PLAY PODCASTS
Samstöðin

Samstöðin

710 episodes — Page 4 of 15

Ep 1245Föstudagur 27. febrúar: Vikuskammtur: Vika 9

Föstudagur 27. febrúar Vikuskammtur: Vika 9 Gestir að þessu sinni eru þeir: Óli Dóri, plötusnúður og athafnamaður Davíð Roach, fjölmiðlamaður Þorsteinn V. Einarsson, karlmaður og Bragi Páll, rithöfundur. Í vikunni sem leið var ýmislegt að frétta. Eins og td: Viðtal Þóru Tómasdóttur við Margrét Löf, sem varð föður sínum að bana, flokkarnir héldu áfram að birta lista fyrir sveitastjórnir, dóru björt hafnað af samfylkingu, lögreglustjórinn á Vestfjörðum, Trump, Epstein, Gaza, Íran, Prins Póló og Evrópusambandið, peptíð og áhrifavaldar, Mannréttindastjóri Evrópuráðsins gagnrýndi barnafangelsi Viðreisnar og allskonar fleira sem okkur dettur í hug að ræða.

Feb 27, 20261h 1m

Ep 1243Fimmtudagur 26. febrúar: Reynsluboltar, Vinstrið, Bekkurinn, Kúba og lífsorka

Fimmtudagur 26. febrúar Reynsluboltar, Vinstrið, Bekkurinn, Kúba og lífsorka Reynsluboltar í kvöld ræða þjóðmál og fréttir. Þau Helga Vala Helgadóttir lögmaður, Páll Valsson rithöfundur og Jón Trausti Reynisson, blaðamaður á Heimildinni spjalla um umdeild efnistök Rúv í morðmáli og fleira. María Lilja fær til sín Sönnu Magdalenu Mörtudóttur og Líf Magneudóttur til samtals á stöðu vinstrisins í upptakti sveitarstjórnarkosninga. Sigurjón Magnús ræðir við Hörð Magnússon íþróttafréttamann um sportið. María Lilja ræðir Kúbu við fulltrúa Vináttufélags Íslands og Kúbu, Eyjólf B. Eyvindarson og Gylfa Pál Hersi. Við endum þáttinn á pælingum um lífsorku. María Lilja spjallar við Þorvald Inga Þórsson.

Feb 26, 20264h 24m

Ep 1242Rauða borðið 25. feb - Trumptíminn, pólitíkin í Englandi, fákeppni, spilling og búsvæðing

Miðvikudagur 25. febrúar Trumptíminn, pólitíkin í Englandi, fákeppni, spilling og búsvæðing Baldur Þórhallsson, stjórnmálafræðingur, Margrét Valdimarsdóttir afbrotafræðingur og Magnús Helgason, sagnfræðingur mæta í Trumptímann sem er í umsjón Maríu Lilju að þessu sinni. Guðmundur Auðunsson, heiðursfréttaritari Samstöðvarinnar í Englandi ræðir við Maríu Lilju um vendingar í pólitíkinni ytra í kjölfar handtöku lávarðarins Peters Mandelssons og Andrés fyrrum prins. Ragnar Önundarson, viðskiptafræðingur og fyrrum bankamaður, kom til Sigurjóns M. og talaði um hættulega fákeppni og íslenskt viðskiptaumhverfi. Pétur Eggerz ræðir spillingu í efstu lögum við Maríu Lilju. Árni Guðmundsson forvarnafulltrúi er áhyggjufullur vegna aukins aðgengis að áfengi, sem dæmi í íþróttahreyfingunni, Björn Þorláks ræðir við hann.

Feb 25, 20263h 46m

Ep 1241Græna borðið - 3. þáttur: Alþingi hefur brugðist

Miðvikudagur 25. febrúar Græna borðið - 3. þáttur: Alþingi hefur brugðist Umhverfis orku og auðlindaráðherra ber ekki virðingu fyrir niðurstöðum rammaáætlunar og tekur ákvarðanir sem byggja ekki á þekkingu og heildarsýn. Landsvirkjun beitir þrýstingi til að breyta niðurstöðum rammaáætlunar. Gestir 3. þáttar Græna borðsins voru Stefán Gíslason, fyrrverandi formaður verkefnisstjórnar rammaáætlunar, Árni Finnsson, formaður Náttúruverndarsamtaka Íslands og Jóna Bjarnadóttir framkvæmdastjóri samfélags og umhverfissviðs Landsvirkjunar. Umræðum stjórnuðu Björg Eva Erlendsdóttir og Páll Ásgeir Ásgeirsson.

Feb 25, 202657 min

Ep 1240Rauða borðið 24. feb - Höfuðborgarsvæðið, lagaleg álitamál, landsbyggðir, Íran og gervigreind

Þriðjudagur 24. febrúar Höfuðborgarsvæðið, lagaleg álitamál, landsbyggðir, Íran og gervigreind Gunnar Salvarsson ræðir við Sigurjón Magnús um breytingar á höfuðborgarsvæðinu. Gísli Tryggvason lögmaður ræðir lagaleg álitamál og réttarheimspeki þar sem mál Margrétar Löf kemur meðal annars við sögu og viðtal við hana á Rúv í gær. Doktor Þóroddur Bjarnason ræðir byggðir landsins í tengslum við tækniumbreytingar. María Lilja Þrastardóttir ræðir við Kjartan Orra Thorsson um Íran. Björn Þorláks ræðir við Þorstein Siglaugsson heimspeking og sérfræðing í gervigreind um samfélagsbreytingar.

Feb 24, 20264h 3m

Ep 1239Rauða borðið 23. feb - Virkir í athugasemdum, íslenskan, Mamma, hamfaratónlist og umhverfismál

Mánudagur 23. febrúar Virkir í athugasemdum, íslenskan, Mamma, hamfaratónlist og umhverfismál Einar Steingrímsson, stærðfræðingur og virkur í athugasemdum ræðir við Maríu Lilju um mann -og kvenréttindi og umræðuhefðina á netinu. Ómar Örn Magnússon skólastjóri Hagaskóla blandar sér í leik þeirra sem vilja ræða stöðu íslenskunnar í samtali við Björn Þorláks. Kolbeinn Þorsteinsson rifjar upp erfiða æsku í samtali við Sigurjón Magnús. Hann er sonur Ástu Sigurðardóttur og Þorsteins frá Hamri. Sönghópurinn Spectrum syngur um snjóflóð, aurskriður og eldgos. Þau Helga Margrét Marzellíusardóttir tónskáld, Ingveldur Ýr Jónsdóttir kórstjóri, Ólafur Stephensen tenór og Margrét Pálsdóttir ræða við Björn Þorláks. Þröstur Ólafsson er sannur umhverfissinni. Hann spyr áleitinna spurninga í samtali við Sigurjón Magnús.

Feb 23, 20264h 6m

Ep 1237Bridgeþátturinn - Kempur og nýliðar

Sunnudagurinn 22. febrúar Bridgeþátturinn - Kempur og nýliðar Systkinin Bæring og Harpa Henrysbörn lýsa reynslu sinni af því að keppa á stórmóti í bridds sem nýliðar í íþróttinni. Ljósbrá Baldursdóttir og Matthías Þorvaldsson eru hjón og samherjar í bridds. Björn Þorláks hefur umsjá með umræðunni.

