PLAY PODCASTS
Heimsendir

Heimsendir

152 episodes — Page 3 of 4

#52 Framtíð Japans með Early Saisoku

Early Saisoku er tónlistarmaður frá Sapporo sem varði stórum hluta ævi sinnar í Tokyo. Þar kynntist hann björtum sem og dekkri hliðum borgarinnar sem vill ekki sofa. Í þessum þætti ræðum við stórborgina og partýlífið, kosti og galla við japanskt samfélag og mögulega framtíð landsins. ENGLISH. Early Saisoku is a musician from Sapporo who spent a big part of his life in Tokyo where he got to know its bright side as well as its darker side. In this episode we discuss the metropolis and its vibrant nightlife, pros and cons of Japanese society and the potential future of Japan. Kæru hlustendur, one love frá Japan. Takk fyrir að hlusta og taka þátt í að halda þessu gangandi. Án ykkar væri ég bara að tala við sjálfan mig, sem ég geri reyndar líka, en það er gaman að vita af ykkur hinum megin við línuna. Mata ne!

Aug 23, 202254 min

#51 Lífið í Tokyo - Kína, Taiwan og frumraun í japönsku leikhúsi

Kína og Taiwan, hvað er nú það? Mörg okkar hafa heyrt fréttaflutning síðustu vikna um mögulega innrás Kína í Taiwan, um heimsókn Nancy Pelosi og heræfingar, jafnvel um mögulega þriðju heimsstyrjöldina, en hvar og hvernig byrjaði samband Kína og Taiwan? Af hverju er það samband nú stirrt? Verður stríð eða status quo?Í þessum þætti skoðum við sögu Taiwan og samband þess við meginlandið. Önnur umræðuefni eru frumraun þáttastjórnanda í japönsku leikhúsi og litlar körfur í japönskum matvöruverslunum. Kæri hlustandi, takk fyrir að hlusta. Ég minni á Instagram reikninginn heimsendir_podcast fyrir myndir og myndbönd tengd efni þáttanna. Yoroshiku onegai shimasu!

Aug 16, 202254 min

#50 Lífið í Tokyo - Mun Mt. Fuji gjósa?

Mt. Fuji, eða Fuji-san á japönsku, er virkt eldfjall og sömuleiðis hæsti tindur Japans með 3.776m hæð yfir sjávarmáli. Fuji-san er aðeins um 100km frá Tokyo og sumir vísindamenn segja að eldgos geti hafist á næstu árum eða áratugum. Spurningin er: hvað geta íbúar Japans gert og enn fremur hvort maður eigi yfirleitt að undirbúa sig? Er kannski bara betra að slaka á og mæta örlögunum? Í þessum þætti fjalla ég um Fuji-san og síðasta eldgosið þar árið 1707, hvað myndi gerast ef Fuji-san gysi og mögulegar leiðir til að undirbúa sig. Önnur umræðuefni eru fjárhættuspil í Japan, sólarvarnir, flugpöddur og fleira. Kæri hlustandi, fylgdu Heimsendi á Instagram undir heimsendir_podcast og á Facebook undir Heimsendir. Takk fyrir að hlusta og við heyrumst í næsta þætti!

Aug 2, 202255 min

#49 Tíska og tónlist með David Alejandro Ossorio

David Alejandro Ossorio er tónlistarmaður og frumkvöðull í fatahönnun. Ég kynntist honum fyrir 10 árum þegar við vorum í skiptinámi í Hokkaido en nú erum við báðir orðnir Tokyobúar. Umræðuefni þáttarins eru tíska og tónlist í Tokyo, háskólanám, japönsk fyrirtæki, partýmenning í Japan og margt fleira. Þetta er fyrsti þáttur Heimsendis á ensku og ég vona innilega að þið njótið vel. David Alejandro Ossorio is a musician and a pioneer of fashion design. We met some 10 years ago when we were exchange students in Hokkaido. Now we have both become Tokyoites. In this episode we discuss fashion and music in Tokyo, university education, Japanese companies, parties in Japan and more. Please enjoy!

Jul 19, 20221h 0m

#48 Lífið í Tokyo - Morðið á Shinzo Abe

Shinzo Abe var forsætisráðherra Japans frá 2006-2007 og svo aftur 2012-2020. Hann var meðlimur í Liberal Democratic Party sem er stærsti stjórnmálaflokkur Japans. Þann 8. júlí 2022 var hann myrtur á kosningaviðburði í borginni Nara í vesturhluta Japan. Kæri hlustandi, takk fyrir að hlusta. Mig langar að biðja um lítinn greiða: að taka mynd af þér að hlusta á þáttinn og tagga heimsendir_podcast á Instagram. Arigatou gozaimasu!

