PLAY PODCASTS
Heimsendir

Heimsendir

152 episodes — Page 1 of 4

#155 Gervigreindarspjall með Stefáni Atla (samstarfsþáttur)

Apr 27, 202650 min

#154 Tai Chi Walking og örplast í öllu

Hver kannast ekki við að rekast á Tai Chi Walking auglýsingar á YouTube? En af hverju á maður að verða massaður á göngutúrum? Af hverju er örplast í gosdósum? Loks, hvernig lifum við til 130 ára aldurs? Njótið vel!

Apr 10, 202650 min

#153 Árið 2025 gert upp - Fjármál, heilsa og nýársheit

Heldur seinn að gera upp síðasta ár en svona er lífið þegar maður er önnum kafinn, og það er kannski lúxusvandamál. Í þessum þætti skoða ég síðasta ár og nýársheitin sem ég strengdi, hvort þau stóðust, og hvernig þau höfðu áhrif á nýársheit þessa árs. Svo fer ég yfir nýlegar vangaveltur í fjármálum og heilsu, sem og alþjóðamálum. Njótið vel!

Feb 17, 202638 min

#152 Ferðasaga til Japan 2025

Ég er mættur aftur til Japan! Við fjölskyldan erum á ferðalagi um land hinnar rísandi sólar enn á ný og í þessum þætti fer ég yfir það sem á vegi okkar verður. Kostir og gallar eða þakklæti og það sem betur má fara. Hvernig blasir Japan við mér eftir eins árs fjarveru? Við skulum komast að því!

Sep 19, 202559 min

#151 Er óhollt að hlusta á hlaðvörp?

We back! Mættur til baka, af miklu að taka. Í þessum þætti ræði ég síðustu vikur í mínu lífi - framleiðslu á barnaþáttum, sjóveiki um borð í skipinu og hlaðvarpsföstu sem ég tók fyrr í maí. Við skoðum hversu mikil hlaðvarpsneysla telst eðlileg og hvenær maður á ekki að hlusta á hlaðvörp.

Jun 16, 202547 min

#150 Lífið á Íslandi - Japanskir raunveruleikaþættir

Margt að ræða - Trump og tollamúrar, nýtt upphaf Evrópu, leikskólamál í Reykjavík, og auðvitað japanskir raunveruleikaþættir sem allir ættu að horfa á enda feel-good af bestu gerð.Þátturinn er í boði Bíó Paradís.

Apr 8, 202554 min

#149 Þórarinn Hjartarson

Þórarinn Hjartarson er þáttastjórnandi hlaðvarpsins Ein pæling og stjórnmálafræðingur. Í þættinum förum við um víðan völl og snertum meðal annars á upprisu Indlands, lýðfræðivandamálum Kína, persónulegum hindrunum, ágæti kapítalisma og framtíð Íslands.

Apr 1, 202559 min

#148 Frímann Gunnarsson

Frímann er sjónvarpsmaður og stjórnmálafræðingur með próf frá London School of Politics. Hann hefur lengi prýtt skjái landsmanna en þættirnir hans hafa verið sýndir á Skjá Einum, Rúv og Stöð 2. Næstu helgi verður Frímann síðan á hvíta tjaldinu í Bíó Paradís. Í þessum þætti ræðum við námsárin, ljóðlistina, listaelítuna og hvort gott sé að blanda áfengi og svefntöflum.Þátturinn er í boði Bíó Paradís. Ef Egils Kristall er að hlusta má endilega bjóða mér spons enda drekk ég það eins og vatn.

Mar 19, 202555 min

#147 Lífið á Íslandi - Er að koma stríð?

Kominn aftur miklu meiri kraftur! Í þessum þætti fjöllum við um síðustu vikur lífs míns á Íslandi ásamt umræðum um vinina Trump og Pútín, framtíð Evrópu og Úkraínu, AI auglýsingar, útivist og áfengislausan lífstíl.Þátturinn er í boði Bíó Paradís.

Feb 25, 202550 min

#146 Logi Pedro

Logi Pedro er hönnuður og tónlistarmaður. Við ræðum hnignun stórvelda, jákvæða þjóðerniskennd, mikilvægi vinnu, hreinskilna stjórnmálamenn og margt fleira.Þátturinn er í boði Bíó Paradís.

