
Sölvi Áskriftarþættir
480 episodes — Page 9 of 10

S1 Ep 81#81 Heiðar Logi með Sölva Tryggva
Heiðar Logi Elíasson er fyrsti atvinnubrimbrettamaður Íslands. Þrátt fyrir ungan aldur hefur Heiðar Logi upplifað margt og lifað fjölbreyttu lífi. Í þættinum ræða Sölvi og Heiðar um ,,Sörfið", lífsháska, erfiða æsku, sérstaka skólagöngu og margt fleira.

S1 Ep 80#80 Kristín Sif snýr aftur
Kristín Sif Björgvinsdóttir snýr aftur í podcastið. Kristín Sif er afreksíþróttakona og útvarpsmaður og þekkt fyrir að sigrast á alls kyns hindrunum og mótlæti. Í þættinum ræða Kristín og Sölvi um ástríðurnar, jaðarsport, fara yfir lygilega hluti sem mannfólk gerir og margt fleira.

S1 Ep 79#79 Einar Carl með Sölva Tryggva
Einar Carl Axelsson er fyrrverandi landsliðsmaður í Taekwondo, sem skipti um takt í lífinu eftir að hafa hryggbrotnað á 5 stöðum í skíðaslysi í frönsku ölpunum. Hann þurfti að leita allra leiða til að geta hreyft sig eðlilega aftur og eftir margra ára ferðalag stofnaði hann líkamsræktarstöðina Primal Iceland. Þar kennir hann fólki að fá frelsi í eigin líkama með samblandi af hreyfingu, öndun, kælingu og fleiru. Í þættinum ræða Sölvi og Einar um magnað ferðalag þessa unga manns, ástandið á heilsu Íslendinga og margt fleira.

S1 Ep 78#78 Helga Braga með Sölva Tryggva
Helga Braga Jónsdóttir hefur um árabil verið einn farsælasti grínisti Íslands. Hún ákvað strax sem ungabarn að ákveða að verða leikkona og það má sannarlega segja að hún hafi látið drauminn rætast. Eftir árin í fóstbræðrum og leikhúsinu vann Helga Braga um árabil sem flugfreyja og hefur ferðast um víða veröld. Í þættinum fara Sölvi og Helga yfir magnaðan feril Helgu, andlega ferðalagið, árin hjá Wow Air og margt fleira.

S1 Ep 77#77 Fjölnir Tattoo með Sölva Tryggva
Fjölnir Bragason er löngu orðinn þjóðþekktur á Íslandi og er sannkölluð goðsögn í húðflúrsheiminum. Fjölnir er órjúfanlegur partur af íslenskri Tattoo-menningu og hefur verið samferða algjörri byltingu sem hefur átt sér stað á undanförnum áratugum. Í þættinum ræða Sölvi og Fjölnir um magnað lífshlaup Fjölnis, ótrúlegar sögur, þróun og sögu húðflúra og margt margt fleira.

S1 Ep 76#76 Aron Mola snýr aftur
Aron Mola mætir aftur til að hafa yfir samsæriskenningar með Sölva. Var allt við 11. september eins og okkur var sagt? Hverjir eru Rothchild? Hvað gerist á Bilderberg fundinum og í Bohemian Grove? Eru valdamiklir aðilar að gera hluti á bak við tjöldin sem aldrei fá að líta dagsljósið? Í þættinum fara Aron og Sölvi yfir allt það helsta í heimi samsæriskenninga.

S1 Ep 75#75 Rafn Franklín með Sölva Tryggva
Rafn Franklín Johnson er einkaþjálfari sem hefur kafað dýpra en flestir ofan í allt sem snýr að heilsu. Hann hóf að æfa lyftingar sem unglingur og át þá allt sem að kjafti kom og hugsaði um lítið annað en að verða sterkari. En á ákveðnum punkti áttaði hann sig á því að hann var á leiðinni í óheilbrigða átt og breytti alveg um takt. Rafn gaf nýverið út sýna fyrstu bók: ,,Borðum Betur". Í þættinum ræða Sölvi og Rafn um lífsstíl, heilsu, hreyfingu, matarræði, skilaboð samfélagsins varðandi alla þessa þætti og margt fleira.

