PLAY PODCASTS
Morðskúrinn

Morðskúrinn

338 episodes — Page 3 of 7

Ep 243Arnold Archambeau og Ruby Bruguier

Arnold og Ruby höfðu verið úti að skemmta sér og að kvöldi loknu ætluðu þau að sækja dóttur sína í pössun, en þar sem þau voru verulega ölvuð var ákveðið að það myndu sækja hana daginn eftir. Litla frænka Ruby ákvað að slást í för með þeim heim en þau komust aldrei á leiðarenda, því á leiðinni lentu þau í bílslysi. Litla frænkan rankar við sér í bílnum og sér að Ruby er að troða sér út úr bílnum, en Arnold er hvergi sjáanlegur, og áður en hún veit af þá er Ruby búin að skella hurðinni og eftir situr hún föst í bílnum sem er hvolfi. Það sem frænkan vissi þó ekki var að þetta yrði í síðasta skipti sem hún myndi sjá þau á lífi því Arnold og Ruby hurfu sporlaust og tók það nokkra mánuði að finna þau. Með kóðanum morðskúrinn fáið þið 15% afslátt af öllum vörum inni á www.definethelinesport.com Inni á www.pardus.is/mordskurinn er hægt að finna yfir 160 þætti í áskrift!

Oct 29, 202447 min

Ep 242Hope Forest morðin

Bartholomew fjölskyldan var stór, samanstóð af hjónunum Clifford og Heather og börnum þeirra sjö. Fjölskyldan var alla tíð talin hamingjusöm og hjónaband Cliffords og Heathers með þeim betri, þau voru miklir vinir og samheldin. Það var því eins og þruma úr heiðskíru lofti þegar Clifford tók skelfilega ákvörðun eina nótt í september mánuð árið 1971. Þátturinn er í boði Define The Line Sport Með kóðanum "morðskúrinn" fáið þið 15% afslátt af öllum vörum inn á www.definethelinesport.com Viltu fleiri þætti? Komdu í áskrift! www.pardus.is/mordskurinn

Oct 23, 202436 min

Ep 241Brenda Powell

Sydney Powell, dóttir Brendu og Steve, hafði lengi vel gengið vel í skólanum og enginn hafði áhyggjur af henni fyrr en Steve reyndi einn daginn að greiða skólagjöldin hennar en gat ekki skráð sig í skólagáttina. Hann spurði dóttur sína ítrekað út í það en fékk fá svör. Steve ákvað að heyra í skólanum, og komust þau hjónin að því að Sydney hafði í raun verið vikið úr skóla, það var samt sem áður ekki það hræðilegasta sem gerðist þann dag, því sama dag hafði óboðinn aðili brotist inn á heimilið þeirra og myrt Brendu. Steve var þakklátur fyrir það að dóttir sín Sydney hefði lifað árásina af, eða allt þar til hann komst að sannleikanum. Þátturinn er í boði Define the Line en með kóðanum morðskúrinn fáið þið 15% afslátt! Komdu í áskrift -> www.pardus.is/mordskurinn Fylgdu okkur á samfélagsmiðlum @mordskurinn

Oct 15, 202443 min

Ep 240The Kill Seven Murders

Archie átti mjög langa og mjög grófa ofbeldissögu að baki en allt leit út fyrir að hann myndi snúa við blaðinu þegar hann eignaðist sitt fyrsta barn. Svo var reyndar ekki og ástandið átti bara eftir að versna þegar sonur hans lést í skelfilegu slysi kornungur. Archie ætlaði sér að gera allt hvað hann gat til að fá son til baka. Þátturinn er í boði Define The Line Sport Kóðinn "morðskúrinn" veitir 15% afslátt af vörum inn á www.definethelinesport.com

Oct 9, 202444 min

Ep 239Manndráp: Ramsay Scrivo

Donna Scrivo hafði nýverið misst eiginmann sinn, en eftir það ákvað hún að taka að sér umönnun á 29 ára syni sínum þar sem hún taldi hann ekki hæfan til að sjá um sig sjálfur. Það var svo árið 2014 sem Ramsay, sonur hennar, hvarf sporlaust og leitaði áhyggjufull Donna til lögreglunnar. Rannsókn átti eftir að leiða í ljós hræðilegan atburð sem reynt var að hylma yfir. Þátturinn er í boði Define The Line Sport en með kóðanum morðskúrinn fáið þið 15% afslátt af öllum vörum inni á www.definethelinesport.com Áskriftin okkar inniheldur yfir 150 þætti og kostar aðeins 1.390kr.- á mánuði, en hægt er að nálgast hana á www.pardus.is/mordskurinn Samfélagsmiðlar @mordskurinn

Oct 1, 202442 min

Ep 238Óupplýst manndráp: Douglas Cleaves

Douglas Cleaves eða Doug var 25 ára gamall þegar hann lenti í skelfulegu vinnuslysi sem hafði gríðarleg áhrif á hans líf. Með jákvæðnina að vopni ætlaði hann þó að aðlagast nýjum raunveruleika því hann átti lítinn son sem treysti á hann. Doug fékk þó ekki tækifæri til þess. Þátturinn er í boði Define The Line Kóðinn "morðskúrinn" veitir 15% afslátt af vörum inn á www.definethelinesport.com