Jan 28, 20251h 9m

#145 Fjármálaráðgjöf 2025 - Get Rich Quick! (OPINN ÞÁTTUR)

Þetta er vissulega ekki fjármálaráðgjöf, en, þið vitið. Vangaveltur um Bitcoin, fasteignir, hlutabréf og fleira. Hvernig á að haga fjármálum og fjárfestingum árið 2025? Hvernig mun gervigreind hafa áhrif á vinnu? Hvað er fjárhagslegt frelsi. Þetta og fleira í þætti dagsins.Þátturinn er í boði Bíó Paradís.

Jan 21, 202556 min

#143 Árið 2024 gert upp! (OPINN ÞÁTTUR)

Stærsta ár lífs míns? Kannski ekki, en svakalegt ár engu að síður. Fór á nyrsta odda Japans, dó næstum í jarðskjálfta í Taiwan, flutti með kött og barn til Íslands, hitti Jeff Daniels, landaði fiski og lúbarði hyski. Þetta var gott ár en 2025 verður betra.Hentu í follow á hlaðvarpsveitur og Insta fyrir allt það helsta úr smiðju Heimsendis!

Dec 30, 202444 min

#142 Erna Mist (OPINN ÞÁTTUR)

Erna Mist er listmálari, pistlahöfundur og leikhúsvera. Við ræðum lífið og vinnuna, Ísland og London, morgunrútínur og málverkakaup til Kína. Auk þess tölum við um listina sem tekjulind og tækifæri til að framþróa samfélag.Þátturinn er í boði Bíó Paradís og Heimsendafjölskyldunnar á Patreon.

Dec 11, 20241h 3m

#140 Eiður Westmann - Frambjóðandi til Alþingis (OPINN ÞÁTTUR)

Útlendingamálin. Orkumálin. Vindmillur og plastagnir. Efnahagskrísa vestanhafs og ólga í Evrópu. Uppstokkun í sviðslistasjóði. Eiður Westmann, frambjóðandi úr Flokki Fólksins, mætir í Heimsendi til að ræða allt þetta og meira til í aðdraganda Alþingiskosninga 2024.Kæri hlustandi, þátturinn er í boði Bíó Paradís og Heimsendafjölskyldunnar á Patreon. Ef þú vilt fullan aðgang að öllu efni Heimsendis geturðu kíkt á patreon.com/heimsendir og upplifað dýrðina.

Nov 26, 202456 min

#139 Lífið á Íslandi - Trump inn, Bitcoin upp, Evrópa út?

Hlustið í heild á patreon.com/heimsendirÉg hef verið með hluti á heilanum uppá síðkastið - Kosningar í BNA, hnignandi staða Evrópu, fullris Bitcoin. Auk þess er gaman að ræða lífstíl og fallin vígi. Loks eru Heimsfréttirnar á sínum stað.

Nov 19, 202411 min

#138 Tumi Gonzo (OPINN ÞÁTTUR)

Trump forseti. Geópólitík. Deepfakes og gervigreindarmyndbönd. Gestur þáttarins er Tumi Gonzo, listamaður og leikstjóri. Önnur umfjöllunarefni eru kosningar á Íslandi, orkumálin og framtíð landsins.Þátturinn er í boði Bíó Paradís og Heimsendafjölskyldunnar. Ef þig langar að fá fullan aðgang að öllu efni Heimsendis bendum við á patreon.com/heimsendir

Nov 8, 202458 min

#137 Lífið á Íslandi - Raunhagkerfið

Hlustið í heild á www.patreon.com/heimsendirLöndun í Grindavík. Heimavinnandi húsfaðir í Hlíðunum. Milljón á mánuði. Og Kamala Harris í vandræðum. Allt þetta og meira í þessum flæðiþætti (sumir kalla það gas). Njótið vel!

Nov 2, 202413 min

#136 Bolli Már Bjarnason (OPINN ÞÁTTUR)

Bolli Már Bjarnason er uppistandari og útvarpsmaður, veiðimaður líka, og margt fleira. Í þættinum ræðum við jólin og rjúpurnar, áhugamál og fjölskyldulíf, vinnu og peninga. Lífið á Íslandi er líka til umræðu sem og samanburður við Japan.Þátturinn er opinn í boði Bíó Paradís og Heimsendafjölskyldunnar á Patreon.

