PLAY PODCASTS
Heimsendir

Heimsendir

152 episodes — Page 2 of 4

#102 Yukio Mishima I (OPINN ÞÁTTUR)

Þátturinn er í boði Bíó Paradís en ég minni á Patreon fyrir fullan aðgang að öllu efni Heimsendis.Fyrsti þáttur um rithöfundinn og byltingarsinnann Yukio Mishima. Í þessum þætti fjöllum við um uppvöxt Mishima og innreið í japanskt menningarlíf. Við tökum fyrir fyrstu skáldsögurnar, fyrirsætustörf og leiklist ásamt hugmyndafræðinni sem mótaði einn þekktasta rithöfund Japans.

Nov 28, 202333 min

#101 Næsta stórveldi Asíu

Hlustaðu í fullri lengd á https://patreon.com/heimsendirÞessi er RISASTÓR. Keppendur eru Japan, Kína, Indónesía og Indland. Keppnisgreinar eru efnahagur, hernaður og sjálfbærni. Í þessum þætti leitum við svars við spurningunni: Hvert er næsta stórveldi Asíu. Heimurinn er að breytast og næsta stórveldi Asíu mun hafa áhrif um allan heim - bein áhrif í gegnum stjórnmál, viðskipti og hernað, óbein áhrif í gegnum menningu og samskipti. Leikarnir hefjast!

Nov 21, 20237 min

#100 Sonur (OPINN ÞÁTTUR)

Þátturinn er í opinni dagskrá í boði Bíó Paradís. Ég minni þó á Patreon fyrir fólk sem vill styðja við framleiðsluna.Ég er faðir - Faðir Stefán. Á feðradaginn 2023 fæddist mér sonur. Í þessum þætti fjalla ég um meðgönguna og fæðinguna þó ég eigi sjálfur aðeins um 5% heiðursins, Sherine er hetjan. En ég var á hliðarlínunni og fjalla hér um þá upplifun. Halló heimur!

Nov 14, 202341 min

#99 Hrekkjavakan sem kostaði 159 ungmenni lífið (ÓKEYPIS)

Árið 2022 átti sér stað stórslys í Itaewon hverfinu í höfuðborg Suður Kóreu. Hvernig getur svonalagað gerst í einu þróaðasta landi heims og hvar liggur ábyrgðin? Nú þegar ár er liðið frá hörmungunum er tækifæri til að líta til baka og skoða troðninginn á hrekkjavökunni í Itaewon. Þátturinn er í boði Bíó Paradís en þér er einnig velkomið að koma í hlýtt faðmlag Heimsendafjölskyldunnar á Patreon.

Oct 31, 202328 min

#98 Sjálfshjálparþáttur Heimsendis

ÞÁTTURINN ER AÐGENGILEGUR Á PATREON! SJÁUMST ÞAR!Stefán Þór, Heimsendir CEO, tells it all. Hér förum við á dýptina og ræðum alla nauðsynlega sjálfshjálp á heimsendatímum - samfélagsmiðlar, mataræði, áfengi og partý, föstur, Wim Hof, hlaupin, svefn og fleira. Podcastlegasti þáttur Heimsendis til þessa, mögulega.

Oct 24, 20236 min

#97 Laxeldi á Íslandi (ÓKEYPIS)

ÞÁTTURINN ER Í OPINNI DAGSKRÁ Í BOÐI ÞEIRRA SEM HAFA SKRÁÐ SIG Á PATREON. SJÁUMST ÞAR!Á síðasta áratug hefur laxeldi stóraukist á Íslandi, sérstaklega sjókvíaeldi. Eldisfyrirtækin tala fyrir öruggri og umhverfisvænni framleiðslu en þegar þúsundir kynþroska eldislaxa hefja göngur í helstu laxveiðiár landsins er eðlilegt að efasemdir vakni. Í þessum þætti fjalla ég um sögu og stöðu laxeldis á Íslandi, vandamálin og mögulegar lausnir.

Oct 17, 202356 min

#96 Heimsókn til Tokyo og símtal til Íslands

ÞÁTTURINN ER AÐGENGILEGUR Í HEILD SINNI Á PATREON!Vinnuferð til Tokyo, AKA. Sin City, Sódóma og Gómorra. Ég gekk mikið og vann yfir mig en það er eins og það er. Í þættinum fjalla ég líka um lífið í Japan almennt - Búddhíska brennu, náttúrulífsþætti, langlífi í Okinawa og fleira. Loks heyrum við símtal til Íslands við góðvin þáttarins, Almar Blær Sigurjónsson.