Feb 22, 202646 min

Ep 1238Synir Egils 22. feb - Börn, glæpir, efnahagsmál, flokkar og heimsmálin

Sunnudagurinn 22. febrúar Synir Egils: Börn, glæpir, efnahagsmál, flokkar og heimsmálin Bræðurnir Sigurjón Magnús og Gunnar Smári Egilssynir taka á móti gestum og ræða við þá um helstu fréttir og stöðuna í stjórnmálum. Að þessu sinni koma þau Drífa Snædal talskona Stígamóta, Brynjar Níelsson lögfræðingur og fyrrum þingmaður og Lilja Dögg Alfreðsdóttir formaður Framsóknar og ræða fréttir vikunnar og stöðu mála, hér heima og erlendis. Sigurjón ræðir við Þorstein Pálsson um pólitíkina hér heima, heimsmálin og þær breytingar sem hafa orðið frá því að Þorsteinn hóf þátttöku í pólitískri baráttu

Feb 22, 20261h 54m

Ep 1236Rauða boðið: Helgi-spjall: Arna Magnea

Laugardagur 21. febrúar Helgi-spjall: Arna Magnea Danks Arna Magnea Danks leikkona, áhættuleikari og aktivisti segir frá æsku sinni og uppruna, afleiðingum þess að fæðast sem stelpa í líkama stráks, dugnaðinum sem hún erfði frá foreldrum sínum höfnuninni sem hún upplifði, áföllum og sigrum.

Feb 21, 20262h 39m

Ep 1235Rauða borðið - Vikuskammtur: Vika 8

Föstudagur 20. febrúar Vikuskammtur: Vika 8 Í Vikuskammt við Rauða borðið mæta í dag þau Borgar Magnason tónskáld og bassaleikari, Lína Thoroddsen klippari, Pétur Ben tónlistarmaður og Saga Kjartansdóttir, sérfræðingur í vinnumarkaðsmálum hjá Alþýðusambandinu og ræða fréttir vikunnar sem einkenndust af falli úr háum söðli, stéttakúgun, illri meðferð á börnum, hótunum um hernað, átökum og ásökunum.

Feb 20, 20261h 40m

Ep 1234Rauða borðið 19. feb - Mengun, reynsluboltar, verðbólga og eldhestur

Fimmtudagur 19. febrúar Mengun, reynsluboltar, verðbólga og eldhestur Við hefjum leik á mengaðri borg. Þorsteinn Jóhannsson, sérfræðingur hjá Umhverfisstofnun, Diljá Ámundadóttir, móðir langveiks barns og Sigurður Örn Hilmarsson, þingmaður Sjálfstæðisflokks ræða svifryk og fleira, stöðuna og úrbætur. Oddný Harðardóttir, fyrrum þingmaður og ráðherra, Ágúst Borgþór Sverrisson fréttastjóri DV og Björg Eva Erlendsdóttir fjölmiðlakona, nú hjá Landvernd, ræða fréttir líðandi stundar. Barnaníð, Andrew, þingið, klaufaskap og aðvífandi innrás í Írak ber á góma. Gunnlaugur Guðmundsson stjörnuspekingur segir Gunnari Smára frá ári eldhestsins sem var að byrja, en því mun fylgja hraði og róttækar breytingar samkvæmt kínverskri stjörnuspeki. Már Mixa fjármálafræðingur og dósent við HÍ, styður ekki áform ríkisstjórnarinnar um afnám verðtryggingar. Hann segir verðtryggð lán bestu leiðina til að komast inn á íbúðamarkað í samtali við Björn Þorláks.

Feb 19, 20264h 10m

Ep 1233Græna borðið 2. þáttur - Laxeldi í sjókvíum: bölvun eða búhnykkur?

Miðvikudagur 18. febrúar Græna borðið: Laxeldi í sjókvíum Í öðrum þætti af Græna borðinu setjast menn niður og skiptast á skoðunum um væntanlegt frumvarp um lagareldi. Páll Ásgeir Ásgeirsson stjórnaði þættinum en við borðið sátu: Jón Kaldal sem hefur látið til sín taka í umræðu um laxeldi undanfarin misseri. Þar sat einnig Arnar Pálsson erfðafræðingur sem er sérfróður um margt sem lýtur að laxfiskum. Síðast en ekki síst situr þar Gylfi Ólafsson formaður bæjarráðs í Ísafjarðarbæ. Hann hefur tekið upp hanskann fyrir þessa fyrirhuguðu lagasetningu og heldur því áfram í þættinum.

Feb 19, 20261h 2m

Ep 1232Rauða borðið 18. feb - Vændi, ill meðferð á börnum, áfengi, Trump, VG og sniðganga

Miðvikudagur 18. febrúar Vændi, ill meðferð á börnum, áfengi, Trump, VG og sniðganga Jón Gnarr þingmaður og Guðný S. Bjarnadóttir stjórnarformaður Vitundar, samtaka gegn kynbundnu ofbeldi ræða við Gunnar Smára um vændi, slaufun, ábyrgð og annað sem tilheyrir umræðunni um átök milli kynjanna. Gunnar Sigurðsson leikstjóri og ferðaþjónustuaðili segir sögu sína í samtali við Björn Þorláks en Gunnar var sviptur skólagöngu sem barn og flakkaði milli heimila. Lára G. Sigurðardóttir, læknir og doktor í lýðheilsuvísindum fer yfir umræðu sl. daga um aðgengismál að áfengi með Maríu Lilju. Bjarni Randver Sigurvinsson guð- og trúarbragðafræðingur og Ólafur Þ. Harðarson stjórnmálafræðingur ræða við Gunnar Smára um áhrif Trump, ekki síst kröfu hans manna um Evrópa verði eins og Bandaríki Trump. Stefán Pálsson, Líf Magneudóttir og Maarit Kaipainen fara yfir stöðuna hjá VG. Þau bjóða sig öll fram í forvali VG og eru á því að flokkurinn standi á tímamótum. Björn Þorláks ræðir við þau. Ragnhildur Hólmgeirsdóttir, sjálfboðaliði hjá sniðgönguhreyfingunni ræðir við Maríu Lilju um sniðgöngu fyrir Palestínu og segir frá viðburði sem haldinn verður í Norræna húsinu tengdum málefninu.

Feb 18, 20265h 7m

Ep 1231Rauða borðið 17. feb - Börn, Kúba, áföll, íslensk menning og húmanismi

Þriðjudagur 17. febrúar Börn, Kúba, áföll, íslensk menning og húmanismi Doktor Ársæll Arnarsson setur Bakkakotsmálið í samhengi í spajlli við Björn Þorláks. María Lilja ræðir við Tamilu Gaméz Garcell, kennara um ástandið á Kúbu en þar ríkir mikil mannúðarkrísa. Áföll og aðstandendur verða helsta umræðuefni doktors Ólafs Ævarssonar geðlæknis og Björns Þorlákssonar í fjórða þætti þeirra félaga um geðveiki. Kristín Gunnlaugsdóttir myndlistarkona, Benedikt Erlingsson leikstjóri, Björn Þorsteinsson heimspekingur og Gígja Sara Björnsson sviðshöfundur ræða stöðu íslenskrar menningu við Gunnar Smára, um vestræna menningu og gildi. Rithöfundurinn Bergsveinn Birgisson segir Birni Þorláks frá húmanisma á viðsjárverðum tímum.

