PLAY PODCASTS
Sölvi Áskriftarþættir

Sölvi Áskriftarþættir

490 episodes — Page 6 of 10

S1 Ep 244#244 Sveinn Kjartansson með Sölva Tryggva

Sveinn Kjartansson matreiðslumeistari greindist með HIV veiruna á fyrri hluta níunda áratugarins. Hann lýsir því í þættinum hvernig var að ganga með þessa handsprengju innanklæða á tíma þar sem útskúfunin var algjör. Neyslunni sem kom í kjölfarið og endaði á að fara með hann alla leið á botninn og svo upprisunni og fegurðinni í lífi hans í dag.

Jan 22, 20241h 6m

S1 Ep 243#243 Heimir Hannesson með Sölva Tryggva

Heimir Hannesson er blaðamaður og frumkvöðull sem talar tæpitungulaust. Í þættinum ræða Sölvi og Heimir um fjölmiðla, stjórnmál, stöðuna í samfélaginu, ferðalög og margt fleira.

Jan 16, 20241h 20m

S1 Ep 242#242 Haraldur Erlendsson með Sölva Tryggva

Haraldur Erlendsson er þrautreyndur geðlæknir sem starfaði um árabil í Bretlandi og síðar sem forstjóri Heilsustofnunar í Hveragerði. Í þættinum ræða Sölvi og Haraldur um fjórða valdið, hugvíkkandi efni, lífsstílssjúkdóma, stöðuna í samfélaginu og margt fleira.

Jan 15, 20241h 24m

S1 Ep 241#241 Sölvi hjá götustrákum

Áður óbirtur þáttur þar sem Sölvi mætir í viðtal hjá Götustrákum og fer yfir ferilinn, slaufunina og margt fleira.

Jan 10, 20241h 20m

S1 Ep 240#240 Beggi Ólafs með Sölva Tryggva

Sálfræðingurinn Bergsveinn Ólafsson stefndi árum saman að því að verða atvinnumaður í knattspyrnu. Eftir að hafa lagt allt í boltann áttaði hann sig á því að ástríðan var farin og lagði skóna á hilluna og setti alla sína krafta í að læra og miðla meiru í sálfræðinni. Hann býr nú í Kaliforníu, þar sem hann er í doktorsnámi. Í þættinum ræða Sölvi og Beggi um hugrekki, karlmennsku, sannleikann, lífið í Los Angeles og margt fleira.

Jan 7, 20241h 13m

S1 Ep 239#239 Sigurjón Ernir með Sölva Tryggva

Sigurjón Ernir Sturluson er ofurhlaupari og afreksíþróttamaður sem lætur ekkert stoppa sig og hefur framkvæmt ótrúlega hluti í gegnum tíðina. Í þættinum fara Sigurjón og Sölvi yfir alla helstu þætti í heilsu, magnaða vegferð Sigurjóns, ástríðu, leiðir til að framkvæma það sem við vitum að er gott fyrir okkur og margt fleira.

Jan 3, 20241h 18m

S1 Ep 238#238 Eva Katrín með Sölva Tryggva

Eva Katrín Sigurðardóttir er læknir sem keyrði sig gjörsamlega í þrot eftir að hafa haldið of mörgum boltum á lofti of lengi. Eftir langa þrautagöngu endaði hún á að finna lausnina í kuldaþjálfun og öndun. Í þættinum ræða Sölvi og Eva um magnaða sögu Evu, heilsu, kulda, öndun og margt margt fleira.

Jan 1, 20241h 23m

S1 Ep 237#237 Kjartan Guðbrandsson með Sölva Tryggva

Kjartan Guðbrandsson einkaþjálfari er líklega eini Íslendingurinn sem hefur sigrað keppnir í kraftlyftingum, vaxtarækt, aflraunum og fitness. Hann byrjaði að æfa með Jóni Páli Sigmarssyni, margföldum sterkasta manni heims, sem unglingur og var með honum á æfingunni þegar Jón Páll lét lífið. Í þættinum ræða Sölvi og Kjartan um þetta magnaða lífshlaup, leiðirnar til að finna sátt og hamingju, ný verkefni Kjartans og margt fleira.

