
Morðcastið
347 episodes — Page 3 of 7
S1 Ep 243Orð dagsins er: Vinnumaurar
Góðan daginn, fimmtudaginn. Í dag er það költ, því miður, því það er einhvernveginn aldrei neitt verra en tryllt költ. Sérstaklega með svona trylltum leiðtoga eins og Roch Thériault. Andlát, misþyrmingar, pyntingar, hjónabönd og svo ótrúlega ömurleg blanda af allskonar ömurð. Tryllt áhugavert samt, alltaf. Þáttur dagsins var í boði Pennans, Ristorante, Nettó, Good Good og Happy Hydrate Mál hefst: 7:45
S1 Ep 242Orð dagsins er: Baphomet
Tveir huggulegir menn ákveða að byggja sér athvarf í skóginum til að geta ræktað sitt eigið grænmeti og drukkið sitt eigið vín. En það má greinilega aldrei hafa gaman! Þátturinn er í boði Nettó, Ristorante, Swiss Miss, Happy Hydrate, Pennans og GoodGood. Mál hefst: 12:29

S1 Ep 241Orð dagsins er: Skæri
Góðan daginn, fimmtudaginn. Í þætti dagsins segir Unnur okkur frá hryllilegu máli sem á sér stað í Írlandi þegar systur fá sig fullsadda af lélegum kærasta móður sinnar. Allt í þessu er algjörlega hræðilegt, í raun frá upphafi til enda. Mál hefst: 13:40 Þáttur dagsins er í boði Ristorante, Sleepy, Mfitness, Good Good, Nettó, Happy Hydrate og Pennans. Óklipptan þátt má finna inná www.pardus.is/mordcastid
S1 Ep 240Orð dagsins er: Hjól
Í þætti dagsins fer ótrúleg stelpa út að hjóla á æðislegu hjóli. Hvorugt sleppur vel frá þeim hjólatúr. Þáttur dagsins er í boði Ristorante, Nettó, Swiss Miss, Happy Hydrate, GoodGood, MFitness og Sleepy. Mál hefst:

S1 Ep 3Bókacastið X Morðcastið - Högni
Þriðji þáttur Bókacastsins góðan dag. Í dag ræðum við bókina Högni eftir Auði Jónsdóttur.
S1 Ep 239Orð dagsins er: Flatlús
Góðan daginn, fimmtudaginn. Faraldur, pyntingar, íkveikja og ofbeldi. Þessi þáttur er í raun bara algjör hörmung frá upphafi til enda. Þáttur dagsins er í boði Ristorante, Happy Hydrate, Nettó, Good Good og Sleepy. Mál hefst 11:45
S1 Ep 238Orð dagsins er: Feðgar
Fátt er betra en góð fjölskylda og góðir vinir. Í þætti dagsins koma bæði við sögu, en líka fret fyrir föður, sem er öllu verra. Þátturinn er í boði Ristorante, Nettó, GoodGood, Happy Hydrate og Swiss Miss. Mál hefst: 13:35
S1 Ep 237Orð dagsins er: Skilningsleysi
Góðan daginn, fimmtudaginn. Þáttur dagsins er smekkfullur af hörmungum, ógeði en fyrst og fremst algjöru skilningsleysi. Ungur maður er myrtur af "vinum" sínum, og þeirra útskýringar eru rétt rúmlega hræðilegar. Þáttur dagsins er í boði Ristorante, Happy Hydrate, Nettó, Good Good og Swiss Miss. Óklipptan þátt má finna á www.pardus.is/mordcastid Mál hefst: 12:40 Þolandi: Brandon Teena Gerandi: Marvin Thomas Nissen og John Lotter
S1 Ep 236Orð dagsins er: Partý
Partýfjör í Santa Barbara snýst upp í algjöra andhverfu sína þegar unglingur sem nennir ekki að rífast við mömmu sína fer í göngutúr. Þátturinn er í boði MFitness, Ristorante, Nettó, GoodGood og Happy Hydrate. Mál hefst: 10:58
S1 Ep 235Orð dagsins er: Geirvarta
Enn einn fimmtudagurinn mættur sem færir okkur meiriháttar ógeð. Alltof mörg andlát, alltof mikill viðbjóður og alltof mikil hörmung. Samt á einhvern hátt alltaf mjög áhugavert. Skrítið. Þáttur dagsins er í boði Leksands, Happy Hydrate, Nettó, Ristorante, Sleepy og Good Good. Mál hefst: 12:25, samt svo 15:25 Óklipptan þátt má finna inná www.pardus.is/mordcastid

S1 Ep 2Bókacastið X Morðcastið - Myrkrið milli stjarnanna
Systurnar fokka upp Bókaklúbbnum að nýju. Í þetta skiptið ræða þær bókina Myrkrið milli stjarnanna eftir Hildi Knútsdóttur og skoðanir þeirra voru allskonar.

