PLAY PODCASTS
Morðcastið

Morðcastið

347 episodes — Page 2 of 7

S1 Ep 288Orð dagsins er: Halloween

Góðan daginn, fimmtudaginn! Í dag ferðumst við til Bandaríkjanna á Hrekkjavökunni sjálfri en í staðinn fyrir mikið gerviblóð er alltof mikið alvörublóð. Margt ömurlegt gerist en sem betur fer líka eitthvað gott. Þáttur dagsins er í boði: Ristorante, Happy Hydrate, Göteborgs, Fulltingi og 1104bymar

Oct 30, 202556 min

S1 Ep 287Orð dagsins er: Facebook

Gömul og góð hjón ganga unglingsstúlku í foreldra stað. Fallegt, ekki satt? Alls ekki satt og í Georgíufylki Bandaríkjanna gengur ýmislegt á. Þátturinn er í boði Ristorante, Nettó, Happy Hydrate, Göteborgs, Fulltingi og 1104 by Mar.

Oct 23, 202538 min

S1 Ep 286Orð dagsins er: Ostakaka

Oct 15, 20251h 5m

S1 Ep 285Orð dagsins er: Súpupottur

Í þætti dagsins hittum við fyrir fólk í galopnu sambandi, fólk í alls konar krísu, fólk sem ferðast um með súpupott. Not in a good way! Þátturinn er í boði Ristorante, Nettó, Happy Hydrate, Fulltingi, Göteborgs og 1104 by Mar.

Oct 9, 20251h 6m

S1 Ep 284Orð dagsins er: Klaufhamar

Góðan daginn, fimmtudaginn. Stundum er það morð, stundum er það björgun, stundum er það 19 blaðsíðna leiðbeiningabæklingur um hvernig skal myrða með árangri. Þátturinn er í öllu falli ógeðslegur en auðvitað á sama tíma svakalega sorglegur og áhugaverður. Þáttur dagsins er í boði: Ristorante, Happy Hydrate, Nettó, Fulltingi, Göteborgs og MFitness. Óklipptan þátt má finna inná pardus.is/mordcastid

Oct 2, 20251h 21m

S1 Ep 283Orð dagsins er: Pappírssnifsi

Í dag eins og svo ótrúlega marga daga áður erum við staðsett í Bandaríkjum Norður Ameríku, nánar tiltekið í New York fylki. Í Syracuse býr hress týpa á besta aldri sem finnst gaman að dansa og fara á tónleika. Hefði svo bara í raun mátt fá að gera meira af því. Þátturinn er í boði Ristorante, Nettó, Happy Hydrate, Fulltingi og Göteborgs.

Sep 25, 202555 min

S1 Ep 282Orð dagsins er: Reiðhjól

Góðan daginn, fimmtudaginn. Í þætti dagsins förum við til Frakklands hvar tveir ungir strákar fara út að hjóla, en hjóla því miður aldrei aftur heim. Rannsókn málsins er skrítin en allt er gott sem endar vel. Eða hvað? Skrítin endalok mögulega, kannski bara eins góð og hægt er. Við vitum auðvitað ekki neitt. Í boði Göteborgs kexins, Fulltingi, Nettó, Happy Hydrate og Ristorante.

Sep 18, 202553 min

S1 Ep 281Orð dagsins er: Skjelsvik

Við erum enn og aftur komin til Bandaríkjanna þar sem skrítnir hlutir gerast, að því er virðast í sífellu. Hópur af dripplandi mönnum fer í road trip með nammi og mjólk. Það endar ekki eins og skemmtunin sem það hefði átt að vera. Þátturinn er í boði Fulltingi, Ristorante, Nettó, Happy Hydrate og Göteborgs. Mál hefst:

Sep 11, 20251h 1m

S1 Ep 280Orð dagsins er: Ökuskírteini

Góðan daginn, fimmtudaginn. Í þætti dagsins fer Unnur með okkur á smá flakk en aðallega bara um Bandaríkin eins og svo merkilega oft áður. Þetta er saga sem við höfum heyrt og sagt alltof oft og því miður örugglega einhverntíman aftur. Í boði Mfitness, Happy Hydrate, Ristorante, Nettó og Göteborgs kex. Mál hefst: 10:12

Sep 4, 202559 min

S1 Ep 279Orð dagsins er: Titlar

Í þætti dagsins erum við enn og aftur og að eilífu stödd í Bandaríkjunum. Hittum þar Kris Jenner áttunnar og undurfagra dóttur hennar sem ákaflega ung var komin með túperað hár, íklædd skó með hæl. Það er alltaf eitthvað. Þátturinn er í boði Ristorante, Nettó og Happy Hydrate.

