PLAY PODCASTS
The Snorri Björns Podcast Show

The Snorri Björns Podcast Show

157 episodes — Page 3 of 4

Hringt og svarað 02 - Gauti Grétars og eldræðan, hringt í fyrrverandi yfirmann og 10 daga silent retreat

Gestir: Gauti Grétarsson, Baldur Kristjánsson, Bergþór Másson 00:00 - Inngangur og hringt í vin. 07:14 - Gauti Grétarsson er sjúkraþjálfari til 35 ára og veit manna best að sjúkraþjálfunaræfingar eru ekki sexý. Hann hefur þó gert þetta nógu lengi til að vita að grindarbotnsæfingar, djúpvöðvaæfingar og samhæfingaæfingar virka og sporna við öldrun líkamans. Ekki nóg með að kyrrsetan skerti hreyfigetu og rýri okkur þá eigum við í hættu á að klemma taugar sem hamla djúpri og heilbrigðri öndun. 33:13 - Baldur Kristjánsson, fyrrverandi yfirmaður minn og sá aðili sem kynnti mig fyrir Instagram. Við ræðum fyrstu dagana á gramminu og tilfinninguna sem fylgdi því að fá meira en 10 like, ferðalagið hans hringinn í kringum heiminn, ferðalag föður hans hringinn í kringum heiminn (Kristján Gíslason - þáttur #33) og ljósmyndasýninguna sem hann heldur úti í Instagram Stories þessa dagana. 59:25 - Bergþór Másson, umboðsmaður ClubDub, Bríetar og Birnis, heldur úti tveimur hlaðvörpum: Skoðanabræður og Kraftbirtingarhljómur guðdómsins. Hann fór í S-Ameríku reisu og sótti svokallað silent retreat þar sem hann sagði ekki orð og hugleiddi í 10 daga.

Apr 3, 20201h 35m

S1 Ep 54#54 - Helgi í Góu

Maðurinn sem byggði upp viðskiptaveldi á karamellum og djúpsteiktum kjúkling - allt eftir kl. 17:00.

Apr 1, 20201h 4m

Hringt og svarað 01 - 90% færri borðapantanir, innlyksa bóndi með mörg læk, Filippseyjar, Suðurnes og lýðheilsa í samkomubanni

Gestir: Jón Jónsson, Sara Sigmunds, Indriði Aðalsteinsson, Halla Margrét Bjarkadóttir, Sindri Jensson, Stebbi Hilmars. 0:00 Inngangur - Fyrirkomulag og hringt í vin. 04:04 Sara Sigmundsdóttir - Cortisol og cravings í samkomubanninu. 16:08 Sindri Jensson - 13% fita en 5kg þyngri!?! Afföll í borðapöntunum og aðþrengingar í rekstri, þó engin skortur á lífsgleði. 29:25 Halla Margrét, fréttamaður þáttarins á vettvangi í Danmörku - Rafræn útskrift, Filippseyjar og bensín á eld neikvæðninnar í samfélaginu. 45:48 Indriði Aðalsteinsson - Heimsendingarþjónusta Landhelgisgæslunnar, vinnureglur í sveitinni, hvernig fær maður mörg læk og hvað einkennir góða vísu? 59:52 Jón Jónsson - Instagram tónleikahaldari og fyrrverandi framtíðar Boston Marathon þátttakandi. Árangur = hraðir skór og aumar hendur. 01:20:10 Stebbi Hilmars - COVID, íslensk tunga og Draumur um Nínu.

Mar 25, 20201h 30m

S1 Ep 53#53 - Dr. Erla Björnsdóttir, svefn- og sálfræðingur

Erla Björnsdóttir er sálfræðingur og doktor í líf- og læknavísindum og svefnsérfræðingur. Í doktorsnámi sínu rannsakaði Erla svefnleysi, andlega líðan og lífsgæði hjá sjúklingum með kæfisvefn. Í þessu spjalli tengjum við svefninn saman við líkamlega og andlega heilsu og förum yfir það hvernig þetta veltur allt saman á hvort öðru og býr til gott jafnvægi eða það sem verra er, algjöran vítahring.

Feb 10, 20201h 14m

S1 Ep 52#52 Tryggvi Hjaltason - 200 ára: föstur, stress, skilvirkni, hugarfar, herinn og trú

Tryggvi Hjaltason ætlar sér að verða 200 ára. Til þess rígheldur hann í trúnna, fastar í allt að 10 daga og lágmarkar allt stress í lífi sínu. Tryggvi starfar sem Senior Strategist hjá CCP þar sem hann hefur aðgang að verðmætur og gríðarstórum gagnabanka um hegðun notenda EVE Online - enda mannleg hegðun eitt af hans helstu áhugamálum. Áður en Tryggvi settist að í Vestmannaeyjum hélt hann út til Bandaríkjanna í svokölluð ,,intelligent studies" og gekk svo í herinn. Þegar heim var komið starfaði hann meðal annars við yfirheyrslur fyrir Sérstakan saksóknara. Í dag býr hann með fjölskyldu sinni í Vestmannaeyjum og heldur þar fyrirlestra fyrir bæjarbúau í frítíma sínum um ofurheilsu, ofurtengslanet og ofurskilvirkni: Hvernig tengist ég fólki betur sem hefur sömu markmið og ég? Hvernig næ ég þekkingu og getu úr heilanum á mér á mettíma og get ég verið heilbriðgur til 200 ára aldurs?

Feb 3, 20202h 17m

S1 Ep 51#51 - Sara Sigmundsdóttir

Sara er á sigurgöngu og valtar yfir hverja CrossFit keppnina á fætur annarri. Hún sigraði meðal annars The Open í þriðja skipti og Dubaii Fitness Championship nokkrum vikum síðar. Þó svo vel gangi í dag hefur Sara þurft að takast á við ansi harðan mótvind og mótlæti síðasta árið, mótlæti sem kallaði á margar breytingar sem allar miða að því að verða best í heimi.

