PLAY PODCASTS
Sölvi Áskriftarþættir

Sölvi Áskriftarþættir

490 episodes — Page 5 of 10

S1 Ep 294Skuggar - Hluti 1

Skuggar segir frá örlagaríkum tímum í lífi Sölva Tryggvasonar. Ósönn slúðursaga, þar sem hann var ranglega bendlaður við svívirðilegan glæp, fór á flug á samfélagsmiðlum og fjölmiðlar hentu hana á lofti. Við tók hvirfilbylur samfélagsumræðunnar sem jókst enn með tilkynningu um að konur hefðu kært Sölva til lögreglu. Á einni viku fór hann frá hápunkti ferils síns yfir í að missa mannorð sitt og lífsviðurværi. Fallið var hátt, Sölva var útskúfað úr samfélaginu og lagði á flótta út í lönd. Það ferðalag var ekki síður inn á við þar sem hann reyndi að skilja hvað hefði gerst og brá um leið ljósi á sína dýpstu skugga, myrkur og áföll. Sölvi leiðir lesandann með sér í þetta afdrifaríka ferðalag þar sem hann snýr öllum steinum við til að reyna að skilja hvernig þetta allt gat gerst, veltir samfélagsumræðunni fyrir sér og þætti fjölmiðla. Skuggar er uppgjör Sölva við sjálfan sig og samfélagið allt.

Jul 19, 202454 min

S1 Ep 293#293 Hilmir Hjálmarsson með Sölva Tryggva (Hluti 2)

Hilmir Petersen Hjálmarsson er öndunarþjálfari og bakari sem hefur gengið í gegnum dimma dali sem hafa mótað hann sem manneskju. Í dag segist hann þakklátur fyrir alla erfiðleikana, þar sem þeir hafi gert hann að þeim manni sem hann er og hjálpað honum að finna sannan tilgang í lífinu. Í þættinum ræða Sölvi og Hilmir um ótrúlega vegferð Hilmis, auðmýkt, þakklæti, samkennd, stöðuna í samfélaginu, andlega vakningu og fleira.

Jul 16, 20241h 1m

S1 Ep 292#292 Hilmir Hjálmarsson með Sölva Tryggva (Hluti 1)

Hilmir Petersen Hjálmarsson er öndunarþjálfari og bakari sem hefur gengið í gegnum dimma dali sem hafa mótað hann sem manneskju. Í dag segist hann þakklátur fyrir alla erfiðleikana, þar sem þeir hafi gert hann að þeim manni sem hann er og hjálpað honum að finna sannan tilgang í lífinu. Í þættinum ræða Sölvi og Hilmir um ótrúlega vegferð Hilmis, auðmýkt, þakklæti, samkennd, stöðuna í samfélaginu, andlega vakningu og fleira.

Jul 15, 202453 min

S1 Ep 291#291 Ellý Ármanns með Sölva Tryggva

Ellý Ármannsdóttir varð þjóðþekkt eftir að hafa starfað sem þula á Ríkissjónvarpinu um árabil. Hún er óhrædd við að segja skoðanir sínar og fer vægast sagt sínar eigin leiðir í lífinu. Í þættinum ræðir hún um hamingjuna, stöðuna í samfélaginu, mikilvægi þess að standa með sjálfri sér og margt fleira.

Jul 9, 20241h 18m

S1 Ep 290#290 Stefán Einar með Sölva Tryggva

Stefán Einar Stefánsson er siðfræðingur og blaðamaður sem hefur vakið mikla athygli undanfarið fyrir aðgangshörð viðtöl. Í þættinum ræða Stefán og Sölvi um fjölmiðla, samfélagsmál, skautun, rétttrúnað og margt fleira.

Jul 8, 20241h 28m

S1 Ep 289#289 Guðrún Bergmann með Sölva Tryggva

Guðrún Bergmann hefur unnið við heilsu í meira en 30 ár, auk þess að reka fyrirtæki og skrifa fjölda bóka. Í þættinum ræða Sölvi og Guðrún um heilsu, andlega vakningu, breytingar í heiminum, samsæriskenningar, fjölmiðla, og margt fleira.

