Synir Egils 5. jan - Nýtt ár, nýir tímar, nýr og háskalegur heimur
Sunnudagurinn 5. janúar: Synir Egils: Nýtt ár, nýir tímar, nýr og háskalegur heimur Bræðurnir Sigurjón Magnús og Gunnar Smári Egilssynir taka á móti gestum og ræða við þá um helstu fréttir og pólitíkina. Að þessi sinni koma þau Kristinn Hrafnsson blaðamaður, Ragnhildur Alda Vilhjálmsdóttir borgarfulltrúi og Þóra Kristín Ásgeirsdóttir upplýsingafulltrúi og fara yfir stöðuna um áramót, nýja ríkisstjórn og stöðuna í pólitíkinni. Þeir bræður munu taka púlsinn og fá svo Hilmar Þór Hilmarsson prófessor til að meta utanríkisstefnu nýrrar ríkisstjórnar í ljósi breyttrar heimsmyndar.

Ep 729Rauða borðið - Helgi-spjall: Þorvaldur Kristinsson
Laugardagur 4. janúar Helgi-spjall: Þorvaldur Kristinsson Þorvaldur Kristinsson bókmenntafræðingur, ritstjóri, þýðandi, rithöfundur og baráttumaður segir frá lífshlaupi sínu í gegnum listir og réttlætisbaráttu.

Ep 730Rauða borðið - Vikuskammtur: Vika 1
Föstudagur 3. janúar Vikuskammtur: Vika 1 Í fyrsta þætti Rauða borðsins á glænýju ári, Vikuskammti, fær Björn Þorláksson til sín góða gesti til að gera upp líðandi stundu og ræða helstu fréttir og tíðaranda. Þau Viðar Eggertsson leikari, Margrét Tryggvadóttir rithöfundur, Hallfríður Þórarinsdóttir mannfræðingur og Matthías Imsland framkvæmdastjóri ræða stöðu samfélagsins og horfur næstu vikur - nú þegar hrein valdaskipti hafa orðið á Alþingi og sitthvað gæti tekið breytingum. Þá fær Áramótaskaupið sérstaka athygli í umræðunni.

Ep 726Rauða borðið - Helgi-spjall: Guðmundur í Afstöðu
Laugardagur 21. desember Helgi-spjall: Guðmundur í Afstöðu Guðmundur Ingi Þórodsson formaður Afstöðu, félags fanga, segir frá æsku sinni og uppruna, refilsstigum og beinum brautum, fordómum og ungum dómum.

Ep 727Rauða borðið - Vikuskammtur: Vika 51
Föstudagur 20. desember Vikuskammtur: Vika 51 Gestir borðins að þessu sinni eru úr öllum áttum og hyggjast fara um víðan völl um liðna viðburðaríka fréttaviku. Á boðstólnum eru skipulag í Breiðholti, vinnumansal, ný ríkisstjórn, hvalveiðar, rafbyssur, fyrirtækjaleiksskólar, stúdentar og Iceguys. Þetta eru þau Saga Kjartansdóttir así, Lísa Margrét Gunnarsdóttir, formaður lís Jón D Ásgeirsson, arkitekt og Stefán Víðisson.

Ep 725Rauða borðið 19. des - Öryggismál, galdur, bókaball, fyrirtækjavæðing og skrautleg skilaboð
Fimmtudagur 19. des Öryggismál, galdur, bókaball, fyrirtækjavæðing og skrautleg skilaboð til stjórnvalda Við Rauða borðið í kvöld er umræðan lífleg og nær yfir mörg svið. Fyrstur mætir Haraldur F. Gíslason, formaður Félags leikskólakennara og ræðir um fyrirtækjavæðingu leikskólans. Valur Ingimundarson prófessor fjallar um minni áhuga stjórnvalda á norðurslóðum og breytt mat á öryggismálum og því næst ræðir Hilmar Örn Hilmarsson, Allsherjargoði um trú og tóna tilverunnar, dauðann, lífið og galdurinn í tilefni sólstöðuhátíðarinnar framundan. Sex höfundar bregða upp balli, þau Linda Vilhjálmsdóttir, Margrét Lóa Jónsdóttir, Daníel Daníelsson, Birgitta Björg Guðmarsdóttir, Sunneva Kristín Sigurðardóttir og Karólína Rós Ólafsdóttir koma að rauða borðinu á mörkum flóðs og fjöru og segja okkur frá útgáfureynslu sinni og lesa brot úr nýútkomnum bókum sínum. Nýteiknaður hvalur er leynisgestur á ballinu. Í lok þáttar safnast aktívistarnir Sigtryggur Ari Jóhannsson, Pétur Eggerz, Guðbjörg Ása Jóns Huldudóttir, Unnur Andrea Einarsdóttir og Tinna Þorvalds Önnudóttir saman við rauða borðið og föndra jólakort með skýrum skilaboðum til raðamanna. Föndrað með föndra jólakort með skýrum skilaboðum til ráðamanna.

