
Sölvi Áskriftarþættir
490 episodes — Page 7 of 10
S1 Ep 192#192 Guðrún Bergmann snýr aftur
Guðrún Bergmann hefur unnið við heilsu í meira en 30 ár, auk þess að reka fyrirtæki og margt fleira. Í þættinum fara Sölvi og Guðrún yfir samfélagsmál, heilsu, fjölmiðla, samsæriskenningar og fleira.
S1 Ep 191#191 Ben Brown með Sölva Tryggva
Benjamin Brown er frumkvöðull sem hefur farið eigin leiðir í lífinu. Hann náði hratt nærri milljón fylgjendum á samfélagsmiðlum, en var settur í bann fyrir að gagnrýna aðgerðir í heimsfaraldrinum. Í þættinum ræða Sölvi og Ben um karlmennsku, hugrekki, breytingarnar í heiminum og margt fleira.
S1 Ep 190#190 Ólafur Halldórsson með Sölva Tryggva
Ólafur Halldórsson gjörbeytti lífi sínu eftir bakpokaferðalag um Afríku sem endaði með því að hann stofnaði munaðarleysingjaheimili í Kenýa. Hann hafði í áraraðir ferðast um allan heim í leit að bestu fíkniefnum veraldar, meðal annars í Marokkó,Indlandi og Pakistan. Á ótrúlegan hátt náði hann að komast til baka úr neyslunni og í dag er líf hans helgað starfinu í Afríku.
S1 Ep 189#189 Gunnar Wium með Sölva Tryggva
Gunnar Wium kennari og hlaðvarpsstjórnandi hefur marga fjöruna sopið. Allt frá mikilli neyslu sem sendi hann alveg á botninn yfir í andlega vakningu. Í þættinum ræða Sölvi og Gunnar um stórmerkilega sögu Gunnars, lyfjafyrirtækin, hugvíkkandi efni, stöðu samfélagsins og margt fleira.
S3 Ep 188#188 Sigmundur Stefánsson með Sölva Tryggva
Sigmundur Stefánsson hefur hlaupið tugi maraþonhlaupa eftir að hafa fengið hjartaáfall og síðar krabbamein. Hann segir læknana fyrst hafa sagt sig ruglaðan, en nú sé hann notaður sem skólabókardæmi um það sem er mögulegt. Í þættinum ræða Sölvi og Sigmundur um ótrúlegar þrekraunir, hugarfar, leiðir til að sigrast á erfiðleikum og fleira.
S1 Ep 187#187 Haraldur Erlendsson með Sölva Tryggva
Haraldur Erlendsson er þrautreyndur geðlæknir sem vann um árabil í Bretlandi. Í þættinum ræða Sölvi og Haraldur um fjórða valdið, kerfin, lýðræði, geðheilsu þjóðarinnar og margt fleira.
S1 Ep 186#186 Guðni Gunnars snýr aftur
Guðni Gunnarsson er lífsstílsráðgjafi og einn af helstu frumkvöðlum Íslands á sviði heilsuræktar. Hann hefur svo áratugum skiptir unnið með fólki um allan heim þegar kemur að heilsu. Í þættinum ræða hann og Sölvi um andlega og líkamlega heilsu, vegferð Guðna, helstu verkefni fólks í átt að betra lífi og margt fleira.
S1 Ep 185#185 Sigmundur Davíð með Sölva Tryggva
Sigmundur Davíð Gunnlaugsson er fyrrverandi forsætisráðherra Íslands. Í þættinum ræða Sölvi og Sigmundur um menningarstríð, stjórnmálamenn, að þora að segja hug sinn og margt fleira.
S1 Ep 184#184 Krummi mínus með Sölva Tryggva
Í áður óbirtum þætti ræða Sölvi og Krummi um magnaðan feril Krumma, rokkið, lífsstílinn, hæðirnar og lægðirnar. Oddur Hrafn Stefán Björgvinsson er betur þekktur sem Krummi í Mínus. Eftir ótrúlega velgengni rokksveitarinnar Mínus um allan heim kom harkaleg lending eftir misjafnan lífsstíl í kringum rokkið. Í þættinum ræða Sölvi og Krummi meðal annars um tónlistina, djammið, ótrúlegan lífsstíl í kringum ferðalögin erlendis og erfiða baráttu Krumma við sjúkdóminn Tinnitus, sem lýsir sér í stanslausu eyrnasuði og öðrum hljóðum.