Oct 11, 20236 min

#95 Sértrúarsöfnuðurinn Unification Church

ÞÁTTURINN ER AÐGENGILEGUR Á PATREON! ÞÚ GETUR PRÓFAÐ FRÍTT Í 7 DAGA!Taka tvö. Þessi er góður þó röddin sé rám. Þriðjungur kóreubúa er kristinn en aðeins færri aðhyllast trú kennda við Sameiningarkirkjuna (e. Unification Church) sem þó er öflug í alþjóðlegu samhengi. Í þessum þætti fjalla ég um herra Moon, stofnanda kirkjunnar, og svokallaða Moonista sem fylgja honum í einu og öllu. Ég fjalla um samband kirkjunnar við Japan og hvernig það tengist morðinu á fyrrverandi forsætisráðherra landsins, Shinzo Abe.Sjáumst á Patreon, án gríns.

Sep 26, 20237 min

#94 Lífið á skipinu - Annar hluti (ÓKEYPIS)

I'm still on a boat. Í þætti dagsins fjalla ég um líf mitt um borð á ævintýraskipinu National Geographic Resolution. Hvernig er týpískur dagur um borð? Er ég þreyttur og ef svo er, hvar? Hvað er það erfiðasta við starfið? En það skemmtilegasta? Þessum spurningum og fleirum verður svarað í þættinum.Þessi þáttur er ókeypis en... Í GUÐANNA BÆNUM KOMIÐ Á PATREON!

Sep 12, 202356 min

#93 Lífið á skipinu - Fyrsti hluti (ÓKEYPIS)

I'm on a boat. Ég bý á ævintýraskipinu National Geographic Resolution og verð þar næstu vikurnar. Við erum að sigla um suðvestur Japan og komum við á stöðum á borð við Naoshima, Ehime, Hiroshima, Nagasaki, Yakushima, Busan (S-Kórea), Hagi og Kanazawa. Í þessum þætti fjalla ég um lífið um borð - hvaða stöðu ég gegni og hvaða skyldum ég þarf að sinna, hvenær ég vakna og hvenær ég sef (ekki oft).

Sep 5, 202341 min

#92 Japanska heimsstyrjöldin - Þriðji þáttur

ÞÁTTURINN ER AÐGENGILEGUR Á PATREON. SJÁUMST ÞAR!Árið er 1942 og japanska keisaraveldið er á hápunkti ferilsins - það nær alla leið frá Kamchatka skaga í norðri til Ástralíu í suðri. Það inniheldur stærstan hluta Austur og Suðaustur Asíu og stefnir á heimsyfirráð. En Bandaríkin eru komin inn í stríðið og þau ætla ekki að gefast upp. Í þessum þætti fjalla ég um orrustuna um Midway og endalok japanska keisaraveldisins.

Aug 29, 20235 min

#91 Japanska heimsstyrjöldin - Annar þáttur

ÞÁTTURINN ER AÐGENGILEGUR Á PATREON. SJÁUMST ÞAR!Í þessum þætti tökum við fyrir árin 1940-1942 sem marka upphaf Kyrrahafsstríðsins og mestu útþenslu japanska keisaradæmisins. Við skoðum árásina á Perluhöfn, ræðuna hans Roosevelt, olíuleit Japana og ástæður þess að Japan fór í stríð við Holland, Bretland og Bandaríkin.

Aug 15, 20238 min

#90 Japanska heimsstyrjöldin - Fyrsti þáttur (ÓKEYPIS)

Fyrsti þáttur í nýrri seríu um seinni heimstyrjöldina í Japan. Við byrjum á seinni hluta 19. aldar við Meiji endurreisnina og þræðum japanska sögu í gegnum nútíma- og iðnvæðingu, uppbyggingu hers og þjóðar. Sérstaklega verður tímabilið 1930-1939 tekið fyrir enda markar það upphaf seinni heimstyrjaldar í Japan og hefur óafturkræf áhrif á söguna.Kæri hlustandi, rífðu þig í gang og hentu þér á Patreon. Næstu tveir heimsstyrjaldarþættirnir verða í lokaðri dagskrá þar og eina leiðin fyrir þig til að sjá hvernig stríðið endaði er að skrá þig. Mark my words!

