PLAY PODCASTS
Krummafótur

Krummafótur

Krummafótur

71 episodesIS

Show overview

Krummafótur has been publishing since 2024, and across the 2 years since has built a catalogue of 71 episodes. That works out to roughly 120 hours of audio in total. Releases follow a fortnightly cadence, with the show now in its 2nd season.

Episodes typically run over ninety minutes — most land between 1h 33m and 1h 51m — and the run-time is fairly consistent across the catalogue. None of the episodes are flagged explicit by the publisher. It is catalogued as a IS-language Comedy show.

The show is actively publishing — the most recent episode landed 2 weeks ago, with 5 episodes already out so far this year. The busiest year was 2024, with 34 episodes published.

Episodes
71
Running
2024–2026 · 2y
Median length
1h 40m
Cadence
Fortnightly

From the publisher

Hlaðvarp þar sem Eyvindur Karlsson og Kristján Atli tækla litlu málin. Fyrir forvitið, fróðleiksþyrst og fjörugt fólk sem vill smá heimsku með heimspekinni sinni.

Latest Episodes

View all 71 episodes

3.05 - Locorriere kvaddur, EVE Fanfest, tilgangur lífsins

May 27, 20261h 9m

3.04 - Sjónvarpsþáttaleiði, íslensk eftirnöfn á treyjum, hlustunarvenjur og þriðji staðurinn

May 20, 20261h 14m

3.03 - Áhugaleiksýning ársins, hjólaraunir Eyvindar, bestu lög Beck og Tom Waits

May 13, 20261h 41m

3.02 - Bond í Alcatraz, Corgan og CIA, Sanderson og Apple TV

May 6, 20261h 12m

3.01 - Húsavík, gervigreind og rottukóngar

Apr 29, 20261h 7m

Ep 652.32 - Jóla- og áramótahefðir, pólitík á stórviðburðum, litur ársins og besta hljómsveitarnafnið

Eyvindur Karlsson og Kristján Atli ræða um mikilvægi jóla- og áramótahefða í sínu lífi. Þá velta þeir fyrir sér lit ársins og litum í fatavali, notkun fánastanga á Íslandi, bestu tökulögin, pólitík á stórviðburðum og fleira áður en þeir gera upp og velja besta hljómsveitarnafn Krummafótar.

Dec 8, 20251h 34m

Ep 642.31 - Jólareglur, áhorf á áhorf, meint siðblinda Leðurblökumannsins og hundahald á Spáni

Eyvindur Karlsson og Kristján Atli eru komnir í jólaskap og ræða hvenær rétt sé að skreyta og byrja að fagna jólunum. Eyvindur spyr Kristján hvort Die Hard sé jólamynd áður en þeir rífast um meint siðleysi Leðurblökumannsins Bruce Wayne. Kristján veltir fyrir sér vaxandi vinsældum áhorfs á sjónvarpsáhorf. Þá segir Eyvindur frá heimildamynd um umdeilda hundaræktun á Spáni og í kjölfarið ræða þeir almennt um dýraníð. Rétt er að vara við lýsingum í þættinum. Hljómsveitarnafn vikunnar er á sínum stað. Hlustið á sögu Kristjáns Atla, Hver ertu? Horfið á heimildamyndina Yo Galgo á YouTube.

Dec 2, 20251h 31m

Ep 632.30 - Pylsuhlaup, miðjaðar kvikmyndir, rapparar á þingi, Steam Machine og Jötunsteinar

Eyvindur Karlsson og Kristján Atli velta fyrir sér hvort miðjaðar kvikmyndakitlur séu komnar til að vera og hver myndi sigra í kapphlaupi með pylsuáti, Usain Bolt eða Joey Chestnut. Kristján veltir fyrir sér hvort gervigreind muni ógna rithöfundastéttinni á meðan Eyvindur undrast að Nicki Minaj hafi ávarpað þing Sameinuðu Þjóðanna. Eyvindur segir frá stórtíðindum í heimi tölvuleikja á meðan Kristján kvabbar yfir nýjustu bók Andra Snæs. Hljómsveitarnafn vikunnar er á sínum stað.

