PLAY PODCASTS
Morðskúrinn

Morðskúrinn

308 episodes — Page 4 of 7

Ep 176Mannshvarf: Jodi Huisentruit

Jodi Huisentruit var 27 ára farsæl og ofboðslega dugleg kona, sem vann hart að því að komast þangað sem hana langaði í lífinu. Hún var samviskusöm og mætti ávalt á réttum tíma til vinnu þar til einn daginn að hún mætti alls ekki. Í ljós kom ljótur raunveruleiki, og flókin atburðarrás tók við. Enn í dag er ekki vitað hvað varð að Jodi, en nokkrar kenningar eru til staðar og þar á meðal hvort að mál Jodi og mál Michelle Martinko gætu tengst. Þátturinn er í boði Scrub Daddy Ísland Kóðinn "morðskúrinn" veitir 20% afslátt af öllum vörum inná www.scrubdaddyisland.is ÁSKRIFT www.pardus.is/mordskurinn www.instagram.com/mordskurinn www.facebook.com/mordskurinn

Jul 19, 202339 min

Ep 175Manndráp: House of Blood morðin

Edith var einstæð móðir að ala upp son sinn John en sökum fjárhagsvandræða þá bjó hún í athvörfum hér og þar. Það var þar sem hún kynntist ástinni á ný, manni að nafni David. Þau ákváðu að taka sig saman í lífinu og reyndu eftir fremsta megni að stofna gott og stöðugt líf fyrir sig, en það gekk ekki alveg eins og ætlað var þar sem Edith fékk 9 mánaða fangelsisdóm. Eftir afplánun ákvað hún að fagna því að vera laus með David og tveimur vinum þeirra en kvöldið fór aldeilis ekki eins og ætlað var. www.pardus.is/mordskurinn www.facebook.com/mordskurinn www.instagram.com/mordskurinn

Jul 12, 202345 min

Ep 174Mannshvarf: Danny Barter

Danny Barter var fjögurra ára gamall í útilegu með fjölskyldu sinni við Perdido flóann þegar hann hvarf sporlaust. Grunu vaknaði strax um að hann hafi orðið fyrir krókódílaárás en þegar afar umfangsmiklar aðgerðir sönnuðu að svo væri ekki, þá þurfti aðeins að kafa dýpra. Í ljós kom að röð fremur grunsamlegra atvika höfðu átt sér stað bara skömmu áður en að Danny hvarf - en gat það varpað ljósi á málið? Þátturinn er í boði Scrub Daddy Ísland Kóðinn "morðskúrinn" veitir 20% afslátt inn á www.scrubdaddyisland.is ÁSKRIFT www.pardus.is/mordskurinn www.facebook.com/mordskurinn www.instagram.com/mordskurinn

Jul 5, 202337 min

Ep 173Manndráp: Teresita Basa

Teresita var ósköp venjuleg 48 ára kona sem hafði alla sína ævi dreymt um að vinna í tónlistarbransanum. Það hinsvegar gekk ekki eftir og fór hún að vinna á spítala sem henni líkaði vel við. Hún átti enga óvini, öllum líkaði vel við hana og kom það því fólki í opna skjöldu þegar hún fannst látin einn daginn. Lögreglan átti í erfiðleikum með að finna vísbendingar um hvað kom fyrir hana þar til að einn daginn fór vinkona hennar niður á lögreglustöð og sagði þeim frá ótrúlegri sögu, sögu sem flestir voru mjög skeptískir með að trúa þar til sannleikurinn kom svo sannarlega upp á yfirborðið. www.pardus.is/mordskurinn www.instagram.com/mordskurinn www.facebook.com/mordskurinn

Jun 28, 202338 min

Ep 172Manndráp: Karen Styles

Karen Styles var 22 ára gömul þegar hún ákvað í sakleysi sínu að fara út að hlaupa eins og hún var vön. Munurinn þennan daginn var sá að vinkona hennar sem fór alltaf með henni, komst ekki. Karen hvarf þennan dag og átti ekki eftir að finnast fyrr en mánuði síðar, látin og illa farin. Með góðum vinnubrögðum lögreglu fannst morðingi hennar og var dreginn fyrir dóm og þar dæmdur sekur en þar endaði sagan ekki. Þátturinn er í boði Scrub Daddy Ísland Kóðinn "morðskúrinn" veitir 20% afslátt af vörum inn á www.scrubdaddyisland.is ÁSKRIFT www.pardus.is/mordskurinn www.instagram.com/mordskurinn www.facebook.com/mordskurinn

Jun 21, 202332 min

Ep 171Mannshvarf: Diane Augat

Diane Augat hafði lengi strítt við geðsjúkdóma og ekki alltaf verið tilbúin til að taka lyfin sem til þurfti til að halda niðri einkennum hennar. Hún hafði misst flest sem henni þótti vænt um í kjölfar veikindanna og ekki skánaði ástandið þegar hún leiddist út í áfengis og fíkniefnaneyslu Fjölskylda hennar gafst þó aldrei upp á henni og tóku alltaf á móti henni með opnum örmum og hringdu allar aðvörunarbjöllur þegar Diane hafði ekki sést í sólahring árið 1998 Þátturinn er í boði Scrub Daddy Ísland Kóðinn morðskúrinn veitir 20% afslátt af öllum vörum inn á www.scrubdaddyisland.is ÁSKRIFT www.pardus.is/mordskurinn www.instagram.com/mordskurinn www.facebook.com/mordskurinn

