
Morðskúrinn
338 episodes — Page 7 of 7

Ep 43Óupplýst: The Cline Falls Axe Attack
Í dag bregðum við útaf vananum og segjum frá máli þar sem allir lifa af! En í júní árið 1977 tóku tvær stelpur þær Terri og Avra af stað í leiðangur sem átti eftir að breyta lífi þeirra til frambúðar. Keyrt var yfir tjald þeirra og exi notuð samhliða. Áverkar þeirra voru vægast sagt svakalegir og að þær hafi lifað af árásina er kraftaverkasaga útaf fyrir sig. Árásarmaður þeirra hefur aldrei verið handtekinn né sóttur til saka þrátt fyrir að heilt samfélag viti hver hann er. Við mælum með að hoppa yfir á instagram eða facebook og tengja andlitin við nöfnin ww.instagram.com/mordskurinn www.facebook.com/mordskurinn

Ep 42Dularfullur dauði: The Somerton Man
Eitt dularfyllsta mál Ástralíu fyrr og síðar, stytt niður í klukkutíma, verði ykkur að góðu! Maður fannst látinn á strönd í Adeleide, og ekki hefur tekist að finna út hver hann var. Búið var að klippa alla merkimiða af fötunum hans, hann skildi töskuna sína eftir á lestarstöð, miði fannst í vasanum hans með orðunum Tamam Shud sem þýðir endalok á persnesku. Ótrúlegustu atburðir gerast í kringum þetta mál og kenningarnar eru margar! Ekki var hægt að nota fingraför til að auðkenna hann, tannlæknaskýrslur skiluðu engum árangri, enginn kom fram og þekkti hann.. Það var bara ekkert sem var hægt að gera! www.facebook.com/mordskurinn www.instagram.com/mordskurinn

Ep 41Raðmorðingi: John Norman Collins/Ypsilanti Ripper
Í þessum þætti fjöllum við um John Norman Collins eða The Ypsilanti Ripper og The Michigan Murders. En John framdi ófá morðin en var einungis dæmdur fyrir eitt þeirra. Kvennabósi, myndarlegur maður sem átti auðvelt með að næla sér í stelpur og nýtti sér það heldur betur. Í þættinum erum við rosalega þreyttar og mikið talað í hringi í lokinn eins og okkur einum er lagið www.facebook.com/mordskurinn www.instagram.com/mordskurinn

Ep 40Mannshvarf: Bethany Decker
Þegar Bethany Decker var farin að birta á facebook síðu sinni óeðlileg skilaboð og vinkonu hennar fannst hún vera tala við einhvern allt annan en Bethany sjálfa á facebook spjallinu vöknuðu áhyggjur vina og fjölskyldu Átti þá eftir að koma í ljós að Bethany hafði hvorki sést né látið heyra í sér í heilar þrjár vikur, Bethany sem var ófrísk hafði horfið einhvern tíman á þessum tíma Skoða þurfti flókinn ástarþríhyrning sem hún var í, grunsamlegan kærasta sem átti ljóta sögu um að meiða kvennfólk og atvikið sem varð til þess að hann var handtekinn fyrir hvarfið á Bethany www.facebook.com/mordskurinn www.instagram.com/mordskurinn

Ep 39Raðmorðingi: Dean Corll
Dean Corll fékk viðurnefnið The Candy Man og var bandarískur raðmorðingi sem rændi, nauðgaði, pyntaði og myrti að minnsta kosti 28 unglingsdrengi frá árunum 1970-1973, mögulega fyrr. Hann naut aðstoðar tveggja vitorðsmanna sem voru á unglingsaldri, og er þetta mál þekkt sem Houston Mass Murders. Flest fórnarlömbin hans voru vinir eða kunningjar vitorðsmanna hans, en þeir buðu strákum að koma heim í partý með loforð um frítt áfengi og fíkniefni. Við mælum með að þið skoðið myndir af hverju máli fyrir sig áður en hlustun hefst: www.facebook.com/mordskurinn www.instagram.com/mordskurinn