Jan 27, 20201h 43m

S1 Ep 50#50 - Andri Snær Magnason

Andri Snær hóf ferilinn tvístígandi með útgáfu á ljóðabók sem seldist svo vel að hún dugði fyrir fyrstu útborgun á íbúð og sló sömuleiðis á efasemdir um val á framtíðarstarfi. Hjá minni kynslóð er Andri líklega best þekktur fyrir Söguna af bláa hnettinum, barnabók sem mamma mín las fyrir mig fyrir svefninn á sínum tíma. Nú, 20 árum síðar, gaf Andri út nýja bók, Um tímann og vatnið, sem ég treysti mér til að lesa sjálfur í þetta skiptið. Bókin er bæði hávísindaleg og stórskemmtileg, eitthvað sem hvaða rithöfundur sem er fléttar ekki auðveldlega saman.

Dec 20, 20192h 23m

S1 Ep 49#49 - Aron Einar Gunnarsson

Fyrirliða íslenska karlalandsliðsins í knattspyrnu og leikmanni Al-Arabi var flogið beinustu leið inn í podcaststúdíóið frá Katar fyrir sérstakan hátíðarþátt hlaðvarpsins. Aron hefur glímt við meiðsli undanfarnar vikur en í stað þess að leggjast í volæði heldur hann sér uppteknum með stífri sjúkraþjálfun, endurhæfingu og framleiðslu á nýju snyrtivörumerki sem hann þróaði með Kristbjörgu, konunni sinni, undir merkjum AK Skin Pure. Hér verður farið yfir ferilinn, að taka við fyrirliðabandinu 23 ára gamall, andlegu hlið fótboltamannsins, breytinguna sem fylgir því að fá allt í einu borgað fyrir að spila fótbolta, höfnunina við að komast ekki á HM 2014 og símtalið við Óla Stef fyrir síðasta leik í umspili HM 2018.

Dec 17, 20191h 56m

S1 Ep 48#48 - Karen Axels

Karen Axelsdóttir ákvað á einu djamminu að snúa blaðinu við og byrja að hreyfa sig með því að lofa sér í ólympíska þríþraut. Margar slíkar staðhæfingar hafa komið af vörum fólks eftir nokkra drykki á slíkum kvöldum en í staðinn fyrir að vakna með samviskubit yfir orðum sínum fór hún og keypti byrjendapakka þríþrautamannsins. Ólympísk þríþraut samanstendur af 1,5km sundi, 40km hjóli og 10km hlaupi. Önnur og töluvert vinsælli útfærsla af þríþraut gengur undir nafninu IronMan. Hún er ekki fyrir hvern sem er enda synda keppendur 3,8km í opnu vatni, hjóla 180km og eyðileggja sig svo endanlega með því að hlaupa maraþon: 42,2 kílómetra. Ekki nóg með að vinna Ólympísku þríþrautina, nokkrum árum seinna kom Karen í mark í IronMan Austria á 9 klukkustundum og 24 mínútum, nýju Íslandsmeti… karla og kvenna. Þess má geta að Karen var 31 árs tveggja barna móðir þegar hún hóf æfingar. Sagan af íþróttaferli hennar er ótrúlegur og hausinn sem þarf í svona íþrótt finnst ekki víða. Það kom því á óvart að heyra söguna af viðburðum sem Karen þurfti að takast á við seinna á ferlinum sem komust ekki nálægt erfiðleikastigi járnkarlsins að hennar sögn.

Nov 13, 20193h 12m

S1 Ep 47#47 - Björgvin Páll Gústavsson

Í langan tíma hef ég reynt að láta einkenni um andlegt og líkamlegt hrun sem vind um eyru þjóta. Fyrir utan erfiðleikana sem fylgja því að eiga við öll þessi einkenni er orðið allt of erfitt að reyna að halda haus og láta eins og ekkert sé innan um liðsfélagana. Nú þegar mesti gráturinn er yfirstaðinn átta ég mig á því að ég er kominn með algjört ógeð á sjálfum mér, eða öllu heldur þessum brjálaða handboltamanni sem ég bjó til í þeim tilgangi að slökkva á líkamlegum og andlegum vandamálum sem ég hef glímt við í áraraðir. Svona hefst bókin hans Björgvins, Án filters, þar sem hann rekur átakanlega æsku sína og sínar leiðir til að takast á við áföll og aðstæður heima fyrir, leiðir sem bjuggu til karakterinn sem við horfðum á í markinu á Ólympíuleikunum en sömuleiðis manninn sem brotnaði niður fyrr á árinu og var kominn með ógeð á brjálaða handboltakarakternum. Björgvin er búinn að eyða síðustu mánuðum í að gera upp æsku sína og segir frá því ferðalagi á mjög einlægan hátt, ásamt innrás sinni á gelmarkaðinn með Loga Geirs og sigur í nemakeppni Kornax undir handleiðslu meistara síns, Jóa Fel.

Oct 30, 20192h 23m

S1 Ep 46#46 - Pétur Jóhann Sigfússon

Fyndnasti maður Íslands 1999 og til dagsins í dag.

Oct 24, 20191h 55m

S1 Ep 45#45 - Bergur Ebbi

Maður hlustaði á hann í Sprengjuhöllinni, fór á Mið-Ísland uppistand með honum, followaði á Snapchat, las pistlana hans í blaðinu, hlustaði á hann fíla lög í hlaðvarpsformi og nú les maður bækur um gervigreind og samfélagsrýni eftir hann. Ég ætla ekki að bregða frá þeirri staðreynd að það er þokkalega yfirþyrmandi tilfinning að fá til sín gest sem er bráðgreindur, lögfræðimenntaður og hefur hæfileikann til að standa fyrir framan fullan sal af fólki og láta það hlæja, og ætla sér að ræða við hann um nýskrifaða bók sem kafar í málefni á borð við gervigreind, samfélagsmiðla, merkingu alls og nútímann almennt.

