PLAY PODCASTS
Morðcastið

Morðcastið

347 episodes — Page 7 of 7

S1 Ep 4545. Orð dagsins er: Samúræi

Fimmtudagur einu sinni enn? Hjálp! Vangavelturnar eru margar í þætti dagsins. Alveg mjög margar. Eiga þær sér þó eðlilegar skýringar því Bylgja segir frá mjög merkilegu máli sem gerist í Þrándheimi og Unnur tekur fyrir mál sem gerist í Bandaríkjunum, þar sem ung stelpa fer í fýlu við foreldra sína. Ekki gleyma að subscribea, og munið að fylgja Morðcastinu á samfélagsmiðlum til að missa örugglega ekki af neinu: mordcastid.is facebook.com/mordcastid instagram.com/mordcastid twitter.com/mordcastid [email protected]

Feb 6, 202056 min

S1 Ep 4444. Orð dagsins er: Kurl

Hvernig er eiginlega alltaf fimmtudagur? Í dag tekur Unnur fyrir mál sem er vægast sagt óhugnalegt, ekki öll kurl komin til grafar þar (morðgrín). Bylgja hinsvegar segir frá bandarísku ógeði og skrímsli. Stuð! Ekki gleyma að subscribea, og munið að fylgja Morðcastinu á samfélagsmiðlum til að missa örugglega ekki af neinu: mordcastid.is facebook.com/mordcastid instagram.com/mordcastid twitter.com/mordcastid [email protected]

Jan 30, 20201h 12m

S1 Ep 4343. Orð dagsins er: Tinder

Af hverju geta ekki bara öll dýrin á Tinder verið vinir? Nei segi svona. Í þætti dagsins fer Bylgja alla leið til Ástralíu og segir hún okkur Tindersögu sem endaði í 10 nálgunarbönnum, eins og gengur og gerist. Unnur segir hinsvegar frá sænsku máli sem á rót sína bæði í facebook grúppu og á Tinder. Ekki Stofublóm inniblóm pottablóm hópinn samt. Ekki gleyma að subscribea, og munið að fylgja Morðcastinu á samfélagsmiðlum til að missa örugglega ekki af neinu: mordcastid.is facebook.com/mordcastid instagram.com/mordcastid twitter.com/mordcastid [email protected]

Jan 22, 20201h 5m

S1 Ep 4242. Orð dagsins er: Prins

Elsku, besti fimmtudagur! Í þætti dagsins segir Bylgja okkur frá óþarflega samheldnum eldri borgurum á meðan Unnur þjáist enn og aftur af viðbjóðsblæti og segir frá lítilli stúlku sem þurfti sannarlega að þola alls konar. Bæði málin gerast í Bandaríkjunum. Make America Great Again? Ekki gleyma að subscribea, og munið að fylgja Morðcastinu á samfélagsmiðlum til að missa örugglega ekki af neinu: facebook.com/mordcastid instagram.com/mordcastid twitter.com/mordcastid [email protected]

Jan 16, 202053 min

S1 Ep 4141. Orð dagsins er: Satan

Hver hefur sinn djöfull að draga, ekki satt? Gerendur dagsins hafa það amk sannarlega, en í þætti dagsins segir Unnur frá spilltu belgísku máli á meðan Bylgja segir frá máli sem gerist í Bandaríkjunum og er stórfurðulegt, svo meira sé ekki sagt. Ekki gleyma að subscribea, og munið að fylgja Morðcastinu á samfélagsmiðlum til að missa örugglega ekki af neinu: mordcastid.is facebook.com/mordcastid instagram.com/mordcastid twitter.com/mordcastid [email protected]

Jan 8, 202056 min

S1 Ep 4040. Orð dagsins er: Fokka

Gleðilegt nýtt ár kæru hlustendur! Þáttur dagsins er stútfullur af þakklæti og spurningum. Unnur segir frá bandarískum hrotta sem tekur þátt í stefnumótaþætti og Bylgja segir frá virkilega undarlegu máli sem gerist í Nýja Sjálandi um áramót. Ekki gleyma að subscribea, og munið að fylgja Morðcastinu á samfélagsmiðlum til að missa örugglega ekki af neinu: mordcastid.is facebook.com/mordcastid instagram.com/mordcastid twitter.com/mordcastid [email protected]

