PLAY PODCASTS
Morðskúrinn

Morðskúrinn

338 episodes — Page 5 of 7

Ep 143Dularfullur dauði: Brandon Embry

Þegar fjölskylda Brandon hafði ekki heyrt í honum í nokkra daga, þá ákvað móðir hans og systir að taka sig saman og keyra heim til hans. Þegar þangað var komið var ákveðið að hringja í lögreglu, sem fór inn og fann Brandon í mjög slæmu ástandi á gólfinu heima hjá sér. Honum var flýtt á bráðamóttöku, og gerðu læknar allt til þess að reyna að bjarga honum, en án árangurs. Íbúðin var í rúst, allt út í blóði og gífurlegir áverkar á Brandon. Dánarorsök voru ekki í neinu samhengi við vettvanginn, og síðar kom í dagsljósið upp kærasta Brandon sem reyndist vera mjög dularfull. Allar myndir sem tengjast málinu eru að finna inná grúbbunni: Morðskúrinn - umræðuhópur! www.pardus.is/mordskurinn www.facebook.com/mordskurinn www.instagram.com/mordskurinn

Nov 30, 202258 min

Ep 142Manndráp: Linsey Wilson Quy

Linsey Wilson Quy var 17 ára gömul þegar hún var óvænt ófrísk, hún hafði verið í sambandi með ungum strák en það hafði ekki gengið þegar leið á meðgönguna og úr varð að Linsey var að horfa fram á það að hlutverk sem einstæð móðir. Þetta hlutverk hræddi hana mikið og hún var kvíðin fyrir því sem koma skyldi þegar hún kynntist manni sem hún taldi í fyrstu að væri draumaprinsinn hennar, Annað átti heldur betur eftir að koma í ljós þegar leið á sambandið og endaði það skelfilega. Þátturinn er í boði Scrub Daddy Ísland Kóðinn "morðskúrinn" veitir 20% afslátt af öllum vörum inn á www.scrubdaddyisland.is ÁSKRIFT: www.pardus.is/mordskurinn www.instagram.com/mordskurinn www.facebook.com/mordskurinn

Nov 23, 202242 min

Ep 141Mannrán: Thad Phillips

Thad Phillips var þrettán ára gamall þegar hann vaknaði við það að einhver var að bera hann út úr sínu eigin húsi. Honum fannst það ekkert skrítið enda sofnaði hann oft í sófanum, en í þetta skipti var hann borinn út úr húsinu. Hann skildi lítið hvað var í gangi en hafði litlar áhyggjur, þar til hann var skyndilega mættur í hús til ókunnugs manns þar sem hann gat hvergi farið. Þátturinn er að sjálfsögðu í boði Scrub Daddy Ísland en með kóðanum mordskurinn fáið þið 20% afslátt af öllum vörum inni á www.scrubdaddyisland.is Viltu meira efni? Áskrift kostar 990kr.- á mánuði og það er engin binding: www.pardus.is/mordskurinn Samfélagsmiðlar: www.facebook.com/mordskurinn www.instagram.com/mordskurinn

Nov 15, 202232 min

Ep 140Fjöldamorð: Geronimo Bank Murders

Hvað taka menn upp á þegar þeir horfa fram á mikinn fjárhagsvanda? Fæstir myndu taka upp á því sem Jay nokkur gerði í slagtogi við kærasta sinn Þeir höfðu verið staurblankir nánast allt sitt samband, orðnir ráðþrota enda komið að lokuðum dyrum hvert sem þeir fóru nú þegar þeir voru búnir að maxa alla lánaheimild sem þeir gátu fengið Það sem þeir tóku upp á var ómannúðlegt svo ekki meira sé sagt Þátturinn er í boði Scrub Daddy Ísland Kóðinn "morðskúrinn" gefur ykkur 15% afslátt af öllum vörum inn á www.scrubdaddyisland.is ÁSKRIFT: www.pardus.is/mordskurinn www.instagram.com/mordskurinn www.facebook.com/mordskurinn

Nov 9, 202246 min

Ep 139Manndráp: Stephen Hricko

Hjón fara á morðráðgátukvöld yfir valentínusarhelgi til þess að reyna að bjarga hjónabandinu, en aðeins eitt þeirra lifir nóttina af. 20% afsláttur af öllu inni á www.scrubdaddyisland.is með kóðanum morðskúrinn www.pardus.is/mordskurinn www.instagram.com/mordskurinn www.facebook.com/mordskurinn

Nov 2, 202236 min

Ep 138Dularfullur dauði: Hugues de la Plaza

Hugues sem var upprunalega franskur, hafði flutt til Bandaríkjanna í leit að sínu draumalífi. Það hafði tekist stórkostlega hjá honum, hann var í góðri vinnu, átti góða vini og virkilega naut lífsins í botn Það var því sem þruma úr heiðskíru lofti þegar hann fannst látinn inn á heimilinu sínu einn morguninn og það sem verra var, lögreglan kærði sig lítið um að vinna að neinni rannsókn Þátturinn er í boði Scrub Daddy Ísland Kóðinn "morðskúrinn" veitir hlustendum 20% afslátt af vörum inn á www.scrubdaddyisland.is ÁSKRIFT www.pardus.is/mordskurinn www.instagram.com/mordskurinn www.facebook.com/mordskurinn