Sep 25, 202436 min

Ep 237Manndráp: Mark, Sharie og Brooke Winek

Þann 25. nóvember 2022 mætti lögreglumaður að heimili Winek fjölskyldunnar í þeim erindagjörðum að ná tali af barnabarni Mark og Sharie. Hún og móðir hennar Brooke voru ekki viðstaddar, en voru beðnar um að koma heim til að ræða við lögreglumanninn á meðan hann beið eftir þeim. Enginn vissi hvaða vandræði barnabarnið var búið að koma sér í svo Brooke dreif sig heim með dóttur sína. Stuttu síðar fékk neyðarlínan tilkynningu um að eldur væri í íbúðarhúsnæði í Riverside, og enginn átti eftir að komast yfir það sem hafði gerst. Þátturinn er í boði Define The Line Sport en með kóðanum morðskúrinn fáið þið 15% afslátt af öllum vörum inni á www.definethelinesport.com Yfir 150 þættir aðgengilegir inni á www.pardus.is/mordskurinn fyrir aðeins 1.390kr.- á mánuði!

Sep 17, 202435 min

Ep 236Manndráp: Alyssa Kittendorff

Hin gullfallega Alyssa var 17 ára gömul þegar hún ásamt vinkonu sinni fóru til að hitta mann með þeim tilgangi að versla sér lyfið Percocet. Maðurinn átti hinsvegar ekki eftir að selja þeim það lyf heldur töflur sem innihéldu Fentanýl. Þetta átti eftir að hafa í för með sér alvarlegar afleiðingar. Þátturinn er í boði Define The Line Sport Kóðinn "morðskúrinn" veitir 15% afslátt af öllum vörum inn á www.definethelinesport.com

Sep 11, 202438 min

Ep 235Mannshvarf: Sarah og Jacob Hoggle

Catherine Hoggle var gift þriggja barna móðir sem hafði lengi vel verið að stríða við andlega heilsu, en ástandið var orðið svo slæmt að hún gat ekki lengur verið ein í kringum börnin sín. Hún var því undir stöðugu eftirliti og hjálpuðust vinir og vandamenn að við að passa að hún væri aldrei ein með þeim. Að lokum þurfti svo að gefa henni traust enda var þetta ekki framtíðarplan, og þegar það kom loksins að því að leyfa henni að vera einni með Jacob þá hvarf hann. Daginn eftir hvarf svo Sarah, og enginn veit hvað varð um börnin. Með kóðanum morðskúrinn fáið þið 15% afslátt af öllum vörum inni á www.definethelinesport.com Áskriftarleiðin okkar kostar 1.390kr.- og inniheldur yfir 150 þætti! www.pardus.is/mordskurinn

Sep 4, 202438 min

Ep 234Raðmorðingi: Harvey Glatman

Harvey Glatman var mjög ungur þegar hann var farinn að bera merki um að hann yrði sjálfsagt ekki eins og flestir. Foreldrar hans höfðu leitað aðstoðar vegna vanda sem hann sýndi en læknirinn hafði sannfært um að hegðun sem hann sýndi af sér myndi vaxa af honum. Svo var aldeilis ekki, Harvey var ungur farinn að áreita konur og komst svo miklu miklu lengra en hann hefði átt að geta. Þátturinn er í boði Define The Line Sport Kóðinn "morðskúrinn" veitir 15% afslátt af öllum vörum inn á www.definethelinesport.com Komdu í áskrift! www.pardus.is/mordskurinn www.facebook.com/mordskurinn www.instagram.com/mordskurinn

Aug 28, 202445 min

Ep 233Mannrán: Annie Hearin

Hin 73 ára Annie og 71 árs Robert höfðu verið gift lengi og áttu fallegt samband, fallega fjölskyldu og voru einnig mjög auðug, en Robert hafði stundað mikil viðskipti í gegnum tíðina og Annie var virk í samfélaginu. Robert hafði hins vegar lennt í því leiðinlega veseni að þurfa að höfða málsókn á hendur 12 aðila vegna vangreiddra skulda, en það fór í gegn og lífið hélt áfram. Robert mætti svo heim einn daginn og tók eftir því að konan hans var horfin, og ekki leið á löngu þar til honum barst bréf, bréf sem gerði honum það ljóst að Annie hafði verið rænt. Yfir 150 áskriftarþættir eru inni á www.pardus.is/mordskurinn en þú getur hlustað fyrir aðeins 1.390 kr.- á mánuði! Þátturinn er í boði Define The Line Sport en með kóðanum morðskúrinn fáið þið 15% afslátt af öllum vörum inni á www.definethelinesport.com Fylgdu okkur á samfélagsmiðlum @mordskurinn

Aug 20, 202440 min

Ep 232The West Mesa Murders

Árið 2009 fór kona nokkur í gönguferð með hundinn sinn í eyðimörk í úthverfum Albuquerque. Það sem átti að vera góður göngutúr breyttist fljótt í uppgötvun á líkamsleifum. Í kjölfarið kom í ljós að 11 lík voru grafin þar, allt ungar konur sem höfðu verið myrtar nokkrum árum áður. Við tók erfitt verkefni að bera kennsl á líkamsleifarnar sem og finna hver ætti sök á máli. Þátturinn er í boði Define The Line kóðinn "morðskúrinn" veitir 15% afslátt af vörum inn á www.definethelinesport.com Komdu í áskrift! www.pardus.is/mordskurinn