Oct 24, 20241h 6m

#135 Framtíð Íslands

Hlustið í heild á patreon.com/heimsendirBjört framtíð? Mögulega. Í þessum þætti fjöllum við um framtíð íslenskrar náttúru og efnahags, fólksþróun, menningu og tungumál, listir og alþjóðamál. Er íslenskan á útleið? Verður stofnaður her á Íslandi? Munu jöklarnir bráðna? Þessar og fleiri verða í brennidepli.

Oct 17, 202413 min

#134 Er gervisykur að drepa þig? (OPINN ÞÁTTUR)

Sykur vs. Sykurlaust? Aspartam eða aspas? Í þessum þætti skoðum við möguleg neikvæð áhrif gervisykurs og spurjum okkur hvort það sé ekki bara betra að borða venjulegan sykur í staðinn.Þessi þáttur er í boði Bíó Paradís og Heimsendafjölskyldunnar á Patreon. Takk fyrir að hlusta!

Oct 4, 20241h 0m

#132 Veiðisumarið gert upp (OPINN ÞÁTTUR)

Veiðiveiran leggst í dvala. Sumarið 2024 var risastórt í stangveiði. Í þættinum fer ég yfir vatnaveiði í Þingvallavatni, Baulárvallarvatni, Meðalfellsvatni og fleiri góðum tjörnum ásamt laxveiði fyrir norðan og sjóbirtingsveiði síðsumars.Vakin skal athygli á að myndbandsútgáfa þáttarins er til á YouTube, X og auðvitað á Patreon.

Sep 3, 202459 min

#131 Vinna peningar fyrir þig?

ÞESSI GÆTI BREYTT LÍFI ÞÍNU. Þátturinn fjallar um bókina Ríkur faðir, fátækur faðir eftir Robert Kiyosaki. Við förum yfir eignir og skuldir, vinnu og viðskipti, eyðslu og sparnað.Hlustið í fullri lengd inni á patreon.com/heimsendir

Aug 27, 202415 min

#130 Spurjum lækni - Hvað er hundaæði (OPINN ÞÁTTUR)

Rabies, please. Já, í þættinum ræðum við Jóhannes Gauti Óttarsson, Cand. med., veirusýkinguna hundaæði sem er enn ábyrg fyrir um 60.000 dauðsföllum árlega. Við ræðum einkenni, meðferðir, zombie-myndir og fleira.Þátturinn er í boði Heimsendafjölskyldunnar á Patreon. Þú getur prófað frítt í 7 daga á patreon.com/heimsendir

Aug 13, 20241h 4m

#129 Lífið á Íslandi - Kulnun á Þjóðhátíð (OPINN ÞÁTTUR)

Menn lentu í kulnun. Tvöfaldri. Í þessum þætti fjalla ég um síðustu vikur á Íslandinu, góða veðrið, stangveiði, Verslunarmannahelgina, pestó á pasta og fleira gott. Einnig eru Heimsfréttir vikunnar og Íslenskuhornið til staðar.Þátturinn er í boði Heimsendafjölskyldunnar á Patreon.

Aug 8, 202452 min

#128 Umhverfis Ísland á stórkostlegu skipi

Full lengd: patreon.com/heimsendirLangar þig að vita hvernig það er að sigla umhverfis Ísland á skemmtiferðaskipi með 150 manns sem kalla þig Steven? Langar þig að fræðast um Flatey og Látrabjarg? Þá er þessi fyrir þig. Komdu með um borð og hlustaðu á ferðasöguna sem og punkta um allt það góða og slæma við núverandi starf mitt á skipinu góða.

Jul 23, 20248 min

#127 Vöðvar eru lykill að langlífi (OPINN ÞÁTTUR)

Þátturinn er í boði Heimsendafjölskyldunnar á Patreon.You don't use it, you lose it. Svo hljóða Hávamál. Í þessum þætti fjalla ég um nokkra vel valda punkta úr viðtali Andrew Huberman við Dr Gabrielle Lyon þar sem tengsl vöðva við langlífi eru í brennidepli. Við skoðum ofþyngd, innkirtla, prótein og kolvetni, svo eitthvað sé nefnt. Auk þess eru nokkrir punktar úr daglegu lífi hér á Íslandi. Njótið vel!

Jul 16, 202453 min

#126 Lífið á Íslandi - Er dýrt að búa á Íslandi?