Aug 9, 20231h 1m

#89 Lífið í Sapporo - Barneignir í Japan

ÞÁTTURINN ER AÐGENGILEGUR Í FULLRI LENGD Á PATREON. KOM ÞÚ ÞANGAÐ!Allt að gerast í Japan, nema kannski barneignir. Japönsku þjóðinni fer fækkandi enda fæðingartíðni í lágmarki og innflytjendur enn fáir. Í þessum þætti fjalla ég um þróun fólksfjölda í Japans ásamt því að skoða hvað ríkisstjórnin er að gera til að bregðast við fólksfækkun. Loks fjalla ég um hvernig við Sherine upplifum stuðning frá borg og ríki þar sem við, ólíkt mörgum í Japan, eigum jú von á barni.

Jul 18, 20234 min

#88 Mun gervigreind rústa heiminum?

Gervigreind, ChatGPT og geópólitík eru umræðuefni dagsins. Ég fjalla almennt um gervigreind og mismunandi tegundir hennar, hættur og áskoranir, og hvort hún muni taka af okkur öll störf. Ég fer líka yfir hvernig gervigreind spilar inn í alþjóðastjórnmál og varnarmál ásamt því að fjalla um soft power vestursins gegn rísandi þjóðum á borð við Rússland og Kína. Kæri hlustandi, þátturinn er opinn en mikið þætti mér vænt um að sjá þig á Patreon þar sem þú færð fullan aðgang að öllum þáttum og myndbandsþáttum Heimsendis. Sjáumst þar!

Jul 11, 20231h 18m

#87 Sayonara Tokyo

ÞÁTTURINN ER AÐGENGILEGUR Á PATREON. SJÁUMST ÞAR!Bless bless, kæra Tokyo. Sæl vertu, Sapporo. Í þessum þætti geri ég upp árið í Tokyo og komandi tíma á nýjum stað í Norður Japan. Kostir og gallar stærstu borgar Jarðar, stolt mitt og eftirsjá. Hvað gerði ég vel og hvar hefði ég mátt bæta mig? Svo endum við þáttinn á nokkrum vel völdum; rassabón, Smells like Xi, Like-pandemic og fleira.

Jul 4, 20234 min

#86 Heilun í Japan með Guðna Guðnasyni

Guðni Guðnason er íslendingur búsettur í Japan. Hann rekur skólann The Modern Mistery School sem býður upp á alls konar námskeið í andlegri og líkamlegri iðkun, hugleiðslu og heilun. Yfirlýst markmið skólans er heimsfriður og í þessum þætti ræðum við Guðni markmiðið, vegferð hans til dagsins í dag, vandamál Japans og heimsins, menningarmun og mögulegar lausnir. Kæri hlustandi, þessi þáttur er í opinni dagskrá en ég minni á Patreon appið! Þar geturðu fengið fullan aðgang að öllu efni Heimsendis fyrir litla $5 á mánuði.

Jun 27, 202350 min

#85 Lífið í Tokyo - Japanskir draugar

ÞÁTTURINN ER AÐGENGILEGUR Í FULLRI LENGD Á PATREON!Yōkai eru japanskir andar og draugar. Sumir eru góðir, aðrir illir. Í þessum þætti fjalla ég um nokkrar tegundir Yōkai og hvernig ber að verjast þeim. Ég tek líka nýjan dagskrárlið - spurningakeppni vikunnar - ásamt punktum um lífið og tilveruna í Tokyo.Sjáumst á Patreon!

Jun 6, 20235 min

#84 Epísk þrælaþjóð með Bergþóri Mássyni

Bergþór Másson, fellow PHD hlaðvarpsþáttastjórnandi, kom til Japan eftir langt ferðalag um heiminn - Ísrael, Indland og Indonesía, svo eitthvað sé nefnt. Í þættinum ræðum við epíkina sem finnst í Japan, heragann, fortíðarþránna og hæfileikann til að skeyta litlu um skoðanir annarra. En við ræðum líka þrældóminn sem gerir Japan óskiljanlegt í augum svo margra. Kæru hlustendur, þessi þáttur er í opinni dagskrá en ef þið viljið fræðast um Yakuza, verstu bjarnarárás í sögu Japans, Woke-menningu í Japan og fleira er ráð að skrá sig á Patreon eigi síðar en núna. Takk fyrir að hlusta!