Jul 12, 20221h 4m

#47 Leiklist í Tokyo með Thelmu Rún Heimisdóttur

Gestur þáttarins er Thelma Rún Heimisdóttir, leikari og framleiðandi í Tokyo. Við ræðum meðal annars leiklistarsenuna í Japan, tækifæri fyrir útlendinga sem og áskoranir þess að búa í stórborg. Lífið er list og borg hinna 37 milljón sála er okkar leiksvið. Kæri hlustandi, einn tiny little greiði: taktu mynd af þér að hlusta á hlaðvarpið og taggaðu heimsendir_podcast á Instagram! Takk fyrir það og takk fyrir að hlusta!

Jul 5, 20221h 10m

#46 Lífið í Tokyo - Er her í Japan?

Er her í Japan? Já og nei. Skiptir það einhverju máli? Já, því sumir vilja meina að Austur-Asía sé að sigla ákveðinn ólgusjó þegar kemur að alþjóðasamskiptum. Það er Kína og Taíwan, Suður- og Norður-Kórea, Japan og Rússland og fleiri hlekkir í flókinni tengslakeðju sem einkennir heimshlutann. Önnur umræðuefni þáttarins eru af léttari toga; veiðiferðir í Japan, portúgölsk áhrif í tungumálinu og ramen-menning, svo eitthvað sé nefnt.Kæri hlustandi, ef þú hefur gaman af Heimsendi þá máttu endilega segja fólki frá þáttunum. Þannig fáum við fleiri meðlimi í Heimsendafjölskylduna og það er alltaf stemning!Obrigado.

Jun 28, 202258 min

#45 Framtíð hafsins með Ingibjörgu Björgvinsdóttur

Hafið er mikilvægt, það er bara þannig. Ísland og Japan eiga það sameiginlegt að vera þjóðir tengdar hafinu og auðlindum þess. Gestur þáttarins er Ingibjörg Björgvinsdóttir, doktorsnemi við Tokyo University of Marine Science and Technology. Við ræðum hafrannsóknir í Japan, tækifæri og ógnir, snertifleti landanna tveggja, og almennt um framtíð hafsins. Kæri hlustandi, komdu í Facebook hópinn Heimsendir þar sem þú getur haft áhrif á þættina með þátttöku í skoðanakönnun.Takk fyrir að hlusta, ævinlega!

Jun 21, 20221h 9m

#44 Lífið í Tokyo - Yakuza og japanskt leikhús

Yakuza er hin japanska mafía og ég hef ekki orðið var við hana áður, fyrr en nú. Svo fór ég í japanskt leikhús og hóf rannsókn mína á því hvernig japanskt leikhús er frábrugðið vestrænu leikhúsi. Önnur umræðuefni þáttarins eru síðan eyjastefna Japans, japanska í bíómyndum, upphífingar bannaðar, og margt fleira.Kæri hlustandi, ef þú hefur gaman af Heimsendi máttu endilega segja vinum eða fjölskyldumeðlimum frá þáttunum og jafnvel deila þeim á samfélagsmiðla! Yoroshiku onegai shimasu!

Jun 14, 20221h 0m

#43 Lífið í Tokyo - Lífvörður fyrir Gucci

Hvernig er að vera leikari í Japan? Hvernig verkefni eru í boði? Svarið er: alls konar, þar á meðal verkefni sem lífvörður/lyftuhnappur á Gucci viðburði. Í þessum þætti fjallar Stefán Þór um lífið í Tokyo og hvernig það er að vera íslendingur í stærstu borg heims. Meðal umræðupunkta eru; frægð í Japönsku sjónvarpi, forræðishyggja, lestarhljóð og enska með japönskum hreim.Kæri hlustandi, vilt þú sjá mynd af lífverði Gucci? Kíktu þá á Instagram síðuna: heimsendir_podcast og njóttu vel!Sayonara.

Jun 7, 202247 min

#42 Fólksfækkun í Japan með Höskuldi Hrafni Guttormssyni

30% japana eru 65 ára og eldri. Hvað þýðir það nú? Er Japan rísandi sól eða hnignandi stórveldi? Í þessum þætti ræðum við Höskuldur Hrafn Guttormsson, viðskiptafræðingur í Tokyo, um fólksfækkun í Japan, fortíð þess og framtíð. Við ræðum um menninguna, siði og venjur, og hvernig það er að vera útlendingur í Japan. Kæri hlustandi, komdu með á Instagram reikninginn heimsendir_podcast fyrir myndir og myndbönd frá Japan og víðar! Mata ne.

May 31, 20221h 6m

#41 Heimsendir er kominn til Japan!

THIS IS BIG! Heimsendir hefur flutt höfuðstöðvarnar til Tokyo, Japan. Í þessum þætti ræðir Stefán Þór við sjálfan sig um ferðina til Japan (með kött meðferðis), nýja hverfið og íbúðina, og almennt um mannlífið í Tokyo.Kæri hlustandi, næstu þættir verða góð blanda af viðtölum við gesti, solo-session um lífið í Tokyo, og mögulega nokkrum handritsþáttum í stíl útvarpsleikhúss (enn í þróun). Ég hlakka til að heyra í ykkur á Facebook hópnum Heimsendir! Arigatou gozaimashita!

