PLAY PODCASTS
Krummafótur

Krummafótur

71 episodes — Page 1 of 2

3.05 - Locorriere kvaddur, EVE Fanfest, tilgangur lífsins

May 27, 20261h 9m

3.04 - Sjónvarpsþáttaleiði, íslensk eftirnöfn á treyjum, hlustunarvenjur og þriðji staðurinn

May 20, 20261h 14m

3.03 - Áhugaleiksýning ársins, hjólaraunir Eyvindar, bestu lög Beck og Tom Waits

May 13, 20261h 41m

3.02 - Bond í Alcatraz, Corgan og CIA, Sanderson og Apple TV

May 6, 20261h 12m

3.01 - Húsavík, gervigreind og rottukóngar

Apr 29, 20261h 7m

Ep 652.32 - Jóla- og áramótahefðir, pólitík á stórviðburðum, litur ársins og besta hljómsveitarnafnið

Eyvindur Karlsson og Kristján Atli ræða um mikilvægi jóla- og áramótahefða í sínu lífi. Þá velta þeir fyrir sér lit ársins og litum í fatavali, notkun fánastanga á Íslandi, bestu tökulögin, pólitík á stórviðburðum og fleira áður en þeir gera upp og velja besta hljómsveitarnafn Krummafótar.

Dec 8, 20251h 34m

Ep 642.31 - Jólareglur, áhorf á áhorf, meint siðblinda Leðurblökumannsins og hundahald á Spáni

Eyvindur Karlsson og Kristján Atli eru komnir í jólaskap og ræða hvenær rétt sé að skreyta og byrja að fagna jólunum. Eyvindur spyr Kristján hvort Die Hard sé jólamynd áður en þeir rífast um meint siðleysi Leðurblökumannsins Bruce Wayne. Kristján veltir fyrir sér vaxandi vinsældum áhorfs á sjónvarpsáhorf. Þá segir Eyvindur frá heimildamynd um umdeilda hundaræktun á Spáni og í kjölfarið ræða þeir almennt um dýraníð. Rétt er að vara við lýsingum í þættinum. Hljómsveitarnafn vikunnar er á sínum stað. Hlustið á sögu Kristjáns Atla, Hver ertu? Horfið á heimildamyndina Yo Galgo á YouTube.

Dec 2, 20251h 31m

Ep 632.30 - Pylsuhlaup, miðjaðar kvikmyndir, rapparar á þingi, Steam Machine og Jötunsteinar

Eyvindur Karlsson og Kristján Atli velta fyrir sér hvort miðjaðar kvikmyndakitlur séu komnar til að vera og hver myndi sigra í kapphlaupi með pylsuáti, Usain Bolt eða Joey Chestnut. Kristján veltir fyrir sér hvort gervigreind muni ógna rithöfundastéttinni á meðan Eyvindur undrast að Nicki Minaj hafi ávarpað þing Sameinuðu Þjóðanna. Eyvindur segir frá stórtíðindum í heimi tölvuleikja á meðan Kristján kvabbar yfir nýjustu bók Andra Snæs. Hljómsveitarnafn vikunnar er á sínum stað.

Nov 25, 20251h 39m

Ep 622.29 - Frankenstein, fávitar, Skonrokk og draumarækt

Eyvindur Karlsson og Kristján Atli ræða um nýútkomna stórmynd Guillermo del Toro um Frankenstein. Þá spyrja þeir sig hvenær sé rétt að kalla fólk fávita. Kristján segir frá rokkmessunni Skonrokk sem fór fram um helgina áður en Eyvindur veltir fyrir sér mikilvægi þess að láta verða af draumum sínum. Hljómsveitarnafn dagsins er á sínum stað.