Aug 28, 202558 min

S1 Ep 278Orð dagsins er: Bootcamp

Góðan daginn, fimmtudaginn! Í dag förum við mjög snemma á morgunæfingu. Augljóslega ekki við systur samt heldur fórnarlamb dagsins í dag. Enginn skilur neitt í neinu og ósvaraðar spurningar eru ótrúlega margar. Þáttur dagsins er í boði: Ristorante, Happy Hydrate, Nettó og Better you. Mál hefst: 6:57

Aug 21, 202540 min

S1 Ep 277Orð dagsins er: Tvíburi

Ástralskir tvíburar vekja mikla velgju í dag, eins og reyndar furðulega oft áður. Bylgja er komin úr sumarfríi og tafsar sig í gegnum ótrúlega sorglegt mál og segir sögu tveggja kvenna sem báðar áttu betra skilið en þær fengu. Þátturinn er í boði Ristorante, Nettó, Happy Hydrate og MFitness. Mál hefst: 22:55

Aug 14, 20251h 4m

S1 Ep 276Orð dagsins er: Bakari

Góðan daginn, fimmtudaginn. Í dag fer Unnur með ykkur í ferðalag til Frakklands og segir ykkur frá því þegar ógeð með grímu, inspireraður af Scream, heldur af stað í sína eigin vegferð. Ömurleg og ógeðsleg vegferð svo við segjum alveg eins og er. Þáttur dagsins er í boði Ristorante, Happy Hydrate, Nettó og Better you. Mál hefst: 5:30

Aug 7, 202557 min

S1 Ep 275Orð dagsins er: Göngugarpur

Góðan daginn þennan fimmta fimmtudaginn. Í dag endurnýtum við áskriftarefni og njótum þess að hafa það gott í sólinni, en það gerði hann Aimo Koivunen alls ekki á sínum tíma. Hans ferðalag var ekki svo fullt af sól og gleði, meira svona stútfullt af stríði og amfetamíni. Frábær saga samt og stórmerkileg. Þáttur dagsins er í boði Ristorante og Happy Hydrate. Mál hefst: 13:23

Jul 31, 202544 min

S1 Ep 274Orð dagsins er: Smoothie

Í þætti dagsins fer Bylgja með okkur til Bandaríkjanna (þá ótrúlega sjaldan) og hittir fyrir stóra, samsetta fjölskyldu sem virðist hafa það gríðarlega gott. Hús og bátar og kirkjan og góðgerðarsamtök. En sjaldan eru hlutirnir jafn frábærir og þeir líta út fyrir að vera og þannig er það í dag líka. Einhvers staðar leiddist fólk út af beinu brautinni og tók hræðilegar ákvarðanir. Margar. Þátturinn er í boði Ristorante, Nettó, Happy Hydrate, Findus, MFitness og Sony (I Know What You Did Last Summer) Þáttur hefst:

Jul 24, 202552 min

S1 Ep 273Orð dagsins er: Messa

Góðan daginn, fimmtudaginn. Í þætti dagsins fer Unnur með okkur til Bandaríkjanna þar sem hún segir frá fallega samsettri prestsfjölskyldu sem allt í einu mætir svo ekki á réttum tíma í messu. Allt við málið er algjörlega hræðilegt og það hjálpar alls ekki að hafa allar þessar ósvöruðu spurningar. Þáttur dagsins er í boði Ristorante, Happy Hydrate, Nettó, Better you, Smárabíó og Ajax. Mál hefst: 18:25

Jul 17, 20251h 6m

S1 Ep 272Orð dagins er: Pabbi

Í þætti dagsins fáum við Sigríði Fanneyju loksins í heimsókn eftir langa bið. Bylgja segir sögu ungrar konu sem átti gríðarlega bjarta framtíð en fékk ekki að njóta hennar, þökk sé enn einum aumingjanum. Svo koma feður við sögu einnig. Þátturinn er í boði Ristorante, Nettó, Happy Hydrate, Findus, Smárabíós og Forlagsins. Þáttur hefst: 17:00.

