
Síðdegisútvarpið
1,369 episodes — Page 23 of 28
Ep 273Daníel Einarsson
Pétur Gunnlaugsson ræðir við Daníel Einarsson forstjóra Frama um stöðu íslenskra leigubílstjóra í skjóli lagabreytinga innviða ráðherra.
Ep 272Sigmundur Davíð Gunnlaugsson
Sigmundur Davíð Gunnlaugsson fyrrverandi forsætisráðherra og formaður Miðflokksins og Arnþrúður Karlsdóttir um sölu ríkiseigna, skipulagða glæpastarfsemi og mafíur sem hafa hreiðrað hér um sig.
Ep 271Eyjólfur Ármannsson
Eyjólfur Ármannsson mætir til Arnþrúðar Karlsdóttur og ræðir meðal annars söluna á Íslandsbanka.

Ep 270Flói Bernsku Minnar (bók) Guðni Ágústsson
Arnþrúður Karlsdóttir tekur á móti Guðna Ágústssyni sem var að gefa út bókina "Flói Bernsku Minnar".

Ep 269Kristrún Frostadóttir
Arnþrúður Karlsdóttir fær til sín nýkjörinn formann Samfylkingarinnar Kristrúnu Frostadóttur til að ræða íslandsbankaskýrsluna.

Ep 268Íslandsbankaskýrslan og viðbrögð þingmanna
Arnþrúður Karlsdóttir ræðir við Sigmar Guðmundsson alþingismann Viðreisnar og Ásthildi Lóu Þórsdóttur frá Flokki Fólksins um viðbrögð við Íslandsbankaskýrslunni.
Ep 267Jóhann Helgason (bók) Rokk Ópera
Arnþrúður Karlsdóttir tekur á móti Jóhann Helgasyni sem var að gefa út disk & bók undir nafninu Fjalla-Eyvindur og Halla / Rokk Ópera.
Ep 266Arnþrúður & Pétur (spjall)
Arnþrúður Karlsdóttir & Pétur Gunnlaugsson spjalla um ýmis mál liðandi stundar.

Ep 265Sigmundur Davíð Gunnlaugsson - Íslandsbankaskýrslan
Sigmundur Davíð Gunnlaugsson mætir til Péturs Gunnlaugssonar til að ræða Íslandsbankaskýrsluna & flóttamannamálin.

Ep 264Guðrún Bergman (bók) Leið Hjartans
Arnþrúður Karlsdóttir tekur á móti Guðrúnu Bergmann sem er að kynna nýju bókina sína "Leið Hjartans".
Ep 263Símatími með Arnþrúði
Arnþrúður Karlsdóttir tekur við símtölum frá hlustendum og spilar lög.
Ep 262Guðmundur Árni Stefánsson
Guðmundur Árni Stefánsson nýkjörinn vara-formaður Samfylkingarinnar mætir til Arnþrúðar.
Ep 261Guðlaugur Þór Þórðarsson
Arnþrúður Karlsdóttir heyrir í Guðlaugi Þór Umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra út af komandi formannskosningum Sjálfstæðisflokksins.
Ep 260Landsfundur Sjálfstæðisflokksins
Arnþrúður Karlsdóttir & Pétur Gunnlaugsson ræða saman í aðdraganda Landsfundar Sjálfstæðisflokksins.

Ep 259Vilhjálmur Árnason
Arnþrúður Karlsdóttir fær til sín Vilhjálm Árnason sem bíður sig fram til ritara Sjálfstæðisflokksins í komandi kosningum en hann hefur starfað sem lögregla í 10 ár & þingmaður í önnur 10.

Ep 258Inga Sæland
Arnþrúður Karlsdóttir tekur á móti Ingu Sæland & ræða þær meðal annars dýraníð í Borgarfirði.

Ep 257Ólafur F Magnússon
Ný ljóðabók, ásamt geisladiski sem heitir: , Ég vil bæta mitt land eftir Ólaf Friðrik Magnússon lækni og fyrrverandi borgarstjóra er komin út og mætir Ólafur Friðrik hjá Arnþrúði Karlsdóttur og kynnir ljóðabókina ásamt því að spila lög af nýjum geisladiski sem fylgir með bókinni.

Ep 256Guðrún Ívarsdóttir
Guðrún Ívarsdóttir miðill mætir til Arnþrúðar þar sem spá hennar um bresku ríkisstjórnina reyndist rétt.

