PLAY PODCASTS
Morðskúrinn

Morðskúrinn

338 episodes — Page 6 of 7

Ep 93Manndráp: Tara Grinstead

Tara Grinstead var kennari frá Ocilla í Georgíu sem hvarf sporlaust þann 22. október árið 2005. Þrír aðilar voru fastir á borði lögreglu enda höfðu þeir allir einhver persónuleg tengsl við hana en lítið kom úr því. Það var ekki fyrr en nokkrum árum síðar, eða 2017, sem lögreglan fékk ítrekun á ábendingu sem hefði geta leyst málið 2005, sem þeir fóru að skoða aðeins betur í kringum sig og að lokum fundu út hvað hafði raunverulega gerst fyrir Töru. www.pardus.is/mordskurinn www.instagram.com/mordskurinn www.facebook.com/mordskurinn

Dec 7, 202148 min

Ep 92Manndráp: Sophie Lancaster

Sophie Lancaster var rúmlega tvítug þegar hún var að ganga heim með kærasta sínum eftir kvöldstund með vinum Sophie og kærasti hennar voru það sem kallað er Goth og drógu því að sér athygli svona yfirleitt hvert sem þau fóru Þetta kvöld varð engin breyting á. Sophie og Robert kærastinn hennar urðu fyrir hrottalegri líkamsárás sem endaði á versta veg Parið var tekið fyrir, vegna þess eins að vera til fara eins og þeim langaði til. ÁSKRIFT: www.pardus.is/mordskurinn www.instagram.com/mordskurinn www.facebook.com/mordskurinn

Dec 1, 202145 min

Ep 91Raðmorðingi: Charlie Brandt

Árið 2004 fundust Teri, Charlie og Michelle látin á heimili Michelle í Flórída. Það tók rannsakendur ekki langan tíma að átta sig á hvað hefði gengið á, en spurningin sem þeir áttu erfitt með að svara var hvers vegna? Það var ekki fyrr en systir Charlie kom fram og sagði frá hörmulegum atburði sem hafði átt sér stað árið 1971. www.pardus.is/mordskurinn www.instagram.com/mordskurinn www.facebook.com/mordskurinn

Nov 24, 202156 min

Ep 90Óupplýst: Amy Renee Mihaljevic

Hinni 10 ára gamla Amy var rænt af ókunnugum manni við verslunarmiðstöð árið 1989 bókstaflega fyrir framan helling af fólki sem var grunlaust um hvað væri raunverulega í gangi Fljótlega eftir hvarf hennar kom í ljós að hún hafði fengið dularfullt símtal sem hún hafði ekki sagt neinum frá nema bróður sínum og bestu vinkonum. Hún hafði ákveðið að upplýsa ekki foreldra sína um símtalið því símtalið hafði snúið að móður hennar Amy fannst látin rúmum þrem mánuðum eftir hvarf sitt og málið er enn í dag óleyst en þó hafa verið einhverjar vendingar í málinu síðustu tvö ár sem við fáum að heyra af í dag www.pardus.is/mordskurinn www.instagram.com/mordskurinn www.facebook.com/mordskurinn

Nov 17, 202145 min

Ep 89Manndráp: Renée Hartevelt

Renée Hartevelt fæddist árið 1955 og var upprunalega frá Hollandi. Hún bjó í París og lærði franskar bókmenntir við Sorbonne háskólann, þegar hún varð fórnarlamb samnemanda síns, Issei Sagawa, íbúð hans við 10 Rue Erlanger í París. Hún hafði mætt í mat til hans og var að taka upp ljóð á þýsku á kasettutækið hans þegar hann kom að henni og skaut hana í hálsinn. Það sem hann gerði í kjölfarið var hreint og beint ógeðfellt, og getið þið einnig skoðað myndirnar á samfélagsmiðlunum okkar: www.pardus.is/mordskurinn www.instagram.com/mordskurinn www.facebook.com/mordskurinn

Nov 9, 202145 min

Ep 88Manndráp: Sasha Samsudean

Sasha Samsudean var 27 ára gömul þegar hún fór út á lífið að skemmta sér eftir strembna vinnuviku Hún hafði byrjað fríhelgina sína á fótboltaleik þar sem hennar lið sigraði og því bar að fagna Sasha fór ásamt vinum sínum á skemmtistað og dönsuðu þau eitthvað fram yfir miðnætti þar til Sasha fékk nóg og vildi fara koma sér eitthvað annað Það átti eftir að vera í síðasta skipti sem vinir hennar sáu hana á lífi Sasha fannst látin í rúmi sínu daginn eftir Lögreglan átti í erfiðleikum að finna þann seka og það var ekki fyrr en þeir tóku sig til og byrjuðu aftur á byrjunarreit þegar hjólin fóru loksins að snúast. www.pardus.is/mordskurinn www.instagram.com/mordskurinn www.facebook.com/mordskurinn

