
Tæknivarpið
106 episodes — Page 3 of 3
S8 Ep 40301 Persónuvernd og tækni + fréttir vikunnar
Gleðilegan alþjóðlegan Persónuverndardag! Í tilefni dagsins fáum við til okkar hana Vigdísi Evu Líndal frá Persónuvernd til að ræða persónuvernd í tækni. Að því loknu förum við yfir tæknifréttir vikunnar. Eru markaðshrun Netflix og Peleton vísar að stærra hruni eða gekk bara aðeins of vel? Intel er að reisa 20 milljarða dollara verksmiðjur í Ohio en til hvers? Samsung Unpacked lék eiginlega í heild sinni út og við fáum að sjá alla næstu síma Samsung áður en þeir eru kynntir. Samsung hefur aldrei gengið eins vel og sló hagnaðarmet sín. Cybertruck hefur opinberlega verið seinkað til 2023 og Áslaug systir Atla er vonsvikin. Þessi þáttur er í boði Macland og Elko sem selja tækin sem við elskum. Stjórnendur eru Atli Stefán og Elmar Freyr.
S8 Ep 39300 Microsoft kaupir Blizzard og frábær CES sýning
Þá er Tæknivarpið loksins komið í rútínu og við fáum fyrsta fréttaþáttinn. Orion Sentry er eitt fyrsta íslenska Mac appið í langan tíma og reynir að koma í veg fyrir þjófnað á tölvum. Fjarskiptastofa vinnur í því að gera háhraðanet á þjóðvegum að kröfu. Vivaldi vafrinn er nú í boði á Astro Slide 5G nördasímanum. Það var brotist inn í tölvukerfi Strætó og þau ákváðu að borga ekki lausnargjald fyrir gögnin. CS:GO úrvalsdeild RÍSÍ heitir núna Ljósleiðaradeildinn. CES sýningin var í byrjun árs og telja gárungar að þetta sé líklega sú besta í mjög langan tíma. Við förum yfir það helsta þaðan eins og 55” tölvuskjá frá Samsung, 42” OLED sem sló í gegn og Freestyle skjávarpa sem er hægt að skrúfa upp í ljós. Stærsta frétt vikunnar er svo kaup Microsoft á Activision Blizzard fyrirtækinu upp fyrir fáranlega háa upphæð. Þessi þáttur er í boði Macland og Elko. Stjórnendur eru Atli Stefán og Elmar Torfason
S8 Ep 38299 - Þáttur ársins 2021
Nú er loksins komið að því. Þáttur ársins er mættur, aðeins seinna en vanalega útaf sottlu. Þar fer næstum allur hópurinn bakvið Tæknivarpið (og Simon.is) yfir það sem var mest spennandi í nýju tækni og tækjum á árinu sem var að líða. Flokkarnir eru eftirfarandi: Græja ársins Sími ársins Kaup ársins Leikur ársins Farleikur ársins App/forrit ársins Kvikmynd ársins Sjónvarp ársins Hlaðvarp ársins Vonbrigði ársins Klúður ársins Stærsta tæknifrétt ársins Við þökkum kærlega fyrir innsend svör hlustenda og árið sem var að líða 🙏🏻
S7 Ep 15Tækniviðtal: Log4j með Guðmundi Sigmundssyni frá CERT-IS
Tæknivarpið fær til sín Guðmund Arnar Sigmundsson frá CERT-IS netöryggissveit Fjarskiptastofu. Við ræðum öryggisgallann í Log4j og áhrifin af honum. Þessi þáttur er í Elko og Macland 🙏🏼 Stjórnandi er Atli Stefán Yngvason sem er að finna á Twitter.
S7 Ep 14297 Tómir rafbílar teppa götur í Noregi og ljótar Macbook Pro tölvur
Jólin nálgast og því skelltum við í létta umræðu um jólagjafir árins. Lofsöngvar voru sungnir um nýju ljótu tölvuna hans Mosa og brátt kemur Pixel úrið sem mun gera Elmar að hræsnara. Að lokum ræddum við stærsta vandamálið í Noregi um þessar stundir þar sem rafmagnslausir rafbílar virðast vera að teppa allar götur eftir síðasta kuldakast Þessi þáttur er í boði Macland og Elko. Stjórnendur í þætti 297 eru Elmar Torfason, Gunnlaugur Reynir, Marinó Fannar Pálsson og Mosi.
S7 Ep 13296 Break frá Fractal 5 og jólagjafir
Fractal 5 gaf út sitt fyrsta app á Slush nýsköpunarhátíðinni í vikunni: Break. Break er samfélagsmiðill sem ætlar að skipuleggja tækisfærishittinga fyrir fólk. Við rennum yfir jólabækling Elko og rekum augum í fótanuddtækið sem virðist aldrei ætla deyja. Nýja ríkisstjórnin ætlar að opna sína eigin streymisveitu til að miðla íslensku efni geymt hjá Kvikmyndamiðstöðinni. Er það sniðugt eða á bara að upphala þessu á YouTube? SpaceX er víst á leiðinni á hausinn samkvæmt Elon Musk sjálfum, nema allt starfsfólkið vinni langar vaktir um helgar til að bjarga því. Tesla kynnir fjórhjól fyrir börn sem heitir auðvitað Cyberquad. Meðstofnandi og forstjóri Twitter Jack Dorsey stígur til hliðar og hleypir nýjum að. Ætli það sé framtíð fyrir Twitter án Trump? Apple virðist hafa dregið úr framleiðslu á iPhone þetta árið en ekki er vitað hvort það sé vegna eftirspurnar eða framleiðslugetu. Þessi þáttur er í boði Elko og Macland. Stjórnendur eru: Atli Stefán, Elmar Torfason og Daníel Ingólfsson