
Rauður Raunveruleiki
123 episodes — Page 2 of 3

Ep 73Ákæra Suður Afríku
Í kvöld ætlum við að fjalla um ákæru Suður Afríku á hendur Ísraels, um neyðarástandið á Gasa, fjölmiðlaumfjöllun og alþjóðalög Sjáið ræður Suður Afríku manna við Alþjóðadómstóllinn og skoðum sönnunargögnin fyrir því að Ísrael hefur sýnt fram á ásetning og tilraun til þjóðarmorðs

Ep 72Red reality - Mímir Kristjánsson: Rødt party and socialism
On tonights episode we have a special guest from Norway. Mímir Kristjánsson is a member of the Norwegian Storting for the Rødt (red) party, he was formerly a city councilor in Stavanger and a political journalist for Klassekampen. Join us as we explore the Red party and how it's projects relate to our struggle in Iceland. We discuss energy infrastructure and the EU market, austerity, privatization, capitalism vs. democracy and the need for socialist reforms and action on Red reality tonight at 18:30

Ep 71Austurlöndin: Palestína og hernaðarstaða Bandaríkjanna
Í kvöld munum við segja fréttir frá Palestínu og fjalla um ástandið í Mið-Austurlöndunum (Vestur-Asíu) og áhrif hernaðarúthlutna Bandaríkjanna á svæðinu sem hafa verið viðvarandi í marga áratugi. Þátturinn er í umsjón Karls Héðins Kristjánssonar og Olivers Axfjörð Sveinssonar

Ep 70Red reality - World Humanist Forum
Tonight we'll be speaking to organizers from the World Humanist Forum. Antonio Carvallo and Júlíus Valdimarsson The African humanist forum and the Asian Humanist forum are a growing peoples movement that seeks to educate, inspire and heal. How do we overcome human violence, poverty and war? Tonight we will get a unique opportunity to discuss and address these issues from a humanist perspective and hear about these organizations efforts in humanizing the world.

Ep 69Rauður raunveruleiki - Mótmæli aðstandenda og fíknisjúkra gegn aðgerðarleysi stjórnvalda
Nýstofnuð samtök aðstandenda og fíknisjúkra hafa boðað til mótmæla næsta laugardag kl. 13 við Austurvöll Mótmælin snúast gegn aðgerðaleysi stjórnvalda í málefnum fíknisjúkra en eins og staðan er er þjónustan ófullnægjandi og biðlistar langir. Dagbjört Ósk Steindórsdóttir og Guðlaug Baldursdóttir hafa komið að stofnun félagsins og verða gestir okkar í kvöld Þátturinn er í umsjón Anítu Da Silva og Karls Héðins

Ep 68Rauður raunveruleiki - Kúgun vesturlanda og Palestína: Heimsvaldastefnan og arfleið hennar
Í Rauðum raunveruleika í kvöld munum við kanna hvernig Sameinuðu þjóðirnar hafa brugðist Palestínu og fleiri löndum sem hafa orðið fyrir og eru að verða fyrir kúgun og ofbeldi Vesturlandanna. Standa Bandaríkin í alvöru með mannréttindum? Hver er þessi „rule based order“ eins og Bandaríkjamenn segja og hvernig birtist hún okkur í alvörunni? Af hverju kemst Ísrael upp með stórfelld mannréttindabrot, stríðsglæpi og brot á alþjóðalögum og hvað er þetta svokallaða alþjóðlega samfélag? Þátturinn er í umsjón Anítu Da Silva Bjarnadóttur, Hálfdan Árna Jónssonar og Karls Héðins Kristjánssonar.

Ep 67Dygðasiðfræði. Konfúsíus og heimurinn í dag / Geir Sigurðsson
Geir Sigurðsson er heimspekingur og prófessor í kínverskum fræðum við Háskóla Íslands. Í þættinum munum við fjalla um dygðasiðfræðikerfi Konfúsíusar, um dygðasiðfræði almennt og hvernig slík heimspeki hefur haft áhrif á heiminn. Hvað segir Konfúsíus um stjórnmálafólk, mennskuna og um menntun?

Ep 66Red reality - Neoliberalism and soviet nostalgia in Georgia
Bakar Berekashvili (1983) is Professor of Political Science and Sociology at the Georgian American University in Tbilisi. His research and teaching interests include qualitative research, critical sociology, Marxist thought in ‘Actually existing Socialism’, post-socialist politics and society, Soviet Union (life and social order), ruling class under capitalism, problems of democracy, social & political theory, political sociology, ideology, nationalism, and politics of memory. In Red reality tonight Tjörvi Sciöth and Karl Héðinn will interview Bakar on his research into neoliberalism and "Soviet nostalgia" in Georgia

