
Podcast með Sölva Tryggva
851 episodes — Page 17 of 18

S1 Ep 48#48 Sigga Kling með Sölva Tryggva
Sigríður Klingenberg, betur þekkt sem Sigga kling, hefur skemmt Íslendingum um árabil með spádómum, bingókvöldum, karókí-kvöldum og mörgu fleiru. Sigga segist sjálf ekkert skilja í því hvers vegna hún vinni við að skemmta, enda sé ferill hennar ein stór afleiðing af því að kunna að segja alltaf já, sama hvernig manni líður. Hér ræða Sigga og Sölvi um mikilvægi þess að njóta hvers dags, hlæja nógu mikið, fara yfir stórmerkilegan feril Siggu og margt margt fleira. Þátturinn er í boði: Sjónlags - www.sjonlag.is Fitness Sport - www.fitnesssport.is Fjarðarkaup / Fræið - https://fjardarkaup.is/fraeid/ Lemon - https://www.lemon.is/ Þáttastjórnandi - Sölvi Tryggvason (@solvitrygg) Framleiðandi - KIWI (@kiwistofan) Hljóð - Eiður Steindórsson (@oathhljod)

S1 Ep 67#67 Eldur Egilsson með Sölva Tryggva
Eldur Egilsson er 13 ára gamall frændi Sölva og þar með langyngsti vidmælandi podcastsins hingað til. Í þættinum ræða Eldur og Sölvi um lífið og tilveruna, skólakerfið, hvað fullordna fólkið gæti gert ödruvísi og margt fleira. Þátturinn er í boði: Sjónlags - www.sjonlag.is Fitness Sport - www.fitnesssport.is Fjarðarkaup / Fræið - https://fjardarkaup.is/fraeid/ Narfeyrarstofa - https://narfeyrarstofa.is/ Glacier Gin - https://www.glaciergin.is/ 105 koffínvatn - https://www.olgerdin.is/ Þáttastjórnandi - Sölvi Tryggvason (@solvitrygg) Framleiðandi - KIWI (@kiwistofan) Hljóð - Eiður Steindórsson (@oathhljod)

S1 Ep 55#55 Elísabet Guðmundsdóttir með Sölva Tryggva
Elísabet Guðmundsdóttir lýtaskurðlæknir, sem á 20 ára feril í faginu í Svíþjóð kom nýverið til Íslands til að starfa á Landsspítalanum. Hún hefur undanfarið talað opinskátt gegn sóttvarnaraðgerðum vegna Covid, sem hún segir að gangi of langt. Elísabet stóð einnig að undirskriftasöfnun um þá kröfu að framhaldsskólar verði opnaðir aftur. Hún vill meina að heilmargt sé hægt að gera til að verjast því að veikjast, annað en bara vera með grímur, halda fjarlægð og þvo hendur, eins og til dæmis að styrkja ónæmiskerfið með því að taka inn D-vítamín. Í þættinum spyr Sölvi Elísabetu um ástæður þess að hún gagnrýnir aðgerðirnar, hvaða afleiðingar það hefur haft fyrir hana og hvort að í samfélaginu sé þöggun. Þátturinn er í boði: Sjónlags - www.sjonlag.is Fitness Sport - www.fitnesssport.is Fjarðarkaup / Fræið - https://fjardarkaup.is/fraeid/ Lemon - https://www.lemon.is/ Narfeyrarstofa - https://narfeyrarstofa.is/ Þáttastjórnandi - Sölvi Tryggvason (@solvitrygg) Framleiðandi - KIWI (@kiwistofan) Hljóð - Eiður Steindórsson (@oathhljod)

S1 Ep 49#49 Bríet með Sölva Tryggva
Bríet Ísis Elfar er vinsælasti tónlistarmaður Íslands í dag. Síðan platan hennar kom út hafa lög hennar átt topplistana vikum saman. Bríet kom mjög ung fram á sjónarsviðið og vakti strax verðskuldaða athygli fyrir framgöngu sína. Í þættinum ræða Sölvi og Bríet um tónlistina, ástarsorg, hvað fylgir því að vera landsþekkt, reynslu af svitahofum og margt margt fleira. Þátturinn er í boði: Sjónlags - www.sjonlag.is Fitness Sport - www.fitnesssport.is Fjarðarkaup / Fræið - https://fjardarkaup.is/fraeid/ Lemon - https://www.lemon.is/ Þáttastjórnandi - Sölvi Tryggvason (@solvitrygg) Framleiðandi - KIWI (@kiwistofan) Hljóð - Eiður Steindórsson (@oathhljod)

