
Morðcastið
328 episodes — Page 1 of 7
Orð dagsins er: Réttarsalur
Orð dagsins er: Bílstjóri
Orð dagsins er: Varalitur
Orð dagsins er: Doktor
Orð dagsins er: Víngerð
Orð dagsins er: Barnapíutæki
Orð dagsins er: Rúm
Orð dagsins er: Voodoo
S1 Ep 311Orð dagsins er: Kaos
Góðan daginn, fimmtudaginn. Þáttur dagsins er kaótískur í meira lagi. Bylgja ætlaði að segja okkur mál sem kom síðan í ljós að Unnur sagði árið 2022. En það var allt í lagi, af því að í staðinn fáiði að hlusta á Unni segja Elínu frá málinu sem tekið var fyrir í live þættinum á Akureyri. Skítredding af bestu gerð! Þátturinn var í boði Fulltingi, Nettó, Happy Hydrate og Ristorante. Fyrir enn kaotískari og óklipptan vikuþátt getiði farið inná www.pardus.is/mordcastid. Gerandi: Stephen Christopher Stanko Þolendur: Laura Ling og Henry Turner.
S1 Ep 310Orð dagsins er: Píanó
Góðan daginn, fimmtudaginn. Við erum stödd í Squamish í Bresku Kólumbíu í Kanada í dag og Unnur segir okkur frá barnastjörnu sem gerði garðinn frægan í Riverdale, en varð síðan enn þekktari fyrir margfalt alvarlegri hlut. Alveg hrikalega sorglegt og ömurlegt mál í dag. Þáttur dagsins er í boði Ristorante, Happy Hydrate, Nettó, Weetabix og Fulltingi. Óklipptan þátt vikunnar, áskriftarleið og ýmsa aðra þætti getið þið fundið inná www.pardus.is/mordcastid Gerandi: Ryan Grantham Þolandi: Barbara Waite
S1 Ep 308Orð dagsins er: Winston
Góðan daginn, fimmtudaginn! Gjaldkeri í banka og bílasali ganga lífið hönd í hönd með eina dúllu sér við hlið. Bylgja segir sögu ungra hjóna sem eiga lífið framundan og allt er æði. En svo fer annað þeirra út á lífið með vinnufélaga og allt fer í handaskolum. Þáttur dagsins var í boði Nettó, Happy Hydrate, Ristorante og Anamma. Óklipptan þátt getiði fundið inná www.pardus.is/mordcastid Gerandi: Reginald Reed Þolandi: Selonia Reed
S1 Ep 308Orð dagsins er: Öskubuska
Góðan daginn, fimmtudaginn! Í þætti dagsins fer Unnur með okkur alla leið til Rússlands, aftur, en í þetta skiptið segir hún frá fjölskylduföður sem finnst látinn á heimili sínu. Hið ógeðslegasta og ömurlegasta mál, og mörgum spurningum ósvarað. Þáttur dagsins er í boði Nettó, Ristorante, Happy Hydrate og Weetabix. Óklipptan þátt og áskriftarþætti má finna inná www.pardus.is/mordcastid Gerendur: Krestina, Angelina og Maria Khachaturyan Þolandi: Mikhail Khachaturyan
S1 Ep 307Orð dagsins er: Úsbekistan
Góðan daginn þennan fallega fimmtudaginn. Yndislegur smiður og fjölskyldufaðir fer í æðislega norðurljósaferð á kayaknum sínum. Lætur eiginkonu sína vita seint og illa, en svo fer einhvern vegin allt í pat. Þáttur dagsins er í boði Anamma, Happy Hydrate, Nettó og Ristorante. Þolandi og gerandi: Ryan Borgwardt
S1 Ep 305Orð dagsins er: Gúllas
Góðan daginn, fimmtudaginn! Í þætti dagsins förum við til Rússlands og Unnur segir Elínu frá máli sem gestir 5 ára afmælis Morðcastsins hafa nú þegar heyrt. Virkilega áhugavert mál og ómögulegt að deila ekki með fleirum, en í þætti dagsins daga tveir rokkarar alveg hrottalegar ákvarðanir í staðinn fyrir að fá sér bara einn kebab t.d. Þáttur dagsins er í boði Ristorante, Weetabix, Nettó og Happy Hydrate. Óklipptan þátt og áskriftarþætti má finna inná www.pardus.is/mordcastid Þolandi: Karina Barduchyan Gerendur: Maxim Golovatskikh og Yury Mozhnov
S1 Ep 205Orð dagsins er: Maðkur
Góðan daginn, fimmtudaginn! Í þætti dagsins segir Bylgja frá einu ótrúlegasta máli sem við höfum heyrt af, í öllum þessum þáttum! Ung kona lendir í flugslysi og lifir af í fjölda daga í Amazon, gleraugnalaus og í einum skó. Alveg ótrúlegt og margfalt meiri seigla en flest okkar hafa að geyma. Þáttur dagsins var í boði Nettó, Happy Hydrate, Ristorante, Dineout og Anamma.