Aug 14, 202442 min

Ep 231Dularfullur dauði: Noah Presgrove

Áskriftarleiðin okkar er á 1.390kr.- á mánuði og inniheldur yfir 140 þætti! Vertu með: www.pardus.is/mordskurinn Með kóðanum morðskúrinn fáið þið 15% afslátt af öllum vörum hjá Define The Line Sport

Aug 7, 20241h 3m

Ep 230Raðmorðingi: The Bike Path Killer

Í september mánuð 2006 ákvað hin fjögurra barna móðir Joan að fara út að skokka, eins og hún hafði gert margsinnis áður, en þetta skipti átti eftir að verða hið síðasta. Joan fannst látin tvem dögum síðar, hafði verið myrt. Í kjölfar rannsóknar á morðinu á Joan fóru að koma fleiri upplýsingar í ljós og fleiri mál sem tengdist lífssýni sem hafði fundist á vettvangi. Umrædd mál höfðu áður verið rannsökuð án árangurs en nú átti það eftir að breytast. Þátturinn er í boði Define The Line Sport Kóðinn "morðskúrinn" veitir 15% af slátt af öllum vörum inn á www.definethelinesport.com Komdu í áskrift! www.pardus.is/mordskurinn

Jul 31, 202448 min

Ep 229Manndráp: Warren Barnes

Warren Barnes var góðvinur bæjarbúa í Grand Junction, en hann var heimilislaus og eyddu ófáum stundum í að spjalla við þá sem urðu á vegi hans. Það var svo árið 2021 sem hann hvarf, og hafði búðareigandi og vinkona hans strax áhyggjur af honum enda var hann vanur að mæta til hennar daglega. Þann sama dag hafði orðið óhapp í bænum, þegar hinn 19 ára Brian Cohee missti bílinn sinn út í vatn og var það mikið sjokk þegar lögreglan komst að því að þessir tveir atburðir tengdust. Þátturinn er í boði Define The Line, en með kóðanum morðskúrinn fáið þið 15% afslátt af öllum vörum.

Jul 24, 202452 min

Ep 228Manndráp: Barbara Miller

Barbara Weaver, áður Miller, var þrítug fimm barna móðir og Amish. Hún hafði tileinkað lífi sínu eiginmanninum sínum sem og börnum og naut ekki neins eins og hún naut þess að vera móðir. Hún var því miður gift manni sem ekki mat hana eins og hann hefði átt að gera og þegar hugurinn hans fór að reika tók hann það út á eiginkonu sinni. Niðurstaðan varð fimm móðurlaus börn. Þátturinn er í boði Define The Line Sport Kóðinn "morðskúrinn" veitir 15% afslátt af öllum vörum inn á www.definethelinesport.com Viltu koma í áskrift? www.pardus.is/mordskurinn

Jul 18, 202450 min

Ep 227Mannshvarf: Suzy Lamplugh

Suzy var fasteignasali og þann 28. júlí árið 1986 fór hún að hitta mögulegan kúnna að nafni Mr. Kipper við fasteign á Shorrolds Roud í Fulham. Hún hinsvegar skilaði sér aldrei aftur í vinnuna og í kjölfarið var haft samband við lögreglu. Enginn hafði heyrt í henni þennan dag en nokkur vitni stigu fram og sögðust hafa séð hana með óþekktum manni, manni sem lögreglan telur sig vita hver er. Þátturinn er í boði Define The Line Sport en með kóðanum morðskúrinn fáið þið 15% afslátt af öllum vörum!

Jul 10, 202445 min

Ep 226Óupplýst: Anita Taylor

Hin tvítuga Anita Taylor var elskandi eiginkona og ástrík móðir 18 mánaða gamals drengs sem fékk nafnið Aaron. Hún átti sér stóra drauma um að eignast sitt eigið heimili og hafði sótt um vinnur með þá von um að getað aðstoðað við útvega féð sem þyrfti í útborgun. Anita fékk starf en tvem vikum síðar var hún látin, hún hafði verið myrt á hrottalegan máta inn á sínu eigin heimili. Aaron hafði orðið fórnarlamb árásaraðilans líka, og því vörum við við lýsingum í þættinum í dag. Þátturinn er í boði Define the Line Sport Kóðinn "morðskúrinn" veitir 15% afslátt af vörum inn á www.definethelinesport.com Má bjóða þér fleiri þætti? Komdu í áskrift! www.pardus.is/mordskurinn www.instagram.com/mordskurinn www.facebook.com/mordskurinn

Jul 3, 202441 min

Ep 225Mannshvarf: Summer Wells

Kóðinn morðskúrinn veitir ykkur 15% afslátt af öllum vörum inni á www.definethelinesport.com Áskrift -> www.pardus.is/mordskurinn

