
Krummafótur
71 episodes — Page 2 of 2

S1 Ep 211.21 - Langlífi og bláu svæðin, bílamenning og póker
Eyvindur Karlsson og Kristján Atli ræða langlífi og heilsu og þáttaröðina How To Live To 100 á Netflix, bílamenningu og samfélagsmikilvægi. Svo ræða þeir póker. Hljómsveitarnafn dagsins er á sínum stað.

S1 Ep 201.20 - Lesþreyta og lestrarstuð, næringarfræði og nikótínbúðir, endurkoma Louis CK
Eyvindur Karlsson og Kristján Atli ræða um lestur og aðra miðla og hvers vegna maður er stundum í stuði og stundum alls ekki. Þá veltir Eyvindur fyrir sér hvort við séum heimsk að haga okkur illa þrátt fyrir botnlaust magn upplýsinga um skaðlega hegðun, auk þess að spyrja hvers vegna það er svona mikið af nikótínbúðum út um allt. Loks ræða þeir heimildarmyndina Sorry/Not Sorry og endurkomu Louis CK í þaula. Hljómsveitarnafn dagsins er á sínum stað.

S1 Ep 191.19 - Foreldrahlutverkið, fortíðarþrá og samtímasvekkelsi, bestu lög Queen
Eyvindur Karlsson og Kristján Atli ræða um gælugremju Eyvindar, þegar fólk er smættað niður í foreldrahlutverk sín og lítið annað. Svo velta þeir fyrir sér samtímasvekkelsi og fortíðarþrá áður en þeir velja fimm uppáhalds lögin sín með hljómsveitinni Queen.

S1 Ep 181.18 - Ólympíuleikarnir og Pride, félagslíf og vinátta
Eyvindur Karlsson og Kristján Atli ræða um Pride-vikuna og Ólympíuleikana. Þá spyr Eyvindur hvort félagslíf sé ekki lykillinn að hamingju og langlífi og Kristján veltir fyrir sér hvað er að græða á vináttu.

S1 Ep 11.17 - Kvikmyndauppeldi barna, hnignandi samfélagshegðun og björt framtíð
Eyvindur Karlsson og Kristján Atli ræða um kvikmyndauppeldi barna og spyrja sig hvort börn megi horfa á hrollvekjur og/eða spennumyndir, á meðan Kristján veltir fyrir sér hvað valdi hnignandi hegðun fólks á almannafæri. Eyvindur ræðir um komandi tæknibyltingar og spyr Kristján hvort framtíðin sé björt eftir allt saman. Hljómsveitarnafn þáttarins er á sínum stað.

S1 Ep 161.16 - Stundvísi, ómeðvitaðir fordómar, meint vörusvik í stiklum kvikmynda og svefnleysi
Eyvindur Karlsson og Kristján Atli ræða stundvísi og hversu erfitt Kristján á með fólk sem mætir seint og illa, svo ræða þeir ómeðvitaða fordóma og kryfja nýlega lögsókn tveggja áhorfenda gegn Universal Studios vegna leikkonunnar Ana de Armas. Loks ræða þeir svefn og svefnleysi frá ýmsum hliðum. Hljómsveitarnafn þáttarins er á sínum stað.

S1 Ep 151.15 - Hjátrú, hversu vel þekkjum við hvor annan, að leiðrétta mistök og umræða um fíkn
Eyvindur Karlsson og Kristján Atli reyna að koma hvor öðrum á óvart með atriðum sem þeir vita ekki um hvorn annan, svo ræða þeir hjátrú og spyrja hvernig best er að gangast við mistökum og hvernig samfélag getur tekið á því þegar einhver reynir að leiðrétta sig. Loks ræða þeir alls konar fíkn og bera saman umræðu við umræðu um andlega kvilla. Hljómsveitarnafn þáttarins er á sínum stað.