S1 Ep 1Bókacastið X Morðcastið - DJ Bambi
Fyrsti þátturinn þar sem Unnur og Bylgja mæta til að fokka upp Bókaklúbbnum. Bókin DJ Bambi eftir Auði Övu Ólafsdóttur var til umræðu og það er óhætt að segja að systurnar voru heillaðar.
S1 Ep 234Orð dagsins er: Englaryk
Alltof ung börn fara að prufa alltof hræðilega hluti í þætti dagsins. Staðsetning í tíma og rúmi: New York í áttunni. Þátturinn er í boði Ristorante, Nettó, Happy Hydrate, GoodGood og Weetabix. Mál hefst: 9:35
S1 Ep 233Orð dagsins er: Drulluæta
Góðan daginn, fimmtudaginn. Í þætti dagsins segir Unnur frá ungri flottri konu sem á framtíðina fyrir sér þegar að ungur drulluspaði hugsar með sér að hún eigi kannski ekki skilið svo góða framtíð. Algjörlega ömurlegt mál og alltof týpískt. Í þættinum má líka heyra mikið tuð og kvart systra yfir ósanngirni heimsins. Þáttur dagsins er í boði Ristorante, Happy Hydrate, Leksands, Nettó, Good Good, Sleepy. Mál hefst: 19:26 Óklipptan þátt má finna inná www.pardus.is/mordcastid
S1 Ep 232Orð dagsins er: Skiptinemi
Skiptinemi, klappstýrukeppni, þjóðgarður og maður sem elskar að vera á berrunni. Fjögur atriði sem ættu kannski ekki endilega að tengjast en gera það sannarlega í þætti dagsins. Þátturinn er í boði Nettó, Ristorante, Happy Hydrate, MFitness, Weetabix og GoodGood. Mál hefst: 5:53
S1 Ep 231Orð dagsins er: Dans
Dansa, hvað er betra en að dansa? Í þessum fimmta þætti ágústmánaðar kynnumst við ungri stelpu sem vildi ekkert gera nema dansa. Sem er vel og það hefði verið alveg frábært ef það hefði farið svo. Einn daginn skilar hún sér ekki úr skólanum og alltof mörgum dögum seinna leysist þetta undarlegasta mál. Þáttur dagsins er í boði Ristorante, Sleepy, Nettó, Good Good, Weetabix, Leksands, Happy Hydrate, og MFitness. Óklipptan þátt má finna inná www.pardus.is/mordcastid. Mál hefst: 11:25.
S1 Ep 230Orð dagsins er: Frelsi
Frelsið er jú yndislegt, en það er spurning hvenær það verður of mikið. Í dag hittum við fyrir mæðgur, í raun í marga ættliði, sem fara misvel með tímann sinn og það endar svo með ósköpum. Þátturinn er í boði Ristorante, Nettó, Weetabix, Sleepy, GoodGood og Happy Hydrate. Mál hefst: 8:24
S1 Ep 229Orð dagsins er: Bílpróf
Góðan daginn þennan ágæta fimmtudaginn. Þáttur dagsins er í boði Ristorante, Happy Hydrate, Nettó, Sleepy Leksands og GOOD GOOD. Í dag fer Unnur enn einu sinni með okkur til Noregs, det er alltid bra. Nema hvað, ung kona verður skotin í strák. Veikur strákur verður skotinn í völdum og alkóhóli. Þetta er alltaf jafn hræðilega sorglegt, alltaf áhugavert og alltaf ömurlegt. Mál hefst: 1:40.
