
Tæknivarpið
101 episodes — Page 1 of 3
Apple 50 ára
Ep 396Hvernig á að innleiða gervigreind?
Atli og Gulli fá góða gesti í þáttinn til að ræða innleiðingar á gervigreindartólum. Stefán Gunnarsson og Róbert Helgason eru einmitt að halda námskeið í því fyrir Kjarafélaga viðskipta- og hagfræðinga 11. mars og stikla á stóru úr því efni.
Ep 395MacBook Neo er alger heimalengja 🏈
Það er hátíð á bæ. Atli og Gulli gera upp nýjasta nýtt frá Apple sem var kynnt í vikunni: iPhone 17e iPad Air M4 MacBook Pro með M5 Pro og M5 Max Studio Display og Studio Display XDR MacBook Neo
Ep 394Þáttur ársins 2025 í tækniheiminum
Feitasti þáttur Tæknivarpsins er lentur - Andri, Atli, Axel, Elmar, Gulli og Sverrir gera upp helstu fréttir og atriði í tækni fyrir árið 2025.
Ep 393Warner bros hafnar tilboði Skydance og ChatGPT fær app verslun
Atli og Elmar gera upp tæknifréttirnar vikunnar upp.
Ep 392Netflix kaupir (kannski) Warner Brothers og Steam Machine leikjaborðtölva
Andri, Atli, og Gulli gera upp tæknifréttir mánaðarins: Netflix kaupir WB, Valve kynnir Steam Machine og Alan Dye hættir hjá Apple.
Ep 391Ætlar IKEA að taka yfir snjallheimilsmarkaðinn?
Andri, Gulli og Sverrir fjalla um tæknifréttir síðustu vikna.
Ep 390iPhone Air, Meta Ray-Ban Display og Pixel 10 Pro XL
Atli, Elmar og Gunnlaugur fjalla um nýjustu tækni og tæki.
Ep 389Apple Messa með Andrési Jóns
Atli, Gunnlaugur og Sverrir fara yfir kynningu Apple á þrennunni þeirra, ásamt góðum gesti honum Andrési Jóns frá Góðum Samskiptum (og Ræðum það... hlaðvarpinu).
Ep 388Tæknivarpið kemur úr sumarfríi
Tæknivarpið er komið úr sumarfríi og þeir Elmar, Gulli og Sverrir fara yfir tæknifréttir sumars.
Ep 387Apple WWDC uppgjör, Switch 2 fyrstu viðbrögð og Sýn droppar Stöð2
Andri Valur, Atli Stefán og Gunnlaugur Reynir spjalla um WWDC2025, fyrstu viðbrögð Atli og Gulla af Switch og íslenskt fjarskiptaslúður.
Ep 386Gervigreindarspjall með Söfu Jemai frá Víkonnekt
Atli Stefán tekur viðtal við Söfu Jemai frá Víkonnekt (https://www.vikonnekt.com/) um gervigreind.
Ep 385Nintendo Switch 2 með Daníel Nintendo Rósinkrans
Daníel frá Leikjavarpinu kemur í heimsókn til Atla og Gulla og við köfum djúpt í nýkynnta Nintendo Switch 2.
Ep 384Zelda kvikmynd, Atli kaupir raftæki og nýr iPad
Andri Valur, Atli Stefán, Gunnlaugur og Sverrir fara yfir fréttir vikunnar og hvað þeir hafa keypt nýlega af tækjum.
Ep 383Anker er drasl, PlugBug er snilld
Andri Valur, Atli Stefán og Gunnlaugur gera upp tæknifréttir vikunnar. #plugbug
Ep 382iPhone SE (eða 16e) og TikTok bann
Andri Valur, Gulli og Sverrir gera upp tæknifréttir síðustu vikna.
Ep 381Tækniverðlaun ársins 2024
Andri Valur, Atli Stefán, Elmar, Gulli og Kristján Thors gera upp árið 2024 í tækniheiminum.
Ep 380Heil vika af Mac og tæknifréttir fjórðungsins
Apple tók sér heila viku og þrjú skipti til afhjúpa nýjar Mac tölvur með M4 flögum: iMac 24, Mac mini og MacBook Pro vörulínuna. Svo förum við fréttir þessa ársfjórðungs til að vinna upp það sem við höfum misst af. Stjórnendur þessa þáttar eru Andri, Atli Stefán, Elmar og Gunnlaugur.
Ep 379Apple veisla - iPhone 16, Airpods 4 og Watch S10
Atli, Gulli og Mosi renna yfir nýjar Apple vörur sem er von á í haust.