Jun 14, 202343 min

Ep 170Óupplýst: Kanika Powell

Kanika var búin að koma sér vel fyrir í lífinu og var spennt fyrir komandi tímum. Það var allt þar til að hún byrjaði að fá dularfullar heimsóknir. Eftir fyrstu heimsóknina þá fylgdi önnur, og Kanika var orðin mjög áhyggjufull enda fannst henni eins og hún væri eitthvað skotmark. Þann örlagaríka dag mætti hún heim til sín eftir stúss og á móti henni tóku þessir dularfullu menn sem ætluðu sér aðeins eitt. Viltu meira efni? Áskrift kostar 990kr.- á mánuði og inniheldur allt eldra efni ásamt 4-5 nýjum þáttum á mánuði: www.pardus.is/mordskurinn Fylgdu okkur á samfélagsmiðlum: www.facebook.com/mordskurinn www.instagram.com/mordskurinn

Jun 14, 202327 min

Ep 169Raðmorðingi: Hadden Clark

Hadden hafði búið hjá bróður sínum í einhvern tíma þar til bróðir hans fékk nóg og bað hann vinsamlegast um að flytja út. Sama dag og flutningurinn átti sér stað hvarf sex ára stúlka úr hverfinu sem þótti í fyrstu vera algjör tilviljun. Það var ekki fyrr en nokkrum árum síðar sem lögregludeildin sem rannsakaði mál stúlkunnar fékk símtal frá annari rannsóknarlögregludeild með möguleg tengsl á mili tveggja mála og í ljós kom fremur óhugnalegur atburður sem hafði átt sér stað. Viltu meira efni? www.pardus.is/mordskurinn Fylgdu okkur á samfélagsmiðlum: www.facebook.com/mordskurinn www.instagram.com/mordskurinn

May 31, 202348 min

Ep 168Manndráp: Adrian Jones

Adrian Jones var sjö ára gamall þegar hann lést. En af þessum sjö árum voru örfá sem mættu teljast góð. Adrian bjó við gríðarlega vanrækslu, ofbledi og niðurlægingu inn á heimili föður síns, heimili sem hann hefði átt að upplifa sig elskaðann og öruggann. Raunveruleikinn var allt, allt annar. Við vörum við lýsingum í þættinum. Þátturinn er í boði Scrub Daddy Ísland Kóðinn "morðskúrinn" veitir ykkur 20% afslátt af öllum vörum inn á www.scrubdaddyisland.is ÁSKRIFT www.pardus.is/mordskurinn www.instagram.com/mordskurinn www.facebook.com/mordskurinn

May 24, 202347 min

Ep 167Manndráp: Kimberly Antonakos

Þegar Kimberly skilaði sér ekki heim eftir djammið og mætti ekki til vinnu þá byrjuðu vinir og vandamenn að hafa miklar áhyggjur af henni. Á meðan leit af henni stóð yfir var fjölskylda hennar gjörsamlega grunlaus um þann hrylling sem var að eiga sér stað, en fengu þau nokkuð góða hugmynd um það eftir að hafa farið til miðils og fengið upplýsingar frá honum. Þátturinn er í boði Scrub Daddy en með kóðanum morðskúrinn fáið þið 20% afslátt af öllum vörum inni á www.scrubdaddyisland.is Viltu meira efni? www.pardus.is/mordskurinn Fylgdu okkur á samfélagsmiðlum: www.instagram.com/mordskurinn www.facebook.com/mordskurinn

May 16, 202348 min

Ep 166Manndráp: Addie Hall

Í franska hverfinu í New Orleans bjuggu Addie Hall og Zack Bowen, en þau voru yfir sig ástfangin, eða svo hélt fólk. Það var svo einn dag sem lögreglan fékk símtal um mann sem hafði framið sjálfsvíg á hóteli og við skoðun á líkindu fundu þeir miða, miða sem sagði þeim að kíkja á heimili mannsins. Á heimilinu fann lögreglan veggjakrot sem ýmsum ábendingum, og að lokum ákváðu þeir að opna ofninn... www.pardus.is/mordskurinn

May 10, 202333 min

Ep 165Mannshvarf: Charlene Downes

Charlene var aðeins 14 ára gömul þegar hún hvarf sporlaust úr heimabæ sínum árið 2003. Erfitt reyndist fyrir fjölskyldu hennar að fá aðstoð við leit þar sem lögreglan taldi að hún hafi stungið af. Það var ekki fyrr en nokkrum árum síðar sem lögreglan kom opinberlega fram með kenningu um hvað þeir töldu hafa komið fyrir Charlene og voru tveir menn handteknir. Það átti samt eftir að reynast þeim erfitt að fá réttlæti fyrir Charlene og fjölskyldu hennar. P.s. ekki borða kebab við hlustun á þessum hætti þakkið mér seinna Viltu meira efni? www.pardus.is/mordskurinn Fylgdu okkur á samfélagsmiðlum: www.facebook.com/mordskurinn www.instagram.com/mordskurinn

