
Rauður Raunveruleiki
Karl Héðinn Kristjánsson, Oliver Axfjörð Sveinsson, Aníta Da Silva Bjarnadóttir · Samstöðin
Show overview
Rauður Raunveruleiki has been publishing since 2021, and across the 4 years since has built a catalogue of 123 episodes. That works out to roughly 110 hours of audio in total. Releases follow a fortnightly cadence.
Episodes typically run thirty-five to sixty minutes — most land between 43 min and 1h 1m — though episode length varies meaningfully from one episode to the next. It is catalogued as a IS-language News show.
There hasn’t been a new episode in the last ninety days; the most recent episode landed 12 months ago. The busiest year was 2024, with 41 episodes published. Published by Samstöðin.
From the publisher
Ungir sósíalistar ræða það sem skiptir þau máli.
Latest Episodes
View all 123 episodes
Ep 123Lagabreytingartillögur Sósíalista á Akureyri um svæðisfélög
Við ræðum við félagsmenn Sósíalistaflokksins í NA kjördæmi sem hafa lagt fram lagabreytingartillögu um svæðisfélög fyrir komandi aðalfund flokksins 24. maí. Karl Héðinn Kristjánsson ræðir við þá Ara Orrason, Guðberg Egill Eyjólfsson og Jón Þór Sigurðsson um lagabreytingartillögu þeirra og sósíalista á Akureyri.

Ep 122Rauður raunveruleiki - Lagabreytingartillaga ROÐA um Samvisku / Trúnaðarráð
Lagabreytingartillaga ROÐA um Samvisku / Trúnaðarráð er kynnt í þættinum af Karli Héðni Kristjánssyni, Sigurrós Eggertsdóttur og Sigurði Erlends Guðbjargarsyni.Það er skýrt ákall um breytingar á Samvisku og við teljum að tillaga okkar sé skref í rétta átt.Næsta fimmtudag munum við kynna lagabreytingartillögu okkar. Opin umræða og gagnrýnar spurningar eru velkomnar.Verið hjartanlega velkomin á kynningarfund ROÐA um lagabreytingartillögu okkar um Trúnaðarráð / Samvisku!Fimmtudaginn 22. maí kl. 17.Aðalfundurinn er síðan laugardaginn 24. maí kl. 11 í Bolholti 6, Reykjavík. Lesið allar lagabreytingartillögur sem lagðar hafa verið fyrir aðalfund flokksins á vef flokksins:https://sosialistaflokkurinn.is/.../tillogur-um.../

Ep 121Dystópískir tímar, stéttabaráttan og framtíðin
Davíð Aron Routley, Halldór Ólafsson og Sigurrós Eggertsdóttir tala við Anitu Da Silvu Bjarnadóttur og Karl Héðinn Kristjánsson um nútímann, um sósíalisma og stórtíðindi undanfarinna vikna. Er fólk hræddara við félagshyggju en áframhaldandi kapítalisma? Munu tollar Trump reisa við Bandaríkin? Er enginn valkostur nema áframhaldandi kapítalismi?

Ep 120Vistkerfiskrísa kapítalisma: Sósíalískir Umhverfissinnar
Á degi jarðarinnar, 22. apríl, fer fram formlegur stofnfundur baráttuhópsins Sósíalískir Umhverfissinnar. Hópurinn mun beita sér fyrir lífvænlegu og sjálfbæru umhverfi og félagslegu réttlæti! Arnar Páll Gunnlaugsson, Sigurrós Eggertsdóttir og Stefán Örn Ingvarsson Olsen ræða við Karl Héðinn Kristjánsson um stofnun baráttuhópsins Sósíalískir Umhverfissinnar.

Ep 119Rauður raunveruleiki - Alþjóðlegur baráttufundur gegn heimsvaldastefnu og arðráni
Félagsmenn Ungra Sósíalista þáðu boð á alþjóðlegan baráttufund gegn heimsvaldastefnunni og arðráni síðastliðna helgi. Fundurinn var kallaður til af sósíalíska Verkamannaflokknum í Frakklandi (Workers' Party (PT)) vegna stigmagnandi átaka og heimsvaldastefnu í heiminum. Kapítalismi og heimsvaldastefnan haldast í hendur og stigmögnun átaka í heiminum má rekja til óseðjandi hagnaðar- og valdakröfu kapítalista. Arnar Már Þóruson, Karl Héðinn Kristjánsson, Markús Candi, Marzuk Ingi, Sigurður Erlends Guðbjargarson & Sigurrós Eggertsdóttir sóttu ráðstefnuna og komu á Samstöðina til að segja frá henni.

Ep 118Átök í Sósíalistaflokknum
Mikið hefur gengið á í umræðunni undanfarna daga. Karl Héðinn skýrir mál sitt og talar við félaga sína í ungliðadeild Sósíalistaflokksins um átökin og framtíð flokksins.