Oct 4, 20192h 35m

S1 Ep 44#44 - Jón Jónsson

Tónlistarmaður, hagfræðingur, sjónvarpsþáttastjórnandi, heimilisfaðir, eiginmaður, stóri bróðir Frikka Dórs, motivational speaker, motivational musician og nú síðast maraþonhlaupari. Ekki nóg með að klára maraþon þá stimplaði hann sig inn sem einn besti maraþonhlaupari okkar Íslendinga í leiðinni. Það verður að sjálfsögðu snert á maraþon reynslusögunni í þessum þætti - en það er ekki hægt að fá Jón hingað og tala bara um hlaup. Það væru vörusvik.

Sep 18, 20191h 52m

S1 Ep 43#43 - Anton McKee - London 2012, Rio 2016 & Tokyo 2020

Anton Sveinn McKee er fyrsti íslendingurinn til að ná inn á ólympíuleikana í Tokyo 2020. Þetta verða þó ekki hans fyrstu ólympíuleikar heldur þeir þriðju en Anton tók þátt í London 2012 og RIO 2016. Sögurnar af frammistöðunni og upplifuninni af ólympíuleikunum 2012 og 2016 eru frábrugðnar hvor annarri og þegar leikunum í RIO 2016 var lokið, eftir að hafa eytt lífi sínu í sundlaug síðan hann var 5 ára, voru hugsanir um að vera eftir á jafnöldrum sínum í atvinnulífinu, að vera of seinn inn á vinnumarkaðinn, að hafa misst af viðburðum sem jafnaldrar hans upplifðu á meðan hann var í lauginni orðinn ríkjandi í hausnum á honum svo sundskýlan fór á hilluna og við tók fyrirtækjaráðgjöf hjá Ernst and Young úti í Bandaríkjunum. Vissulega sorglegur endir á íþróttaferli en eins og gefur að skilja er erfitt að segja skilið við íþrótt sem maður hefur stundað frá barnsaldri og hvað þá ef maður stundar hana á hæsta stigi og líður eins og maður eigi ennþá eitthvað inni. Áhuginn á sundinu kviknaði aftur í vinnuferðum innan Bandaríkjanna og æfingar í hótelsundlaugum og sms samskipti við þjálfara skiluðu Antoni einni af sinni bestu sundferðum þegar hann stakk sér til sunds á heimsmeistaramótinu í Kína núna í júlí síðastliðnum og tryggði sér farseðilinn til Tokyo.

Sep 12, 20191h 41m

S1 Ep 42#42 - Björgvin Karl 2

Eini sanni. Væn yfirferð yfir heimsleikana 2018 og 2019. Leynimakk Bjögga og Matt Fraser, stríðsástand eftir maraþonróðurinn og hvíldartímabil í Mexíkó.

Aug 21, 20192h 16m

S1 Ep 41#41 - Halla Tómasdóttir

45 dögum fyrir forsetakosningarnar 2016, sama dag og hún mældist með 1% fylgi, varð Halla Tómasdóttir forseti í eigin lífi. Sama morgun og fyrstu kappræður forsetaframbjóðenda áttu sér stað mælist Halla með 2,5% fylgi en skilyrði fyrir þáttöku í kappræðunum var nákvæmlega 2,5% fylgi. Þetta þykir ansi áhugavert í ljósi þess að lokaniðurstöður kosninganna skiluðu Höllu 2. sæti í forsetaframboði með tæplega 30% atkvæða. Í dag er Halla búsett í New York og er forstjóri The B-Team, stofnað af Richard Branson og með stjórnarmenn á borð við Ariönnu Huffington. Fyrr á ferlinum starfaði hún við mannauðsmál og stjórnun hjá ekki minni fyrirtækjum en Pepsi og Mars í Bandraíkjunum, kom að uppbyggingu Háskólans í Reykjavík, var framkvæmdastjóri viðskiptaráðs, stofnaði Auði Capital og hefur tekið virkan þátt í samtölum um loftlagsmál og jafnrétti í heimunum.

Aug 14, 20192h 40m

S1 Ep 40Herbert Guðmundsson

Herbert er skemmtilegasti maður sem hægt er að hitta á förnum vegi. Það er ekkert minna en magnað hvað hann fer jákvæður í gegnum lífið þrátt fyrir ýmsa lágpunkta í sínu lífi, þar með talið eiturlyfja- og áfengisneyslu, fangelsisvist og gjaldþrot. Það er ekkert til að kvarta yfir enda dregur þetta það besta fram úr manninum og niðurstaðan er sú að vandamálin eru eldiviður framfaranna.

Jul 31, 20191h 7m

S1 Ep 39Sigurjón Ernir - Hlaup, styrkur, föstur & plöntur

Sigurjón Ernir er búinn að leita að öllum mögulegum leiðum í átt að árangri og situr uppi með hafsjó af fróðleik sem hann deilir með okkur í þessum þætti. Til að mynda er hann mikill talsmaður þess að fasta og fastar lotubundið á hverjum degi, hann er með ísbað úti á svölum hjá sér sem hann hoppar í á kvöldin, hann borðar ekki kjöt, hann stúderar næringarþörf sína og prógrammar æfingar fyrir sjálfan sig. Sigurjón virðist tikka í öll boxin þegar kemur að hreyfingu, hann heldur sér í góðu formi allan ársins hring og er tilbúinn fyrir áskoranir sem eru settar fyrir framan hann að hverju sinni. Þetta snýst að sjálfsögðu ekki bara um líkamann heldur hausinn líka, það að æfa einn útí bílskúr hjá sér alla morgna byggir upp ansi þykkan skráp sem hentar vel í þrekraunir eins og 24 tíma spartan race og heimsmeistaramótið í fjallahlaupum.

