PLAY PODCASTS
The Snorri Björns Podcast Show

The Snorri Björns Podcast Show

157 episodes — Page 2 of 4

S1 Ep 102#102 Ragnar Jónasson - Milljóna bóka rithöfundurinn í bankageiranum

Ragnar Jónasson labbaði inn í bókaforlag 17 ára gamall bauðst til að þýða Agöthu Christie bækurnar vinsælu. Næstu 15 ár, í gegnum lögfræðinám, störf sem fréttamaður og lögræðingur Kaupþings þýddi hann bækur á hliðarlínunni en það var ekki fyrr en í fjármálahruninu 2008 sem Ragnar, bankastarfsmaðurinn, staldraði við og ákvað að reyna á bókakskrifin. Sú ákvörðun bar ávöxt: 1. sæti í Frakklandi, 1. sæti í Bretlandi, 1. sæti í Þýskalandi, 3 bækur samtímis á top 10 listanum í Þýskalandi og 2 milljónir eintaka seld. Ekki eins og hann hafi hætt aðalstarfi sínu í Arion banka heldur gefur hann sér tíma á hverjum einasta degi til að skrifa bækur eftir vinnu. Við ræðum leiðina að skrifunum, störfin hans áður, núverandi störf og m.a. vinnu hans með Controlant, viðskiptamódelið á bakvið bókasölu og hvernig fótboltaleikur í Skotlandi kom Ragnari á kortið.

Sep 22, 20211h 28m

S1 Ep 101#101 - Bjarni Benediktsson

Í þættinum ræðum við feril Bjarna fyrir pólitíkina, fótboltann, lögfræðina, námið í þýskalandi og Ameríku, að verða faðir 21 árs gamall, maraþonhlaup og hvernig stjórnarslit komu í veg fyrir Berlínarmaraþonið, hvernig annasamasti maður landsins - áreittur úr öllum áttum - finnur tíma fyrir fjölmörg áhugamálin sín (veiði, skíði, ljósmyndun, blómarækt, kökuskreytingar ofl.) og hleður batterýin í baðkarinu heima bæði morgna og kvölds.

Sep 15, 20211h 40m

S1 Ep 100#100 Martha Ernstsdóttir - Hraðasti hlaupari Íslandssögunnar

Martha Ernstsdóttir er fyrsti Íslendingurinn til að hlaupa maraþon á Ólympíuleikunum og Íslandsmetin hennar í 5000m 10000m, hálfu maraþoni og heilu maraþoni standa ennþá - og það nokkuð örugglega. Hér förum við yfir hörkuna sem Martha og langhlauparar búa yfir, feril og yfirburði Mörthu, æfingarnar í snjónum, púlsþjálfun, mjólkursýrumælingar, ofþjálfun, egóið, að gera það sem maður vill og hvernig ÍSÍ kom í veg fyrir að Martha keppti á Ólympíuleikunum þrátt fyrir að ná lágmarki í þremur (!!!) greinum.

Sep 8, 20211h 44m

S1 Ep 99#99 - Willum Þór Þórsson

"Ég get tekið undir það ég er alveg grjótharður gamli skólinn." Willum Þór ræsti skólagönguna 5 ára gamall, lék með yngri landsliðum í körfubolta, fótbolta og handbolta ásamt því að leika fyrir meistaraflokk KR í öllum þremur greinunum á sama tíma. Kennari, þjálfari og alþingismaður af gamla skólanum sem hefur aldrei felt niður kennslu, tekið sér veikindadag frá vinnu og er með 99% mætingu á þingið. Samnefnarinn í íþróttum, kennslu og pólitík krufinn til mergjar og heimspekilegar pælingar frá hægum manni, að eigin sögn, sem getur þó séð rautt og gengst þá við viðurnefninu Tryllum, að annarra sögn.

Sep 1, 20211h 43m

S1 Ep 98#98 - Anníe Mist

Anníe Mist vann sér inn medalíu á CrossFit Games 2021, 10 mánuðum eftir barnsburð. Ótrúleg frammistaða eftir áratug í sportinu rakin, hugmyndin um að sleppa þessum heimsleikum bara, ákvörðunin að eignast barn, fjárhagur crossfittara, konur eru ekki litlir menn, hvernig konur eiga að nærast/æfa öðruvísi en karlar og margt fleira. Dave Castro, framkvæmdastjóri CrossFit Games: People are too casual about the fact that Annie has been competing at the CrossFit Games since 2009. Someday, someone will write a book about the dizzying evolution of the sport that has occurred since then. In the meantime, you can learn everything you need to know by looking at Annie's stats over the last 13 years—of all the OG competitors she is the only one still competing; a perennial contender in the new era she literally helped create. The physical and mental fortitude required to remain at the top of this sport for so long is hard to comprehend. The relatively short individual careers of Rich Froning (5 years) and Mat Fraser (7 years)—universally regarded as the best ever—provide some perspective. Annie, has outlasted them both. That she is returning to the Games for the eleventh time just 10 months after giving birth is, if not an outright flex, certainly a message: CrossFit's original Dottir isn't done redefining what's possible.