Nov 3, 202141 min

Ep 87Dularfullur dauði: Bethany Deaton

Sumir þættir eru einfaldlega betri en aðrir, og það er þessi svo sannarlega ekki! Í október árið 2012 fannst lík ungrar konu á bílastæði fyrir utan Kansas City. Lögreglan taldi upphaflega að um sjálfsvíg væri að ræða, þar til ungur maður játaði aðild sína tæpum tveimur vikum síðar. Smáatriði fóru að koma í ljós um sértrúarsöfnuðinn sem gerandinn og fórnarlambið voru bæði partur af, ásamt sjarmerandi leiðtoga söfnuðarins, sem vildi svo skemmtilega til að vera giftur látnu konunni. www.pardus.is/mordskurinn www.instagram.com/mordskurinn www.facebook.com/mordskurinn

Oct 27, 20211h 11m

Ep 86Óupplýst: Jody LeCornu

Jody LeCornu hafði barist við áfengisfíkn til lengri tíma þegar hún fór í meðferð Meðferðinn gekk ekki eins og vonast var eftir og fór svo að Jody yfirgaf meðferðina áður en henni lauk Hún náði þó að rífa sig upp og skráði sig í nám og sinnti vinnu samhliða því Hún og kærastinn hennar höfðu því miður ekki mjög góð áhrif á hvortannað og var áfengisneysla farin að lita líf þeirra töluvert Þegar sambandi þeirra lauk hafði Jody ætlað að gera sér gott kvöld og kíkja út á barinn. Kvöldið endaði ekki betur en svo en að Jody var skotin í bakið þegar hún sat í bíl sínum á bílaplani Fjöldi fólks varð vitni að atvikinu en það hefur þó ekki verið nóg fyrir lögreglu til að leysa málið og stendur málið enn í dag, 25 árum síðar óleyst www.pardus.is/mordskurinn www.instagram.com/mordskurinn www.facebook.com/mordskurinn

Oct 20, 202154 min

Ep 85Dularfullur dauði: Rebecca Zahau

Rebecca Zahau fannst hengd árla morguns frá svölum á annari hæð sem leiddu úr svefnherberginu hennar, tveimur dögum eftir að Max stjúpsonur hennar lennti í alvarlegu slysi heima hjá þeim. Hún var bundin með fætur og hendur fyrir aftan bak, dulin skilaboð voru á hurðinni í svefnherberginu og ljóst var að búið var að þurrka fingraför af nokkrum hlutum hér og þar. Það fannst einnig blóðugur hnífur og fjölskyldan kannast ekki við rauða reipið sem hún var hengd með. www.pardus.is/mordskurinn www.instagram.com/mordskurinn www.facebook.com/mordskurinn

Oct 13, 20211h 25m

Ep 84Manndráp: Polly Klaas

Árið 1993 var Polly Klaas 12 ára gömul og hafði ákveðið að gista með vinkonum sínum kvöld eitt - þær voru búnar að vera ákveða Hrekkjavökubúninga, spila tölvuleiki og borðspil og voru að gera sig til í háttinn þegar Polly var rænt af heimili sínu fyrir framan augu vinkvenna sinna Við tók mikil rannsókn á vegum sýslu lögreglunnar og FBI en sama hvað þeir lögðu sig mikið fram þá kom lítið upp á yfirborðið Það var ekki fyrr en tvem mánuðum eftir hvarf Polly að hiða sanna kom í ljós www.pardus.is/mordskurinn www.instagram.com/mordskurinn www.facebook.com/mordskurinn

Oct 6, 20211h 1m

Ep 83Mannshvarf: Paul, Sarah & Lorenzo

Paul hafði ráðið Lorenzo til starfa hjá sér í flutningarfyrirtæki sem hann hafði byggt upp. Dag einn mætti hann til vinnu ásamt Söruh, 9 ára dóttur sinni, og tók vakt með Lorenzo. Daginn eftir, mættu þeir hinsvegar ekki til vinnu, og Paul hafði ekki skilað Söruh til móður hennar eins og planið var. Það er margt mjög dularfullt við hvarfið, en lífssýni hafa fundist í fyrirtækinu sjálfu af Paul og Söruh, en aldrei neitt til að segja til um það hvort Lorenzo hafi verið með þeim þennan dag eður ei. www.pardus.is/mordskurinn www.instagram.com/mordskurinn www.facebook.com/mordskurinn

Sep 28, 20211h 6m

Ep 82Manndráp: Eastburn Family Morðin

Gary Eastburn var vanur að heyra í Katie, eiginkonu sinni og dætrum á hverjum fimmtudegi á meðan hann var í burtu á vegum hersins. Fimmtudaginn 9 maí 1985 kom Katie ekki í símann, ekki heldur þann 10 maí né 11 maí. En það var einmitt 11 maí sem nágrannar Eastburn fjölskyldunnar fengu áhyggjur af þeim þegar þau sáu uppsöfnuð fréttablöð við útidyrnar þrátt fyrir að bíllinn væri heima Það átti eftir að koma í ljós að Katie eiginkona Gary ásamt Erin og Köru voru látnar, myrtar á hrottalegan máta. Rannsókn málsins miðaði vel og sá seki var handsamaður fljótt en aðstæður áttu eftir að umturnast í málinu fljótlega eftir sakfellingu mannsins. Við vörum við lýsingum í þættinum en sumar þeirra eiga við ung börn www.pardus.is/mordskurinn www.instagram.com/mordskurinn www.facebook.com/mordskurinn