Nov 17, 20251h 31m

Ep 612.28 - Dua Lipa og bókaklúbbar, Dr Mike og neyðarkallar, upphitun fyrir Beck og bestu 80s poppperlurnar

Eyvindur Karlsson og Kristján Atli ræða um kjarnorkusprengjur, sölu björgunarsveita á neyðarköllum og hinn smánaða hlaðvarpara Dr Mike. Kristján segir Eyvindi frá aðdáun sinni á Dua Lipa og spyr hvers vegna það eru engir celebrity bókaklúbbar á Íslandi. Loks hita þeir upp fyrir hlustun á tónverkum Beck og velja uppáhalds 80s poppperlurnar sínar. Hljómsveitarnafn dagsins er á sínum stað.

Nov 10, 20252h 5m

Ep 602.27 - Snjódagar, ólöglegt niðurhal, ofnæmi fyrir tónlist og bestu lög Dr Hook

Eyvindur Karlsson og Kristján Atli ræða um fyrstu snjóviku komandi vetrar áður en þeir velta fyrir sér hvort streymisveiturnar hafi gengið of langt í ljósi nýlegra vinsælda ólöglegs niðurhals. Þá ræða þeir um þær hljómsveitir sem þeir hafa ofnæmi fyrir áður en þeir fara yfir feril Dr Hook og velja sín 5 uppáhalds lög hvor. Hljómsveitarnafn dagsins er á sínum stað.

Nov 3, 20252h 14m

Ep 592.26 - Hrollvekjuþátturinn mikli

Eyvindur Karlsson og Kristján Atli ræða hrollvekjuna frá öllum mögulegum hliðum. Kristján spyr hvaða hefðir þeir hafa í kringum hrollvekjuna á meðan Eyvindur veltir fyrir sér hvers vegna við höfum svona mikinn áhuga á raðmorðingjum. Þá spyrja þeir sig hvað hræðir okkur og hvernig hrollvekjur birtast í tónlist og öðrum listgreinum. Hljómsveitarnafn dagsins er á sínum stað.

Oct 27, 20251h 38m

Ep 582.25 - Spánarregn, Tilly Norwood, friðarverðlaun Nóbels og hagvöxtur

Kristján Atli segir Eyvindi Karlssyni frá nýlegri Spánarferð sinni áður en þeir ræða hversu pólitísk friðarverðlaun Nóbels séu og hvort Tilly Norwood og aðrar AI "leikkonur" boði hrun leikarastéttarinnar. Þá spyr Eyvindur hvort hagvöxtur sé ofmetinn í nútímasamfélagi. Hljómsveitarnafn dagsins er á sínum stað að venju.

Oct 20, 20251h 20m

Ep 572.24 - Svefnvenjur, fyrirferð stjórnmála, Charlie Sheen og Dr Hook

Eyvindur Karlsson og Kristján Atli velta fyrir sér rútínu í kringum svefn og hvernig þeir vakna á morgnana, áður en Kristján spyr hvort stjórnmál séu of fyrirferðarmikil í daglegu lífi Íslendinga. Þá ræða þeir nýlega heimildarþætti um Charlie Sheen á Netflix áður en Eyvindur segir Kristjáni frá hljómsveitinni Dr Hook. Hljómsveitarnafn dagsins er á sínum stað.

Oct 6, 20252h 0m

Ep 562.23 - The Long Walk og The Life of Chuck

Eyvindur Karlsson og Kristján Atli taka fyrir tvær nýlegar kvikmyndaaðlaganir á sögum Stephen King, The Long Walk í leikstjórn Francis Lawrence og The Life of Chuck í leikstjórn Mike Flanagan. Þá róa þeir á dýptina með kvikmyndir og sjónvarpsþætti Flanagan. Hljómsveitarnafn dagsins er á sínum stað.

Sep 29, 20251h 53m

Ep 552.22 - Ritskoðun í Bandaríkjunum, nytsamlegir kjánar á Íslandi, íslenskar þýðingar á kvikmyndanöfnum

Eyvindur Karlsson og Kristján Atli ræða um ótrúlegar nýlegar vendingar í bandarískum stjórnmálum og ritskoðun stjórnvalda, sem og hvernig þessar vendingar hafa skilað sér til Íslands síðustu daga. Kristján spyr sig hvernig Andri Snær gat enn og aftur verið misskilinn í vikunni sem leið áður en þeir skemmta sér yfir íslenskum þýðingum á erlendum kvikmyndatitlum. Hljómsveitarnafn dagsins er á sínum stað.