Ep 38Dularfullur dauði: Christian Andreacchio
Þegar hinn 21 árs gamli Christan Andreacchio finnst látinn inn á baðherbergi í íbúð sinni er gert ráð fyrir að hann hafi fyrirfarið sér. Fjölskyldan hans keypti það nú ekki og ekki við Þórdís heldur og förum við yfir margt af því sem bendir til að kærasta Christians og vinur hafi átt eitthvað með atvikið að gera Mikið talað, mikið spáð, margir hringir og alltaf sama niðurstaðan www.facebook.com/mordskurinn www.instagram.com/mordskurinn

Ep 37Óupplýst: Judy Smith
Árið 1997 fór Judy Smith ásamt eiginmanni sínum á ráðstefnu þar sem hún ætlaði að njóta sín og skoða sig um í Philadelphiu á meðan hann sinnti vinnunni sinni. Hún hinsvegar skilaði sér aldrei aftur upp á hótel og óljóst var um afdrif hennar, þar til nokkrum mánuðum síðar, fannst lík í um 10klst akstursfjarlægð. Hvernig dó hún? Fór hún sjálfviljug þangað? Var henni rænt? Drap eiginmaðurinn hennar hana? Var henni haldið nauðugri þar til hún var á endanum drepin? Ótrúlega margar spurningar, og eina sem við fáum eru kenningar og að heyra söguna hennar! Í þessum þætti fáum við mjög skemmtilega gesti, en þar á meðal eru það þyrlurnar sem eiga sér leið á gossvæðið, konan á efri hæðinni sem tekur upp skúringarfötuna og uppáhalds vinkona mín og dóttir hennar Jóhönnu, Talía. www.facebook.com/mordskurinn www.instagram.com/mordskurinn

Ep 36Manndráp: Rachel Timmerman
Marvin Gabrion er nauðgari og morðingi sem drap hina 19 ára gömlu Rachel Timmerman, og er einnig bendlaður við mannshvarfið á Shannon, Wayne, John og Robert. Rachel og Shannon dóttir hennar hurfu eftir að Rachel var að fara að vitna gegn honum fyrir nauðgun sem hún varð fyrir að hálfu hans. www.facebook.com/mordskurinn www.instagram.com/mordskurinn

Ep 35Mannshvarf: Monique Daniels
Þegar hin 16 ára Monique hverfur sporlaust er gengið útfrá því að hún hafi hlaupið að heiman, hún átti smávegis sögu um það og því þótti ekkert óeðlilegt að hún hefði gert slíkt hið sama í þetta skiptið. En foreldrar hennar voru þó eitthvað skrítnir og það vakti athygli frænku Monique sem hrinti af stað atburðarrás sem enn er í gangi í dag, mörgum árum síðar. Upplýsingar systkina Monique eiga vonandi eftir að leysa málið einn daginn en þangað til höldum við í vonina! www.facebook.com/mordskurinn www.instagram.com/mordskurinn

Ep 34Óupplýst: Tammy Jo Alexander
Óvenjulegur þáttur í dag að því leitinu til að lítið er um ógeð í honum En við segjum hinsvegar frá röð tilviljana sem varð að því að hægt var að bera kennsl á Calidonia-Jane Doe. Hvernig samfélagsmiðlar og internetið getur stundum verið stór hjálp í lausn glæpamála. Vefsíðan sem við minnumst á í þættinum er engin önnur en www.websleauts.com sem við mælum innilega til að gleyma sér í að skoða www.facebook.com/mordskurinn www.instagram.com/mordskurinn

Ep 33Raðmorðingi: Belle Gunness
Belle Gunness var norskur-amerískur raðmorðingi sem hagnaðist á peningum annarra á mjög undarlegann og ógeðfelldan hátt. Staðfest fórnarlömb eru 14 manns, en talið er að þau hafi verið allt að 40 talsins, þess vegna fleiri. Belle fór ódæmigerðar leiðir til að koma sínu á framfæri, en hún lokkaði menn til að heimsækja sig með auglýsingu sem hún setti í blöðin, og lofaði fullkomnu lífi - sem endaði þó snökkt, en vinan var ekkert að minnast á það! www.facebook.com/mordskurinn www.instagram.com/mordskurinn Fylgdu okkur á samfélagsmiðlum til að sjá myndir, sönnunargögn og fleira skemmtilegt tengt þeim málum sem við tökum fyrir!