S1 Ep 183#183 Tryggvi Hjalta með Sölva Tryggva
Tryggvi Hjaltason, greinandi og gagnasérfræðingur hefur vakið mikla athygli í þjóðmálaumræðunni undanfarið. Í þættinum ræða Tryggvi og Sölvi um menntakerfið, snjallsímanotkun, aga, trú og trúarbrögð og margt fleira.
S1 Ep 182#182 HJ Elite með Sölva Tryggva
Hlynur Jónsson er hótelstjóri og skemmtikraftur sem hefur vakið mikla athygli fyrir skemmtileg innslög á samfélagsmiðlum. Í þættinum ræða Hlynur og Sölvi um álit annarra, ferðalög, baráttu Hlyns við bakkus og margt fleira.
S1 Ep 181#181 Hallgrímur Helgason með Sölva Tryggva
Hallgrímur Helgason er einn þekktasti rithöfundur Íslandssögunnar. Í áður óbirtum þætti ræða Hallgrímur og Sölvi um magnaðan feril Hallgríms, samfélagsmál, listsköpun og margt fleira.
S1 Ep 180#180 Guðjón Heiðar snýr aftur
#180 Guðjón Heiðar snýr aftur Guðjón Heiðar Valgarðsson hefur oft verið kallaður samsæringur Íslands. Hann hefur í áraraðir skoðað alls milli himins og jarðar þegar kemur að samsæriskenningum. Í þættinum ræða Sölvi og Guðjón um allt það helsta sem er að gerast í upplýsingaflæði fyrir utan meginstraumsfjölmiðlana.
S1 Ep 179#179 Guðmundur Ingi með Sölva Tryggva
Guðmundur Ingi Þóroddsson er formaður Afstöðu, félags fanga. Hann sat sjálfur í fangelsi í 16 ár fyrir fíkniefnasmygl, bæði í Danmörku og á Íslandi, en er nú frjáls maður. Í þættinum ræða Sölvi og Guðmundur um fangelsi og fangelsismál og hliðar samfélagsins og mannlegs eðlis sem fæstir vilja skoða. Þeir fara yfir sögu Guðmundar sjálfs, hvernig hann endaði á rangri braut og hvað við getum gert til að bæta stöðuna almennt.
S1 Ep 178#178 Einar Bárða með Sölva Tryggva
Einar Bárðason er löngu orðinn landsþekktur sem lagasmiður og umboðsmaður. Þessum fjölhæfa manni er margt til lista lagt. Í áður óbirtum þætti fara Sölvi og Einar yfir feril Einars, getuna til að sigrast á erfiðleikum, að finna neistann og margt margt fleira.
S1 Ep 177#177 Helgi Áss með Sölva Tryggva
Helgi Áss Grétarsson varð stórmeistari í skák aðeins 17 ára gamall. Hann er lögfræðingur og hefur vakið athygli fyrir sterkar skoðanir á samfélagsmálum sem oft ganga gegn meginstraumnum.
S1 Ep 176#176 Ferðin til Tansaníu
Sölvi fór nýverið til Tansaníu, þar sem hann tók meðal annars viðtal við athafnamann sem fæddist þar í landi, flúði svo land til Bretlands þar sem hann bjó um tíma í almenningsgörðum og á meðal útigangsfólks. En smám saman náði hann að koma sér út úr erfiðleikunum og í dag á hann og rekur hótel og veitingastaði bæði á Ítalíu og Zanzibar.
S1 Ep 175#175 Halldór Einarsson með Sölva Tryggva
Halldór Einarsson oft kenndur við Henson er athafnamaður af lífi og sál sem hefur át ótrúlega viðburðarríkt líf. Í þættinum fer hann yfir magnaðar sögur úr öllum heimshornum og helstu sorgir og sigra í gegnum tíðina.
S1 Ep 174#174 Hemmi Hreiðars með Sölva Tryggva
Hermann Hreiðarsson er einn þekktasti knattspyrnumaður Íslandssögunnar. Í áður óbirtum þætti fara Sölvi og Hemmi yfir magnaðan feril Hermanns, sögur úr bransanum og margt margt fleira.
