
Síðdegisútvarpið
1,369 episodes — Page 22 of 28

Ep 323Sannkallað Greifafjör - Kristján Viðar Haraldsson
Arnþrúður Karlsdóttir tekur á móti hljómsveitinni Greifunum sem hafa starfað í áratugi og alltaf jafn vinsælir. Hafa núna gefið út nýtt lag og verður rætt við þá Kristján Viðar Haraldsson og félaga í þættinum. 2. feb. 2023

Ep 322Verðbólgan og stjórn efnahagsmála - Vilhjálmur Bjarnason
Arnþrúður Karlsdóttir tekur á móti Vilhjálmi Bjarnasyni fyrrverandi alþingismann Sjálfstæðisflokksins í Suðrukjördæmi en Vilhjálmur er viðskiptafræðingur og fyrrverandi bankastjóri og er einn þeirra þriggja sem sitja í Bankasýslu ríkisins. Rætt verður um verðbólguna og stjórn efnahagsmála sem hafa veruleg áhrif á kjör fólks og heimila. 1. febrúar 2023

Ep 321Lindarhvolsmálið seinnihluti - Þorsteinn Sæmundsson fyrrv. alþingismaður
Arnþrúður Karlsdóttir ræðir við Þorstein Sæmundsson fyrrv. alþingismann um Lindarhvolsmálið en Þorsteinn ætlar að lýsa réttarhöldunum í málinu sem fram fór í Héraðsdómi Reykjavíkur í síðustu viku. 31. jan.2023

Ep 320Útlendingafrumvarpið - Jón Gunnarsson dómsmálaráðherra
Arnþrúður Karlsdóttir ræðir við Jón Gunnarsson dómsmálaráðherra um útlendingafrumvarpið og lögregluna og rafbyssur. 31. janúar 2023

Ep 319Málefni Eflingar og ríkissáttasemjara - Gunnar Smári Egillsson
Arnþrúður Karlsdóttir og Gunnar Smári Egilsson frá Sósíalistaflokknum um málefni Eflingar og ríkissáttasemjara. Einnig um stjórnmálaástandið og framgöngu forsætisráðherra á erlendum vettvangi. 30.jan. 2023
Ep 318Útlendingafrumvarpið - Sigmundur Davíð Gunnlaugsson
Arnþrúður Karlsdóttir ræðir við Sigmund Davíð Gunnlaugsson formann Miðflokksins um fund Katrínar Jakobsdóttur með Ólaf Schulz kanslara þýskalands, útlendingafrumvarpið og hatursumræðuna 26. janúar 2023
Ep 317Fíkniefnavandann og hugvíkkandi efni
Arnþrúður Karlsdóttir ræðir við Baldur Borgþórsson fyrrverandi borgarfulltrúa um fíkniefnavandann og hugvíkkandi efni 25. jan. 2023
Ep 316Breytingar á útlendingalöggjöfinni - Eyjólfur Ármannsson
Arnþrúður Karlsdóttir fær til sín Eyjólf Ármannsson alþingismann frá Flokki Fólksins og ræða þau um nýtt frumvarp Dómsmálaráðherra um breytingar á útlendingalöggjöfinni. Flokkur fólksins hefur lagt fram breytingatillögu sem vill taka fastar á málum. Eyjólfur Ármannsson var flutningsmaður að breytinga tillögunni og við heyrum hans rökstuðning um stöðu þessara mála hér á landi. 24. jan. 2023

Ep 315Lindarhvol, Íbúðalánasjóður og sala hlutabréfa í Íslandsbanka - Þorsteinn Sæmundsson
Spillingarmál á Íslandi á síðasta áratug. Lindarhvol, Íbúðalánasjóður og sala hlutabréfa í Íslandsbanka. Þorsteinn Sæmundsson fyrrverandi alþingismaður Miðflokksins ræðir við Arnþrúði Karlsdóttur- um Lindarhvolsmálið sem verður tekið fyrir í Héraðsdómi Reykjavíkur í næstu viku og enn hvílir leynd yfir innihaldi þeirra skjala. Einnig ræða þau um Íbúðalánasjóð þegar eignir fólks voru seldar á hrakvirði og málið ekki ennþá upplýst. Einnig verður rætt um söluna á hlutabréfum í Íslandsbanka. 20. jan.2023
Ep 314Miklar breyingar framundan í heiminum - Guðrún Bergman
Arnþrúður Karlsdóttir ræðir við Guðrúnu Bergmann rithöfund og lífsstílsráðgjafa og margvíslegar breytingar í alþjóðasamfélaginu. Breytingar sem eiga eftir að koma okkur á óvart að því er varðar nýjar leikreglur varðandi heilsufar og lífsstíll. 19. janúar 2023