Jul 2, 20241h 33m

S1 Ep 288#288 Helgi Jean með Sölva Tryggva

Helgi Jean Claessen er hlaðvarpsstjórnandi og frumkvöðull. Í þættinum ræða Sölvi og Helgi um sjálfsábyrgð, leiðir til að breytast, stóra bróður, heimsmyndir fólks og margt margt fleira.

Jun 30, 20242h 1m

S1 Ep 287#287 Gunnar Wiium með Sölva Tryggva

Gunnar Wiium er hlaðvarpsstjórnandi og smiður sem hefur víða komið við og hikstar ekki við að tjá skoðanir sínar umbúðalaust. Í þættinum ræða Sölvi og Gunnar um samfélagsmál, rétttrúnað, samsæriskenningar, hugvíkkandi efni, sátt, kærleika og margt margt fleira.

Jun 25, 20241h 34m

S1 Ep 286#286 Gulli Helga með Sölva Tryggva

Jun 23, 20241h 26m

S1 Ep 285#285 Brynjar Níelsson með Sölva Tryggva

Brynjar Níelsson hefur lengi verið þekktur fyrir að þora að viðra skoðanir sem fæstir þora að tjá og hefur oft bakað sér óvinsældir fyrir vikið. Í þættinum ræða Sölvi og Brynjar um hugrekki, þor, hve mikil umsvif ríkisins eigi að vera, mikilvægi þess að kjósendur viti hvar þeir hafi þá sem þeir kjósa til valda og margt margt fleira.

Jun 18, 20241h 44m

S1 Ep 284#284 Brynjar Karl með Sölva Tryggva

Brynjar Karl Sigurðsson er án vafa umdeildasti þjálfari Íslands. Hann hefur undanfarin ár þjálfað ungar stúlkur í körfubolta, sem spila nú með íþróttafélaginu Aþenu. Í þættinum ræða Sölvi og Brynjar um skapgerð, hugrekki, samfélagið, þjálfun og margt margt fleira.

Jun 16, 20241h 44m

S1 Ep 283#283 Frosti Loga snýr aftur

Frosti Logason er þrautreyndur fjölmiðlamaður sem nýverið stofnaði fjölmiðilinn Brotkast. Frosti er þekktur fyrir að segja það sem hann hugsar og fjalla um mál sem margir leggja ekki í. Í þættinum ræða Frosti og Sölvi um stöðu fjölmiðla í heiminum, ritskoðun, matrix-ið og samsæriskenningar, stöðuna í íslensku samfélagi og margt fleira.

Jun 11, 20241h 45m

S1 Ep 282#282 Egill Ólafsson með Sölva Tryggva

Egill Ólafsson er löngu orðin goðsögn í íslensku menningarlífi. Hann á að baki magnaðan feril sem spannar áratugi í bæði tónlist og leiklist. Egill greindist nýverið með Parkinson sjúkdóminn og ákvað strax að tala um þá baráttu opinberlega. Í þættinum fara Sölvi og Egill yfir feril Egils, baráttuna við Parkinson, íslenskt samfélag, leiðir til að finna þakklæti og hamingju og margt margt fleira.

Jun 9, 20241h 2m

S1 Ep 281#281 Logi Pedro með Sölva Tryggva

Logi Pedro Stefánsson er tónlistarmaður sem skaust hratt upp á stjörnuhimininn og hefur verið í sviðsljósinu síðan hann var mjög ungur. Í þættinum ræða Sölvi og Logi um uppreisnareðli, listir og sköpun, sjálfsábyrgð, pólariseringu í samfélaginu og margt margt fleira.

Jun 5, 20241h 24m

S1 Ep 280#280 Kristján Þór með Sölva Tryggva

Kristján Þór Gunnarsson er læknir sem er óhræddur við að ræða um mikilvæg mál. Í þættinum ræða Sölvi og Kristján um heilsu, lækningar, samfélagssjúkdóma, faraldur heilsuleysis í tengslum við breytingar á lífsstíl og margt fleira.

Jun 3, 20241h 27m

S1 Ep 279#279 Baltasar Kormákur með Sölva Tryggva

Baltasar Kormákur er farsælasti leikstjóri Íslandssögunnar. Hann braut sér leið inn í Hollywood, þar sem hann hefur leikstýrt fjölmörgum myndum og samhliða opnað tækifæri fyrir marga Íslendinga í kvikmyndabransanum. Í þættinum ræða Sölvi og Baltasar um magnaða sögu þessa merkilega manns, viðskipti, hugrekki, sýn á framtíðina, sjálfsvinnu og margt margt fleira.