S1 Ep 304Orð dagsins er: Símhringing
Góðan daginn, fimmtudaginn. Í dag, sem oftar, erum við staðsett í Bandaríkjunum. Það gerast margir hræðilegir hlutir, margar undarlegar ákvarðanir eru teknar en ótrúlegt en satt eru líka góðir og jákvæðir hlutir sem gerast. Sem er alltaf frábært. Þáttur dagsins er í boði: Dineout, Nettó, Ristorante, Weetabix og Happy Hydrate
S1 Ep 304Orð dagsins er: Blý
Í Bandaríkjunum (WHAT?!?!) verður æðislega sæt, góð og dugleg stelpukona ofsalega veik. Rætt er um hræringa og fæðubótarefni, leiðinlegar tengdamæður og jólahátíðir. Ásamt vangaveltum um það hvort kírópraktorar eru læknar eða miðlar. Kaos og kjaftæði alla daga. Þáttur dagsins er í boði Anamma, Nettó, Happy Hydrate, Ristorante og Dineout
S1 Ep 303Orð dagsins er: Endurbætur
Góðan daginn, fimmtudaginn! Í þætti dagsins fer Unnur með ykkur til Bandaríkjanna eins og eiginlega alltaf, í raunveruleikasjónvarp og í sturtu. Ekkert af þessu gott og hefur hræðilegar afleiðingar í för með sér. Kona er frábær, maður er vondur - við höfum heyrt þetta alltof oft. Þáttur dagsins var í boði Ristorante, Happy Hydrate, Weetabix, Nettó og Dineout. Fyrir óklippta þætti degi fyrr ásamt áskriftarþáttum og öðru aukaefni bendum við á www.pardus.is/mordcastid
S1 Ep 300Orð dagsins er: Blaðakona
Góðan daginn, fimmtudaginn Í þætti dagsins hverfum við aftur til fortíðar í margskonar skilningi orðsins. Unnur segir frá máli sem gerist í Bandaríkjunum árið 1997 þegar ung háskólastelpa var myrt og málið er óleyst í fjölda ára, en þátturinn sjálfur var jafnframt tekinn upp fyrir einhverju síðan. Þáttur dagsins er í boði Happy Hydrate, Ristorante, Nettó og Weetabix. Kíkið inná www.pardus.is/mordcastid fyrir óklippta þætti, áskriftarþætti og annað blaður.
S1 Ep 301Orð dagsins er: Sýra
Góðan daginn, fimmtudaginn! Í þætti dagsins fer Unnur með ykkur til Bandaríkjanna (sjokker) og segir ykkur frá algjörlega hrikalegu máli. Margir ungir menn taka mjög misgáfulegar ákvarðanir með vægast sagt hræðilegum afleiðingum. Þáttur dagsins er í boði Nettó, Ristorante, Happy Hydrate og Weetabix
S1 Ep 299Orð dagsins er: Peggarar
Í Winnipeg logar heldur glatt í heilu húsi og það virðist eiga rætur að rekja til konu sem hatar tengdamóður sína. Þátturinn er í boði Ristorante, Nettó, Anamma og Happy Hydrate.
S1 Ep 298Orð dagsins er: Joggarar
Góðan daginn, fimmtudaginn. Í þætti dagsins förum við til Bandaríkjanna eins og eiginlega alltaf, nema í þetta skiptið skoðum við eitt allra undarlegasta málið til þessa. Gríðarlega margar spurningar, margar samsæriskenningar, margar misgóðar upplýsingar og endalausar spurningar. Þáttur dagsins var í boði Ristorante, Happy Hydrate, Nettó og Anamma.
S1 Ep 297Orð dagsins er: Svíþjóð
GLEÐILEGT NÝTT ÁR! Á þessum fyrsta degi ársins ferðumst við bæði til Svíþjóðar og Bandaríkjanna og hittum alls konar fólk. Ákaflega misgott og misgáfulegt, eins og gengur og gerist. Þátturinn er í boði Nettó, Ristorante og Happy Hydrate.