Jun 26, 20241h 3m

Ep 224Manndráp: Reid fjölskyldan

Hinn 39 ára gamli Justin átti trúlegast síst von á því að ráðist yrði á hann inn á sínu eigin heimili eftir snögga búðaferð. Hann hafði mánuðina á undan reynt sitt besta í þeim aðstæðum sem hann var allt í einu í, sem einstæður þriggja barna faðir. Dóttir hans hafði verið honum innan handa þessa mánuði en einn febrúar eftirmiðdaginn, ákveðið að snúa baki í hann. Þátturinn er í boði Define The Line Sport Með kóðanum "morðskúrinn" fáið þið 15% afslátt af öllum vörum inn á www.definethelinesport.com Viltu fleiri þætti? www.pardus.is/mordskurinn www.facebook.com/mordskurinn www.instagram.com/mordskurinn

Jun 19, 202433 min

Ep 223Óupplýst: Latricia, Dub og Chance

Latricia finnst látin á heimili sínu og engin ummerki eru um kærastann hennar Dub né son hans Chance. Bíllinn hans finnst síðar og í skottinu er blóð. Lögreglan veit ekki hvort að Dub sé gerandi eða fórnarlamb, og hvað varð eiginlega um þá feðga? Með kóðanum morðskúrinn fáið þið 15% afslátt af öllum vörum inni á www.definethelinesport.com Áskrift - yfir 140 þættir: www.pardus.is/mordskurinn

Jun 12, 202451 min

Ep 222Manndráp: Beth Brodie

Árið er 1992 og hin 15 ára gamla Beth Brodie er beðin um að stökkva yfir til vinar síns Sky - eitthvað sem var óvenjulegt en ekki athugunarvert. Beth hefði trúlegast aldrei getað séð fyrir hvað átti eftir að gerast. En heima hjá Sky beið hennar drengur, Richard. Sá átti eitthvað vantalað við Beth og var ekki sáttur með svörin sem hún gaf honum. Beth var myrt þennan dag fyrir það eitt að vera ákveðin og standa á sínu. Þátturinn er í boði Define the Line sport - með kóðanum morðskúrinn fáið þið 15% afslátt af öllum vörum inn á www.definethelinesport.com Má bjóða þér fleiri þætti? www.pardus.is/mordskurinn www.instagram.com/mordskurinn www.facebook.com/mordskurinn

Jun 5, 202441 min

Ep 221Manndráp: Rita Politte

Rita hafði nýverið gengið í gegnum mjög svo leiðinlegan skilnað en sátt var hún að hann væri loksins yfirstaðinn. Hún fór út með vinum sínum að skála fyrir því á meðan 14 ára sonur hennar var heima með vini sínum. Hún kom heim um kvöldið og fór að sofa en vaknaði ekki aftur, því um morguninn vöknuðu strákarnir við reyk og í ljós kom að einhver hefði ráðist á Ritu og kveikt í henni. Lögreglan var ekki lengi að finna gerandann í málinu, eða svo þeir töldu, en var réttlætinu náð? Þátturinn er í boði Define The Line en með kóðanum morðskúrinn fáið þið 15% afslátt af öllum vörum inni á www.definethelinesport.com Komdu í áskrift - það kostar 990kr.- á mánuði og yfir 130 þættir aðgengilegir! www.pardus.is/mordskurinn

May 28, 202443 min

Ep 220Dularfullur dauði: Gareth Williams

Gareth var ungur, gríðarlega hæfileikaríkur og klár maður. Hann hafði leikið sér að því að klára hverskyns háskólagráður og ungur að aldri vakið athygli fyrir gáfur sínar. Starf hans var óvenjulegt en hann starfaði innan bresku leyniþjónustunnar þar sem hann leysti úr dulkóðum og passaði vel upp á þjóðaröryggi Bretlands. Eftir ansi langan tíma þar bauðst honum starf í MI6 sem hann þáði en eftir ár þar sá hann að hitt hentaði honum töluvert betur. Hann náði þó aldrei að færa sig í sitt gamla starf, því hann fannst látinn undir afar grunsamlegum aðstæðum nokkru áður en hann átti að skipta. Þátturinn er í boði Define The Line Sport Kóðinn "morðskúrinn" veitir 15% afslátt af öllum vörum inn á www.definethelinesport.com Má bjóða þér fleiri þætti? Komdu í áskrift! www.pardus.is/mordskurinn www.facebook.com/mordskurinn www.instagram.com/mordskurinn

May 22, 202447 min

Ep 219Raðmorðingi: Tommy Lynn Sells

Vinkonurnar Krystal og Katie voru að gista saman eitt kvöldið þegar maður læddist inn í herbergið þeirra og skar Katie á háls. Á leið sinni út úr herberginu leit hann um öxl og sá Krystal í efri kojunni, sem varð til þess að hún var einnig skorin á háls. Krystal náði samt sem áður að koma sér undan og leita aðstoðar hjá nágranna. Þetta kvöld varð til þess að hinn alræmdi raðmorðingi var handsamaður en skaðinn sem hann hafði ollið síðustu árin var mikill, það mikill að lögreglan er ekki viss um hve mörg fórnarlömb eru. Með kóðanum morðskúrinn færðu 15% afslátt af öllum vörum inni á www.definethelinesport.com Komdu í áskrift: www.pardus.is/mordskurinn Fylgdu okkur á samfélagsmiðlum til að skoða myndir frá þeim málum sem við tökum: www.instagram.com/mordskurinn www.facebook.com/mordskurinn