Ep 65Rauður raunveruleiki - Andspyrna gegn síónisma
Karl Héðinn Kristjánsson og Trausti Breiðfjörð Magnússon fara yfir málefni Palestínu, átökin í mið - austurlöndum og andstöðu við síónisma í mið-austurlöndunum og víðar

Ep 64Rauður raunveruleiki - Stjórnmálaskólinn: Marx um öreigana
„Stjórnmálaskóli Sósíalistaskólans fór í gang á laugardeginum í síðustu viku! Þar fræðumst við um sósíalisma. Í þættinum munum við fjalla um tilgang og nytsemi menntunar í baráttunni fyrir réttlæti og jöfnuði. Til okkar koma Sara Stef Hildardóttir og Viðar Þorsteinsson en þau hafa ásamt Karli Héðni Kristjánssyni skipulagt skólann. Einnig fáum við til okkar Önnu Björk Einarsdóttir, en hún var fyrsti gestafyrirlesarinn hjá okkur í Stjórnmálaskólanum. Hún var með erindi um öreiga hugtakið og meiningu þess frá Marx.“
Ep 63Rauður raunveruleiki - Sósíalismi í uppvexti
Aníta Da Silva og Karl Héðinn fjalla um uppgang sósíalista í borginni og víðar í þætti kvöldsins. Hvað er sósíalismi í grunninn og af hverju er hann nauðsynlegur? Við munum skoða það út frá víðum sjónarhóli en einnig í gegnum þær tillögur sem borgarstjórnarflokkur Sósíalista hefur lagt til og áherslur flokksins og hugmyndafræðarinnar í víðum skilningi. Hver er grunnstefnan og af hverju er sósíalismi leiðin áfram fyrir fólkið í landinu? Fylgist með á Samstöðinni í beinni útsendingu klukkan 17:30

Ep 62Red reality - Free Palestine / Muhammed Alkurd
In this episode we contextualize and reflect on the ongoing crisis in Israel - Palestine. Thousands of innocent people have died in brutal attacks from the Israeli "Defence" Force that routinely forcibly expels Palestinian people from their homes in the West Bank, killing many, and forcing them into the open air prison that is Gaza

Ep 61Rauður raunveruleiki - Ungir Umhverfissinnar
Í kvöld fáum við til okkar Finn Ricart Andrason, forseta Ungra Umhverfissinna og Snorra Hallgrímsson stjórnarmeðlim. Við munum ræða um veðurfarsbreytingar, vistkerfin, útblástur Íslands á koltvísýringi og öðrum gróðurhúsalofttegundum og um það hver ábyrgð einstaklinga er, á móti ábyrgð stórra fyrirtækja og ríkisstjórna.

Ep 60Rauður raunveruleiki - Félagslegt réttlæti á heimsvísu / Júlíus K Valdimarsson
Í Rauðum raunveruleika í kvöld ræðum við heimsmálin með Júlíusi Valdimarssyni G77+ ráðstefnan átti sér stað síðastliðinn september þar sem fulltrúar 80% jarðarbúa kölluðu eftir nýrri heimskipan í efnahagsmálum. Við ætlum að ræða húmanisma og hreyfingu húmanisma, baráttuna fyrir réttlátari heimskipan, sögu baráttunnar og framtíðina. Þáttastjórnendur kvöldsins eru Anita Da Silva Bjarnadóttir, Karl Héðinn Kristjánsson og Oliver Axfjörð Sveinsson

Ep 59Rauður raunveruleiki - Mannúðarkrísa / Morgane Priet-Mahéo
Það er mannúðarkrísa á Íslandi. Stjórnvöld hafa einbeittan brotavilja gagnvart börnum og fullorðnum á flótta og vilja láta almenning halda að flóttafólkið sé sérstakt vandamál fyrir hagkerfið og velferðarkerfið. Þetta er kolrangt og svívirðilegt bull sem örvæntingarfullt auðvald reynir að sannfæra okkur um til að færa athyglina frá sjálfu sér. Á sama tíma eru öryrkjar látnir bíta í það súra, velferðarkerfin hnigna og eru einkavædd og þeim freku, sterku og siðlausu er gefið endalaust færi á að svína á almenningi. Til þess að ræða þessi mál með okkur höfum við fengið til okkar Morgane Priet-Mahéo frá samtökunum Réttindi barna á flótta. Hún hefur verið í fremstu víglínu að hjálpa því flóttafólki sem auðvaldið vill skrýmslavæða svo almenningur horfi á það frekar en sig sjálft.

