PLAY PODCASTS
Sölvi Áskriftarþættir

Sölvi Áskriftarþættir

490 episodes — Page 8 of 10

S1 Ep 142#142 Nicolai Engelbrecht með Sölva Tryggva

Nicolai Engelbreght er ungur maður sem um áraraðir var fastur í verstu glæpagengjum Danmerkur, en fann svo leiðina út og hjálpar nú föngum og öðrum við að bæta líf sitt. Í þættinum fer hann yfir árin í undirheimunum, hvernig hann hefur reynt að bæta fyrir brot sín, karlmennsku og margt fleira.

Nov 16, 20221h 48m

S1 Ep 141#141 Hjalti Úrsus með Sölva Tryggva

Hjalti Úrsus Árnason er einn öflugasti aflraunamaður Íslandssögunnar. Í þættinum ræðir hann um gullaldarárin í kraftasportinu, æfingarnar og ferðalögin með Jóni Páli og réttarmorðið á syni hans, sem nýlega lést aðeins 29 ára að aldri.

Nov 14, 20221h 7m

S1 Ep 140#140 Margrét Friðriksdóttir með Sölva Tryggva

Margrét Friðriksdóttir rekur fréttamiðilinn frettin.is. Hún hefur verið mjög umdeild fyrir skoðanir sínar á undanförnum árum. Í þættinum ræðir hún föðurmissirinn, tímann þegar hún flakkaði um Indland í leit að svörum, hvatvísina og margt fleira.

Nov 9, 20221h 3m

S1 Ep 139#139 Kristján Jóhannsson: Um ástina, fjölmiðlahneykslið og stærstu stundirnar

Kristján Jóhannsson er þekktasti óperusöngvari Íslandssögunnar. Hann hefur sungið í mörgum af stærstu listahúsum heims í áratugi. Í þættinum ræða Sölvi og Kristján ótrúlegan feril Kristjáns, árin áður en stóra tækifærið kom, fjölmiðlatryllinginn í kringum styrktartónleikana um árið og margt margt fleira.

Nov 7, 202257 min

S1 Ep 138#138 Sigga Kling snýr aftur

Sigríður Klingenberg er löngu orðin landsþekkt fyrir stórmerkilegan fatastíl, spádóma og skemmtanir um allt land. Í þættinum ræða Sigga og Sölvi um ótrúlegar sögur af Siggu, getuna til að standa með sjálfum sér og margt margt fleira.

Nov 1, 20221h 5m

S1 Ep 137#137 Sergio Moreno með Sölva tryggva (Ferðin til Kólumbíu)

Sergio Moreno er ungur maður sem fæddist í versta fátækrahverfinu í Medellin í Kólombíu . Sölvi tók viðtalið þegar hann var sjálfur á ferðalagi í Suður-Ameríku. Sergio vann sig út úr fátæktinni og rekur nú ferðaþjónustui. Í þættinum lýsir hann því hvernig var að sofna við skotbardaga sem barn, sjá lík á götunum, eiga vini í verstu glæpaklíkum Kólombíu og mörgu fleiru.

Oct 27, 20221h 2m

S1 Ep 136#136 Tinna Marína með Sölva Tryggva

Tinna Marína Jónsdóttir hefur unnið til verðlauna í lyftingum aðeins örfáum árum eftir að hafa greins með MS-sjúkdóminn. Eftir að hafa farið niður í 45 kíló og farið í djúpan dal, hefur hún unnið upp þrek, líkamlegan styrk og jákvætt hugarfar á undraverðan máta. Í þættinum fara Sölvi og Tinna yfir vegferð Tinnu, allt frá keppni í Idol stjörnuleit fram á daginn í dag.

Oct 24, 20221h 27m

S1 Ep 135#135 Þór Guðnason með Sölva Tryggva (Hluti 2)

Þór Guðnason hefur starfað við að hjálpa fólki að bæta heilsu sína í 20 ár. Hann keyrði gjörsamlega á vegg eftir að hafa stofnað líkamsræktarstöðina Primal og leitaði leiða til að laga sig um allan heim. Hann fann svarið í náttúrunni. Í þættinum ræða Sölvi og Þór um hugvíkkandi efni, heilsu, líf mannfólks árið 2022 og margt fleira.