Ep 313HM í handbolta - Jón Hjaltalín og Helga Magnúsdóttir
Arnþrúður Karlsdóttir fjallar um handknattleiks íþróttina. Hún fær til sín Jón Hjaltalín Magnússon fyrrverandi formann HSÍ ( Handknattleikssambands Íslands) og fyrrverandi landsliðsmann - og Helgu Magnúsdóttur fyrrvernandi handboltakonu úr gullaldarliði Fram og stjórnarmann HSÍ. Helga Magnúsdóttir er jafnframt fyrsta konan sem varð eftirlitsdómari í Evrópu á vegum IHF, evrópska handknattleikssambandsins ásamt því að sitja í framkvæmdastjórn IHF.
Ep 312Tónleikar í Grímsborgum - Ólsenbræður
Óli Laufdal eigandi og veitingamaður Hótels Grímsborga og Arnþrúður. Tónleikar með Jörgen Ólsen 20. og 21. jan.2023 í Grímsborgum 18. jan. 2023
Ep 311Breytingar í færeyjum - Jens Guð
Jens Guð, tónlistarspekúlant og greinahöfundur mætir í hjóðver og fer yfir stöðu mála í Færeyjum
Ep 310Staða lögreglunnar og skipulagða glæpastarfsemi á íslandi í dag - Fjölnir Sæmundsson
Fjölnir Sæmundsson, formaður landssambands lögreglumanna, segir okkur frá stöðu lögreglunnar og skipulagða glæpastarfsemi á íslandi í dag.
Ep 309Erna Ýr Öldudóttir - Þingsályktunartillaga forsætisráðherra
Erna Ýr Öldudóttir, blaðamaður, sem sendi inn umsögn um þingsályktunartillögu forsetisráðherra gegn hatursorðræðu.

Ep 308Linda P - LMLP lífstílsnámskeið
Lífsþjálfinn Linda Pétursdóttir kynnir LMLP námsefni sitt
Ep 307Kristján Berg - Fiskikóngurinn
Ep 306Björn Leví - Hatursorðræða á íslandi
Arnþrúður ræðir við Björn Leví alþingismann frá Pírötum um stöðu helstu mála. Íslandsbankamálið komið á dagskrá, Katrín Jakobsdóttir vill skylda alla opinbera starfsmenn til þess að fara á námskeið um hatursorðræðu og síðan vill Katrín Jakobsdóttir breyta fullveldisákvæði stjórnarskrárinnar.. Spurning hvað er að koma fyrir á Íslandi.
Ep 305Inga Sæland
Inga Sæland mætir til Arnþrúðar í áramótaspjall.
Ep 304Áramótaspáin - Guðrún Ívarsdóttir
Arnþrúður Karlsdóttir fær til sín Guðrúnu Ívarsdóttur miðil til að spá fyrir árinu 2023.

Ep 303Sigmundur Davíð & Jóhann Páll
Sigmundur Davíð Gunnlaugsson mætir til Arnþrúðar til að fara yfir árið sem er að líða síðan mætir Jóhann Páll Jóhannson til að gera slíkt hið sama.

Ep 302Maður Ársins: Ásgerður Jóna Flosadóttir
Arnþrúður Karlsdóttir & Útvarp Saga krýna mann ársins sem er að þessu sinni Ásgerður Jóna Flosadóttir formaður Fjölskylduhjálpar íslands sem vinna það mikilvæga starf að fæða fátækasta part þjóðarinnar.

Ep 301Steinunn Þóra Árnadóttir alþingismaður Vinstri Grænna
Steinunn Þóra Árnadóttir alþingismaður Vinstri Grænna mætir til Arnþrúðar Karlsdóttur og ræðir ýmis mál m.a. ferðamannaiðnaðinn & landvernd.
Ep 300Vikingarna
Arnþrúður Karlsdóttir tekur á móti innhringingum hlustenda og spilar lög aðallega með sænsku gamal dags grúppunni Vikingarna.