Jul 24, 20191h 54m

S1 Ep 39Magnús Scheving 2/2

25% ASLÁTTUR Í SAFFRAN APPINU MEÐ KÓÐANUM "SNORRI" Alinn upp á Hvammstanga og smiður að mennt. Fljótt á litið virðist þetta ekki uppskriftin af einum farsælasta frumkvöðli Íslandssögunnar og ekki batnar það þegar norðurlandameistaratitlinum í þolfimi er hent í mixið. Magnús hefur komið víða við og segir frá því hvernig hann endaði í brjáluðu formi og á forsetalaunum sem 13 ára unglingur, Englandsferð til að reyna fyrir sér í hnefaleikum, smiðsnám frekar en arkitektúr, íþróttafræði í Noregi, þolfimikennslu í World Class og svo hvernig Latibær náði til 500 milljón heimila í 170 löndum. Í þessari för safnaði Magnús reynslu og situr eftir með pælingar um vinnusemi, stress, skólakerfið, kosti sína og galla, menntun, þjálfunaraðferðir, sjálfstraust, árangur íslenska landsliðsins og af hverju "að setja upp svona stórt concept á heimsmælikvarða er ekki þess virði - það er einhversstaðar sem þú tapar."

Jul 17, 20191h 16m

S1 Ep 38Magnús Scheving 1/2

25% ASLÁTTUR Í SAFFRAN APPINU MEÐ KÓÐANUM "SNORRI" Alinn upp á Hvammstanga og smiður að mennt. Fljótt á litið virðist þetta ekki uppskriftin af einum farsælasta frumkvöðli Íslandssögunnar og ekki batnar það þegar norðurlandameistaratitlinum í þolfimi er hent í mixið. Magnús hefur komið víða við og segir frá því hvernig hann endaði í brjáluðu formi og á forsetalaunum sem 13 ára unglingur, Englandsferð til að reyna fyrir sér í hnefaleikum, smiðsnám frekar en arkitektúr, íþróttafræði í Noregi, þolfimikennslu í World Class og svo hvernig Latibær náði til 500 milljón heimila í 170 löndum. Í þessari för safnaði Magnús reynslu og situr eftir með pælingar um vinnusemi, stress, skólakerfið, kosti sína og galla, menntun, þjálfunaraðferðir, sjálfstraust, árangur íslenska landsliðsins og af hverju "að setja upp svona stórt concept á heimsmælikvarða er ekki þess virði - það er einhversstaðar sem þú tapar."

Jul 10, 20191h 45m

S1 Ep 37#36 - Chris Burkard

25% AFSLÁTTUR Í SAFFRAN APPINU MEÐ KÓÐANUM "SNORRI" Instagram styrnið, ljósmyndarinn, ævintýramaðurinn og nú síðast sigurvegari og methafi í WOW Cyclothon hjólreiðakeppninni: Chris Burkard, er gestur þáttarins að þessu sinni. Chris heldur úti risastórum Instagram aðgangi þar sem hann sýnir frá ævintýrum sínum um allan heim. Mörg af þeim eiga sér stað á Íslandi en hann hefur komið hingað 34 sinnum í heildina, eitt af þeim skiptum til þess að mynda fyrir tæknirisann Apple og annað til þess að leiða Justin Bieber um landið við gerð tónlistarmyndbandsins I'll show you.

Jul 3, 20191h 8m

S1 Ep 36#35 - Joey Christ

Jóhann Kristófer / Joey Christ. Leikarinn, leikstjórinn, Útvarpsmaðurinn, sviðslistamaðurinn og tónlistarmaðurinn er að gefa út sína þriðju sólóplötu rakti söguna frá fyrstu kynnum sínum við Loga Pedro á Grænuborg yfir í Sturla Atlas ævintýrið 2015 og dagsins í dag. Það er margt búið að ske í íslensku tónlistarlífi síðustu árin og eins óþægilegt og Jóhanni fannst að rappa eða syngja í míkrafóninn þá á hann risastóran hlut í framþróun senunnar.

Apr 22, 20192h 8m

S1 Ep 35#34 Bjarki Brynjarsson - Lieutenant í norska hernum

Bjarki Brynjarsson, eins og svo margir aðrir, var ekki viss um hvað hann vildi taka sér fyrir hendur við útskrift úr Verzlunarskóla Íslands. Fyrir algjöra tilviljun, ævintýraþrá og hvatvísi skráir hann sig í norska herinn. 7 árum síðar er Bjarki 28 ára gamall lieutenant innan fallbyssu herdeildar hersins með 30 undirmenn. Leiðin þangað var ekki áfallalaus, inntökuprófið í herinn (hell-week) var bara forsmekkurinn af einhverskonar hell-year sem var í vændum en hann útskýrir ítarlega fyrir okkur hvernig áreiti og álagi er beitt til að byggja upp og styrkja karakter hermannannna. Vopnaþjálfun, agi, heræfingar, stríðsuppsetning, þægindaramminn, endurlífgun, skipun til að taka líf, þrekpróf, gönguskíði, basúkkur og fleiri óhversdagslegir hlutir eru ræddir í þessum þætti ásamt innsýn í aðstæður sem Bjarki gekk í gegnum til að hljóta vinnuheitið Platoon commander.

Apr 3, 20192h 10m

S1 Ep 34#33 Kristján Gíslason - Hringurinn í kringum jörðina á mótorhjóli, einn síns liðs

Eftir að selja fyrirtækið sem hann byggði upp, koma sér vel fyrir með eiginkonunni, börnum og barnabörnum áttaði Kristján sig á því að hann væri kominn á miðjan aldur. Tækifærið til að upplifa ævintýrin sem lífið hafði upp á að bjóða var núna og árið 2014 lagði hann af stað hringinn í kringum hnöttinn á mótorhjóli, einn síns liðs. Árið 2018 gerði hann ferðina upp bæði við sjálfan sig og í formi heimildarmyndar og ljósmyndabókar sem hægt er að kaupa á hringfarinn.is til styrktar góðu málefni. Í þessum þætti heyrum við söguna af því hvernig þessir 48.000 kílómetrar breyttu lífi Kristjáns og miklu meira til.