May 2, 202344 min

Ep 164Manndráp: Daniel Pelka

Daniel Pelka var lítill strákur sem átti svo sannarlega skilið að vera elskaður, dýrkaður og dáður en þvert á móti upplifði hann allt sem barn ætti aldrei nokkurntíman að upplifa. Saga Daniels er saga drengs sem var brugðist og það heiftarlega. Við vörum við sumum lýsingum þáttarins í dag. Þátturinn er í boði Scrub Daddy Ísland Kóðinn "morðskúrinn" veitir 20% afslátt inn á www.scrubdaddyisland.is ÁSKRIFT www.pardus.is/mordskurinn www.instagram.com/mordskurinn www.facebook.com/mordskurinn

Apr 26, 202339 min

Ep 163Manndráp: Doan fjölskyldan

Þann 30. september árið 2005 hringdi 10 ára Robin í neyðarlínuna og bað um aðstoð þar sem hún hafði heyrt skothljóð og vissi ekki hvað væri í gangi. Þegar lögreglan mætti þá tók á móti þeim hræðilegur vettvangur, sem átti eftir að breyta lífi Robin til frambúðar. Rannsókn hófst í kjölfarið, en af þeim ómeðvituðum var rannsóknardeild lögreglu í um 8 tíma fjarlægðar að rannsaka svipaðan vettvang. Þátturinn er í boði Scrub Daddy en með kóðanum morðskúrinn fáið þið 20% afslátt af öllum vörum inni á www.scrubdaddyisland.is Viltu meira efni? Áskrift kostar 990kr.- á mánuði www.pardus.is/mordskurinn Fylgdu okkur á samfélagsmiðlum til þess að sjá myndir af vettvangi, upptökur, myndbönd og annað sem tengist málinu www.instagram.com/mordskurinn www.facebook.com/mordskurinn

Apr 19, 202334 min

Ep 162Manndráp: Kimberly Diane Hill

Kimberly Diane Hill fannst látin þann 28 mars árið 2014, á það sem átti að vera 51. afmælisdagur hennar. Aðkoman var hrottaleg enda hafði Kimberly hlotið tugi áverka á höfuð og var hamar notaður sem vopn. Það átti eftir að koma flestum í opna skjöldu þegar upp komst hver árásarmaður Kim hafði verið. Þátturinn er í boði Scrub Daddy Ísland kóðinn "morðskúrinn" veitir 20% afslátt af öllum vörum inn á www.scrubdaddyisland.is ÁSKRIFT www.pardus.is/mordskurinn www.facebook.com/mordskurinn

Apr 12, 202327 min

Ep 161Dularfullur dauði: Joseph Smedley

Einn mánudagsmorgun vaknaði Vivian við undarleg SMS skilaboð frá bróður sínum Joseph, þar sem hann sagðist vera að fara úr landi. Enginn heyrði frá honum eftir það og við rannsókn kom í ljós að hann hafði einnig skilið eftir dularfullt bréf heima hjá sér. Nokkrum dögum síðar fannst lík hans, og á mjög undarlegan hátt. Lítil sem engin rannsókn var gerð og fjölskyldan sat uppi með fleiri spurningar en svör hvað varðar andlát Joseph. Með kóðanum mordskurinn fáið þið 20% afslátt af öllum vörum inni á www.scrubdaddyisland.is 🧽 Viltu meira efni? www.pardus.is/mordskurinn www.facebook.com/mordskurinn www.instagram.com/mordskurinn

Apr 5, 202338 min

Ep 160Manndráp: Arpana Jinaga

Arpana Jinaga var einhver harðduglegasta unga kona sem sögur fara af. Hún virtist óhrædd við flest, hafði sett sér háleit markmið í gegnum lífið og tekist að ná þeim langflestum áður en hún var hrottalega myrt inn á heimili sínu eftir hrekkjavökupartý. Morð Arpana átti eftir að vera lengi óleyst, en þegar loksins kom að því að réttarhöld í máli hennar fóru fram þá áttu klúðrin eftir að koma í ljós Þátturinn er í boði Scrub Daddy Ísland Kóðinn "morðskúrinn" veitir 20% afslátt af öllum vörum inn á www.scrubdaddyisland.is ÁSKRIFT www.pardus.com/mordskurinn www.instagram.com/mordskurinn www.facebook.com/mordskurinn

Mar 29, 20231h 2m

Ep 159Manndráp: Marlene Warren

Einn dag árið 1990 var bankað á heimili Warren hjónanna. Marlene fór til dyra og á móti henni tók aðili, klæddur trúðabúningi, með blóm og blöðrur. Marlene var yfir sig ánægð með eiginmann sinn um að koma sér á óvart með slíkum gjöfum, en ánægjunni lauk skyndilega þegar trúðurinn tók upp byssu og skaut Marlene. Trúðurinn gekk svo hægt og rólega í bílinn sinn og keyrði í burtu. Það skildi enginn hvað hafði gerst og tók það lögregluna ansi langan tíma að komast að sannleikanum. Þátturinn er í boði Scrub Daddy á Íslandi og Play Airlines www.pardus.is/mordskurinn www.instagram.com/mordskurinn www.facebook.com/mordskurinn