S1 Ep 173#173 Lukka Pálsdóttir með Sölva Tryggva
Lukka Pálsdóttir er eigandi Greenfit, sem sérhæfir sig í heilsufarsmælingum. Lukka er menntaður sjúkraþjálfari sem hefur oftar en einu sinni skipt um takt í lífinu og tekið stökkið til að elta ástríðuna. Í þættinum fara Sölvi og Lukka yfir stórmerklegt lífshlaup Lukku, fyrirtækjarekstur, að þora að taka áhættur og auðvitað allt það helsta í lífsstíl og heilsu.
S1 Ep 172#172 Þór Guðna snýr aftur
Þór Guðnason hefur unnið við að hjálpa fólki að bæta heilsu sína í áratugi. Í þessum þætti ræða Sölvi og Þór um heilsu, menningarheima til forna, hugvíkkandi efni, kerfið og fleira.
S1 Ep 171#171 Einar Carl með Sölva Tryggva
Einar Carl Axelsson er stofnandi Primal Iceland. Einar er einnig fyrrverandi landsliðsmaður í Taekeondo, sem skipti um takt eftir að hafa hryggbrotnað á 5 stöðum. Hann neyddist til að leita allra leiða til að geta hreyft sig eðlilega á ný. Það ferðalag endaði með stofnun Primal Iceland, þar sem unnið er með alla þætti heilsu.
S1 Ep 170#170 Fiskikóngurinn með Sölva Tryggva
Kristján Berg, oft kallaður Fiskikóngurinn hefur í áratugi verið einn stærsti fisksali Íslands. Í þættinum ræða Kristján og Sölvi um andlega heilsu, vinnusemi, reskstur fyrirtækja og auðvitað fiskinn.
S1 Ep 169#169 Iva Adrichem með Sölva Tryggva
Iva Marín Adrichem er söngkona og lögfræðinemi sem segir skoðanir sínar umbúðalaust. Iva, sem hefur verið blind frá fæðingu, var nýverið slaufað af Ferðamálastofu fyrir skoðanir sínar. Í þættinum ræða Iva og Sölvi um pólariseringu, hatursorðræðu, minnihlutahópa, frelsi til skoðana og margt fleira.
S1 Ep 168#168 Brynjar Níelsson með Sölva Tryggva
Brynjar Níelsson er lögfræðingur, aðstoðarmaður dómsmálaráðherra og fyrrverandi þingmaður. Í þættinum ræða Sölvi og Brynjar um umsvif ríkisins, stóra bróður, innflytjendamál, réttrúnað og margt fleira.
S1 Ep 167#167 Evert Víglunds með Sölva Tryggva
Evert Víglundsson er eigandi Crossfit Reykjavík og hefur í áraraðir unnið við allt sem snýr að hreyfingu og heilsu. Í þættinum fara Evert og Sölvi yfir alla helstu þætti í heilsu, ástríðu, leiðir til að framkvæma það sem við vitum að er gott fyrir okkur og margt fleira.
S3 Ep 166#166 Vilhjálmur Andri með Sölva Tryggva
Vilhjálmur Andri Einarsson gjörbreytti lífi sínu með kælingu og öndun eftir að hafa verið orðinn illa haldinn af stanslausum verkjum, þunglyndi og mikilli notkun lyfja og áfengis. Í þættinum ræða Sölvi og Vilhjálmur ótrúlega sögu Vilhjálms, leiðina að bata og vinnuna við að hjálpa öðrum.
S1 Ep 165#165 Sara Pálsdóttir með Sölva Tryggva
Sara Pálsdóttir er menntaður lögfræðingur sem var komin langt inn í fíkn, stöðuga verki og sjálfshatur þegar hún fann leiðina út. Eftir það var ekki aftur snúið og í dag hefur hún lagt lögfræðistörfin á hilluna og vinnur nú við að hjálpa fólki.

S1 Ep 164#164 Gummi Emil með Sölva Tryggva
Guðmundur Emil Jóhannsson er einkaþjálfari og ástríðufullur um allt sem snýr að heilsu. Hann gjörbreytti lífi sínu eftir að hafa endað á spítala og glímt við erfið veikindi. Gummi Emil hefur vakið mikla athygli fyrir myndbönd sín á samfélagsmiðlum og segist brenna fyrir það að hjálpa öðrum.