Nov 25, 20251h 39m

Ep 622.29 - Frankenstein, fávitar, Skonrokk og draumarækt

Eyvindur Karlsson og Kristján Atli ræða um nýútkomna stórmynd Guillermo del Toro um Frankenstein. Þá spyrja þeir sig hvenær sé rétt að kalla fólk fávita. Kristján segir frá rokkmessunni Skonrokk sem fór fram um helgina áður en Eyvindur veltir fyrir sér mikilvægi þess að láta verða af draumum sínum. Hljómsveitarnafn dagsins er á sínum stað.

Nov 17, 20251h 31m

Ep 612.28 - Dua Lipa og bókaklúbbar, Dr Mike og neyðarkallar, upphitun fyrir Beck og bestu 80s poppperlurnar

Eyvindur Karlsson og Kristján Atli ræða um kjarnorkusprengjur, sölu björgunarsveita á neyðarköllum og hinn smánaða hlaðvarpara Dr Mike. Kristján segir Eyvindi frá aðdáun sinni á Dua Lipa og spyr hvers vegna það eru engir celebrity bókaklúbbar á Íslandi. Loks hita þeir upp fyrir hlustun á tónverkum Beck og velja uppáhalds 80s poppperlurnar sínar. Hljómsveitarnafn dagsins er á sínum stað.

Nov 10, 20252h 5m

Ep 602.27 - Snjódagar, ólöglegt niðurhal, ofnæmi fyrir tónlist og bestu lög Dr Hook

Eyvindur Karlsson og Kristján Atli ræða um fyrstu snjóviku komandi vetrar áður en þeir velta fyrir sér hvort streymisveiturnar hafi gengið of langt í ljósi nýlegra vinsælda ólöglegs niðurhals. Þá ræða þeir um þær hljómsveitir sem þeir hafa ofnæmi fyrir áður en þeir fara yfir feril Dr Hook og velja sín 5 uppáhalds lög hvor. Hljómsveitarnafn dagsins er á sínum stað.

Nov 3, 20252h 14m

Ep 592.26 - Hrollvekjuþátturinn mikli

Eyvindur Karlsson og Kristján Atli ræða hrollvekjuna frá öllum mögulegum hliðum. Kristján spyr hvaða hefðir þeir hafa í kringum hrollvekjuna á meðan Eyvindur veltir fyrir sér hvers vegna við höfum svona mikinn áhuga á raðmorðingjum. Þá spyrja þeir sig hvað hræðir okkur og hvernig hrollvekjur birtast í tónlist og öðrum listgreinum. Hljómsveitarnafn dagsins er á sínum stað.

Oct 27, 20251h 38m

Ep 582.25 - Spánarregn, Tilly Norwood, friðarverðlaun Nóbels og hagvöxtur

Kristján Atli segir Eyvindi Karlssyni frá nýlegri Spánarferð sinni áður en þeir ræða hversu pólitísk friðarverðlaun Nóbels séu og hvort Tilly Norwood og aðrar AI "leikkonur" boði hrun leikarastéttarinnar. Þá spyr Eyvindur hvort hagvöxtur sé ofmetinn í nútímasamfélagi. Hljómsveitarnafn dagsins er á sínum stað að venju.

Oct 20, 20251h 20m

Ep 572.24 - Svefnvenjur, fyrirferð stjórnmála, Charlie Sheen og Dr Hook

Eyvindur Karlsson og Kristján Atli velta fyrir sér rútínu í kringum svefn og hvernig þeir vakna á morgnana, áður en Kristján spyr hvort stjórnmál séu of fyrirferðarmikil í daglegu lífi Íslendinga. Þá ræða þeir nýlega heimildarþætti um Charlie Sheen á Netflix áður en Eyvindur segir Kristjáni frá hljómsveitinni Dr Hook. Hljómsveitarnafn dagsins er á sínum stað.