Feb 17, 20265h 7m

Ep 1230Rauða borðið 16. feb - Rósin, fjölmiðlar, eitruð karlmennska, kynlífssiðfræði, veikindaréttur, Trump-Evrópa

Mánudagur 16. febrúar Rósin, fjölmiðlar, eitruð karlmennska, kynlífssiðfræði, veikindaréttur, Trump-Evrópa Guðmundur Ingi Þóroddsson, formaður landsfélagsins Rósarinnar, aðildarfélags Samfylkingarinnar og formaður Afstöðu ræðir mögulegt klofningsframboð í Reykjavík en fulltrúum Rósarinnar var hafnað í prófkjöri Samfylkingarinnar fyrir næstu borgarstjórnarkosningar. Þórhallur Gunnarsson blaðamaður hefur verið gagnrýninn á fyrirkomulag styrkja til fjölmiðla. Hann segir alls ekki tryggt að fjölmiðlastyrkir fari í blaðamennskuna sjálfa. Þórhallur ræðir veika stöðu einkarekinna fjölmiðla í samtali við Björn Þorláks. Þórhallur Gunnarsson blaðamaður hefur verið gagnrýninn á fyrirkomulag styrkja til fjölmiðla. Hann segir alls ekki tryggt að fjölmiðlastyrkir fari í blaðamennskuna sjálfa. Þórhallur ræðir veika stöðu einkarekinna fjölmiðla í samtali við Björn Þorláks. Katrín Pálma Þorgerðardóttir, doktorsnemi ræðir við Maríu Lilju um doktorsverkefni um heimspeki og kynlífssiðfræði út frá metoo byltingunni. Hefur samfélaginu orðið eitthvað ágengt með baráttunni eða hefur orðið bakslag? Erum við á villigötum með tilraunir til að pakka mannlegum samskiptum inn í sömu tvíhyggju og ríkir í lagaumhverfinu, hvað er samþykki? Reglulega blossar upp umræða um veikindi og veikindarétt sem sumpart er ójafn á einkamarkaði og hjá hinu opinbera. Einn fyrirlesara á þingi um þessi mál verður Gunnar Ármannsson lögmaður sem ræðir misnotkun réttarins í samtali við Björn Þorláks. Hilmar Þór Hilmarsson prófessor fer yfir helstu strauma af öryggisráðstefnunni í Munchen í spjalli við Gunnar Smára um heimsmálin.

Feb 17, 20265h 5m

Ep 1229Synir Egils 15. feb - Ógnargróði, verðbólga, öryggi, spilling, bráðavaktin

Sunnudagurinn 15. febrúar Synir Egils: Ógnargróði, verðbólga, öryggi, spilling, bráðavaktin Bræðurnir Sigurjón Magnús og Gunnar Smári Egilssynir taka á móti gestum og ræða við þá um helstu fréttir og stöðuna í stjórnmálum. Að þessu sinni koma þau Pawel Bartozsek formaður utanríkismálanefndar Alþingis, Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar og Grímur Atlason framkvæmdastjóri Geðhjálpar og ræða fréttir vikunnar, stjórnmál og samfélag. Þeir bræður fara yfir pólitíkina með sínu nefi og síðan koma þær Helga Rósa Másdóttir formaður Félags íslenskra hjúkrunarfræðinga, Steinunn Þórðardóttir formaður Læknafélags Íslands og Sandra B. Franks formaður Sjúkraliðafélags Íslands og ræða grafalvarlega stöðu á bráðavaktinni og í heilbrigðiskerfinu.

Feb 15, 20262h 32m

Ep 1227Rauða borðið - Helgi-spjall: Bjarni Harðar

Laugardagur 14. febrúar Helgi-spjall: Bjarni Harðar Bjarni Harðarson bóksali er gestur vikunnar í helgi-spjalli Samstöðvarinnar. Hann hefur sett mark sitt á menningar- og útgáfumál og var um tíma þingmaður svo fátt eitt sé nefnt. Björn Þorláks ræðir við Bjarna.

Feb 14, 20262h 4m

Ep 1228Rauða borðið - Vikuskammtur: Vika 7

Föstudagur 13. febrúar Vikuskammtur: Vika 7 Í Vikuskammti föstudaginn 13. febrúar ræða fréttir vikunnar þau Páll Ásgeir Ásgeirsson blaðamaður, Hallur Magnússon atvinnurekandi, Hanna Kristín Skaftadóttir háskólakennari á Bifröst og Elva Dögg Hafberg uppistandari. Umræðuefni verða ásamt fleiru ofsagróði bankanna, mölvuð heilbrigðisþjónusta, umhverfismál, formannsslagur í Framsókn, Kúba, ólga á Bifröst og veðrið.

Feb 13, 20261h 23m

Ep 1226Rauða borðið 12. feb - Framsókn, reynsluboltar, Salka, strandminjar og íslenskan

Fimmtudagur 12. febrúar Framsókn, reynsluboltar, Salka, strandminjar og íslenskan Nýs formanns Framsóknarflokksins, sem kosinn verður um helgina, bíður það erfiða verkefni að reisa flokkinn við til fylgis við nýja tíma. Flokkurinn er í kreppu og mælist með lágt fylgi. Af er sem áður var í þeim efnum. Ólafur Þ. Harðarson stjórnmálafræðingur fer yfir samtímann og sögu flokksins í spjalli við Björn Þorláks. Erna Bjarnadóttir, Guðmundur Þ. Ragnarsson og Þorsteinn Sæmundsson voru gestir Sigurjóns Magnúsar í þættinum að þessu sinni. Stjórnmálin, lífeyrir, kynslóðir og margt fleira bar á góma. Lífsreynsla þeirra leynir sér ekki. Unnur Ösp Stefánsdóttir leikkona og Björn Thors leikstjóri ræða um Sölku – ástina og dauðann, um einleiki og frásagnarleikhús við Gunnar Smára. Mikil söguleg verðmæti glatast þar sem strandminjar verða eyðileggingunni að bráð á hverju ári. Eyþór Eðvarðsson, sem er einlægur áhugamaður um varðveislustrtrandminja settist niður með Sigurjóni Magnúsi. Tilefnið var hvernig hafið hefur leikið Reynisfjöru. Guðmundur Andri Thorsson rithöfundur ræðir stöðu íslenskunnar í samtali við Björn Þorláks. Deilur sveitarstjórnarfulltrúa á Vopnafirði ber á góma í því samhengi, læsi barna og fleira.