Mar 22, 202346 min

Ep 158Dularfullur dauði: Lori Lee Malloy

Lori Lee var þrítug þegar hún fannst látin inn á heimili sínu og það undir fremur dularfullum kringumstæðum. Lori hafði ekki verið hún sjálf dagana fyrir andlát sitt en fjölskylda hennar og vinir áttu erfitt að ná á hana og það sem þótti enn óvenjulegra var að Lori hafði fengið pössun fyrir 18 mánaða gömlu dóttur sína í marga daga. Andlátið var að lokum úrskurðað sem náttúrulegt og engar ástæður eða rök til að grafa í málið frekar. Það var ekki fyrr en dóttir Lori var orðin fullorðin sem hún fór að grafa í málið og kom því í þann farveg sem það er komið í í dag. Þátturinn er í boði Fly Play www.flyplay.com Scrubdaddy Ísland - www.scrubdaddyisland.is Kóðinn "morðskúrinn" veitir 20% afslátt af öllum vörum á vefsíðu Scrub Daddy. ÁSKRIFT: www.pardus.is/mordskurinn www.instagram.com/mordskurinn www.facebook.com/mordskurinn

Mar 15, 202359 min

Ep 157Mannshvarf: Sky Metalwala

Árið 2011 vaknaði Julia með börnum sínum tveimur, Sky og Maile. Fljótlega tók hún eftir því að Sky var veikur og ákvað í kjölfarið að bruna með hann upp á læknavakt. Á leiðinni þangað lenti hún í því að verða bensínlaus á þjóðveginum og tók ákvörðun sem hún átti eftir að sjá eftir alla sína ævi, eða hvað? Þátturinn er í boði Scrub Daddy Ísland og Play Komdu í áskrift! Það eru 4-5 þættir í hverjum mánuði fyrir aðeins 990kr.- á mánuði og allt eldra efni aðgengilegt - yfir 70 þættir nú þegar mættir! www.pardus.is/mordskurinn Fylgdu okkur á samfélagsmiðlum: www.instagram.com/mordskurinn www.facebook.com/mordskurinn

Mar 8, 202347 min

Ep 156Mannshvarf: Millbrook tvíburarnir

Dannette og Jeannette voru 15 að verða 16 ára gamlar þegar þær hurfu sporlaust eftir erindagjörðir í gamla hverfinu sínu. Hvarf þeirra var ekki tekið alvarlega, frá degi eitt og átti það eftir að lita rannsóknina og niðurstöðu málsins all verulega. Heimaborg stelpnanna var í lengri tíma þekkt fyrir lítið annað en að mismuna fólki eftir kynþáttum og er saga systrana skólabókadæmi þess. Þátturinn er í boði Fly Play www.flyplay.is Scrub Daddy Ísland 20% afsláttur með kóðanum "morðskúrinn" www.scrubdaddyisland.is ÁSKRIFT www.pardus.is/mordskurinn www.instagram.com/mordskurinn www.facebook.com/mordskurinn

Mar 1, 202347 min

Ep 155Sakamál: Casey White og Vicky White

Casey White var með langan glæpaferil að baki en sem dæmi má nefna var hann grunaður um fleiri en eitt manndráp og reyndi einnig að drepa fyrrverandi kærustuna sína. Fyrir þann verknað fékk hann 75 ár í fangelsi og sá fyrir sér að sitja inni það sem eftir var ævi sinnar. Það var ekki fyrr en hann kynntist ástinni í lífi sínu sem hann byrjaði að sjá sólina á ný og það sem þau tóku sér fyrir hendur var eitthvað sem engum grunaði. Þátturinn er í boði Scrub Daddy en með kóðanum morðskúrinn fáið þið 20% afslátt af öllu inni á www.scrubdaddyisland.is Viltu meira efni? www.pardus.is/mordskurinn Fylgdu okkur á samfélagsmiðlum: www.instagram.com/mordskurinn www.facebook.com/mordskurinn

Feb 21, 202345 min

Ep 154Mannshvarf: Chance Englebert

Chance Englebert var 25 ára gamall þegar hann bara gékk frá fjölskyldynni sinni á máta sem var honum mjög ólíkt Það átti aldrei eftir að sjást né heyrast til Chance eftir það Þar sem Chance gekk í burtu sjálfviljugur hef lögreglan ekki haft mestan áhuga á að aðstoða en fjölskylda hans hefur gert sitt allra besta með von um að Chance annað hvort skili sér heim einn daginn eða einhver niðurstaða komi í málið Þátturinn er í boði Scrub Daddy Ísland Kóðinn "morðskúrinn" veitir 20% afslátt af vörum inn á www.scrubdaddyisland.is ÁSKRIFT www.pardus.is/mordskurinn www.instagram.com/mordskurinn www.facebook.com/mordskurinn

Feb 15, 202355 min

Ep 153Manndráp: Jo, Michelle og Christe Rogers

Eftir erfiða tíma heima fyrir ákváðu mæðgurnar Jo, Michelle og Christe að fara í ferðalag til Flórída. Þegar þangað var komið skemmtu þær sér mjög vel og reyndu sitt allra besta í að skoða og sjá allt sem þær gátu. Þær fengu meira að segja tækifæri til þess að fara í bátsferð til að skoða sólsetrið, en gátu aldrei sagt neinum frá því hvernig það var þar sem nokkrum dögum síðar fundust þær látnar. www.pardus.is/mordskurinn www.facebook.com/mordskurinn www.instagram.com/mordskurinn

Feb 8, 202344 min

Ep 152Manndráp: Jacks systurnar

Banita Jacks var sögð mjög góð móðir og fæstir höfðu eitthvað á hana út að setja á meðan allt leit út fyrir að vera í lagi Annað átti þó eftir að koma í ljós þegar tveir alríkisfulltrúar bönkuðu upp á heima hjá henni en þangað voru þeir mættir til að bera hana og dætur hennar út Banita hafði átt leyndarmál í langa tíma, eitthvað sem engum hefði getað dottið í hug Þátturinn er í boði Scrub Daddy Ísland Kóðinn "morðskúrinn" veitir ykkur 20% afslátt inn á www.scrubdaddyisland.is ÁSKRIFT www.pardus.is/mordskurinn www.facebook.com/mordskurinn www.instagram.com/mordskurinn