May 30, 20231h 15m

#83 Versta árás skógarbjarnar í Japan

ÞÁTTURINN ER AÐGENGILEGUR Í FULLRI LENGD Á PATREON APPINU. SJÁUMST ÞAR!Árið 1915 varð lítið þorp í norðurhluta Japans fyrir verstu bjarnarárás í sögu landsins. Í þessum þætti fjalla ég almennt um árásir bjarna í Japan og tek síðan fyrir þessa hryllingssögu frá 1915. Loks eru nokkrir punktar teknir fyrir um lífið í Tokyo. Þar má nefna umfjöllun um leiksýninguna Hroki og Hleypidómar, Mamachari árásir og sand sem gjöf. Komið á Patreon! Þar er veisla!

May 23, 20235 min

#82 Japönsk drykkjumenning (KAMPAI)

Let us get drunk. Áfengi í Japan er eins og vont veður á Íslandi, mjög algengt. Í þessum þætti fjalla ég um drykkjumenningu japana með tilheyrandi drykkjavali og þeim samfélagslegum áhrifum sem fylgja the devil drink. Kæru hlustendur, komið á Patreon eigi síðar en núna! Takk fyrir að hlusta!

May 16, 20231h 8m

#81 Lífið í Tokyo - Hversu mikið þarf ég að vinna?

Er list vinna? Er maður að vinna ef það er gaman? Mun fólk þurfa að vinna í framtíðinni? Þessum spurningum og fleirum verður að öllum líkindum svarað í þætti dagsins ásamt punktum um lífið í Tokyo, auglýsingum vikunnar og Heimsendahorninu.Þessi þáttur er í opinni dagskrá en ef fólk vill sjá af nokkrum hundraðköllum í gott málefni má endilega gerast áskrifendur á Patreon og fá fullan aðgang að öllum þáttum Heimsendis!

May 2, 20231h 27m

#80 Lífið í Tokyo - Samskipti Rússlands og Japans

EKKI BÍÐA. KOMIÐ Á PATREON, RIGHT NOW. SJÁUMST ÞAR!Hvað eiga stærsta land í heimi og þriðja stærsta hagkerfi heims sameiginlegt? Landamæradeilur. Og fleira. Rússland og Japan eru í love/hate sambandi og hafa lengi verið. Í þessum þætti rekjum við söguna aftur til ársins 1855 og skoðum samskipti, deilur og stríð þessara tveggja grannríkja.

Apr 25, 20235 min

#79 Frí frá Tokyo - Hakone, Kyoto, Osaka og Okinawa

ÞESSI ÞÁTTUR ER Í ÁSKRIFT Á PATREON. ÞÚ GETUR VERIÐ ÞAÐ LÍKA!Náðu í Patreon appið, finndu Heimsendi, og fáðu fullan aðgang að öllum þáttum fyrir svo lítið sem 700kr á mánuði.Fjölskyldan mín er í Japan og við erum að ferðast. Í þessum eintalsþætti fjalla ég um ferðalagið frá Tokyo - Hakone - Kyoto - Osaka - Nara - Okinawa. Þessi þáttur nýtist sem skemmtun sem og ferðatips fyrir verðandi Japansfara. Takk fyrir að hlusta!

Apr 11, 20233 min

#78 Kyotobúinn Ída Pálsdóttir

Ída Pálsdóttir fluttist til Kyoto með fjölskyldu sinni í byrjun árs 2022. Í þessum þætti ræðum við menningarsjokkið sem fylgdi komunni, kosti og galla þess að búa í Japan, kyrrðina í Kyoto og fleira til. Þessi þáttur er í opinni dagskrá en ég minni á Patreon þar sem hlustendur geta fengið aðgang að öllu efni Heimsendis fyrir litlar 700 kr. á mánuði. Takk fyrir að hlusta!

Apr 4, 20231h 7m

#77 Karrímorðinginn í Wakayama

Árið 1998 átti sér stað skrýtinn atburður í Wakayama héraði í suðvestur Japan. Fólk lést eftir að hafa borðað karrírétt með hrísgrjónum en enginn vissi hvað hafði gerst fyrr en rannsókn á málinu leyddi ýmislegt í ljós. Í þessum þætti fjalla ég um karrímorðin í Wakayama og fólkið á bakvið þann myrka atburð. Kæri hlustandi, þessi þáttur er í opinni dagskrá en ég minni á Patreon appið fyrir þau ykkar sem viljið fullan aðgang að öllum þáttum sem og að styðja við bakið á þessu hlaðvarpi. Takk fyrir að hlusta!