S1 Ep 296Orð dagsins er: Jólasveinn
Góðan daginn, jólafimmtudaginn! Í þætti dagsins fer Unnur með okkur til Kanada, kíkir þar í hýrt og hamingjusamt hverfi þaðan sem síðan hverfa alltof margir menn. Málið er hið sorglegasta, sérstaklega þegar að í ljós kemur að jólasveinninn (nema augljóslega ekki hann skiljiði) sjálfur gæti verið viðriðinn málið. Hrikalegt. Þáttur dagsins er í boði: Ristorante, Happy Hydrate, Nettó, Göteborgs og 1104bymar.
S1 Ep 295Orð dagsins er: Mannfórn
Í Bandaríkjunum (sjokker) er gríðarlega löng hefð fyrir því að ungmenni stundi mikið partýstand í vorfríi. Fara gjarnan til sólríkari staða og hafa það náðugt, í sæmilegri prósentu. Það var vissulega planið í þætti dagsins en það plan gekk auðvitað alls ekki eftir, eiginlega bara þvert á móti. Þáttur dagsins er í boði Göteborgs, Nettó, Ristorante, Happy Hydrate, Forlagsins og 1104 by Mar.

S1 Ep 294Orð dagsins er: Eltihrellir
Góðan daginn, fimmtudaginn. Í þætti dagsins segir Unnur frá algjörlega hörmulegum eltihrelli sem tekur margar hræðilegar ákvarðanir áður en hann tekur síðan hræðilegustu ákvörðunina sem þú getur tekið. Lögreglan er léleg, stelpan er dásamleg og tie dye er æði. Þáttur dagsins er í boði Ristorante, Happy Hydrate, Nettó, Göteborgs, Dineout, 1104byMar og Mfitness.
S1 Ep 293Orð dagsins er: Crocs
Ætli það sé nú ekki enn og aftur fimmtudagur. Í þætti dagsins segir Bylgja frá unglingsstelpu sem skrifar í dagbók, elskar dýr, rífst við mömmu sína og fer út úr húsi í bleikum Crocs í góðri trú. Þátturinn er í boði Ristorante, 1104 by Mar, Dineout, Forlagsins, Göteborgs, Happy Hydrate og Nettó
S1 Ep 292Orð dagsins er: Snapchat
Góðan daginn, fimmtudaginn! Þáttur dagsins er af ömurlegri endanum. Unglingar taka hræðilegar ákvarðanir, hanga talsvert á netinu, en brjóta líka of mikið á öðrum. Algjör hörmungar samloka. Þáttur dagsins var í boði Dineout, Mfitness, Forlagsins, 1104bymar, Fulltingi, Göteborgs, Nettó, Ristorante og Happy Hydrate.
S1 Ep 291Orð dagsins er: Súkkulaði
Eftir fjármálahrunið mikla 1929 dundi yfir heimsbyggðina mikið volæði. Leiðindamál fannst fólki, líka fólki í Austurríki. Ein austurrísk kona reyndi að taka málin í sínar hendur en færðist heldur mikið í fang og úr varð einhvers konar spírall af dauðsföllum. Þáttur dagsins er í boði 1104 by Mar, Dineout, Forlagsins, Fulltingi, Göteborgs, Happy Hydrate, Nettó og Ristorante.
S1 Ep 290Orð dagsins er: Glugganet
Góðan daginn, fimmtudaginn! Í þætti dagsins fer Unnur með ykkur í agnarsmáa þyrpingu húsa hvar ung kona finnst látin. Margar spurningar vakna, enn fleiri harmleikir eiga sér stað og síðan þessu lauk eru bæjarbúar búnir að vera eitt stórt spurningamerki. Svoleiðis. Þáttur dagsins er í boði Happy Hydrate, Ristorante, Göteborgs kexins, Nettó, 1004bymar, Fulltingi og Forlagsins
S1 Ep 289Orð dagsins er: Typpahálsmen
Í þætti dagsins erum við í Uttar Pradesh héraði í Indlandi. Þar hittum við fyrir svakalega marga ógeðslega menn, marga feiga menn og eina óþægilega stelpu (finnst sumum). Og typpahálsmen. Við heyrum um typpahálsmen. Þáttur dagsins er í boði Ristorante, Nettó, Happy Hydrate, Fulltingi, Göteborgs og 1104 by Mar.