May 29, 20241h 28m

S1 Ep 278#278 Júlía Óttarsdóttir með Sölva Tryggva

Júlía Óttarsdóttir er mögnuð ung kona sem hefur verið óhrædd við að fara sínar eigin leiðir í lífinu. 19 ára gömul sneri hún baki við djamminu, flutti úr landi og skipti gjörsamlega um takt í lífinu. Í þættinum ræða Sölvi og Júlía um andlega vakningu, heilsu, sjálfsábyrgð, náttúruna og landið okkar og margt fleira.

May 26, 20241h 42m

S1 Ep 277#277 Birgir Örn með Sölva Tryggva (Hluti 2)

Birgir Örn Sveinsson á stórmerkilega sögu og var meðal annars fyrstur til að koma með Ayahuasca til Íslands eftir að hafa búið í Amazon frumskóginum. Í þættinum ræða hann og Sölvi um Miklahvell, sögu mannsins, hugvíkkandi efni, stöðuna í heiminum og margt fleira.

May 23, 20241h 8m

S1 Ep 276#276 Birgir Örn með Sölva Tryggva (Hluti 1)

Birgir Örn Sveinsson á stórmerkilega sögu og var meðal annars fyrstur til að koma með Ayahuasca til Íslands eftir að hafa búið í Amazon frumskóginum. Í þættinum ræða hann og Sölvi um Miklahvell, sögu mannsins, hugvíkkandi efni, stöðuna í heiminum og margt fleira.

May 21, 202456 min

S1 Ep 275#275 Svali Kaldalóns með Sölva Tryggva

Svali Kaldalóns er einn reyndasti útvarpsmaður Íslands. Hann hafði starfað í áratugi í fjölmiðlum þegar hann skipti um takt og flutti með allri fjölskyldunni til Tenerife til að elta óvissuna og drauminn um nýtt líf. Í þættinum ræða Sölvi og Svali um fjölmiðla, heilsu, samfélagsmál, Tenerife-ævintýrið, krísuna við að verða miðaldra og margt fleira.

May 19, 20241h 31m

S1 Ep 274#274 Arnar og Hrafnhildur með Sölva Tryggva

Hjónin Arnar Þór Jónsson og Hrafnhildur Sigurðardóttir standa þétt saman í báráttunni í kosningunum um forseta Íslands. Í þættinum ræða þau mikilvægi þess að tengjast innsæinu og finna hugrekkið til að standa með eigin sannleika. Stöðuna í heiminum, andlega vakningu og margt margt fleira.

May 15, 20241h 30m

S3 Ep 273#273 Kári Stefánsson snýr aftur

Kári Stefánsson snýr aftur í Podcastið. Í þættinum ræða Kári og Sölvi um átökin í heiminum, forsetakosningarnar, hugvíkkandi efni, tilvist guðs, Covid tímabilið og margt fleira.

May 13, 20241h 20m

S1 Ep 272#272 Laufey Karítas með Sölva Tryggva

Laufey Karítas Einarsdóttir er yogakennari, margföld móðir og fyrrverandi yfirmaður á framabraut, sem skipti algjörlega um takt eftir að lífið tók í taumana. Hún fékk heilablóðfall eftir áraraðir af streitu og kapphlaupi við að þóknast öðrum en sjálfri sér. Á einu augabragði sá hún hvað var mikilvægt í lífinu og gjörbreytti öllu.

May 8, 20241h 30m

S1 Ep 271#271 Einar Ágúst með Sölva Tryggva

Einar Ágúst Víðisson varð þjóðþekktur sem söngvari hljómsveitarinnar Skítamórals, sem var á sínum tíma vinsælasta hljómsveit Íslands. Einar var á beinu brautinni sem tónlistarmaður þegar hann missti öll tök á tilverunni, endaði í mjög slæmum félagsskap og fór á kaf í neyslu. Einar hefur gengið í gegnum hluti sem fæstir geta gert sér í hugarlund. Hér ræða hann og Sölvi um stærstu sigrana, myrkustu tímabilin, leitina að sjálfinu og þakklæti Einars fyrir að vera enn á lífi.