S1 Ep 228Orð dagsins er: Ófærð
Það er nú fátt betra en að fá í heimsókn góða gesti. Þegar gestirnir eru hins vegar ekki skemmtilegir, koma ekki með gott nesti og bjóða ekki upp á neina skemtun þá er best að bjóða þeim ekki inn. Ótrúlega leiðinleg heimsókn í krúttlega sambúð fjölskyldu einnar hefur virkilega ömurlegar afleiðingar í dag. Þáttur dagsins er í boði Happy Hydrate, Nettó, Ristorante, Sleepy og Weetabix. Mál hefst: 9:45
S1 Ep 227Orð dagsins er: Draugur
Góðan daginn, fimmtudaginn. Við getum vonandi flest verið sammála um það að gott grín er alltaf gott grín, sérstaklega í góðra vina hópi. Þessi þáttur er ekki gott grín. Eiginlega bara samansafn af mjög lélegu gríni og hörmungum. Einn ungur maður leikur daug, spilar leiki, angrar fólk og endar á algjörum hryllingi. Því miður alltaf jafn hræðilegt. Þáttur dagsins er í boði: Weetabix, Sleepy, Ristorante, Happy Hydrate, Nettó og MFitness Mál hefst 10:55
S1 Ep 226Orð dagsins er: Kotasæla
Píanókennari fer að sofa í góðri trú um að vakna aftur næsta dag. Svo var þó ekki og núðlurnar úr eldhússkápnum sáu ekki heldur til sólar. Geta ljóðskáld ekki verið illmenni er líka heimspekileg spurning sem velt er upp. Hvílíkur fimmtudagur! Þáttur dagsins er í boði Happy Hydrate, Leksands, Nettó, Ristorante og Sleepy. Mál hefst: 21:38
S1 Ep 225Orð dagsins er: Sjeik
Góðan daginn, fimmtudaginn. Það er byrjað að rigna á Egilsstöðum og það er akkúrat í takt við þetta ömurlega mál sem Unnur segir frá í dag. Fólk í óhamingjusömu hjónabandi taka margar undarlegar og vondar ákvarðanir sem endar með því að börnin þeirra missa báða foreldra sína. Sorglegt og ömurlegt en alltaf áhugavert, því miður. Þáttur dagsins er í boði Ristorante, Leksands, Happy Hydrate, Sjóvá, Nettó og Sleepy. Mál hefst: 15:37
S1 Ep 224Orð dagsins er: Tryggingar
Góðar tryggingar eru gulli betri og það á við í ýmsum aðstæðum. Í þætti dagsins förum við til Kína þar sem fólk hefði átt að einbeita sér að því að vera almennilegt og gott en ekki algjörir fávitar og sauðir. Þátturinn er í boði Ristorante, Nettó, MFitness, Happy Hydrate og Weetabix Mál hefst: 15:50
S1 Ep 223Orð dagsins er: Nunna
Góðan daginn, fimmtudaginn! Líkt og ykkur eflaust grunar þá er þátturinn í dag algjörlega ömurlegur. Vissulega áhugaverður en alveg svakalega sorglegur. Í þætti dagsins fer nefnilega afbrotamaður í göngutúr, því miður, akkúrat á sama tíma og móðir keyrir heim með börnin sín. Hræðileg endalok fyrir alltof mörg. Þátturinn er í boði Ristorante, Happy Hydrate, Weetabix, Sjóvá og Nettó Mál hefst: 13:45 Gerandi: John Ernest Cribb Þolendur: Valda, Sally og Damien Connell, og fleiri.