Ep 378Apple orðrómar, nýir iPhone 16 símar og Haustráðstefna
Atli Stefán, Bjarni Ben og Gulli fara yfir orðróma fyrir Glowtime viðburð Apple sem verður 9. september og ræða Haustráðstefnu Advania sem verður í næstu viku. Það verður brátt uppselt þannig hlaupa kaupa!
Ep 377Google Pixel 9 Pro Fold - stutt og laggott nafn
Við erum komnir úr mjög löngu sumarfríi og byrjum með látum. Fullt af Pixel fréttum, Crowdstrike klúðrið og fleira með Atla, Elmari og Gulla.
Ep 376WWDC 2024 - Apple uppgvötar gervigreind
WWDC 2024 - uppskera hugbúnaðarþróunar Apple er nýlega afstaðin og Andri, Atli og Gulli gera hana upp.
Ep 375Hvernig er hægt að nýta sér spunagreind?
Tæknivarpið fékk góða gesti til að ræða hagnýtingu gervigreindar - eða þá nánar tiltekið spunagreindar. Gunnar Reykjalín frá Origo og Binna Borgar frá Datalab. Stjórnandi er Atli Stefán. Þessi þáttur er í boði Origo 🙏
Ep 374Microsoft sækir á MacBook Air og á gervigreind
Microsoft hélt uppskeruhátíð sína Build nýlega og er búið að dæla út tilkynningum sem Atli og Gulli fara yfir.
Ep 373Nýjar iPad spjaldtölvur og 121x AI
Atli, Gulli og Elmar fara yfir fréttir MÁNAÐARINS. iPad Pro M4, iPad Air M2 og Apple Pencil Pro. Google IO.
Ep 372Amazon Fresh gervigreindin var í raun 1000 verktakar á Indlandi
Atli, Elmar og Gulli renna fyrir fréttir vikunnar í tækniheiminum: Amazon Just Walk Out þjónustan lögð niður Facebook Messenger skilaboðaþjónusta dulkóðuð alla leið Íslensk tónlist hent útaf TikTok
Ep 371MacBook Air M3 og DMA tekur gildi
Andri, Atli og Gulli taka um tæknifréttir vikunnar.
Ep 370Apple Vision Pro sýndarsjáin prófuð og MWC
Andri Valur, Atli Stefán, Elmar Torfa og Gulli Sverris spjalla um fréttir vikunnar og ferð Elmars til Barcelona á MWC.
Ep 369Apple Vision Pro komið til Íslands
Atli, Bjarni og Gulli fjalla um tæknifréttir síðustu þriggja mánaða 🫣
Ep 368Þáttur ársins 2023
Tæknivarpið kallar alla meðlimi út til að gera upp árið 2023 í tækni. Hvað er app árisns? Hver eru bestu tæknikaup ársins? Hver er sími ársins? Það og svo miklu meira í þætti ársins.
Ep 367Það þarf enginn tíu gígabita á sekúndu
Við fáum góða gesti í Tæknivarpið þá Ingvar Bjarnason frá Mílu og Jón Helgason (Nonna) frá Eldey. Þeir héldu einmitt fyrirlestur fyrir fjarskipta-faghóp á vegum Ský í síðustu viku þar sem fjallað var um 10 gígabita ljósleiðara fyrir heimili. Þarf einhver 10 gígabita á sekúndu?? Stjórnendur eru Atli Stefán og Gunnlaugur Reynir.
Ep 366Nothing hakkar Apple og gervigreindarnæla
Nothing er búið að hakka Apple Messages þannig að það virki á Android símanum sínum Phone (2). Humane kynnir gervigreindarnælu "AI pin" sem kostar 800 USD og kemur kannski einhvern tímann út.
Ep 365Hryllilega hraðar M3 flögur og Meta áskrift
Apple kynnti nýja línu af flögum: M3, uppfærðar MacBook Pro og iMac 24. Stærsta fréttin er samt mögulega nýr litur 🖤 Qualcomm er með nýja flögulínu sem heitir Oryon sem á að keppa beint við Apple Silicon, og er hraðari en M3 en notar talsvert meira rafmagn (líklega 2x!). Hringdu lenti í hrappara sem náði að svíkja út rafræn skilríki hjá öðrum manni, en tilkynnti hann og náði að koma í veg fyrir mikinn skaða. Meta býður nú upp á áskriftir fyrir Facebook og Instagram - greiddu €15 á mánuði og slepptu auglýsingum. Ætlar þú að kaupa?
