
Samstöðin
710 episodes — Page 3 of 15
Rauða borðið 21. apríl - Nauðgunarmenning, móðir, sveitastjórnarkosningar, hugvíkkandi, tónleikar
Rauða borðið 20. apríl - Kynferðisofbeldi, mannréttindi, útgerðarspilling, RÚV og píanóleikur
Bridgeþátturinn 19. apríl: Hvert stefnir?
Synir Egils 19. apríl - Sveitarstjórnir, skólamál og ESB
Rauða borðið - Helgi-spjall: Þórarinn Hjartar
Rauða borðið - Vikuskammtur: Vika 16
Rauða borðið 16. apríl - Flóttabörn, flóðahætta, reynsluboltar, öldrun og tónlistarnemar
Rauða borðið 15. apríl - Líknardauði, krónan, sveitarstjórnarspenna, Íran, píratar og Kúba
Þriðjudagur 14. apríl: Stjórnmáladoði, áfengisáhrif, ögranir og tónlist
Mánudagur 13. apríl: Íransstríðið, vinstrið, fíkn, húsbyggingar og sjálfsvinna

Ep 1282Rauða borðið - Helgi-spjall: Brynja Péturs
Laugardagur 28. mars Helgi-spjall: Brynja Péturs Dansarinn og frumkvöðullinn Brynja Pétursdóttir segir Maríu Lilju frá ástríðu sinni fyrir hipp hopp tónlist og dansi, en hún hefur helgað líf sitt því að kenna ungu fólki á íslandi allt um þann dans og menninguna sem hann sprettur úr.

Ep 1283Föstudagur 27. mars Vikuskammtur: Vika 13
Föstudagur 27. mars Vikuskammtur: Vika 13 Gestir Laufeyjar Líndal eru að þessu sinni Ægir Máni Bjarnason, listarmaður og aðgerðarsinni, Davíð Sól Páls, kennari og aktivisti, Miriam Petra Ómarsdóttir Awad, sérfræðingur og ráðgjafi og Hjálmtýr Heiðdal, formaður félagsins Ísland-Palestína og eftirlaunamaður.

Ep 1282Staða mála 27. mars
Staða mála.

Ep 1281Rauða borðið 26. mars - Samstöðvarsigur og litróf listarinnar
Fimmtudagur 26. mars Samstöðvarsigur og litróf listarinnar Þátturinn er stuttur í kvöld, en veðurofsi fyrri part dags setti dagskrána aðeins úr skorðum, svo í þessum síðasta þætti Rauða borðsins fyrir Páska bjóðum við upp á tvö viðtöl við tvo góða gesti. Fyrst fær Björn Þorláks til sín góðvin Rauða borðsins, Gísla Tryggvason. Innslagið Réttur er settur, sem þeir félagar hafa haldið úti í vetur fjallar í þetta sinn um sigur Samstöðvarinnar í meiðyrðamáli sem Gísli rak fyrir dómi nýlega fyrir hönd miðilsins. Sýningin „Þegar ég sé þig, sé ég mig” var nýlega sýnd á sviði Borgarleikhússins, en sýningin var samsett úr sögum Íslendinga af blönduðum uppruna, sem sjálfir sögðu sögu sína á sviðinu. Skúli Issac Qase er einn af leikurum í sýningunni, en hann ræðir sýninguna og sína sögu við Laufeyju Líndal, ásamt broti úr sögu móður sinnar, Amal Rúnar Qase, sem var áberandi í íslensku samfélagi á tíunda áratug síðustu aldar.

Ep 1280Sjávarútvegsspjallið - 80. þáttur: Hafró
Fimmtudagur 26. mars Sjávarútvegsspjallið - 80. þáttur: Hafró Grétar Mar og Ólafur Jónsson ræða við Jón Kristjánsson.

Ep 1279Rauða borðið 25. mars - Húsnæðislán, Reynsluboltar, Trump-tíminn og alþjóðamál
Miðvikudagur 25. mars Húsnæðislán, Reynsluboltar, Trump-tíminn og alþjóðamál Marinó G Njálsson ráðgjafi hefur verið skipaður af ráðherra formaður stýrihóps um nýtt húsnæðislánakerfi. Marínó vill losna við verðtryggingu. Björn Þorláks ræðir við hann. Viðar Eggertsson leikari, Ólafur Arnarson blaðamaður og Margrét Tryggvadóttir formaður Rithöfundasambands Íslands kryfja fréttir og þjóðmál í umræðuþættinum Reynsluboltar í umsjá Björns Þorláks. Mogginn, hagstjórn og ESB til umræðu. Trumptíminn verður á sínum stað. Gestir í dag eru Bjarni Randver Sigurvinsson guðfræðingur og Margrét Valdimarsdóttir afbrotafræðingur, Björn Þorláks ræðir við þau. Hilmar Þór Hilmarsson prófessor við Háskólann á Akureyri ræðir alþjóðamál og ekki síst áhrif stríðsins í Íran í samtali við Björn Þorláks.

