
Samstöðin
710 episodes — Page 5 of 15

Ep 1194Miðvikudagur 14. janúar: Oddvitaslagur, geðraskanir, Trump, lögfræði og pottormar
Miðvikudagur 14. janúar Oddvitaslagur, geðraskanir, Trump, lögfræði og pottormar Heiða Björg Hilmisdóttir og Pétur H. Marteinsson vilja bæði leiða Samfylkinguna í komandi borgarstjórnarkosningum. Þau segja Gunnari Smára og Birni Þorláks hvers vegna, fyrir hvað þau standa og hvers vegna fólk ætti að kjósa annað frekar en hitt. Ólafur Ævarsson geðlæknir og Björn Þorláksson fjölmiðlamaður leggja spilin á borðið og ræða eigin persónulegar geðrænar áskoranir. Geðlæknirinn segir að opinská umræða um geðvandamál geti höggvið í fordóma og opnað dyr hjá þeim hluta almennings sem líður illa andlega. Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar, Þórarinn Hjartarson hlaðvarpari og Helga Þórey Önnudóttir Jónsdóttir kennari koma í Trumptímann til Gunnars Smára, ræða orð og athafnir Trump og áhrif hans á samfélagið, heiminn og hugmyndir okkar. Gísli Tryggvason lögmaður ræðir lögfræðileg álitamál, tengd fréttum líðandi stundar. Sektardómur íslenska ríkisins hjá MDE, möguleg yfirtaka Grænlands, brunar og mál meints barnaníðings verða til umfjöllunar. Björn Þorláks ræðir við Gísla. Mikilvægt er að týna aldrei niður hæfileikanum að leika sér og fíflast stundum, burtséð frá aldri. Þetta segja nokkrir karlar sem hittast reglulega í Vesturbæjarlaug með körfubolta. Þá ræða þeir í samtali við Björn Þorláks umræðumenninguna í heita pottinum og fleira. Garðar Valur Jónsson, Kári Kaaber, Bjarni Thoroddsen og Trausti Már Ingason pottormar hafa orðið.

Ep 1193Rauða borðið 13. jan - Múslimar, leikskólar, Andalúsía, tónlistarnám
Þriðjudagur 13. janúar Múslimar, leikskólar, Andalúsía, tónlistarnám Árni Þór Þórsson prestur innflytjenda ræðir við Gunnar Smára um andúð gegn innflytjendum, kristin gildi og reynslu hans sem prest innflytjenda og áður prest í Vík í Mýrdal, sem er sú sókn í landinu sem hefur hlutfallslega flesta innflytjendur. Svava Björg Mörk, dósent á Menntavísindasviði HÍ, ræðir við Sigurjón Magnús um mikinn skort á leikskólakennurum og þörf á menntuðu fólki til að vinna í mennta- og heilbrigðiskerfinu. Þórir Jónsson Hraundal lektor segir Gunnar Smára frá Al Andalus, múslimsku ríki á Íberíuskaganum, menningu þess og áhrif. Freyja Gunnlaugsdóttir, skólameistari Menntaskóla í tónlist, ræðir við Björn Þorláks um tímamót fram undan, öll starfsemi skólans færist í Skipholtið á árinu í stað þess að vera margskipt. Framlög einstaklinga til uppbyggingar tónlistarstarfs vega þungt.

Ep 1192Rauða borðið 12. jan - Fjölmiðlar, Svíþjóð, drykkja, klassík og skólamál
Mánudagur 12. janúar Fjölmiðlar, Svíþjóð, drykkja, klassík og skólamál Logi Einarsson ráðherra ræðir fjölmiðla og fjölmiðlastyrki. Hvernig bregst hann við ásökunum um að styrkjafyrirkomulagið þjóni einkum auðugum eigendum fjölmiðla en litlir miðlar í almannaeigu eins og Samstöðin séu skildir eftir. Gunnar Smári Egilsson og Björn Þorláksson ræða við ráðherrann. Steingrímur Jónsson sveitarstjórnarmaður Vinstri flokksins í Lundi í Svíþjóð ræðir við Gunnar Smára um sænsk stjórnmál en kosið verður þar í haust til þings, lands- og sveitarstjórna. Valgerður Rúnarsdóttir yfirlæknir SÁÁ ræðir meðferðarúrræði fyrir börn með fíknisjúkdóma, aðgengi að áfengi og átak fram undan í samtali við Björn Þorláks. Geirþrúður Guðmundsdóttir selló og Rannveig Marta Sarc fiðla koma í heimsókn að Rauða borðinu og ræða við Gunnar Smára, Sól Björnsdóttur og Sóleyju Lóu Smáradóttur um það sem þær ætla að spila á tónleikum Kammermúsíkklúbbsins á sunnudaginn. Davíð Ólafsson sagnfræðingur ræðir við Gunnar Smára um sögu Myndlistar- og handíðaskólans sem hann ritaði ásamt Arndísi S. Árnadóttur.

Ep 1191Synir Egils 11. jan - Oddvitar, hótanir, Evrópa, Grænland og Trump
Sunnudagurinn 11. janúar Synir Egils: Oddvitar, hótanir, Evrópa, Grænland og Trump Bræðurnir Sigurjón Magnús og Gunnar Smári Egilssynir taka á móti gestum og ræða við þá um helstu fréttir og stöðuna í stjórnmálum. Að þessu sinni koma þau Viðar Halldórsson prófessor í félagsfræði, Vigdís Häsler lögfræðingur og Þóra Arnórsdóttir forstöðumaður Samskipta og upplýsingamiðlunar hjá Landsvirkjun og ræðir fréttir vikunnar og ástand mála í samfélagi og pólitík. Síðan ræðum við heimsmálin á tímum Donald Trump, hvort heimsmynd sé að líða undir lok og hvernig sú verður sem kemur í staðinn. Sóley Kaldal áhættuöryggisverkfræðingur, Kristinn Hrafnsson blaðamaður og ritstjóri Wikileaks og Dagbjört Hákonardóttir þingkona Samfylkingarinnar og fulltrúi í utanríkismálanefnd ræða breyttan heim. Í lokin fara þeir bræður yfir pólitíkina með sínu nefi.

Ep 1189Rauða borðið - Helgi-spjall: Arnar Gunnlaugsson

Ep 1190Föstudagur 9. janúar: Vikuskammtur: Vika 2
Föstudagur 9. janúar Vikuskammtur: Vika 2 Í Vikuskammti við Rauða borðið sitja í dag þau Arna Magnea Danks leikkona, Atli Bollason myndlistarmaður, Ingunn Fjóla Brynjólfsdóttir efnishönnuður og Margrét Helga Erlingsdóttir fréttakona og ræða fréttir vikunnar sem einkenndust af landvinningum og mannránum, ráðherrakapal og oddvitaslag, fínum veislum, verðbólgu og okri.