Sep 23, 202149 min

Ep 81Manndráp: Alexis Murphy

Alexis Murphy var 17 ára gömul þegar hún hvarf þann 3. ágúst árið 2013, en þann dag hafði hún ætlað sér að fara að versla hárlengingar fyrir komandi skólamyndatöku. Hún sást síðast á bensínstöð í bænum Lovingston í Virginia. Eftirlitsmyndavélar komu fljótlega auga á dularfullan mann sem hafði verið í samskiptum við hana þar, og allt var sett á fullt í að finna hann. www.pardus.is/mordskurinn www.instagram.com/mordskurinn www.facebook.com/mordskurinn

Sep 22, 202141 min

Ep 80Manndráp: Gemma Hayter

Gemma Hayter lenti á milli í kerfinu frá því hún var ung stelpa og fór svo að í gegnum líf sitt fékk hún aldrei viðeigandi úrræði Í kjölfarið fór hún að hanga með hópi ungmenna sem í fyrstu áttu eftir að reynast henni vel en fljótlega fóru þau að sýna sínu réttu hliðar Gemma vildi allt fyrir þennan nýja vinhóp sinn gera, hvað svo sem það kostaði og úr varð að hún glataði lífi sínu í kjölfarið www.pardus.is/mordskurinn www.instagram.com/mordskurinn www.facebook.com/mordskurinn

Sep 15, 202142 min

Ep 79Raðmorðingi: Charles Starkweather & Caril Ann Fugate

Charles Starkweather og Caril Ann Fugate höfðu planað að gifta sig og Charles var að blómstra í fyrsta skipti í lífi sínu. Foreldrar hennar voru þó ekki alveg parsátt við þetta samband, enda var Charles 18 ára og Caril ekki nema 13 ára. Eineltið sem hann varð fyrir í æsku gerði hann að mjög reiðum manni og siðferðiskenndin var engin. Á einungis 10 dögum voru allt að 11 manns látnir og situr spurningin eftir í dag, var Caril meðsek eða ekki? www.pardus.is/mordskurinn www.instagram.com/mordskurinn www.facebook.com/mordskurinn

Sep 15, 202159 min

Ep 78Manndráp: Teri Zenner

Teri Zenner var 27 ára gömul og starfaði sem félagsráðgjafi. Hún sinnti skjólstæðingum sem voru yfirleitt með mjög flókna geðsjúkdóma og áttu erfitt uppdráttar í lífinu Hún var þekkt fyrir að gefa sig alla fram í öllu sem hún gerði og þar var enginn munur á þegar við kom starfi hennar Dag einn ákvað hún að stoppa við hjá ungum skjólstæðingi sínum til að tryggja það að hann tæki lyfin sín - það átti eftir að vera það síðasta sem hún gerði www.pardus.is/mordskurinn www.instagram.com/mordskurinn www.facebook.com/mordskurinn

Sep 8, 202123 min

Ep 77Manndráp: Becky Watts

Í maí árið 2014 hafði hin 16 ára Becky Watts verið að fá óhugnandi skilaboð, en það var aðili sem hótaði henni því að koma upp um kynferðisleg skilaboð sem voru þeirra á milli og var hún hrædd um að faðir hennar myndi henda henni út. Í nóvember árið 2015 hvarf hún sporlaust. Það tók lögreglu nokkra daga að rannsaka málið og óljóst hvort hún hafi stungið af sjálfviljug eða hvort einhver hafi rænt henni. Grunur lögreglu beindist fljótt að nákomnum aðila, en ekki er allt sem sýnist. www.pardus.is/mordskurinn www.instagram.com/mordskurinn www.facebook.com/mordskurinn

Sep 8, 202147 min

Ep 76Óupplýst: Lindsay Buziak

Lindsay var að feta sín fyrstu fótspor í fasteignabransanum þegar hún fær símtal frá mögulegum kaupanda sem býður allt að 1.000.000$ fyrir hús í Victoria. Allt í kringum parið sem hringdi var dularfullt og því var hún bæði hrædd og stressuð, enda stórt verkefni í vændum. Hún náði þó aldrei að landa samningnum. www.pardus.is/mordskurinn www.instagram.com/mordskurinn www.facebook.com/mordskurinn

Sep 1, 20211h 13m

Ep 75Óupplýst: Marilyn Sheppard

Undir morgun þann 4 júlí árið 1954 vaknaði Sam Sheppard upp við öskur og vein í eiginkonu sinni, Marilyn sem hafði farið að sofa á efri hæð húss þeirra hjóna Sam hljóp upp eins hratt og hann mögulega gat og tók þar á móti honum sem hann lýsir sem "form af manneskju" - Sam hlaut höfuðhögg og rotaðist og þegar hann rankaði við sér sá hann að kona hans var látin Sam Sheppard var dæmdur af samfélagi sínu, fréttablöðum og seinna við réttarhöld sem sekur í morði eiginkonu sinnar Við tók fjöldi ára þar sem fjölskylda hans og lögmannsteymi gerði sitt allra besta til að fá réttlætinu framgengt. Það átti svo sannarlega ekki eftir að reynast nokkrum manni auðvelt www.pardus.is/mordskurinn www.instagram.com/mordskurinn www.facebook.com/mordskurinn

