
Já OK
243 episodes — Page 1 of 5
Ep 243Amma Lo-Fi
Strákarnir tala um Sigríði Níelsdóttur og hennar tónlist, tala reyndar líka um Bingo Dorthe en það er allt önnur saga. Af hverju var Sigríður kölluð Amma Lo-Fi? Hlustið og komist að því. K bæ
Ep 242Bruninn í Skildi
Sorry þungur þáttur, en mikilvægur. Bruninn í Skildi er einn mannskæðasti eldsvoði á Íslandi á 20. öldinni. Tékkið á reykskynjurum heima hjá ykkur og þó það sé kósy passið að slökkva á öllum kertum áður en farið er að sofa.
Ep 241Jólabjór, Julebrygg og J-Dag (kannski Ora baunir líka).
Gleðileg jól! Jólakarlar ræða jólahluti og drekka jóla(hvít)öl á meðan! Sumir myndu segja að Julebrygg Tuborgs sé ekki jólabjór Íslendinga, en þær manneskjur væru að ljúga að sjálfum sér… í bili.
Ep 240Gamlar jólahefðir
Hó hó hó! Hvaða myndir skerið þið í laufabrauðið? Hér er heill þáttur stútfullur af gömlum íslenskum jólahefðum.
Ep 239Sæmundur Hólm
Enn einn kynlegi kvisturinn... en við elskum kynlega kvista er það ekki? Sæmundur Hólm, við megum vera mjög þakklát fyrir honum, Sóli Hólm er líka alveg fínn sko! En þetta er Sæmundur Hólm!
Ep 238Gíslaklettar
Trúir þú á álfa? En að álfar geti framið morð? Fylgist með í næsta þætti af CSI: Elfe Edition á Skjá Einum!
Ep 237Íslenzk fyndni
Villi las sig til um allskonar grín, náði samt ekki að skrifa mikið niður, þáttur eftir minni, smá old skool, smá gerður í mikla vinnutörn. Staðreyndirnar á afslætti á forlagid.is með kóðanum jaokhladvarp
Ep 236Hallbjörg Bjarnadóttir
Eru þið nokkuð með rödd sem spannar fjórar áttundir? Nei? Það var hún Hallbjörg Bjarnadóttir með! Shiiiii
Ep 235Heklína
Í þessum þætti fer Villi í lélegasta drag íslandssögunnar, enda ekki hver sem er sem getur gert þetta bara sísvona, svo er drag ekki bara að "setja á sig meik". Villi segir Fjölni frá bestu dragdrottningu Íslandssögunnar. Það er mikið í þessum þætti, gleði, sorg, og allt inn á milli. Heklína, we love you.
Ep 234Herbert Guðmundsson
Í þessum þætti Villi and Fjölnir can't walk away from hearing all about Herbert Guðmundsson. En ætli Hebbi hlusti á Já OK? Hebbi?! Svaraðu...kallainu...frá mééééér!
Ep 233Hannes Hafstein
Strákarnir mæta aftur! Að þessu sinni eru þeir að reyna sitt besta til að halda sig á dagskrá, sem þýðir að héðan í frá kemur brakandi ferskur þáttur aðra hverja viku! Við skoðum líf Hannesar Hafsteinar, um leið og við tökum stöðutjékk á hvor öðrum líka. Kóði hjá Forlaginu : jaokhladvarp
Ep 232Hannes Boy aka Hannes Beggólín
Hannes Boy er geggjaður veitingastaður á Siglufirði, en hvaðan kemur nafnið? Fylgisti með í næsta þætti...nei djók í þessum þætti.
Ep 231Falun Gong
Stefán Ingvar kíkti í heimsókn. Hann er með uppistand í Sykursalnum - Stefán Ingvar sigrar atvinnulífið. https://tix.is/event/19107/stefan-ingvar-sigrar-atvinnulifidHann átti líka að skrifa lýsingu en fór heim áður en hann gerði það því hann er svo kvöldsvæfur.