Sep 22, 20251h 46m

Ep 542.21 - Látlaus siðblinda, samkenndarvandinn, Brandon Sanderson og bestu lög Nick Cave

Eyvindur Karlsson og Kristján Atli velta fyrir sér dæmum um látlausa siðblindu áður en Eyvindur spyr sig hvort hægt sé að hafa of mikla samkennd. Þá ræða þeir bandaríska rithöfundinn Brandon Sanderson áður en þeir velja uppáhalds Nick Cave-lögin sín. Hljómsveitarnafn dagsins er á sínum stað.

Sep 15, 20252h 23m

Ep 532.20 - Pumpkins-tónleikar, svaðilför Eyvindar, rangar skoðanir og NFL-tímabilið

Eyvindur Karlsson og Kristján Atli ræða um veikindi Kristjáns. Kristján segir frá tónleikum The Smashing Pumpkins í Laugardalshöll í ágúst og Eyvindur segir frá hjólatúr um Reykjanesið sem fór næstum því illa. Þá ræða þeir um skoðanaskipti og hvort skoðanir og rangfærslur séu það sama, áður en þeir hita upp fyrir nýhafið NFL-tímabil. Hljómsveitarnafn dagsins er á sínum stað.

Sep 8, 20251h 46m

Ep 522.19 - Menningarnótt, tilhlökkun, gleðin við að læra nýja hluti, Brent Hinds kvaddur

Eyvindur Karlsson og Kristján Atli ræða um menningarnótt og velta fyrir sér hvort tilhlökkun sé forsenda hamingju. Eyvindur segir Kristjáni frá ýmsum áhugaverðum staðreyndum sem hann hefur lært nýlega áður en þeir kveðja gítargoðið Brent Hinds og velta fyrir sér einhliða vináttu við frægt fólk. Hljómsveitarnafn dagsins er á sínum stað.

Aug 25, 20252h 4m

Ep 512.18 - Eymd Kóngsins, fantasíudoðrantar, ofurhetjuþreyta og The Biggest Loser

Eyvindur Karlsson og Kristján Atli ræða Misery eftir Stephen King og bera bókina saman við kvikmyndina. Þá ræða þeir um fantasíubókmenntir og velta fyrir sér hvers vegna bækurnar eru jafnan svona langar, áður en Kristján spyr Eyvind hvort hann þjáist af ofurhetjuþreytu. Eyvindur ræðir um The Biggest Loser og rifjar upp hvernig var að horfa á þá þætti upp úr aldamótum. Hljómsveitarnafn dagsins er á sínum stað.

Aug 18, 20251h 41m

Ep 502.17 - Verslóhelgin, lög um dýrahald á Íslandi, fasískar umræðuhaftir og bestu jarðarfaralögin

Eyvindur Karlsson og Kristján Atli ræða um veðrið og Verslunarmannahelgina, svefnpoka og útihátíðir, áður en Eyvindur býsnast yfir ströngum lögum um dýrahald á Íslandi. Kristján veltir fyrir sér fasískum umræðuhöftum í garð Ísrael og loks ræða þeir um jarðarfarir og bestu jarðarfaralögin fyrir sig. Hljómsveitarnafn dagsins er á sínum stað.

Aug 4, 20251h 40m

Ep 492.16 - Lundúnir, hundúnir, erfið list og nýju sterarnir

Eyvindur Karlsson og Kristján Atli ræða um ferð þess fyrrnefnda til Lundúna og hvernig hún tengdist hundahaldi þeirra beggja. Þá veltir Kristján fyrir sér hvort erfið list sé að einhverju leyti betri en önnur list, á meðan Eyvindur segir frá nýjum uppgötvunum í lyfjum til vöðvauppbygginga. Hljómsveitarnafn dagsins er á sínum stað.

Jul 28, 20251h 38m

Ep 482.15 - Hundar og menn, hvalreki, Charles Manson og F.A.T.A.L.

