
Tæknivarpið
101 episodes — Page 2 of 3
Ep 347ChatGPT talar íslensku, útrunnin rafræn skilríki og TikTok bann
Þessi þáttur er í boði indó, ekki banka. Við förum yfir fréttir síðustu þriggja vikna útaf sottlu. Stjórnendur eru Andri Valur, Atli Stefán og Gunnlaugur Sverrisson (leikari).
Ep 346Playstation VR2 og tölvuleikjaspilun fyrir miðaldra
Þessi þáttur er í boði indó, ekki banka. Við fáum til okkar góðan gest, hann Daníel Rósinkranz, og ræðum Playstation VR2 sýndarveruleikahjálminn og tölvuleikjaspilun fyrir miðaldra. Stjórendur eru Atli Stefán og Kristján Thors.
Ep 345Starlink-netið óstöðugt og Musk rekur (ekki?) mann ársins
Þessi þáttur er í boði indó, ekki banka. Starlink hefur verið prófað af netnördum Íslands og Sensa í rigningu, roki og logni. Sensa tók sitt próf saman í grein. Elon Musk, smaragðarnámuerfingi, rak eða rak ekki mann ársins í fyrra: Harald Þorleifsson. Svokölluð Schrödinger-uppsögn. Við rekjum upp einn áhugaverðasta Twitter-storm ársins í þættinum. MWC snjalltækja-ráðstefnan var haldin í febrúar og við fjöllum ný spennandi tæki sem voru sýnd þar. Microsoft er að opna á Game Pass fyrir XBox og Windows-tölvur. iOS 16,4 er á leiðinni og er með djúsí fídusa. Twitter setur tveggja þátta auðkenningu bakvið gjaldvegg, en það er víst bara SMS-leiðin ekki öppin. Stjórnendur eru Andri Valur og Atli Stefán.
Ep 344indó app-þróun og framtíðin
Við fengum góðan gest í þátt vikunnar frá indó: Þór Adam Rúnarsson forritara hjá indó, "ekki bankanum". indó er nýr sparisjóður á Íslandi sem býður upp á veltukort með debit-korti + Apple Pay + Google Pay. Stjórnendur eru Atli Stefán og Andri Valur.
Ep 343Nýtt frá Sonos lekur (aftur) og Starlink opnar á Ísland
Starlink opnar á Íslandi, íslenskir netþrjótar ryðja sér til rúms, Sonos hátalarar leka (aftur), Meta býður upp á áskriftir til að tryggja öryggi persónulegs auðkennis og Bing gervigreindin Sydney er dóni. Stjórnendur eru Atli Stefán og Gunnlaugur Reynir.
Ep 342Google Bard, Samsung Unpacked og 4000 slög á Twitter
UTmessan nýafstaðin, Origo stofnar menntunarsjóð fyrir starfsfólk, BagDrop.is tekur töskurnar fyrir þig upp á flugvöll, Samsung kynnir nýja síma og tölvur, Google Bard gervigreindin kynnt, Twitter vinnur 4000 slagna tístum og Nintendo Switch verður þriðja mest selda leikjatölvan. Stjórnendur eru Andri Valur, Atli Stefán, Elmar Torfason og Gunnlaugur Reynir
Ep 341Bálkakeðjutölvuleikir, Gametíví og Formúla 1 með Kristjáni Einari
Kristján Einar Kristjánsson var gestur okkar þetta skiptið og sagði okkur frá Civitas sem er nýr íslenskur tölvuleikur í vinnslu sem er byggður á bálkakeðju. Ásamt því ræddum við um Gametíví og tækni sem var þróuð í Formúlu 1 sem við nýtum í hversdaglegum græjum. Stjórnendur þáttarins eru Bjarni Ben og Gunnlaugur Reynir.
Ep 340Ómönnuð sjóför, Netflix vangaveltur og greiðsluhættir í Kenía
Íslenska fyrirtækið Hefring smíðar tæknilausnir fyrir ómönnuð sjóför. Microsoft bilun hafði áhrif á hundruðir milljóna notenda. Discord er væntanlegt á PlayStation. Þetta og margt fleira í þætti vikunnar. Stjórnendur þáttarins eru Andri Valur, Bjarni Ben og Sverrir Björgvinsson.
Ep 339Er Apple verri kaup fyrir borgina?
Indó komið í Apple pay, Borgarfulltrú Flokks Fólksins ósáttur við kaup á rándýrum apple tölvum og alskonar nýjar Apple græjur. Þetta og margt fleira í þætti vikunnar. Stjórnendur: Bjarni Ben, Elmar Torfason, Gunnlaugur Reynir
Ep 338CES2023: Þvagskynjari, bílar sem breyta um lit og Sony bíll
Mun gervigreind þvinga íslenska skóla til að endurskoða námshögun? Apple gæti mögulega gefið út sýndaveruleikagræju í ár, eða hvað? CES hátíðin er nýafstaðin og við gerðum upp nýtt og spennandi þaðan. Stjórnendur eru Atli Stefán, Elmar Torfason og Gunnlaugur Reynir.
Ep 337Þáttur ársins og Tækniverðlaun 2022
Við erum komnir úr jólafríi! Tæknivarpið fjölmennti og fór yfir árið 2022 í tækni. Stjórnendur: Andri Valur, Atli Stefán, Elmar Torfa, Gunnlaugur Reynir, Kristján Thors, Vöggur Mar og Sverrir Björgvins.