Ep 117Rauður raunveruleiki - Stríðsæsingar, vestræn sjálfsmynd og óvinir frelsisins
Jovana Pavlovic, Jökull Sólberg Auðunsson & Halldór Armand koma til Karl Héðins að ræða um stöðu heimsmálanna, stríðsæsingar, vestræna sjálfsmynd, um stöðu Evrópu og Íslands á áhugaverðum tímum. Klukkan 17:30 í beinni á Samstöðinni

Ep 116Rauður raunveruleiki - Byggjum betur!
Páll Jakob Líndal umhverfissálfræðingur, Egill Sæbjörnsson myndlistarmaður & Magnús Skúlason arkitekt koma og ræða við Karl Héðinn Kristjánsson og Trausta Breiðfjörð Magnússon um arkitektúr, umhverfissálfræði og átakið "Byggjum betur!". Undirskriftarlisti hér: https://island.is/undirskriftalistar/810d7272-e312-46f4-9d80-0aa32ffe3570

Ep 115Virðing fyrir fólki og lífi / Askur og Kristbjörg
Virðing fyrir fólki og lífi. Fjallað um tímana og fólk á flótta með Aski Hrafni Hannessyni og Kristbjörgu Örnu Elínudóttur Þorvaldsdóttur. Þátturinn er í umsjón Karls Héðins Kristjánssonar og Anitu Da Silvu Bjarnadóttur.

Ep 114Sjáum samfélagið / Viðar Halldórsson
Viðar Halldórsson í frábæru samtali um samfélagið og nýju bókina hans „Sjáum samfélagið“. Rætt var um mikilvægi félagslegra tengsla, um varhugaverða þróun samfélagsins að undanförnu. Mögulegar orsakir aukins kvíða, einmanaleika, kulnunar og jafnvel siðrofs. Rannsóknir hafa sýnt fram á það að það sem veitir fólki mestu lífshamingjuna eru ekki veraldlegir hlutir eða velsnægtir heldur frekar þau félagslegu tengsl sem við myndum yfir ævina, við okkar nánustu, nærsamfélagið og samfélagið í heild sinni. Það er mikilvægt að staldra annað slagið við og spyrja okkur hvert samfélagið er að þróast. Fiskar í vatni geta átt erfitt með að átta sig á því að þeir séu í vatni. Og hvert vatnið gæti verið að taka þá. Þetta og fleira á Samstöðinni klukkan 20:00 í kvöld!

Ep 113Rauður raunveruleiki - Stéttabarátta, nýfasismi og Twitter
Í Rauðum raunveruleika kvöldsins fjöllum við um aðgerðir Eflingar gegn gervistéttarfélaginu Virðingu, um fasista og nýnasista á Twitter, um Elon Musk, stéttabaráttu, falsfréttir, áróður og um eðli fasismans.Trausti Breiðfjörð Magnússon og Ægir Máni Bjarnason tala við Karl Héðinn Kristjánsson í Rauðum raunveruleika kl. 20:00.

Ep 112„Woke“ Al-Kaída, áróður, heimsvaldastefna, þjóðarmorð.
Karl Héðinn og Anita Da Silva ræða við Tjörva Schiöth um atburðina í Sýrlandi, hvítþvott Vesturlanda á þjóðarmorði, hryðjuverkum og heimsvaldastefnu. Hvað er að gerast í Sýrlandi og hvað gætu þessir atburðir þýtt fyrir framtíð Palestínu og Íran? Mun Ísrael taka stóran hluta Sýrlands og komast upp með það? Af hverju er CNN og aðrir stórir bandarískir fjölmiðlar að hvítþvo fyrrverandi foringja ISIS og Al-Kaída?

Ep 111Kosningar gerðar upp, framhald baráttunnar.
Rætt um niðurstöður kosninganna, stöðu Sósíalistaflokksins og framtíð baráttunnar fyrir réttlæti og mannúð á Íslandi og í heiminum. Anita Da Silva Bjarnadóttir, Karl Héðinn Kristjánsson, Eyjólfur B. Eyvindarson, betur þekktur sem Sesar A og Trausti Breiðfjörð Magnússon munu taka stöðuna.

Ep 110Rauður raunveruleiki - Fangelsin, öryrkjar og velferð. Sósíalistar ræða málin.
Karl Héðinn og Anita Da Silva tala við tvo félaga sína í Sósíalistaflokknum, þær Guðrúnu Ósk Þórudóttur og Maríu Pétursdóttur. Við ræddum um stöðu fangelsanna, öryrkja og almennrar velferðar og um alvarlega stöðu og þróun í þessum málaflokkum. Kíkið á stefnu Sósíalistaflokksins í velferðarmálum og ríkisfjármálum á Sosialistaflokkurinn.is