S1 Ep 141.14 - Snobb, fantasíur, tillitssemi listamanna og áfengissala
Eyvindur Karlsson og Kristján Atli ræða snobb og tvenns konar gildismat samfélags á list, Eyvindur spyr hvort listamenn eigi eingöngu að skapa fyrir sjálfa sig eða taka tillit til almennings? Kristján ræðir íslenskar fantasíur og þróun þeirra, Eyvindur veltir fyrir sér umræðu um almenna sölu áfengis á Íslandi. Hljómsveitarnafn þáttarins er á sínum stað.

S1 Ep 131.13 - Draumfarir, vinátta karlmanna, gítargoð 21. aldarinnar og litróf lífsins
Eyvindur Karlsson og Kristján Atli ræða draumfarir sínar og greina, áður en þeir velta fyrir sér hvort karlmenn geti sýnt hvor öðrum gæsku án þess að vera samkynhneigðir. Kristján Atli fer yfir misheppnaðan lista yfir bestu gítarleikara 21. aldarinnar og Eyvindur útskýrir litróf lífsins. Hljómsveitarnafn þáttarins er á sínum stað.

S1 Ep 121.12 - Költ, gervigreindarþýðingar, þögn og gervispilanir á streymisveitum
Eyvindur Karlsson og Kristján Atli ræða um költ og aðra sértrúarsöfnuði og taka fyrir kvikmyndina Martha Marcy May Marlene frá 2011. Eyvindur fjallar um gervigreind og hvernig íslensk fyrirtæki eru að nýta sér hana með umdeildum hætti, og tekur svo fyrir svokallaðar gervispilanir tónlistarfólks á streymisveitum. Kristján Atli ræðir mikilvægi þagnar fyrir hollt sálarlíf hverrar manneskju. Hljómsveitarnafn þáttarins er á sínum stað.

S1 Ep 111.11 - Baby Reindeer þátturinn!
Eyvindur Karlsson og Kristján Atli taka fyrir þáttaröðina Baby Reindeer í sérstökum þætti af Krummafæti. Hér er farið á dýptina um þessa mögnuðu þáttaröð. Ekki við hæfi þeirra sem hafa ekki enn horft á þættina og ætla sér að gera það.

S1 Ep 101.10 - Lægð yfir landinu, sniðganga listamanna, bergmálshellar og draumar um suðrænar slóðir
Eyvindur Karlsson og Kristján Atli býsnast yfir veðrinu að íslenskum sið, áður en þeir láta sig dagdreyma um suðrænar slóðir. Kristján Atli spyr hvort og hvenær sé rétt að sniðganga listamenn með vafasamar skoðanir á meðan Eyvindur færir rök fyrir mikilvægi bergmálshella. Hljómsveitarnafn þáttarins er á sínum stað.

S1 Ep 91.09 - Forsetakosningar, viðburðafúsk, lifandi tónlistarmenning og Hringadróttinssaga
Eyvindur Karlsson og Kristján Atli ræða nýafstaðnar forsetakosningar. Kristján Atli kvabbar um fúsk í dagskrá stórra viðburða á sama degi hérlendis, Eyvindur spyr hvort lifandi tónlistarmenning sé á undanhaldi í Reykjavík. Þá ræða þeir Hringadróttinssögu og hljómsveitarnafn þáttarins.

S1 Ep 81.08 - Paul Auster kvaddur, Yasuke vs GamerBros, sundlaugapælingar og siðferðisveganismi
Eyvindur Karlsson og Kristján Atli kveðja rithöfundinn Paul Auster sem lést á dögunum og ræða um listamenn sem verða nánir vinir okkar í gegnum listina. Eyvindur útskýrir nýjasta hneykslismálið í leiknum Assassin's Creed og hvers vegna GamerBros eru brjálaðir, Kristján Atli spyr hvers vegna við förum ekki öll oftar í sund á Íslandi. Eyvindur veltir fyrir sér veganisma og spyr hvort okkur beri siðferðisleg skylda til að vera vegan. Hljómsveitarnafn þáttarins er á sínum stað.