Ep 364Framtíðin er 5,5G, Meta Quest 3 og snjallsólgleraugu
Atli fer yfir framtíðina í farnetum og segir frá ferð sinni til Dubai á 5.5G ráðstefnu Huawei. Meta gefur út nýja sýndarsjá og snjallsólgleraugu. Pixel 8 dómar raðast inn og eru nokkuð jákvæðir.
Ep 363Pixel 8 símar, Pixel Watch 2 og Vivaldi á iOS
Vivaldi er loksins kominn út á iOS fyrir iPhone. Vodafone eflir samtengingar í Evrópu sem gagnast tölvuleikjaspilun. Kringlan gefur út rafræn gjafakort fyrir Wallet-lausnir Apple og Google. iPhone 15 vandamál halda áfram - en eru þetta raunverulega vandamál? Google kynnti nýja síma og snjallúr og Elmar er búinn að panta sér uppfærslur.
Ep 362Heitir iPhone-símar og kaldir Android-símar
Það eru komin verð á iPhone 15 og iPhone 15 Pro á Íslandi en þeir virðast vera ofhitna aðeins. Pixel 8 og 8 Pro eru búnir að leka. Ljósleiðarinn fer líka í 10 gígabita. Stjórnendur eru Atli Stefán, Elmar Freyr og Gunnlaugur Reynir. Þessi þáttur er í boði TechSupport.
Ep 361iPhone nú í títan og umhverfisvænari Apple
Atli Stefán og Gunnlaugur fá Bjarka Guðjónsson og Pétur Jónsson í settið til að ræða tímamóta kynningu Apple á iPhone 15 línunni, Watch Series 9 og Watch Ultra 2. Þessi þáttur er í boði TechSupport sem styður íslensk fyrirtæki og stofnanir í upplýsingatækni.
Ep 360iPhone 15 orðrómar, Samsung M8 skjár og vöruskil
Andri, Atli og Gulli fara yfir orðróma fyrir kynningu Apple í næstu viku. Orðið á götunni er að við fáum eftirfarandi: iPhone 15 með USB-C Apple Watch S9 Apple Watch Ultra 2 Apple Airpods Pro 2 með USB-C Við fjöllum líka um Samsung Smart Monitor M8 og Mac Studio kaup Atla. Þessi þáttur er í boði TechSupport.
Ep 359Míla kynnir 10x, Playstation Portal og Zoom lokar á fjarvinnu
Atli, Elmar og Gulli gera upp fréttir vikunnar í tækni: 10 gígabitar til heimila hjá Mílu Nýr framkvæmdastjóri hjá Ljósleiðaranum Playstation Portal er flopp? Sony PS+ hækkar í verði Zoom kallar inn starfsfólk úr fjarvinnu ATHUGIÐ Elmar er starfsmaður Mílu og Atli er ráðgjafi Mílu. Þessi þáttur er í boði Tech Support.
Ep 358Tæknivarpið snýr aftur - Microsoft Loop og Limir í leikjum
Atli Stefán (kvefaður), Bjarni Ben Loopari og Elmar Torfa ræsa Tæknivarpið þetta haustið og við lofum góðri umræðu um limi í tölvuleikjum og nýjasta nýtt í samvinnuhugbúnaði. Þessi þáttur er í boði TechSupport.is
Ep 357Threads, forkæling bíla og 5K tölvuskjáir
Atli, Gulli og Sverrir taka frí frá sumarfríinu og renna yfir tæknifréttir sumarsins. Þessi þáttur er í boði TechSupport.
Ep 356WWDC2023 - Apple Vision Pro, MacBook Air 15, Mac Pro og öll stýrikerfin uppfærð
Við rennum yfir lykilræðu Apple á WWDC 2023 ásamt Pétri Jónssyni og Bjarka Guðjónssyni - okkar eigið Pro-teymi ❤️ Stjórnendur eru Atli og Gulli.
Ep 355WWDC upphitun og fleira.