S1 Ep 74#74 Klara Elías með Sölva Tryggva
Klara Elías varð vægast sagt þjóðþekkt fyrir tvítugt sem söngkona í hljómsveitinni Nylon. Eftir að hafa verið með líf sitt nánast í raunveruleikaþætti fyrir framan alþjóð fór hljómsveitin í víking og gerði góða hluti í Bretlandi. Eftir það lá leiðin til borg englanna í Los Angeles, þar sem Klara hefur verið síðasta áratuginn. Nú er hún komin heim eftir vægast sagt skrýtið ár í Bandaríkjunum. Í þættinum ræða Sölvi og Klara um Nylon ferðalagið, ástríðuna fyrir tónlistinni, stöðuna í Bandaríkjunum og margt fleira.

S1 Ep 73#73 Jóhannes Haukur með Sölva Tryggva
Jóhannes Haukur Jóhannesson er einn þekktasti leikari Íslands á erlendri grundu. Eftir að hafa getið sér gott orð í leikhúsi og bíómyndum hér heima lá leiðin út fyrir landsteinana, þar sem hann hefur að mestu alið manninn undanfarin misseri. Í þættinum ræða Sölvi og Jóhannes Haukur íslandsmetið í Covid-prófum, leiklistina og almennt um lífið og tilveruna.

S1 Ep 72#72 Gerður Arinbjarnar með Sölva Tryggva
Gerður Arinbjarnardóttir hefur á fáeinum árum farið frá því að selja kynlífstæki úr skúffum heiman frá sér yfir í að velta hálfum milljarði á ári. Þessi unga kona á stórmerkilega sögu. Fann sig ekki í hefbundnum skóla, en vissi að hún hefði vit á viðskiptum. Fór til London á námskeið með Tony Robbins og eftir það var teningunum kastað. Í viðtalinu ræða Gerður og Sölvi um viðskipti, ferðalög í framandi lönd, þægindarammann og margt margt fleira.

S1 Ep 71#71 Halli Hansen með Sölva Tryggva
Halli Hansen er magnaður náungi. Hvort sem það er að sitja í fangelsum, vera heimilislaus, ferðast um heiminn án farangurs, eru það allt hlutir sem Halli hefur prófað á eigin skinni. Í þættinum fara Halli og Sölvi yfir reynslu þessa magnaða manns, hvað hann hefur lært á sínu ferðalagi og hvað framtíðin ber í skauti sér.

S1 Ep 70#70 Evert Víglunds með Sölva Tryggva
Evert Víglundsson er stofnandi og eigandi Crossfit Reykjavíkur. Hann hefur í áraraðir unnið við heilsu og hreysti og er leitun að meiri viskubrunni á því sviði. Í þættinum ræða Evert og Sölvi um hvað það er að vera heilbrigður, hvaða skref er hægt að taka ef fólk vill breyta um stefnu, hver eru algengustu mistökin og margt fleira.

S1 Ep 69#69 Steinar Fjeldsted með Sölva Tryggva
Steinar Fjeldsted er einn af stofnendum hljómsveitarinnar Quarashi, sem náði vinsældum um allan heim. Þegar Steini stofnaði sveitina í kringum tvítugt óraði hann líklega ekki fyrir því sem framundan var. Stórir plötusamningar, ferðalög um allan heim, tónleikahald fyrir tugi þúsunda aftur og aftur. Í þættinum fara Steinar og Sölvi yfir Quarashi ævintýrið, tómleikann sem tók við eftir að því lauk og margt margt fleira.

S1 Ep 68#68 Jóhann Sigurðarson með Sölva Tryggva
Jóhann Sigurðarson, stundum kallaður Jói stóri, er einn ástælasti leikari Íslands. Hann byrjaði í leiklist þegar tækifærin voru mun færri en nú og hefur því haldið mörgum boltum á lofti í gegnum tíðina. Rödd hans er líklega ein sú þekktasta á landinu, enda hefur hann lesið inn á ógrynni bóka og sjónvarpsefnis í gegnum tíðina. Í þættinum fara Sölvi og Jói yfir ferilinn, sönginn, sögur úr bransanum og margt margt fleira.