Feb 1, 202336 min

Ep 151Manndráp: Joe Cinque

Joe Cinque hafði kynnst ástinni í lífi sínu, Anu, en þau enduðu á því að flytja inn saman eftir fjarsamband. Anu hafði verið að stríða við andleg og læknisfræðileg vandamál og ekki leið á löngu þar til hana langaði til þess að taka sitt eigið líf, en áður en það myndi gerast, langaði henni að halda kveðjupartý. Það partý fór samt sem áður ekki eins og áætlað var. www.pardus.is/mordskurinn www.facebook.com/mordskurinn www.instagram.com/mordskurinn

Jan 24, 202341 min

Ep 150Óupplýst manndráp: Shana Jaros

Shana Jaros var ekki nema 18 ára gömul þegar hún var hrottalega myrt inn á heimili sínu - heimili sínu sem hún hafði nýlega fengið á leigu og var að stíga sín fyrstu skref sem sjálfstæð fullorðin kona. Hún hafði verið svo spennt fyrir því sem var framundan en fékk því miður aldrei að framkvæma eða upplifa allt sem hún ætlaði sér. Lögreglan gat með engu móti framfylgt rannsókninni og niðurstaða í máli Shönu er enn engin Þátturinn er í boði Scrubdaddy Ísland Kóðinn "morðskúrinn" veitir 20% afslátt af öllum vörum inn á www.scrubdaddyisland.is ÁSKRIFT www.pardus.is/mordskurinn www.instagram.com/mordskurinn www.facebook.com/mordskurinn

Jan 18, 202340 min

Ep 149Manndráp: Denise Amber Lee

Denise var 21 árs þegar henni var rænt frá heimilinu sínu. Nokkur símtöl bárust lögreglu en það allra erfiðasta var þegar Denise sjálf hringdi á meðan ræningi hennar keyrði um með hana. Það tók lögreglu nokkra tíma að finna hana, en því miður var það orðið of seint. Viltu meira efni? Hægt er að skrá sig í áskrift inni á www.pardus.is/mordskurinn en hún kostar 990kr.- á mánuði! Allt eldra efni er aðgengilegt. www.instagram.com/mordskurinn www.facebook.com/mordskurinn

Jan 11, 202353 min

Ep 148Manndráp: Danielle van Dam

Damon og Brenda nokkur fóru að sofa róleg vitandi að börnunum sínum í værum svefni inn í herbergunum sínum föstudag nokkrun árið 2002. Morguninn eftir vakna þau tilbúin í að eiga góðan laugardag með fjölskyldunni sinni, grunlaus um að eitt barnanna þeirra hvarf um nóttina Hin sjö ára gamla Danielle hafði horfið af heimilinu og var nú hvergi að finna Þátturinn er í boði Scrub Daddy Ísland Kóðinn "morðskúrinn" veitir 20% afslátt af öllum vörum inn á www.scrubdaddyisland.is ÁSKRIFT www.pardus.is/mordskurinn www.instagram.com/mordskurinn www.facebook.com/mordskurinn

Jan 4, 202355 min

Ep 147Dularfullur dauði: Sean Daugherty

12 ára strákur finnst látinn fyrir utan heimilið sitt og eftir litla sem enga rannsóknarvinnu kemst lögreglan að þeirri niðurstöðu að um sjálfsvíg hafi verið að ræða. Það eru þó nokkur álitamál sem benda á annað og hefur fjölskylda Sean unnið hart síðustu mánuði að því að leiða réttlætið í ljós. www.pardus.is/mordskurinn www.facebook.com/mordskurinn www.instagram.com/mordskurinn

Dec 28, 202248 min

Ep 146Manndráp: Dominique Dunne

Dominique Dunne var ung og upprennandi leikkona og átti allt lífið framundan þegar hún kynntist manni Manni sem hún sjálf átti eftir að falla kylliflöt fyrir en vinir hennar og vandamenn ekki svo mikið Þessi maður átti eftir að hafa gríðarleg áhrif á hennar persónulega líf sem og hennar faglega líf og var tilbúinn að ganga töluvert lengra en margur annar til að sjá til að draumakonan hans yrði einungis hans Þátturinn er í boði Scrub Daddy Ísland Með kóðanum "morðskúrinn" fáið þið 20% afslátt af öllum vörum inn á www.scrubdaddyisland.is ÁSKRIFT www.pardus.is/mordskurinn www.instagram.com/mordskurinn www.facebook.com/mordskurinn

Dec 21, 202248 min

Ep 145Manndráp: Sharon Smith og Debra Helmick

Sharon eða Shari eins og hún var gjarnan kölluð, var á leið heim þegar hún stoppaði stutt til þess að sækja póstinn. Faðir hennar sá bílinn í heimreiðinni en þegar Shari skilaði sér ekki heim fór hann út að athuga með hana, og komst að því að hún var hvergi sjáanleg. Ekki leið á löngu þar til fjölskyldan byrjaði að fá símtöl frá aðila sem hafði áhugaverðar upplýsingar og með dögunum sem liðu byrjaði hann að kvelja fjölskylduna mjög með reglulegum símtölum. Það var svo nokkrum vikum síðar sem önnur ung stelpa hvarf frá sama stað, og aftur byrjuðu símtölin. Þátturinn er í boði Scrub Daddy, en með kóðanum mordskurinn fáið þið 20% afslátt af öllu inni á www.scrubdaddyisland.is www.pardus.is/mordskurinn www.facebook.com/mordskurinn www.instagram.com/mordskurinn