Jul 10, 20251h 4m

S1 Ep 271Orð dagsins eru: Fjórði heimurinn

Góðan daginn, fimmtudaginn! Í þætti dagsins ferðast Unnur með okkur til Nýja Sjálands, segir margar misáhugaverðar staðreyndir um Christchurch áður en hún segir frá tveimur unglingsstúlkum sem tengdust á hreint út sagt ótrúlegan hátt. Of vel segja sumir, mjög illa segja sennilega fleiri. Sama hvað, þá er þetta stórmerkilegt allt og auðvitað hrikalega sorglegt. Þáttur dagsins er í boði Nettó, Better you, Ristorante. Happy Hydrate, Ajax og Forlagsins Mál hefst: 12:30

Jul 3, 20251h 4m

S1 Ep 270Orð dagsins er: Niðursetningur

Í þætti dagsins kynnumst við bandarískri fjölskyldu, einu sinni sem oftar. Húsfaðirinn ekki kannski eins almennilegur og við helst vildum og börnin áttu eins og vanalega miklu betra skilið. Öll börnin. Líka þau sem hann giftist. Þátturinn er í boði Ristorante, Nettó, Findus og Happy Hydrate.

Jun 26, 20251h 25m

S1 Ep 269Orð dagsins er: Flipparar

Góðan daginn, fimmtudaginn. Í þætti dagsins fer Unnur með okkur um víðan völl, það eru mormónar, nærbuxur, þvæla og vitleysa. Ásamt auðvitað allskonar hörmungum og ógeði eins og alltaf, því miður! Alltaf áhugavert samt. Þáttur dagsins er í boði Better you, Ajax, Nettó, Happy Hydrate og Ristorante. Mál hefst: 1:30

Jun 19, 202541 min

S1 Ep 268Orð dagsins er: Skyrglíma

Í þætti dagsins er bæði agalega vont veður og tveir aular að slást. Kemur málinu þannig séð ekkert við auðvitað. Við lendum í nágrenni Houston í Texas í vatnsveðri og fylgjumst með því hvernig leit að týndri konu gengur alls ekki nógu hratt. Þátturinn er í boði: Findus, Ristorante, Happy Hydrate, Nettó og Better You.

Jun 12, 202552 min

S1 Ep 267Orð dagsins er: Bikiní

Góðan daginn, fimmtudaginn. Þá er komið að hörmungar sögu þessarar viku. Í dag segir Unnur okkur frá konu á besta aldri (og hundinum hennar) sem ætlaði bara að flytja til Panama með manninum sínum til að breyta til og lifa lífinu en því miður fór það alls ekki svo. Sko alls ekki, og mjög svo mikið því miður. Þátturinn er í boði: Ajax, Ristorante, Happy Hydrate, Nettó og Mfitness. Mál hefst: 10:17

Jun 5, 202548 min

S1 Ep 266Orð dagsins er: Jógabuxur

Góðan daginn þennan rigningardaginn! Öll vitum við nú að góðar buxur eru gulli betri. En eru góðar buxur virði heillar manneskju? Í Bandaríkjunum er ung og glæsileg kona sannfærð um það og því lendum við eins og alltaf í undarlegu en um leið áhugaverðu máli. Þátturinn er í boði Ristorante, Happy Hydrate og MFitness. Mál hefst: 10:44

May 29, 202556 min

S1 Ep 265Orð dagsins er: Lesblinda

Góðan daginn þennan sólríka fimmtudaginn. Í þætti dagsins fer Unnur með okkur til Frakklands, fræðir okkur um staðhætti og kynnir okkur fyrir nokkrum misgáfulegum unglingum þar sem einn tekur alveg hræðilega ákvörðun. Í raun tekur þessi umræddi unglingur alveg hræðilega margar slæmar ákvarðanir. Réttarkerfið kannski líka reyndar, og jafnvel yfirvöld í heild. Jæja, þetta er allt alveg hræðilega sorglegt eins og alltaf en á sama tíma, því miður, alveg virkilega áhugavert. Þáttur dagsins er í boði MFitness, Ristorante, Better you, Nettó, Happy Hydrate og Findus. Mál hefst: 9:55