Oct 6, 20252h 0m

Ep 562.23 - The Long Walk og The Life of Chuck

Eyvindur Karlsson og Kristján Atli taka fyrir tvær nýlegar kvikmyndaaðlaganir á sögum Stephen King, The Long Walk í leikstjórn Francis Lawrence og The Life of Chuck í leikstjórn Mike Flanagan. Þá róa þeir á dýptina með kvikmyndir og sjónvarpsþætti Flanagan. Hljómsveitarnafn dagsins er á sínum stað.

Sep 29, 20251h 53m

Ep 552.22 - Ritskoðun í Bandaríkjunum, nytsamlegir kjánar á Íslandi, íslenskar þýðingar á kvikmyndanöfnum

Eyvindur Karlsson og Kristján Atli ræða um ótrúlegar nýlegar vendingar í bandarískum stjórnmálum og ritskoðun stjórnvalda, sem og hvernig þessar vendingar hafa skilað sér til Íslands síðustu daga. Kristján spyr sig hvernig Andri Snær gat enn og aftur verið misskilinn í vikunni sem leið áður en þeir skemmta sér yfir íslenskum þýðingum á erlendum kvikmyndatitlum. Hljómsveitarnafn dagsins er á sínum stað.

Sep 22, 20251h 46m

Ep 542.21 - Látlaus siðblinda, samkenndarvandinn, Brandon Sanderson og bestu lög Nick Cave

Eyvindur Karlsson og Kristján Atli velta fyrir sér dæmum um látlausa siðblindu áður en Eyvindur spyr sig hvort hægt sé að hafa of mikla samkennd. Þá ræða þeir bandaríska rithöfundinn Brandon Sanderson áður en þeir velja uppáhalds Nick Cave-lögin sín. Hljómsveitarnafn dagsins er á sínum stað.

Sep 15, 20252h 23m

Ep 532.20 - Pumpkins-tónleikar, svaðilför Eyvindar, rangar skoðanir og NFL-tímabilið

Eyvindur Karlsson og Kristján Atli ræða um veikindi Kristjáns. Kristján segir frá tónleikum The Smashing Pumpkins í Laugardalshöll í ágúst og Eyvindur segir frá hjólatúr um Reykjanesið sem fór næstum því illa. Þá ræða þeir um skoðanaskipti og hvort skoðanir og rangfærslur séu það sama, áður en þeir hita upp fyrir nýhafið NFL-tímabil. Hljómsveitarnafn dagsins er á sínum stað.

Sep 8, 20251h 46m

Ep 522.19 - Menningarnótt, tilhlökkun, gleðin við að læra nýja hluti, Brent Hinds kvaddur

Eyvindur Karlsson og Kristján Atli ræða um menningarnótt og velta fyrir sér hvort tilhlökkun sé forsenda hamingju. Eyvindur segir Kristjáni frá ýmsum áhugaverðum staðreyndum sem hann hefur lært nýlega áður en þeir kveðja gítargoðið Brent Hinds og velta fyrir sér einhliða vináttu við frægt fólk. Hljómsveitarnafn dagsins er á sínum stað.

Aug 25, 20252h 4m

Ep 512.18 - Eymd Kóngsins, fantasíudoðrantar, ofurhetjuþreyta og The Biggest Loser

Eyvindur Karlsson og Kristján Atli ræða Misery eftir Stephen King og bera bókina saman við kvikmyndina. Þá ræða þeir um fantasíubókmenntir og velta fyrir sér hvers vegna bækurnar eru jafnan svona langar, áður en Kristján spyr Eyvind hvort hann þjáist af ofurhetjuþreytu. Eyvindur ræðir um The Biggest Loser og rifjar upp hvernig var að horfa á þá þætti upp úr aldamótum. Hljómsveitarnafn dagsins er á sínum stað.

Aug 18, 20251h 41m
© 2025 Krummafótur