Ep 1188Rauða borðið 8. jan - Reynsluboltar, vonda ESB, Tourette og sönglög
Fimmtudagur 8. janúar Reynsluboltar, vonda ESB, Tourette og sönglög Oddný Harðardóttir fyrrum þingmaður og ráðherra, Halldór Guðmundsson menningarfrömuður og Steingerður Steinarsdóttir blaðamaður taka púlsinn á fréttum líðandi stundar og tíðaranda. Alþjóðamálin, ESB, staða íslenskunnar, bókajólin að baki og prófkjör verða til umræðu. Björn Þorláks stýrir umræðunni. Ögmundur Jónasson fyrrverandi þingmaður, ráðherra og formaður BRSB segir Gunnar Smára hvers vegna hann vill ekki að Ísland gangi í Evrópusambandið. Elva Dögg Hafberg Gunnarsdóttir, uppistandari, segir Ragnheiði Davíðsdóttur frá lífinu með Tourette og hvernig hún sér og túlkar heiminn í gegnum húmor. Þorvaldur Gylfason tónskáld og Hrönn Þráinsdóttir píanóleikari ræða tónlistina og tónleika fram undan í Hörpu, sem verða kvikmyndaðir í bak og fyrir. Vængjasláttur fugla kemur við sögu. Björn Þorláks ræðir við þau.

Ep 1187Sjávarútvegsspjallið 8. jan. - Björn Ólafsson og Jón Kristjánsson
Sjávarútvegsspjallið 8. jan. Grétar Mar Jónsson ræðir við Björn Ólafsson og Jón Kristjánsson.

Ep 1186Rauða borðið 7. jan - Trump, fasteignir, innflytjendur og vandræðaskáld
Miðvikudagur 7. janúar Trump, fasteignir, innflytjendur og vandræðaskáld Sveinn Máni Jóhannesson doktor í sagnfræði, Friðjón R. Friðjónsson borgarfulltrúi, Guðmundur Hálfdanarson prófessor í sagnfræði koma í Trumptímann og ræða við Gunnar Smára um Donald Trump og áhrif hans á heiminn og hugmyndir okkar. Hækkun fasteignaverðs hefur verið lygileg síðustu ár en árið í fyrra var þó undantekning. Árið 2026 gæti verð lækkað. Páll Pálsson ræðir við Björn Þorláks um stöðuna og horfurnar og hvernig fasteignakaup hafa breyst undanfarið. Jasmina Vajzovic ráðgjafi ræðir aukna útlendingaandúð og fyrirhugaðar breytingar sem henni eru ekki að skapi svo sem brottfararbúðir svokallaðar. Björn Þorláks ræðir við hana. Uppgjör vandræðaskáldanna á árinu 2025 hefur notið gríðarlegra vinsælda. Vilhjálmur Bragason húmoristi frá Akureyri ræðir við Björn Þorláks um kímnina, listina og lífið.

Ep 1185Rauða borðið 6. jan - Ógnin af Trump, sveitarstjórnarpólitík, skuggar í nýjum húsum og vistarbönd
Þriðjudagur 6. janúar Ógnin af Trump, sveitarstjórnarpólitík, skuggar í nýjum húsum og vistarbönd Baldur Þórhallsson prófessor ræðir stöðu Íslands eftir aðgerðir Trumstjórnarinnar í Venesúela við Gunnar Smára. Hvað merkir það fyrir Ísland að vera á skilgreindu áhrifasvæði Bandaríkjanna. Sara Björg Sigurðardóttir, Samfylkingunni og Vilhjálmur Árnason, Sjálfstæðisflokki, takast á um stjórnmál í upptakti sveitarstjórnarkosninga í maí. Björn Þorláks stýrir umræðunni. Ásta Logadóttir, verkfræðingur og lýsingasérfræðingur, segir að hér ríki stefnuleysi hvað varðar byggingu húsa, sem mörg hver eru þannig úr garði gerð að þar njóti fólk lítillar birtu, sem er fólki óhollt. Sigurjón Magnús ræðir við Ástu. Vilhelm Vilhelmsson segir Gunnar Smára frá vistarböndunum, hvernig líf það var fyrir vinnuhjúin, frá réttindabaráttu þeirra og stöðu.

Ep 1184Rauða borðið 5. jan - Enginn fréttatími, Venesúela, maður ársins, Íran og Kína
Mánudagur 5. janúar Enginn fréttatími, Venesúela, maður ársins, Íran og Kína Við byrjum á að ræða aðgerðir menntamálaráðherra sem hafa kippt fótunum undan fréttatíma Samstöðvarinnar. Helen Ólafsdóttir öryggissérfræðingur fer yfir aðgerðir Bandaríkjanna í Venesúela í samtali við Gunnar Smára, hverjar verða afleiðingarnar fyrir fólk í Venesúela. Eða á Grænlandi og okkur hér upp á Íslandi? Guðmundur Fylkisson er ekki bara maður ársins vegna lögreglustarfa og linnulausar leitar hans að týndum börnum. Hann er líka manneskja af holdi og blóði. Í samtali við Björn Þorláks ræðir Guðmundur hvað knýr hann áfram, úrræði og úrræðaleysi en haldið er fram að andvaraleysi gegn bágu andlegu ástandi margra íslenskra barna sé þjóðarskömm. Enn á ný eru Íranir komnir út á götu til að mótmæla stjórnvöldum. Gunnar Smári ræðir við Kjartan Orri Þórsson mið-austurlandafræðing um ástandi, forsögu þess og um hvort sú saga geti endað vel. Brynhildur Magnúsdóttir jarðfræðingur ættleiddi son frá Kína og vildi læra kínversku. Það ná vatt upp á sig og Brynhildur fór í skiptinám til Kína, bjó þar í eitt ár. Gunnar Smári ræðir við hana um daglegt líf í Kína.

Ep 1183Synir Egils 4. jan: Árásir, kjarakrísa, pólitík og menning
Synir Egils 4. jan: Árásir, kjarakrísa, pólitík og menning Bræðurnir Sigurjón Magnús og Gunnar Smári Egilssynir taka á móti gestum og ræða við þá um helstu fréttir og stöðuna í stjórnmálum. Að þessu sinni koma þau Ásgeir Brynjar Torfason ritstjóri Vísbendingar, Sonja Ýr Þorbergsdóttir formaður BSRB og Guðmundur Hálfdanarson prófessor í sagnfræði og ræða stríð og friður í upphafi árs, lífskjör, efnahagsmál og pólitíkina hér heima og erlendis. Síðan ræðum við íslenska menningu á viðsjárverðum tímum. Gréta Kristín Ómarsdóttir leikstjóri, Auður Jónsdóttir rithöfundur, Kristín Gunnlaugsdóttir málari og Þorleifur Örn Arnarsson leikstjóri ræða áhrif tímanna á menninguna og áhrif menningarinnar á tímann. Í lokin fara þeir bræður yfir pólitíkina með sínu nefi.