May 15, 202456 min

Ep 218Óupplýst: Mikey Emert

Michael eða Mike/mikey Emert var farsæll fasteignasali, giftur góðri konu og átti stjúpdóttur sem hann dýrkaði og dáði. Hann naut þess að sinna vinnunni sinni enda gerði hann hana vel, var vinsæll og eftirsóttur fasteignasali sem var nóg að gera hjá. Það var því ekkert óeðlilegt þegar hann fékk símtal frá kúnna sem óskaði eftir því að sjá eign með stuttum fyrirvara, það sem var hins vegar óeðlilegt var að hann var látinn innan sólarhrings síðar. Þátturinn er í boði Define The Line Sport Kóðinn "morðskúrinn" veitir 15% afslátt af öllum vörum inn á www.definethelinesport.com Viltu koma í áskrift? www.pardus.is/mordskurinn

May 9, 202450 min

Ep 217Manndráp: Madeline Soto

Í febrúar árið 2024 hvarf hin 13 ára Madeline Soto. Stjúpfaðir hennar Stephen sagði að hann hafi skutlað henni nokkra metra frá skólanum þennan morguninn og þegar móðir hennar Jennifer ætlaði að sækja hana þá komst hún að því að Maddie skilaði sér aldrei í skólann. Leit hófst í kjölfarið og rannsókn fór á fullt, en það tók lögreglu ekki marga daga að komast að því hvað raunverulega kom fyrir Maddie. Þátturinn er í boði Define The Line Sport - en með kóðanum morðskúrinn fáið þið 15% afslátt af öllum vörum! Yfir 130 áskriftarþættir í boði inni á www.pardus.is/mordskurinn fyrir aðeins 990kr.-! Fylgdu okkur á samfélagsmiðlum: www.instagram.com/mordskurinn www.facebook.com/mordskurinn Þar geturu skoðað myndir af hverju máli fyrir sig, séð umfjallanir um mál sem eru í gangi, komið með ábendingu af máli og margt annað skemmtilegt!

May 1, 202439 min

Ep 216Manndráp: Lauren McCluskey

Lauren McCluskey var 21. árs, hlaupafíkill, harðdugleg, gullfalleg og samviskusöm. Hún hafði leyft hugrekkinu að ráða sem leiddi hana í háskóla í Utah, langt frá heimslóðum sínum en þar átti hún eftir að blómstra. Í september 2018 kynntist hún manni sem henni hafði fundist heillandi, góður og ljúfur - annað átti hinsvegar eftir að koma á daginn og minna en tvem mánuðum síðar var Lauren látin Þátturinn er í boði Define The Line Sport Kóðinn "morðskúrinn" veitir 15% afslátt af öllum vörum inn á www.definethelinesport.com Viltu fleiri þætti? Komdu í áskrift! www.pardus.is/mordskurinn www.facebook.com/mordskurinn www.instagram.com/mordskurinn

Apr 24, 202446 min

Ep 215Manndráp: Dylan Rounds

Þátturinn er í boði Define The Line Sport www.definethelinesport.com Fylgdu okkur á samfélagsmiðlum: www.instagram.com/mordskurinn www.facebook.com/mordskurinn

Apr 17, 202444 min

Ep 214Mannshvarf: Dorothy Arnold

Árið er 1910 og hin 25 ára gamla Dorothy fer út í verslunarferð sem hún átti aldrei eftir að skila sér úr. Fjölskylda hennar sem var afar hátt sett í samfélaginu í New York hafði gríðarlegar áhyggjur af hvað fólk myndi finnast ef út fréttist að dóttir þeirra væri horfin og í alltof langan tíma sagði enginn neitt Átti það eftir að verða til að enginn veit enn í dag hver afdrif Dorothy voru? Þátturinn er í boði Define The Line Sport Kóðinn "morðskúrinn" veitir 15% afslátt af öllum vörum inn á www.definethelinesport.com Viltu fleiri þætti? komdu í áskrift! www.pardus.is/mordskurinn www.instagram.com/mordskurinn www.facebook.com/mordskurinn

Apr 10, 202449 min

Ep 213Fjöldamorð: Easter Sunday Massacre

Páskarnir árið 1975 áttu að vera hátíðlegir og skemmtilegir fyrir alla Ruppert fjölskylduna en það var aldeilis ekki raunin. Einn meðlimur fjölskyldunnar tók afdrifaríka ákvörðun klukkan 16:00 á páskadag og í kjölfarið enduðu 11 einstaklingar látnir þar á meðal 8 börn. Í kjölfarið var gerandinn dreginn til saka en það var ferli sem átti eftir að taka lengri tíma og var töluvert flóknara en fólk gat ímyndað sér. Þátturinn er í boði Define The Line Sport Kíkið á úrvalið af gæðavörum inn á www.definethelinesport.com Viltu fleiri þætti? Komdu í áskrift! www.pardus.is/mordskurinn www.instagram.com/mordskurinn www.facebook.com/mordskurinn