Ep 724Rauða borðið 18. desember: Fátækt, ofbeldi, ljóð, innanríki, hvað er framundan og skaðaminnkun
Miðvikudagur 18. desember Fátækt, ofbeldi, ljóð, innanríki, hvað er framundan og skaðaminnkun Myndlistamaðurinn og Öryrkinn Georg Jónasson ræðir við Maríu Lilju um fátækt frá fyrstu hendi, myndlistina og allt þar á milli. Þá mæta til leiks Þórdís Elva Þorvaldsdóttir sérfræðingur í stafrænu kynferðisofbeldi og Linda Dröfn Gunnarsdóttir, forstýra Kvennaathvarfsins og ræða um ofbeldi í nánum samböndum. Oddný Eir og Vigdís Grímsdóttir halda áfram með ítarlegt bókaspjall. Fyrstur að borði er Bragi Ólafsson með nýja bók Innanríkið Alexíus. Þar strax í kjölfarið verður staða ljóðsins krufin mtt. Tveggja nýútkominna verka skáldkvennanna Guðrúnar Hannesdóttur, Sigurbjargar Þrastardóttur. Sigurjón M. fær til sín álitsgjafa úr ólíkum áttum til að spá fyrir um framhaldið í samfélaginu þetta eru þau Valur Grettisson, Bryndís Haraldsdóttir og Auður Alfa Ólafsdóttir. Í lokin kemur Svala Jóhannesardóttir formaður Matthildar, samtaka um skaðaminnkun, og ræðir um velsæld áfengis- og vímuefnasjúklinga.

Ep 723Rauða borðið 17. des - Þýskaland, neytendur, alþjóðakerfið, dauðinn, börn mæðra sinna og bókaspjall
Þriðjudagur 17. desember Þýskaland, neytendur, alþjóðakerfið, dauðinn, börn mæðra sinna og bókarspjall Ragnar Hjálmarsson, doktor í stjórnarháttum, ræðir um fall stjórnarinnar og nýtt pólitískt landslag í Þýskalandi. Breki Karlsson formaður Neytendasamtakanna bíður spenntur eftir því hvort ný ríkisstjórn bæti hag neytenda. Þórdís Ingadóttir prófessor í lögum við Háskólann í Reykjavík ræðir hvernig alþjóðaréttarkerfið er að styrkjast á sama tíma og vettvangur alþjóðastjórnmála veikist. Vigfús Bjarni Albertsson fyrrum sjúkrahússprestur ræðir um lífið, dauðann og lífsglímuna. Egill Sæbjörnsson myndlistarmaður aðstoðaði móður sína Ágústu Oddsdóttur við bók hennar um listmeðferð Sigríðar Björnsdóttur og Oddný Eir Ævarsdóttir rtihöfundur skrifaði og ritstýrði bók um ævistarf móður sinnar, Guðrúnar Kristjánsdóttur. Þau koma öll að Rauða borðinu og ræða bækurnar, listina, tengsl barna við mæður sínar (og öfugt) og hvernig það er að vinna með fjölskyldunni sinni. Í lokin koma rithöfundarnir Valur Gunnarsson og Gunnar Theodór Eggertsson og ræða bækur og samfélag.

Ep 722Rauða borðið 16. des - Snjóflóð, Seyðisfjörður, ljóðadjamm, Gaza og niðurbrot verkalýðsfélaga
Mánudagur 16. desember Snjóflóð, Seyðisfjörður, ljóðadjamm, Gaza og niðurbrot verkalýðsfélaga Við hefjum leik á viðtali við Katrínu Oddsdóttur mannréttindalögmann sem berst gegn laxeldi á Seyðisfirði – að því er virðist í andstöðu við íslenskar ríkisstofnanir. Hjónin Ólöf Þorvaldsdóttir og Logi Kristjánsson hafa skrifað bókina Fjall í fangið, sem fjallar um snjóflóðin í Neskaupstað en líka um samfélagið sem flóðin féllu á, sérstakt samfélag sem var mótað af völdum og áhrifum sósíalista. Jón Þór Þorvaldsson, formaður félags atvinnuflugmanna, ræðir tilraunir flugfélaga til niðurbrots á verkalýðsfélögum og félagsleg undirboð og áhrif þess á kjör flugstétta og samfélagið allt. Við ræðum ástandið á Gaza viðMagneu Marínósdóttur alþjóðastjórnmálafræðing og Guðrúnu Margrétu Guðmundsdóttur, mannfræðing. Þær eru báðar sérfræðingar í málefnum Miðausturlanda. Að lokum koma ljóðskáldin Anton Helgi Jónsson, Halla Þórðardóttir og Þórunn Valdimarsdóttir og ræða um ljóðlistina, ljóðadjammið og leyfa okkur heyra lljóð úr nýútkomnum bókum sínum.