Ep 1278Græna borðið 7. þáttur - Vindorka
Miðvikudagur 25. mars Græna borðið - 7. þáttur: Deilt um vindorkuver Sveitarstjórn Dalabyggðar er hætt að vinna að því að vindorkuver franska fyrirtækisins Qair rísi á Laxárdalsheiði. Sveitungum líst ekki vel á orkuver á heiðinni. Skipulagsstofnun gaf verkefninu falleinkunn en Qair er ekki af baki dottið og fer fram á nýtt mat. Sveitarstjórn kallar eftir skýrri og nákvæmri vindorkustefnu frá stjórnvöldum fyrir náttúru og samfélag. Kristín Helga Gunnarsdóttir og Björg Eva Erlendsdóttir stjórna þættinum.

Ep 1277Rauða borðið 24. mars - Fréttir og pólitík, fordómar, dánaraðstoð og falleinkunn
Þriðjudagur 24. mars Fréttir og pólitík, fordómar, dánaraðstoð og falleinkunn Aðalsteinn Kjartansson fréttastjóri Heimildarinnar og Sigmundur Ernir Rúnarsson komu til að ræða pólitík og helstu fréttir. Þarna voru vanir menn sem fóru vítt og breytt um fréttasviðið hér og út í hinum stóra heimi. Grímur Atlason hjá Geðhjálp ræðir könnun um fordóma, geðsjúkdóma og fíkn. Krísur ungs fólks ber á góma sem og tilgang lífsins. Björn Þorláksson ræðir við hann. Svanur Sigurbjörnssson læknir kom til okkar. Umræðuefnið var dánaraðstoð og hvar hún er leyfð og hvað þarf að koma til svo sjúklingur geti fengið dánaraðstoð. Jón K. Jacobsen, faðir drengsins sem lést í brunanum á Stuðlum, segist hvorki reiður né finna hatur þótt hannn myndi sjálfur jafna Stuðla við jörðu ef hann kæmist til áhrifa í meðferðarstarfi. Björn Þorláks ræðir við hann.

Ep 1276Rauða borðið 23. mars - Opinberir starfsmenn, kulnun, listin og sagan
Mánudagur 23. mars Opinberir starfsmenn, kulnun, listin og sagan Sonja Ýr Þorgeirsdóttir, BSRB og Helga Rósa Másdóttir, formaður Félags íslenskra hjúkrunarfræðinga, ræða neikvætt viðhorf gegn opinberum starfsmönnum og atlögu að vernd þeirra í starfi. Inniskór koma við sögu. Björn Þorláks ræðir við þær.Flosi Þorgeirsson, gítarleikari í Ham með meiru, ræðir eigin kulnun og hlaðvarpið Draugar fortíðarinnar í samtali við Björn Þorláks.Unnur Elísabet Gunnarsdóttir ræðir framtakið Segðu þína sögu. Hvernig vekur maður tilfinningu hjá öðrum með frásögn? Björn Þorláks ræðir við hana. Sóley Smáradóttir fiðluleikari lýkur framhaldsstigi á fiðlu innan skamms. Hún ræðir við Björn Þorláks um listir, heiminn, Ísland og rasisma.

Ep 1274Bridgeþátturinn - Kvennasigur
Sunnudagurinn 22. mars Bridgeþátturinn - Kvennasigur Inda Hrönn Björnsdóttir, x og x ræða við Björn Þorláks um bridds. Þær stöllur eru glóðvolgir Íslandsmeistarar kvenna í sveitakeppni og þær ræða spilið, keppnina, kynjabaráttu og fleira.

Ep 1275Synir Egils 22. mars - Stýrivextir, kjarasamningar, átök og Sjálfstæðisflokkurinn
Sunnudagurinn 22. mars Synir Egils: Stýrivextir, kjarasamningar, átök og Sjálfstæðisflokkurinn Fyrst koma Halla Gunnarsdóttir formaður VR, Lilja Dögg Alfreðsdóttir, formaður Framsóknarflokksins og Þorsteinn Víglundsson forstjóri BM. Vallár og formaður Samtaka iðnaðarins koma til okkar í fyrri hluta þáttarins. Efnahagsmálin verða í forgrunni, og er víst að þessir fínu gestir okkar hafa margt um það að segja. Hvers vegna sökkvum alltaf í sama vesenið. Sama hvaða fólk stýrir landinu og hvað fólk er í stafni hjá launafólki og atvinnurekendum. Guðrún Hafsteinsdóttir kemur vel nestuð frá flokkstjórnarfundi Sjálfstæðisflokksins. Víst er að flokkkurinn eigi mikið undir hvern til tekst nú í aðdraganda sveitarstjórnarkosninganna.