Feb 12, 20264h 32m

Ep 1225Sjávarútvegsspjallið 76. þáttur - Strandveiðikvóti

Fimmtudagur 12. febrúar Sjávarútvegsspjallið - Strandveiðikvóti Grétar Mar og Ólafur "ufsi" Jónsson ræða við innviðaráðherra, Eyjólf Ármannsson, um Strandveiðikvóta og önnur kvótamál.

Feb 12, 20261h 5m

Ep 1224Rauða borðið 11. feb - Staðsetning geðdeildar, Trumptíminn, Réttur er settur og trúverðugleiki

Miðvikudagur 11. febrúar Staðsetning geðdeildar, Trumptíminn, Réttur er settur og trúverðugleiki Margir lýsa vaxandi áhyggjum af staðsetningu nýja Landspítalans. Hildigunnur Sverrisdóttir ræðir í samtali við Björn Þorláks ýmis álitaefni er tengjast staðsetningunni og mikilvægi geðverndar. Hún deilir jafnframt persónulegri sögu. Þau Guðmundur Hálfdanarson prófessor í sagnfræði, Bryndís Ísfold Hlöðversdóttir ráðgjafi og aðjúnkt við Háskólann á Bifröst og Brynja Elísabeth Halldórsdóttir dósent á menntavísindasviði HÍ mæta í Trumptímann til Laufeyjar Líndal að þessu sinni. Farið er yfir fréttir vikunnar úr landi Trump sem að venju eru margar og skrautlegar og misskemmtilegar. Gísli Tryggvason lögmaður ræðir júritísk álitamál sem tengjast fréttum líðandi stundar í samtali við Björn Þorláks. Epstein-skjölin, jöfnun atkvæðisréttar í tengslum við nýja stjórnarskrá, gervigreind og börn og fleira ber á góma. Hefur trúverðugleiki ríkisstjórnarinnar beðið hnekki með háu vaxtastigi og verðbólgu? Hvað með ESB? Eiríkur Bergmann, prófessor í stjórnmálafræði, ræðir stöðuna og horfurnar við Björn Þorláks.

Feb 11, 20264h 21m

Ep 1223Græna borðið - 1. þáttur: Er náttúran munaðarlaus málstaður?

Miðvikudagur 11. febrúar Græna borðið: Er náttúran munaðarlaus málstaður? Græna borðið er vettvangur umræðu um náttúruvernd og umhverfismál. Hópurinn sem stendur að baki þættinum telur að núverandi stjórnvöld sinni umhverfismálum og náttúruvernd lítið eða ekkert og fari beinlínis á svig við vilja kjósenda í stórum málum. Í fyrsta þættinum undir stjórn Páls Ásgeirs Ásgeirssonar var rætt um stöðu náttúruverndar í víðu samhengi. Þáttakendur voru: Tryggvi Felixsson hagfræðingur og leiðsögumaður og þekktur baráttumaður á sviði umhverfisverndar. Jón Kaldal hefur mjög látið til sín taka í þessari umræðu, sérstaklega í baráttu gegn laxeldi í sjókvíum við Ísland. Rósa Björg Brynjólfsdóttir sat lengi á Alþingi fyrir Vinstri-græna. Hún hefur lengi tekið þátt í náttúruvendarbaráttu í ýmsum myndum og starfar enn fyrir Vinstri-græna.

Feb 11, 20261h 8m

Ep 1222Rauða borðið 10. feb - Ofurkraftar, íslensk menning, sprúttsala og leiksskólar

Þriðjudagur 10. febrúar Ofurkraftar, íslensk menning, sprúttsala og leiksskólar Ólafur Ævarsson geðlæknir heldur áfram greiningum á geðveiki og umræðu í samtali við Björn Þorláks. Þeir ræða mátt persónuleikans þegar andlegar krísur ógna heilsu fólks. Ólafur gefur hollráð á sama tíma og leitast er við að brjóta niður veggi fordóma og skammar. Auður Jónsdóttir rithöfundur og blaðamaður, Ragnar Helgi Ólafsson skáld og bókahönnuður, Rán Flygenring bókarhöfundur og Viktoría Blöndal höfundur og leikstjóri ræða við Gunnar Smára um stöðu íslenskrar menningar á viðsjárverðum tíma. Dr. Lára Sigurðardóttir, læknir og lýðheilsufræðingur, hefur lengi varað við aukinni nikótínneyslu ungs fólks, ekki síst með síaukinni notkun nikótínpúða. Lára finnur einnig að auknu aðgengi að áfengi. Ekki síst hversu langt er gengið í áfengissölu. Það er Sigurjón Magnús sem ræðir við Láru. Kristín Dýrfjörð býr yfir mikilli reynslu af leikskólum, jafnt sem starfsmaður, stjórnandi og háskólakennari. Hún segir umræðu á villigötum um leikskólana og ræðir úrbætur í samtali við Björn Þorláks.

Feb 10, 20264h 5m

Ep 1221Rauða borðið 9. feb - Afsögn Ástu Lóu, oddvitar, kjarasamningar, Bakkakot og Starmer

Mánudagur 9. febrúar Afsögn Ástu Lóu, oddvitar, kjarasamningar, Bakkakot og Starmer Ásta Lóa Þórsdóttir þingmaður Flokks fólksins og fyrrum ráðherra gerir upp í samtali við Björn Þorláks dagana áður en hún lét af embætti. Hún segir að starfsfólk ráðuneytis hennar hafi aldrei mætt öðrum eins ágangi og vilja fjölmiðlafólks til að þefa uppi hneyksli. Pétur H. Marteinsson oddviti Samfylkingarinnar í borginni og Sanna Magdalena Mörtudóttir oddviti ónefnds vinstra framboðs ræða borgarmálin við Gunnar Smára; hugmyndabaráttuna, stéttaskiptingu, húsnæðismálin, leikskóla, borgarlínu og fleira. Finnbjörn Hermannsson, forseti ASí, settist niður með Sigurjóni Magnúsi og sagði frá þeirri ógnarlegu stöðu sem virðist vera að teiknast upp, að launasamningum verði sagt upp. Salvör Nordal, umboðsmaður barna, ræðir við Sigurjón Magnús um Bakkakotsmálið og Guðmundur Auðunsson hagfræðingur og fréttaritari Samstöðvarinnar í London ræðir við Gunnar Smára um áhrif Epstein-skjalanna á stöðu Keir Starmer.

Feb 9, 20264h 7m

Ep 1220Synir Egils 8. feb - Framboð, börn, efnahagur og Epstein

Sunnudagurinn 8. febrúar Synir Egils: Framboð, börn, efnahagur og Epstein Bræðurnir Sigurjón Magnús og Gunnar Smári Egilssynir taka á móti gestum og ræða við þá um helstu fréttir og stöðuna í stjórnmálum. Að þessu sinni koma þau Þórhildur Sunna Ævarsdóttir fyrrum þingkona Pírata, Ásgeir Brynjar Torfason ritstjóri og Andrea Sigurðardóttir blaðakona á Morgunblaðinu og ræða fréttir vikunnar og stöðu samfélagsins. Síðan ræða þau Auður Önnu Magnúsdóttir framkvæmdastjóri Kvenréttindafélags Íslands, Jenný Kristín Valberg teymisstjóri í Bjarkarhlíð, miðstöðvar fyrir þolendur ofbeldis og Kristján Guy Burgess alþjóðastjórnmálafræðingur Epstein-skjölin, hverju þau lýsa og hvaða áhrif þau kunna að hafa á stjórnmálin víða um okkar heimshluta. Í lokin fara þeir bræður yfir pólitíkina með sínu nefi.