Ep 721Rauður raunveruleiki - „Woke“ Al-Kaída, áróður, heimsvaldastefna, þjóðarmorð.
Karl Héðinn og Anita Da Silva ræða við Tjörva Schiöth um atburðina í Sýrlandi, hvítþvott Vesturlanda á þjóðarmorði, hryðjuverkum og heimsvaldastefnu. Hvað er að gerast í Sýrlandi og hvað gætu þessir atburðir þýtt fyrir framtíð Palestínu og Íran? Mun Ísrael taka stóran hluta Sýrlands og komast upp með það? Af hverju er CNN og aðrir stórir bandarískir fjölmiðlar að hvítþvo fyrrverandi foringja ISIS og Al-Kaída?

Ep 720Synir Egils 15. des - Stjórnarmyndun, helstu verkefni og Píratar
Sunnudagurinn 15. desember: Synir Egils: Stjórnarmyndun, helstu verkefni og Píratar Bræðurnir Sigurjón Magnús og Gunnar Smári Egilssynir taka á móti gestum og ræða við þá um helstu fréttir og pólitíkina. Að þessi sinni koma þær Helga Jónsdóttir bæjarfulltrúi, Oddný Harðardóttir fyrrverandi þingkona og Sanna Magdalena Mörtudóttir borgarfulltrúi og ræða stjórnarmyndun, verkefni nýrrar ríkisstjórnar og fréttir vikunnar. Þeir bræður taka stöðunni á pólitíkinni og reyna síðan að átta sig á stöðu Pírata með fólki úr þeirri hreyfingu: Birgitta Jónsdóttir stofnandi Pírata, Lenya Rún Taha Karim formaður Ungra Pírata, Þórólfur Júlían Dagsson sjómaður og Alexandra Briem borgarfulltrúi fara yfir sögu, erindi og framtíð Pírata.

Ep 718Rauða borðið - Helgi-spjall: Linda Vilhjálms
Laugardagur 14. desember Helgi-spjall: Linda Vilhjálms Linda Vilhjálmsdóttir skáldkona segir okkur frá áfalli sínu, sjálfsmynd, skáldskap og öllu því sem hefur gert hana að því sem hún er.

Ep 719Rauða borðið - Vikuskammtur: Vika 50
Föstudagurinn 13. desember Vikuskammtur: Vika 49 Í Vikuskammti við Rauða borðið sitja í dag þau Björn Halldórsson rithöfundur, Hólmar Hólm verkefnastjóri og ritstjóri, Kristín Helga Gunnarsdóttir rithöfundur og Ingimar Karl Helgason grunnskólakennari og fyrrverandi fréttamaður og ræða fréttir vikunnar sem einkenndust af stjórnarmyndun, átökum, hernaði og von um betri tíð.

Ep 717Grimmi og Snar - #31 ...og ef The Boss sér þig í bíó, þá segir þú: Ég er að vinna í geðheilsunni
Fimmtudagur 12. desember Grimmi og Snar #31 ...og ef The Boss sér þig í bíó, þá segir þú: Ég er að vinna í geðheilsunni. Meistari Atli Már kom í jólaþátt 🎅🏾🤶🏼 Grimma og Snar. Jólasögur og fræðsla fyrir þá sem eru með einstakar þarfir og þá sem eru svo óheppnir að hafa engar sérstakar þarfir 🤘🏽🙏🏼👁️

Ep 716Rauða borðið 12. des - Mið-Austurlönd, þessir helvítis karlmenn, þýðendur og örlagavaldur
Fimmtudagur 12. desember Mið-Austurlönd, þessir helvítis karlmenn, þýðendur og örlagavaldur Þórir Jónsson Hraundal, lektor í Mið-Austurlandafræðum og arabísku við Mála- og menningardeild Háskóla Íslands ræðir við okkur um eftirleikinn eftir fall Assads í sýrlandi. Mögulegar hættur vegna uppgangs öfgahópa á svæðinu, innrásir Ísraela á nágranna sína og skýrir áhrif þessa alls á fólkið sem enn situr fast á Gaza í miðju þjóðarmorðs. Til að ræða nýútkomna þýðingu á verðlaunabókinni Þessir helvítis karlmenn mætir þýðandinn sjálfur, Þórdís Gísladóttir rithöfundur og Valgerður Ólafsdóttir, skólasálfræðingur og rithöfundur og ræða bókina. Til að ræða nýjar samtímabókmenntir sem koma nú út í þýðingum mæta Snæfríð Þorsteins, Helga Soffía Einarsdóttir, Einar Kári Jóhannsson og María Rán Guðjónsdóttir og segja okkur frá nýjum þýðingum og stöðu þýðinga í íslenskum samtímabókmenntum. Peter Maté er Íslendingum að góðu kunnur, hann hefur reynt mikill áhrifavaldur í íslensku listalífi og kenndi bæði Laufeyju og Víkingi Heiðari að leika á hljóðfæri. Peter ræðir við Björn Þorláks.