Oct 26, 202231 min

Ep 137Manndráp: MacDonald fjölskyldan

Aðfaranótt 17. febrúar árið 1970 vaknaði Jeffrey upp við öskur eiginkonu sinnar og dóttur. Yfir honum stóðu þrír karlmenn og ein kona, sem byrjuðu þá og þegar að lemja hann þar til hann varð meðvitundarlaus. Þegar hann rankaði við sér, þá hljóp hann um húsið en gerði skelfilega uppgötvun. Rannsókn lögreglu var bara alls ekki upp á sitt besta en með það litla sem hægt var að vinna með komust þeir að niðurstöðu, og var gerandinn, að þeirra sögn, að lokum ákærður og dæmdur fyrir morðin. www.pardus.is/mordskurinn www.facebook.com/mordskurinn www.instagram.com/mordskurinn

Oct 19, 202253 min

Ep 136Manndráp: Heather Quan

Heather Quan var rétt rúmlega 21 árs þegar hún fannst látin inn á heimili sínu sem hún deildi með kærasta sínum. Heather hafði fundist látin þegar foreldrar kærasta hennar óskuðu eftir velferðareftirliti þann 25 desember, en þá höfðu parið ekki skilað sér í kvöldmat. Við velferðareftirlitið kom í ljós að ekki var allt í lagi innan íbúðarinnar og eftir mikinn hasar komust lögreglumenn inn Þá fór atburðarrás í gang sem fæstir geta skilið Þátturinn er í boði Scrub Daddy Ísland Kóðinn "morðskúrinn" gefur hlustendum 20% afslátt af öllum vörum inn á www.scrubdaddyisland.is ÁSKRIFT www.pardus.is/mordskurinn www.instagram.com/mordskurinn www.facebook.com/mordskurinn

Oct 11, 202247 min

Ep 135Mannshvarf: Skelton bræðurnir

Tanya og John voru búin að stofna sína yndislegu fjölskyldu saman, en þau áttu bræðurna Andrew, Alexander og Tanner. Drengirnir höfðu eytt þakkargjörð með föður sínum árið 2010. Þegar móðir þeirra ætlaði að sækja þá daginn eftir, þá kom faðir þeirra með nokkrar útgáfur af sögum um hvar þeir væru niðurkomnir. Það var m.a. að aðili a vegum sértrúarsöfnuðar hafi sótt þá og að kona sem hann hafði kynnst væri með þá. Grunsamlegar ferðir voru raktar í gegnum GPS á símanum hans og einnig fannst ljóð sem hann hafði skrifað árum áður sem þótti hryllilegt í ljósi atvika.

Oct 5, 202244 min

Ep 134Óupplýst: Al Kite

Al Kite var einhver reglusamasti maður sem til var og það kom öllum gjörsamlega að óvörum þegar hann fannst látinn inn á sínu eigin heimili Hann hafði orðið fyrir fólskulegri árás og að virtist, algjörtlega tilefnislausri árás Enginn var undir grun einfaldlega vegna þess að eini maðurinn sem lögreglan hafði áhuga á virtist hreinlega ekki vera til Og það hefur verið ástæða þess að lausn hefur ekki fengist í mál Al Þátturinn er í boði Scrub Daddy Ísland Kóðinn "morðskúrinn" veitir 15% afslátt á öllum vörum inn á www.scrubdaddyisland.is ÁSKRIFT www.pardus.is/mordskurinn www.facebook.com/mordskurinn www.instagram.com/mordskurinn

Sep 28, 202247 min

Ep 133Manndráp: Bill McGuire

Þann 5. maí árið 2004 fannst fyrsta ferðataskan af þremur sem innihélt sundurskornar líkamsleifar. Rannsóknarlögreglumenn áttu tvö erfið verkefni framundan, að bera kennsl á líkamspartana og að finna út hver bar ábyrgð á morðinu. Það átti eftir að reynast þeim erfitt en þegar litið var á heimilislíf fórnarlambsins þá fór ákveðin atburðarrás að koma í ljós. Í kjölfarið hefur morðinginn fengið nafnið "The Suitcase Killer". www.pardus.is/mordskurinn www.facebook.com/mordskurinn www.instagram.com/mordskurinn

Sep 21, 20221h 3m

Ep 132Óupplýst: Jessica Easterly

Árið 2019 hringdi Jessica í vinkonu sína og tilkynnti henni um áætlanir sínar - hún ætlaði loksins að láta verða að því að fara frá eiginmanni sínum Eiginmanni sem hafði alltaf reynt sitt besta að láta sig líta vel út en raunin var allt önnur Jessica hvarf sporlaust sama dag og hún hringdi í vinkonu sína, hún átti ekki eftir að finnast fyrr en 10 dögum síðar, látin. Rannsókn á andláti Jessicu var vægast sagt klúður og upptalning á þeim klúðrum koma fram í þessum þætti Þátturinn er í boði Scrub Daddy Ísland Kóðinn "morðskúrinn" gefur 15% afslátt af öllum vörum inn á www.scrubdaddyisland.is ÁSKRIFT www.pardus.is/mordskurinn www.instagram.com/mordskurinn www.facebook.com/mordskurinn