S1 Ep 67#67 Eldur Egilsson með Sölva Tryggva
Eldur Egilsson er 13 ára gamall frændi Sölva og þar með langyngsti vidmælandi podcastsins hingað til. Í þættinum ræða Eldur og Sölvi um lífið og tilveruna, skólakerfið, hvað fullordna fólkið gæti gert ödruvísi og margt fleira.

S1 Ep 66#66 Simmi Vill með Sölva Tryggva
Sigmar Vilhjálmsson var í áraraðir einn þekktasti sjónvarpsmaður Íslands, bæði á árunum í 70 mínútum og síðar sem aðalkynnir í ,,Idol Stjörnuleit". Síðar stofnaði hann Hamborgarafabrikkuna og hefur á undanförnum árum verið í rekstri ýmissa fyrirtækja. Sigmar notar nú samfélagsmiðla til að fá útrás fyrir þörfina við að gefa út efni og nýtur þar mikilla vinsælda. Í þættinum ræða Sölvi og Sigmar um drífur hann áfram, árin í sjónvarpinu, hvað þarf til að vera frumkvöðull og margt margt fleira.

S1 Ep 65#65 Veiga Grétarsdóttir með Sölva Tryggva
Veiga Grétarsdóttir gekk í gegnum gífurlega erfiðleika og feluleik áður en hún ákvað loks að þora að koma út úr skápnum og fara í kynleiðréttingarferli. Fljótlega eftir það tók hún ákvörðun um að fara beinlínis gegn straumnum þegar hún varð fyrst allra til að róa hringinn í kringum Ísland rangsælis. Í þættinum segir Veiga ótrúlega sögu sína, sorgir og sigra og hvernig hún stendur nú uppi hamingjusöm og sátt eftir að hafa sjáft haft fordóma í áraraðir.

S1 Ep 64#64 Annþór með Sölva Tryggva
Annþór Kristján Karlsson var lengi þekktur fyrir að vera einn alræmdasti glæpamaður Íslands. Hann hefur ekki komist í kast við lögin í talsverðan tíma og segist staðráðinn í að halda sér réttu megin við línuna. Í þættinum gefur Annþór innsýn inn í hugarheim einstaklings sem leiðist á þessa braut og lýsir því hvernig afbrot hans byrjuðu strax í barnæsku. Hann segir margt við glæpaheiminn á Íslandi öðruvísi en fólk heldur.

S1 Ep 63#63 Beggi Ólafs með Sölva Tryggva
Sálfræðingurinn Bergsveinn Ólafsson stefndi árum saman að því að verða atvinnumaður í knattspyrnu. Eftir að hafa lagt allt í boltann áttaði hann sig á því að ástríðan var farin og lagði skóna á hilluna og setti alla sína krafta í að læra og miðla meiru í sálfræðinni. Eftir að hafa sökkt sér ofan í ástríðu sína fyrir innihaldsríkara lífi gaf hann nýlega út bókina ,,Tíu skref í átt að innihaldsríkara lífi". Í þættinum ræða Sölvi og Beggi um hvað einkennir innihaldsríkt líf, leiðir til að viðhalda ástríðu og komast í flæði og hvernig var að hætta sem fyrirliði knattspyrnuliðs í efstu deild gegn vilja allra í klúbbnum.

S1 Ep 62#62 Geir Ólafs með Sölva Tryggva
Geir Ólafs kom inn á svið íslenskrar tónlistar svo eftir var tekið. Í fyrstu voru ekki allir sáttir við hann, en með mikilli elju, góðu hugarfari og náungakærleik er í dag erfitt að finna manneskju sem ekki þykir vænt um Geir. Í þættinum ræða Sölvi og Geir um tengingarnar við Kolombíu, söng fyrir Pútín Rússlandsforseta, ofsjónir eftir mikla drykkju og fleira og fleira.