Ep 336Fleiri App Store verslanir á iOS og græjujólin 2022
Tæknivarpið fer ofan í saumana á máli Nova sem úthlutaði óvart símanúmeri sem var í notkun til til annars viðskiptavinar. Einnig er farið yfir helstu mál síðustu vikna, Spotify wrapped, Domino's wrapped, Xiaomi 13 símann og möguleikann á fleiri App Store verslunum í iOS heimi. Síðast en ekki síst, þá ræða stjórnendur þáttarins bestu jólagjafir ársins í heimi tækninnar. Stjórnendur eru Atli Stefán Yngvason, Elmar Torfason og Sverrir Björgvinsson.
Ep 335Rafræn skilríki og eSim, sterkara Gorilla Glass og niðurgreiðslur rafbíla
Ríkið ætlar að fjarlægja fjöldakvóta fyrir niðurgreiðslur rafbíla á næsta ári, en minnka aðeins niðurgreiðsluna. Samsung ætlar að kynna S23 í febrúar. Twitter lak út 5,4 milljón aðgöngum ásamt símanúmerum. Corning er að búa til nýtt högghelt gler fyrir snjallsíma sem þolir 1 metra fall á steypu. Eufy lendir í alvarlegum öryggisgalla, sem var tilkynntur og gerði ekkert. Við förum svo í gegnum spurningar af Twitter og ræðum eSim og rafræn skilríki. Stjórnendur eru Atli Stefán, Elmar Torfason og Gunnlaugur Reynir
Ep 334Inniskórnir hans Steve Jobs seldust fyrir 27 milljónir
Nýjustu fregnir af Twitter sem er auðvitað alelda, en við getum ekki hætt að fylgjast með. Rafeyriskauphöllinn FTX sprakk eftir áhlaup og talið er að 10 milljarðar USD hafi gufað upp. Atli byrjaði að prófa Arc-vafrann en fór svo að gera eitthvað annað af viti. Atli prófar Bose Quiet Comfort Earbuds II sem eru víst best í virkri hljóðeinangrun samkvæmt óháðum aðila. Þessi þáttur er í boði Origo sem er halda opinn fyrirlestur um gagnaöryggi miðvkudaginn 30.nóv. Frítt inn: https://www.origo.is/vidburdir/gagnaoryggi Stjórnendur eru Andri Valur, Atli Stefán og Gunnlaugur Reynir
Ep 333Sýndarveruleiki með Hilmari Gunnarssyni frá Arkio
Þessi þáttur á sér varla stoð í raunveruleikanum og við ferðumst um sýndarheima með Hilmari Gunnarssyni, framkvæmdastjóra Arkio. Arkio vakti athygli á heimsvísu á kynningu Meta um daginn, þar sem var farið yfir framtíðarsýn Metu í sýndarveruleika og gagnbættum veruleika. Arkio er sköpunartól fyrir arkitekta og getur hannað alls konar rými og landslag. Arkio virkar bæði í sýndarveruleika og gagnbættum veruleika. Arkio og Meta eru í þróunarsamstarfi og sýndi Hilmar okkur nýja Quest Pro höfuðtólið. Hilmar er líka fyrsti maðurinn sem við höfum hitt sem fallbeygir Meta. Stjórnendur eru Atli Stefán, Gunnlaugur Reynir og Vöggur Guðmundsson.
Ep 332Ísland slugsar í netöryggi
Nýsköpunarráðherra Íslands boðar aðgerðir í netöryggismálum landsins. Ný fjölmiðlalög eru á leiðinni til að skerpa á því efni sem nær augum barna á streymiveitum. VanMoof kynnir tvö ný rafhjól sem styðja Find My og bætta þjófavörn. Sega ætlar að búa til tvær mini-leikjatölvur: Genesis mini 2 og Astro Mini City V (sem lítur út eins og leikjakassi) með retro-tölvuleikjum. Netflix er búið að afhjúpa verð á áskrift með auglýsingum en ekki fyrir Íslendinga. Samsung Odyssey Ark fær hræðilega dóma og er mjög dýr. Musk er búinn að reka hálft Twitter og auglýsendur virðast vera flýja. Þessi þáttur er í KFC sem er að selja BOSS BACON sem er kjúklingaborgari með svínasíðusneiðum. Stjórnendur eru Atli Stefán og Elmar Torfason.
Ep 331Elon Musk kaupir Twitter og vangaveltur um nýja iPad
Kaupin á Twitter gengu í gegn í vikunni og fyrsta verk Elon Musk var að reka nokkra stjórnendur. En hvers vegna var hann að kaupa Twitter? Gulli er handviss um að 10 kynslóð af iPad sé grunntýpan. Við ræddum til hvers fólk kaupir iPad og hvaða týpu þú átt að velja. Þátturinn er í boði KFC sem selur B.O.S.S. Bacon máltíð. Stjórnendur eru Andri Valur, Bjarni Ben, Gunnlaugur Reynir, Kristján Thors og Valtýr Bjarki.