Sep 1, 202140 min

Ep 74Raðmorðingi: Honolulu Strangler

Á níunda áratugnum gekk um Honolulu einstaklingur sem batt, nauðgaði og kyrtki ungar konur. Fórnalömbin áttu það öll sameiginlegt að vera smágerðar, lágvaxnar og hurfu allar af mjög opnum svæðum Lögreglan átti erfitt með að komast að því hver væri á verki en þegar fimmta fórnalamb Honolulu Strangler hvarf kom maður fram með upplýsingar Sá maður varð fljótt efstur á list lögreglu yfir grunaða einstaklinga en það átti eftir að reynast erfitt að fella hann fyrir glæpi hans www.pardus.is/mordskurinn www.instagram.com/mordskurinn www.facebook.com/mordskurinn

Aug 25, 202143 min

Ep 73Mannshvarf: Kristin Smart

Kristin Smart var 19 ára gömul þegar hún hvarf sporlaust frá heimavistinni þar sem hún bjó eftir að hafa verið úti að skemmta sér, árið 1995. Lítið var fyrir lögreglu að vinna með, en einnig tókst henni aldeilis að klúðra málinu m.a. með því að týna sönnuargögnum og lýta fram hjá leitarheimildinni sem þeim var úthlutað. Þrátt fyrir það, komu nýjar vendingar í málinu árið 2021 sem við förum yfir. www.facebook.com/mordskurinn www.instagram.com/mordskurinn www.pardus.is/mordskurinn

Aug 25, 202154 min

Ep 72Manndráp: Anita Cobby

Anita Cobby var hamingjusöm hjúkrunarfræðingur, margverðlaunuð fegurðardrottning, gift eiginmanni sínum John og naut lífsins Hún hafði nýverið komin úr heimsreisu með eiginmanni sínum þegar þau ákváðu að taka örlitla pásu í sambandi sínu Anita eyddi því tímanum sínum mikið með vinum að skemmta sér og hafði lokið einum slíkum hitting þegar hún hvarf sporlaust. Hún fannst tvem dögum síðar, látin og illa leikin út á túni í 10 km fjarlægð þaðan sem hún hvarf. Öll augu beindust að vitlausum aðila um stundarsakir en vegna sniðugra aðferða við rannsókn hafðist loks að hafa upp á þeim seku í máli Anitu. Málið er mjög grafískt, gróft og við vörum við sumum lýsingum þáttarins www.instagram.com/mordskurinn www.facebook.com/mordskurinn www.pardus.is/mordskurinn

Aug 18, 202154 min

Ep 71Dularfullur dauði: Mitrice Richardson

Mitrice Richardson var 24 ára þegar hún var handtekin þann 17. september árið 2009 eftir að neita að borga reikninginn sinn á veitingarstað í Malibu. Á lögreglustöðinni var móður hennar tjáð að henni yrði ekki sleppt fyrr en hún væri búin að sofa þetta af sér. Henni var hinsvegar sleppt fyrr en áætlað var. Eftir að hún gekk út af lögreglustöðinni, þá hvarf hún sporlaust og í kjölfarið vöknuðu margar spurningar. www.facebook.com/mordskurinn www.instagram.com/mordskurinn www.pardus.is/mordskurinn

Aug 17, 20211h 10m

Ep 70Manndráp: Peter Porco

Þessi þáttur er í boði Covid og er hann því álíka mikill kúkur. Þann 15. nóvember árið 2004 fannst Peter Porco látinn á neðri hæðinni heima hjá sér, og konan hans Joan var að berjast fyrir lífi sínu í rúminu þeirra á efri hæðinni. Óprúttinn aðili hafði gengið inn til þeirra og hoggið þau ítrekað með exi í andlitið. Exin var í eigu fjölskyldunnar og engu var stolið frá heimilinu. Báðir synir þeirra sluppu enda voru þeir í 300km+ fjarlægð, en þegar skoðað var allar hliðar máls þá kom í ljós mjög truflandi uppgötvun.