Dec 14, 202234 min

Ep 144Mannshvarf: Angela Green

Angela Green fæddist í Kína en hafði flutt til Bandaríkjanna til að elta ástina sína en þar átti hún eftir að eiga mjög gott líf lengi framan að. En eitthvað gerðist árið 2019, eitthvað sem varð til þess að Angela hefur ekki séðst síðan. Hvað nákvæmlega gerðist, verður erfitt að komast að og hver nákvæmlega kom að því en dóttir Angelu grunar aðeins einn einstakling um að hafa orðið valdur að hvarfi móður sinnar. Þátturinn er í boði ScrubDaddy Ísland Kóðinn "morðskúrinn" veitir ykkur 20% afslátt af öllum vörum inn á www.scrubdaddyisland.is ÁSKRIFT www.pardus.com/mordskurinn www.instagram.com/mordskurinn www.facebook.com/mordskurinn

Dec 7, 20221h 1m

Ep 143Dularfullur dauði: Brandon Embry

Þegar fjölskylda Brandon hafði ekki heyrt í honum í nokkra daga, þá ákvað móðir hans og systir að taka sig saman og keyra heim til hans. Þegar þangað var komið var ákveðið að hringja í lögreglu, sem fór inn og fann Brandon í mjög slæmu ástandi á gólfinu heima hjá sér. Honum var flýtt á bráðamóttöku, og gerðu læknar allt til þess að reyna að bjarga honum, en án árangurs. Íbúðin var í rúst, allt út í blóði og gífurlegir áverkar á Brandon. Dánarorsök voru ekki í neinu samhengi við vettvanginn, og síðar kom í dagsljósið upp kærasta Brandon sem reyndist vera mjög dularfull. Allar myndir sem tengjast málinu eru að finna inná grúbbunni: Morðskúrinn - umræðuhópur! www.pardus.is/mordskurinn www.facebook.com/mordskurinn www.instagram.com/mordskurinn

Nov 30, 202258 min

Ep 142Manndráp: Linsey Wilson Quy

Linsey Wilson Quy var 17 ára gömul þegar hún var óvænt ófrísk, hún hafði verið í sambandi með ungum strák en það hafði ekki gengið þegar leið á meðgönguna og úr varð að Linsey var að horfa fram á það að hlutverk sem einstæð móðir. Þetta hlutverk hræddi hana mikið og hún var kvíðin fyrir því sem koma skyldi þegar hún kynntist manni sem hún taldi í fyrstu að væri draumaprinsinn hennar, Annað átti heldur betur eftir að koma í ljós þegar leið á sambandið og endaði það skelfilega. Þátturinn er í boði Scrub Daddy Ísland Kóðinn "morðskúrinn" veitir 20% afslátt af öllum vörum inn á www.scrubdaddyisland.is ÁSKRIFT: www.pardus.is/mordskurinn www.instagram.com/mordskurinn www.facebook.com/mordskurinn

Nov 23, 202242 min

Ep 141Mannrán: Thad Phillips

Thad Phillips var þrettán ára gamall þegar hann vaknaði við það að einhver var að bera hann út úr sínu eigin húsi. Honum fannst það ekkert skrítið enda sofnaði hann oft í sófanum, en í þetta skipti var hann borinn út úr húsinu. Hann skildi lítið hvað var í gangi en hafði litlar áhyggjur, þar til hann var skyndilega mættur í hús til ókunnugs manns þar sem hann gat hvergi farið. Þátturinn er að sjálfsögðu í boði Scrub Daddy Ísland en með kóðanum mordskurinn fáið þið 20% afslátt af öllum vörum inni á www.scrubdaddyisland.is Viltu meira efni? Áskrift kostar 990kr.- á mánuði og það er engin binding: www.pardus.is/mordskurinn Samfélagsmiðlar: www.facebook.com/mordskurinn www.instagram.com/mordskurinn

Nov 15, 202232 min

Ep 140Fjöldamorð: Geronimo Bank Murders

Hvað taka menn upp á þegar þeir horfa fram á mikinn fjárhagsvanda? Fæstir myndu taka upp á því sem Jay nokkur gerði í slagtogi við kærasta sinn Þeir höfðu verið staurblankir nánast allt sitt samband, orðnir ráðþrota enda komið að lokuðum dyrum hvert sem þeir fóru nú þegar þeir voru búnir að maxa alla lánaheimild sem þeir gátu fengið Það sem þeir tóku upp á var ómannúðlegt svo ekki meira sé sagt Þátturinn er í boði Scrub Daddy Ísland Kóðinn "morðskúrinn" gefur ykkur 15% afslátt af öllum vörum inn á www.scrubdaddyisland.is ÁSKRIFT: www.pardus.is/mordskurinn www.instagram.com/mordskurinn www.facebook.com/mordskurinn