Eyvindur Karlsson og Kristján Atli ræða um hundahald og samskipti mannfólks við ýmis dýr áður en þeir velta sögu Charles Manson fyrir sér og Kristján spyr hvenær orð bera ábyrgð. Eyvindur segir frá hörmulegu spunaspili og frábærum dómi um það. Hljómsveitarnafn dagsins er á sínum stað. Hér er hægt að lesa hreint út sagt frábæran dóm um lestarslysið sem er F.A.T.A.L. spunaspilið.

Jun 30, 20251h 39m

Ep 472.14 - Sund í Salalaug, fasismi og hnefaleikar á Íslandi, topp 5 furðuheimar

Eyvindur Karlsson og Kristján Atli ræða meðal annars um afmælisskrúðgöngu Trump, normalíseringu fasisma á Íslandi, lögleiðingu hnefaleika og svikaraheilkenni í stútfullum þætti. Loks velja þeir uppáhalds furðuheimana sína. Hljómsveitarnafn dagsins er á sínum stað. Við minnum á vefsíðu þáttarins á slóðinni https://krummafotur.fm

Jun 16, 20252h 21m

Ep 462.13 - Andor, jaðarsport, fíknilyf og Trump v Musk

Eyvindur Karlsson og Kristján Atli ræða um nýlegan lestur og áhorf. Eyvindur mærir The Lies of Locke Lamora e. Scott Lynch, Kristján hleður sjónvarpsþættina Andor lofi og lýsir Star Wars-heiminn sprelllifandi. Þá ræða þeir um jaðarsport og lyf gegn fíknisjúkdómum áður en þeir velta nýlegum skilnaði Bandaríkjaforseta og ríkasta manns heimsins fyrir sér, sem og áframhaldandi uppgangi fasismans vestan hafs. Hljómsveitarnafn dagsins er á sínum stað.

Jun 9, 20251h 49m

Ep 452.12 - Maímánuður hylltur, Melodica festival, 39 Þrep í Þjóðleikhúsinu, Pamela Anderson og skáldsögurnar okkar

Eyvindur Karlsson og Kristján Atli hylla nýafstaðinn maímánuð áður en Eyvindur segir frá þátttöku sinni í Melodica festival. Þeir ræða um sýningu Eyvindar á stóra sviði Þjóðleikhússins kvöldið áður og velta fyrir sér hversu vanmetin Pamela Anderson er. Loks rifja þeir upp útgáfuferla sína. Hljómsveitarnafn dagsins er á sínum stað.

Jun 2, 20251h 45m

Ep 442.11 - Júró og tónlist, ofhlaðið lof, spunaspil og bestu bækur Stephen King

Eyvindur Karlsson og Kristján Atli ræða um nýafstaðna Söngvakeppni evrópskra sjónvarpsstöðva og aðra nýlega tónlistarhlustun. Eyvindur spyr hvort það geti skemmt fyrir upplifun ef einhver hefur lofað efni um of. Svo spyr hann Kristján hvernig honum líði með spunaspil nú eftir rúmlega hálfs árs spilamennsku. Loks velja þeir uppáhalds bækur sínar eftir Stephen King. Hljómsveitarnafn dagsins er á sínum stað.

May 19, 20252h 5m

Ep 432.10 - Garðtiltekt, vampírur, fantasíur vs sci-fi og Leitin að Six

Eyvindur Karlsson og Kristján Atli ræða um bongóblíðu og tiltektardaga. Eyvindur veltir fyrir sér hrifningu fólks á vampírusögum og þeir ræða ýmsar vampírusögur. Þá velta þeir fyrir sér muninum á fantasíu og vísindaskáldskap (sci-fi) áður en Kristján segir Eyvindi frá plötunni Six með Mansun sem varð næstum að skáldsögu eftir Kristján Atla. Hljómsveitarnafn dagsins er á sínum stað.