Oct 17, 20221h 2m

S1 Ep 134#134 Þór Guðnason með Sölva Tryggva (Hluti 1)

Þór Guðnason hefur starfað við að hjálpa fólki að bæta heilsu sína í 20 ár. Hann keyrði gjörsamlega á vegg eftir að hafa stofnað líkamsræktarstöðina Primal og leitaði leiða til að laga sig um allan heim. Hann fann svarið í náttúrunni. Í þættinum ræða Sölvi og Þór um hugvíkkandi efni, heilsu, líf mannfólks árið 2022 og margt fleira.

Oct 17, 202251 min

S1 Ep 133#133 Guðni Gunnars með Sölva Tryggva

Guðni Gunnarsson hefur í áratugi starfað við allt sem snýr að andlegri og líkamlegri heilsu bæði á Íslandi og erlendis. Í þættinum ræða Sölvi og Guðni um feril Guðna, árin í Los Angeles, leiðir til að bæta heilsu og margt fleira.

Oct 15, 20221h 15m

S1 Ep 132#132 Guðjón Heiðar með Sölva Tryggva

Guðjón Heiðar Valgarðsson er eins konar andlit samsæriskenninga á Íslandi. Eftir að hafa haft frekar hefðbundnar skoðanir á unga aldri varð kúvending eftir atburðina 11. september 2001. Síðan þá hefur Guðjón Heiðar efast um mjög margt sem er borið á borð fyrir okkur. Í þættinum ræða hann og Sölvi um samsæriskenningar, upplýsingaflæði, fjölmiðla og fleira.

Oct 13, 20222h 5m

S1 Ep 131#131 Haffi Haff með Sölva Tryggva

Hafsteinn Þór Guðjónsson eða Haffi Haff skaust fram á sjónarsviðið eftir vaska framgöngu í undankeppni Eurovision. Síðan þá hefur hann komið fram víða og vakið athygli hvert sem hann fer. Í þættinum fara Sölvi og Haffi yfir feril Haffa, pólariseringu í samfélaginu, trúnna, það að mega vera öðruvísi og margt fleira.

Oct 10, 20221h 11m

S1 Ep 130#130 Erna Ýr með Sölva Tryggva

Erna Ýr Öldudóttir blaðamaður hefur oft vakið athygli fyrir að ganga gegn meginstraumnum í ýmsum málum. Í þættinum fer hún yfir ferilinn í fjölmiðlum, stöðuna í heimsmálum, samfélagsgerðina á Íslandi og margt fleira.

Oct 5, 20221h 42m

S1 Ep 129129# Kristinn Sigmarsson með Sölva Tryggva

Kristinn Sigmarsson er ungur maður sem hefur sérhæft sig í öllu sem snýr að heilsu og bættum lífsstíl. Eftir að hafa ætlað að taka eigið líf aðeins 15 ára gamall lagði hann allt í sölurnar til að finna hamingjuna og starfar nú við að hjálpa fólki.

Oct 3, 20221h 43m

S1 Ep 128#128 Iaroslav með Sölva Tryggva

Iaroslav Lekhterov Kom hingað frá Úkraínu eftir að hafa flúið stríðið í heimalandinu. Eiginkona hans og barn komust úr landi, en honum var meinað að fara yfir landamærin. Eftir að hann náði loks að flýja bað konan hans um skilnað. Hann ákvað því að flytja til Íslands. Í þættinum ræðir hann um dagana sem spreningarnar byrjuðu, ótrúlegt ferðalag til að komast úr landi og hvernig það er að vera kominn í annað land allslaus eftir að hafa skilið allt eftir.

Sep 29, 202256 min

S1 Ep 127#127 Hafsteinn Núma með Sölva Tryggva

Hafsteinn Númason hefur gengið í gegnum meira en flestir. Hann hefur misst 4 börn, þar af 3 í snjóflóðinu á Súðavík, auk þess að lenda svo sjálfur í alvarlegu slysi. Í þættinum ræða Hafsteinn og Sölvi um atburðina fyrir vestan, þrautseigju, trúna á guð, tilgang og margt fleira.

Sep 26, 20221h 5m

S1 Ep 126#126 Þórhildur með Sölva tryggva

Þórhildur Magnúsdóttir er verkfræðingur sem vakið hefur athygli fyrir að tala opinberlega um að vera í opnu ástarsambandi. Í þættinum ræða Sölvi og Þórhildur um sambönd, afbrýðissemi, samfélagsnorm og margt fleira.