Dec 26, 20231h 31m

S1 Ep 236#236 Simmi Vill með Sölva Tryggva

Sigmar Vilhjálmsson var í áraraðir einn þekktasti sjónvarpsmaður Íslands, bæði á árunum í 70 mínútum og síðar sem aðalkynnir í ,,Idol Stjörnuleit". Síðar stofnaði hann Hamborgarafabrikkuna og hefur á undanförnum árum verið í rekstri ýmissa fyrirtækja. Sigmar notar nú samfélagsmiðla til að fá útrás fyrir þörfina við að gefa út efni og nýtur þar mikilla vinsælda. Í þættinum ræða Sölvi og Sigmar um hvað drífur hann áfram, hvað þarf til að vera frumkvöðull , atburðarrásina í kringum mál Sölva, fjölmiðla og samfélagsmál.

Dec 17, 20231h 49m

S1 Ep 235#235 Sigga Kling með Sölva Tryggva

Sigríður Klingenberg, betur þekkt sem Sigga kling, hefur skemmt Íslendingum um árabil með spádómum, bingókvöldum, karókí-kvöldum og mörgu fleiru. Sigga segir sjálf að ferill hennar sé ein stór afleiðing af því að kunna að segja alltaf já, sama hvernig manni líður. Í þættinum ræða Sigga og Sölvi um mikilvægi þess að njóta hvers dags, hlæja mikið, fara yfir stórmerkilegan feril Siggu og margt fleira.

Dec 10, 202359 min

S1 Ep 234#234 Arnar Þór Jónsson með Sölva Tryggva

Arnar Þór Jónsson er lögfræðingur og varþingmaður sem hefur vakið athygli fyrir að hika ekki við að tala um mál sem flestir þora ekki að snerta á. Í þættinum ræða Arnar og Sölvi um frelsi, stöðu ríkisins, sögu ógnarstjórna, mikilvægi hugrekkis í nútímanum og margt fleira.

Dec 5, 202358 min

S1 Ep 233#233 Bergþór Másson með Sölva Tryggva

Bergþór Másson er hlaðvarpsstjórnandi, umboðsmaður og meistaranemi. Í þættinum ræða Sölvi og Bergþór um samfélagsmál, heimspeki, listir og margt fleira.

Dec 4, 20231h 27m

S1 Ep 232#232 Valdimar Flygenring með Sölva Tryggva

Valdimar Örn Flygenring er leikari og tónlistarmaður sem hefur marga fjöruna sopið. Í þættinum fara Sölvi og Valdimar yfir magnað lífshlaup Valdimars, hollywood, neysluna, ábyrgð, ástríðu og margt fleira.

Nov 27, 20231h 14m

S1 Ep 231#231 Erna Ýr með Sölva Tryggva

Nov 22, 20231h 38m

S1 Ep 230#230 Þórarinn Hjartarson með Sölva Tryggva

Þórarinn Hjartarson er hlaðvarpsstjórnandi og pistlahöfundur sem vakið hefur athygli á undanförnum misserum. Í þættinum fara Sölvi og Þórarinn yfir rétttrúnað, ritskoðun, fórnarlambavæðingu og margt margt fleira.

Nov 19, 20231h 32m

S1 Ep 229#229 Axel Pétur með Sölva Tryggva

Axel Pétur Axelsson hefur oft verið kallaður samsæringur Íslands. Hann hefur í áraraðir talað um hluti sem eru mjög langt fyrir utan boxið. Í seinni tíð hefur margt af því sem Axel hefur talað um raungerst. Í þættinum fara Axel og Sölvi yfir allt það helsta og nýjasta í samsæriskennigum og stöðuna í heiminum.