Jan 1, 20201h 11m

S1 Ep 3939. Orð dagsins er: Jólamorð

Skyld´það vera jólamorð? Eitt lítið jólamorð? Þú komst með morðið til mín? ALLAVEGA. Gleðileg jól og gleðileg morð! Báðar eru staðsettar í Bandaríkjunum í dag. Unnur segir frá fjölskylduföður sem missir vitið og Bylgja tekur fyrir eitt þekktasta mál Bandaríkjanna. Ekki gleyma að subscribea, og munið að fylgja Morðcastinu á samfélagsmiðlum til að missa örugglega ekki af neinu: mordcastid.is facebook.com/mordcastid instagram.com/mordcastid twitter.com/mordcastid [email protected]

Dec 26, 20191h 21m

S1 Ep 3838. Orð dagsins er: Auli

Fimmtudagur og alveg að koma jól! Vá, hvílík lukka. Hann er kannski stuttur þátturinn í dag en ekki örvænta, næsti þáttur jafnar það út! Í dag segir Bylgja frá finnsku máli sem tengist eldri þætti hjá okkur á meðan Unnur kíkir í stutta heimsókn til Danmerkur og segir frá heiðursmorði í fyrsta sinn. Ekki gleyma að subscribea, og munið að fylgja Morðcastinu á samfélagsmiðlum: mordcastid.is facebook.com/mordcastid instagram.com/mordcastid twitter.com/mordcastid [email protected]

Dec 18, 201940 min

S1 Ep 3737. Orð dagsins er: Sundlaug

Það er maðkur í mysunni. Það er lortur í lauginni. Í þessum þætti eru tekin fyrir tvö mál sem eiga það sameiginlegt að bæði tengjast þau sundlaug á einhvern hátt. Sorglegt, áhugavert, merkilegt, ömurlegt. Allt eins og það á að vera á fallegum fimmtudegi. Ekki gleyma að subscribea, og munið að fylgja Morðcastinu á samfélagsmiðlum til að missa örugglega ekki af neinu: mordcastid.is facebook.com/mordcastid instagram.com/mordcastid twitter.com/mordcastid [email protected]

Dec 11, 201950 min

S1 Ep 3636. Orð dagsins er: Yakuza

Heil og sæl öllsömul. Mikið svakalega er gaman að það sé kominn fimmtudagur. Í dag segja Bylgja og Unnur báðar frá málum sem ítrekað hefur verið beðið um. Bylgja með þýskt mál í eldri kantinum og Unnur japanskt og viðbjóðslegt mál. Bæði eru þau ógeðsleg, bæði merkileg. Hreimur og framburður uppá 10. Mannvonska uppá 100. Ekki gleyma að subscribea, og munið að fylgja Morðcastinu á samfélagsmiðlum til að missa örugglega ekki af neinu: mordcastid.is facebook.com/mordcastid instagram.com/mordcastid twitter.com/mordcastid [email protected]

Dec 4, 20191h 0m

S1 Ep 3535. Orð dagsins er: Auga

Betur sjá augu en auga? Betur sjá auga en úrplokkað auga? Nei? Allavega. Í þessum þætti tekur Bylgja fyrir franskt mál sem segir frá frönskum, nánum og fingralöngum systrum. Unnur fer til Ohio og fer um víðan völl, venju samkvæmt en rauði þráðurinn í þetta skiptið er leit konu að rættlætinu. Allt hið merkilegasta. Lofa. Ekki gleyma að subscribea, og munið að fylgja Morðcastinu á samfélagsmiðlum til að missa örugglega ekki af neinu: mordcastid.is facebook.com/mordcastid instagram.com/mordcastid twitter.com/mordcastid [email protected]

Nov 28, 20191h 4m

S1 Ep 3434. Orð dagsins er: Gríma

Fimmtudagur. Fallegur fimmtudagur. Enn á ný er það hún Bylgja sem er með, og í dag fer hún yfir virkilega áhugavert sænskt mál. Unnur hinsvegar heldur sig við viðbjóðinn og börnin og segir frá hrikalega sorglegu írsku máli. Hræðilegt allt. Samt mest bara merkilegt Ekki gleyma að subscribea, og munið að fylgja Morðcastinu á samfélagsmiðlum til að missa örugglega ekki af neinu: mordcastid.is facebook.com/mordcastid instagram.com/mordcastid twitter.com/mordcastid [email protected]

