PLAY PODCASTS
Morðskúrinn

Morðskúrinn

338 episodes — Page 2 of 7

Ep 293Melissa Lucio

Þátturinn er í boði: Define the Line Sport en með kóðanum morðskúrinn fáið þið 15% afslátt af öllum vörum Giggó - frítt app til að redda smærri verkum og til að næla sér í aukatekjur Steinunn hjá Kosmetik en með að nota kóðann morðskúrinn fáið þið 10% afslátt af lash lift og brow lamination út október Yfir 200 þættir aðgengilegir inni á www.pardus.is/mordskurinn fyrir aðeins 1.390kr.- á mánuði -> komdu og vertu með!

Oct 15, 202544 min

Ep 292Gloria McDonald

Hún Gloria McDonald hafði nýverið flutt á nýjan stað með eiginmanni sínum. Þau voru orðin fullorðin og planið að njóta lífsins saman en gönguferð í þjóðgarði átti eftir að breyta öllu. Þátturinn er í boði Giggó Define The Line Sport Steinunnar á Kosmetik Snyrtistofu

Oct 9, 202536 min

Ep 291Jerry Heimann

Jerry Heimann bjó með aldraðri móður sinni en þegar hann greindist sjálfur með krabbamein ákvað hann að fá umönnunaraðila til að hugsa um móður sína. Honum grunaði aldrei að góðmennska hans myndi að lokum verða honum að bana. Þátturinn er í boði Preppbarinn, Lamb Street Food og Giggó!

Oct 1, 202544 min

Ep 290Adrienne Shelley

Hin fertuga Adrienne Shelley var búin að vinna sig upp innan síns starfsgeira, var vel liðin og virt í sínu starfi og voru spennandi tímar framundan. Árið 2006 voru atvinnutækifærin orðin nokkuð mörg, stór og mikilvæg og Adrienne eyddi stórum hluta dags síns í íbúð í New York þar sem hún vann fram á kvöld. Kvöldin voru hennar gæðastundir með eiginmanni sínum og dóttur og vöknuðu áhyggjur eiginmanns hennar þegar hún skilaði sér ekki eitt kvöldið. Þátturinn er í boði Define the Line Sport en kóðinn "morðskúrinn" veitir 15% afslátt af öllum vörum inn á www.definetheline.is Steinunn hjá Kosmetik veitir 10% afslátt af Lash Lift & Brow Lamination út október https://tinyurl.com/4pm3ubj4 Komdu í áskrift! www.pardus.is/mordskurinn

Sep 24, 202541 min

Ep 289Bakersfield 3

Vorið 2018 var maður myrtur í Bakersfield, og ekki leið á löngu þar til kona og annar maður hurfu sporlaust. Mæður þessara þriggja aðila komu sér saman enda töldu þær málin tengjast en þær vildu komast til botns í því hvað hefði gerst. 👉🏼 Kóðinn morðskúrinn veitir 15% afslátt af öllum vörum inni á www.definethelinesport.com 👉🏼 Kóðinn morðskúrinn veitir 10% afslátt af lash lift og brow lamination hjá Steinunni á Kosmetiks þegar bókað er í gegnum Noona og kóðinn settur í athugasemd 👉🏼 Svo mælum við með að kíkja út að borða á Preppbarnum og Lamb Street Food, ekkert eðlilega góður matur!

Sep 17, 202547 min

Ep 288Shauna Maynard

Hin 17 ára gamla Shauna hafði alla tíð verið ofboðslega sjálfstæð og yfirleitt farið sínar eigin leiðir í lífinu. Hún átti erfitt með að láta sér segjast og úr varð einn daginn að hún gekk útaf heimili sínu og systur sinnar. Fjölskyldan hennar leitaði hennar í nokkra mánuði og var það mikið áfall þegar símtal loksins barst um hvar hún var. Fréttirnar voru þó ekki þær sem fjölskyldan hefði óskað sér, en símtalið kom frá líkhúsi í Las Vegas. Þátturinn er í boði Lamb Street Food & Preppbarinn Define the Line Sport Kóðinn morðskúrinn veitir 15% afslátt inn á www.definetheline.is Steinunn hjá Kosmetik snyrtistofu býður hlustendum upp á 10% afslátt af Lash lift og Brow Lamination þegar bókað er í gegnum Noona! https://url-shortener.me/4MWR