Ep 715Rauða borðið 11. des: Kosningafúsk, fangelsismál, bókaspjall, loftslagsmál, þungarokk og ættarfylgja
Rauða borðið miðvikudagur 11. desember Kosningafúsk, fangelsismál, bókaspjall, loftslagsmál, þungarokk og ættarfylgja Við bjóðum uppá hlaðborð ólíkra mála hér við rauða borðið miðvikudagskvöldið ellefta desember, nú þegar stekkjastaur ætti að vera að skrölta til byggða. Það eru þó engir jólasveinar á meðal gesta okkar í kvöld. Björn Þorláksson ríður á vaðið ásamt umboðsmanni framboðs Samfylkingarinnar sem er ekki sáttur við meðferð atkvæða. Þá koma fulltrúar fanga í Afstöðu til Maríu og ræða brýnar úrbætur á fangelsismálum. Þær Oddný Eir og Vigdís Grímsdóttir taka lifandi og lífrænt spjall um bækur. Þorgerður María, hjá landvernd lítur við og köttar krappið í umræðunni um loftslagsmál. María og Oddný fara svo á hugarflug með hávaðarokkurum í osme og Björn lokar svo þættinum með harmrænni ættarfylgju. Útsendingu stýrðu Laufey Líndal og Pétur Fjeldsted. Spenniði eyrun vel það er gott spjall framundan.

Ep 714Rauða borðið 10. desember: Hervæðing, mannréttindi, listamannalaun, einstaklingurinn og o.k.
Þriðjudagur 10. desember Hervæðing, mannréttindi, listamannalaun, einstaklingurinn og o.k. Guttormur Þorsteinsson formaður og Soffía Sigurðardóttir ritari miðnefndar Samtaka hernaðarandstæðinga andmæla hernaðaruppbyggingu í Keflavík og breyttum áherslum fráfarandi ríkisstjórnar í öryggis- og varnarmálum. Anna Lúðvíksdóttir, framkvæmdastjóri Íslandsdeildar Amnesty International og Árni Kristjánsson ungliða- og aðgerðastjóri Amnesty og Edda S. Arhúrsdóttir ungliði segja okkur frá mannréttindabaráttu á tímamótum, bíómynd, svartri skýrslu og helstu áskorunum dagsins í dag. Þórhallur Guðmundsson stjórnsýslufræðingur ræðir ágalla við núverandi kerfi listamannalauna. Lárus Ýmir Óskarsson kvikmyndagerðarmaður ræðir samband menningar og stjórnmála. Hann segir áhrif einstaklinga á söguna ofmetin. Í lokin segir séra Sigurður Ægisson frá uppruna og notkun orðsins o.k., en hann hefur skrifað heila bók um efni.

Ep 713Rauða borðið 9. des: Brottvísanir, gul verkalýðsfélög, Sýrland, kosningar, goðsagnir og ópera
Mánudagur 9. desember Brottvísanir, gul verkalýðsfélög, Sýrland, kosningar, goðsagnir og ópera Sigurður Pétursson sagnfræðingur segir okkur frá gulum verkalýðsfélögum og Sigurlín Bjarney Gísladóttir kennari um áhrif brottvísana flóttafólks á þau sem hafa kynnst þessum einstaklingum. Tjörvi Schiöth doktorsnemi í sagnfræði segir okkur frá valdaskiptum í Sýrland og Tómas Ellert Tómasson fyrrum bæjarfulltrúi Miðflokksins í Árborg efast um að kosningalög og umbúnaður kosninga á Íslandi sér lýðræðislegur. Ingunn Ásdísardóttir um norrænar goðsagnir í nýju ljósi en hún fjallar um þetta í nýrri bók: Jötnar hundvísir. Þær Helga Þórey Jónsdóttir, kennari og menningarfræðingur og Katrín Harðardóttir, þýðandi og glimmermótmælandi koma og ræða stríð, mótmæli og byltingu í radio gaza. Ragnar Pétur Jóhannsson bassi, Sólveig Sigurðardóttir sópran, Áslákur Ingvarsson baríton og Þórhallur Auður Helgason tenór segja okkur frá Rakaranum í Sevilla og erindi óperunnar til okkar tíma.