Ep 230Sæfinnur Vatnsberi
Kallaður Sæfinnur með sextán skó, við köllum hann vatnsbera frekar því það var vinnan hans. Maður sem beið eftir því alla sína ævi að fá að byrja að lifa.
Ep 229Guðlast og Spaugstofan
Er maður gamall því manni finnst Spaugstofan aftur fyndin eða var hún alltaf fyndin og maður fór í gegnum tímabil? Bara pælingar. Heyrumst.
Ep 228Þegar Ísland vildi kaupa Grænland
Jú krakkar mínir það var ekki bara Bandaríkin sem vildi kaupa Grænland, heldur Íslendingar líka. Sjálfur vil ég bara kaupa mér flugmiða til Tene. Fátt íslenskara en að fljúga til Tene. Væri samt gaman að heimsækja Grænland.
Ep 227Þvottabirnir á Íslandi
Þvottabirnir eru hálfbirnir. Villi er hálfur Íslendingur, en hann er samt Íslendingur. Fjölnir er hálft legend og hálfur meistari, en samt 100% kóngur? Hversu gott er það? Villi er að skrifa þennan texta bsþsáh (bara svo það sé á hreinu) ekki Fjölnir.
Ep 226Saga flugelda á Íslandi
Hvernig skrifar maður flugeldahljóð? vííííííjjjúúúúúúúuuuum....BANG!
Ep 225Gleymdu jólasveinarnir
Villi og Fjölnir eru auðvitað líka jólasveinar en það eru MÖRG sem hafa gleymst í gegnum tíðina. Hér förum við yfir þau öll, hverja má bæta við á listann? Það er spurning... Kannski litla-pung.
Ep 224Strompaslys
Desemberuppbót? Hvað er það? Meiri pening? Kíkið á vr.is fyrir frekari upplýsingar. Þessi þáttur er í boði VR.Ef þið viljið styrkja okkur með kaffibollum þá er slóðin hér: https://buymeacoffee.com/jaokAnnars er þessi þáttur um slys í strompum...á íslandi...
Ep 223Steina Vasulka
Kaupa kaffi : https://buymeacoffee.com/jaokÞetta er hljóð en hér fjöllum við mest um vídeó, vídeólist. Did vídeolist kill the podcast star? Það er stóra spurning, eða nei samt ekki. Við spjöllum allavega við Maríu Guðjohnsen (@mariagudjohnsen) um hina stórmerkilegu Steinu Vasulka.
Ep 222Sirry Steffen
Hi. Villi and Fjölnir take a trip though the time machine and all the way to Hollywood just to meet the first Icelandic woman to work as an actress on the big screen. That's impressive! Hope you know that! Does anybody read this??
Ep 221Flámæli
Kaupa kaffi: https://buymeacoffee.com/jaokÍ þessum þæti tala strákarnir um akveðna hluti sem gaman er að. Kannski fá þeir sér sker ef engin flöga lendir á því. Það er aldrei að vita.
Ep 220Hin ungu fórnarlömb hernámsins.
Þessi þáttur er kannski ekki mikið sprell, en þannig er lífið stundum og þannig umræðuefni þarf að taka fyrir af og til, en það er sprellað fyrir og eftir umræðuefnið er tekið.
Ep 219Hrekkjavöku bland í poka Part 2 (Apótek á Íslandi)
Saga Apóteka á Íslandi er rúmlega 260 ára gömul og húsakynni fyrsta apóteksins á Íslandi munu helst hafa líkst fangaklefa frá miðöldum.Villi og Fjölnir fara yfir söguna og skoða margar hryllilegar sögur sem fylgt hafa lyfjasölum Íslands.
Ep 218Hrekkjavöku bland í poka Part 1 (Spítalar á Íslandi)
https://buymeacoffee.com/jaokÞegar talað er um reimleika er oftar en ekki verið að vitna í sögur sem tilheyra stöðum sem geyma mikil áföll og erfiði, þó ekki sé minnst á sjálfan dauðan. Slíkir staðir eru allt um kringum okkur, en þó eru nokkrir sem eru ríkari slíkum sögum en aðrir.