Ep 1272Rauða borðið - Helgi-spjall: Brynhildur Guðjóns
Laugardagur 21. mars Helgi-spjall: Brynhildur Guðjóns Brynhildur Guðjónsdóttir leikari fer yfir ævi og störf. Bernskan, áskoranir, listin og gleðin verða til umræðu. Björn Þorláksson ræðir við Brynhildi.

Ep 1273Rauða borðið - Vikuskammtur: Vika 12
Föstudagur 20. mars Vikuskammtur: Vika 12 Gestir mæta við Rauða borðið til að ræða fréttir vikunnar sem að þessu sinni einkenndust af meiri stríðum, meiri öfgum, meiri átökum og hærra vaxtastigi, en einnig af tónlist, sveitarstjórnarkosningum og ýmsu öðru. Þau Arna Magnea Danks, leikkona og kennari, Jasmina Vajzovic, ráðgjafi, Bjarki Hjörleifsson, Varaformaður VG og Bogi Reynisson, hljóðmaður tækla þessi umræðuefni með Laufeyju Líndal.

Ep 1271Rauða borðið 19. mars: Efnahagsóvissa, ESB, eldhugi og áföll
Fimmtudagur 19. mars Efnahagsóvissa, ESB, eldhugi og áföll Finnbjörn A. Hermannsson, forseti ASÍ, bregst við umælum fjármálaráðherra í dag um að of miklar launahækkanir séu aðalhvati verðbólgunnar. Finnbjörn segir í samtali við Björn Þorláks stöðuna ekki bjarta og ræðir málin með gagnrýnum hætti. Magnús R. Einarsson leiðsögumaður og fyrrum dagskrárgerðarmaður til áratuga á Rúv, ræðir samanburð lífskjara á Íslandi og á meginlandi Evrópu. Honum finnst umræða stjórnarandstæðinga heimóttarleg eins og kemur fram í samtali hans við Björn Þorláks. Ragnheiður Davíðsdóttir ræðir við Svein Rúnar Hauksson lækni um ævi, störf og áhugamál. Dr. Sigrún Sigurðardóttir hefur skrifað bók um áföll sem er ansi skýr og aðgengileg almenningi. Hún ræðir bókina og farangurinn sem mörg okkar bera í spjalli við Björn Þorláks.

Ep 1270Sjávarútvegsspjallið - 79. þáttur: Útflutningur og verkun
Fimmtudagur 18. mars Sjávarútvegsspjallið - 79. þáttur: Útflutningur og verkun Grétar Mar ræðir við þá Hannes Sigurðsson og Arnar Atlason.

Ep 1269Rauða borðið 18. mars - Spilling, Trump, Reynsluboltar og leiklist
Miðvikudagur 18. mars Spilling, Trump, Reynsluboltar og leiklist Útboðsspilling, einkum tengd verkfræðistofum, er fyrsta umræðuefni Rauða borðsins í kvöld í samtali Björgvins Víglundssonar byggingarverkfræðings við Björn Þorláksson. Dæmi eru um að hið opinbera greiði meira en tuttugufaldan verkkostnað vegna tengsla. Finnur Dellsén heimspekingur, Sveinn Máni Jóhannesson sagnfræðingur og Þorsteinn Þorgeirsson hagfræðingur ræða við Gunnar Smára um Donald Trump og áhrif hans á heiminn og hugmyndir okkar. Oddný G. Harðardóttir, fyrrum þingkona og ráðherra, Jón Trausti Reynisson blaðamaður og Lárus Guðmundsson miðflokksmaður ræða fréttir og átök líðandi stundar. Hagstjórnun, ofurvextir, heimsófriður og fleira verður til umræðu. Björn Þorláks stýrir umræðunni. Leikararnir og höfundarnir Davíð Þór Katrínarson, Unnsteinn Manuel Stefánsson og Jónmundur Grétarsson og leikstjórinn Þóra Karítas Árnadóttir ræða við Gunnar Smára um sýninguna Gæðablóð sem fjallar um hvernig það er að vera litaður í íslensku samfélagi.