Ep 712Synir Egils 8. desember: Fréttir og verkefni nýs þings og stjórnvalda
Sunnudagurinn 8. desember: Synir Egils: Fréttir og verkefni nýs þings og stjórnvalda Bræðurnir Sigurjón Magnús og Gunnar Smári Egilssynir taka á móti gestum og ræða við þá um helstu fréttir og pólitíkina. Að þessi sinni koma þau Helgi Seljan blaðamaður, María Sigrún Hilmarsdóttir fréttakona og Sonja Ýr Þorbergsdóttir formaður BSRB og ræða fréttir og pólitík dagsins. Þeir bræður fara líka yfir sviðið í stjórnmálunum og fá líka til liðs tvo nýja þingmenn flokka sem standa í ríkisstjórnarmyndun. Pawel Bartoszek þingmaður Viðreisnar og Guðmundur Ari Sigurjónsson þingmaður Samfylkingar ræða hvaða verkefni bíða endurskipuðu þingi.

Ep 709Rauða borðið - Helgi-spjall: Jón Ársæll
Laugardagur 7. desember Helgi-spjall: Jón Ársæll Jón Ársæll Þórðarson segir okkur frá æsku sinni og ævintýrum, söknuði eftir móðurbrjóstinu, barnaþrælkun, fjölskyldu, störfum, draumum og raunum.

Ep 711Rauður raunveruleiki - Kosningar gerðar upp, framhald baráttunnar.
Rætt um niðurstöður kosninganna, stöðu Sósíalistaflokksins og framtíð baráttunnar fyrir réttlæti og mannúð á Íslandi og í heiminum. Anita Da Silva Bjarnadóttir, Karl Héðinn Kristjánsson, Eyjólfur B. Eyvindarson, betur þekktur sem Sesar A og Trausti Breiðfjörð Magnússon munu taka stöðuna.

Ep 710Vikuskammtur: Föstudagurinn 6. desember
Föstudagurinn 6. desember Vikuskammtur: Vika 49 Í Vikuskammti við Rauða borðið sitja í dag þau Vera Wonder Sölvadóttir kvikmyndaleikstjóri, Atli Bollason myndlistarmaður, Natalie G. Gunnarsdóttir plötusnúður og Hye Joung Park myndlistarkona og kennari og ræða fréttir vikunnar sem einkenndust af kosningum og mati hverju þær breyta, hvalveiðileyfi, þjóðarmorði og átökum í heimsmálum.

Ep 708Rauða borðið: Sósíalismi, verkalýðsfélög, stjórnarmyndun, stjórnmál, listamannalaun, veðrið og konur
Fimmtudagur 5. desember Sósíalismi, gul verkalýðsfélög, stjórnarmyndun, ung stjórnmál, listamannalaun, veðrið og konur í sögunni Við ræðum við Sönnu Magdalenu Mörtudóttur leiðtoga Sósíalista um kosningarnar og stöðuna að þeim loknum. Viðar Þorsteinsson, fræðslu- og félagsmálastjóri Eflingar, segir okkur frá gulum verkalýðsfélögum. Haukur Arnþórsson stjórnsýslufræðingur fjallar um starfsstjórnir og stjórnarmyndun og Jósúa Gabríel Davíðsson formaður Ung vinstri grænna og Lenya Rún Taha Karim formaður Ungra Pírata ræða kosningar og stöðu sinna hreyfinga. Hulda Rós Guðnadóttir, myndlistarkona og Hermann Stefánsson, rithöfundur ræða um úthlutun listamannalauna og Trausti Jónsson veðurfræðingur talar um veðrið. Í lokin segir Erla Hulda Halldórsdóttir sagnfræðingur okkur frá Sigríði Pálsdóttur, nítjándu aldar konu og stöðu kvenna á þeim tíma.

Ep 708Sjávarútvegsspjallið - Þáttur 33 - Ráð til nýrrar ríkisstjórnar
Fimmtudagur 5. desember Sjávarútvegsspjallið - þáttur 33 Gestir Grétars eru þeir Ólafur Jónsson, Magnús Guðbergsson og Atli Hermannsson

Ep 707Rauða borðið 4. des - Strafsstjórn, brottnám, börn, róttækni og hamborgarhryggir
Miðvikudagur 4. desember Strafsstjórn, brottnám, börn, róttækni og hamborgarhryggir Við ræðum starfsstjórnir og stjórnarmyndun við Gísla Tryggvason lögmann og Vilhjálm Egilsson gamalreyndar stjórnmálamann. Viktoría Þórunn, rússnesk kona sem hér hefur dvalið árum saman, var handtekin og flutt nauðug til síns heimalands. Alma Gunnlaugsdóttir segir okkur frá örlögum vinkonu sinnar. Davíð Kristinsson heimspekingur og aðjúnkt á menntavísindasviði HÍ ræði róttækt hægri og róttækt vinstri á okkar tímum og Guðjón Friðriksson segir okkur frá börnum í Reykjavík síðustu eina og hálfa öldina, hvernig staða þeirra og veröld hefur breyst. Í lokin ræða feðginin Rósa Líf Darradóttir og Darri Gunnarsson um dýravelferðarátak fyrir jólin, segja okkur frá hryggum svínahryggum á jólum.