Mar 27, 20192h 33m

S1 Ep 33#32 - Herra Hnetusmjör & Huginn

Herra Hnetusmjör og Huginn gáfu út sitthvora sólóplötuna á síðasta ári, Huginn með plötuna Eini Strákur og Herra með plötuna Hetjan úr Hverfinu, en gefa núna út sameiginlega plötu sem ber titilinn KBE kynnir: Dögun.

Mar 21, 20191h 43m

S1 Ep 32#31 - Arnar Péturs

Arnar Pétursson lenti á Íslandi eftir mánaðardvöl og keyrði rakleiðis í stúdíóið til að svara stóru spurningum lífsins: Hvað hvetur mann áfram, hvernig hann horfir á markmið og markmiðasetningu, hvernig skal bregðast við mótlæti og lexíurnar sem hægt er að draga úr afreksíþróttum og heimfæra á daglegt líf. Arnar á risastóran þátt í hlaupabakteríunni sem ég smitaðist af síðasta sumar en hann tók á sig að búa til fyrir mig hlaupaprógröm fyrir tvö maraþon og það var í því ferli sem ég áttaði mig á öllu því sem hann var að segja í fyrsta podcastinu okkar saman, svo hér mættumst við aftur, ég með ögn betri skilning á því um hvað hlaup snúast og Arnar með einhvernveginn með betri sýn á lífið en allir aðrir sem ég þekki. Ef þú ert hlaupari þá fagnaru þessum þætti enda Arnar bæði fróður um hlaup og góður að koma upplýsingum frá sér en ef þú hefur ekki ennþá áttað þig á fegurðinni í því að hlaupa hratt og lengi þá ættiru að geta heimfært flest allar pælingar sem hér koma fram yfir á það sem þú ert að gera í lífinu.

Feb 6, 20192h 54m

S1 Ep 31#30 - ClubDub

Sagan af ClubDub og ádeila á síhækkandi hitastig kaldra potta í sundlaugum Reykjavíkur.

Feb 1, 20191h 54m

S1 Ep 30#29 - FLONI

Eftir að gefa út Tala saman og Leika fylgdi Floni velgengni sinni eftir með 9 laga plötu sem tók efstu 9 sætin yfir vinsælustu lög landsins á Spotify. Vinsældum Flona og vina hans í senunni fylgdi mikið umtal og núna, rúmlega ári síðar, gefur hún út sína aðra plötu: Floni II.

Jan 30, 20191h 57m

S1 Ep 29#28 RAX - Norðurslóðir og að fylgja hjartanu

Síberíuferð, bókaútgáfu og hálfu ári síðar er RAX loksins kominn í þáttinn. Þetta er ein af mínum allra stærstu fyrirmyndum, ekki bara vegna þess hversu góður ljósmyndari hann er heldur er þetta einstaklingur sem hefur masterað það sem hann gerir best og ég sætti mig við það að geta einungis giskað á hverskonar vinna liggur að baki verkana hans.. Ef þú ert að gera eitthvað sem þú hefur ástríðu fyrir í lífinu: semja tónlist, moka skurði, sjá um bókhald, taka upp podcast, hanna bækur, stýra fyrirtæki, taka hnébeygjur eða leysa jöfnur - þá eru lífsráð í þessum þætti sem ég vona að hreyfi við þér eins og þau hreyfðu við mér. Finndu RAX á Instagram, þar sem hann er nýbyrjaður að láta á sér kræla: @ragnaraxelsson - eða kíktu á www.rax.is til að sjá brot af ljósmyndunum sem hann hefur tekið í gegnum tíðina.

Jan 23, 20191h 45m

S1 Ep 28#27 Sölvi Tryggva - Álag og endurheimt

Sölvi Tryggvason þurfti að þola alvarlegan heilsubrest fyrir áratugi og hefur unnið sig í átt að bættri heilsu síðan þá. Hann gaf á dögunum út bókina "Á eigin skinni" þar sem hann fer yfir mjög víðtækar tilraunir á eigin hug og líkama til þess eins að líða betur. Mataræði, hreyfing, svefn, föstur, bætiefni, kuldaböð, hugleiðsla, öndunaræfingar, tenging við náttúru, og snjallsíma- og skjánotkun eru meðal viðfangsefni bókarinnar. Við áttum gott spjall um leiðir til þess að vinna í sjálfum sér og að betri útgáfu að sjálfum sér. Það vildi svo til að ég tók spjallið upp og ætla að deila því hér með ykkur í þessum þætti.

Jan 16, 20191h 42m

S1 Ep 27#26 Árni Björn - CrossFit, vegan og langveikt barn

Árni Björn fann sig á botninum, líkamlega og andlega þegar hann var orðinn 130 kíló og ákvað að gera eitthvað í sínum málum. Það liðu ekki nema 2 ár þegar hann fann sig standandi inn á íþróttaleikvangi í Los Angeles, þá sem keppandi í CrossFit. Árni segir okkur frá þessari umbreytingu í sínu lífi, af hverju hann gerðist vegan og hvernig það er að lifa með veikindum langveikrar dóttur sinnar sem greindist með afar sjaldgæfan genagalla.

Jan 9, 20191h 49m

S1 Ep 26#25 Einar Hansberg - 500 kílómetra róður

Einar Hansberg reri 500 kílómetra til styrktar Kristínar Sifjar og fjölskyldu, sem missti manninn sinn fyrir eigin hendi undir lok árs 2018. Einar hefur áður fundið sér áskoranir sem þessa en það magnaða við þetta afrek er samhugurinn í þeim 550 manns sem lögðu Einar lið og reru með honum samtals 8 milljón kílómetra yfir eina helgi.