Nov 20, 20191h 3m

S1 Ep 3333. Orð dagsins er: Kókflaska

Hjálp, þessi þáttur er extra langur og EXTRA ógeðslegur. Bylgja fer með okkur á óþekktar slóðir í Finnlandi á meðan Unnur heldur sig í Bandaríkjunum og segir frá virkilega ógeðfelldu máli gegn barni. ATH MIKILVÆGT ekki drekka kók á meðan þið hlustið. Ekki gleyma að subscribea, og munið að fylgja Morðcastinu á samfélagsmiðlum til að missa örugglega ekki af neinu: mordcastid.is facebook.com/mordcastid instagram.com/mordcastid twitter.com/mordcastid [email protected]

Nov 13, 20191h 29m

S1 Ep 3232. Orð dagsins eru: Gone girl

Nýr Morðcastþáttur and chill?? Nei? Allavega, nýr þáttur. Unnur segir frá sorglegu norsku máli og meðan Bylgja tekur fyrir bandarískt mál sem er það undarlegt að Unnur fór í vont skap. Eitthvað fyrir alla ekki satt? Ja tak! Ekki gleyma að subscribea, og munið að fylgja Morðcastinu á samfélagsmiðlum til að missa örugglega ekki af neinu: facebook.com/mordcastid instagram.com/mordcastid twitter.com/mordcastid [email protected]

Nov 6, 20191h 20m

S1 Ep 3131. Orð dagsins er: Scream

Thirsty thursday? Ekki? Allavega. Nýr fimmtudagur, ný morð en sami gamli "gesta"spjallarinn. Unnur tekur fyrir mál framið af unglingum á meðan Bylgja tekur fyrir eitt stórundarlegt mál, en bæði gerast þau í Bandaríkjunum. Stórfurðuleg og óþolandi á sama tíma. Ekki gleyma að subscribea, og munið að fylgja Morðcastinu á samfélagsmiðlum til að missa örugglega ekki af neinu: facebook.com/mordcastid instagram.com/mordcastid twitter.com/mordcastid [email protected]

Oct 30, 20191h 0m

S1 Ep 3030. Orð dagsins eru: Deathbed confession

Vá, þrjátíu þættir! Til hamingju með daginn öll sem eitt. Nú skulum við halda uppá þetta saman með uppáhaldinu okkar allra, játningum sem koma á dánarbeðinu. Mörg mál, mikið spjall, mikil vitleysa. Hvað biður maður um annað? Ekki gleyma að subscribea, og munið að fylgja Morðcastinu á samfélagsmiðlum til að missa örugglega ekki af neinu: facebook.com/mordcastid instagram.com/mordcastid twitter.com/mordcastid [email protected]

Oct 23, 20191h 2m

S1 Ep 2929. Orð dagsins er: Líkea

Bara 6 dagar síðan síðasti þáttur var, hvílík lukka! Hvað er það besta sem Svíþjóð hefur gefið okkur fyrir utan Eurovision slagara? Jú, auðvitað Ikea! Þátturinn í dag býður uppá tvö sænsk mál sem eiga margt sameiginlegt, en eru þó alls ekkert lík. Samt mörg lík. Ekki gleyma að subscribea, og munið að fylgja Morðcastinu á samfélagsmiðlum til að missa örugglega ekki af neinu: facebook.com/mordcastid instagram.com/mordcastid twitter.com/mordcastid [email protected]

Oct 16, 20191h 21m

S1 Ep 2828. Orð dagsins er: Roll-on

Þá er kominn föstudagur! Eftir erfiðan fimmtudag er loksins komið að þætti vikunnar. Unnur segir frá raðmorðingja sem lék á alls oddi í London á meðan Bylgja segir frá bandarísku máli. Lyklapartý hér, lyklapartý þar? Ekki gleyma að subscribea, og munið að fylgja Morðcastinu á samfélagsmiðlum til að missa örugglega ekki af neinu: facebook.com/mordcastid instagram.com/mordcastid twitter.com/mordcastid [email protected]

Oct 10, 20191h 9m

S1 Ep 2727. Orð dagsins er: Punghár

Fimmtudagur. Ó fimmtudagur. Í þessum þætti Morðcastsins segir Bylgja frá vægast sagt áhugaverðu máli sem gerist í Bandaríkjunum árið 2013 þegar ung stelpa gufar upp. Unnur hinsvegar tekur fyrir norskt mál sem vekur einnig upp ótal margar spurningar. Erfiður þáttur fyrir heilann í dag. Samt ekki. Samt svo. Ekki gleyma að subscribea, og munið að fylgja Morðcastinu á samfélagsmiðlum til að missa örugglega ekki af neinu: facebook.com/mordcastid instagram.com/mordcastid twitter.com/mordcastid [email protected]