S1 Ep 61#61 Ólafur Már með Sölva Tryggva
Ólafur Már Björnsson augnlæknir hefur látið mikið til sín taka í náttúruvernd og hefur vakið athygli fyrir stórbrotnar myndir og myndbönd af íslenskri náttúru. Ólafur var frumkvöðull í laseraðgerðum á augum hér á landi, sem nú þykja nokkuð sjálfsagður hlutur. Í þættinum ræða Ólafur og Sölvi um stöðu heilbrigðiskerfisins á Íslandi, náttúruvernd, ferðalög og mikilvægi þess að finna ástríðu í áhugamálum og lífinu almennt.

S1 Ep 60#60 Brynjar Níelsson með Sölva Tryggva
Brynjar Níelsson hefur lengi verið þekktur á vettvangi stjórnmálanna fyrir að þora að viðra óvinsælar skoðanir. Hann hefur gengið lengst íslenskra Alþingismanna í að gagnrýna aðgerðir vegna Covid faraldursins. Í þættinum ræða Sölvi og Brynjar um grundvallaratriði í stjórnmálum, eins og til dæmis hve mikil umsvif ríkisins eigi að vera, mikilvægi þess að kjósendur viti hvar þeir hafi þá sem þeir kjósa til valda og margt margt fleira.

S1 Ep 59#59 Jakob Frímann með Sölva Tryggva
Jakob Frímann Magnússon er maður sem hefur marga fjöruna sopið. Ungur var hann kominn á samning sem tónlistarmaður erlendis á tímum þegar afar fáir Íslendingar reyndu fyrir sér erlendis. Ein af aðalsprautunum í Stuðmönnum, Miðborgarstjórinn, formaður Stefs og svo framvegis og svo framvegis. Í þættinum ræða Sölvi og Jakob um ótrúlegan feril og magnaðar sögur, lykilinn að því að halda sér ungum í anda og margt fleira.

S1 Ep 58#58 Sara Piana með Sölva Tryggva
Sara Piana hefur í gegnum árin verið umtöluð á Íslandi, einkum og sér í lagi eftir að hún giftist vaxtarræktarkappanum Rich Piana og af þeim birtust reglulega fréttir. Sara hefur hingað til ekki farið í viðtöl í íslenskum fjölmiðlum, en fannst tími til kominn að segja sögu sína, einkum og sér í lagi þar sem hún er nú alfarið flutt til landsins og ætlar að hefja hér næsta kafla í sínu lífi. Í þættinum segir Sara frá því hvers vegna hún þurfti sem ung kona að flýja land eftir stöðuga ógn. Hvernig hún fór langt inn í Fitness-heiminn eftir að hún flutti til Bandaríkjanna og síðan frá skrautlegu líferni sínu með Rich Piana, sem oft var öðruvísi en það virkaði út á við. Sara lærir nú hjúkrunarfræði og hlakkar til næsta kafla í sínu lífi, eftir að hafa fengið margfaldan æviskammt af dramatík, eins og hún segir sjálf.

S1 Ep 57#57 Tobba Marínós með sölva Tryggva
Þorbjörg Alda Birkis Marínósdóttir, betur þekkt sem Tobba Marínós, kom með hvelli inn á sjónarsvið íslenskra fjölmiðla eftir að hafa menntað sig í fjölmiðlafræði erlendis. Eftir stutt starf í blaðamennsku var henni kippt inn í sjónvarp og síðan þá hefur þessi kjarnakona gert allt milli himins og jarðar. Skrif á bókum, stjórnun í fyrirtækjum, framleiðsla á matvörum og svo auðvitað meira sjónvarp og blaðamennska. Sölvi og Tobba, sem nú er ritstjóri DV , fara í þættinum yfir alls kyns sögur að tjaldabaki, lyklana að því að halda í ástríðuna og fleira og fleira.

S1 Ep 56#56 Guðmundur Ingi með Sölva Tryggva
Guðmundur Ingi Þorvaldsson leikari hefur leikið fjölda hlutverka bæði hér heima og erlendis á farsælum ferli. Nýlega lék Guðmundur lykilhlutverk í tölvuleiknum Assassins Creed Valhalla, sem er á stærðargráðu sem fæstir gera sér grein fyrir. Í þættinum ræða Sölvi Og Gummi um leiklistina, stöðu ungra karlmanna í samfélaginu, fíknisjúkdóma, hvað það er sem einkennir okkur sem þjóð og margt margt fleira.