Ep 217VIP Partý
Kaupa köff : buymeacoffee.com/JaokMyndu Villi og Fjölnir fá samviskubit yfir því að vera ekki boðnir í VIP Partý á Replay? Myndu þeir reyna að komast inn eftir hálf tólf? Hvaða myndi Geiri Goldfinger segja við þá? Villi og Fjölnir ræða menninguna frá 2011, en hvaða menning er það?
Ep 216Kallarnir
Velkomin í Metróskólann þar sem við kennum Villa og Fjölni að vera hörkufolar í áfangakerfi.
Ep 215Nonni
Nonni var merkilegur maður. Var þessi þáttur kannski of stór biti fyrir Villa? Vonandi ekki. Hann vonar það allavega ekki. Vonandi hefur fólk gaman að þessum þætti. Við skulum vera góð við Villa <3 Takk fyrir leynikaffið Mr. Big!
Ep 214Nágrannaerjur
Hver hefur lent í því að vera komin í góða íbúð eftir langa leit, allt virðist vera að ganga upp í lífinu en svo allt í einu færðu kvörtun frá nágrana "engin læti eftir kl18!" og þú fattar "ónei, ég á erfiða nágrana". Jú margir íslendingar. En leiðindin ganga þó stundum í báðar áttir og enda jafnvel með ofbeldi og dómstólum. Og já talandi um það þá fór Fjölnir smá að tala um eitthvað svona lögmanna dæmi í lok þáttarins og hann skildi ekki neitt sjálfur! Þannig já...verum góð við Fjölni <3
Ep 213Forræðisdeila Sophiu og Halims
Kaupið okkur kaffi : buymeacoffee.com/JaokÍ þessum þætti reyna Villi og Fjölnir að skilja dómstóla Tyrklands, en fyrst og fremst eru þeir mjög kátir að sjá hvorn annan í stúdíóinu eftir langan aðskilnað.
Ep 212Sailesh á Íslandi (live þáttur)
Þú finnur hvernig augun verða þyngri og þyngri þar sem dáleiðslumáttur Já OK dregur þig dýpra og dýpra inn í dáleiðslu ástand. Þú ert villisvín VILLISVÍN! Þessi þáttur er um dávaldinn Sailesh og þegar hann kom til Íslands og tryllti líðinn bókstaflega! Minnum á Umræðugrúbbu Já OK á facebook þar sem hægt er að horfa á þáttinn í heild sinni.
Ep 211Allt í grænum sjó! (live þáttur)
Þessi þáttur var tekinn upp í sumar, þegar fólk var enn vongott um að framundan væri betra veður. Það kom ekki, en læv showið kom og það var algjör stemning! Strákarnir sátu sveittir í Háskólabíóhitanum og reyndu að fræða sitt besta fólk um eina frægustu revíu Íslandssögunnar.
Ep 210Fjölnismenn (Live þáttur)
Nú vil ég ekki þetta orðlengjandi vera, heldur Yður guði bífalandi, bréfinu slúttandi og því lokandi, item utan á það skrifandi, mín stígvél upp á mig dragandi, í minn "kjól" farandi (snústóbakslitaðan verandi), mína skikkju eða yfirhöfn yfir mig látandi, minn hatt á mitt höfuð setjandi, lykilinn upp úr mínum vasa takandi, hurðinni upp ljúkandi, út úr dyrunum gangandi, hurðina síðan aftur látandi, lyklinum þar í stingandi og honum við snúandi, dyrunum þannig læsandi, oft nefndan lykil síðan út úr skráargatinu dragandi, niður af öðrum sal labbandi, og út úr þessu húsi - Skindergaden Nr. 24, Uhrmager Kyhls Gård - gangandi, í hverju húsi égg til þessa mánaðar loka er væntanlegur verandi, en nú í burtu branandi og niður á pósthús farandi, bréfunum þar skilandi og eftir það heim til minna híbýla snautandi, Yðar þjónustureiðubúinn vinur verandi, Konráð Gíslason heitandi.
Ep 209Charles Manson í síldinni
Umræðuefnið byrjar á 14:04 - Villi, Fjölnir og Tinna ræða þjóðarmálin á milli sín í þessum rammpólitíska þætti, en þar eru stóru málin rædd. Orkupakkinn, auðlindir og nýju airbnb lögin.