Nov 14, 20231h 5m

S1 Ep 228#228 Frosti Logason með Sölva Tryggva

Frosti Logason er þrautreyndur fjölmiðlamaður sem nýverið stofnaði fjölmiðilinn Brotkast. Frosti er þekktur fyrir að ræða málin tæpitungulaust og hefur í gegnum tíðina hleypt öllum röddum að í viðtöl. Í þættinum ræða Frosti og Sölvi um útskúfunarmenningu, mikilvægi þess að stoppa ritskoðun í fjölmiðlum, stöðuna í íslensku samfélagi og margt fleira.

Nov 12, 20231h 15m

S1 Ep 227#227 Rannveig Borg með Sölva Tryggva

Rannveig Borg er lögfræðingur og rithöfundur sem er búsett og starfar í Sviss. Í þættinum ræða Sölvi og Rannveig um sögu Rannveigar, ástríðu, fíknir, ADHD, samfélagsmál og margt fleira.

Nov 5, 20231h 17m

S1 Ep 226#226 Gunnar Wiium með Sölva Tryggva

Gunnar Wiium er hlaðvarpsstjórnandi og smiður semi hefur marga fjöruna sopið. Í þættinum ræða Sölvi og Gunnar um samfélagsmál, karlmennsku, upplýsingaflæði, vakningu í heiminum og margt fleira.

Oct 31, 20231h 42m

S1 Ep 225#225 Snorri Másson með Sölva Tryggva

Snorri Másson er ungur fjölmiðlamaður sem þegar hefur látið mikið að sér kveða. Eftir að hafa unnið á Morgunblaðinu og Stöð2 ákvað hann að stofna sinn eigin fjölmiðil ritstjori.is. Í þættinum ræða Sölvi og Snorri um fjölmiðla fyrr og nú, nýjar leiðir í miðlun upplýsinga, samfélagið, skoðanamyndun og margt margt fleira.

Oct 29, 20231h 31m

S1 Ep 224#224 Jens læknir með Sölva Tryggva

Jens K. Guðmundsson er einn fyrsti læknirinn á Íslandi sem stundar svokallað ,,functional medicine" eða heildrænar lækningar. Í þættinum ræða Sölvi og Jens um heilsu, lækningar, forvarnir og margt fleira.

Oct 25, 202359 min

S1 Ep 223#223 Chris Burkard með Sölva Tryggva

Chris Burkard er ljósmyndari og ævintýramaður sem á ótrúlegt lífshlaup þrátt fyrir ungan aldur. Hann er með nærri fjórar milljónir fylgjenda á Instagram, enda ljósmyndir hans í algjörum heimsklassa. Í þættinum ræða Sölvi og Chris um ástríðu hans fyrir Íslandi, svaðilfarir um allan heim, leitina að bestu ljósmyndinni og margt fleira.

Oct 22, 20231h 28m

S1 Ep 222#222 Ari Jónsson með Sölva Tryggva

Ari Jónsson er ungur maður sem aðstoðar nú annað fólk við þjálfun á hugarfari eftir að hafa sjálfur gengið í gegnum margt á stuttri ævi. Í þættinum ræða Sölvi og Ari um vana, hvatningu, andlega vakningu, hugarfar og margt fleira.

Oct 15, 20231h 1m

S1 Ep 221#221 Sara Odds með Sölva Tryggva

Margrét Sara Oddsdóttir er ráðgjafi og markþjálfi. Í þættinum ræða hún og Sölvi um heiðarleika, samanburð, skuggavinnu, ástríðu, leiðir til að bæta sjálfan sig og margt margt fleira.

Oct 12, 20231h 50m

S1 Ep 220#220 Bogi Jónsson með Sölva Tryggva

Bogi Jónsson er frumkvöðull og þúsundþjalasmiður sem á ótrúlegt líshlaup. Sem unglingur sniffaði hann lím daglega í tvö ár sem og segist stálheppinn að hafa komist lífs af. Hann hefur í gegnum tíðina framkvæmt ólíklegustu hluti eins og að opna fyrsta tælenska veitingastað landsins, byrja með kínarúllustað á Lækjatorgi læra nudd í Tælandi og fleira og fleira.