S1 Ep 163#163 Sveinn Hjörtur með Sölva Tryggva
Sveinn Hjörtur Guðfinnsson hefur marga fjöruna sopið. Sem barn upplifði hann morð á bróður sínum, sem markaði allt framhaldið. Hann fékk köllun til að hjálpa öðrum og starfaði lengi sem varðstjóri hjá 112, þar sem hann sá og upplifði hluti sem flestir sjá aldrei. Óafgreidd áföll enduðu svo með því að hann var orðinn 200 kíló og kominn í hjólastól. En eftir að hafa gjörbreytt lífi sínu hefur hann aftur fengið ástríðuna til að hjálpa öðrum, en núna í nýrri mynd.
S1 Ep 162#162 Arnar Þór með Sölva Tryggva
Arnar Þór Jónsson er lögfræðingur og varþingmaður. Í þættinum ræða Arnar og Sölvi um hlutverk ríkisnis, Mikilvægi þess að vera hugrakkur, fasisma, frelsi og fleira.
S1 Ep 161#161 Ásdís Olsen með Sölva Tryggva
Ásdís Olsen hefur um árabil starfað við fjölmiðla, kennslu og fleira. Hún er þekkt fyrir að fara óhikstað sínar eigin leiðir og varpa ljósi á minna þekktar hliðar samfélagsins. Í þættinum ræða Sölvi og Ásdís um fjölmiðlana, getuna til að fara eigin leiðir, samfélagsmál og margt fleira.
S1 Ep 160#160 Þórarinn Ævars með Sölva Tryggva (Hluti 2)
Þórarinn Ævarsson er landsþekktur athafnamaður sem þurfti að gjörbreyta lífi sínu eftir mikla erfiðleika. Í þættinum ræða Sölvi og Þórarinn ótrúlegt ferðalag Þórarins til bata, skömm hjá karlmönnum, frelsi frá áliti annarra og margt fleira.
S1 Ep 159#159 Þórarinn Ævars með Sölva Tryggva (Hluti 1)
Þórarinn Ævarsson er landsþekktur athafnamaður sem var kominn algjörlega á botninn í mikla lyfjafíkn og djúpt þunglyndi. Í þættinum lýsir hann ótrúlegri atburðarrás sem á endanum varð til þess að hann spyrnti sér frá botninum og náði bata.
S1 Ep 158#158 Axel Pétur með Sölva Tryggva
Axel Pétur Axelsson hefur oft verið kallaður samsæringur Íslands. Hann hefur í áraraðir talað um hluti sem eru talsvert langt fyrir utan boxið. Í þættinum fara Axel og Sölvi yfir allt það helsta í samsæriskennigum. Allt frá stofnun seðlabankanna, hátíð aflanna sem ráða og ríkasta eina prósentinu yfir í næstu spádóma Axels.
S1 Ep 157#157 Eva Hauks og Jón Steinar með Sölva Tryggva
Eva Hauksdóttir og Jón Steinar Gunnlaugsson eru bæði lögmenn og þekkt fyrir að gefa engan afslátt á sannfæringu sinni. Í þættinum ræða þau um réttarkerfið, getuna til að standa með sannfæringu sinni, hætturnar við lögregluríki og alræði og margt fleira.
S1 Ep 156#156 Matti Ósvald með Sölva Tryggva
Matti Ósvald er markþjálfi og heilsuráðgjafi. Í þættinum ræða Sölvi og Matti um sögu Matta, karlmennsku í nútímanum, leiðir til að ná jafnvægi og margt fleira.
S1 Ep 155#155 Erla Bolladóttir með Sölva Tryggva
Erla Bolladóttir sat mánuðum saman í gæsluvarðhaldi og eingangrun sem ung kona vegna eins umtalaðasta sakamáls Íslandssögunnar, Geirfinnsmálsins. Íslenska Ríkið greiddi henni nýlega miskabætur vegna málsins. Í þættinum fer Erla yfir málið allt, lífshlaup sitt, sátt við örlögin og fleira.
S1 Ep 154#154 Sara María með Sölva Tryggva
Sara María Júlíusdóttir er fatahönnuður og lífsstílsráðgjafi sem stundar nú mastersnám í hugvíkkandi efnum, fyrst Íslendinga. Í þættinum ræða Sara María og Sölvi um byltinguna sem er í gangi bæði hér og í heiminum öllum.