Mar 21, 202337 min

#76 Lífið í Tokyo - Sértrúarsöfnuðurinn Happy Science

ÞESSI ÞÁTTUR ER Í ÁSKRIFT Á PATREON. Sjáumst þar!Happy Science er einn stærsti sértrúarsöfnuður Japans. Leiðtoginn og stofnandinn er guðinn El Cantare endurfæddur en eftir nýlegt andlát hans er framtíð safnaðarins óljós. Í þættinum reyni ég líka að svara spurningunni hvort japanir séu meira hneigðir til sértrúar en aðrar þjóðir og mögulegar ástæður fyrir því.

Mar 14, 20234 min

#75 Butoh og tveir pólar Japans með Snæfríði Ingvarsdóttur

Snæfríður Ingvarsdóttir er leikkona og Japansvinur. Við hittumst síðast í Tokyo í byrjun árs 2023 og í þessum þætti spjöllum við um upplifun hennar af Japan, dans- og listforminu Butoh, menningarmun þjóðanna og margt fleira. Kæri hlustandi, þessi þáttur er í opinni dagskrá en ég minni á Patreon appið þar sem þú getur nálgast alla þætti Heimsendis í áskrift og þannig stutt við bakið á þessu hlaðvarpi. Arigatou gozaimashita!

Mar 7, 20231h 18m

#74 Lífið á Íslandi

ÞESSI ÞÁTTUR ER Í ÁSKRIFT. KOMIÐ YFIR Á PATREON!Ég er á Íslandi og það er næs. Í þessum þætti fjalla ég um ferðalagið vestur til Íslands og taktbreytinguna sem ég upplifi hér samanborið við Japan. Þetta er eintalsþáttur þar sem ég tala í frjálsu flæði um allt og ekkert, kem aðeins inná sértrúarsöfnuði sem mig langar að taka fyrir nánar í næstu þáttum. Takk fyrir að hlusta og við skulum sjást á Patreon!

Mar 2, 20235 min

#73 Lífið í Tokyo - Hættuleg dýr, glæpamenn og skrýtnar staðreyndir Japans

Þessi þáttur er í áskrift. Ég mæli með að hlusta í Patreon appinu! Hver eru hættulegustu dýr Japans? En glæpamenn? Hverjar eru frægustu konur Japans? Skrýtnar auglýsingar, staðreyndir og ríkasta fólkið. Allt þetta og meira til í þætti dagsins þar sem ég fjalla um topp 5 Japans í ýmsum flokkum. Önnur umræðuefni eru baðhúsamenning, hjólreiðar og hlutabréf.Kæri hlustandi, árið 2023 ætla ég að stækka Patreon fjölskylduna upp í 50 manns. Viltu vera með? Náðu þá í Patreon appið, finndu Heimsendi og skráðu þig. Það kostar ekki nema 700 kr. á mánuði. Takk fyrir að hlusta!

Feb 14, 20236 min

#72 Versta flugslys í sögu Japans

Japan Airlines 123 var versta flugslys í sögu Japans. Bilun kom upp í stórri Boeing þotu félagsins með 524 manns um borð. Í þessum þætti fjalla ég um aðdrög og afleiðingar slyssins sem lifir enn í manna minnum hér í Japan. Kæri hlustandi, þessi þáttur er í opinni dagskrá en ef þú vilt styrja þáttinn OG fá fullan aðgang að öllum þáttum mæli ég með að ná í Patreon appið og gerast áskrifandi. Takk fyrir að hlusta!

Feb 7, 202330 min

#71 Lífið í Tokyo - Hvað gerist ef maður borðar bara kjöt og ávexti?

ÞESSI ÞÁTTUR ER Í ÁSKRIFT. Ég mæli með að ná í Patreon appið og hlusta þar, það kostar ekki nema 700 kr. á mánuði!Í þessum þætti fjalla ég um mataræði síðustu vikna: svínasteik, epli, nautasteik, lifur, bláber, jógúrt, camembert, kjúklingur, og mikið af eggjum. Hverjir eru kostir þessa mataræðis? Hverjir eru gallarnir? Hvernig eru hægðirnar? Önnur umræðuefni eru stærstu ógnir ársins 2023.