Hlustaðu á þáttinn í heild sinni á patreon.com/heimsendirÍ þessum þætti fjalla ég meira um vinnumál og fjármál, rigningu og tuðmenningu, útilegu með 7 mánaða dreng og loks spurninguna: Er dýrt að búa á Íslandi. Svo bregðum við okkur víðsvegar um heiminn í Heimsfréttum vikunnar.

Jun 25, 20247 min

#125 Spurjum lækni - Hvað eru berklar? (OPINN ÞÁTTUR)

Fyrsti þáttur í seríunni Spurjum lækni þar sem við fjöllum um mismunandi sjúkdóma, sögu þeirra og meðferðir. Í þessum þætti tæklum við Jóhannes Gauti Óttarsson, læknir og tónlistarmaður, sjúkdóminn berkla sem herjar enn á stóran hluta jarðarbúa þrátt fyrir að vera lítið í umræðunni hérlendis.Þátturinn er í opinni dagskrá í boði þeirra sem styðja Heimsendi á Patreon. Takk fyrir stuðninginn og takk fyrir að hlusta!

Jun 18, 20241h 2m

#124 Lífið á Íslandi - Barneignir, vinna og peningar

Þáttinn má nálgast í fullri lengd inná https://www.patreon.com/heimsendirÉg er faðir án fæðingarorlofs. Það er brekka en hún er líka full af lærdómi. Í þessum þætti fjalla ég um vinnu, gigghagkerfið, uppeldi barna, fjármálin og fleira. Í lok þáttar er síðan Heimsendir vikunnar sem snýr að vendingum í Úkraínu.

Jun 11, 20247 min

#123 Lífið á Íslandi - Menningarsjokk (OPINN ÞÁTTUR)

Ég er kominn heim, eins og segir í laginu góða. Í þessum þætti fjalla ég um sjokkið við að kveðja austrið og mæta vestur til Íslands. Brenglað hæðarskyn, hátt matvöruverð, sviðasulta í leikhús og orlofshús í Rússlandi. Auk þess eru Heimsfréttirnar og Íslenskuhornið á sínum stað.Þessi þáttur er opinn í boði Heimsendafjölskyldunnar á Patreon. Vertu með!

May 28, 20241h 1m

#122 Fucked í Finnlandi (OPINN ÞÁTTUR)

Afsakið frönskuna. Ég er staddur í Finnlandi með kettinum Tító og okkur líður vel þrátt fyrir langt ferðalag að baki. Helsinki er flott borg og hér á hótelinu er sána og rækt. Í þættinum fjalla ég um ferðasöguna frá Japan og heimspekina á bakvið einveru erlendis.Kæri hlustandi, ef þú vilt fullan aðgang að öllu efni Heimsendis, þá vitið þér hvar skal leita. Takk fyrir að hlusta!

May 14, 202443 min

#121 Sayonara Japan!

Hlustið á þáttinn í heild sinni á patreon.com/heimsendirGott fólk, það er komið að því. Heimsendir flytur til Íslands og segir skilið við Japan, í bili. Í þættinum lítum við um öxl og gerum upp árin 2 í Japan - hvað lærðist, hvað afrekaðist, hvers mun sakna og hvers ekki.

May 7, 20246 min

#120 Allt sem þú þarft fyrir ferðalag til Japans

Hlustaðu á þáttinn í heild sinni á patreon.com/heimsendirStórborgir eða smábæir? Sumar eða vetur? Reiðufé eða kort? Tattú eða bað? Í þessum þætti svara ég ykkar spurningum varðandi ferðalög til Japans. Ég minni á að það má senda mér spurningar beint ef fólk vill kafa dýpra. Njótið vel!

Apr 23, 20245 min

#119 Lífið í Sapporo - Svona verðurðu 120 ára (OPINN ÞÁTTUR)

Ég ætla að verða 120 ára og ég hef fundið formúluna! Í þessum þætti fjalla ég um hreyfingu, mataræði, föstur, stress, tilgang og fleira tengt langlífi, sem og punkta um lífið í Japan og nýtilkomna japönskukennslu.Kæri hlustandi, þessi þáttur er opinn en ég minni á Patreon fyrir heldra fólk.