Ep 1268Græna borðið 6. þáttur - Hver á náttúruna?
Miðvikudagur 18. mars Græna borðið 6. þáttur - Hver á náttúruna? Hver á náttúruna, hvaða almannahagsmunir réttlæta eignarnám? Ólafur Björnsson lögmaður telur núverandi lagaumhverfi virka og þar sé að finna þau úrræði sem til þurfi. Ekki sé gott að pólitíkin hringli með lög og reglur. Þorgerður María Þorbjarnardóttir, formaður Landverndar telur eignarnám vegna raflínulagna geta verið hættulegt fordæmi og hætt við að náttúran njóti ekki vafans, Eignaréttur á þjóðlendum var líka ræddur. Þjóðlendur eru í dag ríkisjarðir undir forræði forsætisráðherra og sveitarfélaga sem fara með skipulagsvaldið og fá arð af vaxandi atvinnugreinum sem teygja sig inn á víðerni landsins. Lýðræðið á að tryggja farið sé að þjóðarvilja um nýtingu eða vernd á þjóðlendum. Björg Eva Erlendsdóttir og Bára Huld Beck eru stjórnendur þáttarins.

Ep 1267Rauða borðið 17. mars: Öfgahreyfingar, kjaramál, Bretland, fjölmiðlar og Íslensk menning
Þriðjudagur 17. mars Öfgahreyfingar, kjaramál, Bretland, fjölmiðlar og Íslensk menning Ef íslenskir stjórnmálaflokkar eru að taka við fé frá erlendum öfgahreyfingum til að bjaga og rugla upplýsingar, ætti það nánast að kalla á lögreglurannsókn. Þetta segir Atli Þór Fanndal blaðamaður. Björn Þorláks ræðir við hann. Sigríður Ingibjörg Ingadóttir, nýr framkvæmdastjóri BSRB, ræðir kjaramál og helstu verkefni. Hún gagnrýnir styttingu atvinnubótatímabils svo nokkuð sé nefnt og segir samráð úr sögunni. Guðmundur Auðunsson hagfræðingur ræðir um stöðu Keir Starmer og bresk stjórnmál. Kolbeinn Tumi Daðason fréttastjóri Stöðvar tvö, Bylgjunnar og Vísis, ræðir stöðu sjónvarpsfrétta Sýnar. Blikur eru á lofti. Björn Þorláks ræðir við hann. Eiríkur Örn Norðdahl skáld og rithöfundur, Auður Jónsdóttir rithöfundur og blaðamaður, Árni Matthíasson blaðamaður og gagnrýnandi og Kristín Gunnlaugsdóttir myndlistarkona ræða við Gunnar Smára um íslenska menningu, Laufey, hálendið, söguna og söguleysið og margt annað.

Ep 1266Rauða borðið 16. mars - Alræði, mið-austurlönd, geðveiki, systkinaofbeldi og Laufey
Mánudagur 16. mars Alræði, mið-austurlönd, geðveiki, systkinaofbeldi og Laufey Alræðistaktar stjórnvalda í Bandaríkjunum verða til umræðu þegar Valur Gunnarsson sagnfræðingur ræðir við Björn Þorláks um ástandið í heimsmálunum í sögulegu tilliti. Þórir Jónsson Hraundal, lektor við Mála- og menningardeild HÍ og sérfræðingur í mið-austurlöndum, fer yfir stöðuna fyrir botni miðjarðarhafs. Laufey Líndal ræðir við Þóri. Flosi Þorgeirsson sagnfræðingur og tónlistarmaður spjallar við Björn Þorláks um andleg mál, þunglyndi og upprisu. Þórdís Bjarnleifsdóttir lauk nýlega meistaraverkefni í félagsráðgjöf við HÍ en þar vann hún rannsókn um systkinaofbeldi, mál sem hefur ekki mikið verið rannsakað á Íslandi og fá úrræði í boði þegar slík mál koma á borð barnaverndar. Þórdís segir Laufeyju Líndal frá rannsókn sinni og hvaða skref þurfi að stíga til að tryggja börnum og foreldrum aðstoð þegar þessi mál koma upp. Andrea Jónsdóttir fer yfir stórbrotna tónleika Laufeyjar um helgina í spjalli við Björn Þorláks.

Ep 1265Synir Egils 15. mars - Stjórnmál, stríðsrekstur, einkarekstur og niðurskurður
Sunnudagurinn 15. mars Synir Egils: Stjórnmál, stríðsrekstur, einkarekstur og niðurskurður Að þessu sinni taka þátt í umræðunni þau; Einar Kárason rithöfundur, Guðlaugur Þór Þórðarson alþingismaður, Steinunn Bragadóttir hagfræðingur hjá ASÍ og Theodóra S. Þorsteinsdóttir bæjarfulltrúi í Kópavogi. Eðlilega er margt á málaskrá. Stjórnmál, stríðsrekstur Bandaríkjanna og Ísrael og viðbrögð við honum, er einfalt eða tvöfalt heilbrigðiskerfi hér á landi, er verið að draga úr framlögum til menningar, komandi kosningar og svo margt annað.