Viðfangsefni vikunnar er upphitun fyrir WWDC viðburð Apple, friðhelgi einkalífs og fleira. Við metum einnig hvort Gulli sé að reyna að kveikja í bílskúrnum heima hjá sér. Umræðupunktar (e. Show notes) Inngangur Rafhjólahornið Tenways rafmagnshjól IPTV umræðan Sýn stefnir Jóni Einari Ad-tech og friðhelgi einkalífs Bandaríkjamenn geta keypt frítt sjónvarp með auglýsingum Starfsmenn Ring virtu friðhelgi einkalífs notenda að vettugi Meta kynnir Quest 3 Verð - $499 Neytendahornið Gulli prófaði Gripið og Greitt Tesla hornið. WWDC upphitun Nýjar Mac tölvur væntanlegar. Apple Reality Pro concept Lokaorð Kostendur: Nuki á Íslandi: Nuki Opener hjálpar þér að snjallvæða dyrasímann, sem gagnast öllum sem vilja hleypa fjölskyldumeðlimum og öðrum getum inn um útidyrahurðina hvar og hvenær sem er. Hlustendur Tæknivarpsins fá 10% afslátt af Nuki Opener og/eða Nuki Smart Lock Pro með því að slá inn kóðann taeknivarpid. TechSupport fyrir að lána okkur upptökustað. Umsjónarmenn þáttarins eru Atli Stefán Yngvason, Gunnlaugur Reynir Sverrisson og Sverrir Björgvinsson.
Ep 354Microsoft Build, Hot Desking og Motorola ThinkPhone
Skýrsla Fjarskiptastofu um fjarskiptamarkaðinn kom út um daginn og Nova gerði hana upp. Microsoft Build var að klárast og setti met í því hversu oft stafirnir A og I voru sagði upphátt. Tæknivarpið fær að prófa Gripið & Greitt og Gulli verslar í Næra. Fujifilm gaf út nýja myndavél og Atli ætlar að panta. Netflix herjar á samnýtingu aðganga og byrjar í BNA. HBO Max verður.. Max. Stjórnendur þetta skiptið eru Andri Valur, Atli Stefán og Gunnlaugur Reynir. Þessi þáttur er í boði TechSupport.
Ep 353Google I/O og Bónus: Gripið og Greitt
- ATT.is og Game Stöðin loka verslunum sínum. - Bónus kynnir EKKi gripið og greitt. - Wolt hefur starfsemi á Íslandi. - Google I/O er rætt, sem fór fram í síðustu viku. - Twitter kynnir nýjan forstjóra Umjsjónarmenn þáttarins eru Gunnlaugur Reynir Sverrisson, Egill Moran Friðriksson (Mosi), Elmar Torfason og Sverrir Björgvinsson.
Ep 352Staða bókarinnar með Margréti Tryggvadóttur
Margrét Tryggvadóttir, formaður Rithöfundasambands Íslands, mætti í Tæknivarpið og ræddi stöðu bókarinnar í breyttu landslagi. Umsjónarmenn þáttarins eru Atli Stefán Yngvason og Gunnlaugur Reynir Sverrisson.
Ep 351Guðfaðir gervigreindar hættir í fússi og hlutafjáraukning Ljósleiðarans
Gunnlaugur, Atli Stefán og Mosi ræða fréttir vikunnar: Hlutafjáraukning Ljósleiðarans Blackberry leikin kvikmynd Guðfaðir gervigreindar hættir hjá Google í fússi Þessi þáttur er í boði TechSupport sem lánar okkur upptökustað 💜
Ep 350Apple Reality, WWDC og NAS pælingar
Atli Stefán Yngvason og Sverrir Björgvinsson komu saman og ræddu Apple Reality höfuðtólið sem verður líklega kynnt í sumar, helstu orðróma varðandi WWDC ráðstefnu Apple sem verður 5.-9. júní.
Ep 349Páskavarp Tæknivarpsins
Flugur.is hjálpuðu okkur að gera þennan þátt að veruleika. Svikapóstar sem eru ekki frá ríkislögreglustjóra, endurhlaðanlegar rafhlöður, páskaegg og ný OnePlus spjaldtölva eru meðal umræðu dagsins. Einnig segja þáttastjórnendur frá því hvaða áskriftir þeir eru með þessa dagana með að streymisveitum. Umsjónarmenn þáttarins eru Andri Valur, Elmar Torfason og Gunnlaugur Reynir Sverrisson.
Ep 348Hopp og Hopon á leigubílamarkað
Þessi þáttur er í boði indó, ekki banki. Ný löggjöf um leigubílaþjónustu tók gildi fyrsta apríl. Hopp stofnaði leigubílaþjónustu, og nýtt fyrirtæki, Hopon ætlar líka að vera með til að Uber-væða íslenskt samfélag Svo er snert á því hvaða matvörubúð á Íslandi sé best og hvers vegna. Umsjónarmenn þáttarins eru Gunnlaugur Reynir Sverrisson, Egill Moran Friðriksson (Mosi) og Elmar Torfason.