Ep 58Rauður raunveruleiki - Efnahagspólitík og fátækt / Sanna Magdalena Mörtudóttir
Í Rauðum raunveruleika í kvöld kemur borgarfulltrúi okkar og ungi sósíalistinn Sanna Magdalena Mörtudóttir. Við ræðum um borgarmálin, fátækt, velferð og efnahagspólitík meirihlutans í Reykjavík. Á morgun munu Sósíalistar í borginni leggja til að fasteignaskattar á atvinnuhúsnæði verði leiðréttir frá síðustu lækkun sem varð í Covid-faraldrinum. Hækkunin yrði ekki nema um 0,05% en myndi skila borginni um 500 milljónum króna yfir næsta ár. Þátturinn er í umsjón Anítu Da Silva Bjarnadóttur, Karls Héðins Kristjánssonar og Olivers Axfjarðar Sveinssonar

Ep 57Rauður raunveruleiki - ADHD, kapítalismi og samráð stórfyrirtækja
Ungir sósíalistar og vinir ræða atburði og umræðu síðustu vikna, mögulega ofbeitingu ADHD-lyfja, afleiðingar útlendingafrumvarpsins, samráð stórfyrirtækjanna og spillingu kapítalismans. Þátturinn er í umsjón Karls Héðins Kristjánssonar og Anítu Da Silva Bjarnadóttur. Trausti Breiðfjörð Magnússon og Elísabet Guðrúnar og Jónsdóttir verða gestir kvöldsins

Ep 56Rauður raunveruleiki: Vestur - Afríka og heimsvaldastefnan
Oliver Axfjörð og Karl Héðinn snúa aftur með Rauðan raunveruleika í kvöld og segja frá atburðum síðastliðinna ára í Vestur-Afríku. Nýlega var valdarán í Níger en það var bara nýjasta valdaránið í röð atburða sem er að breyta örlögum svæðisins og kannski allrar Afríku. Í vestrænum fjölmiðlum er okkur sagt að valdaránið sé hræðileg þróun en við fáum minna að heyra um hvernig heimsvaldastefnan hefur haldið þessum þjóðum í sárri fátækt enn þann dag í dag á meðan vestræn fyrirtæki stórgræða á auðlindum og neyð fólks í Vestur-Afríku. Við munum fjalla um útflutning þessara þjóða á gulli og öðrum auðlindum, gögn sem sýna fram á hversu svakalega þessar þjóðir eru arðrændar. Við munum skoða sögu Búrkínó Fasó og byltinguna þar sem átti sér stað árið 1983 en lauk með morðinu á leiðtoga byltingarinnar, Thomas Sankara, árið 1987. Forseti Búrkína Fasó segist í dag vilja ganga í spor hans og forsætisráðherrann nýi hefur sagt að landið muni stefna í nýja átt, í anda byltingar Sankara, áttina sem þjóðin vildi fara en heimsvaldastefnan neitaði þeim.

Ep 55Rauður raunveruleiki - Skattkerfið og pólitíska hagkerfi sjávarútvegsins
Í Rauðum raunveruleika í kvöld fáum við til okkar Indriða Þorláksson í spjall um skattkerfið og pólitíska hagkerfi sjávarútvegsins. Indriði er hagfræðingur og hefur starfað í mörgu í fjármálaráðuneytinu og víðar ásamt því að vera ríkisskattstjóri á árunum 1999 til 2006. Við ætlum að læra af Indriða um þróun skattbyrðarinnar, hvernig hún hefur breyst undanfarna áratugi og hvað þurfi að gera til að bæta stöðuna. Við viljum líka velta fyrir okkur arðsemi sjávarútvegsins, hvernig henni skipt. Hversu mikið er að fara til þjóðarinnar og hversu mikið til eigendanna? Þetta og fleira áhugavert í Rauðum raunveruleika í kvöld

Ep 54Rauður raunveruleiki - Austurstækkun Nató, Tjörvi Schiöth
Í Rauðum raunveruleika í kvöld ræðum við við Tjörva Schiöth sagnfræðing um austurstækkun Nató. Hvernig vesturveldin lofuðu Sovétríkjunum að Nató yrði ekki stækkað "eina tommu" austur og hvað gerðist síðan í kjölfarið.

Ep 53Rauður raunveruleiki - Barbie, endurvinnsla og allt þar á milli
EUngir sósíalistar fá til sín gesti og ræða um Barbie, endurvinnslu, ásamt ýmsu sem er að gerast í veröldinni. Og hvaða kommúnista er Jón Gunnarsson að tala um? Elísabet Guðrúnar og Jónsdóttir varaborgarfulltrúi Pírata, Trausti Breiðfjörð Magnússon borgarfulltrúi Sósíalista, Sunna Dögg Ágústsdóttir ungur sósíalisti og starfsmaður Þroskahjálpar og Marsí Thoroddsen ungur sósíalisti og maóisti eru með okkur í setti