Ep 1263Rauða borðið - Helgi-spjall: Brynjar Níelsson
Laugardagur 14. mars Helgi-spjall: Brynjar Níelsson Gestur vikunnar í helgi-spjalli er umdeildur, hefur stundum hátt og skoðanir hans eru ekki allra. En hann á sér líka gríðarlegan fjölda stuðningsmanna, fyrrum dómari, þingmaður og verðandi borgarfulltrúi. Brynjar Níelsson ræðir persónusögu sína, bernskuna og manneskjuna á bak við þá opinberu mynd sem jafnan birtist almenningi. Björn Þorláks ræðir við Brynjar.

Ep 1264Föstudagur 13. mars Vikuskammtur: Vika 11
Föstudagur 13. mars Vikuskammtur: Vika 11 Farið verður yfir fréttir vikunnar og þar kennir ýmissa grasa. Gestir verða þau: Karen Kjartansdóttir, sérfræðingur, Brynjar Karl, körfuboltaþjálfari DJ Katla Ásgeirsdóttir og Frosti Logason, fjölmiðlamaður. Það sem bar hæst í vikunni var ma. ESB, Ísland tekur þátt í máli S-Afríku gegn Ísrael, fjölgun alvarlegra ofbeldisbrota (Kleini), Íran og efnahagsáhrifin, Miðflokkurinn og MAGA, nýr sjálfstæðisflokkur í borginni (kjartan og marta), hryðjuverkamálið aftur í hérað, útlenskur læknir þjónar til borðs, hræringar á fjölmiðlamarkaði, lóan kom, menningarviðburðir helgarinnar og allskonar fleira.

Ep 1262Rauða borðið 12. mars - Þjóðtungudeila, hópmorð, villuáróður, þolmörk ferðaþjónustu og kynusli
Fimmtudagur 12. mars Þjóðtungudeila, hópmorð, villuáróður, þolmörk ferðaþjónustu og kynusli Eiríkur Rögnvaldsson íslenskumaður hefur verið sakaður um að láta pólitískar skoðanir villa sér sýn þegar hann svarar fyrirspurnum á Vísindavefnum er varða íslenska tungu. Eiríkur bregst við í samtali við Björn Þorláks og ræðir einnig stöðu íslenskrar tungu.Þórdís Ingadóttir lagaprófessor, Hjálmtýr Heiðdal og Qussay Odeh, fulltrúar félagsins Ísland Palestína ræða við Maríu Lilju um Gaza og álitsgerð Íslands í máli Suður-Afríku gegn Ísrael um ætlað brot gegn sáttmála SÞ um hópmorð. Doktor Lára G. Sigurðardóttir lýðheilsufræðingur bregst við villuáróðri um skaðleysi áfengisBjörn Þorláks ræðir við Láru. Ragnheiður Davíðsdóttir ræðir við Börk Hrólfsson leiðsögumann um ástandið í ferðamálum á Íslandi. Beta Skagfjörð leikari, Sindri Sparkle uppistandari og leikstjórinn Aron Martin ræða við Björn Þorláks um leiksýninguna: Ég Jóhanna.

Ep 1261Sjávarútvegsspjallið - 78. þáttur: Grásleppan og störf þingsins
Fimmtudagur 12. mars Sjávarútvegsspjallið - 78. þáttur: Lilja Rafney Magnúsdóttir Lilja Rafney Magnúsdóttir ræðir við Grétar Mar Jónsson og Ólaf Jónsson.

Ep 1260Rauða borðið 11. mars: Reynsluboltar, hópnauðgun, íþróttastefna og lögfræði
Miðvikudagur 11. mars Reynsluboltar, hópnauðgun, íþróttastefna og lögfræði Jenný Kristín Valberg, framkvæmdastýra Bjarkarhlíðar og Guðný S Bjarnadóttir, stjórnarformaður Vitundar ræða hópnauðgun, fjölgun alvarlegra brota og tregðu stjórnvalda að setja meinta gerendur í gæsluvarðhald. María Lilja ræðir við þær. Erna Bjarnadóttir hagfræðingur, Árni Guðmundsson forvarnafulltrúi og Andrés Skúlason Landverndarmaður ræða ESB, hagstjórn, umhverfismál, áfengisbölið og fleira með Birni Þorláks. Erlingur Jóhannsson íþróttafræðingur ber saman stefnu Noregs og Íslendinga í íþróttum og ræðir almenna þátttöku og lýðheilsu en einnig afreksstefnu í samtali við Björn Þorláks. Gísli Tryggvason lögmaður ræðir við Björn Þorláks um lagaleg álitaefni tengd fréttum líðandi stundar. Pælingar um vanhæfi ráðherra, Edison-málið óhuggulega, ný stjórnarskrá í tenglum við ESB-aðild, svipting skotvopnaleyfis og fleiri mál ber á góma.