Ep 329Nýjar spjaldtölvur frá Apple og þráðlaus símtöl
Apple kynnti nýjan iPad (10), uppfærða iPad Pro (M2) og uppfært AppleTV (USB-C fjarstýring!!) með látlausri fréttatilkynningu og myndböndum. Miðeind samhæfir raddgreiningartólin sín við snjallheimilið þannig nú getur Embla slökkt ljósin. Síminn Sjónvarp býður nú upp á prófíla og vefviðmót. Gulli heldur því einnig fram að myndgæðum hafi farið fram, en það er enn óstaðfest. Vegagerðin opnaði nýjan færðarvef, en Gulli vill bara hringja í þau. Nova sendi okkur tæknimann (Aron Heiðar Steinsson) eftir vandræðalegt spjall okkar um Voice of Wifi eða þráðlaus símtöl, sem fræddi okkur um VoLTE, VoWiFi og 5G. Þessi þáttur er í KFC sem er að selja BOSS BACON sem er kjúklingaborgari með svínasíðusneiðum. Þessi þáttur er einnig í boði Origo, sem er að halda opinn fyrirlestur um netöryggi í skýjalausnum þann 26. október. Skráið ykkur inn á https://www.origo.is/vidburdir/netoryggi-vidburdarod-origo2 Stjórnendur eru Atli Stefán og Gunnlaugur Reynir
Ep 328iPhone 14 Plus umfjallanir og nýjar vörur frá Microsoft
Héraðsdómur komst að þeirri niðurstöðu að Síminn mætti hafa enska boltann í stórum heildarpakka. iPhone 14 Plus umfjallanir eru komnar út. Microsoft var með ágætis viðburð og margt fleira. Umsjónarmenn þáttarins er Gunnlaugur Reynir Sverrisson, Andri Valur Ívarsson, Sverrir Björgvinsson og Elmar Torfason. Þessi þáttur er í boði Macland og KFC. Macland.is selur Apple tæki og KFC er með B.O.S.S. BACON máltíð .
Ep 327Google leggur Stadia á hilluna og gott Tempo hjá Origo
Farið er yfir tæknifréttir vikunnar; sala Origo á Tempo, nýr forstjóri Sýnar og USB-C reglur Evrópusambandsins. Elmar búinn að panta nýjan Pixel síma sem Google kynnti í vikunni og Sverrir segir frá bestu leiðinni fyrir gagnamagn í Bandaríkjunum. Þessi þáttur er í boði Macland og KFC. Macland.is selur Apple tæki og KFC er með B.O.S.S. BACON máltíð . Stjórnendur eru Andri Valur, Elmar Torfason og Sverrir Björgvinsson
Ep 326Kindle með penna, Höddi Mac kveður og Pixel lekar
Google er að fara halda viðburð í október og það er eiginlega allt búið að leka. Pixel símarnir fá S-uppfærslu og nýja liti. Nýr netbeinir mögulega á leiðinni. Úrið sem var kynnt í sumar verður kynnt aftur. Gulli vill fá eitthvað bitastætt (left field) en það eru allar líkur á öðru. Amazon hélt sýna Kindle/Echo/Eero kynningu og það kom flóð af tækjum. Þar má helst nefna dagljósalampann Halo Rise (tenging við sjónvarpsþáttinn?) og Kindle Scribe sem er lesbók með e-Ink skjá sem styður penna (Remarkable). DallE er nú opið öllum og sumir segja að vondu róbotarnir munu stela vinnu af fólki. Logitech bjó til vélrænt lyklaborð fyrir Mac sem er mjög retro. Atli fékk loksins Airpods 3 heyrnatólin sín í hendurnar, sem voru 5-6 vikur úti í íslensku sumari og þau VIRKA. Þessi þáttur er í boði Macland.is sem selur Apple tæki og KFC sem selur BOSS BACON sem Elmar elskar. Stjórnendur eru Atli Stefán, Elmar Torfason og Gunnlaugur Reynir.
Ep 325Bann á Google Analytics og GTA6 myndbrotum lekið
Það er þéttur þáttur hjá okkur þetta skiptið. Tækniskólinn var hakkaður illa og flest allt nettengd datt í gólfið. Neytendastofa kallar eftir því að banna Google Analytics á Íslandi í kjölfarið úrskurða annarra Evrópulanda. The Verge endurhannar vefsíðu sína og það eru allir í Tæknivarpinu brjálaðir. Google Pixelbook vörulínan hefur verið fryst og ekki fleiri fartölvur í bígerð þar. The Verge dómar fyrir Apple þrennuna eru komnir út og þeir eru ekkert sérstakir. Apple kynnti ekki stærstu breytinguna á iPhone 14 á nýafstöðnum viðburði sínum: allt innvolsið hefur verið tekið í gegn og nú er mun auðveldara að gera við hann. En þetta á einungis við iPhone 14 (ekki Pro símana). Victrola gefur út plötuspilara sem getur streymt beint í Sonos-hljóðkerfi. Windows Explorer fær loksins flipa, 9 árum á eftir macOS og enn fleiri árum á eftir Ubuntu. Nvidia kynnti ný og dýr skjákort í vikunni: RTX 4090 og 4080. Logitech ætlar að koma með áhaldanlega skýjaleikjatölvu sem heitir því frábæra nafni G Cloud Gaming Handheld sem kemur í sölu þann 17. október. Við fengum góðar spurningar af Twitter, meðal annars frá @icemandave2 og @kariarnar sem við svöruðum í þættinum. Þessi þáttur er í boði Macland.is sem er að dæla út nýjum Apple þrennum, KFC sem býður upp á BOSS BACON máltíð og Origo sem býður upp á fyrirlestur í netöryggi þann 28. september næstkomandi sem er opinn öllum. Sjá fyrirlestur hér: https://www.facebook.com/events/840082753827663
Ep 324Mintum rafkrónur í betaprófun, VoWiFi hjá Nova og bestu sjónvarpskaupin
Börkur Jónsson, einn af stofnendum Rafmyntasjóðs Íslands og http://mintum.is, mætti í heimsókn og sagði frá nýjung á sviði rafmynta á Íslandi. Í fréttum vikunnar var farið yfir nýjungar frá Sonos, símtöl yfir þráðlaust net hjá Nova og að lokum var spurningum hlustenda svarað. Þátturinn er í boði Macland sem kemur með iPhone 14 og iPhone 14 Pro í forsölu 16. september. Þátturinn er einnig í boði KFC sem býður upp á B.O.S.S. Bacon máltið á aðeins 0,00072 Bitcoin eða 2.099 rafkrónur (ISKT). Stjórnendur eru Andri Valur, Bjarni Ben og Marinó Fannar.