Ep 52Rauður raunveruleiki - Lindarhvoll ehf, greinargerð Sigurðar
Í Rauðum raunveruleika kvöldsins köfum við í grein setts ríkisendurskoðenda, Sigurðar Þórðarsonar, um Lindarhvoll. Greininni var nýlega lekið af Sigurði sjálfum og þingkonu Pírata Þórhildi Sunnu. Sigríður grípur til þessarar ráða því enginn annar farvegur virtist honum opinn til að koma grein sinni út, grein sem hann skilaði Alþingi árið 2018. Í þættinum förum við í efni greinarinnar, útskýrum hvað Lindarhvoll er og hvað grein Sigurðar segir. Þetta er fyrsti þátturinn af nokkrum þar sem við munum skoða málefni Lindarhvols og pólitíkina á bak við það. Umsjónarmenn þáttarins eru Karl Héðinn Kristjánsson og Oliver Axfjörð Sveinsson. Fylgist með á Samstöðinni kl. 20

Ep 51Rauður raunveruleiki - Þróun skattbyrðarinnar, stéttaskipting og sérhagsmunir
Í Rauðum raunveruleika í kvöld ætlum við að fjalla um breytingar á skattkerfinu og hagkerfi Íslands og annarra Vesturlanda á undanförnum áratugum. Hvernig skattbyrðin hefur aukist hlutfallslega á milli- og lágtekjuhópum en hríðfallið fyrir þau allra ríkustu. Umsjónarmenn þáttarins eru þeir Karl Héðinn Kristjánsson og Oliver Axfjörð Sveinsson.

Ep 50Rauður raunveruleiki - Baráttan fyrir strandveiðum
Í Rauðum raunveruleika í kvöld ræðum við við strandveiðisjómenn um baráttuna fyrir réttinum til að sækja sjóinn. Strandveiði var nýlega stöðvuð vegna þess að ekki var gefinn nægur kvóti inn í kerfið. Veiðin á að standa í 48 daga, frá 1. maí er til 31. ágúst, og tók það mikla baráttu að fá þetta fram, en undanfarin ár hefur veiðin verið stöðvuð löngu áður en tímabilið á að klárast. Vegna þessa hefur Strandveiðifélagið boðað til mótmæla næstkomandi laugardag. Við ætlum að spjalla við strandveiðisjómenn um baráttu þeirra fyrir að fá að fiska sjóinn og fræðast um eðli strandveiðanna, af hverju þær eru umhverfisvænni en veiðar á stærri skipum og hversvegna strandveiði getur verið svona félagslega farsæl fyrir okkur sem samfélag. Í þáttinn koma Kjartan Sveinsson formaður Strandveiðifélagsins, Guðlaugur Jónasson strandveiðimaður og Rut Sigurðardóttir strandveiðikona. Hún gerði heimildarmynd um strandveiði sem kemur út á næstunni og ber nafnið „SKULD”.

Ep 49Rauður raunveruleiki - Gideon Levy - Israel Palestine; The one state solution
In tonight's episode of Red reality, we have a special guest from Israel. Gideon Levy is an Israeli journalist and author who has focused on the Israeli occupation of the Palestinian territories for decades. We speak to him about waking up to the reality of the horror of apartheid, why Israel can not be considered a democracy, and the need for a one state solution. Tune in at 18:00

Ep 48Baráttan fyrir réttlátari heim; Bandaríkin og Bretland
Í Rauðum raunveruleika kvöldsins fjöllum við um forsetaframbjóðendur í Bandaríkjunum sem ráðandi öfl sameinast um að halda niðri. Við fjöllum um Robert Francis Kennedy Jr, Marianne Williamson og Dr. Cornel West og hvernig fjölmiðlaumfjöllun um þessa frambjóðendur fer fram. Við sýnum myndbönd úr fjölmiðlum og bita úr viðtölum við þessa frambjóðendur og ræðum um innihald og samhengi þess sem fer þar fram Þættinum er stýrt af Oliveri Axfjörð Sveinssyni, sem er nýr þáttarstjórnandi hjá Rauðum raunveruleika, ásamt Karli Héðni Kristjánssyni. Við fengum til okkar þá Sæþór Benjamín Randalsson og Trausta Breiðfjörð Magnússon en Sæþór ólst upp í Bandaríkjunum og getur sagt okkur frá sinni upplifun og þekkingu þaðan. Við fjöllum líka um hvernig Jeremy Corbyn var bolað frá völdum innan Enska Verkamannaflokksins en Al Jazeera komst yfir gögn í fyrra sem sýna fram á hnitmiðaða herferð innan flokksins sem olli því að honum var bolað út. Hvað þýðir þetta allt saman fyrir baráttuna um réttlátari heim? Samstöðin klukkan 14:00

Ep 47Fjölmiðlaskot frá hrunsárunum og frameftir, hvað í?
Rauður raunveruleiki snýr aftur með ungum sósíalistum, í þætti kvöldsins ætlum við að skoða skot úr fjölmiðlum frá hrunsárunum og eftir þau. Hverjir voru panamaprinsarnir? Hvað gerði Davíð Oddson? Hvar er nýja stjórnarskráin okkar? Hvað þýðir það að stjórnmálamenn taki ábyrgð og hvar eru allir kommúnistarnir sem Jón Gunnarsson vælir yfir? Þetta og margt fleira í Rauðum raunveruleika kvöldsins með Karli Héðni Kristjánssyni, Oliveri Axfjörð Sveinssyni, Kristbjörgu Evu Andersen Ramos og borgarafulltrúanum okkar Trausta Breiðfjörð Magnússyni