May 5, 20241h 15m

S1 Ep 270#270 Höddi Magg með Sölva Tryggva

Hörður Magnússon er einn reyndasti íþróttafréttamaður Íslands sem hefur verið á skjám landsmanna í áraraðir. Í þættinum ræða Sölvi og Hörður um feril Harðar, fjölmiðla, samfélagsmiðla hitann í íþróttum, hjarðhegðun, rétttrúnað og margt margt fleira.

May 1, 20241h 32m

S1 Ep 269#269 Linda Pé með Sölva Tryggva

Linda Pétursdóttir er löngu orðin landsþekkt sem frumkvöðull og alheims fegurðardrottning. Hér ræða hún og Sölvi um stórmerkilegt lífshlaup þessarar mögnuðu konu, heilsu, sigra, sorgir og margt fleira.

Apr 29, 20241h 2m

S1 Ep 268#268 Guðni Gunnars Snýr aftur

Guðni Gunnarsson er lífsstílsráðgjafi og einn af helstu frumkvöðlum Íslands á sviði heilsuræktar. Hann hefur svo áratugum skiptir unnið með fólki um allan heim þegar kemur að heilsu. Í þættinum ræða hann og Sölvi um andlega og líkamlega heilsu, helstu verkefni fólks í átt að betra lífi og margt fleira.

Apr 24, 20241h 2m

S1 Ep 267#267 Steinunn Ólína með Sölva Tryggva

Leikkonan Steinunn Ólína Þorsteinsdóttir á að baki magnaðan feril og lífshlaup. Í þættinum ræða Sölvi og Steinunn um sorgir, sigra, samfélagsmál, forsetaembættið og margt fleira.

Apr 21, 20241h 2m

S1 Ep 266#266 Ásdís Rán snýr aftur

Ísdrottningin Ásdís Rán Gunnarsdóttir hefur verið ein umtalaðasta manneskja Íslands um árabil. Henni skaut hratt upp á sjónarsviðið þegar hún var ung að aldri og síðan hefur hún meira og minna verið í sviðsljósinu. Í þættinum ræða Sölvi og Ásdís um forsetaframboðið árin í Búlgaríu, dularfulla sögur úr fyrirsætubransanum og margt fleira.

Apr 17, 202447 min

S1 Ep 265#265 Jón Gnarr með Sölva Tryggva

Jón Gnarr hefur víða komið við og á stórmerkilegt lífshlaup. Utanveltu í skóla og hélt að allar dyr væru lokaðar, en svo fann hann leiklistina og grínið. Eftir fjölmörg farsæl ár skipti hann svo um takt og fór í stjórnmál og varð á endanum borgarstjóri. Nú gefur hann kost á sér á Bessastaði. Í þættinum fara Sölvi og Jón yfir magnaðan feril Jóns, grín, stjórnmál, forsetaembættið og margt fleira.

Apr 14, 20241h 10m

S1 Ep 264#264 Gummi Emil snýr aftur

Guðmundur Emil Jóhannsson er einkaþjálfari og heilsufrömuður sem er ástríðufullur um allt sem snýr að heilsu. Gummi Emil hefur vakið mikla athygli fyrir myndbönd sín á samfélagsmiðlum, þar sem hann fer oft ótroðnar slóðir og leggur línurnar fyrir heilsusamlegan lífsstíl.

Apr 9, 20241h 9m

S1 Ep 263#263 Ívar Orri með Sölva Tryggva (Hluti 2)

Ívar Orri Ómarsson er frumkvöðull og rekstarmaður sem hefur undanfarið vakið mikla athygli fyrir boðskap sinn um heilbrigðan lífsstíl á samfélagsmiðlum. Hann segir sjálfur að þegar hann greindist með sykursýki hafi hann fengið andlega vakningu og gjörbreytt lífi sínu. Í þættinum ræða Sölvi og Ívar um sögu Ívars, heilbrigðan lífsstíl og heilsu, hugrekki, karlmennsku, blekkingar í kerfinu og margt fleira.