Ep 323Apple Watch Ultra, iPhone 14 plus og ný Airpods Pro
Apple hélt kynningu á miðvikudaginn, eins og svo oft áður á þessu tíma árs, og kynnti nýjasta nýtt í Apple þrennunni: iPhone, Watch og Airpods. Þessi þáttur er í boði Macland, sem selur einmitt þessa svakalegu þrennu. Stjórnendur eru Andri Valur, Atli Stefán og Gunnlaugur Reynir.
Ep 322iPhone vinsælli en Android í Bandaríkjunum
iPhone er markaðsleiðandi í Bandaríkjunum. Gulli prófaði Skannað og Skundað. Twitter leyfir ritskoðun á tístum gegn gjaldi. Svo eru fastir liðir eins og venjulega. Þessi þáttur er í boði Macland. Stjórnendur eru Gunnlaugur Reynir Sverrisson, Elmar Torfason, Marinó Fannar Pálsson og Sverrir Björgvinsson.
Ep 321iPhone 14 er handan við hornið
Apple kynnir nýjan iPhone og annað góðgæti þann 7. september næstkomandi. Í sömu viku heldur Advania sína árlegu haustráðstefnu sína. Stjórnendur reyna svo að skera úr um það hvort hljóðskilaboð séu snilld eða ekki. Að endingu þá er #SpurðuTæknivarpið svo á sínum stað. Þessi þáttur er í boði Macland. Stjórnendur eru Gunnlaugur Reynir Sverrisson, Sverrir Björgvinsson og Elmar Torfason.
Ep 320Húðtóna heyrnatól frá Kardashian og Himnasendingar
Við förum um víða völl í þættinum, allt frá húðtóna heyrnatólum og að himnum. Kim Kardashian og Beats (Apple) þróa húðtónalituð heyrnatól frá Beats Fit Pro. Aha er víst byrjað að bjóða upp á drónaheimsendingar undir nafninu "Himnasending" en bara þegar veður leyfir. John Deere traktorar geta keyrt Doom, þrátt fyrir svæsið burn-in á skjánum. Android 13 er komið út, aðeins á undan áætlun. Samsung Galaxy Watch 5 er komið með dóma og þeir eru ekkert spes. En Samsung hittir í mark með 55" tölvuleikjaskjá sem er gersamlega sturlaður. Þessi þáttur er í boði Macland. Stjórnendur eru Atli Stefán, Bjarni Ben og Elmar Torfa.
Ep 319Vonbrigði í streymisheimi og ný íslensk bankaþjónusta
Í þættinum er meðal annars rætt um glóðvolga niðurstöðu Samsung Galaxy Unpacked, seinkun á komu HBO Max, breytt plön hjá hinu íslenska Netflix, fyrstu viðbrögð við beta-prófunum Indó bankaþjónustunnar og rafbíla. Sem fyrr fer umræðan um víðan völl og stundum út fyrir efnið. Tæknivarpið er í boði Macland. Stjórnendur þáttarins eru Andri Valur, Elmar, Gunnlaugur Reynir og Marinó Fannar
Ep 318Ljósleiðarinn flýtir uppbyggingu og skjálftar í Android
Þau sem eiga Android síma sem er vel uppfærður geta fengið jarðskjálftatilkynningar beint í símann. Stýrikerfið fær gögn úr hröðunarmælum Android síma og vinnur úr þeim tilkynningu sem giskar á stað og Richter-stuðul. Heiðar Guðjónsson hefur verið keyptur út úr Sýn en er þetta hluti af stærri fléttu? Ljósleiðarinn flýtir fyrir uppbyggingu sinni í samstarfi við Nova. Macbook Air M2 býður afhroðs á YouTube og fær slæm viðbrögð vegna ofhitnunar og aðeins hægari geymsluplássi. En eiga viðbrögð rétt á sér? Pixel 6a fór í sölu og fær glimrandi dóma þrátt fyrir eldgamla linsu. Nothing Phone (1) fór í forsölu og fékk ekkert svo góða dóma. En hann er öðruvísi í heimi leiðinlegra síma. Talandi um aðra skemmtilega síma: það er loksins kominn smár Android sími sem er ekki með drasl innvolsi! Asus Zenfone 9. Atli er búinn að prófa Sony XM5 og Linkbuds, og er mjög hrifinn. Þessi þáttur er í boði Macland 🍏 Stjórnendur eru Atli Stefán, Elmar Torfason og Sverrir Björgvinsson
Ep 317317 Gervigreind með sál og Landspítala app
Við erum ekki dauðir úr öllum æðum og bættum við okkur alla vega einum þætti í viðbót þetta sumar. Enda er líka fullt að frétta: Landspítalinn að þróa app Myndlyklar enn þá fáranlega vinsælir Stór uppfærsla fyrir Vivaldi með pósti, dagatali og RSS lesara Encroapp "hakk" frönsku löggunar nælir í íslenska bófa Apple kaupir sýningarétt MLS (BNA fótboltadeild) Google gervigreind öðlast sál, samkvæmt dulrænum presti sem starfar hjá Google Ford innkallar bíla en er byrjað að afhenda F150 Lightning Microsoft jarðar Internet Explorer eftir 26 ár Microsoft heldur feita tölvuleikjakynningu Atli prófar Sony XM5 heyrnatólin Þessi þáttur er í boði Macland 🍏 Stjórnendur eru Atli Stefán, Elmar Torfason og Marinó Fannar Pálsson.