May 12, 20251h 54m

Ep 422.09 - Mexíkóferð, menningaráhrif Bandaríkjanna og Mule Variations

Eyvindur Karlsson og Kristján Atli ræða um menningaráhrif Bandaríkjanna og hermennsku stórþjóðarinnar. Kristján spyr Eyvind um meint ágæti plötunnar Mule Variations með Tom Waits og loks deilir Eyvindur ferðasögu sinni frá nýlegri för til Mexíkó og Kanada. Hljómsveitarnafn dagsins er á sínum stað.

May 6, 20251h 40m

Ep 412.08 - Mikilvægi félagsskapar, tæknirisar Bandaríkjanna, grínristanir og bestu lög R.E.M.

Eyvindur Karlsson og Kristján Atli fagna sumrinu með því að ræða bestu hliðar sumarsins og mikilvægi félagsskapar. Eyvindur veltir fyrir sér framtíð tæknirisa Bandaríkjanna á tímum Trump og Kristján reynir að færa rök gegn grínristunum. Loks velja þeir uppáhalds lögin sín með hljómsveitinni R.E.M. Hljómsveitarnafn dagsins er á sínum stað.

Apr 28, 20251h 44m

Ep 402.07 - Endurgerðaþreyta Hollywood, skemmdarverk á Teslum, viðskiptakúltúr menningar og flótti sérfræðinga frá BNA

Eyvindur Karlsson og Kristján Atli ræða stöðu stórmynda í Hollywood og Kristján pirrar sig á viðskiptakúltúr menningar á Íslandi og ytra. Eyvindur veltir fyrir sér flótta sérfræðinga frá Bandaríkjunum og þeir spyrja sig hvort það sé í lagi að skemmileggja Teslur til að mótmæla Musk. Hljómsveitarnafn vikunnar er á sínum stað að venju.

Apr 14, 20251h 38m

Ep 392.06 - Staðan í Trumplandi, vetrar- og sumartími, erfiðir tölvuleikir og mannhvelið á Íslandi

Eyvindur Karlsson og Kristján Atli taka stöðuna í Bandaríkjum eftir 75 daga af seinni valdatíð Trump. Kristján spyr hvort Ísland þurfi að færa klukkuna á veturna og vorin, Eyvindur ræðir um gildi krefjandi tölvuleikja og loks ræða þeir meira um Adolescence og mannhvelið á Íslandi. Hljómsveitarnafn dagsins er á sínum stað.

Apr 7, 20251h 59m

S2 Ep 382.05 - Óperuferð, 80/20-reglan, gervitónlistarmenn og pabbabrandarar

Eyvindur Karlsson og Kristján Atli ræða um nýafstaðna ferð á íslensku óperuna Brím í Tjarnarbíó. Þá ræða þeir 80/20-regluna svokölluðu, svo spilar Eyvindur nýtt gervigreindarlag þáttarins fyrir Kristján og þeir ræða í kjölfarið gervitónlistarmenn, áður en þeir dásama pabbahúmor og skiptast á pabbabröndurum. Hljómsveitarnafn dagsins er á sínum stað að venju.

Mar 31, 20251h 53m

S2 Ep 372.04 - Fjarvera, flæði skáldamjaðarins og meistaraverk sjónvarps

Eyvindur Karlsson og Kristján Atli koma fagnandi saman eftir langan aðskilnað. Eyvindur gerir grein fyrir dvöl sinni á landsbyggðinni og fjallar um það sem á daga hans hefur drifið. Kristján tekur stöðuna á áramótamarkmiðum þeirra félaga og loks ræða þeir bresku sjónvarpsþættina Adolescence sem eru að slá í gegn og mikið í umræðunni um þessar mundir. Hljómsveitarnafn dagsins er á sínum stað.

Mar 25, 20252h 34m

S2 Ep 362.03 - Bóndadagur og þorrinn, línuleg dagskrá, dagbókarskrif og bróligarkía

Eyvindur Karlsson og Kristján Atli ræða um þorrann og nýlegan bóndadag og línulega dagskrá á 21. öld. Eyvindur veltir fyrir sér dagbókarskrifum og loks ræða þeir öld bróligarkanna í Bandaríkjunum. Hljómsveitarnafn dagsins er á sínum stað.