Jan 31, 20235 min

#70 Músík og módelstörf með Tyler Toic

Tyler Toic er tónlistarmaður, leikari og fyrirsæta í Tokyo. Við kynntumst þegar við unnum sem lífverðir (eða þvíumlíkt) fyrir Gucci. Í þessum þætti ræðum við líf listamannsins í Japan - tónlist, leiklist og módelstörf. Seinna í þættinum rýnum við hart í félagsleg vandamál Japans og möguleika og tækifæri framtíðar. Kíkið á tylertoic.com fyrir allt sem Tyler hefur uppá að bjóða!Kæri hlustandi, ef þú hefur gaman af Heimsendi þá bið ég þig að kíkja á Patreon.com/heimsendir og skoða úrvalið. Þar má nálgast fullan aðgang að öllum þáttum. Takk fyrir að hlusta!

Jan 24, 20231h 29m

#69 Japanski hermaðurinn sem gafst ekki upp

Þessi þáttur er í áskrift á Patreon.com/heimsendir - ÉG MÆLI MEÐ AÐ HLUSTA Í PATREON APPINU!Hiroo Onoda var japanskur hermaður í seinni heimstyrjöldinni sem barðist á Lubang eyju Filippseyja. Hann er frægastur fyrir heldur síðbúna uppgjöf en hann gafst ekki upp fyrr en árið 1974, þá hafði hann búið í frumskóginum í um 30 ár. Þessi þáttur Heimsendis er ákveðinn söguþáttur sem fjallar um líf Onoda liðsforingja í felum sem og um aðdraganda stríðsins í Austur og Suðaustur Asíu. Kæri hlustandi, sjáumst á Patreon!

Jan 17, 20233 min

#68 Japönsk dystópía með Sólbjörtu Sigurðardóttur

Er Japan dystópía eða útópía? Í þessum þætti ræðum við Sólbjört Sigurðardóttir, dansari og leikaranemi, um upplifun hennar af Japan, leiklistina og listir almennt, og hvort heimsendir sé í nánd. Kæri hlustandi, þessi þáttur er í opinni dagskrá en ef þú vilt fullan aðgang að öllum þáttum þá mæli ég með að ná í Patreon appið og skrá þig þar.Takk fyrir að hlusta!

Jan 10, 20231h 16m

#67 Frí frá Tokyo - Syðstu eyjar Japans og deilur við Kína

ÞESSI ÞÁTTUR ER AÐGENGILEGUR Á PATREON!Hlekkur: https://www.patreon.com/heimsendirAth. best að hlusta í Patreon appinu.Ryukyu-eyjar Japans voru eitt sinn sjálfstætt konungdæmi með verslun við Taiwan og Kína. Nú tilheyra þær Japan og mynda eina mikilvægustu varnarkeðju landsins - fyrstu eyjakeðjuna. Í þessum þætti fjalla ég um sögu eyjanna og mikilvægi. Ég tek fyrir Okinawa, Ishigaki, Yonaguni og Senkaku eyjar sem og deilur við Kína. Önnur efni þáttarins eru Katakana vikunnar, Hljóð vikunnar, móðulaus gleraugu og skortur á ruslatunnum.Kæri hlustandi, ef þú vilt styðja hlaðvarpið og hlusta á þáttinn í heild sinni, þá mæli ég með að ná í Patreon appið og finna Heimsendi þar.Takk fyrir að hlusta!

Jan 3, 20236 min

#66 Lífið í Tokyo - Japönsk jól og áramót

JÓL Í JAPAN! Í þessum þætti fjalla ég um japanskar jóla- og áramótahefðir, matarmenningu (KFC), skreytingar, neysluhyggju og fleira. Önnur umræðuefni þáttarins eru japönsk brúðkaup og líf leikarans í Japan. Þessi þáttur er í opinni dagskrá en ég minni á patreon.com/heimsendir fyrir fullan aðgang að öllum þáttum. Tilvalin jólagjöf fyrir þig og þau sem þú elskar. Takk fyrir að hlusta og gleðileg jól!

Dec 20, 20221h 1m

#65 Lífið í Tokyo - Er Japan woke?

Þessi þáttur er í áskrift. Skráið ykkur á patreon.com/heimsendir fyrir fullan aðgang að öllum þáttum!Kvenréttindi, hinsegin og kynsegin fólk, rasismi og menningarnám. Er þriðja stærsta hagkerfi heims eins framarlega í woke-menningu eins og það er í kapítalisma? Það er spurning dagsins.