Feb 8, 20262h 28m

Ep 1218Rauða borðið - Helgi-spjall: Benedikt Kristjánsson

Laugardagur 7. febrúar Helgi-spjall: Benedikt Kristjánsson Benedikt Kristjánsson er tenór sem ungur vann afrek í sönglist sinni og hefur heldur bætt í eftir því sem liðið hefur á ferilinn. Hvaða sögu hefur hann að segja? Benedikt er gestur Björns Þorlákssonar í helgispjalli vikunnar.

Feb 7, 20261h 42m

Ep 1219Rauða borðið - Vikuskammtur: Vika 6

Föstudagur 6. febrúar Vikuskammtur: Vika 6 Í Vikuskammt við Rauða borðið mæta í dag þau Árni Snævarr blaðamaður, Ester Bíbí Ásgeirsdóttir bassaleikari, Kolfinna Baldvinsdóttir sagnfræðingur og kvikmyndagerðarkona og Þorkell Heiðarsson formaður Félags íslenskra náttúrufræðinga og ræða fréttir vikunnar sem einkenndust af uppljóstrunum, hneykslun, okurvöxtum, mótmælum, tuði og áköfum söluræðum.

Feb 6, 20261h 27m

Ep 1217Rauða borðið 5. feb - Rifist í þinginu, lagareldi, reynsluboltar og borgin þvert á flokka

Fimmtudagur 5. febrúar Rifist í þinginu, lagareldi, reynsluboltar og borgin þvert á flokka Alþingismennirnir Bryndís Haraldsdóttir og Dagur B. Eggertsson tókust á um Evrópusambandið og Nató og öryggismál fyrir Ísland. Dagur telur að öryggi Íslands myndi aukast við aðild að Evrópusambandinu meðan Bryndís telur það fjarri lagi. Jóhannes Sturlaugsson líffræðingur og Þorgerður María Þorbjarnardóttir hjá Landvernd ræða frumvarpsdrög Hönnu Katrínar um lagareldi. Þau eru gagnrýnin á stöðu mála út frá umhverfisvernd og fleiri þáttum. Björn Þorláks ræðir við þau. Lárus Guðmundsson Miðflokksmaður og atvinnurekandi, Þórdís Lóa Þórhallsdóttir, Viðreisn og Kristín Vala Ragnarsdóttir prófessor emerita ræða fréttir líðandi stundar og þjóðmál með Birni Þorláks. Barnavernd, háskólakrísu, heimsöryggi, efnahags- og umhverfismál ber á góma. Sigfús Aðalsteinsson fasteignasali og Baldur Borgþórsson ráðgjafi eru í tveimur efstu sætum á lista Borgarinnar okkar, flokks sem enn hefur ekki mælst með fylgi. Þeir ætla samt að bjóða sig fram og segja Gunnari Smára hvers vegna.

Feb 5, 20264h 19m

Ep 1216Sjávarútvegsspjallið - 75. þáttur: Makrílkvóti og fiskveiðistjórn

Fimmtudagur 5. febrúar Sjávarútvegsspjallið - 75. þáttur Grétar Mar ræðir við Sigurjón Þórðarson, þingmann Flokks fólksins og formann fjárlaganefndar.

Feb 5, 20261h 0m

Ep 1215Rauða borðið 4. feb - Trump, listir, áfengi og Framsókn

Miðvikudagur 4. febrúar Trump, listir, áfengi og Framsókn Sveinn Máni Jóhannesson sagnfræðingur, Friðjón R. Friðjónsson borgarfulltrúi og Margrét Valdimarsdóttir afbrotafræðingur ræða við Gunnar Smára áhrif Trump á hugmyndir okkar, bandarískt samfélag og heiminn. Stuðningur við listir er á undanhaldi. Skapandi greinum hefur verið hent út af borðinu. Fjölmörg börn eru á biðlista í tónlistarnámi. Hallveig Rúnarsdóttir söngkona og kennari, Gunnar Guðbjörnsson söngvari og skólastjóri, Kristinn Örn Kristinsson píanisti og píanókennari og Freyja Gunnlaugsdóttir músíkant og skólameistari MÍT ræða Grammy-ræðu Laufeyjar og hvernig Ísland geti áfram skapað öflugt umhverfi fyrir listina. Björn Þorláks stýrir umræðunni. Framsóknarflokkurinn er á krossgötum og styttist í að flokksmenn kjósi sér nýjan læiðtoga. Halla Hrund Logadóttir, þingmaður Framsóknarflokksins, ræðir pólitík og stöðu flokksins í samtali við Björn Þorláks. Árni Guðmundsson forvarnarfulltrúi ræðir í samtali við Björn Þorláks normalíseringu áfengisdrykkju við öll tækifæri, siðleg sem ósiðleg.

Feb 4, 20264h 3m

Ep 1214Rauða borðið 3. feb - Forval Vg, íslensk menning, Inngrip vegna olíufélaganna og fjölmiðlar

Þriðjudagur 3. febrúar Forval Vg, íslensk menning, Inngrip vegna olíufélaganna og fjölmiðlar Við hefjum leik á umræðu fjögurra frambjóðenda í VG. Átta vilja verða borgarfulltrúar VG í borgarstjórnarkosningum í vor. Auður Alfífa Ketilsdóttir, Finnur Ricart Andrason, Steinar Harðarson og Hlynur Már Ragnheiðarson sem gefa kost à sér í forvali, ræða við Björn Þorláks um framboðið, áherslur og möguleikana. Gígja Sara Björnsson sviðslistakona, Páll Baldvin Baldvinsson eftirlaunamaður, Þórhildur Þorleifsdóttir leikstjóri og Sverrir Norland rithöfundur ræða við Gunnar Smára um íslenska menningu á viðsjárverðum tímum. Runólfur Ólafsson hjá FÍB ræðir hvort hið opinbera þurfi með inngripi að siða olíufélögin svo verðhækkanir á eldsneyti fari ekki úr böndunum sem hefur áhrif á verðbólgu. Saga olíufélaga er blóði drifin er kemur að verðsamráði hér á landi. Björn Þorláks ræðir við Runólf. Skúli Bragi Geirdal hjá Netvís kynnir samnorræna könnun sem sýnir að Íslendingar hegða sér sumpart töluvert með öðrum hætti en hinar norðurlandaþjóðirnar er kemur að notkun fjölmiðla og samfélagsmiðla. Fjölmiðlalæsi er ekki upp á marga fiska hér á landi. Björn Þorláks ræðir við Skúla.

