PLAY PODCASTS
The Snorri Björns Podcast Show

The Snorri Björns Podcast Show

157 episodes — Page 4 of 4

S1 Ep 7#6 Hlaup 3/3 - Kári Steinn

Kári Steinn hljóp sitt fyrsta maraþon á tímanum 2:17:12, vann sér inn þátttökurétt á Ólympíuleikunum í London 2012 og sló 26 ára gamalt Íslandsmet í leiðinni. Kári sagði mér hvað hann skrifaði á brúsana í 2:17:12 hlaupinu, af hverju hann gaf hlaupunum aldrei 100% séns, leiðir til að berjast við hausinn í miðju hlaupi, æfingaplanið hans og af hverju honum hefur aldrei tekist að bæta tímann í fyrsta maraþoninu sem hann lauk.

Jun 28, 20181h 41m

S1 Ep 6#5 - Gunnar Nelson

Síðustu mánuðir hafa ekki verið nein sigurganga fyrir Gunnar Nelson. Við fórum yfir stöðuna, rifjuðum upp sögur frá menntaskólagöngunni og fyrstu keppnunum hans, hvernig það var að ákveða að tileinka lífi sínu bardagalistum og hvað liggur að baki velgengni Gunnars, sem að hans mati mun leiða hann að heimsmeistaratitlinum í UFC.

Jun 20, 20182h 30m

S1 Ep 5#4 Hlaup 2/3 - Arnar Pétursson

Arnar var nífaldur Íslandsmeistari í ýmsum halupum árið 2017. Hann var efnilegur körfuboltamaður sem sneri sér að hlaupum eftir að hafa fengið smjörþefinn af árangri á þeim vígvelli þegar hann hljóp sitt fyrsta maraþon, gegn vilja foreldra sinna, og sló óvart 30 ára gamalt íslandsmet í leiðinni. Það reyndist auðvelt að fá Arnar til að tjá sig um hlaup og íþróttamannslífið, hann veit nákvæmlega um hvað hann er að tala og vill hafa ástæðu fyriröllu sem hann gerir. Við töluðum um óhefðbundnar leiðir að bætingum eins og t.d. 50 klukkustunda föstuna sem Arnar kláraði rétt fyrir podcastið, markmiðasetningu, hvernig á að bæta sig, af hverju stærstu mistökin sem fólk gerir er að hlaupa of hratt þegar það fer út að hlaupa, að raka á sér lappirnar, hlaupa maraþon á nærbuxunum og hið sturlaða keppnisskap sem býr í manninum sem tekur flugvélina brosandi í mark þegar hann sigrar hin og þessi langhlaup.

Jun 11, 20182h 7m

S1 Ep 4#3 Hlaup 1/3 - Arnar Sigurðsson

Ég hitti Arnar í hádegismat fyrir nokkrum vikum og hann sagði mér söguna af því þegar hann hljóp maraþon undir þremur klukkutímum, sama ár og hann tók 200kg í réttstöðulyftu. Sagan af þessu afreki hreyfði mikið við mér og kveikti undir miklum hlaupaáhuga hjá mér. Svo miklum að ég ákvað að búa til þrjá sérstaka hlaupaþætti á podcastinu. Arnar er toppmaður, lögfræðimenntaður með konu og börn og eitt stykki járnhaus sem hann notar til að takast á við áskoranir sem mig hryllir við að hugsa um. Þó stefnan sé ekki að hlaupa í sumar eða í þessu lífi þá veistu alveg að þú getur bætt þig á ýmsum vígvöllum lífsins og dæmisögurnar hans Arnars eru kjörið spark í rassinn.

May 30, 20181h 51m

S1 Ep 3Björgvin Karl - Regionals 2018

Björgvin Karl átti dramatíska frammistöðu á Evrópuleikunum í ár þar sem hann sat í 19. sæti eftir dag 1. Hér segir hann okkur söguna af því hvernig hann vann sig upp í 5. sæti með ótrúlegri frammistöðu og tryggði sér miða á Heimsleikana, fimmta árið í röð.