Mar 25, 20251h 36m

S2 Ep 352.02 - Janúarunnendur, TikTok-bannið, kvikmyndamýtur, Gaiman og Munro

Eyvindur Karlsson og Kristján Atli ræða um TikTok-bannið sem er að skella á vestan hafs. Eyvindur spyr hvaða mýtur hafi orðið til fyrir tilstilli kvikmynda og/eða sjónvarps á meðan Kristján færir rök fyrir því að janúar sé vanmetinn mánuður. Loks ræða þeir skandalamál rithöfundanna Neil Gaiman og Alice Munro. Hljómsveitarnafn dagsins er á sínum stað.

Mar 25, 20251h 54m

S2 Ep 12.01 - Árið kvatt, áramótaheit, Skaupið og mataræði

Eyvindur Karlsson og Kristján Atli hefja nýtt ár á að gera upp það gamla, ræða hvað er svona spes við áramót og tilkynna sín markmið fyrir komandi ár. Hljómsveitarnafn dagsins er á sínum stað.

Jan 13, 20251h 51m

S1 Ep 341.34 - Jólaaðdragandinn, undraheimur spilavina, listamannalaun og uppáhalds jólalögin okkar

Í lokaþætti ársins ræða Eyvindur Karlsson og Kristján Atli jólin og áramótin í þaula og velja uppáhalds jólalögin sín. Þá ræða þeir Netflix-heimildarmyndina um hinn norska Ibelin, velta árlegri umræðu um listamannalaun fyrir sér og ýmislegt fleira. Hljómsveitarnafn vikunnar er á sínum stað.

Dec 10, 20241h 49m

S1 Ep 101.33 - Þingkosningar á Íslandi, stóra Díegó-málið, woke-umræður og borðspil

Eyvindur Karlsson og Kristján Atli gera upp nýafstaðnar þingkosningar á Íslandi. Þá reifa þeir stuldinn á kettinum fræga Díegó úr Skeifunni. Eyvindur spyr hvort hægt sé að vera of vók. Loks ræða þeir borðspil af ýmsum toga. Hljómsveitarnafn vikunnar er á sínum stað.

Dec 1, 20241h 34m

S1 Ep 321.32 - Týndi þátturinn, true crime þráhyggja, endurgerðir og söngur í bíó

Eyvindur Karlsson og Kristján Atli fjalla um þáttinn sem þeir tóku upp en kom aldrei út. Þá velta þeir fyrir sér þráhyggju sína og annarra yfir sönnum glæpamálum og alræmdum morðingjum. Eyvindur spyr hvort endurgerðir eigi rétt á sér og hvort þær hafi einhver áhrif á frummyndirnar, á meðan Kristján Atli spyr hvort megi syngja í bíó. Hljómsveitarnafn dagsins er á sínum stað.

Nov 25, 20241h 40m

S1 Ep 311.31 - Forsetakosningar í Bandaríkjunum

Eyvindur Karlsson og Kristján Atli ræða um nýafstaðnar forsetakosningar í Bandaríkjunum, fara á dýptina um úrslit kosninganna og hvað þau þýða fyrir Bandaríkin, Evrópu, Ísland og komandi kosningar hér heima. Hljómsveitarnafn dagsins er á sínum stað.

Nov 18, 20241h 50m

S1 Ep 301.30 - Frægir frambjóðendur, hárviðkvæmni karla, Sinfóníuhljómsveit Íslands og bíókvöld

Eyvindur Karlsson og Kristján Atli ræða um fjölda frægs fólks á framboðslistum fyrir komandi kosningar á Íslandi. Kristján segir frá tónleikum með Sinfóníuhljómsveit Íslands og Eyvindur veltir fyrir sér hár- og skallaviðkvæmni karlmanna. Þeir rifja saman upp nýlegt bíókvöld. Hljómsveitarnafn dagsins er á sínum stað.