Aug 25, 20211h 48m

S1 Ep 97#97 Birgir Jónsson - Úr prentnámi og þungarokki í forstjórastólinn

Birgir Jónsson er forstjóri PLAY Air en það er þriðja flugfélagið sem hann starfar fyrir. Rétt orðinn þrítugur var hann kominn í forstjórastól Iceland Express og þar áður bjó hann í Hong Kong sem svæðisstjóri Össur. Atvinnuferill Birgis er áhugaverður í ljósi þess að hann er menntaður sem offset prentari, fór í listaháskóla í London og var þungarokkari. Munurinn á rekstri fyrirtækja og þungarokkshljómsveita er í grunninn ekki mikill og rauði þráðurinn er að vinna með fólki. Hér förum við yfir ferilinn, tímann hans hjá Póstinum, DIMMU, hugmyndina af PLAY Air, hvað gerir Birgi svona góðan í því sem hann gerir og hvernig honum tókst að sannfæra 3 þungarokkara um að koma með sér í sálfræðitíma.

Jul 21, 20211h 44m

#96 - Þorsteinn Bachmann

Þorsteinn Bachmann fer með stórleik í þessum þætti. Við útskýringar á aðferðarfræði Chekhov og Stanislavski var hann við það að bresta í grát þáttastjórnandi líka. Við förum yfir hlutverkið hans í Kötlu, hvernig Helgi Björns kickstartaði leikferli Þorsteins og feimnina sem hann þurfti að yfirstíga til að mæta á svið - sem var svo mikil að hann kastaði upp á milli sena.

Jul 14, 20211h 55m

S1 Ep 95#95 Hafsteinn Ægir - Ólympíufari og Íslandsmeistari í sitthvorri íþróttinni

Hafsteinn Ægir Geirsson er einn albesti hjólari landsins. Hann hefur unnið Bláa Lóns þrautina í fjallahjólreiðum 11 sinnum og er sömuleiðis margfaldur Íslandsmeistari í götuhjólreiðum. Ekki nóg með að ná langt í hjólreiðum hefur hann farið á tvenna ólympíuleika í allt annarri íþrótt: siglingum. Hafsteinn segir okkur frá því hvernig hann fann sig í siglingunum sem ungur strákur, hætti í menntaskóla eftir lítinn stuðning frá skólastjóra, flutti til Suður-Frakklands, keppti á tvennum ólýmpíuleikum áður en hann yfirgaf íþróttina til að gerast Íslandsmeistari í annarri. Skiptin á milli íþrótta eiga við einhver rök að styðjast þar sem hann tók styrk í löppum, þrautseigju og brjálað keppnisskap með sér milli íþrótta.

Jul 7, 20211h 59m

S1 Ep 94#94 Ásgeir Jónsson - Seðlabankastjóri Íslands

Ásgeir Jónsson ólst upp í sveit og var illa tekið af samnemendum í grunnskólanum sínum. Hann átti erfitt með tal, var ólæs og lagður í einelti af jafnöldrum sínum. Þegar honum tókst loksins að lesa ákvað hann að fara alla leið í því námi sem hann tæki sér fyrir hendur. Eftir stutta viðkomu í líffræði, læknisfræði, á spítalanum og á sjónum endaði Ásgeir í hagfræði sem leiddi hann í starf aðalhagfræðings Kaupþings og nú Seðlabankastjóra Íslands. Ásgeir er var um sig og lærði fljótt í sínu starfi hjá Kaupþing að allir vildu vera vinir hans þegar vel gekk en önnur var sagan þegar bankinn hrundi. Í viðtalinu er stiklað á risastóru: Greining á Trump Að finna sér ævistarf sem maður elskar og hvað ungt fólk á að læra Að missa systur sína og átta sig á því hvað hann vildi gera við líf sitt Að taka helmingslaunalækkun og yfirgefa bankageirann Stam sem fötlun og ákvörðunin að þola það þegar fólk horfir á sig Framkoma nemenda og íslenskukennsla á Íslandi Ráðleggingar til fólks varðandi fjárfestingar í lágvaxtaumhverfi Hvort áhrif stýrivaxta á fasteignamarkaðinn komu Ásgeiri á óvart Ábyrgðin sem fylgir því að vera Seðlabankastjóri "Only the paranoid survive" Kostur og gallar þess að greina allt sem maður gerir í drasl Hvernig hann klæðir sig sem Seðlabankastjóri Íslands og hvað vasaklúturinn táknar

Jun 30, 20211h 29m

S1 Ep 93#93 Ármann Þorvaldsson - Sagnfræðingurinn bakvið fjármálaveldið

Kennarasonurinn úr Breiðholtinu sem æfði badminton, kláraði menntaskólann á 5 árum, mætti ekki á böll og lærði sagnfræði í háskólanum til þess að sinna þeirri köllun sem hann fann hjá sér til að kenna menntskælingum sögu. Allt kom fyrir ekki, Ármann Þorvaldsson rataði inn fyrir dyr Kaupþings sem breyttist úr smáfyrirtæki í langöflugasta og verðmætasta fyrirtæki landsins á skömmum tíma. Sagan endar ekki þar eins og flestir vita, Kaupþing átti sinn hlut í hruninu og við fáum að heyra af þessum uppgangi og endalokum Kaupþings frá Ármanni sjálfum.