Ep 706Rauða borðið 3. desember: Kosningar, spilling, kosningakerfi, vinstrið, fangar og bridge
Þriðjudagur 3. desember Kosningar, spilling, kosningakerfi, vinstrið, fangar og bridge Var nógu mikið rætt um spillingu fyrir kosningarnar? Veltur á því hvaða flokkar skipa stjórn hve mikið aðhald verður gegn spillingu? Þau Marínó G. Njálsson kerfisfræðingur, Jasmina Vajzovic ráðgjafi og Atli Þór Fanndal ráðgjafi, ræða úrslit kosninganna og framtíðina. Það gera líka Þorvaldur Gylfason prófessor, einkum brotið kosningakerfi, og Andrés Ingi Jónsson fyrrum þingmaður Vg og Pírata, einkum um stöðu vinstrisins. Sindri Freysson hefur skrifað bók um íslenska fanga Breta á hernámsárunum og segir okkur sá sögu. Í lokin segir Matthías Imsland framkvæmdastjóri Bridgesambandsins hvers vegna hugaríþróttir efla rökhyggju ungmenna.

Ep 705Rauða borðið 2. des - Nýir þingmenn, vinstrið, Píratar og ástandið
Mánudagur 2. desember Nýir þingmenn, vinstrið, Píratar og ástandið Sigurjón Magnús Egilsson fær til sín nýja þingmenn og ræðir við þá um pólitíkina: Ólafur Adólfsson frá Sjálfstæðisflokki, Jón Gnarr frá Viðreisn, Ása Berglind Hjálmarsdóttir frá Samfylkingu og Halla Hrund Logadóttir frá Framsókn. Ögmundur Jónasson fyrrum ráðherra VG fer yfir stöðu vinstrisins og Björn Leví Gunnarsson fyrrum þingmaður Pírata metur hvað fór úrskeiðis hjá þeim flokki. Guðrún Jónína Magnúsdóttir segir okkur svo frá því stúlkur máttu þola á ástandsárunum.

Ep 704Synir Egils 1. des - Uppgjör kosninga
Sunnudagurinn 1. desember: Synir Egils: Uppgjör kosninga Bræðurnir Sigurjón Magnús og Gunnar Smári Egilssynir taka á móti gestum og ræða við þá um helstu fréttir og pólitíkina. Að þessi sinni koma þau Þórhildur Þorleifsdóttir leikstjóri, Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar, Þóra Kristín Ásgeirsdóttir upplýsingafulltrúi, Helga Vala Helgadóttir lögmaður, Ásgeir Brynjar Torfason ritstjóri Vísbendingar og Karen Kjartansdóttir ráðgjafi og gera upp kosningarnar og pólitíkina.

Ep 702Rauða borðið - Helgi-spjall: Júlíus K Valdimarsson
Laugardagur 30. nóvember Helgi-spjall: Júlíus K Valdimarsson Júlíus K Valdimarsson segir okkur frá lífi sínu í tónlist og baráttu fyrir betra lífi. Hann lýsir samvinnuhugsjóninni og eins tímanum þegar samfélag okkar var mulið niður innan frá í nýfrjálshyggju og ræðir mikilvægi þess að fara að raunverulegri rót vandans til að byggja upp frjálst samfélag samkenndar og mennsku.

Ep 703Rauða borðið: Vikuskammtur föstudagur 29. nóvember
Það er líf og fjör á endaspretti kosningabaráttunnar og við upphaf aðventu. Við rennum yfir fréttir vikunnar með frambjóðendum sósíalista þeim Maríu Péturs og Guðmundi Auðuns. Þau njóta liðsinnis tveggja gjörningalistamanna, pólitísku mannréttinda-trúðanna Margots og Plongs. Þar sem Plong er hljóðlátur trúður verður Margrét Baldursdóttir, túlkur einnig með í för en hún ku túlka hugsanir.