Oct 2, 20191h 8m

S1 Ep 27Mindhunter special - Sería 1

Góðan daginn, MÁNUDAGINN. (Óvæntur) Aukaþáttur þennan mánudaginn þar sem Unnur og Bylgja renna saman yfir afbrotamennina sem teknir eru fyrir í fyrstu seríu Mindhunter og ræða saman þeirra helstu skoðanir á þeim. Ekki hlutlaus, en þetta er mjög gott dæmi. Alveg svona yfir meðallagi. Vonandi. Ekki gleyma að subscribea, og munið að fylgja Morðcastinu á samfélagsmiðlum til að missa örugglega ekki af neinu: facebook.com/mordcastid instagram.com/mordcastid twitter.com/mordcastid [email protected]

Sep 29, 201959 min

S1 Ep 2626. Orð dagsins er: Snakk

Sagði einhver morðdagur? Já takk! Í dag segir Unnur frá áhugaverðu máli sem á rót að rekja í flugslys sem gerist 2002 á meðan Bylgja fer til Japan og segir okkur frá algjörum hrotta. Sko ógeð. Eitthvað fyrir alla myndi einhver segja? Það held ég nú. Ekki gleyma að subscribea, og munið að fylgja Morðcastinu á samfélagsmiðlum til að missa örugglega ekki af neinu: facebook.com/mordcastid instagram.com/mordcastid twitter.com/mordcastid [email protected]

Sep 25, 20191h 10m

S1 Ep 25Orð dagsins er: Telenovela

Oh fimmtudagar eru frábærir dagar. Í dag er Bylgja komin til baka eftir stutta pásu og segir okkur frá íslensku mannshvarfi, á meðan Unnur skellir sér alla leið til Brasilíu og tekur fyrir stórfurðulegt sakamál. Málin eiga ekkert sameiginlegt nema þau eru bæði hrikalega sorgleg. Sko mjög. Ekki gleyma að subscribea, og munið að fylgja Morðcastinu á samfélagsmiðlum til að missa örugglega ekki af neinu: facebook.com/mordcastid instagram.com/mordcastid twitter.com/mordcastid [email protected]

Sep 18, 201950 min

S1 Ep 2424. Orð dagsins er: Ruslapoki

Nýr þáttur og það sem er enn merkilegra, við höfum nýjan gest! Unnur segir frá íslensku máli sem gerist í Vestmannaeyjum á meðan Ásta Evlalía spilar meistaraleik í sinni fyrstu heimsókn í stúdíóið, og segir hún okkur frá virkilega undarlegu sænsku máli. Ekki gleyma að subscribea, og munið að fylgja Morðcastinu á samfélagsmiðlum til að missa örugglega ekki af neinu: facebook.com/mordcastid instagram.com/mordcastid twitter.com/mordcastid [email protected]

Sep 11, 20191h 19m

S1 Ep 2323. Orð dagsins er: Pottréttur

Þarf alltaf að vera morð? Já, það virðist því miður vera þannig. Í dag segir Bylgja frá sænsku unglingamáli á meðan Unnur stækkar aðeins skandinavíusvæðið og segir frá áhugaverðu áströlsku máli. Mælum sérstaklega með að henda í pottrétt eftir þáttinn. Ekki gleyma að subscribea, og munið að fylgja Morðcastinu á samfélagsmiðlum til að missa örugglega ekki af neinu: facebook.com/mordcastid instagram.com/mordcastid twitter.com/mordcastid [email protected]

Sep 4, 20191h 21m

S1 Ep 2222. Orð dagsins er: Jólin

Fimmtudagar eru nú alltaf ákveðin hátíð í okkar huga, en í dag er það hvorki meira né minna en jólahátíð. Unnur segir frá bandarísku A-klassa ógeði á meðan Bylgja tekur fyrir kanadískt par sem líklega slær út allan viðbjóð sem hingað til hefur verið tekinn fyrir. Skyldi það vera jólamorð? Ekki gleyma að subscribea, og munið að fylgja Morðcastinu á samfélagsmiðlum til að missa örugglega ekki af neinu: facebook.com/mordcastid instagram.com/mordcastid twitter.com/mordcastid [email protected]