Feb 3, 20263h 58m

Ep 1213Rauða borðið 2. feb - Tröllatími, Samfylkingin, ESB og öðruvísi ævistarf

Mánudagur 2. febrúar Tröllatími, Samfylkingin, ESB og öðruvísi ævistarf Helen Ólafsdóttir öryggissérfræðingur ræðir við Gunnar Smára um þokuna í heimsmálum. Þeir tveir ungliðar sem hlutu framgang í prófkjöri Samfylkingarinnar í Reykjavík á dögunum vonast til að aukin þátttaka ungs fólks í stjórnmálum leiði til breytinga. Þau Stein Olav og Bjarnveig Birta ræða við Björn Þorláks. Fyrrverandi þingmenn ræða um ESB við Rauða borðið: Ögmundur Jónasson, einn stofnanda Vinstra megin við ESB, og Helgi Hrafn Gunnarsson, stjórnarmaður í Evrópuhreyfingunni ræða við Gunnar Smára. Hjördís Eyþórsdóttir er sennilega eina konan sem hefur haft fulla atvinnu af því áratugum saman að handleika spilastokk. Árangur hennar í spilum hefur leitt til þess að hún er tilnefnd í Hall of Fame bridgespilara í Bandaríkjunum. Hún ræðir lífið og vinnuna í samtali við Björn Þorláks.

Feb 2, 20263h 50m

Ep 1211Rauða borðið - Helgi-spjall: Kristján Jóhannsson

Laugardagur 31. janúar Helgi-spjall: Kristján Jóhannsson Kristján Jóhannsson stórsöngvari er gestur okkar í Helgispjalli að þessu sinni. Hann er skemmtilegur og lífsglaður maður. Því er um að gera að hlusta samtalið. Ferillinn í óperuheiminum er ekki alltaf greiður og breiður. Sem betur fer eru „sigrarnir“ margfalt fleiri á glæstum söngferli Kristáns Jóhannssonar. Kristján rifjar upp skemmtilegar sögur af sér og öðru þekktu fólki.

Jan 31, 202658 min

Ep 1212Rauða borðið - Vikuskammtur: Vika 5

Föstudagur 30. janúar Vikuskammtur: Vika 5 Í Vikuskammti við Rauða borðið sitja í dag þau María Rut Reynisdóttir framkvæmdastjóri Tónlistarmiðstöðvar, Steinunn Rögnvaldsdóttir félags-og kynjafræðingur, Birkir Karl Sigurðsson hlaðvarpari og Reynir Traustason blaðamaður og ræða fréttir vikunnar sem einkenndust af sigrum, verðbólgu, framboðum, hótunum, deilum og nýjum hlutverkum.

Jan 30, 20261h 29m

Ep 1210Rauða borðið 29. jan - Reynsluboltar, heimsmálin, handbolti og Pétur Gunn

Fimmtudagur 29. janúar Reynsluboltar, heimsmálin, handbolti og Pétur Gunn Guðmundur Andri Thorsson rithöfundur, Valgerður Rúnarsdóttir læknir og Hallur Magnússon atvinnurekandi ræða fréttir og þjóðmál líðandi stundar. Verk ríkisstjórnar, verðbólgu, handbolta og stöðu íslenskunnar ber á góma. Björn Þorláks hefur umsjón með umræðunni. Hilmar Þór Hilmarsson prófessor fer yfir heimsmálin, friðarviðræður um Úkraínu, varnarstefnu Bandaríkjanna og fleira í samtali við Gunnar Smára. Gestir Sigurjóns í íþróttaþættinum Bekknum voru þeir Víðir Sigurðsson, margreyndur íþróttafréttamaður, og Hákon Gunnarsson sem var meðal annars framkvæmdastjóri heimsmeistarakeppninnar sem haldin var á Íslandi árið 1995. Gauti Kristmannsson, prófessor við Háskóla Íslands, ræðir í samtali við Björn Þorláks hvers vegna skólinn mun útnefna þjóðskáldið Pétur Gunnarsson sem heiðursdoktor á morgun. Afrek Péturs eru mörg og víðfeðm.

Jan 29, 20263h 35m

Ep 1209Sjávarútvegsspjallið - Þáttur 74: Hafrannsóknir í tímanna rás

Fimmtudagur 29. janúar Sjávarútvegsspjallið - Þáttur 74 Guðlaugur Jónasson og Björn Ólafsson, fiskitæknir eru gestir Grétars að þessu sinni og ræða þeir hafrannsóknir og vinnubrögð Hafrannsóknarstofnunnar.

Jan 29, 20261h 4m

Ep 1208Rauða borðið 28. jan - Trump, lögfræði, Ormstunga og Myrkir músíkdagar

Miðvikudagur 28. janúar Trump, lögfræði, Ormstunga og Myrkir músíkdagar Nichole Leigh Mosty doktorsnemi, Magnús Helgason sagnfræðingur, Guðmundur Auðunsson hagfræðingur og Ólafur Þ. Harðarson prófessor fara yfir vikuna hjá Donald Trump með Gunnari Smára og um hvernig verk hans og orð hafa áhrif á samfélagið, heiminn og hugmyndir okkar. Gísli Tryggvason lögmaður ræðir meint svindl í handbolta, harkalegar handtökur fyrir norðan, heimsmálin, Trump og ýmis lagaleg álitaefni sem tengjast fréttum líðandi stundar í samtali við Björn Þorláks. Höfundarnir Hafsteinn Níelsson og Ólíver Þorsteinsson og leikararnir Jakob van Oosterhout og Ilmur Kristjánsdóttir ræða söngleikinn Ormstungu við Gunnar Smára. Stórhátíðin Myrkir músíkdagar hefs by t á morgun í Reykjavík og verður boðið upp á sannkallaða veizlu næstu daga. Gunnhildur Einarsdóttir framkvæmdastjóri hátíðarinnar fer yfir sviðið með Birni Þorláks.

Jan 28, 20263h 21m

Ep 1207Rauða borðið 27. jan - Jarðhræringar, menning, gervigreind, flóttafólk og blankt listafólk

Þriðjudagur 27. janúar Jarðhræringar, menning, gervigreind, flóttafólk og blankt listafólk Þorvaldur Þórðarson eldfjallafræðingur gagnrýnir harðlega hvernig ráðandi hafi ýtt gagnrýnum röddum frá umræðuborðinu vegna Reykjaneselda. Hann ræðir Grindavík og örlög bæjarins sérstaklega. Þetta kemur fram í snörpu viðtali Björn Þorláks. Björn Þorsteinsson heimspekingur, Viktoría Blöndal höfundur og leikstjóri, Auður Jónsdóttir rithöfundur og blaðamaður og Atli Bollason listamaður, rýnir og eilífðaramatör ræða stöðu íslenskrar menningar á viðsjárverðum tímum við Gunnar Smára. Hverju hefur gervigreind eða vélvit eins og sumir kalla nýlega tækni breytt í stjórnmálunum – hvar liggja tækifærin og hvað ber að varast? Stefán Atli Rúnarsson, sérfræðingur í gervigreind, ræðir við Björn Þorláks. Fjárhagsleg staða listamanna er alvarleg og mikið álag, samkvæmt nýrri skýrslu. Þó betur stæðar þjóðir hafi dregið verulega úr móttöku flóttafólks er vandinn enn til staðar. Afleiðingarnar að aldrei í sögunni hafa verið fleiri á flótta. Gísli Ólafsson framkvæmdastjóri Rauða krossins á Íslandi er í efnismiklu viðtali á Samstöðinni. Jóna Hlíf Halldórsdóttir talsmaður listamanna, talar enga tæpitungu í samtali við Björn Þorláks um efnahag listafólks og úrelt viðhorf. Menningu og listir þarf að setja á dagskrá af krafti fyrir sveitarstjórnarkosningar í vor að hennar sögn.