Sep 10, 202531 min

Ep 287Erin Patterson

Einn sunnudag í júlí 2023 bauð Erin Patterson fyrrum tengdaforeldrum sínum sem og fleiri ættingjum í hádegisverð í Ástralíu. Eftir máltíðina veiktust allir gestirnir, og að lokum komu þrjú þeirra til með að láta lífið. Var þetta heiftarleg matareitrun eða hafði einhver eitrað fyrir fjölskyldunni. Þátturinn er í boði Define The Line en með kóðanum morðskúrinn fáið þið 15% afslátt af öllum vörum. Þá er 10% afsláttur af Lash Lift og Brow Lamination hjá Steinunni á Kosmetik snyrtistofunni með kóðanum morðskúrinn í athugasemd þegar bókað er í gegnum Noona appið. Nokkrir miðar eru eftir á Live Show sem fer fram 9. október nk. - tryggið ykkur miða sem fyrst!

Sep 3, 20251h 1m

Ep 286Christopher Abeyta

Þegar Christopher Abeyta fæddist inn í stóra fjölskyldu tóku þau fangnandi á móti honum, en hann hafði verið svolítið óvænt viðbót við stóran systkinahóp sem voru öll töluvert eldri. Hann var dekraður fram í fingurgóma því systkini hans og foreldrar dýrkuðu hann. Það var því ofboðslegt áfall þegar hinn 8 mánaða gamli Christopher hvarf af heimili sínu um miðja nótt. Fjölskyldan hefur leitað hans linnulaust alla daga síðan. Þátturinn er í boði Define the Line Sport Kóðinn "morðskúrinn" veitir 15% afslátt af öllum vörum inn á www.definetheline.is Komdu í áskrift! www.pardus.is/mordskurinn

Aug 27, 202543 min

Ep 285Dr. Michael Swango

Michael Swango hafði farið í læknanám til þess að aðstoða fólk við að ná bata, eða svo hélt fólk. Dularfull andlát byrjuðu að gerast á meðan starfi Michael stóð og engar voru afleiðingarnar, hann fann sér einfaldlega nýjan vinnustað þegar fólk fór að vekja grunsemdir.

Aug 20, 202541 min

Ep 284Steve "Air" McNair

Steve McNair var vel settur og vel þekktur leikmaður í amerísku fótboltadeildinni. Hann hafði ofboðslega gott orð á sér fyrir löngu köstin sem hann kastaði, fyrir snerpuna og dugnaðinn. Þá var hann elskandi faðir og eiginmaður og átti framtíðina fyrir sér nú þegar hann hafði nýverið sett skóna á hilluna, viðskiptatækifærin hreinlega biðu hans. En svo fór allt úrskeiðis. Þátturinn er í boði Define the Line Sport Kóðinn "morðskúrinn" veitir 15% afslátt af öllum vörum inn á www.definetheline.is Komdu í áskrift! www.pardus.is/mordskurinn

Aug 13, 202538 min

Ep 283Judith Johnson

Árið 1998 mætti 6 ára Brooke til nágranna ömmu sinnar þar sem hún hafði verið að gista og sagði henni frá því að amma sín væri dáin. Einhver hafði brotist inn á heimilið og myrt ömmu hennar, og meitt Brooke sjálfa. Að sögn tókst henni að sjá árásarmanninn, og var sá aðili nær fjölskyldunni en nokkurn hefði grunað en samt voru mörg ár í að réttlætinu yrði náð! Miðasala á live showið hefst 8. ágúst á slaginu 12:00! Inni á www.pardus.is/mordskurinn eru að finna yfir 200 þættir fyrir aðeins 1.390kr.- á mánuði - komdu og vertu með!

Aug 6, 202557 min

Ep 282Tomomi Hanamure

Hin ævintýragjarna Tomomi Hanamure ákvað að skella sér til Bandaríkjanna í tilefni afmælisdagsins síns árið 2006. Hún vildi helst fara ótroðnar slóðir og ákvað því í þetta skiptið að eyða tíma sínum á Havasupai verndarsvæðinu í Arizona. Þaðan kom hún ekki til með að skila sér. Þátturinn er í boði Define the Line Sport Kóðinn "morðskúrinn" veitir 15% afslátt af öllum vörum inn á www.definetheline.is Komdu í áskrift! www.pardus.is/mordskurinn www.instagram.com/mordskurinn www.facebook.com/mordskurinn