Aug 28, 20191h 35m

S1 Ep 2121. Orð dagsins er: Óupplýst

Í dag kemur Bylgja upp í enn á ný og í þetta skiptið er þemað óupplýst mál. Það sem við elskum að hata og hötum að elska. Bylgja segir frá máli sem gerist í Ástralíu (stóra Skandinavíusvæðið ekki satt?) og Unnur segir frá málum sem gerist í Svíþjóð. Óþægilegt, en gott? Ekki gleyma að subscribea, og munið að fylgja Morðcastinu á samfélagsmiðlum til að missa örugglega ekki af neinu: facebook.com/mordcastid instagram.com/mordcastid twitter.com/mordcastid [email protected]

Aug 21, 201959 min

S1 Ep 2020. Orð dagsins er: Ísland

Góðan og gleðilegan fimmtudag. Þessi er stór, en í dag er tuttugasti þátturinn og í tilefni dagsins taka þær systur, Unnur og Bylgja, fyrir fjögur íslensk mál. Já þið heyrðuð rétt, það er engin leið að sleppa þessum. Rosalegt! Ekki gleyma að subscribea, og munið að fylgja Morðcastinu á samfélagsmiðlum til að missa örugglega ekki af neinu: facebook.com/mordcastid instagram.com/mordcastid twitter.com/mordcastid [email protected]

Aug 15, 20191h 30m

S1 Ep 1919. Orð dagsins er: Survivor

Fimmtudagar eru bestu dagar vikunnar ekki satt? Extra góður fimmtudagur í dag samt, þar sem Unnur og Bylgja taka óvænta tvöfaldan þátt með þemanu survivor. 4 mál, rosalegt tempo, sturlaðir málavextir. Draumur. Ekki gleyma að subscribea, og munið að fylgja Morðcastinu á samfélagsmiðlum til að missa örugglega ekki af neinu: facebook.com/mordcastid instagram.com/mordcastid twitter.com/mordcastid [email protected]

Aug 8, 20191h 21m

S1 Ep 1818. Orð dagsins er: Pissublaðra

Fimmtudagar eru frábærir. Í þetta skiptið fáum við ekki bara þriggja daga helgi, heldur bjóða líka Unnur og Bylgja upp á tvö af sínum allra uppáhalds málum. Þau enda vissulega misvel, en morðið gefur jú og morðið tekur. Ekki satt? Mál: 1. Springfield Three. Óupplýst, mannshvarf. Suzanne „Suzie" Streeter, Stacy McCall og Sherrill Levitt. Óupplýst. 2. Gerandi: Veronica Deramous, þolandi: Teka Adams. Ekki gleyma að subscribea, og munið að fylgja Morðcastinu á samfélagsmiðlum til að missa örugglega ekki af neinu: facebook.com/mordcastid instagram.com/mordcastid twitter.com/mordcastid [email protected]

Aug 1, 20191h 1m

S1 Ep 1717. Orð dagsins er: Barnamorðingi

Jæja, þá er loksins kominn fimmtudagur. Þáttur dagsins er ekki af verri endanum, langur og góður eins og máltækið segir, en í dag kemur Bylgja í stúdíóið og ræðir hún við Unni um barnamorðingja. Mörg börn, mikið stuð, mikið gaman. Eða þið skiljið. Mál: 1. Gerandi: Eric Parnell. Þolandi: Jennifer Holliday. 2. Gerandi: Joe Clark. Þolandi: Thad Phillips. 3. Gerandi: Troy Eugene Wigley. Þolandi: Ellen Halpert. 4. Gerandi: Mark Edwards. Þolandi: Larry Bobish Jr. Ekki gleyma að subscribea, og munið að fylgja Morðcastinu á samfélagsmiðlum til að missa örugglega ekki af neinu: facebook.com/mordcastid instagram.com/mordcastid twitter.com/mordcastid [email protected]

Jul 25, 20191h 47m

S1 Ep 1616. Orð dagsins er: Slípirokkur

Þá er loksins kominn fimmtudagur, eða með öðrum (m)orðum, Morðcastdagur. Í þetta skiptið kíkir nýr leikmaður uppí í stúdíóið, hann Þorvaldur Björgvin, iðnaðarmaður Íslands. Valdi segir okkur frá íslensku morði á meðan Unnur fjallar um þekktan danskan afbrotamann. 10/10. Mál: 1. Gerandi: Peter Lundin. Þolandi: Anna Lundin, Marianne Pedersen og synir hennar Dennis og Brian. 2. Íslenskt mál sem gerist á Akureyri. Ekki gleyma að subscribea, og munið að fylgja Morðcastinu á samfélagsmiðlum til að missa örugglega ekki af neinu: facebook.com/mordcastid instagram.com/mordcastid twitter.com/mordcastid [email protected]