Ep 208Álögin í Málmey
Strákarnir sjá flott í hús í sínum draumum, fjölskyldur kalla á þá... "talið um okkur" segja þær, "segið okkar sögu". Villi hlustar, og svarar kallinu.
Ep 207Björn "ríki" Þorleifsson
Umræðuefni þáttarins byrjar á 17:32.Þessi nýr fídus er fyrir þá sem eru (skiljanlega) óþolinmóð yfir því að þátturinn byrji. Við fjöllum um alveg gammel gammel dag rifrildi og rugli.
Ep 206Íslenska neftóbakið
Tóbakið hreint, fæ gjörla ég greint, gjörir höfðinu létta, skerpir vel sýn, svefnbót er fín, sorg hugarins dvín. Sannprófað hefi ég þetta.Tóbak nef neyðir, náttúru eyðir, upp augun breiðir, út hrákann leiðir, minnisafl meiðir, máttleysi greiðir og yfirlit eyðir.- Hallgrímur Pétursson
Ep 205S.Í.B.S kubbarnir
Í þessum þætti fara Villi og Fjölnir í Legoland Billund og velta fyrir sér hvort það væri ekki skrýtið að búa til S.Í.B.S-land út á landi.
Ep 204Óeirðirnar á Austurvelli
Óður kommúnistaskríll eða landráð framin í skjóli ofbeldis?
Ep 203Charles Thorson
Villi og Fjölnir og 5 aðrir dvergar fara og rannsaka slóðir Vesturfarans Charles Thorson, hver var þessi maður, í stuttu máli?Pun not intended
Ep 202Draugurinn "að sunnan"
Voru ódæðisverkin eftir draug eða voru þau af mannavöldum? Við viljum benda á að í þessum þætti verður talað um gróft ofbeldi gegn dýrum.
Ep 201Herfylkingin
Villi og Fjölnir fá ný vopn, derru með rauðan punkt fyrir ofan derið og fara síðan á æfingu með alla fellana sína undir stjórn Kaptein Kohls. Sá maður er auðvitað danskur fýr og mjög annt um lýðheilsu okkar, og það kunna þeir vel að meta!
Ep 200Þáttur 200! ft. Berglind Ósk og Kilo
Já OK! á afmæli! Þáttur 200! Og með okkur eru skemmtilegir gestir að spjalla um daginn inn og daginn út. Förum aðeins á upprunaslóðir Villa og Fjölnis en annars bara glens og grín!
Ep 199Gísli á Uppsölum
Villi sagði aðeins of oft Gísli í Uppsölum því hann ruglaðist og hélt það ætti að segja það þannig, hann er smá lítill í sér yfir því þannig ekkert vera að minnast á það við hann eða í grúppuni. Hann gengst við þau mistök.
Ep 198Skrítnar íslenskar mataruppskriftir
Éttu mig! Uppskrift: 5 Egg, 75gr Sítróna, 250ml Rjómi, 125gr Sykur, 125ml Vatn, 24gr Matarlím.Aðferð fyrir Éttu mig! er í þættinum. Njótið! Bon Appetit!
Ep 197Tónlistarbland í poka
Það er of seint núna fyrir Villa og Fjölni að stofna barnahljómsveit, en það er kannski alls ekki of seint fyrir þá að taka ábreiðu af ítölsku lagi... eða hvað?
Ep 196Live and Reloaded
Fyrri live þátturinn okkar í Borgarleikhúsinu. Verði ykkur að því! Um Jörund Hundadagakonung
Ep 195Klaustursmálið
Í þessum þættir fara Fjölnir og Villi á bar og tala um alsskonar hluti, þeir eru í 36 tíma "blackouti" og munu ekki muna eftir neinu. Það sem þeir vita þó ekki er að það er upptökutæki þarna nálægt.
Ep 194the Björk stalker
Þessi þáttur er um mann sem var með mikil andleg vandamál. Við vörum við umfjöllunarefninu.