Jul 30, 202543 min

Ep 281Mary Yoder

Þátturinn er í boði Define The Line en kóðinn morðskúrinn veitir ykkur 15% afslátt af öllum vörum inni á www.definethelinesport.is

Jul 23, 202545 min

Ep 280Clare Wood

Mál Clare Wood er saga sem hefur áður verið sögð, margoft meira að segja. En Clare var í sambandi með manni sem var af hinni verstu sort. Eftir að hún hafði fundið kjark til að fara frá honum fór allt á versta veg. Fjölskylda hennar barðist hinsvegar fyrir lagabreytingum sem í dag geta komið konum eins og Clare til bjargar. Þátturinn er í boði Define the Line Sport Kóðinn "morðskúrinn" veitir 15% afslátt inn á www.definetheline.is

Jul 16, 202545 min

Ep 279Khadidja O

Khadidja O bjó í Þýskalandi, en hennar draumur var að verða áhrifavaldur. Þegar henni bauðst svo einn daginn samningur við snyrtifyrirtæki ákvað hún að grípa tækifærið til að koma sjálfri sér á framfæri, algjörlega ómeðvituð um hvað lægi að baki tilboðinu sem hún fékk. www.pardus.is/mordskurinn hefur að geyma yfir 190 áskriftarþætti fyrir aðeins 1.390kr.- á mánuði! Kóðinn morðskúrinn veitir ykkur 15% afslátt af öllum vörum hjá Define The Line Sport!

Jul 8, 202539 min

Ep 278Jade Ward

Hin 27 ára gamla og fjögurra barna móðir Jade Ward hafði loksins fundið kjarkinn til að fara frá eiginmanni sínum, manni sem hún hafði eytt síðustu 10 árum með. Ákvörðunin hafði verið henni erfið en þó sú allra besta því eftir að hún óskaði eftir skilnað þá blómstraði hún. Hún loksins gat notið lífsins. Bara ef hún hefði fengið að njóta lengur en raun bar vitni. Þátturinn er í boði Define the Line Sport Kóðinn "morðskúrinn" veitir 15% afslátt af öllum vörum inn á www.definethelinesport.com Komdu í áskrift! www.pardus.is/mordskurinn

Jul 2, 202553 min

Ep 277Johnny Cashman

Fjölskylda Johnny hafði ekki heyrt í honum í nokkra daga og voru orðin áhyggjufull, svo lögregla var send heim til hans til að framkalla velferðarskoðun. Hann fannst látinn heima hjá sér, og þar sem fjölskyldan bjó langt í burtu þá fengu þau símtal þess efnis að hann hefði látist af völdum náttúrulegra orsaka. Stuttu seinna fer kærasta hans að sækja nokkra muni á heimilið þegar hún kemur auga á hræðilegan vettvang, og fjölskyldan fer að efa það að andlát hans hafi ekki borið að með saknæmum hætti. Við mælum með að skoða myndir á samfélagsmiðlum frá málinu samhliða hlustun til að átta sig á alvarleika málsins. www.pardus.is/mordskurinn

Jun 25, 202541 min

Ep 276Tyarra Williams

Hin 19 ára Tyarra lét Aaron kærasta sinn vita að hún ætlaði aðeins að skreppa út - hún sagðist ætla vera í burtu í um klukkutíma. Hún kom þó ekki til með að skila sér heim. Komdu í áskrift! www.pardus.is/mordskurinn

Jun 18, 202539 min

Ep 275Leslie Mazzara og Adriane Insogna

Þrjár góðar vinkonur bjuggu saman í Napa Valley, í Kaliforníu. Á hrekkjavöku árið 2004 voru þær ekki með neitt sérstakt planað, og voru komnar í háttinn nokkuð snemma. Stuttu eftir miðnætti vaknaði ein þeirra við einhver hljóð koma úr bílskúrnum, sem hún taldi vera köttinn og spáði lítið í það. Það sem hún vissi ekki var að á aðeins fjórum mínútum áttu vinkonur hennar eftir að verða fyrir hræðilegri árás. Yfir 190 þættir aðgengilegir á pardus fyrir aðeins 1.390kr.- á mánuði! www.pardus.is/mordskurinn