Sep 14, 20221h 7m

Ep 131Manndráp: Lauren Giddings

Hin 27 ára Lauren var að undirbúa sig fyrir próf í laganáminu sínu yfir sumarið. Hún hafði lítinn tíma til þess að heyra í fjölskyldu og vinum en var vön að láta reglulega vita af sér, svo þegar enginn hafði heyrt í henni í einhvern tíma þá urðu allir áhyggjufullir. Eftir nokkra daga kom í ljós skelfileg atburðarrás sem átti eftir að breyta lífi margra. Viltu meira efni: www.pardus.is/mordskurinn www.instagram.com/mordskurinn www.facebook.com/mordskurinn Þátturinn er í boði Scrub Daddy en með kóðanum morðskúrinn fáið þið 15% afslátt af öllum vörum inni á www.scrubdaddyisland.is

Sep 7, 202241 min

Ep 130Manndráp: Tia Rigg

Tia Rigg var 12 ára gömul þegar hún fór að heiman og sást aldrei aftur á lífi. Morðingi hennar var mjög veikur einstaklingur sem hafði mánuðina á undan fengið þráhyggjur fyrir í fullri hreinskilni, hrikalega viðbjóðslegum hlutum. Saga Tiu er sorgarsaga að öllu leiti en það er sorglegt hve harkalega kerfið brást henni Þátturinn er í boði Scrub Daddy Ísland Með kóðanum "morðskúrinn" færðu 15% afslátt á öllum vörum inn á www.scrubdaddyisland.is ÁSKRIFT www.pardus.is/mordskurinn www.instagram.com/mordskurinn www.facebook.com/mordskurinn

Aug 31, 202233 min

Ep 129Mannshvarf: Leigh Occhi

Leigh Occhi var 13 ára gömul þegar hún hvarf við dularfullar aðstæður frá heimili sínu í Missisippi, en það var á þeim tíma sem fellibylurinn Andrew reið yfir. Blóð fannst inni á heimilinu en engin merki voru um Leigh. Stuttu eftir hvarf hennar fékk fjölskyldan send gleraugun hennar í pósti en ekki var vitað hver sendandinn væri. Málið hennar er mjög dularfullt, en móðir hennar telur sig vita nákvæmlega hver varð dóttur sinni að bana á meðan aðrir benda fingrum á hana sjálfa. Þátturinn er í boði Scrub Daddy, en með kóðanum mordskurinn færðu 15% afslátt af öllu inni á www.scrubdaddyisland.is Viltu meira efni: www.pardus.is/mordskurinn Fylgdu okkur á samfélagsmiðlum: www.instagram.com/mordskurinn www.facebook.com/mordskurinn

Aug 23, 202242 min

Ep 128Manndráp: Sierah Joughin

Sierah Joughin bjó í litlu samfélagi, það sem átti að vera öruggt samfélag en annað átti eftir að koma á daginn Sierah hvarf á leiðinni heim til sín, sporlaust. Hún hafði hjólað langleiðina heim til sín með kærastann sinn sér við hlið þegar þau kvöddust og Josh, kærastinn hennar sá hana aldrei aftur Það átti eftir að sannast hversu mikilvægt er að almenningur hafi greiðari aðgang að sumum gögnum lögreglunnar - gögnum sem segja til um hættulega menn í nágreninu til dæmis Sorglegt mál eins og öll önnur en úffff elsku Sierah Þátturinn er í boði Scrub Daddy Ísland Kóðinn "morðskúrinn" gefur 15% afslátt af öllum vörum inn á www.scrubdaddyisland.is ÁSKRIFT www.pardus.is/mordskurinn _____________________________________________________ www.facebook.com/mordskurinn www.instagram.com/mordskurinn

Aug 17, 202252 min

Ep 127Mannrán: Shannon Matthews

Shannon var 9 ára gömul þegar hún hvarf skyndilega á leið sinni heim úr skólanum. Áhyggjufull móðir hennar tilkynnti hana týnda og rannsókn lögreglu leiddi ekkert í ljós, svo strax var hafist handa við að athuga hvort henni hafi einfaldlega verið rænt. Hún fannst svo að lokum um 24 dögum eftir mannránið. Ræningi hennar stóð fjölskyldunni nær en öllum grunaði. Viltu meira efni: www.pardus.is/mordskurinn Fylgdu okkur á samfélagsmiðlum: www.instagram.com/mordskurinn www.facebook.com/mordskurinn

Aug 10, 202244 min

Ep 126Manndráp: Amanda Cope

Amanda Cope var 12 ára gömul þegar hún fannst látin í rúminu sínu Andlátið hafði borið að með saknæmum hætti og það var augljóst frá upphafi Það átti hinsvegar eftir að reynast mjög erfitt að komast að því hver aðdragandi morðins hafði verið og lögreglan snerist í ansi marga hringi og komst í raun aldrei að neinni eiginlegri niðurstöðu þó að dæmt hafi verið í máli Amöndu Þátturinn er í boði Scrub Daddy Ísland Kóðinn "morðskúrinn" gefur 15% afslátt af öllum vörum inn á www.scrubdaddyisland.is ÁSKRIFT www.pardus.is/mordskurinn www.instagram.com/mordskurinn www.facebook.com/mordskurinn