Jun 23, 20211h 53m

S1 Ep 92#92 Guðmundur Kristján - Af hverju borgarskipulag skiptir þig máli

Hvar viltu búa og hvað kostar þig að búa þar? Hvar er byggt og af hverju? Af hverju er freistandi að dúndra bara upp nýju úthverfi? Hvað geturu gert fyrir peninginn sem fer í bílinn þinn og hvers virði er tíminn þinn raunverulega? Borgarskipulag hefur víðtæk áhrif og skiptir sköpum þegar kemur að lýðheilsu þjóðar, loftgæðum og umhverfismálum. Lóðaframboð, blönduð byggð, samgöngumátar, deiliskipulag, þétting byggðar og fleiri erfið, og að ég hélt óspennandi hugtök, eru hér útskýrð á mannamáli af Guðmundi Kristjáni Jónssyni, húsasmiði og skipulagsfræðingi.

Jun 16, 20212h 24m

S1 Ep 91#91 - Elísabet Ronaldsdóttir

Deadpool, John Wick, Contraband, Ófærð, Mýrin og Djúpið - allt eru þetta myndir sem Elísabet Ronaldsdóttir hefur klippt og unnið að. Svo langt hefur hún náð í faginu að hún var valin í Óskarsverðlauna tilnefninganefnd og hlaut Fálkaorðuna fyrir störf sín. Hér ræðir hún upphaf ferilsins, að hlusta á sjálfa sig og standa með sér (hafna blockbuster verkefnum frá Marvel og skila Fálkaorðunni), 4. stigs krabbamein sem hún greindist með í átakanlegri framleiðslu Deadpool 2 og hvernig Ryan Reynolds sjálfur sá til þess að Elísabet fengi bestu krabbameinsmeðferð sem bauðst.

Jun 9, 20211h 42m

S1 Ep 90#90 - Sara Sigmundsdóttir

Sara Sigmundsdóttir fékk þungt högg á hnéð og CrossFit keppnistímabilið þegar hún sleit krossband í mars síðastliðnum. Það dregur þó ekki úr andanum, hún hefur nóg á sinni könnu og snýr sér að grunninum í CrossFit, vinnu með hausinn á sér í samstarfi við sálfræðinga og svokallaðan 'mental performance coach', verkefnaskilum í sálfræði, hönnun á fatalínu og fleiri tækifærum sem rata á borð stjörnunnar.

Jun 3, 20211h 34m

S1 Ep 89#89 Hjálmar Gíslason - stofnun fyrirtækja, framkvæmd hugmynda og tækniframþróunin

Hjálmar er tæknifrumkvöðull og stofnandi 5 fyrirtækja. 3 þeirra voru seld með góðum hagnaði og það nýjasta, GRID, lauk nýverið 2 milljarða fjármögnun. Hjálmar talar um mýkri hliðar fyrirtækjareksturs og frumkvöðlamennskunar, að koma fram þrátt fyrir feimni (í hans tilfelli á fyrirlestri í Hvíta húsinu) og að finna persónulegar ástæður fyrir því sem maður tekur sér fyrir hendur. Einnig förum við yfir lykilþætti og forgangsröðun þeirra þegar kemur að fyrirtækjarekstri og leiðum spjallið inn á áhugasvið Hjálmars: tækni, þróun og fjölmiðlar.

May 27, 20211h 35m

S1 Ep 88#88 - Hannes Þór Halldórsson

Maðurinn sem varði vítið frá Messi og leikstýrði tónlistarmyndbandinu við 5 ár Richter með Nylon. Hannes á ekki hefðbundna sögu atvinnuíþróttamanns sem byrjar ungur að æfa og vex svo í íþróttinni. Íþróttaferillinn vék um tíma fyrir leikstjóraferlinum þar sem Hannes leikstýrði meðal annars Atvinnumönnunum okkar. Í einum þættinum er fylgt eftir Eiði Smára Guðjohnsen og þó enginn viðstaddur hefði trúað því á þeim tíma þá enda leikstjórinn og fótboltagoðsögnin saman sem herbergisfélagar á stærsta íþróttamóti Íslandssögunnar nokkrum árum síðar. Eftir HM flyst Hannes út til Aserbaídsjan en alvarlegt bílslys setti lit sinn á dvölina úti.

May 21, 20212h 9m

S1 Ep 87#87 Hafliði Ragnarsson - Ástríðan fyrir súkkulaði og annar séns eftir heilablóðfall

Það kom líklega keppendum, dómurum og viðstöddum á óvart þegar það kom í ljós að 2. sætið á heimsmeistaramóti í súkkulaðigerð fór til ungs bakara frá litlu bakaríi í Mosfellsbæ á Íslandi og var 0,1% stiga frá sigursætinu - en ekki uppaldra belgískra súkkulaðigerðarmanna. Hafliði kemur af ættum bakara og ákvað að sérhæfa sig í desert- og súkkulaðigerð. Leiðin til að skara fram úr fólst í því að lesa um fagið í gömlum uppskriftabókum og banka upp á hjá Jóa Fel og fá hann til að kenna sér. Á umfangsmiklum og stórskemmtilegum ferli fékk Hafliði alvarlegt heilablóðfall og var sendur til Svíþjóðar í 8 klukkustunda aðgerð. Þrátt fyrir annað tækifæri til að snúa blaðinu við gerði Hafliði ekki mikið í sínum málum fyrr en nú, áratug síðar.

