PLAY PODCASTS
Morðcastið

Morðcastið

347 episodes — Page 5 of 7

S1 Ep 145145. Orð dagsins er: Jansen

Góðan daginn, fimmtudaginn! Í þætti dagsins segir Unnur í mjög mörgum orðum hvernig kona á besta aldri var myrt vegna öfundsýki. Allt mjög hræðilegt að venju en engu að síður áhugavert. Í boði Smitten, Orville og Ristorante. Óklipptan þátt má finna inná www.pardus.is/mordcastid

Mar 31, 202250 min

S1 Ep 144144. Orð dagsins er: SIM kort

Góðan daginn fimmtudaginn! Í þætti dagsins er Bylgja komin til Svíþjóðar og segir okkur frá máli þar sem fjölskyldufaðir er ekki allur sem hann sýnist og eftir skrítna veiðiferð tekur líf hans tekur óvænta beygju. Í boði Smitten, Ristorante og Orville. Óklipptur þáttur er inná www.pardus.is/mordcastid

Mar 24, 202244 min

S1 Ep 143143. Orð dagsins er: Kirkjuklukkur

Góðan daginn, fimmtudaginn! Við hentum okkur til Þýskalands í dag og þó að þátturinn sé ekki langur þá er hann mjög áhugaverður. Óklipptan (og hálftíma lengri af blaðri og allskonar umræðum) þátt má finna inná www.pardus.is/mordcastid Í boði Ristorante, Orville og Smitten

Mar 17, 202225 min

S1 Ep 142142. Orð dagsins er: Gervifótur

Heil og sæl öll sem eitt. Fimmtudagur í dag og það þýðir bara eitt, enn eitt hræðilega málið í Morðcastinu! Unnur segir frá ástralskri ungri stelpu sem gengur í gegnum gjörsamlega hræðilega hluti á sinni stuttu lífsleið. Í boði Smitten, Ristorante og Orville. Óklipptan þátt er að finna á www.pardus.is/mordcastid

Mar 10, 202241 min

S1 Ep 141141. Orð dagsins er: Fataskápur

Fimmtudagar, what a concept. Í þætti dagsins segir Unnur frá dásamlegri lítilli stelpu í Bandaríkjunum sem því miður, bjó nálægt hræðilegum manni sem gerði hræðilega hluti. Hræðilegt mál í dag eins og alla aðra daga. Í boði Smitten, Ristorante og Orville. Óklipptan þátt má finna inná www.pardus.is/mordcastid

Mar 3, 202258 min

S1 Ep 140140. Orð dagsins er: Söngtími

Góðan daginn, fimmtudaginn! Þáttur dagsins er ekki sá lengsti sem hefur komið út, né sá hressasti, en áhugaverður er hann þó. Bylgja segir frá eltihrelli í Bandaríkjunum sem er ekki með allar skrúfurnar rétt skrúfaðar. Í boði Smitten, Aha, Orville og Ristorante.

Feb 24, 202235 min

S1 Ep 139139. Orð dagsins er: Pollur

Góðan daginn, fimmtudaginn. Þáttur dagsins er pirrandi í meira lagi, ekkert sjokkerandi þar. Bylgja segir frá máli sem gerist í Bandaríkjunum þar sem við vitum ekki alveg hvað gerðist. Ömurlegt mál. Í boði Smitten, Aha, Ristorante og Orville. Óklipptan þátt má finna inná www.pardus.is/mordcastid

Feb 17, 202238 min

S1 Ep 138138. Orð dagsins er: Afmæliskort

Góðan daginn, fimmtudaginn! Þátturinn í dag er kannski óvenju stuttur, en það eru líka óvenju fá andlát, sem er gleðiefni í sjálfu sér. Í þætti dagsins segir Unnur annars frá stórfurðulegu máli sem gerðist í Bandaríkjunum árið 1993, en óklipptan þátt vikunnar er að finna inná www.pardus.is/mordcastid Í boði Smitten, Orville og Ristorante.