Ep 316316 “Ekki svört” Macbook Air og ný stýrikerfi
Apple hélt lykilræðu á WWDC tækniráðstefnunni á mánudaginn og kynnti fullt af uppfærslum fyrir stýrikerfin (en talaði ekkert um tvOS) og eitthvað af vélbúnaði. Nýr Apple örgjörvi M2, ný Macbook Air og “ný” Macbook Pro 13” og fullt af sniðugu fyrir iPadOS. Við rennum yfir það sem var kynnt mjög ítarlega ásamt Sigurði Flygenring. Þessi þáttur er í boði Macland. Macland.is selur Apple tæki og aukahluti. Stjórnendur eru Atli Stefán og Gunnlaugur Reynir
Ep 315315 WWDC orðrómar og Nova útboð
Það er óvenjumikið að frétta hér af Íslandi síðustu vikur: Nova er á leið í opið útboð, forsetinn fór út til BNA til að berjast fyrir íslensku ásamt flottu föruneyti, Sýn vill ekki eiga innviði enn vill byggja upp sæstrængjainnviði og CERT-IS varar við gömlum útrunnum lénum sem eru notuð til að hakka fólk (plís kveikið á tveggja þátta auðkenningum!). Google bakkar með að rukka Workspace fyrir þá einstaklinga sem nota sitt eigið lén til einkanota, Google Drive fær (loksins) afritunarflýtileiðir, OneNote fær yfirhalningu á næstunni, Ikea býr til Matter hub og app, lítið bassabox frá Sonos á leiðinni á viðráðanlegu verði, Microsoft styrkir sig í ARM-málum og gamalt sjónvarp slær út nettengingar heils þorps í Wales. WWDC er svo í næstu viku og við fá Sigurð Stefán Flygenring í heimsókn til að kemba í gegnum orðróma um tæki og hugbúnað frá Apple. Þessi þáttur er í boði Macland. Stjórnendur eru Atli Stefán og Andri Valur. Atli þurfti að bregða frá í lokin en Sigurður og Andri sáu um að klára orðrómana.
Ep 314314 iPod lagður til grafar og fullt af tækjum frá Google
Nýjasti þátturinn af “Er Elon Musk búinn að kaupa Twitter” heldur áfram að fjalla um hvort Elon Musk sé búinn að kaupa Twitter. Apple hættir framleiðslu iPod eftir 21 ár. Google kynnti fullt af nýjum tækjum og tækni á Google I/O og Elmar er orðinn staurblankur. Þessi þáttur er í boði Macland, Kringlunni. Stjórnendur eru Atli Stefán, Elmar Torfason og Gunnlaugur Reynir.
S8 Ep 313313 Reykjavík Haus sköpunarsetur og Sony Linkbuds
313 Reykjavík Haus sköpunarsetur og Sony Linkbuds Tæknivarpið - Reykjavik Haus sköpunarsetur og Sony Linkbuds Reykjavík Haus hefur verið samþykkt í borgarráði Reykjavíkur og mun opna sköpunarsetur í efri hæðum Hafnarhússins. Evrópusambandið er að búið að senda ákvörðun á Apple um meinta misnotkun á aðgengi þriðja aðila að NFC-hluta iPhone síma og getur sektað Apple um 10% af heildartekjum. Xbox prik er á leiðinni sem mun bjóða upp á sjónvarpsstreymiapp og leikjastreymispilun, og kemur vonandi út innan 12 mánaða. Fortnite er loksins hægt að spila, en í gegnum Xbox cloud gaming (sem er ekki í boði á Islandi). Google bjó til sveigjanlega útgáfu af Robot letrinu sínu, sem er hægt að stilla í döðlur. Wendy’s ætlar að opna aftur á Íslandi er kominn með mjög skondinn Twitter aðgang. Sennheiser Momentum Truly Wireless 3s létta og gera fyrri útgáfu ódýrari. Sony WH-1000XM5 mikið endurnýjuð heyrnatól koma líklega út 12. maí næstkomandi. Það er langt í næstu sendingu af Snap Pixy drónanum, sem virðist hafa fengið góðar viðtökur. Atli fjallar um Sony Linkbuds heyrnatólin sem eru alveg þráðlaus heyrnatól sem fara EKKI inn í eyrun. Sala á Chromebook tölvum hrynur um 60% og Apple seldi mest af tölvum (og spjaldtölvum) á síðasta ársfjórðungi. Þessi þáttur er í Macland sem selur tækin sem við elskum. Stjórnendur eru Atli Stefán og Elmar Torfason.