Ep 255Helgi Áss Grétarsson
Arnþrúður Karlsdóttir fær til s´in Helga Áss Grétarsson sem bíður sig fram til ritara sjálfstæðisflokksins.

Ep 254Þorsteinn Sæmundsson
Þorsteinn Sæmundsson fyrrverandi alþingismaður Framsóknarflokksins og Miðflokksins ræðir um mál Íbúðalánasjóðs við Arnþrúður Karlsdóttur.
Ep 253Hallur Magnússon
Arnþrúður Karlsdóttir ræðir við Hall Magnússon fyrrum sviðsstjóra og verkefnisstjóra hjá Íbúðalánasjóði um langt árabil og fara þau yfir upphaf og aðdraganda þeirrar erfiðu fjárhagsstöðu sem Íbúðalánasjóður er kominn í um þessar mundir. 25. okt. 2022

Ep 252Jörundur Guðmundsson
Arnþrúður Karlsdóttir fær til sín grínistann Jörund Guðmundsson og saman fara þau yfir feril & ferðalög hanns til m.a. Máritus og Kanarí.

Ep 251Anna Tara Andrésdóttir
Arnþrúður Karlsdóttir fær til sín Önnu Töru Andrésdóttir sem hefur verið að læra í háskóla í Barcelona um ADHD.

Ep 250Sigmundur Davíð Gunnlaugsson
Arnþrúður Karlsdóttir og Pétur Gunnlaugsson ræða við Sigmund Davíð Gunnlaugsson formann Miðflokksins og fyrrverandi forsætisráðherra um það helsta í fréttum þessarar viku.
Ep 249Ingibjörg Helga Baldursdóttir
Að gefnu tilefni og vegna umræðu um einelti í grunnskólum munum við setja aftur á dagskrá viðtal við Ingibjörgu Helgu Baldursdóttur kennara sem Arnþrúður Karlsdóttir átti við hana á árinu 2019 þar sem hún segir frá hrottalegu einelti sem sonur hennar varð fyrir, í grunnskóla í Hafnarfirðir og leiddi til þess að hann tók eigið líf. Hún lýsir sorglegum afleiðingum vegna þessa og segir að skólayfirvöld í Hafnarfirði hafi alfarið brugðist.

Ep 247Bergþór Ólason
Arnþrúður Karlsdóttir ræðir við Bergþór Ólason alþingismann Miðflokksins um innflytjendamál og fleiri mál sem eru heit í umræðunni núna 19. okt.
Ep 246Síðdegisútvarpið opinn sími
Arnþrúður Karlsdóttir tekur við spurningum hlustenda eftir viðtalið við Jón Gunnarsson

Ep 245Jón Gunnarsson
Jón Gunnarsson dómsmálaráðherra ræðir við Arnþrúði Karlsdóttur um innflytjendamál.
Ep 244Vilhjálmur Birgisson
Pétur Gunnlaugsson heyrir í Vilhjálmi Birgissyni um Verkalýðsbaráttumál.

Ep 243Andrés Ingi Jónsson
Arnþrúður Karlsdóttir ræðir við Andrés Inga Jónsson þingmann Pírata um breytingar á lögum um eftirnöfn, orkumál og fleira.

Ep 242Huginn Þór Grétarsson
Huginn Þór Grétarsson barnabókahöfundur og útgefandi vegna meiðyrðamáls sem hann höfðaði gegn barnsmóður sinni og tapaði málinu í Héraðsdómi Reykjavíkur ræðir við Arnþrúði Karlsdóttur

Ep 241Ólafur Ragnar Grímsson
Ólafur Ragnar Grímsson ræðir við Hauk Hauksson um Artic Cirle ráðstefnuna og fjarveru rússa þar.

Ep 240Diljá Mist Einarsdóttir
Arnþrúður Karlsdóttir tekur á móti Diljá Mist Einarsdóttur og ræða þær m.a. flóttamenn & hægri eða vinstri öfgamenn.

Ep 239Lilja Dögg Alfreðsdóttir
Lilja Dögg Alfreðsdóttir mætir til Arnþrúðar Karlsdóttur saman ræða þær m.a. húsnæðis, bankamál & fjölmiðlastyrki.
Ep 237Guðmundur Karl Snæbjörnsson (Kalli Snæ)
Arnþrúður ræðir við Karl Snæbjörnsson (kalla snæ) um covid-19 í seinni hluta þáttar taka þau við innhringjendum og svara spurningum hlustenda um covid.
Ep 236Inga Sæland
Inga Sæland kemur til Arnþrúðar og þær ræða meðal annars heilbrigðiskerfið.