Ep 299Guðmundur Karl Snæbjörnsson
Guðmundur Karl Snæbjörnsson (kalli snæ) kíkir til Arnþrúðar Karlsdóttur í spjall um kórónaveiru-faraldurinn.

Ep 298Jakob Frímann
Þingmaðurinn & tónlistarmaðurinn Jakob Frímann Magnússon mætir til Arnþrúðar Karlsdóttur í áramótaþátt þar sem þau ræða ýmisleg mál.

Ep 297Ragnar Önundarson
Magnús Þór Hafsteinsson fær til sín Ragnar Önundarson til að ræða ýmis mál m.a. vindmyllur & flóttamenn.

Ep 296Birgir Þórarinsson - Afganistan
Magnús Þór Hafsteinsson fær til sín Afganistanfarann og þingmanninn Birgir Þórarinsson, þeir ræða ferð hanns til landsins og upplifun hanns af Talíbanastjórninni en hann var fyrsti erlendi stjórnmálamaðurinn sem heimsótti landið eftir yfirtöku þeirra. Jákvæð þróun er að öryggi hefur batnað í landinu en neikvæða hliðin er mikil kúgun kvenna.

Ep 295Rauði Þráðurinn (bók) Ögmundur Jónasson
Pétur Gunnlaugsson fær til sín Ögmund Jónasson fyrverandi ráðherra sem var að gefa út bókina "Rauði Þráðurinn". Í bókinni segir frá kynnum af samstarfsfólki í útvarpi og sjónvarpi, þingmönnum, samherjum og mótherjum og stofnun Vinstrihreyfingarinnar græns framboðs. Einnig eru spiluð jólalög í lokin.

Ep 294Ómar Ragnarsson (bók) Stiklur um undur Íslands
Magnús Þór Hafsteinsson tekur á móti Friðþjófi Helgason ljósmyndara & Ómari Ragnarsyni sem var að gefa út bókina "Stiklur um undur Íslands". Við fylgjum eldhuganum Ómari Ragnarssyni, helsta baráttumanni okkar fyrir íslenskri náttúru, um perlur og stórbrotna staði þessa undralands sem Ísland er. Fetum í fótspor hans og ljósmyndarans Friðþjófs Helgasonar um fáfarnar slóðir, leynistaði sem þeir hafa heimsótt og svæði sem Ómar hefur sérstakt dálæti á. Ómar og Friðþjófur – stiklarar í 50 ár.

Ep 293Hannes Hólmsteinn (bók) Landsdómsmálið
Magnús Þór Hafsteinsson fær til sín Hannes Hólmstein Gissurason sem var nýverið að gefa út bókina "Landsdómsmálið" Þjóðin varð fyrir miklu áfalli, þegar bankarnir hrundu allir í október 2008. En fráleitt var að draga Geir H. Haarde forsætisráðherra einan til ábyrgðar á bankahruninu, eins og naumur meirihluti Alþingis gerði með því að leiða hann fyrir landsdóm.

Ep 292Guðrún Bergman
Guðrún Bergman er gestur Arnþrúðar Karls í þessum þætti þar sem þær ræða bókina "Leið Hjartans" sem Guðrún var að gefa út.

Ep 291Menn Pútíns (bók) Björn Bjarnason
Magnús Þór Hafsteinsson fær til sín Björn Bjarna fyrverandi ráðherra til að ræða Úkraínustríðið & bókina "Menn Pútíns". Þessi marglofaða bók geymir afhjúpandi frásögn af endurreisn KGB, rússnesku leyniþjónustunnar, valdatöku Pútíns og hvernig illa fengið rússneskt fé hefur grafið undan Vesturlöndum. Höfundur bókarinnar er fyrrverandi fréttaritari Financial Times í Moskvu og rannsóknarblaðamaður, Catherine Belton.
Ep 290Svanur Guðmundsson sjávarútvegsfræðingur
Magnús Þór Hafsteinsson fær til sín Svan Guðmundsson sjávarútvegsfræðing, til að ræða m.a. afhverju loðnuveiðar borga sig ekki.