May 24, 202249 min

#40 Bylting með Ragnari Bragasyni

Bylting og Heimsendir. Hvort kemur á undan og hvort á eftir? Í þessum þætti ræðum við Ragnar Bragason, leikstjóri og höfundur, meðal annars um þáttaseríuna Heimsendir og tengingar við frönsku byltinguna, um svartsýni og bjartsýni nútímans, kvikmyndagerð, háskólanám og margt fleira. Kæri hlustandi, TILKYNNING: Heimsendir heldur til Japan og þaðan er ýmislegt nýtt í vændum.Takk fyrir að hlusta!

May 17, 20221h 26m

#39 Pólland, Ítalía og heimsendir með Ólafi Ásgeirssyni

Gestur þáttarins er Ólafur Ásgeirsson, leikari og meðlimur leikhópsins PóliS. Við förum um víðan völl og ræðum meðal annars vinnustaðamenningu, tungumál og heimsenda í skáldskap. Þá snertum við á loftslagsmálum (air-battle), sýndarveruleika og framtíð Íslands.Kæri hlustandi, smá tilkynning: fljótlega heldur Heimsendir á vit ævintýranna í Japan og mun halda áfram útsendingum frá höfuðborg hinnar rísandi sólar. Fylgist þið með á samfélagsmiðlum sem og á hlaðvarpsveitum!Dziękuję!

May 3, 20221h 13m

#38 Saga mannkyns og líftækni með Ísarri Nikulási Gunnarssyni

Hvaðan komum við? Hver er munurinn á Homo erectus og Homo neanderthalensis? Hvernig tengist þetta líftækni? Í þessum þætti fæ ég til mín Ísarr Nikulás Gunnarsson sem er líftæknifræðingur og meistaranemi við Cambridge-háskóla. Við byrjum fyrir milljónum ára og þræðum mannkynssöguna, með stórum stökkum þó, til framtíðar. Við skoðum líftækni 21. aldarinnar, tækifæri og ógnir. Kæri hlustandi, kíktu á grammið @heimsendir_podcast fyrir myndir af viðmælendum og fleiru.Gleðilega páska!

Apr 19, 20221h 29m

#37 Kína með Guðbjörgu Ríkey Thoroddsen Hauksdóttur

Kína er fjölmennasta land heimsins. Það hefur verið miðpunktur mikilla breytinga og uppbyggingar síðustu áratugi. Í þessum þætti skoðum við Guðbjörg Ríkey Thoroddsen Hauksdóttir, doktorsnemi, Kína og stöðu þess í alþjóðlegu samhengi. Þá förum við yfir næstu áratugi og skoðum mögulegar áskoranir sem Kína þarf að mæta.Kæri hlustandi, kíktu á Instagram reikninginn: heimsendir_podcast, fyrir myndir af viðmælendum! Takk og bless!

Apr 12, 20221h 4m

#36 Svefn með Árna Beinteini Árnasyni

Er Matthew Walker mættur í klefann? Nei, ennþá betra: Árni Beinteinn Árnason, leikari með meiru, er mættur til að deila reynslu sinni af svefnvenjum og svefnleysi og öllu þar á milli. Við förum um víðan völl og snertum á magnesíum, japönskum futon-dýnum, rauðgleraugum og sömuleiðis ýmsu alls ótengdu svefni. Kæri hlustandi, Heimsendir er í stöðugri þróun og þú getur tekið þátt í þróuninni á Facebook hópnum Heimsendir. Ég vil heyra í þér hvað þig langar að heyra í næstu þáttum! Allar vangaveltur velkomnar.Góða nótt.

Apr 5, 20221h 22m

#35 Lífið með Hákoni Jóhannessyni

Hver er munurinn á leik og starfi? Eru áhugamál mikilvæg? Hvað gera salaryman í Japan? Við Hákon Jóhannesson ræðum lífið og tilveruna, nútíð og framtíð, og mikilvægi vinnu og peninga inn í þetta heildarsamhengi. Kæri hlustandi, ég vek athygli á Facebook hópnum Heimsendir þar sem þú getur haft áhrif á efni þáttanna, og Instagram-ið heimsendir_podcast þar sem myndir af viðmælendum birtast í mikilli teiknidýrð. Nos vemos.

Mar 29, 20221h 22m

#34 Rafmagnslaus heimur með Bergi Þór Ingólfssyni

Árið 2024 verður gríðarstórt sólgos sem veldur alvarlegum segulstormi á Jörðu. Raftæki hætta að virka og samfélag manna fer aftur um árþúsund í þróun. Hvað gerist næst? Í þessum þætti ræðum við Bergur Þór Ingólfsson, leikari og leikstjóri, um rafmagnslausan heim. Þá ræðum við wifi-leysi og hvort það myndi ekki bara gera okkur gott. Önnur þemu eru meðal annars fortíðarþrá, undirbúningur fyrir heimsendi og Ísland einangrað frá restinni af heiminum. Kæri hlustandi, ef þú ert að hlusta á Spotify, nennirðu þá að henda í "follow"? Ef þú ert á Apple Podcasts, nennirðu þá að gefa einkunn og umsögn? Ef þú gerir þetta, þá gætirðu dottið í lukkupottinn og unnið glaðning!