Dec 13, 20226 min

#64 Japönsk matarmenning með Jóni Foss

Japanskur matur er miklu meira en sushi og ramen. Við Jón Foss Guðmundsson, verðandi ferðamálafræðingur, förum yfir japanska matarmenningu og gestristni. Hvað geta íslendingar lært af japönum og hvað geta japanir lært til baka? Þessi þáttur er í opinni dagskrá en ef þú, kæri hlustandi, vilt meira af Heimsendi þá geturðu skráð þig á patreon.com/heimsendir fyrir fullan aðgang að öllum þáttum. Yoroshiku onegai shimasu!

Dec 6, 20221h 9m

#63 Yakuza - Glæpasamtök á heimsmælikvarða

Þátturinn er aðgengilegur í fullri lengd inná: https://www.patreon.com/heimsendirYakuza eru alþjóðleg glæpasamtök - stundum þekkt sem japanska mafían - sem hafa starfað í rúm 300 ár. Í þessum þætti fjalla ég um Yakuza dagsins í dag og hvernig samtökin hafa dreift sér um heiminn. Komdu á Patreon og njóttu þar! Það kostar gott sem ekki neitt og þar hefurðu fullan aðgang að öllum þáttum Heimsendis. Á Patreon eru mismunandi þrep en áskriftir byrja í litlum $5 á mánuði sem er eins og einn kaffibolli. Takk fyrir hlustunina og stuðninginn!

Nov 29, 20225 min

#62 Lífið í Tokyo - Hentai er japanskur pervert

Hentaimenning og japanskt teiknimyndaklám. Í þessum þætti fjalla ég um þennan afkima japanskrar menningar sem spilar þó stórt hlutverk í hugsunarhætti (þetta er mín skoðun) margra japanskra karlmanna. Önnur efni þáttarins eru hljóð vikunnar, lítið japönskuhorn, gerjaðar sojabaunir, hvort það sé í lagi að keyra eftir 0.5% bjór og margt fleira. Þessi þáttur er í opinni dagskrá en kíkið á patreon.com/heimsendir fyrir fullan aðgang að öllum þáttum.Takk fyrir að hlusta!

Nov 22, 202256 min

#61 Yakuza - Saga og uppruni

Þátturinn er aðgengilegur í fullri lengd inná: https://www.patreon.com/heimsendirYakuza eru alþjóðleg glæpasamtök - stundum þekkt sem japanska mafían - sem hafa starfað í rúm 300 ár. Í þessum þætti fjalla ég um uppruna og sögu samtakanna, hvernig þau eru uppbyggð, hefðir þeirra, reglur og gildi. Komdu á Patreon og njóttu þar! Það kostar gott sem ekki neitt og þar hefurðu fullan aðgang að öllum þáttum Heimsendis. Á Patreon eru mismunandi þrep en áskriftir byrja í litlum $5 á mánuði sem er eins og einn kaffibolli. Takk fyrir hlustunina og stuðninginn!

Nov 15, 20224 min

#60 Kjarnorkustríð

Er heimsendir í nánd? Mun Pútín nota kjarnorkuvopn í Úkraínu? Er þriðja heimstyrjöldin á næsta leiti? Í þessum þætti fjalla ég almennt um kjarnorkustríð og hvort það sé eitthvað sem við ættum að hafa áhyggjur af. Kæri hlustandi, komdu líka á Patreon fyrir aðgang að öllum þáttum! Skráðu þig á patreon.com/heimsendir, þá verð ég svo þakklátur!

Nov 8, 20221h 23m

#59 Lífið í Tokyo - Súmóglíma og einmanaleiki

Þátturinn er aðgengilegur í fullri lengd inná: https://www.patreon.com/heimsendirSúmóglíma er þjóðaríþrótt Japans og keppendur eru RISASTÓRIR. Í þessum þætti fjalla ég líka um geðræna fyrirbærið hikikomori eða komoribito og einmanaleika í útlöndum. Komdu á Patreon og njóttu þar! Það kostar gott sem ekki neitt og þar hefurðu fullan aðgang að öllum þáttum Heimsendis. Á Patreon eru mismunandi þrep en áskriftir byrja í litlum $5 á mánuði sem er eins og einn kaffibolli. Takk fyrir hlustunina og stuðninginn!