Ep 32Óupplýst: Rhonda Hinson
Kvöldið 22. desember 1981, fór 19 ára Rhonda Hinson í jólapartý í vinnunni sinni. Að því loknu var ferðinni heitið til vinkonu sinnar þar sem hún ætlaði að gista um nóttina. Hún fékk símtal, og skyndilega yfirgaf svæðið til að fara, en komst aldrei á leiðarenda þar sem á leiðinni var hún skotin. Skrítinn tengdafaðir, þráhyggjuhaldinn kærasti og dularfullir hlutir sem birtust í bílnum hennar. Þið fáið að heyra málið um hennar Rhondu með kvefuðustu manneskju Íslands í þessum þætti, njótið! www.facebook.com/mordskurinn www.instagram.com/mordskurinn

Ep 31Raðmorðingi: The Giggling Granny
Frú Nannie sem heillaði alla með nýbökuðum bökum, blíðu brosi og hlýju en var þó engin venjuleg frú. Eiginmenn hennar létust hver á fætur öðrum, dularfull andlát barnabarna og annarra ættingja hennar og engum datt í hug hverslags manneskju frú Nannie var í raun og veru. Rottueitur, Arsenik, einkamáls auglýsingar og líftryggingar spila stóran þátt í máli dagsins! www.facebook.com/mordskurinn www.instagram.com/mordskurinn

Ep 30Manndráp: April Millsap
April Millsap var lífsglöð ung stelpa sem var dugleg að fara út að skokka með hundinn sinn Penny Þegar hin 14 ára April finnst látin í skurði við vinsæla gönguleið fer í gagn flókin rannsókn á gangi mála. Bæði gekk hægt að finna muni April-ar sem hún hafði verið með á sér daginn sem hún var myrt, engar DNA sýni fundust á líkama hennar, þegar DNA sýnin fengust loksins voru engar samsvaranir og krefjandi var fyrir lögreglu að finna haldbær sönnunargögn til að koma gerandanum á bakvið lás og slá Óhugnaleg sms, Nike Jordans, blá mótorhjól og eftirtektarsamir nágrannar

Ep 29Mannshvarf: Lauren Spierer
Lauren Spierer var tvítug þegar hún hvarf sporlaust eftir að hafa djammað með vinum sínum árið 2011. Einungis hefur verið gefin út ein mynd af henni úr eftirlitsmyndavélum frá þessu kvöldi en það var í byrjun kvölds! Mjög dularfullt mál sem inniheldur þónokkrar kenningar um hvað átti sér stað, en ekki hefur tekist að sanna neina þeirra! Tvær aðrar stelpur drepnar á sama stað, Israel Keys kemur við sögu um að hafa verið á svæðinu daginn sem hún hvarf en getur það verið að hann hafi gert þetta?

Ep 28Dularfullur dauði: Cindy James
Í tilefni af nýja frumvarpinu hennar Áslaugar um umsáturseinelti fannst okkur tilvalið að taka einmitt slíkann þemaþátt, en í þættinum ræðum við um hana Cindy James. Hún bjó við slíkt einelti í 7 ár samfleytt, áreitandi og hótandi símtöl, miðar og bréf, fyrrverandi eiginmaður, dauðir kettir, eignarspjöll, árásir, íkveikja og fleira. Það var ekki fyrr en hún fannst látin sem fólk áttaði sig á hvað í raun og veru gekk á. www.facebook.com/mordskurinn www.instagram.com/mordskurinn

Ep 27Óupplýst: Mary Morris og Mary Morris
Þegar þær Mary Morris og Mary Morris finnast báðar látnar undir mjög svipuðum kringumstæðum með þriggja daga millibili vakna spurningar hjá lögreglu og ættingjum þeirra - voru málin tvö tengd? Röð tilviljanna? Leigumorðingi? Reiður eiginmaður eða samstarfsmaður? Hver var ástæðan fyrir andláti þessara tveggja kvenna? www.facebook.com/mordskurinn www.instagram.com/mordskurinn

Ep 26Raðmorðingi: Jack Barron
Í þessum þætti heyrum við af Jack nokkrum Barron en hann virtist vera hinn venjulegasti fjölskyldufaðir en átti við þó mörg vandamál að stríða En Jack missti eiginkonu og tvö börn á óútskýrðan máta og baðaði sig upp úr samúðinni sem hann fékk í kjölfarið og gjafmildi fólksins í kringum hann - á meðan voru aðstandendur grunlausir um hvað raunverulega kom fyrir. Við heyrum af sjaldgæfu tilfelli Munchausen by Proxy og afleiðingum þess. Við setjum *TRIGGER WARNING* við þetta mál í ljósi þess að atburðir eru vægast sagt truflandi www.facebook.com/mordskurinn www.instagram.com/mordskurinn