S1 Ep 55#55 Elísabet Guðmundsdóttir með Sölva Tryggva
Elísabet Guðmundsdóttir lýtaskurðlæknir, sem á 20 ára feril í faginu í Svíþjóð kom nýverið til Íslands til að starfa á Landsspítalanum. Hún hefur undanfarið talað opinskátt gegn sóttvarnaraðgerðum vegna Covid, sem hún segir að gangi of langt. Elísabet stóð einnig að undirskriftasöfnun um þá kröfu að framhaldsskólar verði opnaðir aftur. Hún vill meina að heilmargt sé hægt að gera til að verjast því að veikjast, annað en bara vera með grímur, halda fjarlægð og þvo hendur, eins og til dæmis að styrkja ónæmiskerfið með því að taka inn D-vítamín. Í þættinum spyr Sölvi Elísabetu um ástæður þess að hún gagnrýnir aðgerðirnar, hvaða afleiðingar það hefur haft fyrir hana og hvort að í samfélaginu sé þöggun.

S1 Ep 54#54 Reynir Trausta með Sölva Tryggva
Reynir Traustason er einn reyndasti blaðamaður Íslandssögunnar. Hann hefur ritstýrt fjölmörgum fjölmiðlum og oft komist í fréttir fyrir að lenda upp á kant við valdhafa. Hér ræða Reynir og Sölvi um sjómennskuna, áratuga feril í fjölmiðlum, hvernig Reynir tók heilsu sína í gegn þegar hann óttaðist um líf sitt og margt fleira.

S1 Ep 53#53 Herbert Guðmundsson með Sölva Tryggva
Herbert Guðmundsson er löngu orðinn goðsögn í íslensku tónlistarlífi. Þegar talað er um 80´s tímabilið kemur nafn hans strax í huga fólks. Herbert, sem er þekktur fyrir mikinn dugnað og gott hugarfar sat um tíma í fangelsi og missti allt eftir hrunið 2008. Í þættinum fara Sölvi og Herbert yfir magnaðan feril Herberts, sögur úr jailinu, bóksölu fyrir tugi milljóna og margt margt fleira.

S1 Ep 52#52 Ragga Ragnars með Sölva Tryggva
Ragnheiður Ragnarsdóttir var ein öflugasta sundkona Íslands um árabil og fór meðal annars á tvenna Olympíuleika. Fyrir nokkrum árum venti hún kvæði sínu í kross og setti allt sitt í leiklistina. Hún landaði einu af aðalhlutverkunum í sjónvarpsseríunni Vikings sem hefur farið um allan heim. Hér ræða hún og Sölvi um stórmerkilegan feril Röggu í sundinu og leiklistinni, mikilvægi þess að þora að elta ástríðurnar og margt margt fleira.

S1 Ep 51#51 Sigmundur Ernir með Sölva Tryggva
Sigmundur Ernir Rúnarsson er einn reyndasti sjónvarpsmaður Íslands og hefur verið nær sleitulaust á skjám landsmanna síðan á upphafsárum Stöðvar 2. Hann hefur með árunum lært að njóta þess betur að lifa í núinu og taka allar lífsins gjafir inn að hjartarótum. Í þættinum segir Sigmundur frá eftirminnilegustu viðmælendunum, ferðum í aðrar heimsálfur, lífshættulegum flugferðum með Ómari Ragnarssyni og mörgu mörgu fleiru.

S1 Ep 50#50 Herra Hnetusmjör með Sölva Tryggva
Árni Páll Árnason, betur þekktur sem Herra Hnetusmjör skaust upp á stjörnuhimininn sem unglingur. Rapptónlist hans sló strax í gegn og síðan þá hefur hann verið einn vinsælasti tónlistarmaður landsins. Hann var að gefa út bók, sem óhætt er að segja að sér opinská. Hér ræða Sölvi og Herra Hnetusmjör um fíkniefnaneyslu, rapptónlist, bókaskrif og margt margt fleira.