Aug 3, 202252 min

Ep 125Manndráp: Caffey fjölskyldan

Caffey hjónin voru mjög elskuleg og vel liðin í samfélaginu. Þau ólu upp þrjú börn og voru með strangar reglur inni á heimilinu. Einn dag brutust inn þrjú ungmenni og skutu fjóra fjölskyldumeðlimi af fimm og eitt barnanna var tekið í gíslingu heim til árásaraðilanna, eða hvað? Það var nefninlega vitni til staðar sem gat sagt lögreglu hvað hafði gerst þetta örlagaríka kvöld. Þátturinn er í boði Scrub Daddy, en með kóðanum 'morðskúrinn' færðu 15% afslátt inni á www.scrubdaddyisland.is Viltu meira efni? www.pardus.is/mordskurinn Fylgdu okkur á samfélagsmiðlum: www.facebook.com/mordskurinn www.instagram.com/mordskurinn

Jul 26, 202240 min

Ep 124Manndráp: Yun Mi Hoy

Yun Mi Hoy hafði átt í ansi stormasömu sambandi við dóttur sína í gegnum árin Isabella dóttir hennar hafði í grunninn verið mjög reið út í foreldra sína að hafa skilið þegar hún var ung en án vitund allra var Isabella með geðsjúkdóm sem hún fékk enga meðhöndlun við. Því fór svo eitt ágúst kvöldið að Isabella myrti móður sína á hrottalegan máta Þátturinn er í boði Scrub Daddy Ísland Kóðinn "morðskúrinn" gefur 15% afslátt af öllum vörum www.scrubdaddyisland.is www.instagram.com/mordskurinn www.facebook.com/mordskurinn ÁSKRIFT www.pardus.is/mordskurinn

Jul 20, 202228 min

Ep 123Raðmorðingi: Nathaniel Bar-Jonah

Nathaniel var ekkert eðlilegasta barnið. Hann var einungis 7 ára gamall þegar hann reyndi að kyrkja nágrannastelpu til dauða, en sem betur fer kom móðir hans að honum. Það var hinsvegar engin refsing og hélt hann ótrauður áfram, þar sem glæpir hans stigmögnuðust. Þegar lögreglan mætti heim til hans einn daginn þá blöstu við þeim sjón sem þeim grunaði bara alls ekki. Nathaniel hafði m.a. boðið nágrönnum sínum í mat og bauð hann upp á mannakjöt í þeirri veislu. Kóðinn 'morðskúrinn' veitir þér 15% afslátt inni á www.scrubdaddyisland.is Komdu í áskrift eða fylgdu okkur á samfélagsmiðlum: www.pardus.is/mordskurinn www.instagram.com/mordskurinn www.facebook.com/mordskurinn

Jul 13, 202246 min

Ep 122Manndráp: Yvette Pena & Luis Romero

Jaime Osuna var ekki orðinn árs gamall þegar það var orðið ljóst að lífið hans yrði erfiðara en hjá flestum en hann hlaut sínu fyrstu áverka bókstaflega í móðurkvið. Þetta átti eftir að vera áhrifaþáttur í lífi Jaime en hann varð með öllu ónæmur fyrir tilfinningum í kjölfarið og það var akkúrat það sem ýtti honum út í alvarlega glæpastarfsemi og síðar morðæði. Þátturinn er í boði Scrub Daddy Ísland Kóðinn "morðskúrinn" gefur 15% afslátt af öllum vörum inn á www.scrubdaddyisland.is ÁSKRIFT www.pardus.is/mordskurinn www.instagram.com/mordskurinn www.facebook.com/mordskurinn

Jul 6, 202254 min

Ep 121Mannshvarf: Susan Powell

Susan Powell var gift tveggja barna móðir sem hvarf skyndilega eftir að hafa tekið kríu. Eiginmaður hennar og börnin fóru skyndilega í útilegu og þegar þau komu heim þá var hún horfin. Augu lögreglunnar beindust fljótt að eiginmanni hennar, sem og tengdaföður, en hann hafði verið mjög óviðeigandi við hana. Ekki leið á löngu þar til annað áfall dundi yfir fjölskylduna og aðrir meðlimir mættu örlögum sínum. Viltu meira efni? www.pardus.is/mordskurinn Fylgdu okkur á samfélagsmiðlum: www.facebook.com/mordskurinn www.instagram.com/mordskurinn

Jun 28, 202254 min

Ep 120Manndráp: Robert Limon

Robert Limon lifði hinu fullkomna lífi - konur öfunduðu eiginkonu hans Sabrinu og vildu að eiginmenn sínir væru eins og Robert sem var með eindæmum góður maður, góður faðir og fólk kepptist um að vera í kringum hann Eitt kvöldið skilaði Robert sér ekki heim úr vinnu og við vaktaskipti kom í ljós að Robert hafði verið myrtur af einhverjum áður Lögreglan klóraði sér í hausnum í svolítinn tíma og var engu nær enda var morðið á Robert mjög svo tilviljunarkennt virtist vera, eða hvað? Þátturinn er í boði Scrub Daddy Ísland Kóðinn "mordskurinn" veitir 15% afslátt á öllum vörum inn á www.scrubdaddyisland.is ÁSKRIFT: www.pardus.is/mordskurinn www.instagram.com/mordskurinn www.facebook.com/mordskurinn