Jul 18, 20191h 2m

S1 Ep 1515. Orð dagsins er: Spæna

Nýr fimmtudagur genginn í garð og það þýðir bara eitt: fleiri morð fyrir öll. Bylgja er gestur þáttarins og segir hún okkur frá trúlega (skiljið þetta seinna) skrítnasta málinu hingað til, á meðan Unnur tekur fyrir óupplýst sakamál. Bæði eiga þau það sameiginlegt að eiga tengingu til Svíþjóðar. Jättebra. Mál: Knutby murder. Brúður Krists. 1. Gerandi: Sara Svensson. Þolandi: Alexandra Fossmo. 2. Þolandi: Karina Holmer. Ekki gleyma að subscribea, og munið að fylgja Morðcastinu á samfélagsmiðlum til að missa örugglega ekki af neinu: facebook.com/mordcastid instagram.com/mordcastid twitter.com/mordcastid [email protected]

Jul 11, 201958 min

S1 Ep 1414. Orð dagsins er: Óféti

Glad torsdag mina vänner! Jú þið lesið rétt, þátturinn í dag er alsænskur, svíngrófur en samt alveg næs. Tvö mál, bæði frekar nýleg, og mörg viðkvæm málefni tekin til umræðu. Fullkomin byrjun á helginni myndu margir segja. Ekki allir. Samt alveg flestir. Mál: 1. Þolandi: Bobby Äikiä. Gerendur: Niina Äikiä, Eddy Larsson. 2. Þolandi: Elin Krantz. Gerandi: Ephrem Yohannes. Ekki gleyma að subscribea, og munið að fylgja Morðcastinu á samfélagsmiðlum til að missa örugglega ekki af neinu: facebook.com/mordcastid instagram.com/mordcastid twitter.com/mordcastid [email protected]

Jul 4, 201945 min

S1 Ep 1313. Orð dagsins er: Hatur

Nýr fimmtudagur - nýr þáttur. Bylgja kemur enn einu sinni upp í til Unnar og segir frá frægu finnsku máli á meðan Unnur segir frá gömlum norskum raðmorðingja. Eiga í sjálfu sér ekki mjög mikið sameiginlegt nema agalega mörg lík. Þungur þáttur í takt við afmælisniðursveifluna. Samt gott. Mál: 1. Lake Bodom. Fórnarlömb: Maila Björklund, Anja Mäki, Seppo Boisman og Nils Gustafsson. 2. Gerandi: Arnfinn Nesset. Ekki gleyma að subscribea, og munið að fylgja Morðcastinu á samfélagsmiðlum til að missa örugglega ekki af neinu: facebook.com/mordcastid instagram.com/mordcastid twitter.com/mordcastid [email protected]

Jun 27, 20191h 1m

S1 Ep 1212. Orð dagsins er: Afmæli

Í dag er fimmtudagur OG Unnur á afmæli. Það þýðir bara eitt: afmælisþema! Bylgja mætir í stúdíóið og taka þær fyrir fjögur (4!!) mál sem öll tengjast á einhvern hátt 20. júní, eða afmælum. Mikið svakalega er gaman að eiga afmæli. Allavega oftast. Mál: 1. Gerandi: Andrea Yates. 2. Gerendur: John Marquard og Michael Abshire. Þolandi: Stacy Willets. 3. Gerendur: Michelle Martens, Fabian Gonzales, and Jessica Kelley. Fórnarlamb: Victoria Martens. 4. Gerandi: Albert Dryden. Fórnarlamb: Harry Collinson. Ekki gleyma að subscribea, og munið að fylgja Morðcastinu á samfélagsmiðlum til að missa örugglega ekki af neinu: facebook.com/mordcastid instagram.com/mordcastid twitter.com/mordcastid [email protected]

Jun 20, 20191h 7m

S1 Ep 1111. Orð dagsins er: Sexbunker

Í þætti dagsins kemur Bylgja aftur uppí til Unnar, en í þetta skiptið segir hún frá þekktu íslensku morði, á meðan Unnur tekur fyrir sænskan afbrotamann. Bæði málin innilega hræðileg, en áhugaverð. Samt eiginlega bara sick. Mál: Gerandi: Anders Eklund. Fórnarlömb: Engla Juncosa Höglund, Pernilla Hellgren Íslenskt mál, fórnarlamb fullorðin kona. Ekki gleyma að subscribea, og munið að fylgja Morðcastinu á samfélagsmiðlum til að missa örugglega ekki af neinu: facebook.com/mordcastid instagram.com/mordcastid twitter.com/mordcastid [email protected]