S1 Ep 49#49 Bríet með Sölva Tryggva
Bríet Ísis Elfar er vinsælasti tónlistarmaður Íslands í dag. Síðan platan hennar kom út hafa lög hennar átt topplistana vikum saman. Bríet kom mjög ung fram á sjónarsviðið og vakti strax verðskuldaða athygli fyrir framgöngu sína. Í þættinum ræða Sölvi og Bríet um tónlistina, ástarsorg, hvað fylgir því að vera landsþekkt, reynslu af svitahofum og margt margt fleira.

S1 Ep 48#48 Sigga Kling með Sölva Tryggva
Sigríður Klingenberg, betur þekkt sem Sigga kling, hefur skemmt Íslendingum um árabil með spádómum, bingókvöldum, karókí-kvöldum og mörgu fleiru. Sigga segist sjálf ekkert skilja í því hvers vegna hún vinni við að skemmta, enda sé ferill hennar ein stór afleiðing af því að kunna að segja alltaf já, sama hvernig manni líður. Hér ræða Sigga og Sölvi um mikilvægi þess að njóta hvers dags, hlæja nógu mikið, fara yfir stórmerkilegan feril Siggu og margt margt fleira.

S1 Ep 47#47 Arnór Guðjohnsen með Sölva Tryggva
Arnór Guðjohnsen er nafn sem allir íslenskir knattspyrnuáhugamenn geyma, enda er hann einn albesti fótboltamaður Íslandssögunnar. Hér ræða Sölvi og Arnór um ótrúlegan feril Arnórs, hæðir og lægðir, þar sem inn komu sigurleikir gegn stórveldum Evrópu, erfið meiðsli, samningsleysi á tímum þar sem réttur leikmanna var nánast enginn og margt fleira. Í þættinum fara þeir einnig yfir mikilvægi andlega þáttarins í knattspyrnu og íþróttum, en Arnór vinnur nú hörðum höndum að verkefni sem því tengist.

S1 Ep 46#46 Róbert Marshall með Sölva Tryggva
Róbert Marshall hefur víða komið við á löngum og mögnuðum ferli. Hann vann um árabil sem fréttamaður og þáttastjórnandi, stofnaði svo Fréttastöðina NFS ásamt fleirum, áður en hann fór síðar í stjórnmál, þar sem hann sat á þingi. Á síðustu árum hefur hann unnið við ástríðuna, sem er útivist og fjallaferðir, en er nú í starfi sem ráðgjafi forsætisráðherra. Í viðtalinu fara Róbert og Sölvi yfir alla þessa hluti og margt margt fleira.

S1 Ep 45#45 Guðmundur Ebenezer með Sölva Tryggva
Guðmundur Ebenezer Birgisson er reyndur sálfræðingur með háskólagráður í 3 greinum, sem sagði upp vel launuðu starfi í Noregi til að elta drauminn og byrja með fyrirtæki sem þróar lausnir í geðheilsu í gegnum internetið. Guðmundur og Sölvi ræða hér mikilvægi þess að þora að elta draumana og setja sér háleit markmið. Þeir fara í þættinum yfir þróun sálfræði og geðheilsu og hvaða lausnir gætu nýst best á komandi árum til að bæta vellíðan og geðheilsu fólks.

S1 Ep 44#44 Margrét Pála með Sölva Tryggva
Margrét Pála Ólafsdóttir er sannkölluð kjarnakona. Hún hefur um árabil rutt veginn fyrir nýjar leiðir í menntun barna. Þúsundir ánægðra foreldra hafa nú sent börn sín í skóla Hjallastefnunnar sem Margrét stofnaði. Margrét var ein fyrsta opinbera lesbían á Íslandi og lenti í hremmingum vegna þess. Hér ræða Sölvi og Margrét um það hvernig öll hennar tækifæri voru tekin af henni á einum degi vegna fordóma á tímum sem voru allt aðrir en í dag. Þau fara jafnframt yfir mikilvægi þess að hrista upp í menntakerfinu, hlusta á börn og þora að fara gegn straumnum.