Nov 1, 20228 min

#58 Shishamenning, ást til sölu og stoðtæki með Binna

Er Össur í Japan? Er hægt að kaupa ást? Hvaða áhugamál eru vinsæl hjá japönum og hver er munurinn á þeim og íslendingum? Í þessum þætti ræðum við Brynjólfur Magnús Brynjólfsson, betur þekktur sem Binni, um upplifun útlendinga í Japan, menningarmun og líkindi. Kæri hlustandi, ertu með hugmynd að umræðuefni? Komdu þá í Facebookhópinn Heimsendir og deildu hugmyndunum. Þú getur líka sent mér skilaboð beint. Yoroshiku onegai shimasu!

Oct 25, 20221h 11m

#57 Lífið í Tokyo - Sitjandi uppistand, áfengi og eiturlyf í Japan

Ég er að koma úr sýningarviku í japanska leikhúsinu þar sem við settum upp sýningu um "rakugo" menningu sem er japanskt uppistand (sitjandi). Þetta var frumraun mín með japönskum leikhóp og mikil reynsla og lærdómur. Önnur umræðuefni þáttarins eru drykkja og reykingar í Japan, eiturlyf og harðar refsingar við þeim, smáatriði í japönsku og fleira. Kæri hlustandi, takk fyrir að hlusta! Ertu með hugmynd að umræðuefni? Langar þig að fræðast um eitthvað sérstakt í Japan? Sendu mér þá línu eða skildu eftir komment á Facebok hópnum Heimsendir. Yoroshiku onegai shimasu!

Oct 18, 20221h 2m

#56 Nýr heimur með Unni Elísabetu

Unnur Elísabet Gunnarsdóttir er listakona sem hefur meðal annars varið síðustu árum í sköpun og framleiðslu á ÉG BÝÐ MIG FRAM seríunum. Nýjasta serían ber nafnið NÝR HEIMUR og verður sýnd í Tjarnarbíó í haust. Við ræðum heim dagsins í dag, bjartsýnis sem og svartsýnisspár, heimsenda, framtíð og fortíð.Takk fyrir að hlusta kæru hlustendur. PLEASE skrifið umsögn og gefið einkunn á hlaðvarpsveitum! Saman sigrum við algoritmann!

Oct 4, 20221h 2m

#55 Lífið í Tokyo - Flugvélar og fótaóeirð

Ég, CEO of Heimsendir, er mættur aftur til Tokyo. Í þessum þætti fjalla ég um ferðalagið langa, sjúkdóminn Restless legs syndrome (AKA. Willis-Ekbom Disease), jet-lag, COVID í Japan, kurteisi og þjónustulund, japönsk onsen-böð og fleira og fleira! Takk fyrir að hlusta og ef þér hafið lausa stund þá bið ég yður um að gefa Heimsendi einkunn og skrifa umsögn á Spotify eða Apple Podcasts. Þakka yður, og vér heyrumst í næsta þætti!

Sep 27, 202257 min

#54 Lífið í Reykjavík með Almari Blæ Sigurjónssyni

Hver er munurinn á Reykjavík og Tokyo? Túristar og tímaferðalög, mávar í Garðabæ, post-covid leikhús og fleiri umræðuefni prýða þennan þátt með góðvini Heimsendis, Almari Blæ Sigurjónssyni, leikara við Þjóðleikhúsið. Kæri hlustandi, takk fyrir að hlusta! Í haust heldur veislan áfram með Lífið í Tokyo sem og gestaþáttum. Það verða hljóð og katakana, vettvangsferðir og afkimar japanskrar menningar. Fylgist þið með!

Sep 20, 20221h 16m

#53 Lífið í Tokyo - Frumbyggjar í Japan

Ainu eru frumbyggjar Japans. Þau numu eyjuna Hokkaido langt á undan japönum og byggðu upp samfélag við Okhotskhaf í sátt og samlyndi við náttúruna. En hvað er Ainu í dag? Af hverju heyrum við svo lítið af þeim? Í þessum þætti fjalla ég um Ainu fólkið og samband þeirra við Japan. Önnur umræðuefni eru áfengi í apótekum og ríkisstjórn sem vill að ungt fólk drekki meira, þúsund tilkynningar á lestarstöðvum og sjónvarp í saununni.Kæri hlustandi, ef þig langar að heyra umfjöllun um eitthvað sérstakt efni má endilega senda skilaboð (AKA DM) á Instagram reikninginn heimsendir_podcast!

Aug 30, 202251 min