Feb 10, 202238 min

S1 Ep 137137. Orð dagsins er: Tuff

Fagur fimmtudagur í dag, ekki svo fagur þáttur. Í þætti dagsins segir Bylgja frá mjög sorglegu máli sem gerist í Noregi þar sem ung kona hverfur á leið sinni í vinnuna. Þáttur dagsins er í boði Smitten, Artasan, Ristorante og Orville. Óklipptan þátt má finna inná www.pardus.is/mordcastid

Feb 3, 202243 min

S1 Ep 136136. Orð dagsins er: Plast

Góðan daginn, fimmtudaginn! Í þætti dagsins segir Unnur frá máli sem fer víðsvegar um heiminn í rauninni og það má alveg deila um það hvort þátturinn hefði betur átt að vera partur af Rauðu seríunni. Hræðilegt mál samt sko, innilega, eins og allar aðrar vikur. Í boði Ristorante, Orville, Digest og Ömmu músar

Jan 27, 202248 min

S1 Ep 135135. Orð dagsins er: Málning

Góðan daginn, fimmtudaginn! Í þætti dagsins segir Unnur frá máli sem gerist í Bandaríkjunum í kjölfar þess að ung kona ákveður að skella sér á rokktónleika. Algjörlega óþolandi og ömurlegt. Í boði Artasan, Orville, Ristorante og Ömmu mús.

Jan 20, 202248 min

S1 Ep 134134. Orð dagsins er: Ferðataska

Góðan og gleðilegan fimmtudag. Í máli dagsins segir Bylgja frá hræðilegu máli sem gerist í Svíþjóð þar sem ungur maður virðist hafa misst vitið, þó hann sé vissulega alls ekki sammála þeirri staðreynd. Í boði Ristorante, Orville, Digest og Ömmu mús.

Jan 13, 202247 min

S1 Ep 133133. Orð dagsins er: Smokkur

Fyrsti vikuþáttur ársins! Svakalega langur enda gríðarlega viðamikið mál sem Unnur segir frá. Margar spurningar sem vakna og við fáum alls ekki svar við þeim öllum. Í boði Orville, Digest, Ristorante og Ömmu Mús. Óklipptan þátt er hægt að finna inná www.pardus.is/mordcastid

Jan 6, 20221h 21m

S1 Ep 132132. Orð dagsins er: Eltihrellir

Góðan daginn, fimmtudaginn. Síðasti fimmtudagur ársins og auðvitað siglum við þessu ári heim með einum laufléttum þætti. Bylgja á mál dagsins og segir frá stórfurðulegu máli sem gerist í Bandaríkjunum á meðan Unnur er í vondu skapi. Same old alla daga, alltaf jafn hræðilegt en samt svo dásamlegt. Í boði 1104 by Mar og Ristorante.

Dec 30, 202152 min

S1 Ep 131131. Orð dagsins er: Jól

Gleðilegan jólaþorlák! Í dag segir Unnur frá alveg gríðarlega sorglegu máli sem gerist í Bandaríkjunum á Þorláksmessu og er í öllu falli hræðilegt. Jafn fallegur fimmtudagur og þetta er sorglegt mál. Verum góð og pössum hvort annað á jólunum krakkar! Í boði Ristorante og 1104 by Mar.

Dec 23, 202150 min

S1 Ep 130Orð dagsins er: Volvo

Góðan daginn fimmtudaginn og gleðilega jólafríshátíð! Í þætti dagsins tekur Bylgja fyrir mál sem gerist í Svíþjóð og vekur upp mjög margar spurningar en þar finnst ungabarn aleitt í blóðugri íbúð. Í boði Ristorante og 1104 by Mar. Óklipptan þátt má finna inná www.pardus.is/mordcastid

Dec 16, 202148 min

S1 Ep 129129. Orð dagsins er: Hárgreiðslustofa

Góðan daginn fimmtudaginn! Þáttur dagsins í dag er áhugaverður en málið vissulega óupplýstt. Óþolandi og óupplýst eins og Bylgju einni er lagið. Kona hverfur af hárgreiðslustofunni sinni, og svo veit ekkert okkar neitt. Í boði Ristorante og 1104byMAR. Óklipptan þátt er að finna inná pardus.is/mordcastid

Dec 9, 202137 min

S1 Ep 128128. Orð dagsins er: Skorsteinn

Góðan daginn þennan fallega fimmtudaginn! Í máli dagsins segir Unnur frá máli þar sem ungur maður gufar upp. Samt alls ekki. Ótrúlega merkilegt mál og margar spurningar sem við fáum sennilega aldrei svarað, því miður! Í boði Ristorante.