S1 Ep 288Orð dagsins er: Halloween
Góðan daginn, fimmtudaginn! Í dag ferðumst við til Bandaríkjanna á Hrekkjavökunni sjálfri en í staðinn fyrir mikið gerviblóð er alltof mikið alvörublóð. Margt ömurlegt gerist en sem betur fer líka eitthvað gott. Þáttur dagsins er í boði: Ristorante, Happy Hydrate, Göteborgs, Fulltingi og 1104bymar
S1 Ep 287Orð dagsins er: Facebook
Gömul og góð hjón ganga unglingsstúlku í foreldra stað. Fallegt, ekki satt? Alls ekki satt og í Georgíufylki Bandaríkjanna gengur ýmislegt á. Þátturinn er í boði Ristorante, Nettó, Happy Hydrate, Göteborgs, Fulltingi og 1104 by Mar.
S1 Ep 286Orð dagsins er: Ostakaka
S1 Ep 285Orð dagsins er: Súpupottur
Í þætti dagsins hittum við fyrir fólk í galopnu sambandi, fólk í alls konar krísu, fólk sem ferðast um með súpupott. Not in a good way! Þátturinn er í boði Ristorante, Nettó, Happy Hydrate, Fulltingi, Göteborgs og 1104 by Mar.
S1 Ep 284Orð dagsins er: Klaufhamar
Góðan daginn, fimmtudaginn. Stundum er það morð, stundum er það björgun, stundum er það 19 blaðsíðna leiðbeiningabæklingur um hvernig skal myrða með árangri. Þátturinn er í öllu falli ógeðslegur en auðvitað á sama tíma svakalega sorglegur og áhugaverður. Þáttur dagsins er í boði: Ristorante, Happy Hydrate, Nettó, Fulltingi, Göteborgs og MFitness. Óklipptan þátt má finna inná pardus.is/mordcastid
S1 Ep 283Orð dagsins er: Pappírssnifsi
Í dag eins og svo ótrúlega marga daga áður erum við staðsett í Bandaríkjum Norður Ameríku, nánar tiltekið í New York fylki. Í Syracuse býr hress týpa á besta aldri sem finnst gaman að dansa og fara á tónleika. Hefði svo bara í raun mátt fá að gera meira af því. Þátturinn er í boði Ristorante, Nettó, Happy Hydrate, Fulltingi og Göteborgs.
S1 Ep 282Orð dagsins er: Reiðhjól
Góðan daginn, fimmtudaginn. Í þætti dagsins förum við til Frakklands hvar tveir ungir strákar fara út að hjóla, en hjóla því miður aldrei aftur heim. Rannsókn málsins er skrítin en allt er gott sem endar vel. Eða hvað? Skrítin endalok mögulega, kannski bara eins góð og hægt er. Við vitum auðvitað ekki neitt. Í boði Göteborgs kexins, Fulltingi, Nettó, Happy Hydrate og Ristorante.
S1 Ep 281Orð dagsins er: Skjelsvik
Við erum enn og aftur komin til Bandaríkjanna þar sem skrítnir hlutir gerast, að því er virðast í sífellu. Hópur af dripplandi mönnum fer í road trip með nammi og mjólk. Það endar ekki eins og skemmtunin sem það hefði átt að vera. Þátturinn er í boði Fulltingi, Ristorante, Nettó, Happy Hydrate og Göteborgs. Mál hefst:
S1 Ep 280Orð dagsins er: Ökuskírteini
Góðan daginn, fimmtudaginn. Í þætti dagsins fer Unnur með okkur á smá flakk en aðallega bara um Bandaríkin eins og svo merkilega oft áður. Þetta er saga sem við höfum heyrt og sagt alltof oft og því miður örugglega einhverntíman aftur. Í boði Mfitness, Happy Hydrate, Ristorante, Nettó og Göteborgs kex. Mál hefst: 10:12
S1 Ep 279Orð dagsins er: Titlar
Í þætti dagsins erum við enn og aftur og að eilífu stödd í Bandaríkjunum. Hittum þar Kris Jenner áttunnar og undurfagra dóttur hennar sem ákaflega ung var komin með túperað hár, íklædd skó með hæl. Það er alltaf eitthvað. Þátturinn er í boði Ristorante, Nettó og Happy Hydrate.