S1 Ep 153#153 Sigurjón Ernir með Sölva tryggva
Sigurjón Ernir Sturluson er ofurhlaupari og afreksíþróttamaður. Í þættinum fara Sigurjón og Sölvi yfir alla helstu þætti í heilsu, ástríðu, leiðir til að framkvæma það sem við vitum að er gott fyrir okkur og margt fleira.
S1 Ep 152#152 Herbert Guðmundsson með Sölva Tryggva
Herbert Guðmundsson er löngu orðinn goðsögn í íslensku tónlistarlífi. Þegar Herbert, sem er þekktur fyrir mikinn dugnað og gott hugarfar sat um tíma í fangelsi og missti allt eftir hrunið 2008. Í þættinum fara Sölvi og Herbert yfir magnaðan feril Herberts, ótrúlegt lífshlaup hans og margt fleira.
S1 Ep 151#151 Geir H.Haarde með Sölva Tryggva
Geir H.Haarde er fyrrverandi forsætisráðherra Íslands. Í þættinum ræða Geir og Sölvi um hrunið, landsdómsmálið, fundina með Pútín og Trump, pólariseringu í samfélaginu og margt fleira.
S1 Ep 150#150 Óttar og Jóhanna með Sölva Tryggva
Hjónin Óttar Guðmundsson og Jóhanna Þórhallsdóttir höfðu þekkst í áratugi þegar þau urðu par. Í þættinum ræða þau um lykilinn að farsælu sambandi, hvað gefur lífinu gildi, pistla Óttars og margt fleira.
S1 Ep 149#149 Hannes Hólmsteinn með Sölva Tryggva
Hannes Hólmsteinn Gissurarson er háskólaprófessor og rithöfundur. Í þættinum ræða Sölvi og Hannes um hugrmyndafræði í stjórnmálum, stöðu upplýsingamiðla, nýja bók Hannesar og margt margt fleira.
S1 Ep 148#148 Sara Odds með Sölva Tryggva
Margrét Sara Oddsdóttir er lögfræðingur, yogakennari og markþjálfi. Í þættinum ræða hún og Sölvi um skuggavinnu, ástríðu, leiðir til að bæta sjálfan sig, stöðu drengja og margt fleira.
S1 Ep 147#147 Geir Ólafs með Sölva Tryggva
Geir Ólafs kom inn í íslenskt tónlistarlíf með krafti, svo að eftir var tekið. Í þættinum ræða Sölvi og Geir um feril Geirs, sönginn fyrir Pútín, tengingarnar við Kólombíu, kvíða, náungakærleik og margt fleira.
S1 Ep 146#146 Wayne Paul með Sölva Tryggva
Wayne Paul er sérfræðingur í hreyfingu og rekur nú Movelab, sem hefur það að markmiði að hjálpa fólki að bæta hreyfigetu sína. Wayne kom upphaflega til Íslands sem ferðamaður, en varð ástfanginn af landinu og settist hér að. Í þættinum ræða hann og Sölvi um hreyfingu, heilsu, leiðir til að bæta sig og margt fleira.
S1 Ep 145#145 Einar Kárason með Sölva Tryggva
Einar Kárason er einn farsælasti rithöfundur Íslands og hefur gefið út ógrynni bóka sem notið hafa mikilla vinsælda. Í þættinum ræða Einar og Sölvi um HM í fótbolta, ristkoðun í listum og bókmenntum, feril Einars og margt fleira.
S1 Ep 144#144 Kristján Einar með Sölva Tryggva
Kristján Einar Sigurbjörnsson er nýkominn til Íslands eftir að hafa setið 8 mánuði í fangelsi á Spáni. Í fangelsinu upplifði hann hræðilega hluti sem flestir geta bara ímyndað sér úr bíómyndum. Í þættinum segir hann söguna alla.
S1 Ep 143#143 Inga Sæland með Sölva Tryggva
Inga Sæland er formaður Flokks fólksins. Í þættinum ræðir hún um hvað þarf að laga í íslensku samfélagi, hvað gerist á bakvið tjöldin á Alþingi, sorgina eftir að hafa misst 3 unga ástvini og margt margt fleira.