Ep 1182Rauða borðið 18. des - ESB eða ekki, Reynsluboltar, list, trú, Sjálfstæðisflokkurinn og íslenskan
Fimmtudagur 18. desember ESB eða ekki, Reynsluboltar, list, trú, Sjálfstæðisflokkurinn og íslenskan Magnús Skjöld fyrir hönd Evrópuhreyfingarinnar sem vill inngöngu Íslands í ESB og Haraldur Ólafsson Heimssýn sem berst gegn inngöngu í ESB ræða kosti og galla aðildar Íslendinga að ESB. Björn Þorláks stýrir rökræðunni.Kristín Helga Gunnarsdóttir rithöfundur og Björn Leví Gunnarsson fyrrum þingmaður eru reynsluboltar vikunnar og ræða fréttir vikunnar, þjóðmál, menningu, árið 2025 og jólin. Píratar verða ekki til eftir nokkur ár, segir Björn Leví. Björn Þorláks ræðir við þau. Byltingunni hefur verið frestað vegna skorts á ríkisfjármagni. Listamaðurinn Almar Steinn Atlason opnar sýningu í Gluggagallaríinu Stétt. Gunnar Smári ræðir við hann.Mikil umræða hefur verið á árinu 2025 um hvort stjórnmálahreyfingar hafa gengið til góðs. Vilhjálmur Bjarnason, fyrrum þingmaður, ste ig fram fyrir nokkrum mánuðum og ræddi pólitísk hrossakaup og menningarlausan Sjálfstæðisflokk nú orðið í samtali við Björn Þorláks. Við endurflytjun það. Muhammed Emin Kizilkaya, doktorsnemi í félagsfræði við Háskóla Íslands og meðlimur í Félagi Horizon, sr. Matthildur Bjarnadóttir, prestur í Vídalínskirkju og MA í trúarbragðafræði og sr. Sigurvin Lárus Jónsson prestur í Vídalínskirkju og doktor í nýjatestamentisfræðum ræða við Gunnar Smára um kristni og Islam á Íslandi, fordóma milli trúarbragða og hvernig skapa megi frið og sátt í samfélaginu. Viðtalið er endurflutt. Á árinu sem er að líða höfum við sinnt íslenskri tungu í nokkrum mæli. Þórarinn Eldjárn þjóðskáld gefur nokkur hollráð um það hvernig við komum í veg fyrir að missa íslenskuna úr huga og hjarta. Björn Þorláks ræddi við hann, við endurflytjum viðtalið.

Ep 1181Rauða borðið 17. des - Samfylkingin og innflytjendur, skáldkonur, Ástu Lóu-málið og íslenskan
Miðvikudagur 17. desember Samfylkingin og innflytjendur, skáldkonur, Ástu Lóu-málið og íslenskan Við byrjum Rauða borði á spjalli þeirra bræðra, Sigurjóns Magnúsar og Gunnars Smára. Síðan Sabine Leskopf borgarfulltrúi hættir senn störfum en hún er ekki sátt við hvernig flokkur hennar, Samfylkingin, heldur á spilunum í útlendingamálum. Björn Þorláks ræðir við hana. Skáldkonurnar Natasha S., Birgitta Björg Guðmarsdóttir, Alda Björk Valdimarsdóttir og Maó Alheimsdóttir koma að Rauða borðinu á aðventunni og ræða ljóðin og jólin. Lára Magnúsardóttir sagnfræðingur ræddi við Oddnýju Eir Ævarsdóttur á árinu sem er að líða um viðkvæmt efni sem þótti pólitískt hneyksli. Hið svokallaða Ástu Lóu mál sem mörgum finnst í dag að hafi jafnveli verið stormur í vatnsglasi en um það eru þó skiptar skoðanir. Við endum svo á tveimur samtölum um íslensku og innflytjendur frá því fyrir þremur árum: Gunnar Smári ræddi um íslenskuna frá sjónarhóli innflytjenda með Linu Hallberg og Victoriu Bakshina og síðan við Agnieszku Sokolowska sem segir okkur hvernig íslenskan getur verið eins og svipa á innflytjendum.

Ep 1179Rauða borðið 16. des - Veður, hægribylgja, loftslag, áföll og cóvid
Þriðjudagur 16. desember Veður, hægribylgja, loftslag, áföll og cóvid Einar Sveinbjörnsson veðurfræðingur rekur hamfaraveðrið í snjóflóðunum í Súðavík og hvort veðurfræðingar hefðu getað gert betur. Þá spáir Einar ítarlega um jólaveður landsmanna, ekki síst með liti til færðar um vegi landsins og fer yfir árið 2025 veðurfarslega, innanlands sem utan. Björn Þorláks ræðir við hann. Eiríkur Bergmann prófessor ræðir við Gunnar Smára um sýn þjóðaröryggisstefnu Bandaríkjanna á Evrópu, von Trump-stjórnarinnar um uppgang þjóðernisflokka og um góða siglingu Miðflokksins í könnunum. Ungir umhverfissinnar gera upp árið 2025. Þær Þorgerður María Þorbjarnardóttir, Sigrún Perla Gísladóttir og Ragnhildur Katla Jónsdóttir lýsa bakslagi í málaflokknum en ræða einnig nýja möguleika til bjargar heiminum. Björn Þorláks ræðir við þær. Vigfús Bjarni Albertsson fyrrum sjúkrahúsprestur ræðir við Gunnar Smára um lífið, dauðann og lífsglímuna. „Þú verður reiður, þú grenjar út af engu. Þú ert annar Gunni í dag en í gær.” 24. febrúar síðastliðinn ræddi Björn Þorláks við Gunnar Svanbergsson sjúkraþjálfara sem lenti í langtímacovid og allt breyttist. Boðskapur viðtalsins lifir enn og við endurflytjum það nú á aðventu.