Dec 2, 202143 min

S1 Ep 127127. Orð dagsins eru: Svartur fössari

Júhú, góðan og gleðilegan fimmtudag! Þáttur dagsins er þemaþáttur í boði Elko í tilefni af Black friday og stærstu afsláttarviku ársins. Bylgja tekur fyrir mál sem gerist í Bandaríkjunum þar sem ung kona er myrt í aðdraganda Black Friday. Unnar mál gerist vissulega líka í Bandaríkjunum, en það er reyndar karoke sem ræður ríkjum í því máli. Alltaf jafn sorglegt. Í boði Elko, Artasan, Stöð 2 plús og Ristorante

Nov 25, 202154 min

S1 Ep 126126. Orð dagsins er: Toyota

Góðan og gleðilegan fimmtudag! Þáttur dagsins er í sorglegra (hræðilegra) lagi svo við segjum bara alveg eins og það er. Unnur segir frá máli sem gerist í Bretlandi þar sem sjúkur drengur notfærir sér góðmennsku samstarfskonu sinnar og Bylgja segir frá fjölskyldu í Indlandi sem mjög líklega þjáðust af shared psychotic disorder. Allt mjög merkilegt en þó þeim mun hræðilegra. Í boði Artasan, Stöð 2 plús og Ristorante.

Nov 18, 20211h 6m

S1 Ep 125125. Orð dagsins er: Harlem

Góðan daginn, fimmtudaginn! Venju samkvæmt þá gerast hræðilegir hlutir fyrir allskonar fólk í þætti dagsins. Bylgja segir frá máli sem gerist í Harlem um 1980, þar sem börn hverfa úr almenningsgarði. Unnur aftur á móti segir frá dreng sem elskar leiðbeiningar en hatar flest allt annað og gekk af þeim ástæðunum berseksgang í heimapartýi. Í boði Ristorante, 1104bymar.is, Stöð 2 plús og Artasan.

Nov 11, 202151 min

S1 Ep 123124. Orð dagsins er: Vitni

Góðan daginn, fimmtudaginn! Í þætti dagsins er bara eitt mál, en það er þeim mun áhugaverðara. Stuttur en góður eins og maður segir. Hversu áreiðanleg eru vitni? Hvað getur haft áhrif á vitni? Hversu mikið treystiru því sem þú telur þig hafa séð? Já, margar pælingar í þætti dagsins þegar Unnur tekur fyrir mál Jennifer Thompson og hennar vitnisburð. Í boði Stöð 2 plús, Ristorante og Artasan.

Nov 4, 202135 min

S1 Ep 123123. Orð dagsins er: Ummerki 2

Góðan daginn, fimmtudaginn! Haldiði ekki bara að það sé kominn einn þáttur í viðbót! Alltaf jafn merkilegt. Þáttur dagsins er þemaþáttur, þ.e.a.s. við skoðum aftur íslensk mál sem tekin eru fyrir í þáttunum Ummerki. Bylgja segir frá máli þar sem kona virðist mögulega kannski, líklegast, hafa myrt manninn sinn en Unnur hinsvegar tekur fyrir almenna umfjöllun á bankaránum á Íslandi. Enginn myrtur hjá henni í dag! Skemmtileg tilbreyting. Í boði Artasan, Stöð 2 plús og Ristorante.

Oct 28, 202154 min

S1 Ep 122122. Orð dagsins er: Snyrtivörur

Góðan daginn fimmtudaginn. Í þætti dagsins segir Bylgja frá máli sem gerist í Bandaríkjunum og hefur að geyma margfalt fleiri spurningar en svör, mjög sorglegt og mjög hræðilegt. Unnur aftur á móti segir frá konu sem fæddist 1620 og helgaði líf sitt því að eitra fyrir karlmönnum. Í boði Artasan, Stöð 2+ og Ristorante.

Oct 21, 20211h 1m

S1 Ep 121121. Orð dagsins er: Jólaskraut

Júhú. Nýr þáttur í dag, og ég er ekki frá því að hann sé enn sá hræðilegasti hingað til. Mörg börn deyja, einn lifir af. Allt í allt bara mjög sorglegt en á sama tíma áhugavert. Í boði Artasan, Stöð 2 plús og Ristorante

Oct 14, 202152 min

S1 Ep 120120. Orð dagsins er: Gírkassi

Í dag eru akkúrat 12 fimmtudagar fram að jólum. Hvað sem því líður þá er nýr þáttur í dag, tvö mál og mikið um að vera. Bylgja segir frá máli sem er óupplýst þar sem stelpa hverfur úr símaklefa. Líklega amk. Unnur hinsvegar segir frá máli þar sem fjölskylda hverfur í Californiu, en þau finnast reyndar. Í boði Stöð 2 plús, Ristorante og Artasan.