Jun 22, 202254 min

Ep 119Dularfullur dauði: Amber og Josh Hilberling

Hjónaband Amber og Josh var mjög stormasamt en þau voru ekki að eiga dagana sæla. Þau ákváðu að flytja aftur heim í von um að eitthvað myndi lagast og á meðan þau biðu eftir að húsið þeirra yrði klárt, þá settust þau að í íbúð móður Amber. Ekki leið á löngu þar til Josh var látinn, og miklar vangaveltur fóru af stað um hvað raunverulega gerðist. Þátturinn er í boði Scrub Daddy en á heimasíðu þeirra fáið þið 15% afslátt með kóðanum: mordskurinn Viltu meira efni? www.pardus.is/mordskurinn Skoðaðu myndir af vettvangi: www.instagram.com/mordskurinn www.facebook.com/mordskurinn

Jun 15, 202249 min

Ep 118Manndráp: Rachel Burkheimer

Rachel Burkheimer var 18 ára gömul þegar líf hennar var tekið á ómannúðlegan máta Hún hafði verið peð í sjúkum leik fyrrverandi kærasta síns til lengri tíma gjörsamlega grunlaus um hvað væri í vændum Sem betur fer var sjúki leikurinn fremur illa planaður og voru gerendur hennar handteknir innan skamms og réttlætinu var mætt Þátturinn er í boði Scrub Daddy Ísland Kóðinn "morðskúrinn" veitir 15% afslátt af öllum vörum ÁSKRIFT www.pardus.is/mordskurinn www.instagram.com/mordskurinn www.facebook.com/mordskurinn

Jun 8, 202247 min

Ep 117Manndráp: Irina Yarmolenko

Ira Yarmolenko fæddist upprunalega í Úkraínu en flutti með fjölskyldu sinni til Bandaríkjanna. Planið hennar var að læra hjúkrunarfræði og hafði hún einnig mikinn áhuga á ljósmyndun. Þann 20. maí árið 2008 kláraði hún lokaprófin sín, og fór svo að stússast. Nokkrum tímum síðar fannst hún látin hjá bílnum sínum nálægt Catawba ánni. Hún hafði klest bílnum sínum á tré, en lá fyrir utan bílinn og ljóst að hún hafði látist að völdum kyrkingar. Lögreglan var fljót að flokka andlátið sem sjálfsmorð þar til nýjar upplýsingar komu fram í málinu, en voru þær nógu sterkar til þess að úrskurða um hvað raunverulega gerðist? Viltu meira efni? Allt eldra efni ásamt fjórum nýjum þáttum mánaðarlega á aðeins 990kr.- inná: www.pardus.is/mordskurinn Fylgdu okkur á samfélagsmiðlum til að skoða uppfærslur af málum, myndir & annað efni: www.instagram.com/mordskurinn www.facebook.com/mordskurinn

May 31, 202253 min

Ep 116Raðmorðingi: Edward Edwards

Edward Edwards virtist vera fyrirmyndarmaður sem hafði tekið og snúið lífi sínu við og skilið glæpaferil sinn í fortíðinni Hann var komin á eftirlaun árið 2009 eftir að hafa starfað við forvarnarfyrirlestra í mörg mörg ár Sama ár hafði dóttir hans ákveðið að grúska aðeins í málum föður síns og þá átti eftir að koma eitthvað allt annað í ljós en þessi fyrirmyndarmaður sem fólk taldi föður hennar vera Þátturinn er í boði Scrub Daddy Ísland með kóðanum "mordskurinn" fáið þið 15% afslátt á öllum vörum inn á www.scrubdaddyisland.is ÁSKRIFT www.pardus.is/mordskurinn www.instagram.com/mordskurinn www.facebook.com/mordskurinn

May 25, 202237 min

Ep 115Mannshvarf: Kyron Horman

Kyron Horman var 7 ára gamall þegar hann mætti í skólann sinn með stjúpmóður sinni, en þá var vísindasýning í gangi og hlakkaði honum til þess að sýna henni og öllum vinum sínum verkefnið sitt. Eftir vísindasýninguna átti hann að mæta í tíma, en hvarf sporlaust. Viltu meira efni: www.pardus.is/mordskurinn - 990kr.- á mánuði fyrir 4 auka þætti. Fylgdu okkur á samfélagsmiðlum: www.facebook.com/mordskurinn www.instagram.com/mordskurinn