Mar 22, 20221h 36m

#33 COVID speciale og Japan með Stefáni Þór Þorgeirssyni

There's always a first time. Podcastari talar við sjálfan sig - frétt til næsta bæjar! Í þessum þætti geri ég upp COVID fyrir fullt og allt, og svo hættum við bara að hugsa um það. Ég fer einnig yfir árið 2022 og hvers má vænta frá TOKYO! Kæri hlustandi, kíktu á hópinn Heimsendir á Facebook þar sem þú getur komið með innlegg í umræðuna og haft áhrif á þættina. Einnig minni ég á heimsendir_podcast á Instagram þangað sem koma geggjaðar teiknaðar myndir af viðmælendum.Sayonara.

Mar 15, 202248 min

#32 Trúarbrögð með Halldóru Geirharðsdóttur

Jesus is King. Allahu akbar. Namaste. Trúarbrögð eru allt um kring og spila líklega stærra hlutverk í okkar lífi en við höldum. Í þessum þætti ræðum við Halldóra Geirharðsdóttir meðal annars um uppruna trúarbragða, leit að okkar eigin trú, og regluverk og kerfi nútímans. Kæri hlustandi, kíktu á Instagram reikninginn: heimsendir_podcast fyrir hálfteiknaðar myndir af viðmælendum. Svo minni ég á Facebook hópinn: Heimsendir, þar sem þú getur haft áhrif á umræðuefni og viðmælendur þáttanna.Slava Ukraini!

Mar 8, 20221h 19m

#31 Hvernig bregst fólk við heimsendi með Kjartani Darra Kristjánssyni

24.2.2022 - Rússland ræðst inn í Úkraínu. Í þessum þætti ræðum við Kjartan Darri Kristjánsson, leikari, um stríð og ástæður þess, zombie apocalypse, geimverur, loftsteina og hvernig fólk bregst við svona aðstæðum. Hvort við hjálpum öðrum eða hugsum um okkur sjálf.Kæri hlustandi, endilega kíktu á Instagram reikninginn: heimsendir_podcast, til að fá listilega unnar myndir af viðmælendum. Einnig minni ég á Facebook hópinn: Heimsendir, þar sem þú getur haft áhrif á umræðuefni og jafnvel viðmælendur þáttanna.

Mar 1, 20221h 32m

#30 Geimstríð með Arnmundi Ernst Backman

Stríð í geimnum: Er það Kína gegn Bandaríkjunum, eða mannkynið gegn geimverum? Í þessum þætti skoðum við Arnmundur Ernst Backman, leikari, geimstríð og hvernig það hefur birst í umræðu og skáldskap. Þá ræðum við eðlisfræðipælingar, vísindaskáldskap, hnattræna hlýnun og margt fleira.Kæri hlustandi, ef þú ert að lesa þetta þá bið ég þig að fara inná Apple Podcasts og skilja eftir umsögn. Það er mikil hjálp í því! Ef þú ert á Spotify þá væri "follow" líka vel þegið.Tack så mycket!

Feb 22, 20221h 28m

#29 Alheimurinn með Steinunni Arinbjarnardóttur

Hvað er stærsta umræðuefni í heimi? Svar: Það sem er stærst í heiminum - Alheimurinn sjálfur. Er Alheimurinn endalaus eða er hægt að fara út fyrir endimörkin eins og Bósi ljósár? Í þessum þætti ræðum við Steinunn Arinbjarnardóttir, leikkona, um upphaf og endi Alheimsins, hvað kom áður og hvað kemur á eftir. Ef þig langar að spæla egg á enninu á þér, þá er þessi þáttur fyrir þig!Kæri hlustandi, endilega kíktu á Instagram reikninginn: heimsendir_podcast, fyrir geggjaðar myndir! Komdu síðan í Facebook hópinn Heimsendir þar sem þú getur haft áhrif á þróun þáttanna.Arigatou gozaimasu!

Feb 15, 20221h 27m

#28 Líkamsrækt og geðsjúkdómar með Steineyju Skúladóttur

Er pílukast líkamsrækt? Hver er besta æfingin? Hvað ertu að maxa í réttstöðu? Í þessum þætti ræðum við Steiney Skúladóttir um tengls milli líkamsræktar og geðsjúkdóma og hvort geðsjúkdómar séu algengari hérlendis en annars staðar. Kæri hlustandi, keyrðu inná Apple Podcasts og hentu í umsögn og einkunn! Það er mikil hjálp og tekur aðeins mínútu af tíma þínum. That's all, folks!

Feb 8, 20221h 24m

#27 Meiri kapítalismi með Ásthildi Úu Sigurðardóttur

Er ekki bara best að kjósa kapítalismann? Eða hvað, þurfum við kannski að endurskoða kerfið? Í þessum þætti ræðum við Ásthildur Úa Sigurðardóttir, leikkona, um kapítalismann í nærtæku samhengi. Hvernig kemur hann fyrir í okkar daglega lífi? Hverjir eru helstu gallarnir og hvernig gætum við breytt því?Kæru hlustendur, kíkið á Instagram reikninginn: heimsendir_podcast, og follow-ið! Einnig Facebook hópinn: Heimsendir, þar sem mikil snilld á sér stað. Upp og áfram!