Nov 9, 202246 min

Ep 139Manndráp: Stephen Hricko

Hjón fara á morðráðgátukvöld yfir valentínusarhelgi til þess að reyna að bjarga hjónabandinu, en aðeins eitt þeirra lifir nóttina af. 20% afsláttur af öllu inni á www.scrubdaddyisland.is með kóðanum morðskúrinn www.pardus.is/mordskurinn www.instagram.com/mordskurinn www.facebook.com/mordskurinn

Nov 2, 202236 min

Ep 138Dularfullur dauði: Hugues de la Plaza

Hugues sem var upprunalega franskur, hafði flutt til Bandaríkjanna í leit að sínu draumalífi. Það hafði tekist stórkostlega hjá honum, hann var í góðri vinnu, átti góða vini og virkilega naut lífsins í botn Það var því sem þruma úr heiðskíru lofti þegar hann fannst látinn inn á heimilinu sínu einn morguninn og það sem verra var, lögreglan kærði sig lítið um að vinna að neinni rannsókn Þátturinn er í boði Scrub Daddy Ísland Kóðinn "morðskúrinn" veitir hlustendum 20% afslátt af vörum inn á www.scrubdaddyisland.is ÁSKRIFT www.pardus.is/mordskurinn www.instagram.com/mordskurinn www.facebook.com/mordskurinn

Oct 26, 202231 min

Ep 137Manndráp: MacDonald fjölskyldan

Aðfaranótt 17. febrúar árið 1970 vaknaði Jeffrey upp við öskur eiginkonu sinnar og dóttur. Yfir honum stóðu þrír karlmenn og ein kona, sem byrjuðu þá og þegar að lemja hann þar til hann varð meðvitundarlaus. Þegar hann rankaði við sér, þá hljóp hann um húsið en gerði skelfilega uppgötvun. Rannsókn lögreglu var bara alls ekki upp á sitt besta en með það litla sem hægt var að vinna með komust þeir að niðurstöðu, og var gerandinn, að þeirra sögn, að lokum ákærður og dæmdur fyrir morðin. www.pardus.is/mordskurinn www.facebook.com/mordskurinn www.instagram.com/mordskurinn

Oct 19, 202253 min

Ep 136Manndráp: Heather Quan

Heather Quan var rétt rúmlega 21 árs þegar hún fannst látin inn á heimili sínu sem hún deildi með kærasta sínum. Heather hafði fundist látin þegar foreldrar kærasta hennar óskuðu eftir velferðareftirliti þann 25 desember, en þá höfðu parið ekki skilað sér í kvöldmat. Við velferðareftirlitið kom í ljós að ekki var allt í lagi innan íbúðarinnar og eftir mikinn hasar komust lögreglumenn inn Þá fór atburðarrás í gang sem fæstir geta skilið Þátturinn er í boði Scrub Daddy Ísland Kóðinn "morðskúrinn" gefur hlustendum 20% afslátt af öllum vörum inn á www.scrubdaddyisland.is ÁSKRIFT www.pardus.is/mordskurinn www.instagram.com/mordskurinn www.facebook.com/mordskurinn

Oct 11, 202247 min

Ep 135Mannshvarf: Skelton bræðurnir

Tanya og John voru búin að stofna sína yndislegu fjölskyldu saman, en þau áttu bræðurna Andrew, Alexander og Tanner. Drengirnir höfðu eytt þakkargjörð með föður sínum árið 2010. Þegar móðir þeirra ætlaði að sækja þá daginn eftir, þá kom faðir þeirra með nokkrar útgáfur af sögum um hvar þeir væru niðurkomnir. Það var m.a. að aðili a vegum sértrúarsöfnuðar hafi sótt þá og að kona sem hann hafði kynnst væri með þá. Grunsamlegar ferðir voru raktar í gegnum GPS á símanum hans og einnig fannst ljóð sem hann hafði skrifað árum áður sem þótti hryllilegt í ljósi atvika.

Oct 5, 202244 min

Ep 134Óupplýst: Al Kite

Al Kite var einhver reglusamasti maður sem til var og það kom öllum gjörsamlega að óvörum þegar hann fannst látinn inn á sínu eigin heimili Hann hafði orðið fyrir fólskulegri árás og að virtist, algjörtlega tilefnislausri árás Enginn var undir grun einfaldlega vegna þess að eini maðurinn sem lögreglan hafði áhuga á virtist hreinlega ekki vera til Og það hefur verið ástæða þess að lausn hefur ekki fengist í mál Al Þátturinn er í boði Scrub Daddy Ísland Kóðinn "morðskúrinn" veitir 15% afslátt á öllum vörum inn á www.scrubdaddyisland.is ÁSKRIFT www.pardus.is/mordskurinn www.facebook.com/mordskurinn www.instagram.com/mordskurinn

Sep 28, 202247 min

Ep 133Manndráp: Bill McGuire

Þann 5. maí árið 2004 fannst fyrsta ferðataskan af þremur sem innihélt sundurskornar líkamsleifar. Rannsóknarlögreglumenn áttu tvö erfið verkefni framundan, að bera kennsl á líkamspartana og að finna út hver bar ábyrgð á morðinu. Það átti eftir að reynast þeim erfitt en þegar litið var á heimilislíf fórnarlambsins þá fór ákveðin atburðarrás að koma í ljós. Í kjölfarið hefur morðinginn fengið nafnið "The Suitcase Killer". www.pardus.is/mordskurinn www.facebook.com/mordskurinn www.instagram.com/mordskurinn