Apr 28, 20211h 32m

S1 Ep 86#86 Hrefna Sætran - fine-dining og pizzur, kraftlyftingar og yoga, ballett og hip-hop

Það sem þið vissuð líklega ekki um Hrefnu Sætran er að hún er margfaldur Íslandsmeistari í dansi, Kundalini yogakennari, æfir kraftlyftingar, stundar laxveiði, er mikill hiphop-haus og elskar taco og Japan. Hún er hins vegar betur þekkt fyrir að reka tvo flottustu veitingastaði í Reykjavík: Fiskmarkaðinn og Grillmarkaðinn ásamt Skúla Craft Bar.

Apr 21, 20211h 33m

S1 Ep 85#85 Veigar Margeirsson - Framúrskarandi í Hollywood

Veigar flutti ungur til Bandaríkjanna til að stunda tónlistarnám. Fljótlega fann hann sig fremstan meðal jafningja í suðupotti kvikmyndaframleiðslu heimsins: Hollywood. Veigar semur tónlist fyrir stiklur (e. trailer) vinsælustu bíómynda heims, þar á meðal Star Wars, Batman Begins, Lord Of The Rings, The Joker og hefur gerst svo lánssamur að vinna með Steven Spielberg fyrir Ready Player One. Á meðan ferillinn hans Veigar er draumi líkastur hefur mótlæti og áföll einkennt einkalíf hans og fjöskyldunnar en Veigar og konan hans misstu barn ung að aldri og nýlega gekkst hann undir aðgerð þar sem hann gaf konunni sinni nýra. Lífsglaður, almennilegur og einstaklega vandaður maður sem margt er hægt að læra af.

Apr 14, 20212h 5m

S1 Ep 84#84 Hlynur Andrésson - Íslandsmet í maraþoni í fyrstu tilraun

Hlynur Andrésson er margfaldur Íslandsmethafi í hlaupum, það kann að koma á óvart þar sem Hlynur fékk styrk til að stunda nám og æfa körfubolta í Bandaríkjunum en tók þátt í víðvangshlaupi sem hann vann óvænt og hefur síðan þá slegið hvert Íslandsmetið á fætur öðru - ásamt því að ljúka BS og Master í krefjandi líffræðinámi Bandaríkjanna.

Apr 7, 20211h 40m

S1 Ep 83#83 Kristrún Frostadóttir - Hvað er að gerast í hagkerfinu og af hverju?

Fyrri hluta þáttar fáum við að heyra um vegferð Kristrúnar í gegnum Boston University, Yale og hvernig hún vann sig inn og upp stigann hjá Morgan Stanley, einum stærsta fjárfestingabanka heims. Síðari hluti þáttar er ótrúlegt samspil hagræðiþekkingar Kristrúnar og fáfræði minnar. Við förum yfir stöðu hagkerfisins í dag, hvað seðlabankinn gerir, hvernig ákvarðanir seðlabankans hafa áhrif á þig, stýrivextir, hvað lágvaxtaumhverfi þýðir, fasteignaumhverfið, peningaprentun, verðbólgu og af hverju allir eiga bitcoin og bréf í Icelandair á sama tíma og það er kreppa og atvinnuleysi.

Mar 24, 20212h 29m

S1 Ep 82#82 Tryggvi Þorgeirsson - Gestakennari hjá Harvard og MIT í behavioral economics og forstjóri Sidekick Health

Tryggvi Þorgerisson er læknir með meistaragráðu í heilbrigðisvísindum frá Harvard og gestakennari í Harvard og MIT í atferlishagfræði (e. behavioral economics), þar sem spurningunni um af hverju við gerum það sem við gerum er svarað. Hann er forstjóri Sidekick Health sem beitir sér fyrir fyrirbyggjandi nálgun á heilbrigðisþjónustu með notkun leikjavæðingar og atferlisfræðanna. Sidekick fékk nýverið 3 milljarða króna fjárfestingu og starfar m.a. með Pfizer og einu stærsta sjúkratryggingafélagi Bandaríkjanna.

Mar 17, 20211h 34m

S1 Ep 81#81 Yrsa Sigurðardóttir - Metsöluverkfræðingurinn á Kárahnjúkum

Þegar engar góðar barnabækur voru í boði fyrir börn Yrsu tók hún sig til og skrifaði eina slíka sjálf. Nokkrum árum seinna, starfandi sem verkfræðingur, finnur hún tíma aflögu á þáverandi vinnustað sínum, Kárahnjúkum, og hristir fram handritið af Þriðja tákninu til þess að stimpla sig inn sem vinsælasta rithöfund landsins. Yrsa fer hér yfir þörf mannsins til að skapa eitthvað, efann sem læðist að sköpurum, að fara upp á við en ekki niður, hvernig verkfræðiheilinn hjálpar við handritagerð, af hverju hún heldur áfram að starfa sem verkfræðingur þrátt fyrir fjárhagslegan stöðugleika í skrifunum og bölvunina sem fylgir því að horfa á sjónvarpsefni og fatta plottið strax.

Mar 10, 20211h 39m

S1 Ep 80#80 Una Emilsdóttir - Eiturefnin sem þú borðar og berð á þig

Una Emilsdóttir, læknir og eiturefna-aðgerðasinni, vopnar hér hlustendur með upplýsingum um skaðsemi efna í umhverfi okkar sem við innbyrðum, bæði meðvitað og ómeðvitað. Útsetning þessara efna hefur varanleg áhrif á lífsgæði og líkama okkar en Una snýr umræðunni einnig í áttina að fóstrum í móðurkviði. Lausnin felst í því að losa sig við þessi eiturefni og hjálpa líkamanum eftir fremsta megni að starfa eðlilega í stað þess að bera á sig eða innbyrða hormónatruflandi efni.