May 22, 202555 min

S1 Ep 264Orð dagsins er: Dáleiðsla

Í dag er það Florida man sem hefur aðeins of mikla trú á sér og sinni getur sem hefur kannski, veit það ekki, mögulega, áhrif á líf og störf fólksins í kringum sig. Er dáleiðsla faggrein? Þátturinn er í boði Happy Hydrate, Nettó, Ristorante og Ajax.

May 15, 202543 min

S1 Ep 263Orð dagsins er: Sunnudagaskóli

Góðan daginn þennan fallega fimmtudaginn. Í fullkomnum heimi þá værum við öll örugg á okkar heimili með okkar fjölskyldu og vinum en mál dagsins sýnir svart á hvítu hvað þetta getur allt verið ömurlegt. Alltaf mjög áhugavert því miður en samt alveg absalút hræðilegt. Þáttur dagsins er í boði Better you, Happy Hydrate, Nettó, Ristorante og Findus. Mál hefst: 7:52

May 8, 202548 min

S1 Ep 262Orð dagsins er: Handari

Á þessum degi verkalýðsins er viðeigandi að segja frá blómasölumanni og húsgagnasmiði sem kynntust og úr varð ein stór og góð fjölskylda. Nema auðvitað alls ekki og saga dagsins er skrítin, sorgleg og með geimveruívafi, þannig að það ætti að vera eitthvað fyrir öll. Þáttur dagsins er í boði Nettó, Ristorante, Happy Hydrate og Ajax. Mál hefst: 12:45

May 1, 202557 min

S1 Ep 261Orð dagsins er: Washington

Góðan daginn, fimmtudaginn. Í þætti dagsins kynnumst við mörgum mjög merkilegum hliðum að einu og sama málinu, máli sem hefur ótrúlega fínan endi samt. Allavega jákvæðari en stundum, en allt er þetta auðvitað algjör hörmung. Svoleiðis. Þáttur dagsins er í boði Nettó, Better you Sjóvá, Happy Hydrate og Ristorante Mál hefst: 9:35

Mar 27, 202553 min

S1 Ep 8Bókaklúbburinn X Morðcastið - Sykur

Í áttunda þætti Bókacastsins ræðum við um Sykur eftir Katrínu Júlíusdóttur.

Mar 25, 202546 min

S1 Ep 260Orð dagsins er: Michigan

Góðan daginn þennan ágæta fimmtudaginn. Það er enn einn partýsjúki unglingurinn í þætti dagsins. Hann vildi bara hafa gaman, en varð heldur betur ekki kápan úr því klæðinu. Þáttur dagsins er í boði Ristorante, Nettó, Better you, Happy Hydrate og Mfitness. Mál hefst: 9:40

Mar 20, 202550 min

S1 Ep 259Orð dagsins er: Skólaball

Góðan daginn þennan fallega fimmtudaginn. Í þætti dagsins langaði segir Unnur frá ungum dreng sem langaði bara á skólaball að hafa gaman, dansa mikið með vel gelað hár og rakspíra en öðrum drulluspöðum tókst að eyðileggja það og líf gríðarlega margra í kjölfarið. Mál hefst: 09:00 Þáttur dagsins er í boði Happy Hydrate, Better You, Sjóvá, Nettó og Ristorante.

Mar 13, 202550 min

S1 Ep 258Orð dagsins er: Partýgosi

Í Missouri finnst ungur maður liggjandi á grúfu á háskólasvæði eftir góða partýnótt. Því miður ekki bara búinn að tjútta of mikið og í ljós kemur að flækjustig lífs hans er töluvert. Þáttur dagsins er í boði Ristorante, Nettó, Better You, Happy Hydrate og Smartsocks.