Ep 701Rauða borðið 28. nóvember: Kosningar, leigjendur, saga í austri og skynfinning
Fimmtudagur 28. nóvember Kosningar, leigjendur, saga í austri og skynfinning Ritstjórn Samstöðvarinnar fer yfir kappræður dagsins og stöðuna í kosningabaráttunni: Oddný Eir Ævarsdóttir, Sigurjón Magnús Egilsson, María Lilja Ingveldar-Þrastardóttir Kemp, Björn Þorláksson og Gunnar Smári Egilsson. Við förum út á götu og ræðum við almenning sem virðist að mestu leyti búinn að gera upp hug sinn, þó ekki allir. Við flökkuðum um bæinn í leit af svörum um hvað skuli kjósa. Starfandi formaður Leigjendasamtakanna, Yngvi Ómar Sighvatsson segir okkur frá niðurstöðum könnunar um lausn stjórnmálaflokkanna á húsnæðiskrísunni. Sósíalistar reyndust vera með bestu lausnina. Saga Unnsteinsdóttir, listahöfundur sem skipar 3. sæti á lista Sósíalista í Norðaustur kjördæmi segir okkur frá kosningabaráttunni fyrir austan, frá friðarbaráttunni og öðrum kosningamálum sem brenna á fólki og hvetur ungt fólk til að taka þátt í pólitík Hvað er skynfinning? Dr. Sigríður Þorgeirsdóttir heimspekingur ræðir málin og veltir því fyrir sér hvort sé mikilvægt að ræða heimspeki í aðdraganda kosninganna.

Ep 700Grimmi og Snar - #30 Þetta er allt gott og blessað, munið bara að borða vel 😱🥶🥵
Fimmtudagur 28. nóvember Grimmi og Snar - #30 Þetta er allt gott og blessað, munið bara að borða vel 😱🥶🥵 Í þætti dagsins kemur Alexandra Briem Pírati 💜 til Grimma og Snar, hún kemur kannski úr geimriki en Grimmi sjálfur og Snar telur sig vera samsettann úr við og bergi. Þær keppa um hvor þeirra hafi fleiri greiningarnar. Grimmi vinnur þann meting enda alveg Snar eins og venjulega. Hasaþattur, leggið við hlustir, eyru og jafnvel rass. Sumir hlusta á allt með rassgatinu. Gaman að vera opinn og heyra skoðanir allra. Luv 😘♥️🥰🤪

Ep 699Sjávarútvegsspjallið - 32. þáttur: Strandveiðar
Fimmtudagur 28. nóvember Sjávarútvegsspjallið - 32. þáttur: Strandveiðar Gestir Grétars að þessu sinni eru þeir Kjartan Sveinsson og Magnús Jónsson

Ep 698Rauða borðið 27. nóv - Kosningar, sósíalísk barátta, efnahagurinn, lax, mengun og Gaza
Miðvikudagur 27. Nóvember. Kosningar, sósíalísk barátta, efnahagurinn, lax, mengun og Gaza Í beinni bjóðum við til borðs þeim Margréti Pétursdóttur, verkakonu, Höllu Gunnarsdóttur, varaformanni VR, Sverri Björnssyni, hönnuði og eftirlaunamanni ásamt Páli Val Björnssyni fyrrverandi alþingismanni. Þau ræða pólitík dagsins við Sigurjón M. Egilsson: Kosningarnar, hverjir sigra og hverjur tapa. Gestir með reynslu og þekkingu. Fólkið á skrifstofu sósíalista svarar spurningu dagsins. Þá ræðast við bræðurnir Egilssynir en í þetta sinn fær Gunnar Smári að sitja fyrir svörum um framboðið. Af efnahagspólitíkinni segir Ásgeir Brynjar Torfason hagfræðingur og ritstjóri okkur frá sárlegri vöntun á því sem hann kallar einfaldlega alvöru umræðu um hagstjórn og stefnumörkun fyrir kosningar. Hann útskýrir fyrir okkur strauma og stefnur og tengsl við djúpríki, Trump, Hrunið og framtíðina. Þorsteinn Jóhannsson sérfræðingur í mengunarmálum hjá Umhverfisstofnun ræðir við okkur um vágest á höfuðborgarsvæðinu, loftmengun; útblástur og gosmóðu. Er þetta hættulegt heilsu og hvað er til ráða? Svo heimsækir Jón Kristjánsson fiskifræðingur Rauða borðið en Jón segir skaðlegt fyrir lífríki laxa og nytjar af þeim þegar veiðimenn í ám hérlendis sleppa þeim aftur í árnar. Við kíkjum svo að lokum til Gaza með fulltrúm no borders og solaris. Ræðum brott- og frávísanir af landamærum Íslands og fleira tengt.