Sep 19, 20221h 35m

S1 Ep 125#125 Jón Steinar með Sölva Tryggva

Jón Steinar Gunnlaugsson er hæstaréttarlögmaður og prófessor í lögfræði. Hann hefur vakið athygli í gegnum árin fyrir að segja skoðanir sínar umbúðalaust. Í þættinum ræða Sölvi og Jón Steinar um samfélagsmál, fíkniefni, dómstóla og margt fleira.

Sep 14, 20221h 7m

S1 Ep 124#124 Arnþrúður Karls með Sölva Tryggva

Arnþrúður Karlsdóttir hefur starfað við fjölmiðla í 40 ár. Hún var líka ein fyrsta lögreglukona Íslands, er með 3 háskólagráður og var afrekskona í íþróttum. Í þættinum fer hún yfir ferilinn, allt frá stofnun Rásar 2 til áranna 20 á Útvarpi Sögu.

Sep 12, 20221h 24m

S1 Ep 123#123 Guðrún Bergmann með Sölva Tryggva (hluti2)

Guðrún Bergmann hefur unnið við heilsu í meira en 30 ár, auk þess að reka fyrirtæki og fleira. Í þættinum er farið yfir magnaða sögu Guðrúnar, heilsu, upplýsingar, fjölmiðla og fleira.

Sep 9, 202244 min

S1 Ep 122#122 Guðrún Bergmann með Sölva Tryggva (hluti1)

Guðrún Bergmann hefur unnið við heilsu í meira en 30 ár, auk þess að reka fyrirtæki og fleira. Í þættinum er farið yfir magnaða sögu Guðrúnar, heilsu, upplýsingar, fjölmiðla og fleira

Sep 8, 202241 min

S1 Ep 121#121 Siggi Stormur með Sölva Tryggva

Sigurður Þ. Ragnarsson hefur um árabil verið á skjám landsmanna og er löngu orðin goðsögn í íslenskum fjölmiðlaheimi. Í þættinum segir Siggi Stormur sögur af ferlinum í fjölmiðlum og stjórnmálum, ræðir opinskátt um skammdegisþunglyndi sem hann glímir við og baráttu sonar hans, sem hefur verið meira og minna í 9 mánuði á spítala.

Sep 5, 202258 min

S1 Ep 120#120 Siggi Stormur með Sölva Tryggva

Sigurður Þ. Ragnarsson hefur um árabil verið á skjám landsmanna og er löngu orðin goðsögn í íslenskum fjölmiðlaheimi. Í þættinum segir Siggi Stormur sögur af ferlinum í fjölmiðlum og stjórnmálum, ræðir opinskátt um skammdegisþunglyndi sem hann glímir við og baráttu sonar hans, sem hefur verið meira og minna í 9 mánuði á spítala.

Sep 5, 202239 min

S1 Ep 119#119 Arnar Þór með Sölva Tryggva

Arnar Þór Jónsson lögfræðingur hefur vakið athygli fyrir að vera óhræddur við að tjá óvinsælar skoðanir í fjölmiðlum undanfarin ár. Í þættinum ræða Sölvi og Arnar um hlutverk ríkisins, mikilvægi þess að vera hugrakkur, hjarðhegðun og margt fleira.

Aug 31, 20221h 25m

S1 Ep 118#118 Nökkvi Fjalar með Sölva Tryggva

Nökkvi Fjalar Orrason vakti ungur athygli með Áttunni og hefur verið í sviðsljósinu síðan. Hann býr nú í London, þar sem hann rekur fyrirtæki sitt. Í þættinum ræða Sölvi og Nökkvi um markmið, gildi, leiðir til að standa með sjálfum sér, hugrekki og margt fleira.

Aug 29, 20221h 18m

S1 Ep 117#117 Kalli Snæ með Sölva Tryggva

Guðmundur Karl Snæbjörnsson er þrautreyndur læknir sem stendur fast á sannfæringu sinni. Honum var hótað kærum og fangelsisvist af hinu opinbera í faraldrinum og segir læknum bannað að fara eftir sannfæringu sinni. Í þættinum ræða Sölvi og Guðmundur um stöðuna í samfélaginu, hvað við getum lært af faraldrinum og hvað þarf helst að óttast.