Aug 4, 202130 min

Ep 69Óupplýst: Monika Rizzo

Monika Rizzo var 44 ára gömul þegar hún gekk útaf vinnustað sínum og sást þar aldrei framar. Nokkrum dögum síðar var hún horfin fyrir fullt og allt og eiginmaður hennar allt annað en áhyggjufullur. Synir hennar og foreldar þó voru logandi hrædd um afdrif Moniku og lögðu allt í leit sína að henni. Það átti eftir að koma í ljós að líkamsleifar væru að finna í bakgarði Rizzo fjölskyldunnar en lögreglan var nú samt frekar slök yfir þessu öllu saman. Allt bendir til eins aðila en það fæst með engu sannað og því er mál Moniku Rizzo óleyst ennþá daginn í dag. www.facebook.com/mordskurinn www.instagram.com/mordskurinn

Aug 4, 20211h 7m

Ep 68Dularfullur dauði: Yuba County 5

Árið 1978 fóru fimm vinir saman á körfuboltaleik, þeir Ted 32 ára, Bill 29 ára, Jack 24 ára, Jackie, 30 ára og Gary Mathias 25 ára. Þeir áttu það allir sameiginlegt að vera með fötlun og bjuggu í foreldrahúsi, og því vakti það óhug þegar þeir mættu ekki heim til foreldra sinna eins og vaninn var á hverju kvöldi. Lögreglan var mjög skeptísk til að byrja með, enda taldi hún bara að nú væri sko tíminn sem þeir ætluðu sér að djamma og hafa gaman af lífinu. Dagarnir liðu og ekkert bólaði á þeim en það var ekki fyrr en þeir fengu símtal frá móturhjólagengi sem lögreglan fór að taka hluti aðeins alvarlegri. Í þessum þætti kynnum við ykkur einnig fyrir nýju hlaðvarpi sem við stöllur erum að hefja, en í því munum við einmitt fjalla um dularfulla og óútskýranlega atburði, óvenjulegar frásagnir fólks og samsæriskenningar - allt það dularfulla sem í raun passar ekki beint í Morðskúrinn. Þetta mál var innblástur fyrir það hlaðvarp sem mun hefja göngu sína fyrr en síðar. -> www.instagram.com/launrad www.facebook.com/mordskurinn www.instagram.com/mordskurinn

Jul 28, 202148 min

Ep 67Mannshvarf: Leah Croucher

Leah Croucher var 19 ára þegar hún hvarf sporlaust á leið til vinnu í heimabæ sínum í Bretlandi. Hún vaknaði um morguninn, græjaði sig fyrir vinnu og hélt af stað gangandi en í vinnuna skilaði hún sér aldrei Leah hafði aldrei valdið foreldrum sínum áhyggjum eða gefið neinum einhverja ástæðu til að óttast um hana fram að þessu. Hvað kom raunverulega fyrir Leuh er með öllu óútskýranlegt en maður sem við köllum Herra X gæti vitað eitthvað en hefur kosið að segja ekki orð. Hann kemst upp með það og samkvæmt lögreglu er búið að hreinsa hann af öllum grun. www.instagram.com/mordskurinn www.facebook.com/mordskurinn

Jul 27, 202137 min

Ep 66Manndráp: Pela Atroshi

Jæja seint koma sumir en koma þó! Hér er þátturinn sem vantaði síðasta miðvikudag En í þessum þætti fjöllum við um Pelu Atroshi. Pela var fædd í norður Írak og var ein af 10 börnum foreldra sinna. Vegna báglegra aðstæðna í Dohouk heimabæ Pelu fluttist fjölskyldan alla leið til Svíþjóðar. Þar braggaðist Pela verulega vel og aðlagaðist sínu nýja sænska lífi fljótt. Föður hennar til mikillar ama breyttist Pela mikið og tók hann ásamt afa Pelu afdrifaríka ákvörðun. www.facebook.com/mordskurinn www.instagram.com/mordskurinn

Jul 24, 202131 min

Ep 65Óupplýst: Beatriz Mota

Við förum alla leiðina til Brasilíu í þetta sinn, en árið 2015 týndist 7 ára Beatriz í útskriftarveislu systur sinnar og á innan við klukkutíma fannst hún látin í kompu í skólanum þar sem athöfnin var haldin. Myndbandsupptökur frá fyrirtækjum í nágrenninu sýna meðal annars mann fyrir utan skólann kvöldið sem hún lést, að taka upp hníf frá yfirborðinu og stinga honum í sokkana sína. Hann labbar síðar inn í skólann - en sökum þess að slökkt var á ljósum á gögnum skólans og myndavélakerfið var með hreyfiskynjara, þá sást voða lítið um hvern var að ræða. www.facebook.com/mordskurinn www.instagram.com/mordskurinn

Jul 21, 202153 min

Ep 64Manndráp: Mickey Hughes

Francine Hughes kynntist eiginmanni sínum þegar hún var bara rétt rúmlega 15 ára - hún var ekki nema 16 ára gömul þegar hún gekk í hjónaband sem hún taldi sig ekki komast hjá að ganga í. Mickey, eiginmaður Francine var alla tíð mjög vondur við hana en andlegt og líkamlegt ofbeldi var ríkjandi inn á heimili þeirra. Mickey stóð á sama að börnin hans horfðu upp á ástandið og versnaði og versnaði með árunum. Það var svo árið 1977 sem Francine fékk endanlega nóg og við förum yfir atvikið í þessum þætti www.sjukast.is www.facebook.com/mordskurinn www.instagram.com/mordskurinn