S1 Ep 71.07 - Saga þernunnar, jaðarsetning íþróttaunnenda, misvísandi merkingar í IKEA og nýyrðavaktin
Eyvindur Karlsson og Kristján Atli kryfja Sögu þernunnar og velta fyrir sér hvort hún sé skáldskapur eða spádómur. Kristján Atli færir rök fyrir því að íþróttaunnendur eigi undir högg að sækja í samfélaginu. Þeir velta fyrir sér misvísandi merkingum í IKEA og annars konar falsfréttum og Eyvindur segir skoðanir sínar á góðu og slæmu nýyrði. Hljómsveitarnafn þáttarins er á sínum stað.

S1 Ep 61.06 - iPad auglýsingin, kynjaveislur, krydduð karlmennska og siðlaus hegðun
Eyvindur Karlsson og Kristján Atli kryfja umdeilda nýlega auglýsingu Apple fyrir iPad-spjaldtölvur. Þeir ræða hvort kynjaveislur eiga rétt á sér eða ekki. Eyvindur opnar sig um baneitraða, sterkkryddaða karlmennsku sína og Kristján Atli veltir fyrir sér minniháttar siðleysingjum. Hljómsveitarnafn þáttarins er á sínum stað að venju.

S1 Ep 51.05 - Slaufun, dyraat, skemmtisiglingar og Lego-kubbar
Eyvindur Karlsson og Kristján Atli gera heiðarlega tilraun til að komast til botns í umræðunni um slaufunarmenningu. Eyvindur færir rök fyrir því að skemmtiferðasiglingar séu frábær leið til að fara í frí á meðan Kristján segir frá baráttu sinni við hrekkjalóma. Loks rökræða þeir hvort danska fyrirtækið The Lego Group hafi svikið lit með nýrri stefnu í sölu Lego-kubba.

S1 Ep 41.04 - Íþróttamannsleg hegðun, kvikmyndaaðlaganir á tölvuleikjum og aðrar slíkar kanínuholur
Eyvindur Karlsson og Kristján Atli fara á dýptina og eru ósammála um hvort það sé jákvætt eða neikvætt hjá íþróttaliði að leitast við að niðurlægja andstæðinga sína. Þá velta þeir fyrir sér þróun aðlagana á tölvuleikjum, sem hafa stökkbreyst á síðustu árum. Þá ræða þeir skyldur sínar sem foreldri til að miðla eldri klassík til komandi kynslóða. Hljómsveitarnafn dagsins er einnig á sínum stað.

S1 Ep 31.03 - Baktal (og framtal), þegar Cats-myndin drap Kobe Bryant og kom með Covid, karlremba í kringum barnaafmæli og nýyrði
Eyvindur Karlsson og Kristján Atli viðurkenna að þeir horfðu saman á Cats-myndina með skelfilegum afleiðingum. Þeir velta fyrir sér af hverju karlmenn mæti aldrei í barnaafmæli, agnúast út í fólk sem úthúðar öðru fólki opinberlega og ræða að lokum um nýyrði og þróun tungumáls. Þá varpa þeir ljósi á hljómsveitarnafn dagsins.

S1 Ep 21.02 - Forsetakosningar, fréttaþörf, tilvistarréttur hlaðvarps og víkingamyndir í Hollywood
Eyvindur Karlsson og Kristján Atli skeggræða komandi forsetakosningar og spyrja, má hver sem er bjóða sig fram? Þeir velta fyrir sér hversu mikið eða lítið við eigum að fylgjast með fréttum. Eyvindur spyr hvað væri æskileg útkoma ef Hollywood myndi ákveða að kvikmynda Íslendingasögurnar og Kristján veltir fyrir sér hvort heimurinn þurfi á öðru hlaðvarpi að halda.

S1 Ep 11.01 - Fyrsti þátturinn!
Eyvindur Karlsson og Kristján Atli kynna hvor annan til leiks í fyrsta þættinum af Krummafæti. Þeir segja einnig söguna af því hvernig þeir kynntust.