Jun 11, 202539 min

Ep 274Kirstin Blaise Lobato

Kirstin Blaise Lobato var 18 ára gömul þegar hún var handtekin í heimabæ sínum fyrir morðið á Duran Bailey. Þetta kom að öllum fannst eins og þruma úr heiðskíru lofti og þegar fleiri upplýsingar komu fram þá benti allt til þess að Kirstin væri bara ekkert eins sek og lögreglan vildi halda fram. Framundan var þó margra ára ferli. Þátturinn er í boði Define The Line Sport kóðinn "morðskúrinn" veitir 15% afslátt á www.definetheline.is Komdu í áskrift fyrir meira efni! www.pardus.is/mordskurinn

Jun 4, 20251h 5m

Ep 273Rafay fjölskyldan

Atif og vinur hans Sebastian voru í heimsókn hjá fjölskyldu Atif, en eitt kvöldið fóru þeir meðal annars út að borða, í kvikmyndahús og ætluðu að kíkja á klúbbinn en hann var lokaður svo þeir fóru heim. Heima tók á móti þeim hryllingur, þar sem einhver hafði komið inn á heimilið og myrt meðlimi Rafay fjölskyldunnar. www.pardus.is/mordskurinn

May 28, 20251h 2m

Ep 272Carroll "Eddie" Cole

Eddie Cole var ungur farin að sýna af sér vafasama hegðun - eitthvað sem í seinni tíð útskýrist af gjörðum móður hans í hans garð. Hann var ungur þegar hann hóf afbrotarferil sinn og í mörg mörg ár komst hann upp með gjörðir sínar Þátturinn er í boði Define The Line Sport Kóðinn "morðskúrinn" veitir 15% afslátt inná www.definetheline.is Komdu í áskrift! www.pardus.is/mordskurinn

May 22, 202540 min

Ep 271Sonya Ivanoff

Sonya hafði farið út með vinkonu sinni eitt kvöld, en skilaði sér aldrei heim. Hún var tilkynnt týnd, og ekki leið á löngu þar til vitni kom auga á lík hennar. Rannsókn var hafin og nokkrir einstaklingar komu til greina, en það kom öllum í opna skjöldu þegar kona steig fram sem vitni með þær upplýsingar sem hún sá þetta örlagaríka kvöld. Þátturinn er í boði Define The Line en með kóðanum morðskúrinn fáið þið 15% afslátt af öllum vörum og það var glæný lína að droppa!

May 14, 202546 min

Ep 270Paul Fronczak

Árið 1964 var hinum tæplega tveggja sólarhringa gamla Paul Fronczak rænt af fæðingardeild spítala í Chicago. Við tók tveggja ára tími þar sem enginn vissi hvað hefði orðið af litla drengnum en kom þó loksins að því að Paul litli fannst. Eða svo hélt fólk allavega, í marga áratugi.

May 7, 202553 min

Ep 269Kamarie Holland

Hin 5 ára Kamarie Holland bjó alfarið á pabba sínum í Georgíu, en móðir hennar hafði misst forræði yfir henni. Hún var samt að reyna að taka sig á, og einn daginn ákvað pabbi Kamarie að gefa mömmu hennar séns til að eyða tíma með dóttur sinni, séns sem varð til þess að hann fékk aldrei að sjá hana aftur. www.pardus.is/mordskurinn www.definetheline.is

Apr 30, 202529 min

Ep 268Lizette Cuesta

Hin 19 ára Lizette hafði nýlega flutt á nýjan stað en þó ekki átt í neinum vandræðum að koma sér inn í samfélagið. Hún kom til með að kynnast strák sem varð að aðeins meira en bara vini, strák sem að flestir töldu að myndi reynast henni vel. Annað átti eftir að koma á daginn Þátturinn er í boði Define the Line Sport Kóðinn "morðskúrinn" veitir 15% afslátt af öllum vörum inn á www.definetheline.is Komdu í áskrift! www.pardus.is/mordskurinn

Apr 23, 202536 min

Ep 267Jeffrey Willis

Þátturinn er í boði Define The Line, en með kóðanum morðskúrinn fáið þið 15% afslátt af öllum vörum! Á pardus finnið þið áskriftarleiðina okkar sem inniheldur yfir 180 þætti fyrir aðeins 1.390kr.- á mánuði!