Mar 6, 202545 min

S1 Ep 257Orð dagsins er: Pikkla

Góðan daginn, fimmtudaginn! Þáttur dagsins er kannski ekki mjög langur en listi fórnarlamba er það þó, því miður. Við förum til Prússlands, pikklum og sútum, hneykslumst og tuðum. Þáttur dagsins er í boði: Nettó, Ristorante, Better you, Happy Hydrate og Sjóvá. Mál hefst: 09:00 Óklipptan þátt má finna inná www.pardus.is/mordcastid

Feb 27, 202533 min

S1 Ep 7Bókacastið X Morðcastið - Grænmetisætan

Í sjöunda þætti Bókacastsins ræðum við um Grænmetisætuna eftir Han Kang

Feb 25, 202545 min

S1 Ep 256Orð dagsins er: Boðskort

Það er the land down under í dag. Unglingsstelpu er boðið í partý. Loksins! Spennt og glöð heldur hún af stað en auðvitað endar það ekki eins fallega og vel og það hefði átt að enda. Þátturinn er í boði Ristorante, Nettó, Happy Hydrate, Swiss Miss, Better You og Smartsocks. Mál hefst: 10:22

Feb 20, 20251h 2m

S1 Ep 255Orð dagsins er: Hárlokkur

Góðan daginn, fimmtudaginn. Í þætti dagsins segir Unnur okkur frá ótrúlega undarlegu máli sem teygir sig frá Noregi til Ísrael. Um hvippinn og hvappinn en fyrst og fremst um margar undarlegar aðstæður og slæmar ákvarðanir. Þáttur dagsins er í boði Sjóvá, Happy Hydrate, Swiss Miss, Nettó, Ristorante og Better you. Mál hefst: 13:17

Feb 13, 20251h 25m

S1 Ep 254Orð dagsins er: Traktor

Í þætti dagsins heimsækjum við England hennar hátignar drottningarinnar alveg frá byrjun síðustu aldar og fram til dagsins í dag. Kynnumst lítilli fjölskyldu í litlum bæ mjög náið og heyrum hvað dreif misfallegt á daga þeirra. Þátturinn er í boði Better You, Happy Hydrate, MFitness, Nettó og Ristorante. Mál hefst: 14:03

Feb 6, 20251h 8m

S1 Ep 253Orð dagsins er: Skipalakk

Góðan daginn, fimmtudaginn! Það eina sem er verra en algjör sorgarsaga með ömurlegum endi er þegar umrædd sorgarsaga varðar börn. Í þætti dagsins kynnumst við manni sem hefði gjarnan mátt taka betri ákvarðanir og jafnvel hugsa sig tvisvar um. Þáttur dagsins er í boði Better you, Happy Hydrate, Isavia ANS, Nettó, Mfitness,Ristorante, Sjóvá, Smart Socks og Swiss Miss Mál hefst: 12:15

Jan 30, 202552 min

S1 Ep 6Bókacastið X Morðcastið - Lungu

Sjötti þáttur Bókacastsins, í dag ræðum við bókina Lungu eftir Pedro Gunnlaug Garcia.

Jan 28, 202545 min

S1 Ep 252Orð dagsins er: Skrúðgarðyrkja

Við förum víðsvegar um Kaliforníufylki í þætti dagsins. Maður spilar golf, maður siglir báti, maður er algjör drullusokkur og konan hans geldur fyrir það. Þátturinn er í boði Nettó, Happy Hydrate, Ristorante, Sjóvá, Better You og Isavia ANS. Mál hefst: 18:27

Jan 23, 20251h 19m

S1 Ep 251Orð dagsins er: Belís

Góðan daginn, fimmtudaginn. Bylgja er komin aftur eftir langa bið, en í máli dagsins segir Unnur henni frá yngsta kvenmorðingja Bretlands, sem finnst hnífur vera staðlaður aukahlutur. Algjörlega ömurlegt alltsaman en sannarlega mjög merkilegt. Þáttur dagsins er í boði Swiss miss, Better You, Happy Hydrate, Ristorante, Nettó og Smart Socks. Mál hefst: 15:50

Jan 16, 202542 min

S1 Ep 250Orð dagsins er: Ítalía

Góðan daginn, fimmtudaginn. Í þætti dagsins mætir Sigríður Fanney og vermir sæti Bylgju. Hún segir okkur frá allskonar skemmtilegu en líka miklum hrottaskap tengdum Ítalíu. Alveg hræðilegt þetta cast eins og við vitum. Þáttur dagsins er í boði Better You, Mfitness, Isavia ANS, Nettó, Ristorante og Happy Hydrate. Mál hefst: 20:25, samt er einhvernveginn mjög lítið óþarfa spjall. Skrítið.