Ep 697Rauða borðið 26. nóv - Kosningar, ungir norðlenskir sósíalistar, Sanna, Díegó, Kúba og Perú
Þriðjudagur 26. nóvember Kosningar, ungir norðlenskir sósíalistar, Sanna, Díegó, Kúba og Perú Við byrjum á beinni útsendingu, þau Birgitta Jónsdóttir, Marínó G. Njálsson, Kristín Erna Arnardóttir og Einar Már Guðmundsson hefja leik og ræða stjórnmálin og samfélagið með Birni Þorláks. Þá heyrum við í pólitískum ungliðum fyrir norðan. Rætt verður við Ara Orrason sem skiptar 2. sætið í Norðausturkjördæmi hjá sósíalistum og Elvar Fossdal í 15. sæti listans. Sigurjón Magnús Egilsson ræðir við Sönnu Magdalenu Mörtudóttur borgarfulltrúa sem samkvæmt könnunum gæti orðið þingmaður sósíalista. Kötturinn Diegó verður til umræðu, en fulltrúi Dýrfinnu kemur og segir frá björgun hans. Elba Núnez Altuna kemur ræðir pólitíkina í Perú. Og við endum dagskrána á vináttufélags Íslands og Kúbu, en Eyjólfur Eyvindsson og Niuvis Sago SuZeta fóru nýlega utan á vegum félagsins. Þau ræða hindranir Kúbana, kúgun vestursins og mikilvægi þess að eiga sér samfélag.

Ep 696Rauða borðið 25.nóv - Kosningar, umhverfi, ungir kjósendur, sósíalismi, strandeldi og sirkus
Mánudagurinn 25. nóvember Kosningar, umhverfi, ungir kjósendur, sósíalismi, strandeldi og sirkus Esther Bíbí Ásgeirsdóttir bassaleikari, Hrönn Sveinsdóttir bíóstjóri, Kristjana Guðbrandsdóttir fjölmiðlakona og Borgar Magnússon tónskáld fara yfir stöðuna í pólitíkinni, nú þegar kosningabaráttan er komin á yfirsnúning. Fjórir nemendur úr MR sem eru að fara að kjósa í fyrsta sinn, þau Uni Níls Gunnlaugsson, Freyja Rúnarsdóttir, Björn Diljan Hálfdánarson og Herdís Sigurðardóttir Busson, ræða um misheppnaðar tilraunir stjórnmálaflokkanna til að ná til unga fólksins. Þorgerður María Þorbjarnardóttir formaður Landverndar og Árni Finnsson formaður stjórnar Náttúruverndarsamtaka Íslands segja okkur fréttir frá nýjustu alþjóðaráðstefnum á sviði umhverfis- og loftslagsmála. Þorsteinn Bergsson oddviti Sósíalista í Norðaustri segir frá sér og sósíalismanum. Ísadóra Ísfeld Finnsdóttir og Ida Karólína Harris eru ungir umhverfissinnar sem hyggjast beita verkfallsaðgerðum og ganga úr tíma á föstudaginn til að mótmæla laxeldi í sjó. Birta Benónýsdóttir sirkuskona segir okkur frá sirkuslífinu.

Ep 695Synir Egils: Pólitík, kosningar, sviptingar og umturnun
Sunnudagurinn 24. nóvember: Synir Egils: Pólitík, kosningar, sviptingar og umturnun Bræðurnir Sigurjón Magnús og Gunnar Smári Egilssynir taka á móti gestum og ræða við þá um helstu fréttir og pólitíkina. Að þessi sinni koma þau Guðmundur Steingrímsson doktorsnemi, Jakob Bjarnar Grétarsson blaðamaður og Þóra Kristín Ásgeirsdóttir upplýsingafulltrúi ræða fréttir vikunnar og stöðuna í pólitíkinni. Þeir bræður fara líka yfir stjórnmálin og fá síðan Boga Ágústsson fréttamann og Ólaf Þ. Harðarson prófessor til að fara yfir liðnar og komandi kosningar.

Ep 694Rauða borðið - AUKAÞÁTTUR - Oddvitar Sósíalista
Laugardagurinn 23. nóvember Aukaþáttur: Oddvitar Sósíalista Oddvitar Sósíalistaflokksins ræða kosningabaráttuna og þau má sem brenna á almenningi. Þorsteinn Bergsson oddviti í Norðausturkjördæmi, Sanna Magdalena Mörtudóttir oddviti í Reykjavík suður, Guðmundur Hrafn Arngrímsson oddviti í Norðvesturkjördæmi, Davíð Þór Jónsson oddviti í Suðvestri, Unnur Rán Reynisdóttir oddviti í Suðurkjördæmi og Gunnar Smári Egilsson oddviti í Reykjavík norður ræða kosningamálin og erindi Sósíalista.

Ep 691Rauða borðið - Helgi-spjall: Ævar Kjartansson
Laugardagurinn 23. nóvember Helgi-spjall: Ævar Kjartansson Ævar Kjartansson útvarpsmaður segir okkur frá æsku á fjöllum, uppvexti og uppgötvunum, guði og kommúnisma, ástinni og átökum.