Apr 16, 202559 min

Ep 266Bonnie Haim

Hin unga móðir, Bonnie Haim hafði verið föst í klóm Michael, eiginmanns síns og barnsföður allt þeirra samband. Sambandið litaðist af mikilli stjórnun að hálfu Michaels sem og ofbeldi og var hún árið 1993 loksins búin að finna kjarkinn til að fara frá honum. Það kom þó ekki til með að takast. Þátturinn er í boði Define The Line Sport Kóðinn "morðskúrinn" veitir 15% afslátt af vörum inn á www.definethelinesport.com Komdu í áskrift! www.pardus.is/mordskurinn

Apr 9, 202545 min

Ep 265Kamiyah Mobley

Þann 10. júlí árið 1998 eignaðist hin 16 ára Shanara einkadóttur sína. Hún var stressuð en einnig spennt fyrir komandi móðurhlutverki, hlutverki sem hana hafði dreymt um síðustu mánuði en því var fljótt hrifsað af henni því þann sama dag var 8 klukkutíma gömlu dóttur hennar rænt af spítalanum. Þátturinn er í boði Define The Line Sport en með kóðanum morðskúrinn fáið þið 15% afslátt af öllum vörum!

Mar 31, 202551 min

Ep 264Robert Gleason

Robert Gleason var farsæll húðflúrari á sínum yngri árum en það var ekki starfsferill sem hann átti eftir að fylgja út lífið. Á einhverjum tímapunkti tók Robert ákvarðanir sem áttu eftir að umturna lífi hans töluvert. Og að lokum koma honum innan veggja fangelsis. Það átti þó ekki eftir að halda honum frá afbrotum og kom hann til með að fremja hin alvarlegustu brot innan veggja fangelsis. Þátturinn er í boði Define the Line Sport Kóðinn "morðskúrinn" veitir 15% afslátt inn á www.definethelinesport.com Komdu í áskrift! www.pardus.is/mordskurinn

Mar 26, 202540 min

Ep 263Matthew Hoffman

Matthew var einstakur karakter sem hafði frá ungum aldri haft mikinn áhuga á náttúrunni. Hann eyddi ófáum stundum utandyra þar sem hann fylgdist með nágrönnum sínum og kom að lokum til með að koma líkum fórnarlamba sinna fyrir í holóttu tré. Ekki nóg með það, þá var heimili hans fyllt laufblöðum, af ástæðu sem við komum líklegast aldrei til með að vita. Þátturinn er í boði Define The Line Sport en kóðinn morðskúrinn veitir ykkur 15% afslátt af öllum vörum. Við erum með áskriftarleið í boði inni á pardus, en þar er hægt að hlusta á yfir 180 þætti fyrir aðeins 1.390kr. á mánuði!

Mar 19, 202536 min

Ep 262A.J Freund

Þegar AJ fæddist var honum komið í öruggar hendur fósturmóður sinnar sem sinnti hlutverki sínu með sóma allt þar til hún neyddist til að láta hann í hendur blóðforeldra sinna, þar sem hún hafði vonast til að hann yrði öruggur. Svo var þó ekki raunin. Saga AJ Freund er skelfileg frá upphafi til enda - hún hefði hinsvegar ekki þurft að vera svona skelfileg hefði hann bara fengið að njóta vafans og yfirvöld hefðu sinnt sínu starfi betur. Þátturinn er í boði Define the Line Sport Kóðinn "morðskúrinn" veitir 15% afslátt af öllum vörum inn á www.definethelinesport.com Komdu í áskrift! www.pardus.is/mordskurinn

Mar 12, 20251h 10m

Ep 261Gary Cunningham og Arthur Labinjo-Hughes

Gary kynntist ástinni sinni Oliviu, en hún var einstæð móðir og tók hann vel á móti litla Arthur inn í líf sitt. Samband þeirra var stormasamt, og einkenndist af drykkju og miklu ofbeldi af hálfu Oliviu. Fjölskylda hans vonaðist til þess að hann myndi losa sig við hana fyrir fullt og allt, en það gerðist ekki og endaði líf hans á hörmulegan hátt. Blóðfaðir Arthur fékk fullt forræði yfir syni sínum sem hann hafði ekki kært sig um að vera í kringum öll þessi ár, og með tilkomu nýrrar kærustu varð líf Arthur hreint út sagt helvíti. Með kóðanum morðskúrinn fáið þið 15% afslátt af öllum vörum inni á www.definethelinesport.com