Jul 15, 202153 min

Ep 63Mannshvarf: Cindy Anderson

Cynthia Jane Anderson var tvítug þegar hún hvarf sporlaust úr vinnunni sinni 10 dögum áður en hún ætlaði að fara á vit ævintýranna og hefja nám með kærastanum sínum í Biblíuskóla. Henni hafði verið búið að dreyma sl. árið, um að einn daginn yrði henni rænt, og einnig voru áreitandi símtöl í hennar garð sem flykktust inn á hennar borð, bæði heim til hennar og í vinnuna. Það var hádegi, í verslunarmiðstöð, að degi til sem hún hvarf, og ekki er vitað hvar hún er niðurkomin en nokkrar kenningar hafa myndast í kjölfar hvarfsins. www.facebook.com/mordskurinn www.instagram.com/mordskurinn

Jul 15, 202151 min

Ep 62Óupplýst: Candace Hiltz

Þegar Candace Hiltz finnst myrt inn á heimili sínu gengur lögreglan út frá því að bróðir hennar sé sá seki. Fjölskyldan hennar er þó mjög ósammála því enda umræddir lögregluþjónar menn sem Candice hefði átt í útistöðum við nokkrum dögum áður og meðal annars staðið í hótunum við þá - að koma upp um ekki mjög heiðarleg vinnubrögð að þeirra hálfu Morðið hefur aldrei verið upplýst en ég er nokkuð viss um að við séum öll sammála hver stendur að baki ástæðunnar að málið fær ekki að leysast. www.facebook.com/mordskurinn www.instagram.com/mordskurinn

Jul 7, 202149 min

Ep 61Manndráp: Wells Gray Park morðin

Í ágúst árið 1982 fara Bentley hjónin ásamt dóttur sinni Jackie, og hennar fjölskyldu í útilegu í Wells Gray héraðsgarðinn í Kanada. Eftir tvær vikur skila þau sér ekki heim, og strax hefst leit af þeim. Hvernig gat 6 manna fjölskylda horfið sporlaust og skilið engin ummerki eftir sig? Eftir víðamikla leit sem skilaði engum árangri fær lögreglan vísbendingu frá heimamanni, sem fann eitthvað óvenjulegt á svæðinu. Við vörum við atriðum í þættinum, en tveir meðlimir þessarar 6 manna fjölskyldu eru 11 ára og 13 ára. www.facebook.com/mordskurinn www.instagram.com/mordskurinn

Jul 7, 202153 min

Ep 60Mannshvarf: Fandel börnin

Margaret Fandel hafði treyst börnunum sínu fyrir að vera ein heima á meðan hún ætlaði að skreppa út á lífið ásamt systur sinni Það átti eftir að umturna hennar veröld en það kvöld hurfu börnin sporlaust Engar áberandi ástæður hvarfsins liggja fyrir og allir sem lágu undir grun voru hreinsaðir jafn hratt af öllum grun En kenningarnar í kringum hvarf barnanna eru margvíslegar - sumar alveg út í hött og aðrar sem er eitthvað smá vit í Veit pabbinn meira? Var Mr. W tengdur málinu á einhvern hátt? Er Amy á lífi? www.instagram.com/mordskurinn www.facebook.com/mordskurinn

Jul 1, 202152 min

Ep 59Manndráp: Jayna Murray

Jayna Murray var myrrt á hrottalegann hátt á vinnustaðnum sínum, en hún var að vinna í Lululemon búð sem selur íþróttafatnað. Samstarfskona hennar lifði árásina af og gat sagt lögreglu greinargóða lýsingu á gerandanum. Fólk var vitni af árásinni úr búðinni við hliðiná og lét ekki lögreglu vita af því sem ætti sér stað, enda voru þau alltof upptekin að græja fyrir forsölu á Ipod 2 sem var að koma út daginn eftir. Það tók lögregluna langan tíma að finna morðingjann, enda var ekki mikið að vinna úr, en á endanum tókst það og situr hann nú á bak við lás og slá! www.facebook.com/mordskurinn www.instagram.com/mordskurinn

Jun 30, 202154 min

Ep 58Manndráp: Sarah Stern

Jæææja síðasti fyrir sumarfrí Faðir Sarah Stern vaknaði við ljótan raunveruleika aðfaranótt 3 desember árið 2016, dóttir hans var horfin að virtist algjörlega sporlaust. Fljótt fóru að vakna upp spurningar um geðheilsu Söruh, hvort að hún hafi mögulega getað hafa fyrirfarið sér en hún hafði átt erfitt í kjölfar andlát móður sinnar nokkrum árum áður. Sannleikurinn var ljótur og gerendur stóðu Söruh ansi nærri og átti eftir að koma öllum að óvörum þegar sannleikurinn kom loksins í ljós. www.facebook.com/mordskurinn www.instagram.com/mordskurinn

Jun 9, 202147 min

Ep 57Dularfullur dauði: Phoebe Handsjuk

Phoebe Handsjuk var 24 ára gömul þegar hún fannst látin í ruslageymslu í blokkinni þar sem hún bjó með kærastanum sínum. Hún hafði framið sjálfsmorð emð því að troða sér í gegnum og láta sig falla frá 12 hæð í gegnum ruslarennuna, án þess að skilja eftir sig fingraför á víðavangi. 8 árum síðar finnst önnur kærasta sama manns látin sem framdi einnig sjálfsmorð með því að kyrkja sjálfa sig með snúru heima hjá sér. Pssst, foreldrar mannsins eru virtir og háttsettir dómarar í Melbourne. Er hann virkilega svona óheppin með kærustur eða er eitthvað annað í gangi?