S1 Ep 222Orð dagsins er: Bréf
Í dag tók ungur maður upp penna og blað sem hefði betur setið sem fastast á höndunum á sér, bæði fyrr og síðar. Tvær systur, nýnasisti, grunlaus stjúpfaðir og of margir hnífar. Þátturinn er í boði Nettó, Ristorante, Happy Hydrate, Sjóvá og Sleepy. Mál hefst:
S1 Ep 221Orð dagsins er: Little 500
Góðan daginn þennan fallega afmælisfimmtudaginn! þátturinn í dag er jafn hræðilegur og venjulega og það er í raun eins og við höfum tekið þetta mál fyrir áður. Staðreyndin er hinsvegar sú að þetta er bara alltof algengt og við höfum heyrt svona sögur alltof oft, því miður. Í dag segjum við sögu sálfræðinemanda. Hún tekur síðasta próf námsins, neglir það, fagnar, og síðan ekki söguna meir. Algjör og innileg hörmung. Þáttur dagsins er í boði Sleepy, Ristorante, Happy Hydrate og Nettó. Mál hefst: 8:20 Þolandi: Hannah Wilson, gerandi: Daniel Messel
S1 Ep 220Orð dagsins er: Bílaverkstæði
Góðan daginn, fimmtudaginn. Kona gengur inn á bílaverkstæði. ÞRISVAR. Margar örlagaríkar verkstæðisheimsóknir í dag og flækjustigið gríðarlegt. Þátturinn er í boði Ristorante, Nettó, Sjóvá, Happy Hydrate og Sleepy. Mál hefst: 8:50
S1 Ep 219Orð dagsins er: Stallbakur
Góðan daginn, fimmtudaginn. Í þætti dagsins berst neyðarlínunni í Bærum, Noregi, símtal þar sem kona hringir úr skotti bifreiðar eftir að hafa verið numin á brott. Málið er allt í senn ömurlegt og ógeðslegt en eins og alltaf, ótrúlega áhugavert. Þáttur dagsins er í boði: Happy Hydrate, Ristorante, Nettó og MFitness. Óklipptan þátt og áskriftarleið má finna inná www.pardus.is/mordcastid. Mál hefst: 6:30.
S1 Ep 218Orð dagsins er: Amma
Góðan daginn, fimmtudaginn. Góð amma er gulli betri, en stundum eru ömmur bara algjörar herfur. Í þætti dagsins kemur fyrir amma sem stóð röngu megin við réttuna, unglingar og hamar. Allt hræðilegt í röngu samhengi. Þátturinn er í boði Ristorante, Happy Hydrate, Nettó, GoodGood, Hopp og verkefnisins Taktu stökkið! Mál hefst: 10:52
S1 Ep 217Orð dagsins er: Klór
Góðan daginn fimmtudaginn! Það er enn einn fallegi fimmtudagurinn og enn eitt ömurlega málið. Í þetta skiptið erum við staðsett í Kanada (ekki Kansas) þar sem að ung stelpa fylgir vinkonu sinni heim og hverfur síðan sporlaust. Algjörlega hræðilegt alltsaman eins og venjulega, samt sjúklega áhugavert. Þáttur dagsins er í boði Good Good, Hopp, Sjóvá, Nettó, Ristorante, Happy Hydrate, ooog verkefnisins Taktu Stökkið. Mál hefst 12:02 Óklipptan þátt má finna inná www.pardus.is/mordcastid
S1 Ep 216Orð dagsins er: Beltagatari
Nú vitum við það að skólagangan er mikilvæg og seinkomur og fjarvistir eru ekki af hinu góða. Það sannaði sig heldur betur þegar tveir strákar í Ástralíu ákváðu að skrópa í skólanum fyrir mjög mörgum árum síðan. Við sögu koma gulur Daihatsu og beltagatari ásamt mörgu öðru frekar grós. Þáttur dagsins er í boði: Ristorante, Happy Hydrate, Nettó, Hopp og verkefnisins Taktu stökkið! Mál hefst: 14:12
S1 Ep 215Orð dagsins er: Súkkulaði
Góðan daginn, fimmtudaginn. Í þætti dagsins spólum við þokkalega mörg ár aftur í tímann og kynnumst miklu glæsikvendi, að hennar eigin mati allavega. Ýmislegt merkilegt gerist og öllu líkur síðan með nokkrum súkkulaðimolum. Allt í seinn mjög merkilegt, hræðilegt, áhugavert og steikt. Þáttur dagsins er í boði Ristorante, Happy Hydrate, Nettó, Sjóvá, Hopp, Sleepy, Good Good. Mál hefst 11:26. Óklipptan þátt má finna inná www.pardus.is/mordcastid
S1 Ep 214Orð dagsins er: Samfélagsþegnar
Góðan daginn, fimmtudaginn. Við elskum einkaframtakið og að taka málin í sínar hendur, en í þætti dagsins hefði verið betra heima setið en af stað farið. Algjörlega ömurleg örlög alltof margs fólks í dag voru í höndum bræðra sem hefði átt að knúsa töluvert oftar í bernsku. Þátturinn er í boði MFitness, Hopp, Happy Hydrade, Nettó, Ristorante og Sleepy. Mál hefst: 2:03
S1 Ep 213Orð dagsins er: Sápustykki
Góðan daginn, fimmtudaginn! Við erum kannski í vorfýling þennan fimmtudaginn en það er óhætt að segja að þessi þáttur er jafn grámyglulegur og allir hinir. Um er að ræða eina fjölskyldu, eitt andlát, mjög margt ömurlegt, enn fleira hræðilegt. Óteljandi mörgum spurningum ósvarað. Þáttur dagsins er í boði: Hopp, Ristorante, Símans, Good Good, Nettó, Happy Hydrate. Mál hefst: 10:57 Þolendur: Grant og Gracie Solomon.