Feb 1, 20221h 21m

#26 Kapítalisminn með Ólafi Kjarani Árnasyni

Er kapítalismi rót alls ills? Erum við að sigla inn í heimsendi auðvaldsins? Eða er kapítalisminn kannski besta efnahagsstefnan sem fundist hefur? Ættum við að berjast gegn honum eða með honum? Til þess að leita svara fæ ég til mín Ólaf Kjaran Árnason, ráðgjafa og hagfræðing. Saman skoðum við kerfið í sögulegu samhengi og berum saman við heimsendaspár nútímans.Gott fólk, kíkið á Instagram reikninginn: heimsendir_podcast, og skráið yður. Síðan er það Facebook hópurinn: Heimsendir, þar sem þið getið haft áhrif á umræðuefni þáttarins. Takk og bless!

Jan 25, 20221h 13m

#25 Sítenging með Arnari Dan Kristjánssyni

Eruð þér límd við skjáinn? Er símtækið besti vinur þinn? Í þessum þætti ræðum við Arnar Dan Kristjánsson, leikari, um sítengingu og skilgreiningu hennar. Einnig ræðum við hreyfingu og kyrrsetu, rækt og stöðnun, samfélagsmiðla og útivist. Þá kíkir Mark Zuckerberg í heimsókn með Meta-bókina sína og boðar heimsendi.Kæru hlustendur, kíkið á Instagram reikninginn "heimsendir_podcast"... (smá hræsni kannski miðað við efni þáttarins), og skráið ykkur í Facebook hópinn "Heimsendir". Við skulum nýta samfélagsmiðlana áður en við kollvörpum þeim og sköpum veröld nýja og góða.

Jan 18, 20221h 21m

#24 Samsæriskenningar og sveppir með Grétu Arnarsdóttur

QAnon, Illuminati, Eðlufólkið, Tungllendingin, 9/11, Covid-19, bólusetningar, etc. Allt feik? Í þessum þætti ræðum við Gréta Arnarsdóttir samsæriskenningar og af hverju fólk aðhyllist þær, sérstaklega núna á tímum veirunnar miklu. Síðan skoðum við sveppi, bæði æta og óæta, í matargerð og til hugbreytingar. All things shroom. Kæra preppnation, kíkið á Instagram og fylgið "heimsendir_podcast" þar sem alls kyns myndir munu fá að líta dagsins ljós. Komið svo í Facebook hópinn Heimsendir þar sem hægt er að hafa áhrif á næstu umræðuefni þáttanna. Takk og bless!

Jan 11, 20221h 30m

#23 Loftsteinar og náttúruleysi með Almari Blæ Sigurjónssyni

Loftsteinar eru relevant. Af hverju? Jú, vegna þess að þeir eru stærsta ógn mannkynsins. Nýverið kom til dæmis út bíómynd sem fjallar að mestu leyti um loftstein. Síðan er það náttúran og náttúruleysi - ekki getuleysi, það kemur seinna, heldur skortur á tengingu við náttúruna. Þarf að borgarvæða náttúruna eða náttúruvæða borgina?Til þess að ræða þessa snilld fæ ég til mín góðkunningja þáttarins, Almar Blær Sigurjónsson, leikara við Þjóðleikhúsið. Kæri hlustandi, takk fyrir 2021! Endilega kíktu á Instagram reikninginn: heimsendir_podcast, og hentu í "follow". Síðan máttu segja 1-3 einstaklingum frá þáttunum og láta mig svo vita þegar þú ert búin/n. Þá færðu Kimchi-krukku!

Jan 4, 20221h 45m

#22 Jólin með Starkaði Péturssyni

Jó-olin, jó-olin, a-alls staðar. Starkaður Pétursson, AKA. Anthony Stark, mætti í sérstakt jólaspjall þar sem við kryfjum jólin og hefðirnar í kringum þau. Vissulega koma áramótin við sögu og sömuleiðis samanburður við japanskar jóla- og áramótahefðir. Heimsendir óskar landsmönnum öllum gleðilegra jóla og farsældar á nýju ári!

Dec 28, 20211h 24m

#21 Fordómar og samskiptaleysi með Fannari Arnarssyni

Fordómar eru stórt umræðuefni, og sérstaklega mikilvægt til umræðu á 21. öldinni. En hvað eru fordómar og hvaðan koma þeir? Hvernig tengjast samskipti inn í heim fordóma? Enn fremur, getur samskiptaleysi leitt til þeirra?Við Fannar Arnarsson, leikari og fyrrverandi bekkjarbróðir, leitumst við að varpa ljósi á þessar spurningar og fleiri.Kæri hlustandi, ég minni á að skilja eftir umsögn og gefa einkunn á Apple Podcasts. Einnig að henda í "follow" á Spotify. Síðan vil ég benda á Facebook hópinn Heimsendir sem er snilld.Full steam ahead!

