
Rauður raunveruleiki - Alþjóðlegur baráttufundur gegn heimsvaldastefnu og arðráni
Félagsmenn Ungra Sósíalista þáðu boð á alþjóðlegan baráttufund gegn heimsvaldastefnunni og arðráni síðastliðna helgi. Fundurinn var kallaður til af sósíalíska Verkamannaflokknum í Frakklandi (Workers' Party (PT)) vegna stigmagnandi átaka og heimsvaldastefnu í heiminum. Kapítalismi og heimsvaldastefnan haldast í hendur og stigmögnun átaka í heiminum má rekja til óseðjandi hagnaðar- og valdakröfu kapítalista. Arnar Már Þóruson, Karl Héðinn Kristjánsson, Markús Candi, Marzuk Ingi, Sigurður Erlends Guðbjargarson & Sigurrós Eggertsdóttir sóttu ráðstefnuna og komu á Samstöðina til að segja frá henni.
Audio is streamed directly from the publisher (cdn.simplecast.com) as published in their RSS feed. Play Podcasts does not host this file. Rights-holders can request removal through the copyright & takedown page.