Apr 16, 20241h 7m

#118 Lífið í Sapporo - Er nútíminn bestur eða verstur? (OPINN ÞÁTTUR)

Hvernig kemst maður í gegnum ósigra? Hvernig lifum við með samfélagsmiðlum? Af hverju í ósköpunum þurfum við að vinna 40 tíma vinnuviku? Í þessum þætti fjöllum við um kosti og galla nútímans ásamt stuttri japönskukennslu og punktum um lífið í Sapporo.Kæri hlustandi, þátturinn er opinn í boði Bíó Paradís og Heimsendafjölskyldunnar á Patreon. Ef þú ert enn að lesa þá segi ég vel gert, og hvet þig síðan til að prófa Patreon frítt í 7 daga og sjá hvað setur. Takk fyrir að hlusta!

Apr 2, 202457 min

#117 Rússneskir landnemar í Síberíu

Hlustaðu á þáttinn í heild sinni á:patreon.com/heimsendirSturluð staðreynd: Það eru aðeins 6km á milli Japans og Rússlands. Í þessum þætti fjöllum við um rússneska landnema í Síberíu og þenslu rússaveldis í austur, alla leið að Kyrrahafi. Á vegi þeirra urðu frumbyggjaþjóðir Norður Asíu, nýjar dýra- og plöntutegundir og stórbrotin náttúra.

Mar 26, 202410 min

#116 Að sigra veikindi (OPINN ÞÁTTUR)

Ég var við dauðans dyr en nú rís ég eins og fönix upp úr ösku hreinsunareldsins. Í þessum þætti fjalla ég um baráttu við skæða sótt, ástæður fyrir veikindum og mögulegan lærdóm. Síðan má finna nokkra punkta um lífið í Japan og auglýsingar vikunnar.Þátturinn er opinn í boði Bíó Paradís og þeirra sem styðja Heimsendi á Patreon. Takk fyrir að hlusta!

Mar 19, 20241h 4m

#115 Lífið í Sapporo - Við ætlum ekki að verða þyrluforeldrar

Hlustaðu á þáttinn í heild sinni áhttps://www.patreon.com/heimsendirÍ þessum þætti skoðum við sálfræðimeðferðir barna og þyrluforeldra. Af hverju eru börnin óhamingjusamari en áður? Af hverju skrifa Bandaríkin upp á 41 milljón skammt af amfetamíni ár hvert? Auk þess eru punktar um lífið í Sapporo og smá umræða um geópólitík.Kæri hlustandi, ef þú ert enn að lesa þá minni ég á að þú getur prófað Patreon ókeypis í 7 daga, svo geturðu ákveðið hvort efnið sé fyrir þig eða ekki. Takk fyrir að hlusta!

Mar 12, 20248 min

#114 Milljón á mánuði?

Hlustið á þáttinn í heild sinni á: https://www.patreon.com/heimsendirNýr sjálfshjálparþáttur frá Heimsendi. Þessi fjallar um aðferðafræði þess að verða ríkur, milljón á mánuði eða mánuð á milljón, jafnvægi milli vinnu og persónulegs lífs og margt fleira.

Feb 27, 20245 min

#113 Lífið í Sapporo - Viðtöl við japani (OPINN ÞÁTTUR)

Navalný og Pútín, Trump og Biden, vangaveltur um réttstöðulyftu, kaldar sturtur og svefnvenjur ungabarna. Í þessum þætti fjalla ég um síðustu vikur hér í Sapporo ásamt því að birta viðtöl við 4 unga japani.Allt efni Heimsendis er aðgengilegt á https://www.patreon.com/heimsendir

Feb 20, 20241h 15m

#112 Japanska mannætan í París

Þátturinn er aðgengilegur í fullri lengd á patreon.com/heimsendirÁrið 1981 gerðist ungur japani sekur um mannát í París. Nokkrum árum síðar var hann kominn heim til Japan, þá frjáls maður. Í þessum þætti fjöllum við um þetta voðaverk, aðdragandan og eftirmál.

Feb 13, 20245 min

#111 Japanskar bardagalistir (OPINN ÞÁTTUR)

Súmóglíma, Jiujutsu, Aikido, Kendo, Karate og Júdó keppa hér um titilinn: Besta japanska bardagalistin! Vissulega er þetta huglægt mat en Heimsendir stendur við það. Sömuleiðis hvetjum við alla til að stunda eða allavega prófa japanskar bardagalistir.Þátturinn er í boði Bíó Paradís en ég minni á Patreon fyrir fólk sem vill kaupa sér gott karma í lífinu.