Mar 5, 20251h 11m

Ep 260Serena McKay

Serena McKay fór í partý eitt laugardagskvöld árið 2017, eitthvað sem hún hafði gert nóg af enda lítið annað að gera um helgar í bænum sem hún bjó í. Serena átti aldrei eftir að skila sér heim eftir partýið. Serena fannst látin rétt við húsið sem hún hafði síðast sést í. Þátturinn er í boði Define The Line Sport, með kóðanum morðskúrinn fáið þið 15% afslátt af öllum vörum inn á www.definethelinesport.com áskrifarleið www.pardus.is/mordskurinn

Feb 26, 202549 min

Ep 259Molly Miller og Colt Haynes

Molly og Colt voru að rúnta með kunningja sínum, Conn, þegar hann fór að æsa í lögreglu sem endaði með eftirför. Conn keyrði út úr Wilson, OK, í áttina að Overbrook, OK, en einhversstaðar á leiðinni stoppaði bíllinn og Conn fór heim. Vinir Molly og Colt fengu símtöl þar sem þau báðu um að láta sækja sig, en enginn gat fundið út hvar þau voru niðurkomin. Þessi símtöl og skilaboð til vina áttu eftir að ganga alla nóttina og þrátt fyrir ótal leitir þá gat enginn fundið út hvar þau voru, og til dagsins í dag veit enginn hvað raunverulega kom fyrir þau. Kóðinn morðskúrinn veitir 15% afslátt af öllum vörum frá Define The Line Sport! Inni á www.pardus.is/mordskurinn getið þið skráð ykkur í áskrift fyrir 1390kr á mánuði og fengið fjóra nýja þætti mánaðarlega ásamt aðgangi að yfir 170 þáttum!

Feb 19, 202556 min

Ep 258Jill Halliburton Su

Jill var ein hamingjusöm kona, börnin orðin fullorðin, eyddi mestum tíma sínum í að sinna sjálfboðastarfi og ferðast um heimin með sínum heittelskaða eiginmanni og naut lífsins. Það var einmitt eftir eitt fríið með eiginmanninum sem að hún var ein heima í algjörri slökun þegar eiginmaður hennar tók eftir undarlegum hreyfingum á öryggismyndarvélum heimilisins. Áhyggjur hans urðu til þess að sonur þeirra hjóna fór heim þar sem hann kom að móður sinni látinni. Þátturinn er í boði Define The Line Sport Kóðinn "morðskúrinn" veitir 15% afslátt af öllum vörum inn á www.definethelinesport.com áskriftarleið www.pardus.is/mordskurinn

Feb 12, 202538 min

Ep 257Timothy Schuster

Larissa kynntist Tim í háskóla, en hún var að læra lífefnafræði og hann að læra hjúkrun. Þau smullu strax saman og komu til með að eignast tvö börn og mynda fullkomna fjölskyldu. Larissa opnaði síðar meir sína eigin rannsóknarstofu á meðan Tim sá að mestu um börnin, og eftir það fór allt niður á við. Þau ákváðu að skilja, og Tim vildi vissulega fá sinn part úr skilnaðinum þar sem hann hafði hugsað um börnin og því ekki getað unnið jafn mikið, en Larissa vildi bara eiga sitt, allt sem hún hafði unnið að. Þessi ágreiningur átti eftir að enda með harmleik. www.definethelinesport.com -> með kóðanum morðskúrinn fáið þið 15% afslátt af öllum vörum! www.pardus.is/mordskurinn -> komdu í áskrift! yfir 170 þættir aðgengilegir strax við skráningu!

Feb 5, 202537 min

Ep 256Daniel Brophy

Daniel Brophy var ofboðslega vel liðinn matreiðslumeistari, hafði kennt við matreiðsluskóla til margra ára og vel virtur innan sinnar starfsgreinar. Hann hafði búið sér til rólegt líf, var í hjónabandi, sinnti garðyrkju og sinnti hænunum sínum sem og hundi. Það var því mikið áfall fyrir allt hans fólk, fjölskyldu vini og nemendur þegar hann var myrtur inn í kennslustofunni sinni einn laugardagsmorgun. Þátturinn er í boði Define the Line Sport Kóðinn Morðskúrinn veitir 15% afslátt af öllum vörum inn á www.definethelinesport.com áskriftarleið www.pardus.is/mordskurinn

Jan 29, 202547 min

Ep 255Ella Bennett

Charity Bennett, móðir Paris og Ellu, var í vinnunni á meðan börnin voru í góðum höndum hjá barnapíunni, að hún hélt. Það sem hún vissi ekki var að Paris hefði sannfært barnapíuna um að fara fyrr heim, enda Ella sofnuð, og það næsta sem gerðist var að Charity fékk heimsókn lögreglu í vinnuna þar sem harmleikur hafði átt sér stað á heimilinu, harmleikur sem hana grunaði aldrei að gæti verið raunveruleiki. Þátturinn er í boði Define The Line Sport, kóðinn morðskúrinn veitir ykkur 15% afslátt af öllum vörum inni á www.definethelinesport.com Á www.pardus.is/mordskurinn er að finna yfir 170 þætti sem eru aðgengilegir fyrir aðeins 1.390kr. á mánuði!