May 18, 202257 min

Ep 114Manndráp: Molly McLaren

Molly var fyrirmyndarnemandi við Háskólann í Kent þar sem hún lærði næringar og íþróttafræði en hún átti stóra drauma um að geta aðstoðað fólk sem væri í þeirri stöðu sem hún sjálf hafði verið í nokkrum árum áður Molly hafði tekist að sigrast á búlemíu og anorexíu og hafði komið sér upp rútínu til að halda sér góðri, rútínu sem hún fann að aðrir sóttust í að kynnast Hún deildi því sinni reynslu og ráðum áfram í gegnum blogsíðu og instagram aðganginn sinn Molly fékk ekki að halda áfram að deila reynslu sinni áfram og aðstoða aðra en hún var myrt á hrottalegann hátt sumarið 2017 ________________________________________________________________________________ Kóðinn "morðskúrinn" gefur 15% afslátt af öllum vörum inn á www.scrubdaddyisland.is ÁSKRIFT: www.pardus.is/mordskurinn ________________________________________________________________________________ www.instagram.com/mordskurinn www.facebook.com/mordskurinn

May 11, 202250 min

Ep 113Raðmorðingi: Peter Lundin

Þegar lögreglan í Kaupmannahöfn uppgötvaði hrottalegt morð á móður og tveimur sonum hennar urðu þau skelfingu lostin. Fljótlega komust þau að því að fórnarlambið, Marianne, var með dæmdum morðingja. Faðir hans sagði að það væri ekkert sem myndi stoppa hann, hann var einfaldlega fæddur til þess að drepa. Fylgið okkur á samfélagsmiðlum til þess að sjá myndir og annað skemmtilegt: www.pardus.is/mordskurinn www.instagram.com/mordskurinn www.facebook.com/mordskurinn

May 4, 202246 min

Ep 112Mannshvarf: Joe Pichler

Joe Pichler hafði verið barnastjarna í Hollywood á sínum yngri árum en hafði farið á heimaslóðir til að klára menntaskóla og bjó þar þegar hann hvarf sporlaust í janúar mánuði 2006 Samkvæmt fjölskyldu Joe hafði hann ekki neina ástæðu til að láta sig hverfa enda með áætlanir um að flytjast aftur til Hollywood til að hefja leiklistarferil sinn aftur Lögreglan var þó á allt annarri skoðun og sinnti máli Joes afar illa frá upphafi þó að margt grunsamlegt væri í málinu Minnum á kóðann "mordskurinn" fyrir 15% afslátt inn á www.scrubdaddyisland.is ÁSKRIFT www.pardus.is/mordskurinn Samfélagsmiðlar www.instagram.com/mordskurinn www.facebook.com/mordskurinn

Apr 27, 202239 min

Ep 111Dularfullur dauði: Paulette Gebara Farah

Litla Paulette var með hreyfihömlum og talörðugleika, en hún aðeins 5 ára gömul þegar hún hvarf frá heimilinu sínu. Leit stóð yfir í 9 daga af henni þar sem strax var talið að henni hafi verið rænt af heimilinu, enda gat hún ekki gengið sjálf út. Það er margt undarlegt og dularfullt við málið sem við ræðum í þætti dagsins. Hægt er að kaupa áskrift fyrir 990kr.- á mánuði hér: www.pardus.is/mordskurinn Fylgdu okkur á samfélagsmiðlum: www.facebook.com/mordskurinn www.instagram.com/mordskurinn

Apr 20, 202246 min

Ep 110Manndráp: Suzanne Capper

Suzanne Capper hafði hlotið fremur dapurt uppeldi Henni hafði aldrei verið sýnd nein virðing, hún hafði aldrei upplifað sig elskuð og sjaldan fengið neinar viðurkenningar Hún var því ung farin að reyna að leita að þessum atriðum annarsstaðar en inn á heimili sínum og það var það sem færði hana í aðstæður sem hún átti aldrei eftir að komast útúr og hlaut Suzanne hörmulegan og hryllilegan endi Þátturinn er í boði Scrubdaddy Ísland www.scrubdaddyisland.is 15% afsláttur með kóðanum "morðskúrinn" ÁSKRIFT www.pardus.is/mordskurinn www.instagram.com/mordskurinn www.facebook.com/mordskurinn

Apr 12, 202237 min

Ep 109Manndráp: Betsy Faria

Betsy fannst látin á heimili sínu einn slæman veðurdag af manninum sínum. Hann hringdi strax á neyðarlínuna og sagði þeim frá því að konan hans hafði framið sjálfsmorð. Það vakti grunsemdir lögreglu sem fór að rannsaka málið, enda hafði hún verið stungin yfir 50 sinnum. Réttlætinu var náð og var fjölskylda Betsyar mjög ánægð með það, en nýjar upplýsingar áttu eftir að koma fram sem breyttu öllu varðandi málið.