Oct 8, 20231h 22m

S1 Ep 219#219 Siggi Jóhannesson með Sölva Tryggva

Siggi Jóhannesson er flugumferðarstjóri og fyrirtækjaeigandi. Í þættinum ræða Sölvi og Siggi um áskoranir þess að eiga langveikt barn, baráttuna við kerfið, CBD og kannabis, að halda í gleði og hamingju í gegnum erfiða tíma og margt fleira.

Oct 1, 20231h 5m

S1 Ep 218#218 Ingólfur Davíð með Sölva Tryggva

Ingólfur Davíð Sigurðsson þurfti að fara í gegnum þá lífsreynslu að jarða son sinn eftir of stóran skammt af lyfjum. Ingólfur endaði sjálfur oft í fangaklefum sem ungur maður eftir að hafa verið hafnað af skólakerfinu, þar sem hann var ýmist kallaður heimskur eða óþekkur. Í þættinum ræða Sölvi og Ingólfur um stöðu ungra unga karlmanna sem enda annað hvort látnir eða festast í fangelsum, reynslu Ingólfs af því að missa barn, getuna og viljann til að halda áfram eftir áföll og margt fleira.

Sep 24, 20231h 20m

S1 Ep 216#216 Sólveig Anna með Sölva Tryggva

Sólveig Anna Jónsdóttir er formaður Eflingar og hefur undanfarin ár staðið í ströngu. Í þættinum ræða Sölvi og Sólveig um baráttuna fyrir jöfnuði, sögu Sólveigar, fjölmiðla, stjórnmál og fleira.

Sep 17, 20231h 17m

S1 Ep 215#215 Gunnar Wiium með Sölva Tryggvai

Gunnar Wiium er kennari og hlaðvarpsstjórnand semi hefur marga fjöruna sopið. Í þættinum ræða Sölvi og Gunnar um samfélagsmál, geimverur, samsæriskenningar og margt fleira.

Sep 13, 20231h 41m

S1 Ep 214#214 Gísli Gíslason með Sölva Tryggva

Gísli Gíslason athafnamaður hefur átt ótrúlega viðburðaríkt líf. Maðurinn sem kom með Teslu til Íslands, hefur ferðast til 70 landa og er á leiðinni upp í geim. Í þættinum ræða Sölvi og Gísli um magnað lífshlaup Gísla, frumkvöðladrifkraftinn, hamingjuríkt líf og margt margt fleira.

Sep 10, 20231h 7m

S1 Ep 213#213 Páll Magnússon með Sölva Tryggva

Páll Magnússon er einn reyndasti fjölmðlamaður Íslandssögunnar. Í þættinum ræða Sölvi og Páll um magnaðan feril Páls, sögur í gegnum tíðina, stöðu fjölmiðla, baráttuna við Bakkus og margt fleira.

Sep 3, 20231h 20m

S1 Ep 212#212 Þór Guðnason með Sölva Tryggva

Þór Guðnason hefur unnið við að hjálpa fólki að bæta heilsu sína í áratugi. Í þessum þætti ræða Sölvi og Þór um heilsu, stöðuna í samfélaginu, rétttrúnaðinn, hugvíkkandi efni, kerfið og fleira.

Aug 29, 20231h 26m

S1 Ep 211#211 Birkir Vagn með Sölva Tryggva

Birkir Vagn Ómarsson er einkaþjálfari og íþróttafræðingur. Í þættinum ræða Sölvi og Birkir um heilsu, samfélagsmál, Covid-tímabilið, feril Birkis og margt fleira.