Nov 4, 20241h 43m

S1 Ep 291.29 - Triggerandi námsefni, ofurhetjur, bröns og öldrunarótti

Eyvindur Karlsson og Kristján Atli ræða um triggerandi námsefni og spyrja hvar rétt sé að draga línuna. Þá ræða þeir ofurhetjur og hverjar þeirra þeim þykja bestar. Eyvindur agnúast út í ótímabæran bröns og Kristján veltir fyrir sér óttanum við öldrun. Hljómsveitarnafn dagsins er á sínum stað.

Oct 28, 20241h 25m

S1 Ep 281.28 - Hrekkir, úrelt grín, barnaflytjendur og kosningar vestan hafs

Eyvindur Karlsson og Kristján Atli ræða um grín sem eldist misfel og hrekki. Kristján spyr hvort fólk þurfi endilega að hlusta á börn flytja tónlist og svo kryfja þeir komandi forsetakosningar í Bandaríkjunum. Hljómsveitarnafn dagsins er á sínum stað.

Oct 21, 20241h 37m

S1 Ep 271.27 - Hrekkjavaka og hrollvekjur

Eyvindur Karlsson og Kristján Atli gera upp nýlegt spunaspil. Svo ræða þeir um komu hrekkjavökunnar til Íslands, áður en þeir hella sér í hrollvekjufræðin og velja tíu uppáhalds hryllingsmyndirnar sínar. Hljómsveitarnafn dagsins er á sínum stað og það er einnig af hrollvekjandi gerðinni.

Oct 14, 20242h 9m

S1 Ep 261.26 - Kaffihús, sakbitnar sælur, söguheimar annarra og sjálfsfróun

Eyvindur Karlsson og Kristján Atli spyrja sig hvers vegna kaffihús eru svona heillandi. Eyvindur agnúast út í sakbitnar sælur. Svo ræða þeir um sagnaheima annarra höfunda og hvort það má brjóta reglur höfundanna eða ekki, áður en þeir velta fyrir sér sjálfsfróun og skömm tengdri kynlífsumræðu. Hljómsveitarnafn dagsins er á sínum stað.

Oct 7, 20241h 28m

S1 Ep 251.25 - Stóri Dr. Phil þátturinn!

Eyvindur Karlsson og Kristján Atli ræða banaríska sjónvarpsmanninn Dr. Phil í þaula og fara yfir sína sögu af því að fylgjast með honum. Þá velta þeir einnig fyrir sér nýjum lærdómi sem breytir öllu og spyrja sig af hverju greinabókmenntir eru lægra skrifaðar en fagurbókmenntir. Hljómsveitarnafn dagsins er á sínum stað.

Sep 30, 20241h 33m

S1 Ep 241.24 - Hlátur, lestur karlmanna, dagbækur og tæknibjartsýni

Eyvindur Karlsson og Kristján Atli fara á dýptina um hlátur og velta fyrir sér breyttum lestrarvenjum karlmanna. Þá ræða þeir um dagbókarskrif og velta fyrir sér hvort ástæða sé til bölsýni eða bjartsýni þegar tækni og snjalltæki eru annars vegar. Hljómsveitarnafn dagsins er á sínum stað.

Sep 23, 20241h 39m

S1 Ep 231.23 - Ferðasögur, spunaspil, samsæriskenningar og rassasafn

Eyvindur Karlsson og Kristján Atli skiptast á ferðasögum frá meginlandi Evrópu. Þá fara þeir yfir nýlega reynslu sína af spunaspilum, velta fyrir sér hvort Ísland þurfi rassasafn og ræða ýmsar samsæriskenningar. Hljómsveitarnafn dagsins er á sínum stað.

Sep 16, 20241h 55m

S1 Ep 221.22 - Ferðalög, bestu borgirnar, fólk sem hjálpast að og einmana karlmenn

Eyvindur Karlsson og Kristján Atli ræða um fyrirhuguð ferðalög sín og velta fyrir sér bestu borgunum og bestu tegundum ferðalaga. Þá ræða þeir um samfélagsaðstoð og hjálpsemi og hversu hættulegir einmana karlmenn séu samfélaginu. Hljómsveitarnafn dagsins er á sínum stað.

Sep 9, 20241h 45m