Sep 21, 20221h 3m

Ep 132Óupplýst: Jessica Easterly

Árið 2019 hringdi Jessica í vinkonu sína og tilkynnti henni um áætlanir sínar - hún ætlaði loksins að láta verða að því að fara frá eiginmanni sínum Eiginmanni sem hafði alltaf reynt sitt besta að láta sig líta vel út en raunin var allt önnur Jessica hvarf sporlaust sama dag og hún hringdi í vinkonu sína, hún átti ekki eftir að finnast fyrr en 10 dögum síðar, látin. Rannsókn á andláti Jessicu var vægast sagt klúður og upptalning á þeim klúðrum koma fram í þessum þætti Þátturinn er í boði Scrub Daddy Ísland Kóðinn "morðskúrinn" gefur 15% afslátt af öllum vörum inn á www.scrubdaddyisland.is ÁSKRIFT www.pardus.is/mordskurinn www.instagram.com/mordskurinn www.facebook.com/mordskurinn

Sep 14, 20221h 7m

Ep 131Manndráp: Lauren Giddings

Hin 27 ára Lauren var að undirbúa sig fyrir próf í laganáminu sínu yfir sumarið. Hún hafði lítinn tíma til þess að heyra í fjölskyldu og vinum en var vön að láta reglulega vita af sér, svo þegar enginn hafði heyrt í henni í einhvern tíma þá urðu allir áhyggjufullir. Eftir nokkra daga kom í ljós skelfileg atburðarrás sem átti eftir að breyta lífi margra. Viltu meira efni: www.pardus.is/mordskurinn www.instagram.com/mordskurinn www.facebook.com/mordskurinn Þátturinn er í boði Scrub Daddy en með kóðanum morðskúrinn fáið þið 15% afslátt af öllum vörum inni á www.scrubdaddyisland.is

Sep 7, 202241 min

Ep 130Manndráp: Tia Rigg

Tia Rigg var 12 ára gömul þegar hún fór að heiman og sást aldrei aftur á lífi. Morðingi hennar var mjög veikur einstaklingur sem hafði mánuðina á undan fengið þráhyggjur fyrir í fullri hreinskilni, hrikalega viðbjóðslegum hlutum. Saga Tiu er sorgarsaga að öllu leiti en það er sorglegt hve harkalega kerfið brást henni Þátturinn er í boði Scrub Daddy Ísland Með kóðanum "morðskúrinn" færðu 15% afslátt á öllum vörum inn á www.scrubdaddyisland.is ÁSKRIFT www.pardus.is/mordskurinn www.instagram.com/mordskurinn www.facebook.com/mordskurinn

Aug 31, 202233 min

Ep 129Mannshvarf: Leigh Occhi

Leigh Occhi var 13 ára gömul þegar hún hvarf við dularfullar aðstæður frá heimili sínu í Missisippi, en það var á þeim tíma sem fellibylurinn Andrew reið yfir. Blóð fannst inni á heimilinu en engin merki voru um Leigh. Stuttu eftir hvarf hennar fékk fjölskyldan send gleraugun hennar í pósti en ekki var vitað hver sendandinn væri. Málið hennar er mjög dularfullt, en móðir hennar telur sig vita nákvæmlega hver varð dóttur sinni að bana á meðan aðrir benda fingrum á hana sjálfa. Þátturinn er í boði Scrub Daddy, en með kóðanum mordskurinn færðu 15% afslátt af öllu inni á www.scrubdaddyisland.is Viltu meira efni: www.pardus.is/mordskurinn Fylgdu okkur á samfélagsmiðlum: www.instagram.com/mordskurinn www.facebook.com/mordskurinn

Aug 23, 202242 min

Ep 128Manndráp: Sierah Joughin

Sierah Joughin bjó í litlu samfélagi, það sem átti að vera öruggt samfélag en annað átti eftir að koma á daginn Sierah hvarf á leiðinni heim til sín, sporlaust. Hún hafði hjólað langleiðina heim til sín með kærastann sinn sér við hlið þegar þau kvöddust og Josh, kærastinn hennar sá hana aldrei aftur Það átti eftir að sannast hversu mikilvægt er að almenningur hafi greiðari aðgang að sumum gögnum lögreglunnar - gögnum sem segja til um hættulega menn í nágreninu til dæmis Sorglegt mál eins og öll önnur en úffff elsku Sierah Þátturinn er í boði Scrub Daddy Ísland Kóðinn "morðskúrinn" gefur 15% afslátt af öllum vörum inn á www.scrubdaddyisland.is ÁSKRIFT www.pardus.is/mordskurinn _____________________________________________________ www.facebook.com/mordskurinn www.instagram.com/mordskurinn

Aug 17, 202252 min

Ep 127Mannrán: Shannon Matthews

Shannon var 9 ára gömul þegar hún hvarf skyndilega á leið sinni heim úr skólanum. Áhyggjufull móðir hennar tilkynnti hana týnda og rannsókn lögreglu leiddi ekkert í ljós, svo strax var hafist handa við að athuga hvort henni hafi einfaldlega verið rænt. Hún fannst svo að lokum um 24 dögum eftir mannránið. Ræningi hennar stóð fjölskyldunni nær en öllum grunaði. Viltu meira efni: www.pardus.is/mordskurinn Fylgdu okkur á samfélagsmiðlum: www.instagram.com/mordskurinn www.facebook.com/mordskurinn

Aug 10, 202244 min