Ep 1259Miðvikudagur 11. mars: Græna borðið - 5. þáttur: Mistök að breyta umhverfisráðuneytinu
Miðvikudagur 11. mars Græna borðið - 5. þáttur: Mistök að breyta umhverfisráðuneytinu Mistök að breyta umhverfisráðuneytinu, segir Guðmundur Ingi Guðbrandsson fyrrverandi umhverfisráðherra. Hann sest við Græna borðið með Páli Ásgeiri og Kristínu Helgu og fer yfir ráðherraferilinn, stöðuna í náttúruverndarmálum og þær hættur sem steðja að íslenskri náttúru. Hann segir að núverandi umhverfisráðherra hafi ekkert aðhald frá sínum eigin flokki og sé umsetinn klappstýrum virkjanasinna á þingi.

Ep 1258Rauða borðið 10. mars - ESB, Icelandair, stjórnmálasaga, framtíðin og andlegt líf
Þriðjudagur 10. mars ESB, Icelandair, stjórnmálasaga, framtíðin og andlegt líf Framkvæmdastjóri Samfylkingarinnar, Þórður Snær Júlíusson, efast ekki um að í efnahagslegu tilliti gæti verið eftir miklu að slægjast fyrir Ísland að ganga í ESB. Þórður Snær ræðir við Björn Þorláks. Doktor Haukur Arnþórsson stjórnsýslufræðingur ræðir í spjalli við Björn Þorláks þátt hins opinbera í þjóðaröryggismálum og einkum í millilandaflugi Íslendinga vegna veikrar stöðu Icelandair. Ólafur Þ. Harðarson stjórnmálafræðingur ræðir umræðuhefð stjórnmálamanna í tengslum við þjóðaratkvæðagreiðsluna í ágúst sem og sögulegan fróðleik. María Lilja spaír í framtíðina og eru viðmælendur hennar Urður Vala og Tíbrá Myrra Freysdætur. Áhugi á trúmálum virðist fara ört vaxandi og prestar sjá breytingar í kirkjustarfi. Séra Sveinn Valgeirsson dómkirkjuprestur reynir að greina orsakir breytinganna í samtali við Björn Þorláks.

Ep 1257Rauða borðið 9. mars - VG, einhverfa, gervigreind og kosningar
Mánudagur 9. mars VG, einhverfa, gervigreind og kosningar Rósa Björk Brynjólfsdóttir er nýr formaður Vinstri grænna. Hún var kjörin með rússneskri kosningu. Rósa hefur áður verið í VG, en sagði úr flokknum þegar Katrín Jakobsdóttir myndaði ríkisstjórn með Sjálfstæðisflokki. Eyrún Halla Kristjánsdóttir nemi, Guðlaug Svala Kristjánsdóttir, sjúkraþjálfari og einhverfufræðari, Halldóra Hafsteins, stuðningsfulltrúi og aktívisti, Ragnheiður Ösp Sigurðardóttir hönnuður og kynjafræðingur ræða málefni einhverfra á forsendum einhverfra. Sævar Þór Jónsson hæstaréttarlögmaður er þegar farinn að nota gervigreind í sínum störfum. Hann gerir ráð fyrir að víða verði gervigreind notuð til að dæma í einföldum dómsmálum. Hann segir jafnframt að það vanti löggjöf um hvernig megi nota gervigreind í dómsmálum. Silja Sóley Birgisdóttir oddviti sósíalista, Kristín Kolbrún Waage miðflokki ræða sveitastjórnarkosningarnar.

Ep 1256Bridgeþátturinn - Flott framtak
Sunnudagurinn 8. mars Bridgeþátturinn - Flott framtak Eyþór Stefánsson, briddsspilari fyrir austan, ræðir nýjung í mótahaldi heimamanna en stórmót fer fram á Austurlandi um næstu helgi. Matthías Imsland, framkvæmdastjóri Bridgesambandsins, ræðir Úrvalsdeildina og fleiri mál. Björn Þorláks hefur umsjá með þættinum.

Ep 1255Synir Egils 8. mars - Evrópusambandsaðild eða ekki
Sunnudagurinn 8. mars Synir Egils: Evrópusambandsaðild eða ekki Þátturinn verður einþáttungur að þessu sinni, en til Sigurjóns mæta þau Ólafur Adolfsson, María Rut Kristinsdóttir, Magnús Skjöld og Birgir Ármannsson. Eftir óheyrilegt basl tókst að fá þessa fjórmenninga svo þátturinn verður eins þátta að þessu sinni. Þarna eru tvær fylkingarinnar. Birgir og Ólafur saman sinnis og svo María og Magnús eru sömu skoðunar í Evrópumálunum. Rætt verður einnig um aðra pólitík. Fylgi flokka, straum fólks frá XD og yfir XM.