Apr 3, 202431 min

Ep 212Morðin í Henryetta

Laugardagurinn 29. apríl 2023 átti að vera hinn eðlilegasti fyrir vinkonurnar Ivy, Brittany og Tiffany en fór alls ekki eins og þær héldu. Þær höfðu planað það að gista saman en á sunnudeginum breyttust plön og ákváðu þær að fara að synda. Þær skiluðu sér svo ekki heim og var lögreglan fengin í málið. Við rannsókn komust þau að afdrifum stúlknanna, en þær reyndust ekki vera einu fórnarlömbin. Þátturinn er í boði Define The Line - skoðaðu úrvalið hér: www.definethelinesport.com Komdu í áskrift: www.pardus.is/mordskurinn Skoðaðu myndir frá hverju máli fyrir sig: www.instagram.com/mordskurinn www.facebook.com/mordskurinn

Mar 27, 202438 min

Ep 211Manndráp: Lindsay Hawker

Árið 2008 bjó Lindsay Hawker í Japan þar sem hún kenndi ensku og heillaðist af þessum nýja menningarheimi. Einn dag gaf maður sig á tal við hana í lestinni á leiðinni heim en út frá því spjalli samþykkti Lindsay að taka hann í einkakennslu í ensku, enda vildi hann læra tungumálið til þess að geta fetað í fótspor föður síns og farið í nám. Lindsay hins vegar skilaði sér aldrei að lokinni kennslustund og það var ekki fyrr en að lögreglumenn gátu rakið síðustu ferðir hennar sem þeir uppgötvuðu óhugnalega hluti sem leyndust inni á heimili mannsins. Þátturinn er í boði Define The Line og Hreysti. Með kóðanum MSKN fáið þið 10% afslátt af öllum fæðubótarefnum inni á www.hreysti.is Skoðið úrvalið hér á www.definethelinesport.com Áskriftarleið: www.pardus.is/mordskurinn

Mar 20, 202437 min

Ep 210Manndráp: Amie Harwick

Amie Harwick var 38 ára gömul, átti stórkostlegan starfsferil á sínu sviði í Los Angeles og allt leit út fyrir að hún lifði raunverulegu draumalífi. Raunveruleikinn var hinsvegar sá að hún lifði við stöðugt áreiti, net-einelti og stöðugar áhyggjur sem hún sjálfsagt deildi ekki með öllum í kringum sig. Á valentínusardaginn árið 2020 fór hún og skemmti sér með vinkonum sínum, kom heim til að eiga rólegt kvöld en endaði látin fyrir neðan svalirnar á svefnherberginu sínu. Þátturinn er í boði Hreysti og Define The Line Sport Kóðinn "MSKN" gefur 10% afslátt af öllum fæðubótavörum inn á www.hreysti.is Ekki hika við að kíkja inn á www.definethelinesport.com og versla ykkur geggjaðar flíkur á stórgóðu verði! Viltu hlusta á fleiri þætti? Komdu í áskrift! www.pardus.is/mordskurinn www.instagram.com/mordskurinn www.facebook.com/mordskurinn

Mar 13, 202446 min

Ep 209Mannshvarf: Brandon Swanson

Brandon var að ljúka fyrsta árinu sínu í skóla og mætti í nokkur partý kvöldið 14. maí árið 2008. Hann var á bíl og entist því ekki lengi, en í kringum miðnætti yfirgefur hann síðustu veisluna. Tæpum tveimur tímum síðar hringir hann í foreldra sína og segir þeim frá því að hann hafi endað ofan í skurði og sé fastur, staðsettur í Lynd. Hann talar við foreldra sína í símann á meðan hann bíður en upp renna tvær grímur á þau þegar þau finna hann hvergi. Hann ákveður að fara út úr bílnum til að ganga í áttina að næsta bæjarfélagi og á miðri leið heyra foreldrar hans hann segja OH SHIT og var það í síðasta skipti sem þau hafa heyrt frá honum. Við leit kom í ljós að hann var hvergi nærri Lynd heldur á allt öðrum stað og margar spurningar hafa vaknað í kjölfar hvarfs hans. Þátturinn er í boði Define the Line - þið getið skoðað úrvalið inni á www.definethelinesport.com Komið í áskrift: www.pardus.is/mordskurinn Samfélagsmiðlar: www.instagram.com/mordskurinn www.facebook.com/mordskurinn

Mar 6, 20241h 2m

Ep 208Manndráp: Frankie Fitzgerald

Shaye var ung einstæð móðir, með mörg áhugamál, flest þó áhugamál sem aðrir höfðu lítinn áhuga á. Hún kynntist þó Frankie, en hann deildi áhugasviði með Shaye á sumum sviðum - þó alls ekki á öllum. Áhugi Shaye á sakamálum, raðmorðingjum og morðingjum almennt var mjög mikill svo mikill að sumir halda að það hafi hvatt hana til að fremja svæsinn glæp. Viltu fleiri þætti? Komdu í áskrift! www.pardus.is/mordskurinn www.instagram.com/mordskurinn www.facebook.com/mordskurinn

Feb 28, 202433 min

Ep 207Raðmorðingi: Long Island Serial Killer

Shannan Gilbert hvarf frá Oak Beach en leit að henni leiddi í ljós 11 líkamsleifar sem fundust á strandlengjunni á Long Island. Ljóst var að um raðmorðingja var að ræða og eftir ótal langa rannsóknarvinnu er loksins búið að ákæra fyrir fjögur fórnarlömb. www.pardus.is/mordskurinn