Ep 25Dularfullur dauði: Russell Evans
Russell Evans var þrettán ára gamall og átti allt lífið eftir framundan. Honum var hinsvegar svipt rétti til lífs, þegar hann fannst liggjandi á götu eftir að einhver keyrði á hann og stakk af. Ótrúlega mikið af hlutum sem passa ekki saman við áverka og hvernig réttarmeinafræðingur taldi að dauða hans hefði borið að, og fjölskyldan eyddi næstu árum í að finna út hver drap son sinn, en þó ekki fyrir hit n run, heldur fyrir að hafa lamið hann til dauða. www.facebook.com/mordskurinn www.instagram.com/mordskurinn

Ep 24Manndráp: Katie Rackliff
Árið 1992 fannst hin 18 ára Katie Rackliff látin með fjölda stungusára - málið varð mjög fljótlega kalt enda lítið um áræðanleg sönnunargögn. Gerandi í atviki í grunnskóla tvemur árum síðar átti þó eftir að tvinnast inn í mál Katie með ótrúlegum hætti og þannig kynnumst við Sharon eða The Devils Daughter Sharon var ung stelpa með ömurlega æsku að baki og stórglæpaferil framundan. Stórir hnífar, ofbeldi, voodoo, dýrafórnir og annað eins í þessum þætti! www.facebook.com/mordskurinn www.instagram.is/mordskurinn

Ep 23Manndráp: Brian Wells
Í þessum þætti fjöllum við um svokallað "Pizza Bomber" eða "Collar Bomber" mál og ræðum hvernig hinn 47 ára gamli pítsasendill endar með sprengju utan um hálsinn í fjársjóðsleit. www.facebook.com/mordskurinn www.instagram.com/mordskurinn

Ep 22Manndráp: Mark Kilroy
Mark Kilroy ætlaði aldeilis að njóta lífsins með þremur félögum loksins þegar kom að Springbreak fríi þeirra vina. Ekki leið á löngu þegar langþráða draumafríið breyttist í martröð þegar þeir vinirnir skelltu sér til Mexíkó og Mark hvarf án alls fyrirvara Viðtók stór rannsókn og samstarf mexíkósku og bandarísku lögreglunnar - ekki voru mikið af vísbendingum og málið vannst hægt en átti þó eftir að taka algjöran snúning þegar kom í ljós hverjir komu að máli Sértrúarsöfnuðir, mannafórnir, dýrafórnir, djöfladýrkendur, sveðjur og vírar www.facebook.com/mordskurinn www.instagram.com/mordskurinn

Ep 21Mannshvarf: Natalee Holloway
Hin 19 ára Natalee hverfur sporlaust í útskriftarferð árið 2005. Hin ótrúlegasta rannsókn kemur í kjölfarið sem sýnir okkur það hvað sönnunargögn geta verið ansi mikilvæg þegar kemur að því að sakfella einstakling. 5 árum síðar, upp á dag, finnst önnur kona myrt og er bendluð við sama einstaklinginn. Hinsvegar, til dagsins í dag, hefur Natalee aldrei fundist og enginn verið dæmdur fyrir að eiga hlut að máli hvað varðaði hvarfið á henni. Ein ótrúlegasta og misheppnaðasta rannsóknarvinna allra tíma, þar sem ungur heimalingur kemst upp með alltof margar lygar. www.facebook.com/mordskurinn www.instagram.com/mordskurinn

Ep 20Manndráp: Natalie Bollinger
Í desember 2017 hvarf hin 19 ára Natalie Bollinger frá heimili sem hún deildi með kærastanum sínum. Nokkrum dögum síðar finnst lík ungrar stúlku. Aðeins vikum áður en hún hvarf sótti hún um nálgunarbann gegn karlmanni sem var að áreita hana, faðir hennar rændi útfararpeningunum og fyrrverandi kærastinn hennar sendi skrítin skilaboð. Fylgdu okkur á samfélagsmiðlum: www.instagram.com/mordskurinn www.facebook.com/mordskurinn