Mar 3, 20212h 42m

S1 Ep 79#79 Siggi Ragnarsson - hvað getur þú lært um heilsu af besta þríþrautarmanni landsins?

Hvers vegna er það að hamla þér að taka of mikið á því? Hvernig veistu hvort líkaminn sé úthvíldur eða útkeyrður? Er grunn og ör öndun að halda aftur af þér? Hvernig eykuru hlutfall fitubrennslu á móti kolvetnabruna í líkamanum og af hverju skiptir það máli? Sigurður Ragnarsson er útpældur og ofurþjálfaður íþróttamaður með verkfræðilega nálgun á sína íþrótt. Þegar maður setur 25-30 klukkustundir á viku í æfingar er eins gott að tímanum sé vel varið. Siggi hefur bestað ferlið og fer hér yfir heilsutengda hluti sem almenningur getur nýtt sér til að auka hreysti, langlífi, úthald og almenna heilsu. Árangurinn leynir sér ekki, Siggi hefur verið valinn þríþrautarmaður ársins síðustu 3 árins ásamt því að vera bikar- og Íslandsmeistari. Besti árangur hans í atvinnumannaflokki í hálfum IronMan er 8. sæti í Finnlandi 2019 á tímanum 4 klst og 3 mínútur. Þið finnið Sigga á Instagram @sigurdurragnars_tri og fyrir upplýsingar um þjálfun á Facebook.com/srthjalfun

Feb 24, 20212h 10m

S1 Ep 78#78 - Tolli Morthens

Tolli vann sem skógarhöggsmaður og á sjó þegar hann ákvað að láta reyna á myndlistina fyrir fullt og allt. Eftir að halda sýningu inn á kaffistofu dekkjaverkstæðis og selja myndir fyrir meira en árslaun sín lofaði hann sér að hafa í sig og á gegnum myndlistina það sem eftir er. Nú 30 árum síðar heldur Tolli enn í loforðið og ver bæði tíma sínum og orku í að hjálpa þeim sem minna mega sín að finna leiðina að bata í gegnum hugleiðslu og núvitund.

Feb 17, 20211h 20m

S1 Ep 77#77 Ólafur Jóhann Ólafsson - Rithöfundurinn sem lærði eðlisfræði og bjó til PlayStation

Ólafur Jóhann dúxaði bæði Menntaskólann í Reykjavík og Brandeis Univeristy í Boston. Útskrifaður sem eðlisfræðingur fékk hann vinnu hjá Sony og var fljótlega kominn í aðstoðarforstjórastöðu innan fyrirtækisins, þá 28 ára gamall. Vinnandi samhliða Bill Gates og Steve Jobs í tæknihasarnum í Kísildal kom Ólafur saman teymi sem kynnti á markað byltingu á tölvuleikjamarkaði: PlayStation. Sjálfur lætur hann fjarstýringarnar í friði og sest niður eldsnemma morguns til skrifta. Samhliða gríðarlega krefjandi starfi hjá Sony og seinna meir Time Warner (HBO, CNN, Cartoon Network, Warner Bros, Time…) hefur Ólafur starfað sem rithöfundur og gefið út fjölda bóka - nú síðast skáldsöguna Snerting. Jeffrey L. Bewkes, þáverandi framkvæmdastjóri Time Warner: "I've read all of Olaf's books, and I'm frankly amazed that a guy who I rely on during the day to structure complex digital deals and identify international business opportunities can create novels with such rich characters and intricate plotlines."

Dec 9, 20201h 48m

S1 Ep 76#76 Haraldur Þorleifsson - Úr heimspeki og hagfræði í hönnun fyrir Apple, Google og tæknirisana í Kísildal

Haraldur Þorleifsson menntaði sig í viðskiptafræði, hagfræði, heimspeki og þróunarfræði en fór svo út til New York til að starfa sem hönnuður. Drykkjuvandamál leiddi til þess að hann var rekinn úr starfi svo hann kom heim til þess eins að drekka meira. Þrátt fyrir drykkjuna tókst Halla að fá vinnu hjá DeCode og CCP og landa erlendum kúnnum á borð við Google. Hann ákvað að sjá hversu miklu hann kæmi í verk ef hann sleppti áfenginu og þénaði í kjölfarið milljón dollara á einu ári meðan hann ferðaðist um heiminn og hannaði fyrir tæknirisana í Kísildal. Þetta var grunnurinn að vefhönnunarfyrirtækinu Ueno sem hefur náð ævintýralegum vexti síðustu árin og þénað meira en 2 milljarða. Halli hefur á sama tíma þurft að takast á við persónuleg áföll gegnum allt sitt líf. 11 ára gamall missti hann móður sína í bílslysi og 25 ára gamall byrjaði hann að nota hjólastól vegna vöðvarýrnunarsjúkdóms. Hann talar opinskátt um reynslu sína af áfengi, þunglyndislyfjum, sigrunum og ósigrunum í áttina að því að vinna fyrir fyrirtæki eins og Apple, Facebook, Twitter, PayPal, Google, WalMart og uppbyggingu Ueno.