Feb 21, 20241h 18m

Ep 206Manndráp: Kaylee Sawyer

Kaylee Sawyer var 23 ára gömul árið 2016, í sambandi með ástinni í lífi sínum, með drauma um að verða tannlæknir og hefði átt að eiga allt lífið framundan. Það var því miður ekki svo, en eftir stórskemmtilegt kvöld á djamminu með vinkonum sínum kom kærastinn hennar að sækja hana. Kaylee endaði á að rífast við kærasta sinn þetta kvöld, og labba í burtu með þeim tilgangi að kæla sig aðeins niður. Það átti þó eftir að vera það síðasta sem hún gerði, hún sást aldrei aftur á lífi. Viltu fleiri þætti? Komdu í áskrift! ÁSKRIFT www.pardus.is/mordskurinn www.instagram.com/mordskurinn www.facebook.com/mordskurinn

Feb 14, 202448 min

Ep 205Dularfullur dauði: Lauren Agee

Lauren fór með vinum sínum í helgarferð á wakeboard festival en helgin fór ekki eins og áætlað var því þegar vinir hennar vöknuðu um morguninn þá var hún hvergi sjáanleg. Þau gerðu ráð fyrir því að hún hefði bara farið að hitta einhvern vin en komust fljótt að því hvað hafði komið fyrir hana. Áskrift kostar 990kr.- á mánuði: - 4-5 þættir á mánuði - Aðgangur að öllum áskriftarþáttum frá upphafi (100+ þættir) Skráðu þig hér: www.pardus.is/mordskurinn

Feb 7, 202445 min

Ep 204Manndráp: Miya Marcano

Miya Marcano hafði ákveðið að búa á aðeins fínni háskólagörðum, í fínna og að hún taldi öruggara umhverfi á meðan námi hennar stóð. Hún ætlaði sér að verða sjúkraliði enda með íþróttadellu og mikla ástríðu fyrir að hjálpa fólki. Miya fékk þó aldrei tækifæri til að klára námið sitt, og hún var ekki eins örugg eins og hún hélt, ekki einu sinni inn á sínu eigin heimili. En það var einmitt þaðan sem hún hvarf einn september eftirmiðdag og átti aldrei aftur eftir að sjást á lífi. Langar þig í fleiri þætti? Komdu í áskrift þar sem 120+ þættir bíða þín! ÁSKRIFT www.pardus.is/mordskurinn www.instagram.com/mordskurinn www.facebook.com/mordskurinn

Jan 31, 202443 min

Ep 203Manndráp: Daniel Mark Driver

Ellie Nesler var ein sú besta móðir sem fyrirfinnst í Jamestown og þegar hún komst að því sem sonur hennar hefði gengið í gegnum þá tók hún málin í sínar hendur. Þátturinn er í boði PLAY! en það er 20% afsláttur út 26. janúar í tilefni af bóndadeginum. www.pardus.is/mordskurinn www.instagram.com/mordskurinn www.facebook.com/mordskurinn

Jan 23, 202434 min

Ep 202Raðmorðingi: Kimberly Saenz

Kim var móðir, eiginkona, starfandi hjúkrunarfræðingur og vel liðin kona í sínu samfélagi. Það var alveg þar til að kom í ljós að hún var ofbeldisfull móðir og eiginkona og orðsporið hvarf hratt. Fólk hefur trúlegast haldið að hún kæmist ekki mikið lægra í lífinu þar til að skyndilega var hún handtekin fyrir að eitra fyrir sjúklingum, ekki bara einum heldur mörgum. Þátturinn er í boði Play Bókið sumarferðina sem allra fyrst inn á www.flyplay.is ÁSKRIFT www.pardus.is/mordskurinn www.facebook.com/mordskurinn www.instagram.com/mordskurinn

Jan 17, 202442 min

Ep 201Óupplýst: Tracey Ann Patient

Tracey var 13 ára gömul þegar hún hvarf sporlaust eftir að hafa gengið heim frá vinkonu sinni eitt kvöld. Það liðu ekki margir dagar þar til lík hennar fannst í um 15km fjarlægðar frá heimilinu hennar, og ljóst að einhver hafi rænt henni og drepið hana. Lögreglan var engu nær og biðluðu til almennings um upplýsingar. Það var svo maður sem hringdi inn tveimur árum síðar með upplýsingar um málið, en til að sanna deili á sér þá gaf hann upp vísbendingar sem enginn ætti að vita nema sá sem hafði drepið hana. Hann gaf einnig upp tölurnar 126040 og sagði lögreglu að muna þessar tölur og hingað til hafa komið ótal kenningar um það hvað þessar tölur gætu þýtt. Þátturinn er í boði PLAY en við minnum á að í dag er síðasti dagurinn til að nýta sér flugfar á 35% afslætti inni á www.flyplay.is Komdu í áskrift: www.pardus.is/mordskurinn Fylgdu okkur á samfélagsmiðlum: @mordskurinn