Ep 312312 Snap býr til dróna og Pixel snjallúr fannst á víðavangi
ESB ætlar að gera það sem er ólöglegt í raunheimum einnig ólöglegt á netinu. Ríkið býður út tvo ljósleiðaraþræði í Nato-strengnum. Elon Musk klárar að fjármagna kaup á Twitter og mun að öllum líkindum eignast fyrirtækið innan skamms. Twitter oftaldi notendur í þrjú ár, en fattaði það sjálft og leiðrétti á uppgjörsfundi. Snap býr til drónamyndavél með tveimur linsum. Apple átti frábæran fjórðung og Mac-vörulínunni gengur mjög vel. ESB vill að Apple opni aðgang að NFC eiginleikum iPhone svo aðrar greiðslumiðlanir komist að. Apple Studio Display fær uppfærslu fyrir vefmyndavélina en er hún betri? Activision Blizzard yfirtakan hefur verið samþykkt af hluthöfum. Pixel snjallúr fannst á bar og það er mjög stutt í afhjúpum. Sony WH1000x fær víst mjög stóra útlitsuppfærslu samkvæmt lekum. Oneplus Nord N20 5G fær þokkalega dóma og er fínn 5G sími. Þessi þáttur er í boði Macland, sem selur tækin sem við elskum. Stjórnendur eru Atli Stefán og Elmar Torfason.
Ep 311311 Áskrifendum Netflix fækkar í fyrsta sinn
Nýtt íslenskt bílatryggingarfélag lítur dagsins ljós: Verna. Félagið ætlar að nýta sér snjalltæki til að lækka ábyrgðir. Sjálftitlaði Technoking Teslu og stórfjárfestirinn Elon Musk er að reyna kaupa Twitter, en á hann peninga fyrir því? Steam Deck dokkan er ekki einu sinni komin út en það er búið að uppfæra hana. Playdate leikjatölvan er komin út og það rigna inn umfjallanir. Verður þetta fimmtándi vettvangurinn sem Gulli kaupir sér GTA5? Magsafe rafhlaðan fær uppfærslu og hleður nú hraðar! Homepod hátalarar hækka í verði eftir að framleiðslu var hætt. Netflix áskrifendur fækkar í sinn og það er komin ólga á streymiveitumarkaðinn. CNN+ streymiveitan lögð niður eftir einungis mánuð í loftinu. Þessi þáttur er í boði Macland. Stjórnendur eru Atli Stefán, Gunnlaugur Reynir og Sverrir Björgvinsson
Ep 310310 Hleðslukvíði burt með Buzz og Twitter íhugar edit takka
AtNorth lýsir yfir vilja til að byggja upp gagnaver rétt fyrir utan Akureyri. NFT grúppa hakkar Bjarta Framtíð á Twitter og dælir út auglýsingum. Buzz býður upp að kveða burt hleðslukvíða með leigu-rafhlöðum fyrir snjallsíma á vel völdum börum. Elon Musk kaupir stóran hlut í Twitter og hvað þýðir það? Twitter íhugar að bjóða upp á Edit takka. Það kemur út nýr Monkey Island tölvuleikur í ár, en sá síðasti kom út árið 2011. Netflix bætir við nýjum flokki eftir hugmynd Pete Davidson: short ass movies. Flokkurinn er með kvikmyndir undir 90 mínútum til að heilla yngri kynslóðir 💀 Atli fer svo aftur yfir næstu kaup, sem hafa ekki enn átt sér stað. Þessi þáttur er í boði Macland. Stjórnendur eru Atli Stefán, Elmar Torfason og Mosi.
Ep 309309 Auðkenni þjóðnýtt og lofthreinsigríma frá Dyson
Við erum með sneysafullan þátt af tæknifréttum og kaupákvörðunum Atla. Auðkenni hefur verið keypt af Ríkinu. Fyrirtæki býr til gervitónlistarfólk inn á Spotify til að græða peninga. Klapp lausnin frá Strætó er í tómu tjóni, eða hvað? Atli fjallar einnig um Studio Display sem hann skoðaði í verslun Macland Kringlunni. Þessi þáttur er í boði Macland sem selja tækin sem við elskum. Stjórnendur eru Atli Stefán, Elmar Torfason og Gunnlaugur Reynir.
S8 Ep 308308 Rafræn skilríki misnotuð og Netflix hækkar verð
Það eru fregnir af alvarlegri misnotkun rafrænna skilríkja hjá tveimur aðilum í kringum áttrætt. En þýðir það að rafræn skilríki séu hættuleg eða ónothæf? Mac Studio og Studio Display verð eru komin hjá Macland og við rennum vel yfir þau. Mun Atli kaupa sér eitt sett? Við förum einnig yfir umfjallanir á settinu hjá kollegum okkar. Netflix hækkar verð á áskriftum OG herjar á þau sem deila aðgangi án þess að kaupa sér stærri pakka. Við förum snögglega yfir það sem kom fram á MWC og eitt það áhugaverðasta þar er Thinkpad tölva með ARM örgjörva. Dieter Bohn, ein sá vinsælasti í tæknifjöllunum, lætur af störfum hjá The Verge og kveðjum við hann með trega. Overwatch 2 fer í beta-prófanir 26. apríl og fólk fær póst um að skrá sig. Þessi þáttur er í boði Macland. Stjórnendur eru Atli Stefán, Kristján Thors og Vöggur.