Oct 7, 202159 min

S1 Ep 119119. Orð dagsins er: Öfund

Jújú, þið þekkið þetta. Það er kominn fimmtudagur. Í þætti dagsins tekur Unnur fyrir mál sem gerist árið 1984 þar sem afbrýðissemi og samanburður gengur alltof of langt. Svo gerist reyndar lítið meira, Unnur fær munnræpu og Bylgja hlustar. Í boði Ömmu mús, Ristorante og Artasan. www.pardus.is/mordcastid

Sep 30, 202147 min

S1 Ep 118118. Orð dagsins er: Swastika

Júllijúhú! Í þætti dagsins segir Bylgja frá hræðilegri fjölskyldu sem gerir hræðilega hluti og skammast sín ekki neitt. Ógeðslegt og ömurlegt í alla staði. Unnur segir frá pari sem hefði betur ekki gengið jafn langt og þau gerðu til þess að uppfylla adrenalínþránna. Í boði Artasan ehf., Ömmu mús og Ristorante. www.mordcastid.is

Sep 23, 20211h 16m

S1 Ep 117117. Orð dagsins er: Gaming

Góðan daginn fimmtudaginn! Þáttur dagsins í dag er þemaþáttur, hvorki meira né minna en tölvuleikja þema. Gaming! Unnur segir frá allskonar tengingum við tölvuleiki áður en hún segir svo frá ungum strák sem framkvæmir hræðilegan hlut á heimili sínu. Bylgja segir svosem frá svipuðu máli, þó reyndar ekki því sama. Margir fjölskyldumeðlimir sem hljóta sorglegan endi hér í dag. Í boði Elko, Artasan, Ömmu Mús og Ristorante

Sep 16, 20211h 27m

S1 Ep 116116. Orð dagsins er: Hundur

Góðan daginn þennan fallega fimmtudaginn. Þáttur dagsins er alls ekki á jákvæðari nótum en einhver annar, því miður, illa farið með alltof margar manneskjur. Bylgja er staðsett í Bandaríkjunum að venju, þar er hundakona sem hlýtur hræðileg örlög og málið vekur margar spurningar sem við fáum því miður ekki svarað. Já hún er með óupplýst. Unnur hinsvegar segir frá máli sem tengist málinu hennar í Live þættinum, raðmorðingi og hans saga. Í boði Artasan, Ristorante og Ömmu mús.

Sep 9, 202157 min

S1 Ep 115115. Orð dagsins er: Presley

Góðan daginn fimmtudaginn! Það eru tvö mál í þætti dagsins og alltof mikill viðbjóður. Bylgja segir frá ungum systrum í Bandaríkjunum sem elska Elvis Presley á meðan Unnur segir frá konu (og hundi) sem lifir hamingjusöm til æviloka. Djók, því miður. Í boði Artasan ehf, Ömmu mús og Ristorante. Ps. Ef þið viljið hlusta á fleiri þætti þá mælum við með því að kíkja inná Pardus.is

Sep 2, 20211h 25m

S1 Ep 114114. Orð dagsins er: Eista

Það er bara komið haust. Rútínan og endalausir fimmtudagar. Systur eru í bæði Evrópu og Norður-Ameríku í dag og segja hlustendum frá villuráfandi eista, ógeðslegu fólki og barnapíum sem áttu mun betra skilið en þær uppskáru. Þið getið fundið óklipptu útgáfu af þessum þætti auk fjölda annarra inná Pardus.is. Þátturinn er í boði Ristorante.

Aug 26, 202146 min

S1 Ep 113113. Orð dagsins er: Skemmtiferðaskip

Skemmtiferðaskip, what a concept. Her líka, hvað er málið með her? Þáttur dagsins býður uppá tvö mál, í rauninni talsvert fleiri reyndar, en amk mjög mikið af ömurð. Annað málið gerist á skemmtiferðaskipi sem endaði sem ekkert sérstaklega skemmtilegt skip og hitt segir frá ungu pari í Bandaríkjunum sem hefðu ekki endilega átt að vera kærustupar. Þið getið fundið óklipptu útgáfu af þessum þætti auk fjölda annarra inná Pardus.is. Í boði Ristorante.