Apr 9, 20241h 2m

S1 Ep 262#262 Ívar Orri með Sölva Tryggva (Hluti 1)

Ívar Orri Ómarsson er frumkvöðull og rekstarmaður sem hefur undanfarið vakið mikla athygli fyrir boðskap sinn um heilbrigðan lífsstíl á samfélagsmiðlum. Hann segir sjálfur að þegar hann greindist með sykursýki hafi hann fengið andlega vakningu og gjörbreytt lífi sínu. Í þættinum ræða Sölvi og Ívar um sögu Ívars, heilbrigðan lífsstíl og heilsu, hugrekki, karlmennsku, blekkingar í kerfinu og margt fleira.

Apr 7, 202450 min

S1 Ep 261#261 Arnar Þór með Sölva Tryggva

Arnar Þór Jónsson er lögfræðingur sem nýlega bauð sig fram til forseta. Hann hefur á undanförnum árum ekki hikstað við að tala um mál sem flestir þora ekki að snerta á. Í þættinum ræða Arnar og Sölvi um frelsi, forsetaemættið, stöðu ríkisins, mikilvægi hugrekkis og margt fleira.

Apr 1, 20241h 1m

S1 Ep 260#260 Árni Pétur með Sölva Tryggva

Árni Pétur Guðjónsson er leikari og leiðsögumaður sem hefur átt viðburðarríkt lífshlaup. Í þættinum ræða Sölvi og Árni um stórmerkilega sögu Árna, árin í kommúnum, leiklistina, réttrúnað og margt fleira.

Mar 24, 20241h 19m

S1 Ep 259#259 Kristján Gilbert með Sölva Tryggva

Kristján Gilbert er yogakennari, húðflúrari og markþjálfi sem fer sínar eigin leiðir í lífinu. Í þættinum ræða Sölvi og Kristján um Matrixið, faldar leiðir til heilsueflingar, samsæriskenningar, hugvíkkandi efni og margt fleira.

Mar 17, 20241h 2m

S1 Ep 258#258 Frosti og Sölvi

Áður óbirtur þáttur þar sem Sölvi mætir til Frosta og þeir ræða á mannamáli um slaufunarmenningu, bók Sölva, viðtalið við Pútín, samfélagsmál og fleira.

Mar 13, 20241h 43m

S1 Ep 257#257 Gunnar Ársæll með Sölva Tryggva

Gunnar Ársæll Ársælsson er fyrrverandi afreksmaður í sundi og keppandi í vaxtarrækt. Hann lýsir í þættinum mögnuðu lífshlaupi, tímum á ystu nöf notkun efna og svo lygilegu ferli andlegrar vakningar þar sem fólkið í kringum hann var sannfært um að hann væri að missa vitið.

Mar 10, 20241h 25m

S1 Ep 256#256 Sölvi með Ásgeiri, Heru og Gunnlaugi

Mar 5, 20241h 20m

S1 Ep 255#255 Kristín Sigurðardóttir með Sölva Tryggva

Kristín Sigurðardóttir, slysa- og bráðlæknir vann í áraraðir við bráðalækningar bæði á Íslandi og erlendis, en rekur nú fyrirtækið ,,Á heildina litið". Í þættinum ræða Sölvi og Kristín um lækningar og heilsu, mikilvægi heildrænna lækninga, lyklana að því að finna gleði og ástríðu og margt fleira.

Mar 3, 202456 min

S1 Ep 254#254 Ásgeir Kolbeins með Sölva Tryggva

Ásgeir Kolbeinsson var um árabil einn þekktasti útvarpsmaður Íslands og hélt jafnframt úti einum langlífasta sjónvarpsþætti landsins. Hann sneri sér síðar að viðskiptum og varð eigandi vinsælla veitinga- og skemmtistaða í miðbænum. Í þættinum ræða Ásgeir og Sölvi um feril Ásgeirs, fjölmiðla, viðskipti, stjörnuspeki og margt fleira.