Ep 46Rauður raunveruleiki - Ofbeldismenning og uppeldisfræði / Sindri Viborg
Sindri Viborg er kennaranemi og formaður Tourette-samtakanna á Íslandi. Hann hefur einbeitt sér að því að rannsaka einelti og hvernig ofbeldi getur birst í skólakerfinu okkar. Hvað er það sem veldur einelti og ofbeldi? Við munum velta fyrir okkur hvernig væri mögulega hægt að rækta upp menningu sem getur betur tekist á við ofbeldi og uppsprettur þess;... á Samstöðinni

Ep 45Saga Nató frá 1990, partur 1 - Tjörvi Schiöth
Í Rauðum raunveruleika kvöldsins höldum við áfram með Tjörva Schiöth að fjalla um sögu NATO. Í síðasta þætti var fjallað um Kalda stríðið (1945 – 1990), en í þessum þætti verður litið á tímabilið eftir lok Kalda stríðsins 1990 fram til dagsins í dag. Við reynum að einblína á þá hluta sögunnar sem hafa ekki fengið mikla athygli í meginstraumsfjölmiðlum eða almennum söguskýringum, en sú mynd sem hefur verið dregin upp fyrir okkur er mjög hvítþvegin og reynt hefur verið að sópa mörgum óþægilegum staðreyndum undir teppið. Í þessum þætti verður farið yfir breytt hlutverk NATO eftir lok Kalda stríðsins, ótal hernaðaríhlutanir Bandaríkjanna og NATO síðan 1990, sviðsett valdarán í öðrum ríkjum víða um heim, heimsvaldastefnu Bandaríkjanna, sprengjuherferðina gegn Serbíu 1999, “regime change” stríð gegn Írak 2003 og Líbýu 2011, notkun hættulegra vopna eins og klasasprengna og skerts úraníum, “stríðið gegn hryðjuverkum”, drónahernaðurinn um allan heim, pyndingar-prógrammið í “CIA black sites”, Guantanamo Bay og Abu Ghraib og fleira. Ali, Tariq. (2000). Masters of the Universe: NATO's Balkan Crusade. Ali, Tariq. (2018). “Natopolis.” The Extreme Centre: A Warning, bls. 137-150. Verso Books. Bacevich, Andrew J. (2002), American Empire: The Realities and Consequences of US Diplomacy. Harvard University Press. Benjamin, Medea. (2013). Drone Warfare: Killing by Remote Control. Verso Books. Benjamin, Medea og Davies, Nicolas J. S. (2022). “NATO: Myth vs. Reality.” War in Ukraine: Making sense of a senseless conflict, bls. 97-116. OR Books. Blum, William. (2000). Rogue State: A Guide to the World's Only Superpower. Common Courage Press. Blum, William.(2003). Killing Hope: US Military and CIA Interventions Since World War II. Zed Books. Chalmes Johnson (2000). Blowback: The Costs and Consequences of American Empire. Metropolitan Books. Chomsky, Noam. (2004). Hegemony or Survival: Americ’s Quest for Global Dominance. Metropolitan Books. Chomsky, Noam og Prashad, Vijay. (2022). The Withdrawal: Iraq, Libya, Afghanistan, and the Fragility of U.S. Power. The New Press. Congressional Research Service (CRS). (2022, 8. mars). “Instances of Use of United States Armed Forces Abroad, 1798-2022.” https://crsreports.congress.gov/produ... Hersh, Seymour. (2004). Chain of Command: The Road from 9/11 to Abu Ghraib. Harper Collins. McCoy, Alfred. (2006). A Question of Torture: CIA Interrogation, from the Cold War to the War on Terror. Henry Holt and Company. Norton, Ben. (2022, 13. september). “US launched 251 military interventions since 1991, and 469 since 1798.” Geopolitical Economy Report. https://geopoliticaleconomy.com/2022/... Parenti, Michael. (2002). To Kill a Nation: The Attack on Yugoslavia. Verso Books. Prashad, Vijay. (2022). Washington Bullets: A History of the CIA, Coups, and Assassinations. Monthly Review Press. Savage, Charlie. (2023, 8. mars). "Pentagon Blocks Sharing Evidence of Possible Russian War Crimes With Hague Court." The New York Times. https://www.nytimes.com/2023/03/08/us...