Dec 2, 20201h 36m

S1 Ep 75#75 - Jón Arnór Stefánsson

Jón Arnór ruddi brautina í íslenskum körfubolta. Var valinn inn í landsliðið 17 ára gamall, komst inn í NBA deildina rétt rúmlega tvítugur og hefur spilað í þremur sterkustu deildum í heimi. Jón hefur spilað fyrir lið um allan heim og gefur okkur meðal annars innsýn í lífið í Rússlandi þar sem mis-löglegir atburðir áttu sér stað og stjörnulífið í Róm þar sem hann og Totti prýddu Nike auglýsingar á torgum bæjarins. Lífið snerist samt um meira en peninga og á hápunkti ferilsins ákvað Jón að koma aftur heim sem var mikið gæfuspor í hans lífi.

Nov 25, 20202h 12m

S1 Ep 74#74 Héðinn Unnsteinsson - Stefnumótunarsérfræðingur og formaður Geðhjálpar

Héðinn er stefnumótunarsérfræðingur hjá Forsætisráðuneytinu, formaður Geðhjálpar, hann starfaði fyrir Alþjóðaheilbrigðisstofnunina WHO, átti frumkvæði að Geðorðunum 10 sem prýddu ísskápa landsins hér á árum áður og hefur undanfarin 25 ára starfað að geðheilbrigðismálum almennt. Hann hefur sína reynslu af þessum málum og skrifaði bókina Vertu Úlfur um eigin reynslu af geðheilbrigðiskerfinu.

Nov 18, 20202h 10m

S1 Ep 73#73 Jóhann Ingi Gunnarsson - Viðtalið sem þú þurftir að heyra

Jóhann Ingi Gunnarsson er sálfræðingur að mennt en breytingastjóri að eigin sögn. Hann er maður margra hatta: þjálfar stjórnendur og fólk í ábyrgðarstöðum (afreksfólk í íþróttum, forstjóra, pólitíkusa…), heildsali á daginn, handboltaþjálfari, kennari, fyrirlesari og faðir. Sjálfur á Jóhann framúrskarandi feril sem handboltaþjálfari en hann tók m.a. við handboltalandsliðinu aðeins 23 ára gamall og fór svo sem sálfræðingur liðsins til Beijing 2008. Í þessum þætti förum við yfir lykilatriði lífs einstaklingsins, ef svo má að orði komast. Jóhann leiðist meðalmennska og starfar við að hjálpa fólki að skara fram úr, laga hjónabönd, leiða fólk upp úr kvíða, depurð og þunglyndi og hafa gaman af lífinu almennt. Reynslan hans markast ekki bara af fyrri störfum, Jóhann og konan hans eignuðust fatlaðan dreng sem mótaði lífsviðhorf þeirra til framtíðar.

Nov 11, 20202h 0m

S1 Ep 72#72 Bogi Nils - Forstjóri Icelandair

Bogi Nils, forstjóri Icelandair hóf störf hjá Icelandair rétt eftir fjármálahrunið 2008. Hrunið var ekki eina brekkan sem Icelandair átti eftir að klífa: eldgosið í Eyjafjallajökli, kyrrsetning MAX vélanna, samkeppnin við WOW air og nú síðast heimsfaraldurinn Covid. Það hefur nýst Boga vel að vera vinnusamur síðustu mánuði, enda með reynslu af næturvinnu í síldinni á Eskifirði í æsku. Nýlega lauk fyrirtækið vel heppnuðu hlutafjárútboði en þar bættust við 7.000 nýir hluthafar. Bogi talar hér um hvernig það er að reka flugfélag í heimsfaraldrinum sem varð þess valdandi að fyrirtækið flaug 3% af leiðarkerfum sínum í september síðastliðnum ásamt því að fara yfir eigin feril.

Nov 4, 20201h 27m

S1 Ep 71#71 - Sirrý Arnardóttir

Fjölmiðlakona til 30 ára, stjórnendaþjálfari, háskólakennari og rithöfundur. Sirrý hefur komið víða við og kennir fólki örugga tjáningu, samskipti og fjölmiðlafærni frá eigin reynslu og framhaldsnámi sem hún sótti hjá bandarískri samsteypu. Hún sagði upp föstu starfi í fjölmiðlum, bjó sér til tækifæri og starfar sjálfstætt í dag.

Oct 28, 20201h 56m

S1 Ep 70#70 Gísli Matthías - Á heimsklassa í Vestmannaeyjum

"Gísli, hvað ertu að gera í Eyjum þegar þú getur komið til Reykjavíkur og orðið ríkur." - "Ég er í Vestmannaeyjum, þetta er einn af fallugustu stöðum í heimi. Ég er með veitingastað þar sem get gert hvað sem ég vil. Ég á 4 börn og konu sem ég elska út af lífinu... ég held ég gæti bara ekki verið ríkari. Þó svo að Slippurinn sé ekki að skila einhverjum peningum þá bara skiptir það ekki máli - hvað vill maður gera við peninga?" Gísli Matthías fór á sjóinn til þess að átta sig á því að hann langaði aldrei þangað aftur. Hann vann við framkvæmdir á veitingastað þegar einn daginn mætti ekki uppvaskari. Gísli hljóp í hans skarð og fann sig allt í einu á 16 tíma kokkavöktum, takandi fyrstu skrefin í áttina að því að verða einn besti kokkur landsins. Hann opnaði Slippinn, veitingastað í Vestmannaeyjum, á sumrin og safnaði sér pening sem hann eyddi svo á veturna til að læra af bestu kokkum heims á þriggja Michelinstjörnu veitingastöðum í New York og elda fyrir milljarðarmæringa í skíðaskálum.