Feb 25, 20241h 33m

S1 Ep 253#253 Nicolai Engelbrecht snýr aftur

Nicolai Engelbrecht var í áraraðir fastur í verstu glæpagengjum Danmerkur, þar sem hann var á tímabili nær dauða en lífi með stórhættulega menn á eftir sér. En eftir að hafa náð botninum fann hann leiðina út. Hann ferðaðist í kjölfarið víðs vegar um heiminn og lærði öndun, bardagalistir, hugleiðslu og margt fleira af fólki í öllum heimsálfum. Í dag kennir hann bæði föngum og öðru fólki allar þær aðferðir sem hann hefur lært til að færa líf sitt í jafnvægi.

Feb 20, 20241h 17m

S1 Ep 252#252 Arnór Sveinsson með Sölva Tryggva

Arnór Sveinsson er sérfræðingur í öndunar- og kuldaþjálfun sem hefur undanfarin ár eingöngu unnið við að aðstoða fólk við að koma taugakerfinu og líkamanum í betra stand. Arnór skipti algerlega um takt í lífinu eftir að hafa misst frænda sinn og náinn vin í hræðilegu slysi. Hann hafði í áraraðir verið sjómaður og djammaði mikið á milli túra. En eftir slysið leitaði hann á önnur mið og ferðaðist víða um heim til að læra alls kyns hluti sem snúa að heilsu. Í þættinum ræða Sölvi og Arnór um stórmerkilega sögu Arnórs, leiðir til að finna jafnvægi, kuldaþjálfun, öndun, taugakerfið og margt fleira.

Feb 18, 20241h 15m

S1 Ep 251#251 Þór Guðnason með Sölva Tryggva

Feb 13, 20241h 19m

S1 Ep 250#250 Davíð Bergmann með Sölva Tryggva

Davíð Bergmann hefur í áratugi starfað með börnum og unglingum í vanda og brennur fyrir málaflokkinn. Honum var sjálfum hafnað af skólakerfinu og segist sjá sjálfan sig í krökkunum sem hann vinnur með. Í þættinum ræða Sölvi og Davíð um sögu Davíðs, afbrot, undirheima, leiðir til úrbóta og margt fleira.

Feb 11, 20241h 7m

S1 Ep 249#249 Guðrún Bergmann með Sölva Tryggva

Guðrún Bergmann hefur unnið við heilsu í meira en 30 ár, auk þess að reka fyrirtæki, skrifa fjölda bóka og margt fleira. Í þættinum ræða Sölvi og Guðrún um heilsu, samfélagsmál, fjölmiðla, samsæriskenningar og margt fleira.

Feb 6, 20241h 3m

S1 Ep 248#248 Gunnlaugur Guðmundsson með Sölva Tryggva

Gunnlaugur Guðmundsson er reyndasti stjörnuspekingur Íslands og á magnaða sögu. Í þættinum ræða Sölvi og Gunnar um stjörnuspeki, hvað er að gerast í heiminum, árin þar sem Gunnlaugur flakkaði um og leitaði að tilgangnum og margt fleira.

Feb 4, 20241h 36m

S1 Ep 247#247 Gunnar Wiium - Frelsandi að vera berrassaður

Gunnar Wiium er hlaðvarpsstjórnandi og smiður semi hefur víða komið við. Í þættinum ræða Sölvi og Gunnar um samfélagsmál, neyslu, græðgi, hugvíkkandi efni, naktar gufuferðir og margt margt fleira.

Jan 31, 20241h 39m

S1 Ep 246#246 Kristján Gíslason - Ég klökkna enn þegar ég hugsa um þau

Eftir að hafa selt fyrirtæki sem hann byggði upp ákvað Kristján Gíslason að tími ævintýranna væri runninn upp. Árið 2014 fór hann hringinn í kringum hnöttinn á mótorhjóli einn síns liðs. Síðan þá hefur hann farið einn yfir alla Afríku, farið í syðstu hluta Suður-Ameríku og margt fleira. Í þættinum fer Kristján yfir ótrúlegar sögur af ævintýrum sínum á mótorhjólinu, hvað hann hefur lært af því að sjá heiminn og margt fleira.

Jan 28, 20241h 29m

S1 Ep 245#245 Brynjar Níelsson með Sölva Tryggva

Brynjar Níelsson er lögfræðingur og fyrrverandi þingmaður. Í þættinum ræða Sölvi og Brynjar um umsvif ríkisins, stóra bróður, innflytjendamál, réttrúnað og margt margt fleira.

Jan 23, 20241h 15m