Jan 27, 20264h 37m

Ep 1206Rauða borðið 26. jan - ESB, snjallsímabann, fjölmiðlar, okur og Ungverjaland

Mánudagur 26. janúar ESB, snjallsímabann, fjölmiðlar, okur og Ungverjaland Erna Bjarnadóttir hagfræðingur og Thomas Möller ráðgjafi eru ósammála um hvort Ísland ætti að ganga í Evrópusambandið. Þau brýna rök sín í spjalli við Gunnar Smára. Ásdís Bergþórsdóttir sálfræðingur efast um að bann á snjallsíma- og samfélagsmiðlanotkun barna muni bæta líða barna, heldur jafnvel auka vanlíðan hjá hópi barna. Ásdís útskýrir þetta fyrir Gunnari Smára. Akademískt frelsi og frelsi fjölmiðla sætir árásum. Evrópuráðið lýsir áhyggjum af öfugþróun. Henry Alexander Henrysson heimspekingur ræðir við Björn Þorláks um viðsjárverða veröld. Breki Karlsson hjá Neytendasamtökunum ræðir mál sem varða neytendur í samtali við Björn Þorláks. Olíufélögin hafa gengið á lagið eftir kerfisbreytingar og seilast djúpt í vasa neytenda með hæstu álagningu. Snærós Sindradóttir listfræðingur segir Gunnari Smára frá komandi kosningum í Ungverjalandi, þar sem Victor Orban gæti fallið eftir langan valdatíma.

Jan 26, 20264h 30m

Ep 1203Bridgeþátturinn - Stórmót fram undan

Sunnudagurinn 25. janúar Bridgeþátturinn - Stórmót framundan Tvö epísk briddsstórmót fara fram eftir helgi. Annars vegar Reykjavík Bridge Festival í Hörpu og hins vegar WBT stjörnufansinn. Dagbjört Hannesdóttir og Magnús E. Magnússon briddsspilarar ræða í samtali við Björn Þorláks spennandi tíma í briddsíþróttinni hér á landi.

Jan 25, 202640 min

Ep 1205Synir Egils 25. jan - Pólitísk átök, heimsveldi, veikt alþjóðakerfi og breytt heimsmynd

Sunnudagurinn 25. janúar Synir Egils: Pólitísk átök, innan flokka og utan, heimsveldi, veikt alþjóðakerfi og breytt heimsmynd Bræðurnir Sigurjón Magnús og Gunnar Smári Egilssynir taka á móti gestum og ræða við þá um helstu fréttir og stöðuna í stjórnmálum. Að þessu sinni koma þau Halla Gunnarsdóttir formaður VR, Kjartan Sveinsson formaður Landssambands smábátaeigenda og María Sigrún Hilmarsdóttir fréttakona og ræða fréttir vikunnar og ástand samfélags og heimsmála. Við förum síðan yfir breytta heimsmynd með Jóni Baldvin Hannibalssyni, fyrrum utanríkisráðherra og sendiherra, ekki síst stöðu Íslands og Evrópu.

Jan 25, 20262h 30m

Ep 1202Rauða borðið - Helgi-spjall: Davíð Þór

Laugardagur 24. janúar Helgi-spjall: Davíð Þór Davíð Þór Jónsson prestur segir okkur frá sjálfum sér, sigrum, baráttu og lægðum, æsku, uppruna og mótunarárum.

Jan 24, 20262h 34m

Ep 1204Rauða borðið - Vikuskammtur: Vika 4

Föstudagur 23. janúar Vikuskammtur: Vika 4 Í Vikuskammti við Rauða borðið sitja í dag þau Bjarki Þór Grönfeldt stjórnmálasálfræðingur, Elín Írís Fanndal varaþingmaður Flokks fólksins, Halldór Tinni Sveinsson framkvæmdastjóri og Sólveig Ásta Sigurðardóttir nýdoktor og ræða fréttir vikunnar sem einkennast af óreiðu, mismælum, stífum fundarhöldum, framboðum og flokkaflakki.

Jan 23, 20261h 39m

Ep 1201Rauða borðið 22. jan - Breiðavík, skólamál, reynsluboltar, Miðflokkurinn, ástarkraftur og Stuðlar

Fimmtudagur 22. janúar Breiðavík, skólamál, reynsluboltar, Miðflokkurinn, ástarkraftur og Stuðlar Ari Alexander Ergis Magnússon, Bárður Jónsson og Bergsteinn Björgúlfsson mættu í viðtal til Sigurjóns Magnúsar til að ræða um Breiðuvík, þar sem Bárður var geymdur sem barn. Sögur úr Breiðuvík voru rifjaðar upp. Ragnhildur Alda Vilhjálmsdóttir Sjálfstæðisflokki og Skúli Helgason Samfylkingunni ræða skólamál í Reykjavík við Gunnar Smára, mál sem mögulega verða meðal kosningamála í borgarstjórnarkosningum. Björk Vilhelmsdóttir félagsráðgjafi, Stefán Pálsson sagnfræðingur og Ólafur Arnarson blaðamaður ræða fréttir vikunnar, Trump, borgarmálin, prófkjör fram undan og sviptingar í pólitíkinni. Björn Þorláks stýrir umræðunni. Helgi Áss Grétarsson varaborgarfulltrúi Sjálfstæðisflokksins skipti yfir í Miðflokkinn í vikunni. Hann segir Gunnari Smára frá hvers vegna. Berglind Rós Magnúsdóttir prófessor í uppeldis- og menntunarfræði og Anna Guðrún Jónasdóttir er prófessor emerita kynjafræði við Örebro-háskóla ræða ástarkraft við Gunnar Smára en Berglind Rós er annar ritstjóra ritgerðasafnsins Ástarkraftur og Anna Guðrún einn af frumkvöðlum ástarrannsókna í heiminum. Jón K. Jacobsen, faðir drengsins sem lést í bruna á Stuðlum, ræðir lögreglurannsóknina og óhefðbundnar aðferðir hans sjálfs til að leita upplýsinga og vekja athygli á vanda barna sem falla milli skips og bryggju í kerfinu. Björn Þorláks ræðir við hann.