S1 Ep 212Orð dagsins er: Ákvörðun
Oftast finnst okkur ákvarðanafælni vera ókostur í fólki, en í þætti dagsins hefði verið gríðarlega gott ef engar heimskulegar ákvarðanir hefðu verið teknar. Heimskir menn hitta aðra heimska menn og úr verður súpa af kjaftæði. Þátturinn er í boði Hopp, Ristorante, Happy Hydrate, Nettó, Sjóvá og Sjónvarps símans. Mál hefst: 12:03
S1 Ep 211Orð dagsins er: Anorakkur
Góðan daginn fimmtudaginn! Þáttur dagsins er ömurlegur, venju samkvæmt. Lítið barn leggur af stað í skólann og kemur aldrei aftur heim. Málið áhugavert, niðurstaðan hræðileg. Þáttur dagsins er í boði Hopp, Ristorante, Símans, Good Good, Nettó og Happy Hydrate.
S1 Ep 210Orð dagsins er: Hælspor
Fimmtudagsfimmtudagur sem við eyðum saman í suðurríkjunum. Það er Alabama í dag þar sem fyrirmyndardrengur heimsækir ættingja sína með vægast sagt ömurlegum afleiðingum. Bjakk tuff sem aldrei fyrr. Þátturinn er í boði MFitness, Hopp, Happy Hydrate, Ristorante, Nettó, Smash og Símans. Mál hefst: 18:05
S1 Ep 209Orð dagsins er: Stærðfræði
Hafiði heyrt um stelpuna sem var tekin og geymd í kjallara? Þetta er sú saga, nema ný, en samt gömul. Alveg gjörsamlega ömurlegt og óþolandi en samt alltaf jafn ótrúlega merkilegt. Í boði Ristorante, Happy hydrate, Sjóvá, GoodGood, Hopp, Smash og Símans. Mál hefst: 12:10 Þolandi: Natascha Kampusch Gerandi: Wolfgang Priklopil
S1 Ep 197Orð dagsins er: Tjald
Oft var ógeð en nú er óóóóógeð. Bylgja segir Unni sögu ungrar stelpu, og svo unglingsstúlku og svo konu, sem verulega óvænt lendir í aðstæðum sem engin, aldrei, ætti að lenda í. En vitið þið hvað hún er? SURVIVOR! Þáttur dagsins er í boði Happy Hydrate, Hopp, Nettó, Ristorante, Smash og Sjónvarps Símans. Mál hefst: 10:37
S1 Ep 207Orð dagsins er: Vinahópur
Góðan daginn, fimmtudaginn! Eina sem er krúttlegra en krúttleg ungabörn eru krúttlegir eldri borgarar, eins og þau sem því miður hljóta algjörlega hræðileg örlög í þætti dagsins. Ömurlegt mál, innilega ömurlegt frá a-ö. Þáttur dagsins er í boði Hopp, Good Good, Happy Hydrate, Smash, Ristorante og Sjóvá. Mál hefst: 7:46 Gerandi: Daniel Marsh. Þolendur: Oliver Northrop og Claudia Maupin.
S1 Ep 206Orð dagsins er: Uppvask
Góðan daginn raunfimmtudaginn! Systur eru mættar í stúdíó í hendingskasti til að taka upp nýjan þátt sökum alvarlegrra heimsku. Bylgja segir núna sögu ótrúlegrar konu sem á ótrúlega stuttri ævi hefur sigrast á alls konar. Þátturinn er í boði Ristorante, Nettó, Smash, MFitness, Happy Hydrate og Hopp. Mál hefst: 22:38.