Dec 21, 20211h 21m

#20 Samskipti og háskólanám með Önnu Guðrúnu og Júlíu Kolbrúnu

Hver er munurinn á samskiptum og samfélagsmiðlum? Er verið að þróa nýtt tungumál á netinu? Þurfa allir að fara í háskóla? Í þessum þætti fæ ég til mín dansarana Önnu Guðrúnu Tómasdóttur og Júlíu Kolbrúnu Sigurðardóttur til að leita svara við ofangreindum spurningum og fleirum. Við ræðum meðal annars TikTok og dans, iðnnám og háskóla. Loks lítum við til framtíðar og skoðum hvaða hlut samskipti munu eiga þar. Kæri hlustandi, kíktu á Vísi.is þar sem finna má klippur úr nýjustu þáttunum. Síðan væri vel þegið ef þú gætir sagt EINNI manneskju frá Heimsendi - má vera hver sem er - þá færðu gott Karma í skóinn. Sjáumst hress!

Dec 14, 20211h 27m

#19 Líftækni með Daníel Takefusa Þórissyni

CRISPR, Gain-of-Function og GMO. Líftækni er ein mikilvægasta grein vísindanna. Hún á sérstaklega vel við á tímum Covid. En hvað er líftækni og að hvaða leiti kemur hún okkur við? Í þessum þætti ræðum við Daníel Takefusa Þórisson, verkfræðimenntaður leikari, ýmiss vandamál og mögulegar lausnir tengdar líftækni. Við tölum einnig um tækniþróun almennt og komum vissulega að góðkunningjum þáttarins; gervigreind og samfélagsmiðlum. Kæri hlustandi, nú er Heimsendir kominn á Vísi.is í flokknum Útvarp. Þar eru stuttar bitastæðar klippur úr hverjum þætti fyrir þig og þína. Kíktu síðan á Facebook hópinn Heimsendi sem opnar á umræður og vangaveltur tengdar þáttunum.Grazie mille!

Dec 7, 20211h 38m

#18 Heimsendir Maya og plánetan Nibiru með Davíð Þór Katrínarsyni

Hvað varð um heimsendi ársins 2012? Hvað myndi gerast ef önnur pláneta rækist á Jörðina? Hver byggði píramídana? Í þessum þætti ræðum við Davíð Þór Katrínarson, leikari, um heimsendaspár ársins 2012, dagatal Mayanna, Erik von Daniken, Plánetu X og hvað myndi gerast ef við ættum bara 6 mánuði eftir ólifaða. Kæri hlustandi, endilega hentu í Follow á Spotify og gefðu einkunn og umsögn á Apple Podcasts. Síðan eru allir velkomnir í Facebook hópinn Heimsendir!

Nov 30, 20211h 30m

#17 Geðsjúkdómar og gervigreind með Jónasi Alfreð Birkissyni

Brimfullur þáttur af pælingum! Við Jónas Alfreð Birkisson, leikari, tökum fyrir stóru málin og ræðum meðal annars ADHD greiningar, einangrun og þunglyndi, hversu erfitt það er að vinna heima hjá sér, jákvæðar og neikvæðar hliðar á gervigreindinni og framtíð vinnunnar. Kæri hlustandi, ég vil biðja þig að gefa þáttunum einkunn á Apple Podcasts, jafnvel skilja eftir umsögn, og henda svo í "Follow" á Spotify. Síðan minni ég á Facebook hópinn Heimsendir þar sem þú getur lagt í ljós skoðun þína á þáttunum. Arigatou gozaimasu!

Nov 23, 20211h 50m

#16 Draugar með Björk Guðmundsdóttur

Eru draugar til? Hvernig er biðstofa Himnaríkis? En Helvítis? Hreinsunareldur, paranormal investigators, draugaský og latneskar þulur. Við Björk Guðmundsdóttir, leikkona og grínisti, ræðum ýmislegt er viðkemur vofum, afturgöngum og draugum. Kæri hlustandi, Nr. 1 - kíktu á Facebook hópinn Heimsendir.Nr. 2 - hentu í follow á Spotify og/eða einkunn og umsögn á Apple Podcasts. Merci very bien!

Nov 16, 20211h 17m

#15 Hnattræn hlýnun með Rakel Ýr Stefánsdóttur

THIS IS BIG. Hnattræn hlýnun er heimsendir sem flestir kannast við. COP26, Greta Thunberg, mataræði og matarsóun, orkuframleiðsla, samgöngur, að versla föt eður ei, og fleira. Við Rakel Ýr Stefánsdóttir, listakona, tæklum þetta stóra mál í þættinum en athugum þó að umræðan er alls ekki tæmandi enda ein stærsta áskorun mannkyns til þessa. Hlustandi góður, endilega kíktu á Facebook hópinn Heimsendir þar sem þú getur lagt í ljós skoðun þína á þáttunum, komið með hugmyndir að umræðuefnum eða viðmælendum, og verið með í heimsendafjölskyldunni. Takk fyrir að hlusta!