Oct 21, 20202h 5m

S1 Ep 69#69 - Sólrún Diego

Sólrún Diego nýtur mikilla vinsælda á samfélagsmiðlum þar sem hún fjallar um þrif, hagnýt húsráð, skipulag og lífsstíl almennt.

Oct 14, 20201h 43m

S1 Ep 68#68 Lukka Pálsdóttir - fita, kolvetni, offita og sykursýki

Lukka Pálsdóttir útskýrir hvernig okkur mistekst að ná tökum á offitu og heilbrigði með því að berjast við hungrið: borða minna og hreyfa okkur meira. Af hverju hormónar vega meira en kaloríur. Hvernig fitusöfnun á sér stað og hvernig við getum snúið baki í bólgur, sykursýki, offitu og aðra langvinna sjúkdóma (vísbending: hættu að borða sykur).

Oct 7, 20201h 38m

S1 Ep 67#67 - Evert Víglundsson

Evert Víglundsson, meðeigandi og stofnandi CrossFit Reykjavík, mættur aftur með lífskraftinn og Chihuahua hundinn Ronju með sér.

Sep 30, 20202h 9m

S1 Ep 66#66 - Friðrik Dór

"Miðað við hvað fólk hataði þetta þá seldist fyrsta platan bara fínt" sagði Friðrik Dór um móttökurnar sem hann fékk við skrefi sínu inn í íslenskt tónlistarlíf árið 2009. Rúmlega áratug síðar er hann einn vinsælasti tónlistarmaður, skemmtikraftur, dagskrágerðarmaður og skyndibitaunandi landsins. Ef þig langar að styrkja þáttinn um örfáa hundraðkalla á mánuði er vel tekið á móti þér á www.patreon.com/snorribjorns

Sep 23, 20201h 54m

S1 Ep 65#65 - Bogi Ágústsson

Þjóðin hefur boðið Boga Ágústssyni, starfsmanni RÚV til 43. ára, inn í stofu til sín síðustu áratugina. Hér ræðum við þróun fjölmiðla, íþróttayfirburða Finna, hlaðvörp, eftirminnilega vinnudaga, akademísk vinnubrögð og heppnina að lenda í starfi sem maður hefur áhuga á. Smelltu hér til að fá aðgengi að þáttunum á undan öðrum/aðgang að aukaefni/styrkja þáttinn.

Sep 16, 20201h 12m

S1 Ep 64#64 Helgi Rúnar Óskarsson - Forstjóri 66° Norður

Helgi Rúnar Óskarsson fór víða áður en hann tók við einu elsta og verðmætasta vörumerki Íslands og gjörbreytti rekstri þess. Eftir menntaskóla fékk hann draumastarfið á Bylgjunni sem útvarpsmaður og sá meðal annars um fyrsta vinsældarlista Bylgjunnar. Hann vissi samt að hann vildi fara út í sinn eigin rekstur og eftir nám í Bandaríkjunum opnar hann Subway í Danmörku, aðeins 28 ára gamall. Reksturinn var Helga vonbrigði en hann tekur við Dale Carnegie á Íslandi í kjölfarið og notar aðferðafræðina sem þar er kennd til að loka á efasemdirnar um sjálfan sig og byggja upp sjálfstraust aftur. Hann og konan hans selja svo heimilið sitt til að fjármagna kaupin á 66° Norður og Helgi tekur við sem forstjóri fyrirtækisins árið 2011, en frá 2011 til 2018 tvöfölduðust tekjur 66° Norður. Helgi er með ótrúlegan drifkraft, en hann setti sér til dæmis markmið aðeins 25 ára gamall að hann ætlaði sér að verða 100 ára gamall (sem þótti ekki algengt á níunda áratugnum) og er með líftstíðarsamning við sjálfan sig um að hreyfa sig alltaf, sama hversu brjálað er að gera. Hann er vel að sér í fræðum tengdum hreyfingu, heilsu, uppeldi, rekstri og les sér til um allt það sem kveikir áhuga hans. Einstaklega hvetjandi spjall fyrir alla þá sem vilja skora á sjálfa sig og ná árangri.

Sep 9, 20202h 33m

S1 Ep 63#63 Þorsteinn Friðriksson - Plain Vanilla, TeaTime Games og mistökin í átt að árangri

Þorsteinn Friðriksson rekur söguna á bakvið það að stofna fyrirtæki án hugmyndar, ris Plain Vanilla og spurningaleiksins sem sigraði heiminn; Quiz up, fallið og gjaldþrotið sem fylgdi, að gefast ekki upp þegar maður er staddur á botninum, söluræðurnar sem söfnuðu milljöðrum frá fjárfestum, tímann í Oxford, TeaTime Games, að ná á toppinn aftur og hlutverk BT-músarinnar í sínu lífi.