Aug 24, 20221h 37m

S1 Ep 116#116 Ögmundur Jónasson með Sölva Tryggva

Ögmundur Jónasson var um árabil andlit vinstri manna á Íslandi. Hann var þingmaður og ráðherra um árabil og starfaði einnig lengi við fjölmiðla. Í þættinum ræðir hann um ferilinn, stöðu fjölmiðla og stjórnmála, Covid tímabilið, upplýsingaóreiðu og margt fleira.

Aug 22, 20221h 16m

S1 Ep 115#115 Ásdís Rán með Sölva Tryggva

Ísdrottningin Ásdís Rán Gunnarsdóttir hefur verið ein umtalaðasta manneskja Íslands um árabil. Eftir að hafa skotist upp á sjónarsviðið ung að aldri hefur Ásdís meira og minna verið í sviðsljósinu. Í þættinum ræða Sölvi og Ásdís um árin í Búlgaríu, dularfulla milljarðamæringinn sem hvarf, sögur úr fyrirsætubransanum og margt fleira.

Aug 19, 202256 min

S1 Ep 114#114 Eva Hauksdóttir með Sölva Tryggva

Eva Hauksdóttir lögfræðingur hefur vakið mikla athygli fyrir vaska framgöngu í fjölmiðlum undanfarin ár. Hún hikstar ekki við að segja skoðanir sínar óháð tíðarandanum í samfélaginu. Í þættinum ræða Sölvi og Eva um hjarðhegðun, fjölmiðla, dómstóla og réttarkerfið og margt fleira.

Aug 17, 20221h 24m

S1 Ep 113#113 Guðni Ágústsson með Sölva Tryggva

Guðni Ágústsson fyrrverandi ráðherra er nýjasti gesturinn í podcasti Sölva. Eftir áratugi á þingi og setu í ráðherrastól er Guðni nú kappsamur um að njóta lífsins. Í þættinum ræðir hann um störfin á þinginu, umræðuna í samfélaginu, bætta heilsu og margt fleira.

Aug 16, 202257 min

S1 Ep 112#112 Ellý Ármanns snýr aftur

Ellý Ármannsdóttir varð þjóðþekkt eftir að hafa starfað sem þula á Ríkissjónvarpinu um árabil. Hún er óhrædd við að segja skoðanir sínar og fer vægast sagt sínar eigin leiðir í lífinu. Í þættinum ræðir hún um hamingjuna, stöðuna í samfélaginu, mikilvægi þess að standa með sjálfum sér og margt fleira.

Aug 10, 20221h 23m

S1 Ep 111#111 Númi Snær Katrínarson með Sölva Tryggva

Númi Katrínarson er þrautreyndur íþróttamaður og þjálfari, sem á og rekur líkamsræktarstöðina Granda 101. Númi á stórmerkilega sögu og hefur sterkar skoðanir á alls kyns hlutum. Í þættinum er farið yfir menntakerfið, tilgang í lífinu, markmið og ótalmargt fleira

Aug 10, 20222h 14m

S1 Ep 110#110 Sara Odds með Sölva Tryggva

Margrét Sara Oddsdóttir, oftast kölluð Sara Odds, er menntaður lögfræðingur, sem starfar nú sem markþjálfi. Sara hefur tekið margar U-beygjur í lífinu og hikstar ekki við að skipta um takt og vettvang ef ástríðan kallar á það. Í þættinum fara Sara og Sölvi yfir leiðir til að finna ástríðuna í lífinu, elta hjartað og margt fleira

Aug 10, 20221h 55m

S1 Ep 109#109 Haraldur Erlendsson snýr aftur

https://solvitryggva.is/ Haraldur Erlendsson er þrautreyndur geðlæknir sem vann um árabil í Bretlandi. Í þættinum ræða Sölvi og Haraldur um geðheilsu þjóðarinnar eftir Covid, trú og trúarbrögð, líf eftir dauðann og ýmislegt fleira.

Aug 10, 20221h 5m

S1 Ep 108#108 Hannes Hólmsteinn með Sölva Tryggva

Hannes Hólmsteinn hefur undanfarna áratugi verið einn umdeildasti Íslendingurinn, enda óhræddur við að segja skoðanir sínar. Í þættinum ræða Sölvi og Hannes um hugmyndafræði í stjórnmálum, hægrið og vinstrið, rétttrúnaðinn, ferðalögin til Brasilíu og margt fleira.