Ep 44Rauður raunveruleiki - Náttúruvernd / Árni Finnsson
Klukkan fimm á Samstöðinni; Arni Finnsson er formaður Náttúruverndarsamtakanna og hefur í langan tíma barist fyrir náttúrunni. Náttúruverndarsamtökin hafa beitt sér og beita sér enn fyrir hálendisþjóðgarði og margskyns annari náttúruvernd. Við ræddum við hann um umhverfismálin í víðum skilningi, um orkuskiptin, fiskeldi og fleira. Árni gaf nýlega út grein á Heimildinni sem segir frá nýjum rannsóknum sem benda til þess að kolefnisjöfnun stórfyrirtækjanna sé ekki raunveruleg. Nýleg rannsókn leiðir í ljós að 90% af þeim heimildum sem hefur verið vottað fyrir séu ekki raunverulega að kolefnisjafna. Þátturinn er liður í syrpu Rauðs raunveruleika um umhverfismál, fylgist með á Samstöðinni í kvöld! PS; Grein Árna um kolefnisjöfnun og aðsend grein um marxisma og umhverfismál; https://heimildin.is/grein/17418/graenthvottur-med-kolefnisjofnun/?fbclid=IwAR368gKt5S9JgvtDiAsHBWSVh6Puh4L72qVis_j4PUpKA6TsUPFEcNkPy6M https://www.theguardian.com/environment/2023/feb/28/a-greener-marx-kohei-saito-on-connecting-communism-with-the-climate-crisis?fbclid=IwAR3UP2zCz5AVjKFLTTFd07fMbQOacsEdTyISl6_ZTDfdkWLo6FAs9xsVA9Q

Ep 43Rauður raunveruleiki - Saga Nató / Tjörvi Schiöth
Sagan er ekki alltaf öll eins og hún sýnist. Í Rauðum raunveruleika kvöldsins köfum við í raunverulega sögu Nató með Tjörva Schiöth, förum yfir aðstæður heimsins við stofnun Nató, tilgangur Nató og veltum fyrir okkur kjarnorkusprengjum, kalda stríðinu, hergagnaiðnaðinum (military-industrial complex eða hernaðarlegur Keynesianismi), samskiptum ríkja og ofbeldi og stríði. Oft er talað um að Nató sé varnarbandalag en aðildarríki Nató eru langt frá því að vera saklaus um stríðsglæpi og aðra glæpi gegn mannkyninu. Og eftir fall Sovétríkjanna má kannski segja að Nató hafi orðið að grímulausara herveldi. Þetta og margt fleira á Samstöðinni í kvöld klukkan 19:30 Grein sem minnst er á í þættinum um hernaðaríhlutanir; http://geopoliticaleconomy.com/2022/09/13/us-251-military-interventions-1991/?fbclid=IwAR32ZqHCgsPozOY8d0mcj57zcNa6cLmLEMGfoou5nEDJ11GVzb5vUY6_7N0

Ep 42Rauður raunveruleiki - Blái herinn og umhverfið okkar / Tómas J. Knútsson
Blái herinn hefur týnt plast við strendur Íslands og á landi og hafa þau týnt á þeim 28 árum sem þau hafa starfað gífurlegt magn af plasti sem væri annars ennþá á reiki í náttúrunni og sjónum. Tómas J. Knútsson er stofnandi Bláa hersins en ferðalag hans byrjaði þar sem hann var að kafa við Íslandsstrendur og sá allt það magn plasts sem hafði safnast upp víðsvegar um landið, við bryggjur og allsstaðar annarsstaðar. Við tókum gott spjall við Tómas um Bláa herinn, störf þeirra og umhverfismál í víðara samhengi Þetta er fyrsti þáttur í komandi syrpu Rauðs raunveruleika um umhverfismál, fylgist með fyrsta innslaginu á Samstöðinni eða á öllum helstu hlaðvarpsveitum klukkan 19:00 í kvöld!

Ep 41One year since the invasion of Ukraine
Á föstudaginn næstkomandi er liðið eitt ár frá innrás Rússa í Úkraínu. Stríðið hefur haft hræðilegar afleiðingar fyrir heimsbyggðina alla og það er engin friður í sjónarmáli. Í kvöld ræðum við við tvo einstaklinga sem fæddust í Rússlandi og eru að skipuleggja mótmæli gegn stríðinu á föstudaginn næsta fyrir utan Rússneska Sendiráðið við Túngötu 24 klukkan 17:30. María Guindess kom til Íslands í Mars síðastliðnum eftir að stríðið braust út og hefur hún vakið athygli á því hvernig Pútín og ríkisstjórn hans hafa framleitt samþykki fyrir stríðið og ráðist að þeim borgaréttindum fólks sem eftir eru í Rússlandi. Andrei Menshenin er einn skipuleggjanda mótmælanna föstudagsins næsta og er líka frá Rússlandi. Við munum velta fyrir okkur stöðunni í Rússlandi og í stríðinu, afleiðingar þess og orsakir. Þátturinn er á ensku -ENGLISH- This Friday we reach the one year mark since Russia invaded Ukraine. The war has had terrible consequences for the entire world and there seems to be no end in sight. Tonight we’re speaking with two people who are from Russia and are organizing a protest against the war this friday outside the Russian embassy in Túngata 24 at 17:30.María Guindess came to Iceland last march after the war broke out and has been outspoken about the way Putin and his government have been manufacturing consent for the war and cracking down on those civil rights that still remained. With us also is Andrei Menshenin who is also originally from Russia and is one of the chief organizers of the protest this Friday. Join us as we reflect on the state of Russia and the war in Ukraine, it’s consequences and causes.