Ep 1178Rauða borðið 15. des - Týnd börn, stjórnmál, hávaði, sjálfsvíg og tónlist
Mánudagur 15. desember Týnd börn, stjórnmál, hávaði, sjálfsvíg og tónlist Jón K. Jacobsen, faðir drengsins sem dó á Stuðlum, ræðir við Björn Þorláks um börnin sem kerfið virðist hunsa. Tilefni viðtalsins er sláandi viðtal við mæðgin í síðustu viku hér á Samstöðinni um fíkn, geð, úrræði og úrræðaleysi. Hann ræðir dapurleg örlög margra barna og ungmenna sem eru vistuð á Stuðlum og meðferðarúrræðið Yes We Can. Ólafur Þ. Harðarson stjórnmálafræðingur ræðir stöðu stjórnar og minnihluta sem og framboð Sönnu og borgarmálin. Málþóf ber einnig á góma. Björn Þorláks ræðir við Ólaf. Vinnuaðstæður í leikskólum eru mjög mismunandi og hljóðvist barna eitt þeirra atriða sem virðast í misgóðu lagi. Fyrir skemmstu voru veitt íslensku hljóðvistarverðlaunin í flokki leikskóla. Leikskólinn Aldan á Hvolsvelli vann fyrstu verðlaun. Magnús Skúlason formaður dómnefndar og Kristín Ómarsdóttir formaður Íslenska hljóðvistarfélagsins, sem einnig var hljóðhönnuður Öldunnar ræða við Björn Þorláksson um hljóðið, fegurðina og fleira í skipulagsmálum. Endurflutningur tveggja viðtala verður í þættinum. Gunnar Smári ræðir við fjóra karla af mismunandi kynslóðum, Anton Ísak Óskarsson, Ármann Örn Bjarnason, Baldvin Frederiksen og Bjarna Karlsson, um sjálfsvíg og áhrif þeirra á aðstandendur. Hvernig glíma karlar við sorg og dauða? Og við spyrjum: Hvað var í gangi í Þingeyjarsýslunni til forna þegar hópur karla tók það upp hjá sér nánast upp úr engu að spila á fiðlu líkt og enginn væri morgundagurinn? Herdís Anna Jónsdóttir, víóluleikari í Sinfóníuhljómsveit Íslands ræðir það dularfulla mál.

Ep 1177Synir Egils 14. des - Samgöngur, fæðingarorlof, EES, Trump, Evrópa og þingið
Sunnudagurinn 14. desember Synir Egils: Samgöngur, fæðingarorlof, EES, Trump, Evrópa og þingið Bræðurnir Sigurjón Magnús og Gunnar Smári Egilssynir taka á móti gestum og ræða við þá um helstu fréttir og stöðuna í stjórnmálum. Að þessu sinni koma þau Andrea Sigurðardóttir blaðamaður á Mogganum, Benedikt Erlingsson leikstjóri og Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar og ræða fréttir vikunnar og ástand samfélagsins. Við förum síðan yfir stöðuna á Alþingi á aðventunni. Ingibjörg Isaksen þingflokksformaður Framsóknar, Ólafur Adolfsson þingflokksformaður Sjálfstæðisflokksins og Guðmundur Ari Sigurjónsson þingflokksformaður Samfylkingar ræða góðu málin sem verða samþykkt, málin sem ætti ekki að samþykkja og mikilvægu málin sem ekki verða afgreidd. Í lokin fara þeir bræður yfir pólitíkina með sínu nefi í síðasta þættinum fyrir hátíðirnar.

Ep 1176Föstudagur 12. desember - Vikuskammtur: Vika 50
Föstudagur 12. desember Vikuskammtur: Vika 50 Í Vikuskammti við Rauða borðið sitja í dag þau Hrafnhildur Gunnarsdóttir leikstjóri, Teitur Atlason starfsmaður Húsnæðis og mannvirkjastofnunar, Vera Wonder Sölvadóttir leikstjóri og Þórdís Gísladóttir rithöfundur og ræða fréttir vikunnar sem einkenndust af stórkarlalegum yfirlýsingum, nýjum og gömlum hneykslismálum, dagsskrárlegum ákvörðunum, afsökunarbeiðnum og öðrum óvæntum uppákomum.

Ep 1175FRÉTTATÍMINN 11. desember
Fimmtudagur 11. desember FRÉTTATÍMINN Gunnar Smári, Sigurjón Magnús og Laufey Líndal segja fréttir Samstöðvarinnar með sínu lagi. Hvert er samhengi fréttanna?

Ep 1174Rauða borðið 11. des - Börn í vanda, reynsluboltar, lögfræði, Evrópa og áfengi um jól
Fimmtudagur 11. desember Börn í vanda, reynsluboltar, lögfræði, Evrópa og áfengi um jól Grímur Atlason hjá Geðvernd bregst við máli drengsins Hjartar og móður hans, Hörpu Henrýsdóttur, sem Samstöðin fjallaði um í gær. Grímur segir í samtali við Björn Þorláks mikið vanta upp á að börn sem lendi í geðheilbrigðisvanda séu varin. Oddný Harðardóttir, fyrrum fjármálaráðherra og þingmaður, Lárus Guðmundsson varaþingmaður og Guðmundur Andri Thorsson ræða fréttir og tíðarandi líðandi stundar. Pólitíkin, skólameistaramálið, samgöngur, Júróvisjón, staða íslenskunnar og jólin koma við sögu. Björn Þorláks ræðir við þau. Gísli Tryggvason lögmaður ræðir lagaleg álitamál sem eru ofarlega á baugi. Dómurinn gegn knattspyrnumanninum Albert Guðmundssyni, vaxtamál, 5 ára reglan og fleira verður til umræðu. Þátturinn er í umsjá Björns Þorlákssonar. Thomas Möller stjórnarmaður í Evrópuhreyfingunni ræðir við Gunnar Smára um afstöðu Trump-stjórnarinnar til Evrópu: Yfirvofandi siðmenningarlegri útrýmingu álfunnar, veika leiðtoga, ranga stefnu gagnvart Rússlandi, veikan hernaðarmátt og hnignandi efnahag. Mörg dæmi erum að helgi jólanna sé spillt vegna áfengisneyslu eða annarra vímugjafa. Árni Guðmundsson forvarnarfulltrúi ræðir vandann og reynir að útskýra hvort ráðuneytið eða Morgunblaðið hafi rétt fyrir sér í harðri rimmu um hvort unglingadrykkja sé að aukast eða ekki. Björn Þorláks ræðir við hann.

Ep 1173Miðvikudagur 10. desember - FRÉTTATÍMINN
Miðvikudagur 10. desember FRÉTTATÍMINN Gunnar Smári, Sigurjón Magnús og Páll Ásgeir segja fréttir Samstöðvarinnar með sínu lagi. Hvert er samhengi fréttanna?