Ep 109Rauður raunveruleiki - Ragnar Sverrirsson / Heimsganga fyrir friði og tilveru án ofbeldis
Ragnar Sverrirson hefur lengi verið viðloðin alþjóðlegu Húmanistahreyfingunni og er nýkominn frá Keníu. Á miðvikudaginn verður viðburður í Klambratúni þar sem verður gert mannlegt friðarmerki. Sanna Magdalena verður fundastjóri og ræðufólk frá fjölmörgum samtökum taka til máls. Magga Stína mun synga. Mæting klukkan 20! Hvetjum alla til að mæta og standa fyrir friði. En eins og sagt var er Ragnar nýkomin frá Keníu þar sem hann var að starfa með félögum í Húmanistahreyfingunni. Heimsgangan fyrir friði og tilveru án ofbeldis mun eiga sér stað um allan heim en hún byrjar fyrst núna á miðvikudaginn! Við ræðum við Ragnar um Húmanistahreyfinguna og Heimsgönguna. Við sýnum tónlist frá húmanistanum og tónlistarkonunni Black Queen í lokin. Hún er 18 barna móðir.

Ep 108Alfred de Zayas / Alþjóðalög, mannréttindi og áróður
Alfred de Zayas er prófessor í alþjóðalögum við Háskólann í Genf og hefur áratugareynslu af starfi innan Sameinuðu Þjóðanna. Hann hefur starfað sem óháður sérfræðingur mannréttindanefndar Sameinuðu Þjóðanna í alþjóðamálum og skrifað fjölmargar bækur um alþjóðakerfið. Alfred hefur margt til málanna að leggja og er harður gagnrýnandi á tvískinnung Vesturlanda þegar kemur að mannréttindum og alþjóðalögum. Alfred hefur skrifað bækur á borð við "The Human Rights Industry" (2023), "Building a Just Order" (2021) og "Countering Mainstream Narratives: Fake News, Fake Law, Fake Freedom" (2022). Við ræddum við Alfred í kjölfar fundar í Safnarhúsinu við Hverfisgötu. Fundurinn var liður í fundarröð Ögmundar Jónassonar: Til róttækrar skoðunar.

Ep 107ASÍ, mótmæli á morgun, stéttabarátta og pólitík.
Alþýðusamband Íslands (ASÍ), BSRB og Kennarasamband Íslands (KÍ) hafa boðað til mótmæla á morgun (10. september) á Austurvelli kl. 16:00. Í tilkynningu á vef ASÍ segir: „Vinnandi stéttir munu þar mótmæla skeytingarleysi stjórnvalda gagnvart hárri verðbólgu og vöxtum. Nú er nóg komið!“ Samstöðutjald Vorstjörnunnar mun rísa upp á vellinum og hvetjum við alla til þess að mæta á Austurvöll á morgun til að lýsa óánægju sinni með stjórnvöld sem virðast hugsa um lítið annað en hagsmuni borgarastéttarinnar, hinna ofurríku. Til þess að ræða um mótmælin og stjórnmálin fáum við til okkar þau Maríu Lilju Ingveldar- Þrastadóttur Kemp og Sæþór Benjamín Randalsson. Við munum ræða um mikilvægi og mögulegt hlutverk mótmæla, um stéttabaráttu og pólitíkina henni tengdri.

Ep 106Rauður raunveruleiki - Lögregluofbeldi mótmælt / Pétur Eggerz Pétursson
Pétur Eggerz Pétursson hefur vakið athygli á samfélagsmiðlum í tengslum við baráttuna fyrir frjálsri Palestínu, um ofbeldi lögreglunnar gagnvart mótmælendum í Skuggasundi og víðar. Anita Da Silva og Karl Héðinn tala við Pétur um mótmælin, stjórnmálin og nauðsyn þess að sporna við lögregluofbeldi og spillingu í Rauðum raunveruleika í kvöld klukkan 19:00

Ep 105Rauður raunveruleiki - Ingólfur Gíslason & Sæþór Benjamín Randalsson
Antia Da Silva og Karl Héðinn fá til sín góða gesti í spjall um heimsmálin og efnahagsmál. Ingólfur Gíslason er kennari sem hefur verið mjög virkur í hreyfingunni fyrir frjálsri Palestínu. Sæþór Benjamín Randallsson situr í stjórn Eflingar og er ötull baráttumaður fyrir félagslegu réttlæti.

Ep 104Þórarinn Eyfjörð - Menntun, samfélag, lýðræði og stéttabarátta
Þórarinn Eyfjörð er formaður Sameykis, stéttarfélags opinberra starfsmanna í almannaþjónustu. Við ræðum við Þórarinn um orlofsgreiðslur, um muninn á Jóni og Séra Jóni, um menntun, félagsstarf, lýðræði, velferð og þá vegferð sem Ísland er á. Hvað kynni að vera fram undan í stéttabaráttu almennings og af hverju er Ísland ekki enn þá komið með nýja stjórnarskrá? Þetta og fleira í Rauðum raunveruleika í kvöld.