Jan 22, 202544 min

Ep 254Piang Ngaih Don

Hin unga móðir, Piang frá Myanmar ákvað að taka málin í sínar eigin hendur þegar hún átti lítið á milli handanna og alls ekki nóg til að sjá fyrir ungum syni sínum. Hún kom sér með aðstoð starfsmannaleigu til Singapore þar sem hún kom til með að fá starf sem heimilisstarfsmaður fjölskyldu. Hún var þó grunlaus um hvernig næstu mánuðir í lífi hennar yrðu og jafnfram þeir síðustu. Kóðinn MORÐSKÚRINN veitir 15% afslátt inn á www.definethelinesport.com áskriftarleið www.pardus.is/mordskurinn

Jan 15, 202545 min

Ep 253Claremont raðmorðinginn

Árið 1996 hvarf hin 18 ára Sarah Spiers úr miðbæ Claremont en hún hafði verið á djamminu og ætlað að taka leigubíl heim. Ekkert bólaði á rannsókninni og um sex mánuðum síðar hvarf önnur stelpa frá sama svæði, og voru bæjarbúar að upplifa sama áfallið aftur. Rannsókn var á fullu þar sem þeir báðar áttu það sameiginlegt að hafa verið á djamminu og ætlað að taka leigubíl heim, og lögreglan fór að velta því fyrir sér hvernig einstaklingurinn væri að nálgast fórnarlömbin sín. Ári seinna, hvarf svo þriðja stelpan sem setti samfélagið á hliðina. Komdu í áskrift: www.pardus.is/mordskurinn Kóðinn morðskúrinn veitir 15% afslátt af öllum vörum inni á www.definethelinesport.com

Jan 8, 202557 min

Ep 252Mark Essex

Mark Essex var frá Emporia í Kansas, hafði átt dásamlega góða æsku, lítið fundið fyrir kynþáttahatri og leit á lífið jákvæðum augum. Þegar hann skráði sig í herinn þá breyttist sýn hans á lífinu, enda varð hann fyrir mikilli mismunun, miklum rasisma og var ekki tekið eins og þeim sem voru hvítir. Þetta bjó til mikla reiði innra með Mark sem og sorg og tók hann afdrifaríkar ákvarðanir eftir röð atvika. Þátturinn er í boði Define the Line Sport Kóðinn "morðskúrinn" veitir 15% afslátt af vörum inn á www.definethelinesport.com Komdu í áskrift! www.pardus.is/mordskurinn

Jan 1, 20251h 8m

Ep 251Ortega fjölskyldan

Á aðfangadag árið 2008 var Ortega stórfjölskyldan að fagna saman jólunum þegar jólasveinn mætti börnunum til mikillar ánægju. Það átti þó ekki eftir að líða mínúta þar til jólasveinninn hóf að skjóta hvern fjölskyldumeðlim á fætur öðrum, og voru líf ansi marga breytt þessi jólin. Þátturinn er í boði Define The Line, en með kóðanum morðskúrinn fáið þið 15% afslátt af öllum vörum inni á www.definethelinesport.com Áskriftin okkar inniheldur yfir 160 þætti - komdu og vertu með á www.pardus.is/mordskurinn

Dec 24, 202432 min

Ep 250Betsy Aardsma

Betsy Aardsma var ný byrjuð nám sitt í Penn State háskólanum, skynsöm og klár stelpa með miklar væntingar til sjálfs síns. Það var þess vegna sem hún ákvað að eyða þakkagjörðarhátíðinni inn á bókasafni í stað þess að fara heim til fjölskyldu sinnar yfir skólafríið. Betsy kom til með að vera myrt inn á bókasafni skólans, þar sem margir sátu á meðan ráðist var á hana en enginn var var við neitt. Þátturinn er í boði Define The Line Sport kóðinn "morðskúrinn" veitir 15% afslátt af vörum inn á www.definethelinesport.com Komdu í áskrift! www.pardus.is/mordskurinn