Jun 8, 20211h 45m

Ep 56Manndráp: Noreen Boyle

Þeir sem stóðu Noreen næst vissu að lífið hennar var enginn dans á rósum en í augum þeirra sem minna vissu leit Boyle fjölskyldan út fyrir að vera fyrirmyndar amerísk fjölskylda. Farsæll fjölskyldufaðir, þessi flotta tveggja barna móðir sem Noreen var og börnin þeirra tvö, Collier og Elizabeth En raunin var sú að Jack var fjarri því að vera trúr eiginkonu sinni, hann var ekki svo góður faðir eins og fólk taldi og átti bráðlega von á barni með hjákonu sinni henni Sherri. Aðfaranótt 31 desember árið 1989 vaknaði Collier þá 11 ára gamall við óhljóð og dynki og morgunin eftir var mamma hans, Noreen horfin. Collier átti eftir að vera sá sem kom fram með upplýsingarnar sem áttu eftir að leysa málið að lokum og síðar koma föður sínum á bakvið lás og slá eftir hetjulegan vitnisburð. www.facebook.com/mordskurinn www.instagram.com/mordskurinn

Jun 2, 202134 min

Ep 55Mannshvarf: Heather Elvis

Heather Elvis var tvítug stelpa í blóma lífsins sem kynntist giftum manni í vinnunni sinni. Konan hans komst síðar að því, og í kjölfarið hófst stanslaust áreiti frá henni. Þegar Heather hélt að lífið hennar væri loksins komið á gott ról eftir að hafa slitið samskiptum við manninn, hvarf hún sporlaust. Líkamsleifar hafa aldrei fundist til dagsins í dag, en lögreglan telur sig vera nokkuð vissa um að hún sé ekki meðal oss í dag, en þó hafa myndast nokkrar kenningar sem við förum yfir ásamt handtökuskipunum. www.facebook.com/mordskurinn www.instagram.com/mordskurinn

Jun 2, 202144 min

Ep 54Manndráp: Sherri Rasmussen

Sherri Rasmussen var drepin á ofbeldisfullan hátt á heimili sínu í Kaliforníu árið 1986 en ekki tókst að handtaka morðingja hennar fyrr en mörgum mörgum árum síðar. Morðinginn var nær en lögreglan vildi viðurkenna og ýtti öllum ábendingum frá sér og morðið stóð óupplýst en þeir töldu atburði morgunsins afdrifaríka hafa verið rán sem fór illa Réttlætið sigraði að lokum eftir að deild kaldra mála náðu að tippla á tánum svo allt færi nú vel Í lok þáttarins fáum við svo stöðu plöntumála hjá Þórdísi okkar, plöntukona mikil www.facebook.com/mordskurinn wwww.instagram.com/mordskurinn

May 26, 202142 min

Ep 53Dularfullur dauði: Tamla Horsford

Tamla fannst látin einn morgun og var strax úrskurðað um að hún hafi annað hvort fallið til dauða eða hoppað sjálf niður af svölum. Neyðarlínusímtalið er eins og það sé verið að panta dóminos pítzu, áverkar ekki í samræmi við fallið, myndbandsupptökur sem eyddust óvart, var búið að færa hana til áður en lögreglan mætti á svæðið, eiginlega bara mjög margir skrítið hlutir sem gefa til kynna að eitthvað allt annað hafi átt sér stað en slys! www.facebook.com/mordskurinn www.instagram.com/mordskurinn

May 26, 20211h 11m

Ep 52Manndráp: Junko Furuta

Junko Furuta var nemi í Japan sem upplifði 44 daga af hreinu helvíti. Það er ekki hægt að ýminda sér hryllinginn, og því setjum við stórt TW við þátt dagsins. Hlustið á ykkar eigin ábyrgð. www.facebook.com/mordskurinn www.instagram.com/mordskurinn

May 19, 202140 min

Ep 51Dularfullur dauði: Michael Rosenblum

Michael Rosenblum hvarf sporlaust um miðjan febrúar árið 1980 eftir að hafa nýverið fallið en hann hafði klárað fíkniefnameðferð nokkru áður. Bíllinn hans fannst en vegna arfaslakrar lögregluvinnu kom seint í ljós hvað varð að Michael. Í gegnum árin hafa vaknað upp grunsemdir um að lögreglan hafi jafnvel átt eitthvað með málið að gera og möguleika á spillingu innan lögreglunnar líka Hvað ætli hafi komið fyrir Michael? www.instagram.com/mordskurinn www.facebook.com/mordskurinn