Ep 40Red reality special edition - Protests! / Mótmæli!
In a special edition of Red Reality tonight Karl Héðinn Kristjánsson and Trausti Breiðfjörð Magnússon are speaking to two members of Efling, Ian Mcdonald and Sæþór Benjamín Randalsson about their collective struggle for fair wages and dignity. We will hear from them how the strike patrols have been going, what they're thoughts are on the development of the one-sided mediation proposal put forward by the state mediator and what they think will happen at Landsréttur. We will also discuss what is to be done, how can workers fight for their wages and dignity effectively and how can we, who are not currently striking, assist Eflings' members in their struggle for justice and humanity. - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - Í sérstakri útgáfu Rauðs Raunveruleika tala Karl Héðinn Kristjánsson og Trausti Breiðfjörð Magnússon við tvo félaga Eflingar, þá Ian Mcdonald og Sæþór Benjamín Randalsson um sameiginlega baráttu þeirra fyrir betri kjörum og mannvirðingu. Við ætlum að heyra frá þeim hvernig verkfallsvarslan hefur gengið, hverjar hugsanir þeirra eru um þróun mála varðandi hlutdræga tillögu Ríkissáttasemjara og áfrýjun Eflingar til Landsréttar. Við munum líka ræða um það hvað sé til ráða, hvernig getur verkafólk barist fyrir kjörum sínum og mannvirðingu á gagnlegan hátt og hvernig getum við, sem erum ekki í verkfalli eins og er, hjálpað félögum Eflingar í baráttu þeirra fyrir réttlæti og mannhelgi

Ep 39Rauður raunveruleiki - Fellum útlendingafrumvarpið
Fellum útlendingafrumvarpið er grasrótarhópur sem berst fyrir því að Alþingi og ríkisstjórnin felli rasíska útlendingafrumvarpið. Þau Aníta Sóley Þórðardóttir, Askur Hrafn Hannesson og Íris Björk Ágústsdóttir settust hjá okkur og sögðu okkur frá frumvarpinu, mótmæla aðgerðum þeirra gegn því og yfirlýsingar ungliðahreyfinganna og ýmisa mannréttindasamtaka um frumvarpið. Frumvarpið hefur verið harðlega gagnrýnt fyrir að brjóta á mannréttindum Skoðið síður Fellum Frumvarpið á Instagram; @Fellum_frumvarpid og á facebook; "Fellum útlendingarfrumvarpið" https://www.facebook.com/profile.php?...

Ep 38Samninganefnd Eflingar / Eflings' Negotiation Committee
Í Rauðum Raunveruleika í kvöld ræðum við við þrjá meðlimi samninganefndar Eflingar, þau Sæþór Benjamín Randalsson, Melissu Wiliams og Reynaldo Curato Renegado. Þau hafa verið partur af samningaferlinu og starfi Eflingar og komu að segja okkur frá því hvernig starfið og bárátta þeirra lýsir sér. Viðtalið er á ensku. In Red Reality tonight we will be speaking to three members of Eflings' negotiation committee. Sæþór Benjamín Randalsson, Melissa Williams and Reynaldo Curato Renegado. They have been directly involved in the negotiation process and came to tell us about their experiences in the union and their mutual class struggle. The interview is in English.

Ep 37Jóhann Páll Jóhannsson
Í Rauðum raunveruleika kvöldsins ræðum við við þingmannin Jóhann Pál um stöðu Samfylkingarinnar og um ríkisfjármál, sósíalisma, spillingu og umhverfismál svo eitthvað sé nefnt. Jóhann var áður blaðamaður hjá Stundinni og hefur setið á þingi fyrir Samfylkinguna síðan á síðasta ári.

Ep 36Karl og Kjartan taka stöðuna
Karl Héðinn og Kjartan Sveinn taka stöðuna. Hvað er að gerast í framboðskjöri sjálfstæðismanna? Nýr forseti í Brasilíu, nýr formaður Samfylkingar og eftirspurn eftir olíu (og þáttum frá okkur) heldur áfram að aukast

Ep 35Stefanía María Arnadóttir - Fer samkennd minnkandi?
Fer samkennd minnkandi? Stefanía María Arnadóttir skrifaði nýverið grein á Vísi þar sem hún fór yfir rannsókn sem sýna fram á að samkennd sé að minnka á meðal fólks. Við ræddum um niðurstöður þessarar rannsóknar og um hvað gæti mögulega verið að valda þessu, hvað sé til ráða.