Nov 9, 20211h 26m

#14 Meiri geimverur með Fjölni Gíslasyni

Þversögn Fermis, Kardashev skalinn, svarthol og Einstein. Í þessum þætti tökumst við Fjölnir Gíslason, leikari, á við heilabrot og sófapælingar um geimverur. Við ræðum einnig stóra filterinn (e. Great Filter) sem fylgir umræðuefninu geimverur en hann hefur áður komið til tals í þætti #4. Loks koma við sögu vinsæl þemu á borð við gervigreind, framtíð vinnunnar og hnattræna hlýnun. Kæri hlustandi, skelltu þér á Meta-miðilinn Facebook og komdu í hópinn "Heimsendir" sem er umræðuhópur fyrir hlaðvarpið. Takk fyrir að hlusta!

Nov 2, 20211h 22m

#13 Skrímsli og ófreskjur með Helga Grími Hermannssyni

Skrímsli, ófreskjur, kynjaverur og fleira. Eru skrímsli til? Ef svo er, hvar halda þau sig? Í þessum þætti ræðum við Helgi Grímur Hermannsson, sviðshöfundur og leikstjóri, allt milli himins og jarðar er viðkemur skrímslum. Við förum einnig út fyrir grunnþemað og ræðum fiskveiðar og lögsögu, goðafræði, kortagerð og plastmengun. Kæri hlustandi, endilega taktu þátt í umræðum á Facebook hópnum "Heimsendir" þar sem hægt er að varpa fram pælingum og hugmyndum að umræðuefnum. Einnig vil ég biðja alla þá sem vettlingi geta valdið að segja 1-7 vinum frá Heimsendi, þá stækkar fjölskyldan okkar enn frekar!

Oct 26, 20211h 18m

#12 Nútíminn með Nilla

Covid-19, óreiða í alþjóðasamfélaginu, kristnilegar dómsdagsspár, fall Fésbókarinnar og fleira. Erum við að stefna í heimsendi? Eða stefnum við kannski inn í post-covid blómaskeið með tilheyrandi faðmlögum og mannlegum tengslum? Til að taka á þessum spurningum og fleirum fæ ég til mín góðvin þáttarins, Níels Thibaud Girerd.Við veltum nútímanum fyrir okkur, ferðumst til fortíðar og framtíðar, og berum þetta allt saman. Kæri hlustandi, endilega kíktu á Facebook (gefið að hún liggi ekki niðri) og komdu í hópinn "Heimsendir". Þar má varpa fram pælingum um þættina sem og hugmyndum að umræðuefnum og viðmælendum. Einnig vil ég biðja þig að segja fólki frá þáttunum. Þannig getur heimsendafjölskyldan stækkað og dafnað!

Oct 19, 20211h 14m

#11 Vampírur með Kristrúnu Kolbrúnardóttur

Hver vill ekki verða vampíra? Þær eru nettar, eilífar, með einfalt mataræði og kunna jafnvel að fljúga. En þær eiga sér líka dekkri hliðar; upprisa frá dauðum til að herja á saklausa þorpsbúa, bitsmit á fólki án þess að spyrja um leyfi, óhófleg áhrif á stjórnmál vegna langrar ævi sinnar.Í þessum þætti fæ ég til mín Kristrúnu Kolbrúnardóttir til að ræða allt er viðkemur vampírum. Við fjöllum meðal annars um Twilight myndirnar, uppruna vampíra, mögulegan heimsendi af völdum þeirra á Íslandi, og fleira.Kæri hlustandi, komdu nú í Facebook hópinn "Heimsendir" og tjáðu þína skoðun á þessum umræðum. Sjáumst þar og heyrumst í næsta þætti!

Oct 5, 20211h 20m

#10 Apokalypsis með Hákoni Erni Helgasyni

Hafið þér syndgað? Hafið þér stundað saurlifnað? Örvæntu þá, því Dómsdagur er í nánd. Í þessum þætti fjöllum við Hákon Örn Helgason, sviðslistamaður, um Kristnitrú, Opinberunarbók Jóhannesar og biblískan heimsendi. Önnur umræðuefni eru Japanska Rokkkirkjan og kynlíf fyrir/eftir hjónavígslu, hamfarahlýnun Jarðar, Vindáshlíð og Kanye West.Hlustandi góður, skelltu þér á Facebook og skráðu þig í hópinn: "Heimsendir", þar sem efni þáttanna er til umræðu sem og vangaveltur um efni komandi þátta og mögulega viðmælendur. Takk fyrir að hlusta!

Sep 28, 20211h 16m

#9 Leikhúsið með Erni Gauta Jóhannssyni

Er leikhúsið dautt? Af hverju fer ungt fólk ekki oftar í leikhús? Netflix > Leikhús? Við, Örn Gauti Jóhannsson leikari, leitum svara við þessum mikilvægu spurningum. Við hvetjum fólk jafnframt til að skella sér í leikhús núna eftir Covid-þurrkinn. Ef þig, hlustandi góður, langar að taka þátt í umræðunni hvet ég þig til að ganga til liðs við umræðuhópinn: "Heimsendir" á Facebook. Sjáumst þar!