Ep 1172Miðvikudagur 10. desember - Húsnæðislán, fíkn og sjálfskaði, þjóðaröryggi og ungt fólk í pólitík
Miðvikudagur 10. desember Húsnæðislán, fíkn og sjálfskaði, þjóðaröryggi og ungt fólk í pólitík Breki Karlsson formaður Neytendasamtakanna ræðir við Gunnar Smára um málið sem samtökin töpuðu fyrir Hæstarétti i dag, önnur mál sem enn eru útistandandi og hvaða afleiðingar þessi mál hafa fyrir hinn ómögulega húsnæðislánamarkað sem Íslendingar búa við. Harpa Henrysdóttir, móðir í Reykjavík, og Hjörtur, 17 ára gamall sonur hennar, segja Birni Þorláks áhrifamikla sögu af baráttu sonarins við vanlíðan, fíkn og sjálfskaða. Hjörtur var aðeins 13 ára gamall þegar hann leitaði sér hjálpar í Hollandi. Líf hans stóð þá tæpt en engin leið var að komast að í geðmeðferð innanlands. Hann er fyrsta barnið sem fær greitt frá Sjúkratryggingum fyrir meðferð við geðsjúkdómi utan landsteinanna. Helen Ólafsdóttir öryggissérfræðingur ræðir við Gunnar Smára um hina undarlegu þjóðaröryggisstefnu Bandaríkjanna þar sem blandað er saman raunverulegri stefnumörkun, upphafningu Trump forseta og blammeringar gagnvart Evrópu og öðrum heimshlutum. Forprófkjör ungs jafnaðarfólks fer fram í fyrsta skipti í sögu Samfylkingarinnar. Hlutur ungra borgarfulltrúa hefur verið lítill sem enginn áratugum saman. Þau Soffía Svanhvít Árnadóttir varaforseti og Jóhannes Óli Sveinsson, kallaður Jóli, forseti ungs jafnaðarfólks, ræða mikilvægi þess að yngra fólk fái ítök í borgarstjórn Reykjavíkur í samtali við Björn Þorláks.

Ep 1171FRÉTTATÍMINN 9. desember
Þriðjudagur 9. desember FRÉTTATÍMINN Gunnar Smári og Björn Þorláks segja fréttir Samstöðvarinnar með sínu lagi. Hvert er samhengi fréttanna?

Ep 1170Rauða borðið 9. des - Jarðgöng, ofbeldi og útlendingaandúð, þjóðaröryggi og þjóðskald
Þriðjudagur 9. desember Jarðgöng, ofbeldi og útlendingaandúð, þjóðaröryggi og þjóðskald Steingrímur J. Sigfússon, fyrrum formaður VG og fjármálaráðherra, gagnrýnir vissa þætti í Samgönguáætlun ríkisstjórnarinnar. Þá segir hann fleiri mál orka tvímælis, sem stuðli að auknu ójafnræði meðal borgaranna, hinum efnaminni í óhag. Björn Þorláks ræðir við Steingrím. Framkvæmdastýra Kvennaathvarfsins, Linda Dröfn Gunnarsdóttir, ræðir hvort aukin útlendingaandúð hér á landi sem víða í veröldinni, kunni að hafa áhrif á starfsemi Kvennaathvarfsins. Björn Þorláks ræðir við Lindu. Valur Ingimundarson prófessor ræðir um öryggisstefnu Bandaríkjanna við Gunnar Smára, hvað í henni eru merki um breytta stefnu og hvað er ætlað að skýra pólitík dagsins, hver er staða Evrópu eftir að Bandaríkin draga sig að einhverju leyti til baka og hvort þess sé að vænta að Bandarísk stjórnvöld muni skipta sér í auknu mæli að pólitík innan Evrópulandanna. Einar Már Guðmundsson rithöfundur hefur skrifað bók sem ögrar hugmyndum um skáldskapinn. Hann veltir því fyrir sér hvernig skáld verður til í samtali við Björn Þorláks.

Ep 1169FRÉTTATÍMINN 8. desember
Mánudagur 8. desember FRÉTTATÍMINN Gunnar Smári og Sigurjón Magnús segja fréttir Samstöðvarinnar með sínu lagi. Hvert er samhengi fréttanna?

Ep 1168Rauða borðið 8. des - Galdrar, íslenska, fréttir og þjóðaröryggisstefna
Mánudagur 8. desember Galdrar, íslenska, fréttir og þjóðaröryggisstefna Ólína Kjerúlf Þorvarðardóttir, prófessor og deildarforseti á Bifröst, skrifaði doktorsritgerð sína um galdrafárið á Íslandi. Nú sendir hún frá sér skáldsögu byggða á takmörkuðum heimildum um líf fólks sem sent var á bálið. Hún segir Gunnari Smára frá Glæður galdrabáls. Ólafur G. Skúlason, framkvæmdastjóri hjúkrunar á Landspítala, ræðir við Gunnar Smára um kröfu Landsspítalans til starfsmanna um íslenskukunnáttu, en yfirstjórn spítalans hefur ákveðið að enginn starfsmaður verði ráðinn nema viðkomandi hafi tök á íslensku. Ingvi Hrafn Jónsson, fyrrum fréttastjóri Ríkissjónvarpsins og Stöðvar 2, ræðir við Gunnar Smára um kvöldfréttir sjónvarpsstöðvanna í tilefni af samdrætti og mögulegum slitum á fréttum Sýnar. Hilmar Þór Hilmarsson prófessor ræðir við Gunnar Smára um þjóðaröryggisstefnu Bandaríkjanna, sem setur punt aftan við það alþjóðakerfi sem Bandaríkin byggðu upp eftir seinna stríð. Hverjar verða afleiðingarnar fyrir Evrópu og Ísland? Við endurflytjum síðan samtal um sögulega þjóðaröryggisstefnu Bandaríkjanna við þá Albert Jónsson fyrrum sendiherra og ráðgjafi forsætisráðherra í utanríkismálum og Guðlaug Þór Þórðarson fyrrum utanríkisráðherra.

Ep 1167Synir Egils 7. des - Pólitískt hneyksli, jarðgöng, risa og fall flokka, fjölmiðlar og öryggisstefna
Sunnudagurinn 7. desember Synir Egils: Pólitískt hneyksli, jarðgöng, risa og fall flokka, fjölmiðlar og öryggisstefna Bræðurnir Sigurjón Magnús og Gunnar Smári Egilssynir taka á móti gestum og ræða við þá um helstu fréttir og stöðuna í stjórnmálum. Að þessu sinni koma þær Halla Hrund Logadóttir þingkona Framsóknar, Eyrún Magnúsdóttir stofnandi Gímaldsins og Dóra Björt Guðjónsdóttir borgarfulltrúi Pírata og ræða fréttir vikunnar og pólitíkina; skólastjóramál, samgönguáætlun, fjárlög, stöðu flokka í könnunum til þings og borgar, veika fjölmiðlar og veikan húsnæðismarkaður. Við ræðum síðan sögulega öryggisstefnu Bandaríkjanna sem Trumpstjórnin birti við þá Albert Jónsson fyrrum sendiherra og ráðgjafi forsætisráðherra í utanríkismálum og Guðlaug Þór Þórðarson fyrrum utanríkisráðherra.