May 19, 202141 min

Ep 50Dularfullur dauði: Joshua Maddux

Joshua Maddux bjó í Woodland Park. Árið 2008 sagði hann systur sinni að hann ætlaði í göngutúr, en kom aldrei aftur heim. Hann fannst 7 árum síðar, látinn í strompi í kofa nálægt heimilinu hans. Talið var að um slys væri að ræða, en eigandi kofans og fjölskylda hans voru þó alls ekki sammála því, einnig voru sönnunargögn sem benntu til annars, og er ekki alltaf sagt að sönnunargögnin ljúga ekki? www.facebook.com/mordskurinn www.instagram.com/mordskurinn

May 12, 202137 min

Ep 49Manndráp: Heather Tell

Heather Tell var 17 ára gömul þegar hún skilaði sér ekki á leiðarenda þegar hún var búin að mæla sér mót við vinkonu sína í dansstúdíói nálægt heimili sínu. Að öllum að óvörum fannst Heather kyrkt rétt við göngustíginn sem hún hafði svo oft gengið áður Dóttir manns í bænum hafði áhyggjur af ferðum föður síns kvöldið sem Heather var myrt og vegna hugrekkis hennar að koma fram með áhyggjur sína náðist að handtaka morðingja Heather www.instagram.com/mordskurinn wwww.facebook.com/mordskurinn

May 12, 202125 min

Ep 48Óupplýst: Fjölskyldan í Setagaya

Miyazawa fjölskyldan bjó í Setagaya í Japan. Einn dag mætti óobðinn gestur heim til þeirra og endaði það með hræðilegum atburði. Þessi einstaklingur skildi eftir sig mörg ummerki á vettvangi, en þrátt fyrir það, hefur ekki tekist að finna út hver hann er til dagsins í dag. Það var meðal annars blóð, fingraför, skóför, föt og annað. www.facebook.com/mordskurinn www.instagram.com/mordskurinn

May 5, 202148 min

Ep 47Mannshvarf: Michele Whitaker

Einn verulega stuttur með twisti í dag! Michele Whitaker hvarf í ágúst byrjun árið 2002 gjörsamlega sporlaust Hún hafði átt óreglusamt líf fram að hvarfi sínu og taldi lögreglan mjög fljótlega að henni hafi verið ráðinn bani. Nokkrar vendingar urðu í málinu sem skiluðu að lokum engu en sú síðasta átti eftir að koma öllum í opna skjöldu www.instagram.com/mordskurinn www.facebook.com/mordskurinn

May 5, 202126 min

Ep 46Manndráp: Anna & Gracie Sharpe

Seinni þáttur dagsins er þungur og erfiður en í honum fjöllum við um John Sharpe sem drap bæði eiginkonu sína Önnu og 20 mánaða gömlu dóttur sína Gracie. Anna hafði verið svo spennt fyrir væntanlegum syni en hún var ófrísk þegar John drap hana. Aðferðin sem hann notaði er vægast sagt ómannúðleg og viðbjóðsleg og gjörðir hans eftir morðin voru bara til að kóróna viðbjóðinn. www.instagram.com/mordskurinn www.facebook.com/mordskurinn

Apr 28, 202137 min

Ep 45Mannshvarf: Tiffany Daniels

Á mánudeginum 12. ágúst árið 2013 gékk hin 25 ára Tiffany Daniels úr vinnunni, en hún hafði beðið um að fá að fara fyrr heim. Hún sagði yfirmanni sínum frá því að hún myndi ekki mæta aftur fyrr en eftir viku því hún þyrfti smá tíma til að sjá um einhverja hluti. Það var í síðasta skipti sem einhver sá hana framar. Hún var ekki tilkynnt týnd fyrr en viku síðar, enda fannst vinnuveitanda hennar ekkert óvenjulegt að hún væri ekki að mæta í vinnuna og flestir vinir hennar gerðu bara ráð fyrir því að hún væri upptekin. Óþekkt fingrafar fannst í bílnum hennar, hjólið hennar var í pörtum, hún sást mögulega í Lousiana á veitingarstað, böstað var mikið af fólki fyrir mannsal á þessu svæði.. Það er svo margt sem gæti hafa komið fyrir en svo rosalega fátt um svör. www.instagram.com/mordskurinn www.facebook.com/mordskurinn

Apr 28, 202146 min

Ep 44Manndráp: Kevin Bacon

Kevin Bacon var 25 ára samkynhneigður maður frá Michigan. Hann hafði ekkert átt síðustu daga sæla og átti hann það til að nota Grindr til þess að dreifa huganum. Hann einmitt gerði það á aðfangadagskvöld árið 2019, þegar hann fór að hitta mann sem hann hafði kynnst í gegnum stefnumótaforritið. Hann hinsvegar skilaði sér aldrei heim. Þið munið heyra af hinum 50 ára gamla Mark, sem var eitt óbermis pakk. Hann pantaði sér meðal annars þurrkara til að þurrka kjöt... ég segi ekki meir! www.instagram.com/mordskurinn www.facebook.com/mordskurinn

Apr 21, 202132 min