Ep 289Saga Harley-Davidson-mótorhjóla á Íslandi (bók) Njáll Gunnlaugsson
Magnús Þór Hafsteinsson fær til sín Njál Gunnlaugsson sem var að gefa út bókina "Ameríska goðsögnin. Saga Harley-Davidson-mótorhjóla á Íslandi" Saga hinna goðsagnakenndu Harley-Davidson-mótorhjóla í máli og myndum, frá því að þau fyrstu birtust á Íslandi árið 1917. Þá upphófst sannkölluð gullöld þeirra, en eftir stríð tók lögreglan þau í þjónustu sína. Einnig er fjallað um nokkrar aðrar gerðir amerískra mótorhjóla sem bárust til landsins. Ómissandi bók fyrir áhugafólk um vélknúin ökutæki.
Ep 288Óttar Guðmundsson
Arnþrúður Karlsdóttir ræðir við Óttar Guðmundsson geðlækni um lífið og tilveruna í dag.

Ep 287Valur Gunnarsson (bók) Hvað ef?
Magnús Þór Hafsteinsson tekur ámóti rithöfundinum Val Gunnarsson sem var að gefa út bókina "Hvað ef?" Í þessari frumlegu bók er kafað í lykilatburði í mannkynssögunni og skoðað hvernig þeir hefðu hugsanlega getað farið öðruvísi og hvað hefði þá getað gerst í framhaldinu.

Ep 286Ásmundur Friðriksson (bók) Strand í gini gígsins
Magnús Þór Hafsteinsson tekur á móti Ásmundi Friðrikssyni þingmanni sem var að gefa út bókina "Strand í gini gígsins".

Ep 285Anna Valdís Jónsdóttir og Ásgerður Jóna Flosadóttir - Fjölskylduhjálp Íslands
Anna Valdís Jónsdóttir varaformaður og Ásgerður Jóna Flosadóttir formaður Fjölskylduhjálpar Íslands mæta til Arnþrúðar Karlsdóttur til að ræða mikla fjölgun matargjafa sem hefur orðið undanfarið.

Ep 284Haraldur Ólafsson formaður Heimssýnar
Haraldur Ólafsson prófessor og formaður Heimssýnar fer yfir stöðu evrópu.
Ep 283Kóreustríðið (bók) Magnús Þór Hafsteinsson
Pétur Gunnlaugsson ræðir við Magnús Þór Hafsteinsson sem þýddi bókina Kóreustríðið sem er fyrsta bók sinnar tegundar á Íslandi.
Ep 282Eyjólfur Ármannsson
Eyjólfur Ármannsson alþingismaður ræðir helstu málin í þinginu við Arnþrúði Karlsdóttur.

Ep 281Ragna Erlendsdóttir
Ragnar Erlendsdóttir kemur til Péturs & Arnþrúðar en hún var að gefa út bók um baráttu hennar við heilbrigðiskerfið og barnaverndaryfirvöld vegna veikinda dóttur sinnar Ellu Dísar, sem lést í öndum barnaverndaryfirvalda.

Ep 280Lýður Árnason
Pétur Gunnlaugson fær Lýð Árnason lækni til sín í tilefni af fullveldisdegi Íslendinga 1.Des. Meðal umræðuefna eru t.d. Stjórnarskráin & Heilbrigðismálin.
Ep 279HSÍ - Róbert Geir Gíslason
Arnþrúður Karlsdóttir heyrir í Róberti Geir Gíslason hjá Handknattleiksambandi Íslands um kórónaveirufaraldursskilyrðin á næsta móti, einnig eru spiluð lög og tekið við innhringjendum.

Ep 278Guðmundur Karl Snæbjörnsson
Arnrþrúður Karlsdóttir tekur á móti Karli Snæbjörnssyni lækni sem er ekki sammála yfirvöldum í sambandi við kórónaveirufaraldurinn.
Ep 277Ugla útgáfa - Jakob F. Ásgeirsson
Pétur gunnlaugsson ræðir við Jakob F Ásgeirsson frá bókaútgáfunni UGLU um nýjust bækurnar sem þeir eru að gefa út.

Ep 276Kristján Jóhannsson
Kristján Jóhannsson óperusöngvari mætir til Arnþrúðar í spjall og lög.

Ep 275Gunnar Smári Egilsson
Pétur Gunnlaugsson fær til sín Gunnar Smára Egilsson blaðamann sem hefur barist fyrir Sósíalistaflokkinn.
Ep 274Haukur Arnþórsson
Arnþrúður Karlsdóttir fær til sín Hauk Arnþórsson stjórnsýslufræðing til að rýna í hvað hefur breyst í stjórnsýslunni á undanförnum árum.