S1 Ep 278Orð dagsins er: Bootcamp
Góðan daginn, fimmtudaginn! Í dag förum við mjög snemma á morgunæfingu. Augljóslega ekki við systur samt heldur fórnarlamb dagsins í dag. Enginn skilur neitt í neinu og ósvaraðar spurningar eru ótrúlega margar. Þáttur dagsins er í boði: Ristorante, Happy Hydrate, Nettó og Better you. Mál hefst: 6:57
S1 Ep 277Orð dagsins er: Tvíburi
Ástralskir tvíburar vekja mikla velgju í dag, eins og reyndar furðulega oft áður. Bylgja er komin úr sumarfríi og tafsar sig í gegnum ótrúlega sorglegt mál og segir sögu tveggja kvenna sem báðar áttu betra skilið en þær fengu. Þátturinn er í boði Ristorante, Nettó, Happy Hydrate og MFitness. Mál hefst: 22:55
S1 Ep 276Orð dagsins er: Bakari
Góðan daginn, fimmtudaginn. Í dag fer Unnur með ykkur í ferðalag til Frakklands og segir ykkur frá því þegar ógeð með grímu, inspireraður af Scream, heldur af stað í sína eigin vegferð. Ömurleg og ógeðsleg vegferð svo við segjum alveg eins og er. Þáttur dagsins er í boði Ristorante, Happy Hydrate, Nettó og Better you. Mál hefst: 5:30
S1 Ep 275Orð dagsins er: Göngugarpur
Góðan daginn þennan fimmta fimmtudaginn. Í dag endurnýtum við áskriftarefni og njótum þess að hafa það gott í sólinni, en það gerði hann Aimo Koivunen alls ekki á sínum tíma. Hans ferðalag var ekki svo fullt af sól og gleði, meira svona stútfullt af stríði og amfetamíni. Frábær saga samt og stórmerkileg. Þáttur dagsins er í boði Ristorante og Happy Hydrate. Mál hefst: 13:23
S1 Ep 274Orð dagsins er: Smoothie
Í þætti dagsins fer Bylgja með okkur til Bandaríkjanna (þá ótrúlega sjaldan) og hittir fyrir stóra, samsetta fjölskyldu sem virðist hafa það gríðarlega gott. Hús og bátar og kirkjan og góðgerðarsamtök. En sjaldan eru hlutirnir jafn frábærir og þeir líta út fyrir að vera og þannig er það í dag líka. Einhvers staðar leiddist fólk út af beinu brautinni og tók hræðilegar ákvarðanir. Margar. Þátturinn er í boði Ristorante, Nettó, Happy Hydrate, Findus, MFitness og Sony (I Know What You Did Last Summer) Þáttur hefst:
S1 Ep 273Orð dagsins er: Messa
Góðan daginn, fimmtudaginn. Í þætti dagsins fer Unnur með okkur til Bandaríkjanna þar sem hún segir frá fallega samsettri prestsfjölskyldu sem allt í einu mætir svo ekki á réttum tíma í messu. Allt við málið er algjörlega hræðilegt og það hjálpar alls ekki að hafa allar þessar ósvöruðu spurningar. Þáttur dagsins er í boði Ristorante, Happy Hydrate, Nettó, Better you, Smárabíó og Ajax. Mál hefst: 18:25
S1 Ep 272Orð dagins er: Pabbi
Í þætti dagsins fáum við Sigríði Fanneyju loksins í heimsókn eftir langa bið. Bylgja segir sögu ungrar konu sem átti gríðarlega bjarta framtíð en fékk ekki að njóta hennar, þökk sé enn einum aumingjanum. Svo koma feður við sögu einnig. Þátturinn er í boði Ristorante, Nettó, Happy Hydrate, Findus, Smárabíós og Forlagsins. Þáttur hefst: 17:00.
S1 Ep 271Orð dagsins eru: Fjórði heimurinn
Góðan daginn, fimmtudaginn! Í þætti dagsins ferðast Unnur með okkur til Nýja Sjálands, segir margar misáhugaverðar staðreyndir um Christchurch áður en hún segir frá tveimur unglingsstúlkum sem tengdust á hreint út sagt ótrúlegan hátt. Of vel segja sumir, mjög illa segja sennilega fleiri. Sama hvað, þá er þetta stórmerkilegt allt og auðvitað hrikalega sorglegt. Þáttur dagsins er í boði Nettó, Better you, Ristorante. Happy Hydrate, Ajax og Forlagsins Mál hefst: 12:30
S1 Ep 270Orð dagsins er: Niðursetningur
Í þætti dagsins kynnumst við bandarískri fjölskyldu, einu sinni sem oftar. Húsfaðirinn ekki kannski eins almennilegur og við helst vildum og börnin áttu eins og vanalega miklu betra skilið. Öll börnin. Líka þau sem hann giftist. Þátturinn er í boði Ristorante, Nettó, Findus og Happy Hydrate.