May 20, 201828 min

S1 Ep 2#2 - Sara Sigmunds

Sara Sigmundsdóttir er NIKE Global athlete, þrefaldur CrossFit heimsleikafari og hefur þar af hreppt þriðja sætið tvisvar sinnum. Við rekjum vegferð Söru frá því að hata að hreyfa sig og fitnessmótum í Njarðvík yfir í íþróttamannslífið í Bandaríkjunum. Sara hefur tekið miklum breytingum á síðustu árum, þar ber að nefna að flytja til Bandaríkjanna, skipta um þjálfara, fara til sálfræðings, hata CrossFit og læra að elska það aftur. Við ræddum um hvernig það er að vera með 1 milljón followers á Instagram, Ólympíuleikana, keppnisþunglyndi, morgunmatinn hennar og Arnold Schwartzenegger. LINKAR: Evrópuleikarnir í CrossFit, bein útsending: https://games.crossfit.com The Power of Habit: http://a.co/6kWuDlq Shoe Dog: http://a.co/eCAoMKw KAFLAR: 04:34 - Að ná ekki markmiðunum sínum og taka sér pásu 08:00 - Sara Sigmunds verður íþróttamaður 16:15 - Ég þarf greinilega að keppa eins mikið og ég get 21:42 - 1. Sara, 2. Katrín, 3. Anníe 25:13 - Eftirkeppnisþunglyndi 28:31 - Neikvæðar hugsanir og ofþjálfun 33:59 - Ákvarðanir um breytingar 43:18 - Nýir þjálfarar, nýjar áherslur 48:24 - Endurance og púls 56:52 - Rich Froning 01:02:55 - Að vera stjarna 01:04:54 - SIMMA GYM 01:08:17 - Mataræði 01:16:39 - NIKE Global samningur 01:20:10 - Myndatökur 01:23:39 - Hugarfar 01:30:58 - Lyftingar, PR og ólympíuleikarnir 01:35:58 - Háskóli vs. íþróttamaður 01:40:34 - Góðar minningar og slæmar 01:45:14 - Keppnisskap, innblástur og Schwartzenegger 01:54:54 - "Still fat inside" 01:57:17 - 1M followers

May 18, 20182h 2m

S1 Ep 1#1 - Björgvin Karl

Björgvin Karl, fremsti CrossFit-karl landsins og fjórfaldur heimsleikafari, settist niður og ræddi um Stokkseyri, CrossFit, andlegu hliðina, peninga og Þjóðhátíð. 08:10 - Athlete IQ - það sem þú æfir ekki í gymminu 13:47 - Deadmau5 14:50 - 100kg clean á sokkunum og CrossFit 19:34 - Að sjá Anníe Mist í fyrsta skipti 24:43 - Ekki í háskóla 27:17 - Björgvin fer á Games 32:20 - Úr 26. yfir í 3. sæti 34:20 - Chris Hinshaw 37:53 - Dan Bailey, Murph og Games 2015 44:58 - Podium finish 49:34 - Peg boardið 55:32 - "Ég er Top10" 57:50 - Lyfjapróf 01:00:39 - Ég sætti mig ekki við Top10 01:03:36 - Off-season, hjartsláttamælar og loftháð þol 01:12:29 - Hvernig á að hita upp til að performa betur 01:19:58 - Venjuleg æfingavika og mataræði 01:25:34 - Dorian "The Shadow" Yates 01:28:23 - Að nenna ekki á æfingu og fórnarkostnaður 01:32:43 - Peningar, Instagram, styrktaraðilar og hamborgarar 01:43:02 - Mental strength og að tala við sjálfan sig 01:57:23 - Aldrei sleppt æfingu 01:59:07 - Æfa með Rich Froning 02:07:30 - Næring og stress fyrir keppni 02:14:53 - 10km og Kári Steinn 02:20:20 - Þjóðhátíð og önnur áhugamál 02:27:23 - Stærsta tap á ferli Björgvins

May 15, 20182h 31m