S1 Ep 43#43 Ágústa Johnson með Sölva Tryggva
Ágústa Johnson er einn stærsti frumkvöðull í heilsurækt á Íslandi. Á unga aldri var hún á leið í nám í arkítektúr þegar hún ákvað að skipta um takt og elta ástríðuna. Eftir að hafa menntað sig í íþróttafræði og viðskiptum stofnaði hún sína fyrstu líkamsræktarstöð, Stúdíó Jónínu og Ágústu og eftir það var ekki aftur snúið. Hún hefur nú um árabil rekið Hreyfingu með góðum árangri. Hér ræða hún og Sölvi um feril Ágústu, lyklana í að vera frumkvöðull, mikilvægi heilsu og margt margt fleira.

S1 Ep 42#42 Magnús Scheving með Sölva Tryggva
Magnús Scheving er einn merkilegasti frumkvöðull Íslandssögunnar. Leikfimikennarinn sem endaði á sjónvarpsskjám milljóna manna um allan heim. Hér fara Magnús og Sölvi yfir ótrúlega atburðarrás Latabæjar, þar sem Magnús var með nánast stanslausa dagskrá frá morgni til kvölds á hverjum einasta degi í áraraðir. Þakklætið yfir því að sjá börn í Suður-Ameríku drekka í sig boðskap Íþróttaálfsins, hvað þarf að hafa til brunns að bera sem frumkvöðull, lykilatriðin í að vera hamingjusamur í lífinu og fleira og fleira.

S1 Ep 41#41 Frosti Logason með Sölva Tryggva
Frosti Logason hefur um árabil verið eins konar akkeri í íslensku útvarpi ásamt félaga sínum Þorkatli Mána Péturssyni. Þeir félagar hafa um árabil haldið úti þættinum Harmageddon, sem er þekktur fyrir að hleypa í loftið fólki með óvinsælar skoðanir og ræða málin tæpitungulaust. Hér ræða Frosti og Sölvi um mikilvægi þess að stoppa ritskoðun í fjölmiðlum, tímabilið þar sem Frosti var lykilmaður í hljómsveitinni Mínus, mikilvægi þessi að taka ábyrgð í lífinu og margt margt fleira.

S1 Ep 40#40 Ásgeir Andri með Sölva Tryggva
Ásgeir Andri Guðmundsson er stórmerkilegur maður sem hefur farið óhefðbundnar leiðir í lífinu. Fyrir tvítugt var hann orðinn rótari hjá stærstu sveitaballaböndum Íslands og hoppaði fulla ferð inn í lífsstílinn sem því fylgir. Síðar menntaði hann sig sem áhættuleikari á Florída, þar sem honum var kennt að kveikja í sér og hoppa fram af byggingum. Helgarferðin til Danmerkur sem varð að veitingastaðarekstri á Mallorca, leiksýningin þar sem kveikt var í honum fyrir framan Ólaf Darra og margt margt fleira.

S1 Ep 39#39 Jónína Ben með Sölva Tryggva
Jónína Benediktsdóttir er nýjasti gestur Sölva Tryggvasonar í podcasti Sölva. Jónína, sem hefur oft verið verulega umdeild á Íslandi, var ung orðinn viðskiptakona í Svíþjóð, þar sem hún fékk alls kyns verðlaun fyrir frumkvöðlastarfsemi sína í líkamsrækt og rekstri líkamsræktarstöðva. Sölvi skrifaði ævisögu Jónínu og það vantar því ekki umræðuefnin. Tímabilin með Jóni Páli, íslenskt viðskiptalíf, baráttan við bakkus, hjónaskilnaðir og margt margt fleira.

S1 Ep 38#38 Björn Stefánsson með Sölva Tryggva
Björn Stefánsson var ungur orðinn einn hæfileikaríkasti trommuleikari sem Ísland hefur átt. Hann varð svo lykilmaður í hljómsveitinni Mínus, sem náði talsverðum hæðum erlendis á sínum tíma. Um þrítugt skipti Bjössi svo alveg um takt og fór í leiklistarnám í Danmörku og hefur síðan getið sér mjög gott orð sem leikari. Hér fara Sölvi og Björn yfir Mínus-tímabilið, sem var æði skrautlegt á köflum, ástríðuna fyrir leiklistinni og margt margt fleira.