Sep 2, 20201h 46m

S1 Ep 62#62 Vera Illugadóttir - Í ljósi sögunnar

Vera Illugadóttir er flestum hlaðvarpshlustendum kunnug, allavega röddin hennar. Í þáttunum sínum skoðar Vera hryðjuverkaárásir, heimsfaraldra, fjársvikamál, raðmorðingja og fleiri viðfangsefni sem hörðustu aðdáendum þykir gott að sofna við - í ljósi sögunnar. Í þáttunum er farið víða en það hefur Vera sömuleiðis gert: Sýrland, Jemen, Líbía, Egyptaland og fleiri mið-austurlönd á ferðalagi með ömmu sinni leiddu hana á endanum í BA nám í arabísku.

Jul 16, 20201h 17m

S1 Ep 61#61 - Guðjón Valur #9

Handboltageitin Guðjón Valur Sigurðsson. Maðurinn sem skoraði sitt fyrsta landsliðsmark 20 ára gamall og leggur skóna á hilluna 20 árum seinna sem leikmaður PSG, eins besta handboltaliðs heims, markahæsti landsliðsmaður í heimi og fyrirliði íslenska landsliðsins.

Jul 1, 20202h 26m

S1 Ep 60#60 - Guðni Th.

Guðni Th. í stórskemmtilegu spjalli um hlaupaferilinn, hraunið í Vestmannaeyjum, Oxford, ævisögu (í óþökk) Kára Stefánssonar, sáttarfundi þeirra í London, lýðheilsu, geðheilsu, líkamlega heilsu og hvernig við getum og eigum að hafa áhrif á eigin örlög.

Jun 24, 20201h 10m

S1 Ep 59#59 - Jói Fel

Bekkpressa og kökuskreytingar. Skotveiði og listmálun. Skrifblinda og metsölubækur. Harður og mjúkur í einum manni: Jói Fel.

May 27, 20201h 28m

S1 Ep 58#58 Hreggviður Jónsson - Úr frystihúsinu á Djúpavogi yfir í 20 milljarða veltu

Hreggviður Jónsson fæddist á Þórshöfn, 350 manna bæ á Langanesi. Hann tók virkan þátt í raunhagkerfinu: vann í fiski, fór á sjó og var verkstjóri í frystihúsinu á Djúpavogi aðeins 19 ára gamall. Úr Samvinnuskólanum á Bifröst fer hann í Harvard Business School og er fyrsti Íslendingurinn til að útskrifast þaðan. Eftir nám gegnir Hreggviður ýmsum störfum fyrir meðal annars McKinsey í Stokkhólmi og öðrum forstjórastörfum hérlendis. Hann endar á því að segja upp sem forstjóri Stöð 2 og gengur út í launalaust atvinnuleysið með skýrt markmið um að fara út í eigin rekstur. Sá rekstur velti 20 milljörðum í fyrra.

May 20, 20201h 42m

S1 Ep 57#57 - Einar Carl & Helgi Freyr

Helgi Freyr gafst upp á hreyfingu eftir að slíta á sér báða nárana tvisvar sinnum. Hann ákvað í staðinn að taka doktorsgráðu í eðlisfræði sem fylgdi 8 tímar á dag af skóla og 8 tímar af tölvuleikjum. Mikilli kyrrsetu fylgdu heilsukvillar en á sama tíma fylgdu allri hreyfingu miklir verkir. Í leit að lausnum kynntist Helgi Einari Carli sem sjálfur hafði leitað leiðarinnar að almennri heilsu og eðlilegri hreyfigetu eftir að fimmbrjóta á sér bakið í snjóbrettaslysi. Í dag eiga þeir og reka Primal Iceland og kenna þar allt sem viðkemur andlegu og líkamlegu heilbrigði: streitustjórnun, hreyfiflæði, réttir hreyfiferlar, öndunaræfingar og handstöður.

May 13, 20202h 9m

Hringt og svarað 04 - Bergur Ebbi, Tryggvi Hjaltason

00:00 - Inngangur og hringt í vin 13:58 - Bergur Ebbi/Dimitri Martin Kournikov (???), tennis, fótbolti, misþröngir búningar, Woody Harrelson vs. David Beckham og vídjóið sem eyðileggur mannorð Bergs en skýtur syni hans upp á stjörnuhimininn. 1:16:35 - Tryggvi Hjaltason, nýsköpun og sóknartækifæri, ofurheilsa og jákvæð áhrif öldrunar.

May 1, 20201h 53m

S1 Ep 56#56 - Sveppi Krull

Sveppi fokking Krull og ekki orð um það meir.

Apr 15, 20201h 30m

Hringt og svarað 03 - Arnar Péturs, Anníe Mist, Halla Tómasdóttir

0:00 - Inngangur og hringt í vin 10:40 - Arnar Pétursson: Rotterdam maraþonið, hérað með selfie-stöng og fyrstu skref í hlaupunum. 50:51 - Anníe Mist: Áhrif óléttunnar á vinnutækið, hvað verður um six-packið og meðgönguleikfimin. 1:11:16 - Halla Tómasdóttir: Í auga stormsins, tækifæri í krýsunni, góðar og slæmar ákvarðanir stjórnenda.

Apr 10, 20201h 30m

S1 Ep 55#55 Laddi - feimni, minnimáttarkennd og martröðin við að koma fram

Laddi segir söguna af því hvernig húsgagnasmíði og málarahæfileikar komu honum í sjónvarp og hvernig hann gerði sína verstu martröð, að koma fram fyrir framan hóp af fólki, að atvinnu sinni.

Apr 8, 20201h 16m