Ep 1165Rauða borðið - Helgi-spjall: Ása Helga
Laugardagur 6. desember Helgi-spjall: Ása Helga Ása Helga Proppé Ragnarsdóttir er gestur Sigurjóns Magnúsar í Helgispjalli Samstöðvarinnar að þessu sinni. Ása er menntaður leikari og kennari. Hún er enn starfandi við Háskóla Íslands. Ása var í hópnum sem stofnaði leiklistarskólann SÁL. Í þrjú ár stjórnaði Ása Stundinni okkar í Ríkissjónvarpinu. Síðan beindist áhugi hennar að kennslu sem hún menntaði sig til. Afkomendur hennar eru listrænir. Ýmist í leiklist og hljóðfæraleik. Ása er glaðlynd og skemmtileg kona.

Ep 1166Rauða borðið - Vikuskammtur: Vika 49
Föstudagur 5. desember Vikuskammtur: Vika 49 Í Vikuskammti við Rauða borðið sitja í dag þau Freyja Steingrímsdóttir framkvæmdastjóri Blaðamannafélags Íslands, Bragi Páll Sigurðsson rithöfundur, Tómas Þór Þórðarson varaþingmaður Sjálfstæðisflokksins og Jódís Skúladóttir, fyrrverandi þingkona Vinstri grænna og ræða fréttir vikunnar sem einkenndust af uppþotum, horfnum jarðgöngum, blóðfórnum í stríði, gömlum og nýjum hneykslismálum, ólíkri gæfu stjórnmálaflokka og mörgu öðru.

Ep 1164FRÉTTATÍMINN 4. desember
Miðvikudagur 3. desember FRÉTTATÍMINN Gunnar Smári, Björn Þorláks og Páll Ásgeir Ásgeirsson segja fréttir Samstöðvarinnar með sínu lagi. Hvert er samhengi fréttanna?

Ep 1164Rauða borðið 4. des - Pawel, engin göng, Rreynsluboltar, heilaskaði, fæðingarorlof og íslenskan
Fimmtudagur 4. desember Pawel, engin göng, Rreynsluboltar, heilaskaði, fæðingarorlof og íslenskan Pawel Bartoszek formaður utanríkismálanefndar ræðir við Gunnar Smára um öryggismál Íslands og Evrópu, framtíð Nató og aukin útgjöld Íslands vegna stríðsins í Úkraínu. Eyþór Stefánsson er í hópi íbúa fyrir austan sem furða sig á forgangsröðun stjórnvalda er kemur að jarðgangagerð. Hann ræðir í tilfinningaríku samtali við Björn Þorláks hug Seyðfirðinga. Blaðamennirnir Helga Arnardóttir, Ágúst Borgþór Sverrisson og Steingerður Steinarsdóttir ræða mál skólastjóra Borgarholtsskóla, samgönguáætlun, Úkraínu, offitu og fleiri fréttamál. Þátturinn er í umsjá Björns Þorláks. Þórir Steingrímsson, formaður Heilaheillar og Valgerður Sverrisdóttir, fyrrum ráðherra, ræða við Ragnheiði Davíðsdóttur um reynslu sína af heilaskaða, fyrstu einkenni og forvarnir. Hver er saga fæðingarorlofs á Íslandi og hvernig hefur það þróast í samhengi við önnur lönd? Laufey Líndal fær tvo fræðimenn úr Félagsráðgjafadeild Háskóla Íslands, þær Guðnýju Björk Eydal, prófessor, og Ásdísi Arnalds, lektor, til að fara yfir sögu fæðingarorlofsins og þær þjóðfélagsbreytingar sem það hefur haft í för með sér. Listaskáldið góða, Þórarinn Eldjárn, ræðir í samtali við Björn Þorláks hvort við töpum okkur sjálfum ef við missum íslenskuna út úr huga og höndum.

Ep 1163FRÉTTATÍMINN 3. desember
Miðvikudagur 3. desember FRÉTTATÍMINN Gunnar Smári, Björn Þorláks og Páll Ásgeir Ásgeirsson segja fréttir Samstöðvarinnar með sínu lagi. Hvert er samhengi fréttanna?

Ep 1162Rauða borðið 3. des - Trump, oflækningar, íslenskan, fátækt og Fríða
Miðvikudagur 3. desember Trump, oflækningar, íslenskan, fátækt og Fríða Er Trump orðinn rumur, þreyttur og gamall? Við ræðum þetta meðal annars í Trumptíma dagsins. Sveinn Máni Jóhannesson doktor í sagnfræði, Frosti Logason ritstjóri Nútímans og Eva H. Önnudóttir prófessor í stjórnmálafræði ræða við Gunnar Smára um Trump og áhrif hans á heiminn. Ólafur Þ. Ævarsson geðlæknir ræðir með hispurslausum hætti stöðu geðheilbrigðis, lækningar, oflækningar, lyfjanotkun, fíkn og fordóma við Björn Þorláks. Ólína Kjerúlf Þorvarardóttir, prófessor og deildarforseti á Bifröst, á sæti í íslenskri málnefnd, er hagyrðingur og verndarsinni í íslensku. Lina Hallberg er tannlæknir, ættuð frá Svíþjóð, alinn upp í Sviss, fluttist til Íslands er áhugamanneskja um íslenskukennslu fyrir útlendinga. Þær tvær ræða hrörnun íslenskunnar við Gunnar Smára. Laufey Líndal ræðir við þrjú af þeim sem voru með erindi á málþingi um fátækt: Af hverju leggur þú ekki bara fyrir? Jóhanna Freyja Ásgeirsdóttir, félagsráðgjafi hjá LSH og Halldóri S. Guðmundssyni og Guðnýju Björk Eydal prófessorar í félagsráðgjöf við HÍ.

Ep 1161Rauða borðið 2. des - Ríkið styrkir Viðskiptaráð, fjölmiðlar, Úkraína og rafmagnsþörf
Þriðjudagur 2. desember Ríkið styrkir Viðskiptaráð, fjölmiðlar, Úkraína og rafmagnsþörf Kristján Þórður Snæbjarnarson þingmaður Samfylkingarinnar ræðir við Sigurjón Magnús um framlög ríkisins til áróðursmaskína fyrirtækja- og fjármagnseigenda. Jón Trausti Reynisson blaðamaður á Heimildinni og Ólafur Arnarson, blaðamaður á DV ræða ástandið í fjölmiðlaheiminum og blaðamennskuna í kjölfar skertrar fréttaþjónustu. Björn Þorláks spyr þá hvort þeir eigi von á róttækri innspýtingu fyrir blaðamennskuna í vikunni þegar Logi Einarsson ráðherra sýnir á spilin. Hilmar Þór Hilmarsson fer yfir stöðuna í friðarviðræðum um Úkraínu í samtali við Gunnar Smára, hversu langt er á milli aðila og ólíklegt sé að það bil verði brúað. Þá er líklegast að stríðið haldi áfram þar til Rússar telja sig hafa náð markmiðum sínum. Mikil stemmning virðist fyrir stórauknum virkjanaframkvæmdum á sama tíma og 13 prósent orkunnar eru munaðarlaus vegna bilunar hjá Norðuráli. Andrés Skúlason náttúruverndarsinni og Snorri Hallgrímsson, varaformaður ungra umhverfissinna, ræða stöðu umhverfismála í samtali við Björn Þorláks.