Ep 34Lenya Rún
Lenya Rún Taha Karim varaþingmaður Pírata kemur og situr undir spurningaflóði Kjartans Sveins Guðmundssonar um Íran, Írak og Kúrdistan, bankasöluna, hvernig stemningin sé á hinu himinháa Alþingi með meiru.

Ep 33Katrín Baldursdóttir: Verkalýðsfélög, atvinnulífið og sósíalismi
Við spjöllum við Katrínu Baldursdóttir um hlutverk og stöðu verkalýðsfélaga. Um atvinnulífið og sósíalisma.

Ep 32Hernaðarafskipti Bandaríkjanna eftir seinni heimstyrjöld
Í Rauðum Raunveruleika kvöldsins förum við yfir þau hernaðarlegu afskipti sem Bandaríkin hafa stundað frá seinni heimstyrjöld. Þetta verður ekki tæmandi listi en við förum yfir helstu atriði.

Ep 31Suður - Ameríka - Frelsisbarátta og heimsvaldastefnan
Eyjólfur Eyvindarson og Kristbjörg Eva koma í Rauðan raunveruleika kl 18 í kvöld. Við ætlum að ræða um pólitík í Suður Ameríku, heimsvaldastefnu og allt sem við því kemur. Sesar hefur verið mikið í Suður Ameríku og þekkir ágætlega til. Saga Suður Ameríku getur sagt okkur margt um heiminn sem við lifum í.

Ep 30Kristbjörg Eva Andersen Ramos, nýr formaður Ungra Sósíalista
Kristbjörg Eva Andersen Ramos er nýr formaður ROÐA, félag Ungra Sósíalista. Við ræddum við hana um starfið, stefnu félagsins og um lógó keppni Ungra Sósíalista! Sendið á okkur hugmyndir á [email protected]! Við töluðum aðeins um forréttindablindu, stéttir og fleira í þeim dúr. Fylgist með

Ep 29Stiklað á stóru með Aski aktívista
Kjartann Sveinn og Karl Héðinn ræða við Ask Hrafn á persónulegum nótum, hvað er Amnesty? Hverjar eru tengingar Sjálfstæðisflokksins við Nasisma og Pútín? Hverjir eiga gosdrykkina þína o.s.frv. o.s.frv !

Ep 28Ólafur "Ufsi" Jónsson - Gengisfelling
auður Raunveruleiki í kvöld með Ólafi Jónssyni "Óla Ufsa". Við ætlum að tala við hann um sjávarúvegskerfið, gengisfellingu krónunar, skipulagt svindl og fleira sem viðkemur þessu rotna kerfi eins og það er í dag. Hér er hafsjór af þekkingu og reynslu!

Ep 27Rauður Raunveruleiki: Kjartan Sveinn - Liðsauki, umbreytingartímar
Rauður Raunveruleiki snýr aftur í kvöld með Kjartani Sveini og Karl Héðni. Við spjöllum um samtímann, byltingar og hvað gæti verið framundan í þessum heimi stöðugra breytinga!

Ep 26Halldór Auðar Svansson / Pólitík og andleg heilsa
Halldór Auðar Svansson kemur í Rauðan Raunveruleika í kvöld. Halldór var borgarfulltrúi Pírata og við fáum að heyra um upplifun hans af því. Halldór hefur einnig starfað á sviði geðheilbrigðismála og er áhugamaður mikill um Zen, Alan Watts og fleira í þeim dúr. Farið verður um víðan völl og okkur hlakkar til samtalsins

Ep 25Páll Líndal umhverfissálfræðingur: Borgarhönnun og vellíðan
Karl Héðinn og Trausti Breiðfjörð tala við Pál Jakob Líndal umhverfissálfræðing um skipulag borga og sálfræði umhverfisins. Það snertir á gríðarleg mörgu enda vitum við flest að umhverfið hefur gríðarleg áhrif á líðan okkar og samfélag. Hvernig gerum við fallegar borgar sem ýta undir vellíðan? Við heyrum um hvernig þetta getur gengið mjög vel upp líkt og í Djúpavogi og hvernig þetta getur farið illa líkt og með Hafnartorgið. Þetta og margt fleira í Rauðum Raunveruleika á Samstöðinni í kvöld

Ep 24Sæþór Benjamín Randallson / Verkalýðsbarátta
Sæþór Benjamín er sósíalisti sem er upprunalega frá Bandaríkjunum og hefur tekið þátt í barráttunni bæði hér og þar. Við fáum að heyra frá hans sjónarhorni hvað sósíalismi er, hvers vegna hann telur mikilvægt að taka þátt í verkalýðsbaráttu og allt sem við því kemur.