Aug 19, 20211h 1m

S1 Ep 112112. Orð dagsins er: Karate

Góðan daginn þennan fallega fimmtudaginn. Það eru hvorki meira né minna en tvö mál tekin fyrir í þætti dagsins og gerast þau bæði í Bandaríkjunum. Það er margt sem gerist en helst er það kannski það að því miður verða alltof mörg börn fyrir ógeðslegu ofbeldi og við erum enn og aftur minnt á að vera frekar bara góð við hvort annað. Í boði 1104bymar.is og Ristorante

Aug 12, 202159 min

S1 Ep 111111. Orð dagsins er: Talnakóði

Það eru bara 22 fimmtudagar eftir af árinu, sem þýðir að það eru bara 22 Morðcastsþættir eftir á árinu. Það hlýtur nú svosem að vera feikinóg. Allavega, í þætti dagsins fáum við systur munnræpu í mjög langan tíma áður en Unnur segir frá ömurlegu máli sem gerist í Orlando. Mjög ömurlegt. Svakalega væri gott ef fólk væri ekki ömurlegt. Jæja, gleðilegan fimmtudag! Í boði Ristorante og 1104bymar.is

Aug 5, 20211h 4m

Ep 110110. Orð dagsins er: Útgöngubann

Jú góðan daginn fimmtudaginn. Viðeigandi í þessari þrítugustu bylgju af Covid taki Bylgja fyrir mál sem er mjög tengt covid og samkomutakmörkunum? Það hefði ég haldið, alla leiðina frá Bretlandi til Íslands. Í boði 1104bymar.is og Ristorante.

Jul 29, 202129 min

S1 Ep 109109. Orð dagsins er: Boy

Þrjúþúsundasti fimmtudagur ársins, merkilegt. Unnur segir frá áhugaverðu máli sem gerist í Bandaríkjunum, það er heimspeki, ástarþríhyrningur og í rauninni allt sem maður býst ekki við. Samt svo fyrirsjáanlegt eitthvað. Æj þið vitið hvernig þetta er. Í boði 1104bymar.is, Geosilica og Ristorante.

Jul 22, 202141 min

S1 Ep 108108. Orð dagsins er: Bókasafn

Það er fimmtudagur og við erum stödd á bókasafni. Fleira er svosem ekki um það að segja. Í boði 1104bymar.is, Ristorante og Geosilica.

Jul 15, 202145 min

S1 Ep 107107. Orð dagsins er: Endurvinnslutunna

Það er einhvernvegin alltaf fimmtudagur, og það er einhvernvegin alltaf munnræpa. Það er bara eitt mál í dag, en Unnur segir frá hræðilegum atburði sem átti sér stað í Bandaríkjunum þegar unglingur missti tökin. Svona vægt til orða tekið. Ekki gleyma öllum áskriftarmálunum sem er hægt að finna inná Pardus.is! Í boði Ristorante og Geosilica.

Jul 8, 202144 min

S1 Ep 106106. Orð dagsins er: Skrímsli

Annar dagur, fleiri skrímsli. Jú kæru hlustendur, það er fimmtudagur og það eru hrottaleg mál. Í þætti dagsins fer Bylgja yfir mál þar sem faðir drengs gengur berseksgang í kjölfar fótboltaleiks, svona vægt til orða tekið. Unnur hinsvegar tekur fyrir mál þar sem ungur maður misnotar aðstöðu sína í gegnum Craigslist. Allt ömurlegt. Í boði Geosilica og Ristorante.

Jul 1, 202159 min

Orð dagsins er: Uppstoppun

Góðan daginn fimmtudaginn! Það er sama blaðrið í dag eins og aðra fimmtudaga nema í þessum þætti blöðrum við okkur bara í gegnum eitt mál, ekki tvö. Ekkert að því, málið er mjög merkilegt og mikið að ræða. Bylgja segir semsagt frá máli þar sem augu spila stórt hlutverk, meira þarf ekki að segja um það. Í boði Arion banka, Geosilica og Ristorante.

Jun 24, 202151 min

S1 Ep 104104. Orð dagsins er: Silfurskeið

Hæ hó og jibbí jei! Gleðilegan þjóðhátíðardag og alls ekki síður, gleðilegan morðdag. Í þætti dagsins segir Bylgja frá ömurlegu máli sem gerist í Bandaríkjunum og Unnur líka. Svosem ekkert nýtt undir sólinni þar, en málin eru bæði mjög sorgleg. Í boði Arion banka, Ristorante og Geosilica.