S1 Ep 37#37 Jónas Sig með Sölva Tryggva
Jónas Sigurðsson varð vinsæll sem söngvari í ,,Sólstrandargæjunum", sem slógu í gegn með lagið ,,Rangur Maður" og sló síðan aftur í gegn mörgum árum síðar með lagið ,,Hafið er Svart". Það sem færri vita líklega um Jónas er að hann er afburðamaður í tölvuforritun og vann um árabil fyrir tölvurisann Microsoft. Þar var hann valinn í hóp efnilegasta fólks fyrirtækisins, en áður en það tók á flug var Jónas orðinn efins um það hvaða stefnu fyrirtækið væri að taka og kom aftur heim til Íslands. Hér ræða Sölvi og Jónas um stöðu upplýsingaflæðis í nútímanum, hvert gervigreind er komin, hversu öflugir algóritmarnir eru orðnir og svo auðvitað um tónlistina og ástríðurnar í lífinu.

S1 Ep 36#36 Einar Ágúst með Sölva Tryggva
Einar Ágúst Víðisson varð þjóðþekktur sem söngvari hljómsveitarinnar Skítamórals, sem var á sínum tíma vinsælasta band Íslands. Einar var á beinu brautinni sem tónlistarmaður, sjónvarps- og útvarpsmaður þegar það fór að halla verulega undir fæti. Hann missti öll tök á tilverunni, endaði í mjög slæmum félagsskap og fór á kaf í neyslu. Einar hefur gengið í gegnum hluti sem fæstir geta gert sér í hugarlund. Hér ræða hann og Sölvi um stærstu sigrana, myrkustu tímabilin, tengslin við glæpastarfsemi, endurkomu Skítamórals og þakklæti Einars fyrir að vera enn á lífi.

S1 Ep 35#35 Ásgeir Brynjar Torfason með Sölva Tryggva
Ásgeir Brynjar Torfason, doktor í viðskiptafræði og fulltrúi í fjármálaráði Íslands hefur um árabil stundað rannsóknir á peningamálum og doktorsgráða hans fjallar um alþjóðlega fjármálastarfsemi. Hér ræða Sölvi og Ásgeir um stöðu hagkerfisins á Íslandi og í heiminum öllum, fara yfir það hvað peningar raunverulega eru og það hvort við séum á leiðinni inn í algjörlega nýja tíma þar sem veruleikinn verður allt annar en sá sem við höfum vanist.

S1 Ep 34#34 Jóhanna Guðrún með Sölva Tryggva
Jóhanna Guðrún Jónsdóttir hefur verið þjóðþekkt síðan hún var aðeins 11 ára gömul, þegar fyrsta platan hennar kom út. Hún hefur síðan þá átt gífurlega farsælan feril og meðal annars náð besta árangri Íslands í lokakeppni Eurovision. Hér ræða hún og Sölvi um kostina og gallana við að vera barnastjarna, þátttökuna í Allir Geta Dansað, listina við að koma fram og gefa af sér og fjölmargt fleira.

S1 Ep 33#33 Bubbi Morthens með Sölva Tryggva
Bubbi Morthens er einn þekktasti tónlistarmaður Íslandssögunnar og eftir hann liggja nærri 50 hljómplötur. Hér ræða hann og Sölvi um ótrúlegan feril Bubba, nýja lífið í sveitinni, mikilvægi þess að halda sér í líkamlegu og andlegu formi, sögur af djamminu í den og margt margt fleira.

S1 Ep 32#32 Pálmi Gunnarsson með Sölva Tryggva
Pálmi Gunnarsson er einn dáðasti tónlistarmaður Íslandssögunnar. Maðurinn sem söng fyrstu orð Íslands í Eurovision á erlendri grundu þegar Gleðibankinn kom fyrir augu heimsbyggðarinnar. Hann segist sjálfur hafa farið langleiðina með að drepa sig á áfengisdrykkju og er þakklátur fyrir að hafa fengið annað líf. Hér fara Sölvi og Pálmi yfir magnaðan feril Pálma og ótrúlegt lífshlaup, sem hefur oft á tíðum verið verulega skrautlegt.