Ep 1161FRÉTTATÍMINN 2. desember
Þriðjudagur 2. desember FRÉTTATÍMINN Gunnar Smári, María Lilja og Sigurjón Magnús segja fréttir Samstöðvarinnar með sínu lagi. Hvert er samhengi fréttanna?

Ep 1160FRÉTTATÍMINN 1. desember
Mánudagur 1. desember FRÉTTATÍMINN Gunnar Smári, María Lilja og Sigurjón Magnús segja fréttir Samstöðvarinnar með sínu lagi. Hvert er samhengi fréttanna?

Ep 1160Rauða borðið 1. des - Píratar, njósnarit, stjórnsýsla, innkaup og börn
Mánudagur 1. desember Píratar, njósnarit, stjórnsýsla, innkaup og börn Oktavía Hrund Guðrúnar Jóns er fyrsti formaðurinn sem píratar hafa valið sér. Hán ræðir áherslur, stefnu, hvað fór úrskeiðis fyrir síðustu þingkosningar og fordóma í samtali við Björn Þorláks. Gunnar Smári ræðir við Helen Ólafsdóttur öryggissérfræðing um njósnarit (spyware) sem gera stjórnvöldum, leyniþjónustum og einkafyrirtækjum mögulegt að fylgjast með öllum, einkum þeim sem viðkomandi skilgreina sem andstæðinga. Sigurbjörg Sigurgeirsdóttir stjórnsýslufræðingur svarar fyrir ásakanir sem Morgunblaðið setti fram á dögunum gagnvart henni sem aðalhöfundi skýrslu um embættismenn. Í samtali við Björn Þorláks ræðir hún efni skýrslunnar og hvers vegna við þurfum að ræða hana. Kaupgleði landans er hafin fyrir stórhátíðina fram undan og varðar miklu að nýta krónurnar sem best. Breki Karlsson hjá Neytendasamtökunum gefur neytendum hollráð í samtali við Björn Þorláks. Vaka Evu og Eldarsdóttir er í öðrum bekk í Vesturbæjarskóla. Hún er í réttindaráði barna í skólanum og er einstaklega fróð um réttindi barna. María Lilja fékk hana í spjall til sín um framtíðina, barnasáttmála Sameinuðu Þjóðanna og jólin.

Ep 1159Synir Egils 30. nóv - Nató, fjölmiðlar, atvinna, leikskólar, jafnrétti, öryggi
Sunnudagurinn 30. nóvember Synir Egils: Nató, fjölmiðlar, atvinna, leikskólar, jafnrétti, öryggi Bræðurnir Sigurjón Magnús og Gunnar Smári Egilssynir taka á móti gestum og ræða við þá um helstu fréttir og stöðuna í stjórnmálum. Að þessu sinni koma þær Guðrún Johnsen prófessor og deildarforseti viðskiptadeildar á Bifröst, Sigríður Dögg Auðunsdóttir formaður Blaðamannafélagsins og Sigríður Mogensen, sviðsstjóri iðnaðar- og hugverkasviðs Samtaka iðnaðarins og ræða fréttir vikunnar og stöðu samfélagsins; fjölmiðla, jafnrétti, atvinnustefnu, Evrópu og margt fleiri. Síðan ræðum við Nató og öryggismál Íslands og Evrópu við Davíð Stefánsson formann Varðbergs og Stefán Pálsson sagnfræðing. Í lokin fara þeir bræður yfir pólitíkina með sínu nefi.

Ep 1157Rauða borðið - Helgi-spjall: Andrea Jónsdóttir
Laugardagur 29. nóvember Helgi-spjall: Andrea Jónsdóttir Andrea Jónsdóttir er flestum kunn. Hún ræðir við Maríu Lilju um tónlistina, uppvöxtinn, leiðina til manns og hvernig við ættum öll að reyna að skilja hvort annað betur.

Ep 1158Rauða borðið - Vikuskammtur: Vika 48
Föstudagur 28. nóvember Vikuskammtur: Vika 48 Í Vikuskammti við Rauða borðið sitja í dag þau Unnur Andrea Einarsdóttir, fjöllistakona, Grímur Atlason, framkvæmdastjóri Geðhjálpar, Thelma Harðardóttir, sveitarstjórnarfulltrúi í borgarbyggð og Eldar Ástþórsson, markaðsstjóri Faxaflóahafna. Þau ræða fréttir vikunnar með Maríu Lilju.

Ep 1156FRÉTTATÍMINN 27. nóvember
Fimmtudagur 27. nóvember FRÉTTATÍMINN Gunnar Smári, María Lilja og Björn Þorláks segja fréttir Samstöðvarinnar með sínu lagi. Hvert er samhengi fréttanna?

Ep 1155Rauða borðið 27. nóv - Nató, heimilisleysi, reynsluboltar, fallnir múrar og íslenskan
Fimmtudagur 27. nóvember Nató, heimilisleysi, reynsluboltar, fallnir múrar og íslenskan Soffía Sigurðardóttir hernaðarandstæðingur ræðir við Maríu Lilju um hernaðarbandalagið m.t.t. frétta dagsins. Einar Ingi Kristinsson og Guðbjörg Inga Guðjónsdóttir tala um reynslu sína af götunni. Ragnheiður Davíðsdóttir ræðir við þau. Fjölmiðlakonan Sirrý Arnardóttir, Páll Ásgeir Ásgeirsson blaðamaður og Auður Önnu Magnúsdóttir framkvæmdastýra Kvenréttindafgélags Íslands fara yfir helstu mál. Fúin kerfi, pólitíkin, hernaður og fleira verður til umræðu. Björn Þorláks ræðir við þau. Þegar múrar falla, er heiti nýrrar bókar eftir Hörð Torfason. Þar rekur hann hvað varð að gera til að múrar féllu. Heiðar Ingi Svansson, formaður Félags íslenskra bókaútgefenda, fer yfir helstu tíðindi jólabókaflóðsins og setur útgáfu hér innanlands í samhengi við varnarbaráttu íslenskrar tungu. Björn Þorláks ræðir við hann.

Ep 1153Sjávarútvegsspjallið - 71. þáttur: Fortíð og framtíð fiskveiðistjórnar
Fimmtudagur 27. nóvember Sjávarútvegsspjallið - 71. þáttur Grétar Mar fær til sín þá Jón Kristjánsson, fiskifræðing og Sigurjón Þórðarson, þingmann.