Jun 13, 20191h 10m

S1 Ep 1010. Orð dagsins er: Blekkingar

Í þætti dagsins fær Unnur nýjan gest í bólið til sín og í þetta skiptið er það systir hennar hún Bylgja Borgþórsdóttir. Báðar taka þær gömul mál (og fá munnræpu), Bylgja segir frá sænsku máli og Unnur norsku, en í báðum málunum er gerandinn kvenmaður sem tekur málin í sínar hendur. Bókstaflega. Mál: 1. Gerandi: Belle Gunness. 2. Yngsjö morðin. Fórnarlamb: Hanna Johansdotter. Gerandi: Mægðinin Anna Månsdotter og Per Nilsson. Ekki gleyma að subscribea, og munið að fylgja Morðcastinu á samfélagsmiðlum til að missa örugglega ekki af neinu: facebook.com/mordcastid instagram.com/mordcastid twitter.com/mordcastid [email protected]

Jun 6, 20191h 0m

S1 Ep 99. Orð dagsins er: Utangarðsmenn

Í þætti dagsins kemur nýr gestur upp í til Unnar, hann Jónas Ástþór Hafsteinsson, sem segir okkur frá gömlu íslensku máli á meðan Unnur tekur fyrir sænskt mál. Eiga þessi mál það sameiginlegt að gerendur fundu sig utangarðs í samfélaginu og tóku málin í sínar hendur. Bókstaflega. Mál: 1. Gerandi: Wolfgang Alexander Zaugg (Lasermannen) 2. Íslenskt mál, þolandi 2 ára barn, Ekki gleyma að subscribea, og munið að fylgja Morðcastinu á samfélagsmiðlum til að missa örugglega ekki af neinu: facebook.com/mordcastid instagram.com/mordcastid twitter.com/mordcastid [email protected]

May 30, 20191h 25m

S1 Ep 88. Orð dagsins er: Eldamennska

Í dag er síðasta skiptið í bili þar sem Andrea skríður uppí rúm til Unnar. Í dag segir hún frá sænsku máli á meðan Unnur tekur fyrir fyrsta málið sem gerist í Færeyjum. Fyrir einhverja mjög undarlega tilviljun innihalda bæði málin hluti sem finna má í flestum eldhúsum. Sjúkt. Mál: 1. Þolandi: Dánjal Petur Hansen. Gerandi: Milan Kolovrat. 2. Gerandi: Maria Kisch. Gerandi: Gabrial Kisch Ekki gleyma að subscribea og munið að fylgja Morðcastinu á samfélagsmiðlum, til að missa örugglega ekki af neinu: facebook.com/mordcastid instagram.com/mordcastid twitter.com/mordcastid [email protected]

May 23, 201959 min

S1 Ep 77. Orð dagsins er: Blæti

Í þessum þætti kíkir Andrea enn einu sinni upp í rúm til Unnar og í þetta skiptið eru þær með fyrirfram ákveðið umræðuefni, blæti. Þær spjalla um staðreyndir varðandi blæti ásamt því að segja hvor annarri frá sakamálum sem tengjast blæti (fetishism) á einhvern hátt. Áhugavert dæmi. Mál: Gerandi: Jerome `Jerry´ Brudos. Luigi Longhi Gerandi: Graham Dwyer. Þolandi: Elaine O'Hara. Ekki gleyma að subscribea og munið að fylgja Morðcastinu á samfélagsmiðlum, til að missa örugglega ekki af neinu: facebook.com/mordcastid instagram.com/mordcastid twitter.com/mordcastid [email protected]

May 16, 20191h 6m

S1 Ep 66. Orð dagsins er: Valborgsmässoafton

Í þessum þætti skríður Bjarki aftur upp í rúm til Unnar og segir í þetta sinn frá sænsku, óupplýstu morði. Unnur fjallar einnig um sænskt mál en í því eru unglingar í aðalhlutverki. Óvænt eiga málin það sameiginlegt að eiga rót að rekja til Valborgsmässoafton, sem er einskonar vorhátíð þeirra Svía. Óhuggulegt dæmi. Mál: Þolandi: Therese Johansson Rojo Atlas Vampire Ekki gleyma að subscribea og munið að fylgja Morðcastinu á samfélagsmiðlum, til að missa örugglega ekki af neinu: www.instagram.com/mordcastid www.twitter.com/mordcastid [email protected]