Ep 1253Rauða borðið - Helgi-spjall: Dóra Jóhanns

Ep 1254Rauða borðið - Vikuskammtur: Vika 10
Föstudagur 6. mars Vikuskammtur: Vika 10 Gestir Maríu Lilju í vikuskammti að þessu sinni eru þau Esther Bíbí Ásgeirsdóttir, tónlistarkona, Sigtryggur Ari Jóhannsson, ljósmyndari, Guðmundur Ingi Þóroddsson, formaður Afstöðu og Helga Þórey Jónsdóttir menningarfræðingur og framhaldsskólakennari.

Ep 1252Rauða boðið 5. mars - Einhverfa, offita, reynsluboltar og 80’s
Fimmtudagur 5. mars Einhverfa, offita, reynsluboltar og 80’s Guðrún Eva Bell Jónsdóttir og Hjörtur Hlífar, einhverfur sonur hennar, ræða áskoranir í stuðnings kerfunum við Ragnheiði Davíðsdóttur. María Lilja fær til sín félagsráðgjafann og aðgerðarsinnann Töru Margréti Vilhjálmsdóttur en hún gagnrýnir nýjar tillögur heilbrigðisráðherra til þingsályktunar um sérstaka aðgerðaáætlun vegna offitu. Reynsluboltarnir að þessu sinni eru þau Björk Vilhelmsdóttir, Björn Leví Gunnarsson og Sólveig Anna Jónsdóttir. Þau ræða fréttir líðandi stundar við Björn Þorláksson. Ása Lind Finnbogadóttir og Laufey Líndal mæta til Maríu Lilju til að kynna viðburð hvar þær hyggjast í félagi við fleiri plötusnúða endurvekja gleymdar perlur níunda áratugarins.

Ep 1251Sjávarútvegsspjallið - 77. þáttur: Grásleppufrumvarpið og smábátar
Fimmtudagur 4. mars Sjávarútvegsspjallið - 77. þáttur: Grásleppufrumvarpið og smábátar Guðlaugur Jónasson, trillukarl, og Kjartan Sveinsson, formaður Landssambands smábátaeigenda, ræða við Grétar um Grásleppufrumvarpið og strand- og smábátaveiði.

Ep 1250Rauða borðið 4. mars - Áföll, heilsugæslan, barnavernd, góðvild og andóf
Miðvikudagur 4. mars Áföll, heilsugæslan, barnavernd, góðvild og andóf Flosi Þorgeirsson tónlistarmaður og sagnfræðingur í Draugum fortíðar ræðir við Björn Þorláks um kvíða og kulnun, raðáföll í æsku og listina að lifa af. Nýtt verk, Heilsugæslan, verður frumflutt á næstu dögum. Lýður Árnason læknir leikstjóri og höfundur verksins, Rakel Björk Björnsdóttir og Elfar Logi Hannesson leikarar ræða stykkið í spjalli við Björn Þorláks. Unnar Þór Sæmundsson var vistaður á Bakkakoti við slæm skilyrði. Hann vill brenna barnaverndarkerfið og byrja upp á nýtt, ssegir hann í samtali við Sigurjón Magnús.Eiður Ragnarsson Austfirðingur segir sögu úr hversdagslífinu sem kannski vísar út fyrir sig. Hann skaut skjólshúsi yfir ókunnan ferðalang og komst að því að heimurinn er ekki að fara til fjandans. Björn Þorláks ræðir við Eið. Julia Mai myndlistarkona og Ari Logn, talsmanneskja Rauðu regnhlífarinnar ræða list og annars konar andóf í samtali við Maríu Lilju.

Ep 1249Græna borðið 4. þáttur - Ísland er ekki orkueyja
Miðvikudagur 4. mars Græna borðið 4. þáttur - Ísland er ekki Orkueyja Græna borðið: Ísland er ekki orkueyja, eins og stjórnvöld og Landsvirkjun halda fram, segir fyrsti umhverfisráðherra lýðveldisins Júlíus Sólnes. Hann segir löngu tímabært að loka álverinu í Straumsvík sem sé komið inn í miðja byggð og barn síns tíma. Júlíus vill efla menntakerfi í þágu atvinnulífs, í stað þess að byggja á gamaldags orku- og stóriðjustefnu. Júlíus lýsir líka lýðræðislegu mikilvægi þess að orkumál og umhverfisvernd séu í aðskildum ráðuneytum. Sigmundur Ernir Rúnarsson, þingmaður Samfylkingar, tekur undir þau orð og segir til greina koma að snúa til baka í aðskilin ráðuneyti. Sigmundur telur alltof hart gengið að náttúrunni með fyrirliggjandi orkuáformum, ekki síst í vindorku. Hann lýsir því jafnframt að þrýstingur á stjórnvöld frá stórfyrirtækjum hafi aldrei verið meiri en nú. Andrés Skúlason verkefnastjóri hjá Landvernd fer yfir vindorkuáformin en 43 orkuver eru á teikniborðinu hringinn í kringum landið. Þau eru að mestu í eigu þriggja til fjögurra erlendra fyrirtækja. Kristín Helga Gunnarsdóttir og Björg Eva Erlendsdóttir, stjórna umræðum Græna borðins í dag.