Ep 1154FRÉTTATÍMINN 26. nóvember
Miðvikudagur 26. nóvember FRÉTTATÍMINN Gunnar Smári, María Lilja og Sigurjón Magnús segja fréttir Samstöðvarinnar með sínu lagi. Hvert er samhengi fréttanna?

Ep 1152Rauða borðið 26. nóv - Sjókvíar, lögfræði, fasismi, skipulag, dánaraðstoð og gagnrýni
Miðvikudagur 26. nóvember Sjókvíar, lögfræði, fasismi, skipulag, dánaraðstoð og gagnrýni Jóhannes Sturlaugsson líffræðingur bregst við stuðningi atvinnuvegaráðherra við sjókvíaeldi í Mjóafirði og ræðir við Björn Þorláks um skaðsemi sjókvíaeldis. Gísli Tryggvason ræðir í samtali við Björn Þorláks málalok ríkislögreglustjóra, makríldeilu,. rifrildi Moggans og ráðherra, greiðslufall Norðuráls, lögmann sem situr í fangelsi og fleiri lögfræðileg álitaefni. Pontus Järvstad doktor í sagnfræði ræðir við Gunnar Smára um fasisma tuttugustu aldar og stjórnmálahreyfingar dagsins sem bera keim af fasisma eða eru hreinlega fasískar. Andri Snær Magnason rithöfundur hefur sent frá sér rammpólitíska skáldsögu þar sem sögusviðið er geld byggingarlist okkar tíma, sem hefur hvorki rými fyrir fegurð né þjónar okkur vel, býr okkur ekki gott umhverfi. Gunnar Smári ræðir við hann um arkitektúr og skipulag. Ingrid Kuhlman meistari í jákvæðri sálfræði og ein forsvarsmanna Lífsvirðingar, samtaka um dánaraðstoð, ræðir við Maríu Lilju um rétt hvers manns yfir eigin líkama nema við dauðann. María Lilja fær til sín Sigríði Jónsdóttur, gagnrýnanda til að ræða listina við gagnrýni á listinni. Er alltaf rýnt til gagns?

Ep 1151FRÉTTATÍMINN 25. nóvember
Þriðjudagur 25. nóvember FRÉTTATÍMINN Gunnar Smári, María Lilja og Sigurjón Magnús segja fréttir Samstöðvarinnar með sínu lagi. Hvert er samhengi fréttanna?

Ep 1150Rauða borðið 25. nóv - Úkraína, rakari, höfundur og listarými
Þriðjudagur 25. nóvember Úkraína, rakari, höfundur og listarými Hilmar Þór Hilmarsson prófessor ræðir við Gunnar Smára um tillögupunkta Donald Trump sem hann telur að geti stöðvað stríðið í Úkraínu. Er það raunhæft? Þorberg Ólafsson hefur klippt og rakað í heil 60 ár og er enn að. Hann fer yfir feril sinn og breytingar sem orðið hafa. Þá verða tengslin sem skapast oft milli hárskera og kúnna til umræðu í samtali Þorbergs við Björn Þorláks. Katrín Júlíusdóttir var eitt sinn ráðherra en hún er líka rithöfundur og fagnar útkomu nýrrar bókar þessa dagana. Í samtali við Björn Þorláks lýsir Katrín kúnstinni að lifa og skrifa. Katrin Inga Jónsdóttir-Hjördísardóttir, listamaður og forsvarsmaður Fyrirbæris og Magnús Ebbi Ólafsson, tónlistarmaður og forsvarsmaður fyrir TÞM ræða við Maríu Lilju um list í borgarrýminu og mikilvægi þess að hafa afdrep fyrir skapandi fólk.

Ep 1149FRÉTTATÍMINN 24. nóvember
Mánudagur 24. nóvember FRÉTTATÍMINN Gunnar Smári, Björn Þorláks og Sigurjón Magnús segja fréttir Samstöðvarinnar með sínu lagi. Hvert er samhengi fréttanna?

Ep 1148Rauða borðið 24. nóv - Réttindabót, loftslagsmálin, sorgin, íslenskan og ungskáld
Mánudagur 24. nóvember Réttindabót, loftslagsmálin, sorgin, íslenskan og ungskáld Alma Ýr Ingólfsdóttir formaður ÖBÍ ræðir við Gunnar Smára um úttekt Gæða- og eftirlitsstofnunar velferðarmála á þjónustu sveitarfélaga við fatlað fólk og um gildi þess að samningur sameinuðu þjóðanna um réttindi fatlaðs fólks hefur verið lögleiddur. Hallgrímur Óskarsson framkvæmdastjóri Carbon Iceland gerir upp COP-ráðstefnuna. Minni áhersla er lögð á vistvænan samgöngumáta en margir hefðu kosið og sitthvað bendir til bakslags. Hallgrímur segir þó allt of snemmt að örvænta. Björn Þorláks ræðir við hann. Vigfús Bjarni Albertsson prestur og forstöðumaður sálgæslu- og fjölskylduþjónustu ræðir við Gunnar Smára um bók sína Sár græða sár, um sorgina og áföllin og hvernig við erum búin undir slíkt sem manneskjur og samfélag. Páll Valsson rithöfundur og bókmenntafræðingur hefur lengi haft áhyggjur af stöðu íslenskrar tungu. En aldrei sem nú. Efna þarf í raun til þjóðarátaks til að bjarga þeirri menningargersemi sem íslenskan er og bindur okkur saman að mati Páls. Aron Elí Arnarsson, 15 ára grunnskólanemi, sigraði nýverið í ljóðasamkeppni. Hann lýsir hugarheimi sínum og áherslum og les upp eigið verðlaunaljóð.

Ep 1147Synir Egils 23. nóv - Evrópusambandið, friðartilboð, okurvextir, húsnæði og pólitískar sveiflur
Sunnudagurinn 23. nóvember Synir Egils: Evrópusambandið, friðartilboð, okurvextir, húsnæði og pólitískar sveiflur Bræðurnir Sigurjón Magnús og Gunnar Smári Egilssynir taka á móti gestum og ræða við þá um helstu fréttir og stöðuna í stjórnmálum. Að þessu sinni koma þau Ólína Þorvarðardóttir prófessor og deildarforseti á Bifröst, Heimir Már Pétursson framkvæmdastjóri þingflokks Flokks fólksins og Halla Gunnarsdóttir formaður VR og ræða fréttir vikunnar og stöðu mála hér heima og erlendis. Við ræðum síðan Evrópusambandið við tvo heiðursmenn: Ögmundur Jónasson fyrrum ráðherra, þingmaður og formaður BSRB og Þorsteinn Pálsson fyrrum ráðherra og formaður Sjálfstæðisflokksins ræða stöðu sambandsins og kosti þess fyrir Ísland að ganga inn í ESB. Í lokin fara þeir bræður yfir pólitíkina með sínu nefi.