S8 Ep 307307 Loksins Apple skjár og M1 Ultra örgjörvi
Tæknivarpið rennir yfir það besta úr kynningu Apple sem fór fram í gær af upptöku og til þess fáum við draumaliðið í settið. Pétur Jónsson og Hörður Ágústsson mæta og segja okkur sannleikann um ný tæki frá Apple. Apple kynnti nýja liti fyrir iPhone 13 og 13 Pro, iPhone SE símann, iPad Air spjaldtölvuna, M1 Ultra örgjörvann, Mac Studio borðtölvuna og Studio Display skjáinn. Þessi þáttur er í boði Macland sem mun selja þessi tæki strax og það getur! Stjórnendur eru Atli Stefán og Gunnlaugur Reynir.
S8 Ep 306306 Krónan uppgvötar vefinn og Tesla bíll bilar í polli
Certís netöryggissveit Fjarskiptastofu sendir frá sér viðvörun vegna stríðsrekstri Rússa í Úkraínu og biður íslenskt fyrirtæki um að herða ólina. Krónan er að prufukeyra beta útgáfu af vefverslun, en fram að þessu hefur Krónan einungis boðið upp á app. Tesla Model Y keyrði í poll og dó rafhlaðan skömmu síðar. Þola Tesla bílar ekki erfiðar aðstæður hér á Íslandi? Gulli keypti sér töfratæki sem hefur umbylt heimili hans: rafmagnsskæri. Rivian rafbílasprotinn hækkar verð ógætilega og ýtir þeim að forpöntunum. Stríðið í Úkraínu hefur ekki bara áhrif á netöryggi, heldur einnig örgjörvaframleiðslu heimsins sem var nú þegar á slæmum stað. Apple sendi út boð fyrir viðburð sem á sér stað 8. mars næstkomandi og við rennum (aftur) yfir orðróma. Þessi þáttur er í boði Macland sem selja tækin sem við elskum. Stjórnendur eru Atli Stefán, Gunnlaugur Reynir og Sverrir Björgvinsson.
S8 Ep 305305 Ekkert HBO Max en stórt rafíþróttamót í apríl
HBO Max var að bæta við fimmtán Evrópulöndum en Ísland er því miður ekki eitt þeirra sem eru sorgarfréttir. Það þarf greinilega að hitna enn frekar í streymistríðinu til þess.. Riot Games ætlar að halda risastórt rafíþróttamót á árinu og verður keppt í Valorant (sem er samruni Overwatch og Counter-Strike). Windows 11 er komið með nýja verkefnastiku sem hentar betur spjaldtölvum, en enginn af okkur er kominn á Windows 11. Talið er að næsta útgáfa af örgjörvum Apple verði M2 og fari í alla vega fjóra makka á þessu ári! En hvernig örgjörvi verður M2? Nýr samfélagsmiðill leit dagsins ljós í vikunni: Truth Social sem er vægast sagt gildishlaðið heiti. Elden Ring er kominn út, lítur fáranlega vel út og fær frábæra dóma. Leikurinn kemur frá leikstjóra Dark Souls leikjaseríunnar og er í boði á langflestum stýrikerfum (nema macOS). Dragon Age 4 er víst hálfnaður samkvæmt einum framleiðanda leiksins og er á leiðinni á næsta ári. Galaxy S22 dómarnir rigna inn og fær Ultra útgáfan glimrandi dóma. Pixel 7 lekar eru byrjaðir og það er ekki von á miklum breytingum. Þessi þáttur er í boði Macland sem selja tækin sem við elskum. Stjórnendur eru Atli Stefán og Elmar Torfason.
S8 Ep 304304 TVíK kennir íslensku og Indó fær leyfi
TVíK hreppti víst fyrsta sætið í Gullegginu með spjallmenni sem kennir þér íslensku á nýjum stað á lærdómskúrvunni. Fjarskiptastofa setur fram áætlun um að hætta nota 2G og 3G senda í farsímanetum landsins. Indó fær starfsleyfi en hvað er Indó? Spotify heldur áfram að kaupa fyrirtæki tengd hlaðvörpum og Joe Rogan málið heldur áfram. Þessi þáttur er í boði Macland sem er með fullt af Konudagstilboðum 👩👩👩 Stjórnendur eru Atli Stefán, Elmar Torfason og Gunnlaugur Reynir.