Apr 6, 202249 min

Ep 108Manndráp: Carol og Reggie Sumner

Carol og Reggie Sumner voru æskuástir hvors annars en leiðir þeirra höfðu skilið fljótlega eftir að samband þeirra hófst. Það var ekki fyrr en árið 2000 þegar Carol var orðin tvískilin einstæð móðir og búin að ganga í gegnum allskonar hremmingar sem hún og Reggie hittust aftur. Þau voru ekki lengi að ákveða það að þau skyldu eyða ævinni saman grunlaus um að endalok þeirra yrðu skelfileg og töluvert fyrr en þau áttu von á Þátturinn er í boði Scrub Daddy Ísland Minnum á afsláttarkóðann okkar "mordskurinn" fyrir 15% afslátt af öllum vörum! www.scrubdaddyisland.is ÁSKRIFT: www.pardus.is/mordskurinn Instagram www.instagram.com/mordskurinn Facebook www.instagram.com/mordskurinn

Mar 30, 202258 min

Ep 107Raðmorðingi: John Bunting og félagar

Félagarnir áttu eitt sameiginlegt áhugamál, sem var hvíta kynþáttarhyggjan og vildu þeir útrýma öllum sem þeim fannst ekki eiga það skilið að lifa. Í Ástralíu byrjaði fólk að hverfa eitt af öðru, en það var ekki fyrr en að nokkur ár höfðu liðið þar til lögreglan fór að tengja þau saman. Hægt er að skoða myndir inni á facebook og instagram! www.pardus.is/mordskurinn www.facebook.com/mordskurinn www.instagram.com/mordskurinn

Mar 22, 202254 min

Ep 106Manndráp: Chris Lane

Chris Lane var 23 ára gamall þegar hann skrapp út í hlaupatúr Það átti eftir að vera það síðasta sem hann gerði Í upphafi rannsóknar leit allt út fyrir að morðingja Chris yrði ekki náð en Chris var bara í heimsókn í Duncan, bænum sem hann lést í og því enginn í bæjarfélaginu sem ætti að eiga eitthvað vantalað við hann þess þá heldur ástæðu til að myrða hann En mjög fljótt komst lögregla á sporið og lausn fékkst í mál Chris mjög hratt. ÁSKRIFT: www.pardus.is/mordskurinn www.instagram.com/mordskurinn www.facebook.com/mordskurinn

Mar 16, 202255 min

Ep 105Óupplýst: Missy Bevers

Missy Bevers var að undirbúa æfingu þegar óprúttinn aðili kemur að henni og ber hana með kúbeini til dauða. Til er myndbandsupptaka af aðilanum og bíll aðilans næst einnig á upptöku en þrátt fyrir það kannast enginn við hann.

Mar 9, 202242 min

Ep 104Dularfullur dauði: Alex Van Dalsen

Alex Van Dalsen var 23 ára þegar hann fannst látinn á útivistasvæði í heimabæ sínum. Hann hafði horfið nokkrum dögum áður, gengið út heiman frá sér án þess að tala við kóng né prest og enginn veit hvað hann ætlaði sér eða hvert hann fór. Andlát Alex var strax sagt vera vegna sjálfsvígs en móðir hans er því ósammála og í þættinum förum við yfir gögn málsins og afhverju grunur móður hans gæti verið á rökum reistur.

Mar 2, 202248 min

Ep 103Manndráp: Billy og Billie-Jean

Billy Payne og Billie-Jean Hayworth voru í blóma lífsins og höfðu nýverið eignast fyrsta barn sitt, soninn Tyler. Það hinsvegar breyttist skyndilega þegar óprúttnir aðilar brutu sér leið inn til þeirra og skutu þau til bana. Það sem átti síðar eftir að koma í ljós var að tilgangur morðanna var fáranlegri en maður getur mögulega ýmindað sér og átti sér engin stoð í raunveruleikanum. SAMSTARF - 20% afsláttur af ROKA töskum inni á www.baejarbud.is með kóðanum morð. Gildir til 11. mars nk. www.pardus.is/mordskurinn www.facebook.com/mordskurinn www.instagram.com/mordskurinn

Feb 22, 202247 min

Ep 102Mannshvarf: Claudia Kirschhoch

Claudia var 29 ára gömul þegar hún hvarf sporlaust í miðri vinnuferð á Jamaíka en hún starfaði sem rithöfundur Hún hafði verði í samfloti annarra rithöfunda og þar á meðal var ein sem varð mjög góð vinkona hennar, sú hét Tania. Claudia sást síðar á vappi á ströndum Negril þann 27 maí og hefur ekki sést eftir það. Foreldrar hennar hafa lagt mikla leit af dóttur sinni en enn sem komið er hefur það reynst með öllu árángurslaust. Einn maður hefur verið bendlaður við hvarfið en ekki tókst að sanna viðkomu hans að málinu með neinum hætti

Feb 16, 202248 min

Ep 101Dularfullur dauði: Mike Mansholt

Mike Mansholt fór til Möltu að heimsækja kærustuna sína og ákvað að framlengja ferðinni til þess að æfa sig fyrir Reykjavíkurmaraþonið. Einn morgun leigði hann sér hjól, fór út að hjóla og sást ekki síðar. Nokkrum dögum síðar fannst líkið við Dingli kletta sem var vinsæll túristastaður. Rannsóknaraðilar úrskurðu um að hann hafi líklegast hjólað framyfir bjargbrún, en sönnunargögn bentu til annars. Var þetta hræðilegt slys, eða var eitthvað annað í gangi?