S1 Ep 205Orð dagsins er: Andarstytta
Góðan daginn, fimmtudaginn. Rúmlega 200 þættir og alltaf er þetta nú jafn ógeðslega ömurlegt. Í þætti dagsins segir Bylgja, á 1,75 hraða, frá viðbjóðslegum manni sem ferðaðist um gervöll Bandaríkin, alls ekki til að skoða söfn. Þátturinn er í boði GoodGood, Happy Hydrate, Ristorante, Smash! og Sjóvá. Mál hefst: 14:03
S1 Ep 204Orð dagsins er: Líkgeymsla
Góðan daginn, fimmtudaginn. Í þætti dagsins segir Unnur frá tveimur ungum stelpum sem hljóta mjög ömurlega og hræðilega dauðdaga, sem síðan leysast ekki fyrr en löngu seinna. Í leiðinni kemur í ljós að þetta var allt svo miklu meira og ógeðslegra en nokkurt okkar hefði getað giskað á. Áhugavert samt, en fyrst og fremst hræðilegt. Þáttur hefst: 7:38 Þáttur dagsins er í boði Good Good, Smash! Ristorante, Happy Hydrate og Nettó.
S1 Ep 203Orð dagsins er: Naggur
Góðan daginn, fimmtudaginn. Bylgja segir frá algjörlega ömurlegu máli í úthverfum Bandaríkjanna þar sem unglingsdrengir taka örlög fólks í sínar hendur og hefðu betur sleppt því. Þátturinn er í boði Smash!, Ristorante, Sjóvá og Happy Hydrate. Mál hefst: 12:44
S1 Ep 202Orð dagsins er: Catfish
Þáttur dagsins bíður uppá allskonar hringavitleysu og margs konar rugling en það er hálft í hvoru af því að Unnur er að segja frá og af því að málið er alveg galið. Þetta er auðvitað alltaf jafn hrikalega sorglegt og ömurlegt og vanalega en í þetta skiptið hlýtur ungur drengur alveg hræðileg örlög fyrir það eitt að hanga á spjallrásum internetsins. Þátturinn er í boði Nettó, Mfitness, Happy Hydrate, Stöð 2+ og Ristorante Mál hefst 7:18 en óklipptan þátt má finna inná pardus.is/mordcastid
S1 Ep 201Orð dagsins er: Mr.Big
Í þætti dagsins eru systur enn og aftur staddar í Ástralíu. Í þessum þætti segir Bylgja frá sögu yndislegs unglings sem lenti í rigningu og þar af leiðandi í hræðilegum aðstæðum. Og allt endar ömurlega, eins og eiginlega alltaf. Þátturinn er í boði Ristorante, Happy Hydrate, Sjóvá, GoodGood og Stöð 2+. Mál hefst: 07:43
S1 Ep 200Orð dagsins er: Belial
Góðan daginn, tvöhundruðasta fimmtudaginn! Mjög margir þættir að baki og að því tilefni er alveg ógnar langur þáttur í dag. Hrikalegt mál með allskonar hörmulegu, en það er þó allavega upplýst. Eða við höldum það allavega. Kannski? Þátturinn er í boði Ristorante, Stöð 2+, Happy Hydrate og Nettó. Mál hefst 7:35.
Ep 199Orð dagsins er: Glomma
Tvær tættar og ein á vitlausu tímabelti hittast og ræða ákaflega kaótískt um allt og ekkert. Svo segir Bylgja frá hvarfi húsmóður í norskri sveit. Þátturinn er í boði Ristorante, Sjóvá, Happy Hydrate, GoodGood, Stöð 2+ og MFitness Mál hefst: 16:36
S1 Ep 198Orð dagsins er: Bílaþvottastöð
Í fyrsta opna þætti ársins segir Unnur okkur frá lítilli stelpu sem langaði bara að labba heim til sín. Þið getið eflaust giskað á hvernig það gekk. Þátturinn er í boði Ristorante, Happy Hydrate og Nettó. Mál hefst: 04:28.
Ep 197Orð dagsins er: Olíupeningur
Sæmilega gleðilegan fimmtudaginn, þann síðasta árið 2023. Unnur segir frá konu sem sagði aldrei satt og hvernig áhrif það hafði á ótal manneskjur í kringum hana. Þátturinn er í boði Ristorante, Swiss Miss, Happy Hydrate, Sjóvá, Nettó, GoodGood, Pringles og Stöð 2+. Mál hefst: 08:00