Jun 17, 202146 min

S1 Ep 103103. Orð dagsins er: Túnfiskur

Júhú! Það er einn helvítis fimmtudagurinn enn og við stöndum að sjálfsögðu vaktina. Í þætti dagsins segir Bylgja frá máli Brian Shaffer sem, jah, æj þið verðið eiginlega bara að hlusta. Mjög skrítið alltsaman. Í boði Arion banka, Ristorante og Geosilica. mordcastid.is instagram.com/mordcastid facebook.com/mordcastid

Jun 9, 202137 min

S1 Ep 102102. Orð dagsins er: Pontiac

Júní er það. Afmælismánuður Unnar Örnu, sem þýðir vissulega að konan verður óvinnufær þar til júlí rennur upp. Í þætti dagsins fær Unnur alla munnræpuna og segir frá ungri stúlku í Bandaríkjunum sem hverfur eins og dögg fyrir sólu. Sumt fólk á í alvörunni ekki neitt gott skilið! Í boði Geosilica, Arionbanka og Ristorante. mordcastid.is instagram.com/mordcastid facebook.com/mordcastid

Jun 3, 202144 min

S1 Ep 101101. Orð dagsins er: Bröns

Alveg er þetta að verða ótrúlegt með hvernig það er alltaf fimmtudagur. Allavega. Í þætti dagsins þá segir Unnur frá mjög klókum unglingi sem tekur vægast sagt slæmar ákvarðanir á lífsleiðinni. Aðallega eina slæma ákvörðun reyndar. Bylgja segir frá konu sem reyndar tók líka fullt af slæmum ákvörðunum. Æji þetta var allt mjög hræðilegt. Í boði Geosilica, Marr og Ristorante. mordcastid.is instagram.com/mordcastid facebook.com/mordcastid

May 27, 202154 min

S1 Ep 100100. Orð dagsins er: H U N D R A Ð

100 þættir maður, vá. 100 þættir, skrilljón klukkutímar, alltof mörg hræðileg sakamál og svo mætti lengi telja. Unnur segir frá breskum morðingja, Bylgja segir frá máli með jákvæðum endalokum og Bjarki segir frá manni í búri. Allt mjög undarlegt en áhugavert. Í boði Marr og Ristorante. mordcastid.is instagram.com/mordcastid facebook.com/mordcastid

May 20, 20212h 27m

S1 Ep 9999. Orð dagsins er: Tannlæknir

Enn einn fimmtudagurinn og ekki skánar það. Í þætti dagsins segir Bylgja frá tannlækni sem tekur málin í sínar hendur með pítsu í annarri. Án gríns. Unnur hinsvegar segir frá yngsta raðmorðingja í heimi. Allt mjög sorglegt og ömurlegt. mordcastid.is instagram.com/mordcastid facebook.com/mordcastid

May 13, 202150 min

S1 Ep 9898. Orð dagsins er: Legsteinn

Það er kominn maí og íslenska vorið heilsar okkur með slyddu og 1 stiga hita. Æðislegt. Í þætti dagsins er allt ömurlegt eins og vanalega og eru systurnar báðar í Bandaríkjunum að elta uppi ömurðina. Þorsti í gosdrykk dregur dilk á eftir sér og unglingsárin eru stundum erfið. Gömul saga og ný. Í boði Marr, Ristorante og Ethique. mordcastid.is instagram.com/mordcastid facebook.com/mordcastid

May 6, 202151 min

S1 Ep 9797. Orð dagsins er: Sálarmorð

97 fimmtudagar. Það eru mjög margir fimmtudagar. Í þætti dagsins segir Bylgja frá foreldrum sem hefðu betur sleppt því að fjölga sér og Unnur segir frá hræðilega sorglegu máli þar sem mjög illa er farið með unga konu af frumbyggjaættum. Í boði Marr, Ristorante, Vegan búðarinnar og Jömm. mordcastid.is instagram.com/mordcastid facebook.com/mordcastid

Apr 29, 202141 min

S1 Ep 9696. Orð dagsins er: Kartöflumús

Fimmtudagur enn og aftur. Í þætti dagsins byrjar Bylgja, sjokk, og segir okkur frá vanhæfum foreldrum og vesalings börnum. Unnur hinsvegar segir frá konu sem tók málin í eigin hendur. Samt svona meira eigin kartöflumús. Í boði Jömm og Vegan búðarinnar, Ristorante og Marr.

Apr 22, 202153 min