Jan 1, 20221h 38m

S1 Ep 106#106 Davíð Oddgeirs með Sölva Tryggva

Davíð Arnar Oddgeirsson er ungur maður sem gengið í gegnum margt á sinni stuttu ævi. Kynferðisofbeldi, alvarlegt einelti og fleira neyddu Davíð í mikla innri vinnu, sem skilaði sér í hlutum sem hann vill deila með fólki. Í þættinum ræða Davíð og Sölvi um magnaða sögu Davíðs, upplýsingar sem hann hefur fengið til sín úr ýmsum áttum, Covid tímabilið, DNA, breytingar í heiminum og margt margt fleira.

Jan 1, 20221h 30m

S1 Ep 105#105 Baldur Freyr með Sölva Tryggva

Baldur Freyr Einarsson ólst upp við hrottalegar aðstæður, þar sem harkalegt ofbeldi og neysla voru daglegt brauð. Baldur fór snemma af leið í lífinu og varð sjálfur ofbeldismaður, sem endaði með því að hann varð manni að bana og sat í fangelsi fyrir verknaðinn. Baldur hefur í áraraðir unnið við að hjálpa fólki sem villst hefur af braut í lífinu. Í þættinum ræða Sölvi og Baldur um æsku Baldurs, atvikið þar sem Baldur varð ungum manni að bana, stöðuna í íslensku samfélagi 2021 og margt fleira.

Jan 1, 20221h 16m

S1 Ep 104#104 Kristín Sigurðardóttir með Sölva Tryggva

Kristín Sigurðardóttir, slysa- og bráðlæknir vann í áraraðir við bráðalækningar bæði á Íslandi og erlendis. Í þættinum ræða Sölvi og Kristín um lækningar og heilsu, mikilvægi heildrænna lækninga með heilsueflingu og forvörnum mætist, lyklana að því að finna gleði og ástríðu og margt fleira.

Jan 1, 20221h 31m

S1 Ep 103#103 Áslaug Arna með Sölva Tryggva

Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir varð næstyngsti ráðherra Íslandssögunnar þegar hún tók við embætti dómsmálaráðherra. Hún hefur undanfarið verið í eldlínunni í umræðunni, en segist sjálf ekki kippa sér mikið upp við stóryrði margra í hennar garð. Í þættinum ræða Sölvi og Áslaug um grundvallaratriði í stjórnmálum, tímana þegar Áslaug vann á sjónum og í lögreglunni og margt fleira.

Jan 1, 20221h 15m

S1 Ep 102#102 Óttar Guðmundsson snýr aftur

Óttar Guðmundsson geðlæknir snýr aftur í podcastið. Óttar hefur í áraraðir starfað við að aðstoða fólk með geðsjúkdóma, fíknivanda og fleira. Eftir hann liggur fjöldi bóka, allt frá Ævisögu Megasar yfir í ,,Hetjur og Hugarvíl", þar sem Óttar skoðar geðsjúkdóma og persónuleikaraskanir helstu hetjanna úr Íslendingasögunum.

Jan 1, 20221h 34m

S1 Ep 101#101 Óli Stef snýr aftur

Ólafur Stefánsson snýr aftur í Podcastið. Ólafur er löngu orðinn þjóðargersemi. Einn besti handboltamaður allra tíma, sem kom heim með silfurverðlaun frá Olympíuleikunum í Peking. Í þættinum ræða hann og Sölvi um mikilvægi þess að elta draumana, ferðalög Ólafs í lífinu og margt margt fleira.

Jan 1, 20221h 47m

S1 Ep 100#100 Tommi á Búllunni

Tómas Andrés Tómasson er löngu orðin goðsögn í íslensku viðskipta- og veitingalífi. Tommi hefur verið samofin íslenskri matarmenningu í nærri 50 ár, eða allt frá því hann seldi meira en 300 þúsund hamborgara á einu ári eftir stofnun Tommaborgara. Í þættinum fara Sölvi og Tommi yfir lygilegan feril Tómasar, sem spannar allt frá 22 króna hamborgurum á Tommaborgurum yfir í eignarhald á Hard Rock, Búllunni í London og ótal fleiri hluti.

Jan 1, 20221h 58m

S1 Ep 99#99 Donna Cruz með Sölva Tryggva

Donna Cruz flutti fjögurra ára gömul til Íslands frá Filippseyjum. Hún sló nýlega í gegn fyrir hlutverk sitt í kvikmyndinni Agnes Joy, þar sem hún fór með eitt af aðalhlutverkunum. Í þættinum ræða Sölvi og Donna um leiklistina, samfélagsmiðla, falinn rasisma á Íslandi og margt fleira.