Feb 8, 202252 min

Ep 100Manndráp: Ann Maguire

Ann Maguire var farsæll kennari í Corpus Christi menntaskólanum í Leeds að starfa sitt lokaár þegar hún var myrt af nemanda sínum í miðri kennslustund. Nemandinn umræddi er hinn 15 ára gamli Will Cornick, en hann hafði orðið fyrir áfalli nokkrum árum áður og hafði reiðin vegna þessa brotist út með reiði, reiði aðallega í garð Ann sem var spænskukennarinn hans. ÁSKRIFT: www.pardus.is/mordskurinn www.facebook.com/mordskurinn www.instagram.com/mordskurinn

Feb 1, 202243 min

Ep 99Mannshvarf: Theo Hayez

Theo Hayez var 18 ára strákur á bakpokaferðalagi um Ástralíu. Hann kemur til Byron Bay og ætlar að eyða síðustu fjóru dögunum sínum þar áður en hann heldur aftur heim til Belgíu. Þann 31. maí árið 2019 fer hann á Cheeky Monkeys næturklúbbinn en er að lokum hent út sökum ölvunar. Klukkan 23:07 setur hann inn Hostelið sitt í Google Maps og gengur svo af stað, en byrjar að ganga í kolvitlausa átt. Hann hefur ekki sést síðan og ótal margar spurningar sitja uppi í kjölfar hvarfsins hans. Við mælum með því að skoða Instagram hjá okkur til að sjá kort af leiðinni sem hann fór! www.pardus.is/mordskurinn www.instagram.com/mordskurinn www.facebook.com/mordskurinn

Jan 26, 202253 min

Ep 98Manndráp: Barbara Woods

Barbara Woods og eiginmaður hennar Denis urðu fyrir árás inn á heimili sínu aðfaranótt 24 apríl árið 1987. Barbara var stungin margsinnis og lamin með skiptilykli og Denis bæði stunginn og tilraun gerð til að kæfa hann. Barbara lést því miður af sárum sínum þessa nótt en Denis lifði af með undraverðum hætti Morðingi Barböru var henni nærri en nokkur hefði getað ímyndað sér - en ekki bara það, hann bar fyrir sig ansi furðulega afsökun fyrir gjörðum sínum. www.facebook.com/mordskurinn www.instagram.com/mordskurinn ÁSKRIFT - www.pardus.is/mordskurinn

Jan 19, 202244 min

Ep 97Mannshvarf: Lars Mittank

Lars fór með nokkrum gömul vinum sínum í ferðalag til Búlgaríu sumarið 2014 en snéri aldrei til baka. Hann hafði lent í átökum við aðra menn, sem skemmdu hljóðhimnuna hans og gat hann því ekki flogið heim með vinum sínum. Hann var að haga sér mjög undarlega og erfitt er að segja til um hvað kom fyrir, en nokkrar kenningar hafa komið í kjölfar hvarfsins. www.pardus.is/mordskurinn www.instagram.com/mordskurinn www.facebook.com/mordskurinn

Jan 11, 202257 min

Ep 96Manndráp: The Coleman Family

Coleman fjölskyldan stóð af foreldrunum Chris og Sheri og sonum þeirra, hinum 11 ára Garett og 9 ára gamla Gavin. Chris hafði vegnað mjög vel í starfi sínu sem lífvörður og getað veitt fjölskyldu sinni mjög gott líf - en að starfa sem lífvörður hafði líka sínar neikvæðu hliðar, þar á meðal voru hótunarbréf í garð yfirmanns síns. Þegar hótunarbréfin fóru að snúast að honum sjálfum og hans fjölskyldu hætti honum að lítast á blikuna. Og réttilega svo - því þann 5 maí fannst fjölskylda hans látin heima hjá þeim. Það átti þó eftir að koma í ljós að sá sem stóð á bakvið hótanirnar var óþægilega nálægt Sheri, Garett og Gavin.

Jan 5, 20221h 6m

Ep 95Morðið í herbergi 1046

Árið 1935 fannst gestur Hotel President í Kansas City illa fyrirkallaður, hann hafði verið pyntaður og barinn. Nokkrum dögum síðar lést hann. Lögreglan átti erfitt með að bera kennsl á manninn til að tilkynna fjölskyldu um andlátið. Lögreglan fékk m.a. símtal frá fólki sem sagðist kannast við manninn, og aðrir hringdu og vildu borga fyrir útförina sem augljóslega höfðu eitthvað á samviskunni. www.facebook.com/mordskurinn www.instagram.com/mordskurinn www.pardus.is/mordskurinn

Dec 21, 202159 min

Ep 94Manndráp: Janelle Patton

Janelle Patton hafði átt frekar stormasöm fullorðinsár og hafði litla ró fundið í líf sínu Hún ákvað því að flytja búferlum sínum til Norfolk eyju þar sem lífið varð loksins eins og hún hafði þráð, rólegt og yfirvegað Nánast engin glæpasaga var til á Norfolk eyju þar til á páskasunnudag árið 2002 þegar Janelle fannst hrottalega myrt Um og yfir 60 áverka var að finna á henni og kom þetta öllum í opna skjöldu enda Norfolk ekki þekkt fyrir neitt annað en ró og næði Það átti eftir að taka langan tíma að finna geranda Janelle og enn í dag er helling af spurningum ósvarað www.pardus.is/mordskurinn www.instagram.com/mordskurinn www.facebook.com/mordskurinn

Dec 15, 20211h 13m