Jan 3, 20192h 47m

S1 Ep 25#24 Leifur Örn - Norðurhlið Everest

Í Nepal stendur hæsti tindur veraldar, 8.848 metrum yfir sjávarmáli. Allir hafa heyrt af heyrt af þessum tindi, 7 Íslendingar hafa klifið hann en aðeins 1 hefur farið norðurhlið fjallsins til að komast að honum. Leifur Örn Svavarsson er fjallgöngumaður að guðs náð. Í gegnum tíðina hefur hann gengið á tindana 7 margoft, yfir Grænlandsjökul, stigið fæti á Norðurpólinn og Suðurpólinn, Peak Lenin í Kyrgiztan, Matchu Pitchu í Perú og undirbýr sig nú fyrir aðra ferð á topp Everest 2019. Þó að gangan upp á Everest hljómi eins og spennandi ævintýri eru margar hættur sem fylgja svona ferðum en þess má geta að Leifur er nýkominn heim frá Nepal þar sem hann sótti líkamsleifar tveggja íslenskra fjallgöngumanna sem fórust á fjallinu Pumori fyrir þrjátíu árum. Leifur segir okkur frá sinni reynslu af því að halda sönsum, vikum saman í rúmlega 6.000 metra hæð þar sem orkuleysi og einkenni háfjallaveiki láta finna fyrir sér, áður en nokkura klukkutíma rammi gefst til að láta reyna á lokahnykk fjallsins og komast upp á topp.

Dec 26, 20181h 28m

S1 Ep 24#23 Runi - Aðalvarðstjóri sérsveitarinnar

Það er mikil leynd yfir störfum sveitarinnar og þeim sem í henni starfa en þessir tæplega 50 karlmenn sem mynda sérsveit ríkislögreglustjóra eru síðasti hópur manna sem hægt er að reiða sig á í hættulegum aðstæðum. Það er engin önnur sveit sem fékk betri eða sérhæfðari þjálfun, það er enginn her sem styður við bakið á þeim og það er ekki í boði af flýja aðstæðurnar eða fara veikur heim ef þér líst ekki á blikuna. Runólfur Þórhallsson er aðalvarðstjóri sérsveitarinnar. Hann fræddi mig um hvaða eiginileika sérsveitarmenn þurfa að hafa, hvernig þeir eru síaðir út í inntökuferlinu, hvaða kröfur eru gerðar til sérsveitarmanna, hvaða áhrif svona starf hefur á fjölskyldulífið og andlega heilsu, af hverju flest vopnuð útköll enda ekki í fjölmiðlum og í hvaða aðstæðum hann hefur sjálfur þurft að takast á við í starfi. "Sérsveit ríkislögreglustjóra er hreyfanlegt lögreglulið sem er sérþjálfað til þess að takast á við vopnuð lögreglustörf og öryggismál, þar með talin hryðjuverk og stórfelld ofbeldisbrot. Sveitin annast handtökur hættulegra brotamanna og hústökuaðgerðir vegna fíkniefnamála. Sérsveitin sinnir mikilvægu hlutverki varðandi hryðjuverkavarnir svo sem vegna árása, sprengjutilræða, gíslatöku, flugrána og sjórána. Sérsveitin ber þannig ábyrgð á aðgerðum vegna hryðjuverkaviðbúnaðar á sjó og landi og undir hana falla samningaviðræður við gíslatöku og viðbúnaðar vegna sprengjutilfella."

Dec 19, 20182h 5m

S1 Ep 23#22 Heiðar Logi - Brimbretti og andleg heilsa

Heiðar Logi var vægast sagt til vandræða í æsku. Hann var orkumikill og með mikinn athyglisbrest sem leiddi til daglegrar mætingar til skólastjórans og á endanum brottrekstrar úr skóla. 6 ára gamall fór hann á Rítalín og eftir því sem tíminn leið var skammturinn stærri og stærri þar til Heiðar fékk nóg og ákvað að hætta á öllum lyfjum, þá orðinn 16 ára gamall, þunglyndur, kvíðasjúklingur og að eigin sögn alveg persónuleikalaus. Hann var með verðugt verkefni fyrir höndum sem fólst í því að hætta að drekka, sörfa við Íslandsstrendur og kynnast sjálfum sér upp á nýtt.

Dec 12, 20181h 43m

S1 Ep 22#21 Solla Eiríksdóttir - "Það sem gerist þegar þú ert öðruvísi"

Stjörnukokkurinn sem prýðir matvörur í búðarhillum landsins, gefur út vinsælustu matarbækur landsins og rekur vinsælustu veitingastaði landsins. Solla hefur svo sannarlega sögu að segja. Við förum yfir hvernig Yoga, hugleiðsla og bætt mataræði var úrslitakostur hjá henni þegar hún var að glíma við slæmt ofnæmi sem leiðir síðan að atvinnu hennar í dag, við ræðum tattooin hennar, hvernig hún fann sína ástríðu í lífinu og vegferð hennar í viðskiptum. Hún var að koma frá ársdvöl í Danmörku þar sem hún opnaði tvo nýja Gló staði, hún heldur fyrirlestra um allan heim, tekur á móti stórstjörnum á borð við Ben Stiller, Neil Young, Gwyneth Paltrow og Beckham hjónunum þegar þeim vantar einhvern til að elda almennilegan mat fyrir sig hér á landi, og svo er hún mætt á vaktina á Gló klukkan 6 á morgnanna, skrælandi og saxandi grænmeti, fáránlega fersk og svo virðist með endalausa orku eins og þið heyrið fljótt í þessu viðtali.