Jan 22, 20265h 17m

Ep 1200Miðvikudagur 21. janúar - Vinstrið, velsæld, Trump, svefnlyf og gremjulegur karl

Miðvikudagur 21. janúar Vinstrið, velsæld, Trump, svefnlyf og gremjulegur karl Vg og Vor til vinstri, hópur í kringum Sönnu Magdalenu Mörtudóttir, ætla að bjóða saman lista í borgarstjórnarkosningunum í vor. Sanna kemur að Rauða borðinu ásamt Rakel Hildardóttur, Rósu Björk Brynjólfsdóttur og Steinari Harðarsyni og ræðir við Gunnar Smára um borgarpólitíkina. Þau Kristín Vala Ragnarsdóttir jarðfræðingur og Ásgeir Brynjar Torfason hagfræðingur töluðu við Sigurjón Magnús um alþjóðasamtökin Wellbeing Economy Alliance. Trump skaffar okkur alltaf umræðuefni og við höfum Trumptíma á miðvikudögum. Að þessu sinni koma Friðjón R. Friðjónsson borgarfulltrúi, Brynja Elísabeth Halldórsdóttir dósent og Bryndís Ísfold Hlöðversdóttir stjórnmálafræðingur og ræða við Gunnar Smára um Trump og áhrif hans á heiminn, samfélagið og huga okkar. Drífa Sigfúsdóttir og Anna Almarsdóttir lyfjafræðingur og prófessor við Kaupmannahafnarháskóla ræða við Sigurjón Magnús um svefnlyf sem hafa mikil áhrif færni fólks, sljóvga hugann og geta beinlínis verið varasöm. Þór Tulinius leikari skrifaði leikritið Bústaðurinn sem sett er upp í Tjarnarbíói. Hann ræðir við Gunnar Smára um verkið ásamt Þórunni Lárusdóttur leikkonu og Ásgeiri Ásgeirssyni tónskáldi.

Jan 21, 20264h 16m

Ep 1199Rauða borðið 19. jan - Reykjavík, okur, borgarpólitík og gagnrýni

Mánudagur 19. janúar Reykjavík, okur, borgarpólitík og gagnrýni Bjarnveig Birta Bjarnadóttir, Steinunn Gyðu- og Guðjónsdóttir, Guðmundur Ingi Þóroddsson, Magnea Marinósdóttir og Sara Björg Sigurðardóttir bjóða sig öll fram í prófkjöri Samfylkingarinnar, vilja komast þar á lista, í 2. eða 3. sæti. Gunnar Smári ræðir við þau um borgina, pólitíkina og flokkinn. Runólfur Ólafsson hjá FÍB ræðir bílastæði og skort á þeim, lasnar og hættulegar götur og þróun bensínverðs og bílaskatta. Björn Þorláks ræðir við Runólf. Hvers má vænta í ljósi sameinaðs framboðs Vors til vinstri og VG? Hvað er um prófkjör Samfylkingar og Viðreisnar að segja? Hver væri uppskrift að sigurstranglegum lista og áherslum ef rýnt er í óánægju íbúa Reykjavíkur með borgarmálin samkvæmt könnunum? Ólafur Þ. Harðarson stjórnmálafræðingur spáir í spilin með Birni Þorláks. Jónas Sen tónlistarmaður og gagnrýnandi hefur stundum náð að stuða listamenn og almenning með óvæginni tónlistarkrítík. Í samtali við Björn Þorláks ræðir hann galdur tónlistar á víðum grunni og hvers vegna gagnrýnandi má ekki festast í einhverju vinsældahlutverki.

Jan 19, 20264h 2m

Ep 1198Synir Egils 18. jan - Afsögn, dómsmál, heilbrigði, heimsmál og húsnæði

Sunnudagurinn 18. janúar Synir Egils: Afsögn, dómsmál, heilbrigði, heimsmál og húsnæði Bræðurnir Sigurjón Magnús og Gunnar Smári Egilssynir taka á móti gestum og ræða við þá um helstu fréttir og stöðuna í stjórnmálum. Að þessu sinni koma þau Helga Vala Helgadóttir lögmaður, Ragnar Freyr Ingvarsson læknir og formaður Læknafélags Reykjavíkur og Lára Zulima Ómarsdóttir upplýsingafulltrúi og ræða fréttir vikunnar, stöðu samfélagsins og ástand heimsins. Ragnar Þór Ingólfsson, nýr félags- og húsnæðismálaráðherra, fer síðan yfir verkefni sín næstu árin, einkum hvernig hann ætlar að koma skikki á húsnæðismarkaðinn svo hann þjóni almenningi. Í lokin fara þeir bræður yfir pólitíkina með sínu nefi.

Jan 18, 20262h 33m

Ep 1197Föstudagur 16. janúar - Vikuskammtur: Vika 3

Föstudagur 16. janúar Vikuskammtur: Vika 3 Í Vikuskammti við Rauða borðið sitja í dag þau Gunnar Hersvein heimspekingur, Hallveig Rúnarsdóttir sópran, Jovana Pavlović mannfræðingur og Sara Riel myndlistarkona og ræða fréttir vikunnar sem einkennast af hótunum, deilum, mislukkuðu spaugi, mótmælum, von og voðaverkum.

Jan 16, 20261h 29m

Ep 1196Rauða borðið - Helgi-spjall: KK

Laugardagur 17. janúar Helgi-spjall: KK Kristján Kristjánsson, KK, kemur að Rauða borðinu með gítarinn sinn og munnhörpu og segir og syngur sögu sína, heimspeki sína og skoðanir í helgi-spjalli við Gunnar Smára

Jan 16, 20263h 9m

Ep 1195Rauða borðið 15. jan - Jákvæðni, Grænland, handbolti, harmleiki, brennivín

Fimmtudagur 15. janúar Jákvæðni, Grænland, handbolti, harmleiki, brennivín Hjálmar Gíslason frumkvöðull bregst við gagnrýni á áherslur hans sem hann hefur lýst opinberlega um að heimurinn sé betri en við fáum veður af í gegnum fjölmiðla. Björn Þorláks ræðir við Hjálmar. Hilmar Þór Hilmarsson prófessor ræðir við Gunnar Smára um sjáfstæði Grænlands og Úkraínu, nábúa stórvelda, fallandi Nató og hvert sé plan Donald Trump, ef það er þá til. Bekkurinn er nýr íþróttaþáttur á dagskrá Samstöðvarinnar. Sigurjón Magnús hefur umsjón með þættinum. Gestir fyrsta þáttarins eru Guðjón Guðmundsson, Gaupi, og Arnar Björnsson. Báðir margreyndir íþróttafréttamenn. Ísland leikur fyrsta leik sinn í Evrópumótinu í handbolta á morgun. Gaupi er faðir Snorra Steins landsliðsþjálfara. Leikurinn er aðalefni þáttarins. Leikararnir Atli Rafn Sigurðarson, Ásthildur Úa Sigurðardóttir og Ebba Katrín Finnsdóttir segja Gunnari Smára frá dótturmorði, makamorði, móðurmorði og öðrum átök í leikritunum Óreisteia og hvers vegna þetta á svona mikið erindi við okkur í dag. Þeir Árni Guðmundsson forvarnarfulltrúi sem vill hefta aðgengi að áfengi og Ólafur Stephensen, Félagi atvinnurekenda, sem er á öndverðum meiði, takast á um netsölu og lögmæti eða ólögmæti hennar í spjalli við Björn Þorláks. Mikill skaði fylgir áfengisneyslu.

Jan 15, 20264h 37m