Jan 10, 202437 min

Ep 200Manndráp: Shakeylia Anderson

Shakeylia Anderson var 17 ára gömul harðdugleg stelpa, með drauma um að verða starfandi hjúkurnarfræðingur í Bandaríska hernum. Hún var með munnin fyrir neðan nefið, hrein og bein og hefði án efa komist langt í lífinu hefði Bo nokkur ekki komið í veg fyrir það. Þátturinn er í boði: Fly Play Skellið ykkur erlendis í sólina, púðrið í Ölpunum eða verslunarferð í Bandaríkjunum! www.flyplay.is ÁSKRIFT www.pardus.is/mordskurinn www.instagram.com/mordskurinn www.facebook.com/mordskurinn

Jan 3, 202446 min

Ep 199Manndráp: Anne Karubin

Anne Karubin hafði ekki átt það auðvelt, en hún var einstæð þriggja barna móðir sem hafði nýverið misst vinnuna enda snérist líf hennar að mestu um að reyna að takast á við daglegt þunglyndi með drykkju. Dætur hennar voru fengnar til þess að sjá um yngsta bróður sinn og lífið var bara mjög erfitt heimafyrir. Þær systur fóru eitt kvöld út að borða með vinum sínum og þegar þær komu heim þá fundu þær móður sína látna í baðkarinu heima en krufning leiddi í ljós að móðir þeirra hafði drukknað af slysaförum. Var það samt raunverulega það sem gerðist? www.pardus.is/mordskurinn

Dec 27, 202343 min

Ep 198Manndráp: Tanya Byrd

Tanya var þriggja barna móðir, mesti stuðpinninn og dugnaðarforkur. Hún var 45 ára gömul þegar tilkynning barst til lögreglu um að hún hafi gengið út heiman frá sér og ekki sést síðan. Sama dag hafði maður í göngu með hundinn sinn, gengið fram á íþróttatösku og gert þar skelfilega uppgötvun. Fljótlega kom í ljós tenging á milli hvarfsins og töskunnar, en aldrei hefði nokkrum getað grunað hver tengdist málinu líka ÁSKRIFT www.pardus.is/mordskurinn www.instagram.com/mordskurinn www.facebook.com/mordskurinn

Dec 20, 202337 min

Ep 197Dularfullur dauði: Henry McCabe

Henry McCabe hafði verið úti að skemmta sér með vinum sínum þar til að kvöldinu lauk og einn þeirra ætlaði að skutla honum heim. Í bílnum var Henry að rífast við einhvern í símann og að lokum bað hann vin sinn um að skutla sér að bensínstöð þar sem hann ætlaði að labba heim. Þegar þangað var komið hringdi hann skrítið símtal og hvarf svo sporlaust. www.pardus.is/mordskurinn

Dec 13, 202342 min

Ep 196Manndráp: Tracy Gilpin

Tracy Gilpin var 15 ára gömul, sjálfstæð og uppátækjasöm ung kona sem hlakkaði til að verða fullorðin og eignast stóra fjölskyldu. Hún fékk því miður aldrei tækifæri til að láta draum sinn rætast. Tracy hafði átt það til að skila sér ekki heim á kvöldin og ekki vöknuðu upp neinar stórkostlegar áhyggjur þegar hún skilaði sér ekki eitt kvöldið 1986 en það skipti átti þó eftir að vera öðruvísi en öll hin. ÁSKRIFT www.pardus.is/mordskurinn www.instagram.com/mordskurinn www.facebook.com/mordskurinn

Dec 6, 202349 min

Ep 195Óupplýst: Kenzie Houk

Kenzie Houk átti von á sínu þriðja barni með manni sínum, Chris Brown. Hún var langt komin og gátu þau ekki beðið eftir að verða sex manna fjölskylda en Kenzie hafði komið sér út úr ofbeldissambandi og var í fyrsta sinn hamingjusöm. Hún fékk hinsvegar aldrei að hitta ófædda son sinn því dag einn mættu garðyrkjumenn heim til hennar og fundu fjögurra ára dóttur hennar standandi fyrir utan. Þeir urðu áhyggjufullir og hringdu því í neyðarlínuna og í kjölfarið mættu lögreglumenn á heimilið. Þeir fundu Kenzie látna í rúminu sínu en ekki tók það langan tíma fyrir þá að komast að því hver árásarmaðurinn var, eða hvað? www.pardus.is/mordskurinn www.instagram.com/mordskurinn www.facebook.com/mordskurinn

Nov 29, 202355 min

Ep 194Manndráp: Samantha Josephson

Elsku Samantha átti allt lífið framundan, laganámið sem hún hafði verið svo hörð á að hefja og klára og nýta til góðs í framtíðinni, lífið með dásamlega kærasta sínum og alls sem hún hafði hlakkað svo til að upplifa. Samantha fór út eitt kvöld í mars, ákvað að taka sér smá pásu frá bókunum til að skemmta sér aðeins með vinkonunum. Kvöldið átti að vera í styttra lagi enda átti Samantha að mæta til vinnu morguninn eftir og hafði hún ákveðið öryggisins vegna að taka Uber heim, það átti eftir að verða það síðasta sem hún gerði. ÁSKRIFT www.pardus.is/mordskurinn

Nov 22, 202354 min