Dec 18, 202437 min

Ep 249Grace Holland og Sarah Sweeney

Grace og Sarah áttu eitt sameiginlegt, þær féllu fyrir sama manninum, og létust báðar við dularfullar kringumstæður inni á heimilinu sínu. www.pardus.is/mordskurinn 15% afsláttur af öllum vörum inni á www.definethelinesport.com með kóðanum morðskúrinn

Dec 11, 202446 min

Ep 248Rob Knox

Rob Knox var 18 ára upprennandi leikari, hafði fengið sitt fyrsta stóra hlutverk og átti framtíðina ansi bjarta fyrir sér. Eitt föstudagskvöld í maí mánuð fór hann ásamt vinum út á lífið og lenti þar í útistöðum við ungan mann. Maðurinn gaf í skyn að frekari vandræði yrðu framundan og viku síðar, stóð hann við loforðið. Þátturinn er í boði Define The Line Sport Kóðinn "morðskúrinn" veitir 15% afslátt af vörum inn á www.definethelinesport.com

Dec 4, 202441 min

Ep 247Adam Strong

Adam Strong hafði nýverið fengið nágranna sem voru kannski aðeins afskiptasamari en þeir fyrri sem hann hafði átt, því í kringum jólin 2017 tóku þau ákvörðun um að heyra í pípara eftir að hafa reynt að ræða við Adam án árangurs, en það hafði verið vesen með lagnirnar í húsinu frá því að þau fluttu inn. Það sem píparinn fann var eitthvað sem enginn hefði getað gert ráð fyrir, og í kjölfarið fengu tvær fjölskyldur svör við því hvað raunverulega varð um ástvini þeirra. Áskrift kostar 1.390 kr.- á mánuði og inniheldur: ‼️ Engar auglýsingar ‼️ 4-5 mál á mánuði ‼️ Auka umræðuþátt um mál líðandi stundar ‼️ Allt eldra efni aðgengilegt Hægt að skrá sig hér: www.pardus.is/mordskurinn Þátturinn er í boði Define The Line Sport, en með kóðanum morðskúrinn fáið þið 15% afslátt af öllum vörum 🛍️

Nov 27, 202442 min

Ep 246Carla Walker

Það sem átti að vera rómantískur rúntur hjá Carla Walker og kærasta hennar eitt febrúar kvöld árið 1974, varð að einhverju allt, allt öðru. Ráðist hafði verið á unga parið og Carla horfið í kjölfarið og eftir fjögurra daga leit fannst hún látin. Við tók tugi ára þar sem engin svör var að fá, það var ekki fyrr en að nútímatækni var til staðar og röð ótrúlegar tilviljana sem að mál hennar loksins leystist. Þátturinn er í boði Define The Line Sport Kóðinn "morðskúrinn" veitir 15% afslátt af vörum inn á www.definethelinesport.com

Nov 20, 20241h 0m

Ep 245Linda Chen

Linda taldi niður dagana í brúðkaupið sitt með Mats, en áður stóri dagurinn kom þá hvarf hún skyndilega. Hún hafði eytt deginum með unnusta sínum og farið svo út að skemmta sér um kvöldið en skilaði sér aldrei heim. Leit að henni skilaði engum árangri fyrr en að unnustinn hennar hvarf einnig, og þegar hann að lokum fannst þá fengu rannsakendur góða hugmynd um hvað hefði komið fyrir. Þátturinn er í boði Define The Line Sport en með kóðanum morðskúrinn fáið þið 15% afslátt!

Nov 13, 202436 min

Ep 244Haines fjölskyldan

Það var mikið áfall eina nótt í maí mánuð árið 2007, þegar Maggie Haines hljóp af heimili sínu til nágranna sinna og óskaði eftir aðstoð lögreglu. Þegar lögreglu loksins bar að kom í ljós að þrír af fjórum meðlimum Haines fjölskyldunar höfðu verið myrt, stungin til bana inn á heimili þeirra. Rannsókn málsins var vandasöm en ekki voru til staðar mikil sönnunargögn sem beindu lögreglu í átt að gerandanum - ekki fyrr en þeim barst loksins símtal. Þátturinn er í boði Define The Line Sport Kóðinn "morðskúrinn" veitir 15% afslátt af vörum inn á www.definethelinesport.com

Nov 6, 202451 min