Ep 1248Rauða borðið 3. mars - Ríkisútvarpið, kvennamáttur, ofbeldi og leiklist

Ep 1247Rauða borðið 2. mars - Íran, skjánotkun barna, breskir græningjar og máttur sögunnar
Mánudagur 2. mars Íran, skjánotkun barna, breskir græningjar og máttur sögunnar Innrásarstríð Bandaríkjanna og Ísrael í Íran hefur ekki farið framhjá neinum sem fylgist með heimsmálunum. María Lilja fær til sín þau Kjartan Orra Thorsson Miðausturlandafræðing og sérfræðing í málefnum Íran, Anahita Babaei aðgerðarsinna frá Íran og Magneu Marinósdóttir alþjóðastjórnmálafræðing til að ræða stöðuna. Það getur reynst dýrkeypt friðarstund að rétta barni Ipad eða síma til að foreldri fái örlitla pása til að sinna verkum sínum. Þetta segir Jóhann Ingi Óskarsson, íbúi í Eyjum. Í samtali við Björn Þorláks ræðir hann rafræna fjölskylduharmleiki. Green party unnu frækinn sigur í aukakosningum í Gorton og Denton kjördæmum Manchester í síðustu viku og hrepptu þar með sæti Verkamannaflokksins sem hefur sjaldan verið óvinsælli. Guðmundur Auðunsson, heiðursfréttaritari Samstöðvarinnar í Englandi ræðir sigur vinstrisins við Maríu Lilju. Íslendingar mættu huga meira að sögunni er kemur að hugsun og markaði, huga þarf að framgangi mjúkra innviða ekki síður en hinna hörðu. Þetta segir Karl Pétur Jónsson. Hann segir okkur geta lært af Suður-Kóreu. Björn Þorláks ræðir við hann.

Ep 1246Synir Egils 1. mars - Pólitík innanlands og utan, framboðslistar, svekkt fólk og glatt
Sunnudagurinn 1. mars Synir Egils: Pólitík innanlands og utan, framboðslistar, svekkt fólk og glatt Að venju verður farið yfir helstu fréttir líðandi stundar með góðum gestum. Rætt um nýja frambjóðendur og þá líka sem flokkar hafna. Ekki síst hjá Sjálfstæðisflokknum í Reykjavík þar sem reyndum borgarfulltrúum er fórnað fyrir nýja. Meðal helstu frétta sem verða til umfjöllunar eru 60 milljarða staðgreiðsla Kerecic á Ísafirði, Íran, Sjálfstæðisflokkur klofnar á Akureyri Þórhallur Jónsson boðar nýtt framboð. Heimir Örn Árnason og Berglindi Ósk Guðmundsdóttur eru í fyrstu sætunum hjá Sjálfstæðisflokki. Reykjadalur fær peninga sem verða þá teknir frá öðrum ámóta úrræðum. Stjórnmálaaflið sem kenndi sig við Heimaey og bæði Íris Róbertsdóttir, fráfarandi bæjarstjóri og Páll Magnússon forseti bæjarstjórnar tilheyrði, hefur hætt störfum. Heiða Björg er ekki á framboðsmynd Samfylkingarinnar. Sprengiflaugar frá Ísrael hafa dunið yfir Íran. Staðfestir er að æðstiklerkur Írans Ali Khamenei sé látinn. Vopnakaup Íslands fyrir Úkraínu, Epstein-skjölin, Dorrit og Ólafur Ragnar, eiga Íslendingar að óska eftir frekari upplýsingum? Hvað með Gaza, gleymt og grafið?

Ep 1244Rauða borðið - Helgi-spjall: Oddný Harðar
Laugardagur 28. febrúar Helgi-spjall: Oddný Harðar Oddný G. Harðardóttir ræðir lífshlaup sitt og feril og kryfur í leiðinni samnfélagið. Oddný er fyrrverandi þinkgkona og ráðherra en lætur samfélagið sig miklu varða. Björn Þorláksson ræðir við hana.