Aug 27, 202357 min

S1 Ep 210#210 Arnar Þór með Sölva Tryggva

Arnar Þór Jónsson er lögfræðingur og varþingmaður sem hefur vakið athygli fyrir hugrekki og að hiksta ekki við að tala um mál sem aðrir snerta ekki á. Í þættinum ræða Arnar og Sölvi um fasisma, frelsi, hlutverk ríkisins, mikilvægi hugrekkis og margt fleira.

Aug 20, 20231h 10m

S1 Ep 209#209 Magnús Skjöld með Sölva Tryggva

Magnús Árni Skjöld Magnússon er stjórnmálafræðingur og háskólakennari. Í þættinum ræða Magnús og Sölvi um það hvernig Magnús endaði sem yogakennari í Kabúl í Afghanistan, nýja bók Magnúsar, samfélagsmál og margt fleira.

Aug 13, 202355 min

S1 Ep 208#208 Sigursteinn Másson með Sölva Tryggva

Sigursteinn Másson varð þjóðþekktur sem ungur fréttamaður á Stöð 2. Í þættinum ræða Sölvi og Sigursteinn um feril Sigursteins, Sönn íslensk sakamál, íslenskt samfélag og margt fleira.

Aug 7, 20231h 10m

S1 Ep 206#206 Sebastian Prentice með Sölva Tryggva

Sebastian Prentice er 25 ára gamall íþróttamaður sem varð að þroskast mjög hratt vegna fjölskylduaðstæðna. Hann á og rekur líkamsræktarstöð í Cape Town í Suður Afríku. Nýlega hljóp hann 100km utanvegahlaup og tók 180 kílógrömm í bekkpressu á sama tíma, sem er afrek sem aðeins örfáir jarðarbúar gætu leikið eftir. Í þættinum ræða Sölvi og Sebastian um heilsu, hugarfar, samfélagsmál og margt fleira.

Jul 25, 202354 min

S1 Ep 205#205 Óskar Hallgrímsson með Sölva Tryggva

Óskar Hallgrímsson er ljósmyndari og listamaður sem á einum degi varð stríðsfréttaritari Íslands í Úkraínu. Hann og konan hans búa í höfuðborg Úkraínu og ákváðu að vera áfram í borginni þegar stríðið byrjaði. Í þættinum ræða Sölvi og Óskar um ótrulega hluti sem Óskar hefur upplifað eftir að hafa farið á verstu svæðin í stríðinu og í gegnum tímann síðan stríðið byrjaði, sögu Óskars og margt fleira.

Jul 23, 20231h 18m

S1 Ep 204#204 Bogi Ágústsson með Sölva Tryggva

Bogi Ágústsson er líklega þekktasti fjölmiðlamaður Íslands eftir áratugi á skjám landsmanna. Í áður óbirtum þætti ræða Sölvi og Bogi um magnaðan feril Boga, stöðuna á fjölmiðlum nútímans, samfélagsmál og margt fleira

Jul 19, 20231h 46m

S1 Ep 203#203 Sorelle Amore með Sölva Tryggva

Sorelle Amore er ung ævintýrakona sem hefur með mikilli elju og dugnaði náð milljónum fylgjenda á samfélagsmiðlum. Hún fæddist í Ástralíu en ákvað að kaupa sér flugmiða aðra leið til Íslands. Í þættinum ræða Sölvi og Sorelle um ótrúlega vegferð Sorelle, ævintýrin í gegnum tíðina, leiðir til að elta draumana og fylgja ástríðunni og margt margt fleira.

Jul 16, 20231h 27m

S1 Ep 202#202 Gummi Kíró með Sölva Tryggva

Guðmundur Birkir Pálmason eða Gummi Kíró hefur vakið mikla athygli á samfélagsmiðlum og byrjaði snemma að nota óhefðbundnar leiðir til að auglýsa störf sín. Í þættinum ræða Sölvi og Gummi um heilsu, álit annarra, samfélagsmiðla og margt margt fleira.