Sep 21, 20211h 17m

#8 Vísindaskáldskapur með Ninnu Pálmadóttur

Vísindaskáldskapur er mögulega það besta sem komið hefur fyrir kvikmyndir, sem og aðra miðla. Með honum getum við ímyndað okkur framtíðina og fortíðina. Við getum leitað svara við spurningum á borð við; Hvað er það að vera mennskur? Hvaðan komum við og hvað verður um okkur?Til að svara meðal annars þessum spurningum fæ ég til mín Ninnu Pálmadóttur, leikstjóra með meiru. Einnig veltum við því fyrir okkur af hverju ekki séu gerðar fleiri íslenskar sci-fi myndir og hrollvekjur. Er Sci-fi æðsta listformið? Hvað finnst ykkur, hlustendur góðir? Finnið Heimsendahópinn á Facebook og varpið fram ykkar pælingum.

Sep 14, 20211h 11m

#7 Funky stöff með Tuma Gonzo Björnssyni

Hver er mest basic heimsendirinn? Hnattræn hlýnun, kannski kjarnorkustyrjöld. En hver er þá minnst basic heimsendirinn? Leikstjórinn, sviðshöfundurinn, listamaðurinn og litli sonurinn Tumi Gonzo Björnsson mætir til mín að ræða allt milli himins og jarðar er viðkemur fáheyrðum heimsendaspám. Hvað ef allir í heiminum væru með sama andlitið? Væri það andlit Nicolas Cage?Hvað ef Covid-19 sjúkdómurinn ylli því að allir karlmenn yrðu sköllóttir? Hversu margir væru upplýsingafundirnir þá?

Sep 7, 20211h 17m

#6 Dauðinn með Almari Blæ Sigurjónssyni og Önnulísu Hermannsdóttur

Dauðinn er stórt umræðuefni - hvar á maður að byrja? Jú, með því að finna tvo snillinga sem hafa varið ófáum stundum í vangaveltur um dauðann. Almar Blær Sigurjónsson, leikari, og Annalísa Hermannsdóttir, sviðshöfundur, leikstjóri og tónlistarkona, koma til mín að ræða lífið og dauðann. Við leitumst við að svara spurningum á borð við; Hvað gerist þegar við deyjum? Er eðlilegt að hugsa um dauðann? Hvað eru óvelkomnar hugsanir? Er eilíft líf mögulegt?

Aug 31, 20211h 22m

#5 Þriðja heimsstyrjöldin með Gunnari Smára Jóhannessyni

Gunnar Smári Jóhannesson, leikari og Tálknfirðingur, kemur til mín að ræða möguleikann á þriðju heimsstyrjöldinni. Við veltum vöngum yfir mögulegum ástæðum þess að stríð brjótist út, mannlegum mistökum, framtíð hernaðar og vopna og meira til. Þetta er stórt og flókið umræðuefni en við vonum að út frá þessu spjalli höfum við náð að vekja hlustendur til umhugsunar um framtíðina. Þurfum við að varast þriðju heimsstyrjöldina? Hvað getum við gert á Íslandi? Þurfum við kannski að búa okkur undir það versta?

Aug 24, 20211h 18m

#4 Geimverur með Ellen M. Bæhrenz

Við vitum að það eru milljarðar stjarna í Vetrarbrautinni. Við vitum að meðal þeirra leynist mikill fjöldi reikistjarna á borð við Jörðina okkar. Ef við göngum út frá því að líkt og á Jörðinni geti líf sprottið upp á öðrum reikistjörnum er ekki úr vegi að segja að það sé nokkuð líklegt að geimverur séu til. En hvar eru þær? Í þessum þætti fæ ég leikkonuna Ellen M. Bæhrenz til liðs við mig til að ræða geimverur. Við spyrjum spurninga á borð við: Hvað er Area 51? Hvernig líta geimverur út? Eru geimverur ský? Hvað ef við erum alein?

Jul 27, 20211h 20m

#3 Sértrúarsöfnuðir með Tómasi Helga Baldurssyni

Í þriðja þætti Heimsendis ræðum við Tómas Helgi Baldursson um sértrúarsöfnuði og okkar reynslu af þeim úr daglegu lífi. Við ræðum aðallega um söfnuði í Japan, Bandaríkjunum og á Íslandi. Einnig skoðum við ástæður þess að fólk gengur í slíka söfnuði. Heimsendir er hlaðvarp þar sem tekin eru fyrir alls konar málefni sem eiga það sameiginlegt að geta á einn eða annan hátt leitt til endaloka þessa heims. Umræðurnar eru á léttum en þó heimspekilegum nótum þar sem sköpunargleði og ímyndurnaraflið ráða för. Tekið skal fram að við erum ekki sérfræðingar heldur áhugamenn og munu umræðurnar endurspegla það.

Jul 20, 20211h 20m