Ep 235Jón Baldvin Hannibalsson
Jón Baldvin Hannibalsson mætir til Arnþrúðar & Pétur, þau ræða nútímapólitík, esb & fleira.

Ep 233Haraldur Ólafsson
Haraldur Ólafsson er veðurfræðingur og formaður Heimssýnar og ræðir hann hér við Arnþrúði Karlsdóttur um esb & orkumálin.
Ep 232Helgi Áss Grétarsson
Helgi Áss Grétarsson ræðir við Pétur Gunnlaugsson um framboð sitt til ritara sjálfstæðisflokksins

Ep 231Guðni Ágústsson
Guðni Ágústsson ræðir við Arnþrúði Karlsdóttir um Njálu fræðslu ferð sína fyrir hönd ferðafélag íslands.
Ep 230Arnþrúður & Pétur (spjall)
Það er nauðsynlegt að endurskoða lagasetninguna hvað varðar kynferðisbrotamál ef menn ætla að fara að endurskilgreina kynferðisáreiti og bæta þar inn orðbundnu kynferðisáreiti því almennur skilningur á orðinu kynferðisáreiti er sá að þegar ásakanir um kynferðisáreiti eru settar fram þá feli það í sér líkamlega snertingu. Þetta var meðal þess sem fram kom í spjalli Arnþrúðar Karlsdóttur útvarpsstjóra og Péturs Gunnlaugssonar í símatímanum í morgun þar sem þau ræddu meðal annars meint kynferðisáreiti í Digraneskirkju.
Ep 229Arnþrúður & Pétur
Arnþrúður Karlsdóttir & Pétur Gunnlaugsson ræða mál Erlu Bolladúttur.

Ep 228Erla Bolladóttir (þáttur frá 2008)
viðtal Arnþrúðar Karlsdóttur við Erlu Bolladóttur sem hlaut dóm fyrir meinsæri í Geirfinnsmálinu og hefur fengið synjun frá Hæstarétti Íslands um endurupptöku málsins. Þátturinn er 14 ára gamall er er frá árinu 2008 en Erla lýsir mjög nákvæmlega yfirheyrslum og samskiptum sínum við lögregluna og fleiri athyglisvert atriði í málinu.

Ep 227Leifur Árnason
Arnþrúður Karlsdóttir ræðir við Leif Árnason um covid "faraldurinn".

Ep 226Ásmundur Friðriksson
Ásmundur Friðriksson alþingismaður Sjálfstæðisflokksins ræðir við Arnþrúði Karlsdóttur um innflytjenda kerfið sem er sprungið og ekki hægt að taka á móti fleirum innflytjendum til landsins. Ásmundur einn af flutningsmönnum á tillögu um að flytja Útlendingastofnun til Keflavíkur.

Ep 225Minningarviðtal - Hrafn Jökulsson & Inga Dóra
Magnús Þór Hafsteinsson ræðir við Hrafn Jökulsson & Ingu Dóru um ferð þeirra til Grænlands. viðtalið er frá árinu 2017.
Ep 224Kristinn Sigurjónsson
Arnþrúður Karlsdóttir ræðir við Kristinn Sigurjónsson raf & efnaverkfræðing um rafbílavæðingu landsins.

Ep 223Marta Guðjónsdóttir
Marta Guðjónsdóttir borgarfulltrúi Sjálfstæðisflokksins ræðir um borgarmálin þ.e. leikskólamálin og breytingar á skólamálum í Laugardal. Húsnæðisskortur í Borginni og dráttur á uppbyggingu húsnæðis vegna tregðu til lóðaúthlutunar

Ep 222Náll Trausti Friðbertsson
þátturinn er með Arnþrúði Karlsdóttur, Pétri Gunnlaugsyni & Njáli Trausta Friðbertssyni alþingismanni og fyrrverandi flugumferðarstjóra frá Akureyri og fulltrúa Íslands í Nato - Rætt um aðgerðir Nato og flugvallarmálið.

Ep 221Sara Pálsdóttir
Staða barnaverndarmála á Íslandi. Sara Pálsdóttir lögmaður ræðir við Pétur Gunnlaugsson hdl um stöðu barnaverndarmála hér á landi og vísar í ýmis dæmi sem hún hefur á lögmanns ferli sínum.