Feb 6, 20241h 18m

#110 Lífið í Sapporo - Kvöldstund með gyðingum

Hlustið á þáttinn í heild sinni áhttps://www.patreon.com/heimsendirShabbat kvöldverður, mannanafnanefnd, 1000 kall á tímann, týpískur dagur í mínu lífi, makríll og loðna, vinna og borða. Þetta og margt fleira í þætti vikunnar!

Jan 30, 20246 min

#109 Lífið í Sapporo - Yakuza í sánunni (OPINN ÞÁTTUR)

Nýjir vinir mínir í Yakuza-glæpasamtökunum, þráðormar í fiski, plastbarkamálið ógurlega og heimsfréttir vikunnar. Í þessum þætti fjalla ég um lífið í Sapporo og það sem ég hef á heilanum þessa dagana.Þátturinn er í boði Bíó Paradís en ég minni á áskrift á Patreon fyrir fullan aðgang að öllu efni Heimsendis:https://www.patreon.com/heimsendir

Jan 23, 20241h 18m

#108 Norður Kórea

Hlustaðu í fullri lengd á https://patreon.com/heimsendirHvaða þjóðarleiðtogi er háður svissneskum osti? Hvaða land refsar þremur kynslóðum fyrir einn glæp? Hvaða hljómsveit heldur tónleika með orrustuþotu á sviðinu? Í þessum þætti fjöllum við um Norður Kóreu - fortíð landsins og framtíð.

Jan 16, 20246 min

#107 United States of Europe? (OPINN ÞÁTTUR)

Mun Evrópa einhvern tímann sameinast í ríkjabandalagið USE? Sameinuð Evrópa eða Nýja Evrópa, með 450 milljónir íbúa, annað stærsta hagkerfi heims, herafla upp á 1,3 milljónir hermanna. Gæti þetta gerst? Í þessum þætti skoðum við Evrópu og ástæður þess að möguleg sameining gæti átt sér stað. Þátturinn er opinn í boði Bíó Paradís en ég minni á Patreon ef þú, kæri hlustandi, vilt styðja fjárhagslega við litla fjölskyldu í Japan.

Jan 9, 202457 min

#106 Af hverju eru bestu myndavélarnar frá Japan? (OPINN ÞÁTTUR)

Canon, Nikon, Fujifilm, Olympus, Sony, Panasonic, Ricoh, svona mætti lengi telja. Japan er geitin í myndavélaframleiðslu og verður líklega um ókomin ár. En af hverju? Í þessum þætti munum við skoða sögu japanskra myndavélaframleiðanda og leið þeirra á toppinn. Þátturinn er opinn í boði Bíó Paradís en ég minni heldra fólk á Patreon þar sem það getur stutt beint við barnafjölskyldu í Japan. Góðar stundir!

Dec 27, 202345 min

#105 Lífið í Sapporo - Hnattræn hlýnun í Japan

Hlustaðu í fullri lengd á https://patreon.com/heimsendirSíðasti þáttur fyrir jól fjallar um nýbakaða foreldra, lækkandi hitastig og snjó, brjóstamjólk, drykkjuhátíð þar sem innganga krefst ölvunar og auðvitað loftslagsmál í Japan.

Dec 19, 20237 min

#104 Yukio Mishima II (OPINN ÞÁTTUR)

Annar þáttur um japanska rithöfundinn og byltingarsinnann Yukio Mishima. Í þessum þætti fjöllum við um seinni hluta lífs hans, þar sem hann varð pólitískari og jafnvel herskárri. Við fjöllum um stærsta ritverk hans, Sjó frjóseminnar, og endalok lífsins á annarri hæð í herstöð í Tokyo.Þátturinn er í boði Bíó Paradís en ég minni á Patreon fyrir heldra fólk. Þar er allt efni Heimsendis á verði kaffibolla!

Dec 12, 202342 min

#103 Lífið í Sapporo - 2 vikna sonur og 2 eldri konur

Hlustaðu í fullri lengd á https://patreon.com/heimsendirAllt sem þú þarft að vita um líf mitt í Norður Japan. Í þættinum fjalla ég um son minn so far, japönsk nöfn á jólatertum, núðluauglýsingar, muninn á Íslandi og Írlandi, einmanaleika og samfélagið í Sapporo.

Dec 5, 20239 min