S1 Ep 303303 Galaxy S22, Tab S8 og hrun hjá Meta
Sigurveri Gulleggsins þetta skiptið er app fyrir þolendur ofbeldis sem geta haldið utan um sögu þess. Appið heitir Lilja og er nú verið að sækjast eftir fjármagni til að koma því í gagnið. Óvinsæli vafrinn Microsoft Edge býður nú upp á íslenskan talgervil sem getur lesið upp texta af vefsíðum. Smáforritið heitir Guðrún (Gudrun) og er í boði núna. Icelandic Gaming Industry spáir því að störf hjá öðrum í CCP í bransanum nái loks meirihluta á næsta ári. Samsung hélt Galaxy Unpacked kynningu í vikunni og kynnti nýjar vörur: þrjá nýja S-línu síma og þrjár spjaldtölvur. Spotify er í óðaönn að fjarlægja efni sem stuðar og horfið hafa fjölmargir Joe Rogan þættir. Meta hrynur í verði vegna slæms árangurs samkvæmt uppgjöri og bendir Meta meðal annars á Apple. Þessi þáttur er í boði Macland og Elko sem selja tækin sem við elskum. Stjórnendur eru Atli Stefán og Elmar Torfason
Ep 302302 Spotify í klandri vegna Joe Rogan
Íslenskir menntasprotar vekja athygli vestanhafs, en íslensku fyrirtækin Beedle og Mussila eru komin í hóp 200 efnilegustu sprota í menntatækni í heiminum. Spotify er í klandri vegna viðtals Joe Rogan við vísindamann sem gagnrýnir mRNA bóluefni. Alda Music var selt til Universal Music, sem þýðir að margar íslenskar tónlistarperlur eru nú í eigu erlendra aðila. Intel kynnir Alder Lake örgjörva sem hefur stundum betur en M1 Max örgjörvi Apple, en með smá fyrirvara. Svo keypti Gulli sér svo síma á Bland. Þessi þáttur er í boði Macland og Elko sem selja tækin sem við elskum. Stjórnendur þáttarins í dag eru Gunnlaugur Reynir Sverrisson, Elmar Torfason og Sverrir Björgvinsson.
S8 Ep 40301 Persónuvernd og tækni + fréttir vikunnar
Gleðilegan alþjóðlegan Persónuverndardag! Í tilefni dagsins fáum við til okkar hana Vigdísi Evu Líndal frá Persónuvernd til að ræða persónuvernd í tækni. Að því loknu förum við yfir tæknifréttir vikunnar. Eru markaðshrun Netflix og Peleton vísar að stærra hruni eða gekk bara aðeins of vel? Intel er að reisa 20 milljarða dollara verksmiðjur í Ohio en til hvers? Samsung Unpacked lék eiginlega í heild sinni út og við fáum að sjá alla næstu síma Samsung áður en þeir eru kynntir. Samsung hefur aldrei gengið eins vel og sló hagnaðarmet sín. Cybertruck hefur opinberlega verið seinkað til 2023 og Áslaug systir Atla er vonsvikin. Þessi þáttur er í boði Macland og Elko sem selja tækin sem við elskum. Stjórnendur eru Atli Stefán og Elmar Freyr.
S8 Ep 39300 Microsoft kaupir Blizzard og frábær CES sýning
Þá er Tæknivarpið loksins komið í rútínu og við fáum fyrsta fréttaþáttinn. Orion Sentry er eitt fyrsta íslenska Mac appið í langan tíma og reynir að koma í veg fyrir þjófnað á tölvum. Fjarskiptastofa vinnur í því að gera háhraðanet á þjóðvegum að kröfu. Vivaldi vafrinn er nú í boði á Astro Slide 5G nördasímanum. Það var brotist inn í tölvukerfi Strætó og þau ákváðu að borga ekki lausnargjald fyrir gögnin. CS:GO úrvalsdeild RÍSÍ heitir núna Ljósleiðaradeildinn. CES sýningin var í byrjun árs og telja gárungar að þetta sé líklega sú besta í mjög langan tíma. Við förum yfir það helsta þaðan eins og 55” tölvuskjá frá Samsung, 42” OLED sem sló í gegn og Freestyle skjávarpa sem er hægt að skrúfa upp í ljós. Stærsta frétt vikunnar er svo kaup Microsoft á Activision Blizzard fyrirtækinu upp fyrir fáranlega háa upphæð. Þessi þáttur er í boði Macland og Elko. Stjórnendur eru Atli Stefán og Elmar Torfason
S8 Ep 38299 - Þáttur ársins 2021
Nú er loksins komið að því. Þáttur ársins er mættur, aðeins seinna en vanalega útaf sottlu. Þar fer næstum allur hópurinn bakvið Tæknivarpið (og Simon.is) yfir það sem var mest spennandi í nýju tækni og tækjum á árinu sem var að líða. Flokkarnir eru eftirfarandi: Græja ársins Sími ársins Kaup ársins Leikur ársins Farleikur ársins App/forrit ársins Kvikmynd ársins Sjónvarp ársins Hlaðvarp ársins Vonbrigði ársins Klúður ársins Stærsta tæknifrétt ársins Við þökkum kærlega fyrir innsend svör hlustenda og árið sem var að líða 🙏🏻
S7 Ep 15Tækniviðtal: Log4j með Guðmundi Sigmundssyni frá CERT-IS
Tæknivarpið fær til sín Guðmund Arnar Sigmundsson frá CERT-IS netöryggissveit Fjarskiptastofu. Við ræðum öryggisgallann í Log4j og áhrifin af honum. Þessi þáttur er í Elko og Macland 🙏🏼 Stjórnandi er Atli Stefán Yngvason sem er að finna á Twitter.
S7 Ep 14297 Tómir rafbílar teppa götur í Noregi og ljótar Macbook Pro tölvur
Jólin nálgast og því skelltum við í létta umræðu um jólagjafir árins. Lofsöngvar voru sungnir um nýju ljótu tölvuna hans Mosa og brátt kemur Pixel úrið sem mun gera Elmar að hræsnara. Að lokum ræddum við stærsta vandamálið í Noregi um þessar stundir þar sem rafmagnslausir rafbílar virðast vera að teppa allar götur eftir síðasta kuldakast Þessi þáttur er í boði Macland og Elko. Stjórnendur í þætti 297 eru Elmar Torfason, Gunnlaugur Reynir, Marinó Fannar Pálsson og Mosi.