Dec 5, 20181h 50m

S1 Ep 21#20 Gauti Grétars - Heilsubyltingin, kyrrseta og hreyfigeta

Við sitjum við tölvur meirihluta dagsins, stöndum upp til þess að setjast svo í bílsætið okkar, keyrum heim og sitjum þar þangað til það er kominn tími til að sofna. Vissulega fara margir hverjir á æfingu í millitíðinni en stífar æfingar í bland við 10 klukkutíma kyrrsetu á dag er líklega ein af ástæðunum fyrir því að sjúkraþjálfarar hafa aldrei haft jafn mikið að gera og í dag. Gauti Grétarsson fór sem sjúkraþjálfari á ólympíuleikana í Atlanta 96, Sidney árið 2000, Salt Lake 2002, Peking 2008 og London 2012. Hann var sjúkraþjálfari og tæknilegur ráðgjafi meistaraflokks KR, Badmintonlandsliðs Íslands, Golfsambandi Íslands, hefur setið í heilbrigðisráði ÍSÍ frá 1992 og stundað mælingar á afkastagetu afrekíþróttafólks á borð við Guðjóns Vals og Gylfa Þórs Sigurðssonar. Þrátt fyrir að vera talsmaður gegn kyrrsetu samþykkti Gauti að setjast niður með mér og fræða okkur um heilsubyltinguna, bæði það sem vel er gert og hvar við förum út af brautinni. Sú umræða þræðir mörg málefni á borð við sjálfstraust, mental toughness, muninn á mönnum og öpum, virkni rassvöðva og af hverju það er mikilvægt að þjálfa þá, mjólkursýrumælingar, endurheimt eftir æfingar, kostir þess að æfa tvisvar á dag og hreyfigetu í heild sinni.

Nov 28, 20181h 37m

S1 Ep 20#19 - Páll Óskar

Ef þú hefur áhuga á að auglýsa í The Snorri Björns Podcast Show sendu mail á [email protected] Morgunrútínan hans, æfingaprógrammið, upphitun fyrir gigg, jarðarförin, hvernig það kom til að Jóhann Jóhannsson heitinn, Golden Globe verðlaunahafi, pródúsaði fyrstu lögin hans, á barmi gjaldþrots, að flytja aftur í foreldrahús 30 ára gamall, loforðið um að vinna aldrei leiðinlega vinnu og Allt fyrir ástina, platan sem gerði Pál Óskar að vinsælasta tónlistarmanni Íslands. Þetta og miklu meira til í þessum þætti af The Snorri Björns Podcast Show þar sem maðurinn sem við megum öll taka okkur til fyrirmyndar, Páll Óskar, segir okkur frá lífi sínu.

Nov 21, 20181h 58m

S1 Ep 19#18 - Anníe Mist Þórisdóttir

Anníe Mist ákvað að yfirgefa drauminn um Ólympíuleikana árið 2012 fyrir nýja íþrótt sem var nýkomin á sjónarsviðið. Íþrótt sem Anníe varð á endanum best í og helmingur þjóðarinnar hefur prófað. Það er mikinn innblástur að finna í sögu Anníear, hvernig hún sigraði heimsmeistaramótið tvö ár í röð, hvernig hún hefur breyst á þessari 10 ára vegferð og hvernig hún höndlar mótlætið sem hún mætti á leiðinni.

Nov 14, 20181h 57m

S1 Ep 18#17 - Benjamin Hardman

Benjamin Hardman left his job as an accountant in Australia to move to Iceland and figure out a way to support his stay here as a photographer. Hopefully you've stumbled upon his work on social media (@benjaminhardman), he's got a huge Instagram account where he posts breathtaking and unique pictures of his travels in the arctic, mainly from Iceland. Ben talks to me about these decisions of change, the challenges of being a freelancer, how Iceland has changed in last couple of years and where his drive to go out every morning and shoot pictures in nature comes from.

Nov 7, 20181h 42m

S1 Ep 17#16 Hermundur Sigmundsson - Prófessor í lífeðlislegri sálfræði

Hermundur Sigmundsson er prófessor í lífeðlislegri sálfræði við háskólann í Þrándheimi. Hann vakti athygli mína fyrir rannsóknir á samfélagsmiðla- og skjánotkun barna, streituverkjum út af slíkri notkun, kynjahlutfallið í þessum verkjum og svo hefur hann tvisvar á síðustu mánuðum haldið fyrirlestra í HR þar sem hann fer yfir einkenni þeirra einstaklinga sem skara fram úr á sínum sviðum, hvort sem það er Björk eða Zlatan.

Oct 31, 20181h 44m

S1 Ep 16#15 - Emil Hallfreðs

Eins og Emil segir sjálfur frá þá var hann örugglega ekki félagslyndasti strákurinn í bekknum á sínum unglingsárum. Hann drakk ekki, borðaði hollt, mætti sjálfur á aukaæfingar, lét ekki sjá sig á böllum og pældi ekkert í stelpum. Það virðist vera þema í gegnum feril Emils að þegar eitthvað gengur ekki upp, eitthvað fór ekki eins og það átti að fara eða honum langaði að færi þá var lausnin bara að leggja meira á sig. Hvort sem það var að koma Hellas Verona frá C-Deildinni upp í A-deildina á Ítalíu eða bíta í það súra epli að fá ekki að spila með íslenska landsliðinu á EM og vera síðan valinn besti leikmaður landsliðsins á HM tveimur árum seinna.

Oct 24, 20181h 59m

S1 Ep 15#14 Elísabet Margeirs - 400km í Gobi og aðrar áskoranir

Leiðin frá Tjarnarhringnum í MR, yfir í hálfmaraþon, maraþon og svo svefnlaus náttúruhlaup, í fallegasta umhverfi jarðarinnar, hundruði kílómetra áfram og tugi kílómetra upp og niður. Elísabet Margeirsdóttir er langhlaupadrottning Íslendinga og meðal þeirra bestu í heiminum en nýverið lauk hún 409km hlaupi í gegnum Gobi eyðimörkina á 97 klukkutímum - fyrst kvenna.