Jul 9, 20231h 3m

S1 Ep 201#201 Aron Can með Sölva Tryggva

Aron Can varð stjarna í íslensku tónlistarlífi sem unglingur og eftir það var ekki aftur snúið. Í áður óbirtum þætti ræða Sölvi og Aron um feril Arons, tónlistarlífið, mikilvægi þess að fylgja ástríðunni og margt fleira.

Jul 5, 202352 min

S1 Ep 200#200 Sigmundur Ernir með Sölva Tryggva

Sigmundur Ernir Rúnarsson er einn reyndasti fjölmiðlamaður Íslands og hefur ritstýrt fjölda miðla á áratugalöngum ferli. Í þættinum ræða Sölvi og Sigmundur um fjölmiðlun nútímans, helstu samfélagsmál, þöggun, framtíð fjölmiðlunar og margt fleira.

Jul 2, 20231h 8m

S1 Ep 199#199 Sölvi og Sigurjón Ernir

Sigurjón Ernir er ofuhlaupari og sérfræðingur í heilsu. Hann settist niður með Sölva og þeir skiptu um hlutverk, þar sem Sigurjón spyr Sölva út í heilsu, bókina ,,Á Eigin Skinni", daglega rútínu og margt fleira.

Jun 27, 20231h 20m

S1 Ep 198#198 Gunnar Smári með Sölva Tryggva

Gunnar Smári Egilsson er þrautreyndur blaðamaður, ristjóri og samfélagsrýnir. Í þættinum stikla Sölvi og Gunnar Smári á stóru um stöðuna í samfélaginu, menningarstríðið, stéttskiptingu og margt fleira.

Jun 25, 20231h 13m

S1 Ep 197#197 Hafþór Júlíus með Sölva Tryggva

Hafþór Júlíus Björnsson er aflraunamaður, leikari og samfélagsmiðlastjarna um allan heim. Í áður óbirtum þætti ræða Sölvi og Hafþór um feril Hafþórs, Game of Thrones, aflraunirnar og margt fleira.

Jun 21, 20231h 14m

S1 Ep 196#196 Sara Páls snýr aftur

Sara Pálsdóttir er lögfræðingur, sem nú starfar nær eingöngu sem dáleiðari. Sara var langt leidd í fíkn, verkjum og sjálfshatri þegar hún fann leiðina út og eftir það var ekki aftur snúið. Sara snýr aftur til Sölva og fara þau yfir allt frá leiðum til að bæta andlega heilsu yfir í sögu Söru og samfélagsmál.

Jun 18, 20231h 13m

S1 Ep 195#195 Kalli Snæ snýr aftur

Guðmundur Karl Snæbjörnsson er þrautreyndur læknir sem var útskúfað í faraldrinum fyrir að tala gegn línu stjórnvalda. Honum var hótað kærum og fangelsisvist af hinu opinbera og segir læknum hafa verið bannað að fara eftir sannfæringu sinni. Í þættinum ræða Sölvi og Guðmundur um stöðuna í samfélaginu, hvað við getum lært af faraldrinum og næstu skref.

Jun 14, 20231h 11m

S1 Ep 194#194 Þorbjörg Hafsteinsdóttir með Sölva Tryggva

Þorbjörg Hafsteinsdóttir er hjúkrunarfræðingur og sérfræðingur í öllu sem snýr að heilsu. Bækur hennar hafa vakið athygli víða um heim og Þorbjörg var vel á undan sinni samtíð í mörgu sem hún fjallar um í bókunum. Í þættinum ræða Sölvi og Þorbjörg um lífshlaup Þorbjargar, heilsu, samfélagsmál og fleira.

Jun 11, 20231h 3m

S1 Ep 193#193 Götustrákar með Sölva Tryggva

Bjarki Viðarsson og Aron Mímir Gylfason eru götustrákar. Þeir hafa báðir komið til baka inn í lífið eftir áralanga neyslu og vilja nú láta gott af sér leiða. Í þættinum ræða Sölvi og götustrákar um lífshlaup strákanna, skilaboð samfélagsins, tilganginn og margt fleira.

Jun 6, 20231h 1m