Jan 1, 20221h 0m

S1 Ep 98#98 Gunnar Smári með Sölva Tryggva

Gunnar Smári Egilsson er þrautreyndur blaðamaður, útgefandi og ritstjóri, sem hefur unnið við fjölmiðla í áratugi, en hefur nú fært sig á vettvang stjórnmálanna. Í þættinum ræða Sölvi og Gunnar um feril Gunnars Smára, íslenska fjölmiðla í gegnum tíðina, samfélagsgerðina, fátækt á Íslandi og margt fleira.

Jan 1, 20222h 3m

S1 Ep 97#97 Kári Stefáns snýr aftur

Kári Stefánsson snýr aftur í Podcastið. Í þættinum fara Kári og Sölvi yfir Covid tímabilið, hve lengi er hægt að halda áfram að grípa inn í líf fólks, mikilvægi þess að óvinsælar raddir fái að heyrast og margt fleira.

Jan 1, 20221h 39m

S1 Ep 96#96 Ásgeir Kolbeins með Sölva Tryggva

Ásgeir Kolbeinsson var um árabil einn þekktasti útvarpsmaður Íslands og hélt jafnframt úti einum langlífasta sjónvarpsþætti landsins. Hann sneri sér síðar að viðskiptum og varð eigandi vinsælla veitinga- og skemmtistaða í miðbænum. Í þættinum ræða Ásgeir og Sölvi um feril Ásgeirs, fjölmiðla, viðskipti, ástríðu í lífinu og margt fleira.

Jan 1, 20221h 33m

S1 Ep 95#95 Pétur Guðmundssson með Sölva Tryggva

Pétur Kristján Guðmundsson, kvikmyndagerðarmaður er nýjasti gesturinn í Podcasti Sölva Tryggvasonar. Pétur, sem var mikill útivistargarpur, lamaðist í slysi í Austurríki fyrir 10 árum. Hann neitaði að gefast upp, þrátt fyrir að læknar hafi sagt honum að hann myndi aldrei geta staðið upp aftur. Stóra áfallið hjá Pétri var ekki slysið sjálft, heldur þegar hann áttaði sig á því 2-3 árum síðar að hann hefði verið í harkalegri afneitun. Eftir margra ára sjálfsvinnu er hann kominn á stað þar sem hann vinnur nú við að hjálpa fólki. Í þættinum ræða Sölvi og Pétur um slysið, listina við að gefast ekki upp, hugvíkkandi efni og margt fleira.

Jan 1, 20221h 12m

S1 Ep 94#94 Héðinn Unnsteinsson með Sölva Tryggva

Héðinn Unnsteinsson, sérfræðingur í forsætisráðuneytinu og formaður Geðhjálpar er nýjasti gesturinn í Podcasti Sölva Tryggvasonar. Héðinn, sem starfaði um árabil hjá Alþjóða Heilbrigðisstofnunninni, hefur síðastliðin 25 ár unnið að geðheilbrigðismálum. Í þættinum ræða Héðinn og Sölvi um geðlækningar, mannlegt eðli, baráttu Héðins við geðhvarfasýki og margt margt fleira.

Jan 1, 20221h 53m

S1 Ep 93#93 Svanhildur Hólm með Sölva Tryggva

Svanhildur Hólm Valsdóttir er ein reyndasta fjölmiðlakona Íslands og starfaði um árabil við þáttagerð og ritstjórn á bæði RÚV og Stöð 2. Í þættinum ræða Sölvi og Svanhildur um feril Svanhildar, stöðuna í íslenskum fjölmiðlum, störfin í stjórnmálum og margt fleira.

Jan 1, 20221h 41m

S1 Ep 92#92 Jón Ásgeir með Sölva Tryggva

Jón Ásgeir Jóhannesson er einn þekktasti viðskiptamaður Íslandssögunnar. Á árunum fyrir hrun var Baugur Group fyrirtæki hans með meira en 50 þúsund starfsmenn. Svo kom hrunið, og allt það sem á eftir fylgdi. Í þættinum ræða Sölvi og Jón um feril Jóns, eitt hatrammasta tímabil Íslandssögunnar, dómsmálin, seinni hálfleik og margt fleira.

Jan 1, 20221h 45m