Oct 17, 20181h 55m

S1 Ep 14#13 - Emmsjé Gauti

Gauti hefur gengið í gegnum hæðir og lægðir rappsenunnar á Íslandi. Hann tók þátt í Rímnaflæði 12 ára gamall, gaf út sitt fyrsta lag árið 2002 og er núna, 16 árum síðar, að gefa út sína fimmtu plötu: Fimm.

Oct 10, 20182h 23m

S1 Ep 13#12 Katrín Tanja - Fittest Woman on Earth

Hvert var Katrín að stefna áður en CrossFit varð að hennar atvinnu? Hvernig aftraði það henni að sjá strax góðan árangur í sportinu og hverju þurfti að breyta þegar henni var ljóst, árið 2014, að hún hafi ekki komist á Heimsleikana í fyrsta skipti síðan hún lagði CrossFit fyrir sig. Ferlið sem Katrín fór í gegnum lýsti sér ekki einungis í fleiri og lengri æfingum og bættri líkamlegri heilsu, Katrín og þjálfarinn hennar eru bæði sammála um að ástæðan fyrir því að hún endaði tvö ár í röð efst á palli með titilinn Fittest Woman on Earth er einfaldlega hausinn á henni.

Oct 3, 20182h 9m

S1 Ep 12#11 - Tommi á Búllunni

Tómas A. Tómasson rak hér á árum áður félagsheimili, skemmtistaði, kaffihús, hótel, veitingastaði, hamborgarastaði og var fyrir vikið þekktur sem Tommi á Festi, Tommi á Tommaborgurum og Tommi á Hard Rock - en með fjárhagsvandræði, drykkjuvandamál og baráttu við gjaldþrot að baki sér, labbar hann um götur bæjarins, 69 ára gamall, borðar hamborgara á dag, tekur 105kg í bekk og er skítsama hvað þér finnst - þekktur sem hin eini sanni Tommi á Búllunni.

Sep 26, 20181h 56m

S1 Ep 11#10 - Auðunn Blöndal

Eftir að fá loksins tækifæri til að sýna sig á skjám landsmanna í 70 mínútum kringum aldamótin hefur mikið farið fyrir Auðunni Blöndal sem skilur eftir sig þætti á borð við Svínasúpuna, Steypustöðina, Atvinnumennirnir Okkar, Tekinn, Ríkið, Strákarnir, Stelpurnar og vinnur nú að gerð fjórða draumsins: Suður-Ameríski Draumurinn. Auðunn tók stökkið yfir í útvarp fyrir 7 árum og heldur úti einum vinsælasta útvarpsþætti landsins: FM95BLÖ.

Sep 20, 20181h 24m

S1 Ep 10#9 Sóli Hólm - LED perur, ketosis og krabbamein

Sóla Hólm er að finna víða, hvort sem það er í sjónvarpinu, útvarpinu, upp á sviði eða bara í story. Brandarar, eftirhermur og almennt grín hafa mótað starfsferil Sóla síðustu ár en hægt og bítandi fór ferillinn að staðna og vinnan orðin of einsleit og þægileg. Það var ekki fyrr en Sóli greinist með krabbamein í lok ársins 2017 þar sem hann ákveður að elta markmiðin sín og skilja meira eftir sig í lífinu.

Sep 12, 20181h 59m

S1 Ep 9#8 - Evert Víglunds

Evert Víglundsson, meðeigandi og stofnandi CrossFit Reykjavík, fer yfir ferilinn frá því að þjóna á Hótel Sögu í 12 ár yfir í að reka eina stærstu CrossFit stöð í heiminum, IronMan þríþraut, Navy SEAL Hell Week, að fatta lífið um fertugt og að vera besta útgáfan af sjálfum sér. Bækur og podcöst nefnd í þættinum: Joe Rogan og Matthew Walker: https://www.youtube.com/watch?v=pwaWilO_Pig&t=5332s Why We Sleep e. Matthew Walker: https://www.amazon.com/Why-We-Sleep-Unlocking-Dreams/dp/B0752XRB5F/ref=sr_1_3?ie=UTF8&qid=1535473069&sr=8-3&keywords=why+we+sleep Peak Performance: https://www.amazon.com/Peak-Performance-Elevate-Burnout-Science/dp/B072JN54R2/ref=sr_1_3?ie=UTF8&qid=1535473092&sr=8-3&keywords=peak+performance The Complete Guide To Fasting: https://www.amazon.com/Complete-Guide-Fasting-Intermittent-Alternate-Day/dp/B01N9CQX29/ref=sr_1_1?ie=UTF8&qid=1535473104&sr=8-1&keywords=complete+guide+to+fasting+jason+fung It Starts With Food: https://www.amazon.com/Starts-Food-Discover-Whole30-Unexpected/dp/B00PMCGFRS/ref=sr_1_1?ie=UTF8&qid=1535473125&sr=8-1&keywords=it+starts+with+food The Champion's mind: https://www.amazon.com/Champions-Mind-Great-Athletes-Thrive/dp/B00KO30QZM/ref=sr_1_1?ie=UTF8&qid=1535473138&sr=8-1&keywords=champions+mind

Aug 29, 20182h 8m

S1 Ep 8#7 - Sindri Jensson

Sindri Jensson hefur starfað í fatabúð drjúgan part af sínu lífi og hafði alltaf í huga að opna sína eigin. Á síðustu þremur árum hefur hann gert gott betur og opnað tvær fatabúðir undir formerkjum Húrra Reykjavík ásamt því að vera meðeigandi á Flatey Pizza og spila fótbolta með KR.

Jul 24, 20182h 5m