May 9, 20191h 21m

S1 Ep 55. Orð dagsins er: Mannshvarf

Gestur þáttarins í dag er engin önnur en hún Andrea Valgeirsdóttir, morðkona mikil. Unnur kynnir fyrir okkur fyrsta finnska mál Morðcastsins á meðan að Andrea segir okkur frá dönsku máli. Þessi mál eiga það sameiginlegt, óvart, að þetta eru bæði mannshvarfsmál. Þungt, en gott? Mál: 1. Mannshvarf: Piia Ristikankare 2. Betina Christensen Ekki gleyma að subscribea á því podcastappi sem þið notið og fylgið okkur og/eða hafið samband í gegnum: www.instagram.com/mordcastid www.twitter.com/mordcastid [email protected]

May 2, 20191h 0m

S1 Ep 44. Orð dagsins er: Ljóð

Í þessum þætti þætti Morðcastsins segir Bjarki frá dönskum afbrotamanni sem fór mikinn á sínum tíma, og Unnur segir frá íslensku morði sem gerðist árið 1988. Þau eiga í sjálfu sér ekkert sameiginlegt nema það að þau eru hræðileg. Svo tölum við líka mjög lengi um þau. Úbs. Að gefnu tilefni þá vörum við viðkvæma við grafískum lýsingum og grófum afbrotum sem tekin eru fyrir. Mál: 1. Gerandi: Marcelle Licau Hansens/Amagermaðurinn. 2. Íslenskt mál Instagram: www.instagram.com/mordcastid Twitter: www.twitter.com/mordcastid Hafið samband í [email protected]

Apr 25, 20191h 11m

S1 Ep 33. Orð dagsins er: Ungmenni

Í þessum þætti taka Unnur og Andrea fyrir eitt sænskt morð og eitt norskt. Þau eiga í raun ekkert sameiginlegt nema það að um er að ræða fjölmörg ungmenni. Herregud. 1. Gerandi: Nerijus Bilevicius. Þolandi: Lisa Holm 2. Gerandi: vinur þolanda. Þolandi: Marius Löken. Endilega fylgið Morðcastinu á Instagram, Twitter og ekki gleyma að subscribe-a til að missa örugglega ekki af neinu. Hafið samband í: [email protected]

Apr 18, 201951 min

S1 Ep 22. Orð dagsins er: Nørrebro

Í þætti dagsins taka Unnur og Andrea fyrir tvö morð sem eiga það óvænt sameiginlegt að þau gerast að miklu leyti í hverfinu þeirra í Kaupmannahöfn, Nørrebro. Óþægilegt. Gerendur: 1. Dagmar Overbye 2. Claus Ka Berggren Endilega fylgið Morðcastinu á instagram, twitter, og því podcastappi sem þú kýst að nota, til að missa örugglega ekki af neinu. Hafið samband í: [email protected]

Apr 11, 201950 min

S1 Ep 11.2. Orð dagsins er: Stungusár

Í þessum þætti eru tekin fyrir tvö morð, eitt danskt og eitt íslenskt, og eiga þau það sameiginlegt að fórnarlömbin voru stungin til dauða. Örugglega mjög vont. 1. Gerandi: Ditte Kaul. 2. Gerandi: Íslenskur maður Hafið samband í: [email protected] instagram.com/mordcastid twitter.com/mordcastid

Apr 4, 201943 min

S1 Ep 11.1. Kynningarþáttur

trailer

Í þessum kynningarþætti fyrir Morðcastið er stiklað á stóru yfir uppsetningu þáttarins ásamt því að Unnur kynnir inn fyrsta gestinn hana Andreu, og saman fjalla þær um þeirra uppáhalds morð (sem var í raun tilraun til morðs), sem er að sjálfsögðu sagan hennar Mary Vincent. Í næsta þætti (fimmtudaginn 4. apríl) verður hið venjulega setup ásamt því að tekið verður fyrir fyrsta íslenska morðið. Endilega hafið samband varðandi ábendingar og/eða beiðnir í: [email protected] instagram.com/mordcastid twitter.com/mordcastid

Apr 3, 201923 min