Jan 9, 20251h 1m

S1 Ep 249Orð dagsins er: Berserker

Að vera 12-13 ára bjáni er eitt, að vera 16-17 ára nýnasisti er annað. Sagan af Freeman fjölskyldumorðunum er gríðarlega sorgleg og ömurleg saga, áhugaverð vissulega en fyrst og fremst hræðileg. Mál hefst: 10:00 Þáttur dagsins er í boði: Ristorante, Nettó, Happy Hydrate, Swiss Miss, Sjóvá og Better you. Óklipptan þátt má finna inná www.pardus.is/mordcastid

Jan 2, 202559 min

S1 Ep 5Bókacastið X Morðcastið - Múffa

Fimmti þáttur Bókacastsins sem er eiginlegur bókaklúbbur Morðcastsins. Í dag ræðum við bókina Múffa eftir Jónas Reyni Gunnarsson

Dec 31, 202451 min

S1 Ep 248Orð dagsins er: Taco Bell

Góðan daginn, fimmtudaginn. Unglingar, Taco Bell, trylltir trúðar og að sjálfsögðu Bandaríkin. Í rauninni allt það besta sem til er, en í þessu tilfelli það versta. Þáttur dagsins er í boði: Happy Hydrate, Ristorante, Pennans, Swiss Miss og Nettó Mál hefst: 11:48

Dec 26, 202458 min

S1 Ep 247Orð dagsins er: Amazon

Góðan daginn, fimmtudaginn. Góð kaup á Amazon eru gulli betri og þá er gott að nóg sé af góðum meðmælum fyrir vöruna. Maðurinn sem við fjöllum um í dag hefði gjarnan mátt setja punktinn þar og ekki nota ákveðnar vörur sem hann pantaði af Amazon, en það er víst ekki hægt að biðja um allt. Mál hefst: 11:18 Þáttur dagsins er í boði: Pennans, Ristorante, Nettó, Happy Hydrate og Isavia ANS

Dec 19, 20241h 9m

S1 Ep 246Orð dagsins er: Bókasafn

Góðan daginn, fimmtudaginn. Hvað er betra en að hanga á góðu bókasafni og skrolla? Það var töluvert af því í þessum þætti og Google Earth kemur líka við sögu. Þáttur dagsins er í boði: Ristorante, Happy Hydrate, Mfitness, Nettó og Pennans. Mál hefst: 14:20

Dec 12, 202448 min

S1 Ep 245Orð dagsins er: Glíma

Góðan daginn, fimmtudaginn. Í hrikalega þætti dagsins fer Unnur með okkur um öll Bandaríkin af því jú, það er alltaf trukkabílstjóri. Margt ógeðslegt sem gerist en með einni góðri borgaralegri handtöku reddast allt. Þáttur dagsins er í boði Pennans, Nettó, Happy Hydrate, Ristorante, og Swiss Miss. Mál hefst: 6:35 en samt svo 9:25

Dec 5, 20241h 0m

S1 Ep 244Orð dagsins er: Hazardljós

Athugull lögregluþjónn lýsir inn í flutningabíl og ótrúlega margt gerist í kjölfarið. Og áður. Flest auðvitað algjörlega hörmulegt. Þátturinn er í boði Nettó, Sleepy, Ristorante, Swiss Miss, GoodGood, Happy Hydrate og Pennans. Mál hefst: 15:15

Nov 28, 202454 min

S1 Ep 4Bókacastið X Morðcastið - Utan garðs

Fjórði þáttur Bókacastsins sem er eiginlegur bókaklúbbur Morðcastsins. Í dag ræðum við bókina Utan garðs eftir Unni Lilju Aradóttur.

Nov 26, 202436 min