S1 Ep 47#47 Arnór Guðjohnsen með Sölva Tryggva
Arnór Guðjohnsen er nafn sem allir íslenskir knattspyrnuáhugamenn geyma, enda er hann einn albesti fótboltamaður Íslandssögunnar. Hér ræða Sölvi og Arnór um ótrúlegan feril Arnórs, hæðir og lægðir, þar sem inn komu sigurleikir gegn stórveldum Evrópu, erfið meiðsli, samningsleysi á tímum þar sem réttur leikmanna var nánast enginn og margt fleira. Í þættinum fara þeir einnig yfir mikilvægi andlega þáttarins í knattspyrnu og íþróttum, en Arnór vinnur nú hörðum höndum að verkefni sem því tengist. Þátturinn er í boði: Sjónlags - www.sjonlag.is Fitness Sport - www.fitnesssport.is Fjarðarkaup / Fræið - https://fjardarkaup.is/fraeid/ Lemon - https://www.lemon.is/ Þáttastjórnandi - Sölvi Tryggvason (@solvitrygg) Framleiðandi - KIWI (@kiwistofan) Hljóð - Eiður Steindórsson (@oathhljod)

S1 Ep 46#46 Róbert Marshall með Sölva Tryggva
Róbert Marshall hefur víða komið við á löngum og mögnuðum ferli. Hann vann um árabil sem fréttamaður og þáttastjórnandi, stofnaði svo Fréttastöðina NFS ásamt fleirum, áður en hann fór síðar í stjórnmál, þar sem hann sat á þingi. Á síðustu árum hefur hann unnið við ástríðuna, sem er útivist og fjallaferðir, en er nú í starfi sem ráðgjafi forsætisráðherra. Í viðtalinu fara Róbert og Sölvi yfir alla þessa hluti og margt margt fleira. Þátturinn er í boði: Sjónlags - www.sjonlag.is Fitness Sport - www.fitnesssport.is Fjarðarkaup / Fræið - https://fjardarkaup.is/fraeid/ Lemon - https://www.lemon.is/ Þáttastjórnandi - Sölvi Tryggvason (@solvitrygg) Framleiðandi - KIWI (@kiwistofan) Hljóð - Eiður Steindórsson (@oathhljod)

S1 Ep 44#44 Margrét Pála með Sölva Tryggva
Margrét Pála Ólafsdóttir er sannkölluð kjarnakona. Hún hefur um árabil rutt veginn fyrir nýjar leiðir í menntun barna. Þúsundir ánægðra foreldra hafa nú sent börn sín í skóla Hjallastefnunnar sem Margrét stofnaði. Margrét var ein fyrsta opinbera lesbían á Íslandi og lenti í hremmingum vegna þess. Hér ræða Sölvi og Margrét um það hvernig öll hennar tækifæri voru tekin af henni á einum degi vegna fordóma á tímum sem voru allt aðrir en í dag. Þau fara jafnframt yfir mikilvægi þess að hrista upp í menntakerfinu, hlusta á börn og þora að fara gegn straumnum. Þátturinn er í boði: Sjónlags - www.sjonlag.is Fitness Sport - www.fitnesssport.is Fjarðarkaup / Fræið - https://fjardarkaup.is/fraeid/ Lemon - https://www.lemon.is/ Þáttastjórnandi - Sölvi Tryggvason (@solvitrygg) Framleiðandi - KIWI (@kiwistofan) Hljóð - Eiður Steindórsson (@oathhljod)

S1 Ep 45#45 Guðmundur Ebenezer með Sölva Tryggva
Guðmundur Ebenezer Birgisson er reyndur sálfræðingur með háskólagráður í 3 greinum, sem sagði upp vel launuðu starfi í Noregi til að elta drauminn og byrja með fyrirtæki sem þróar lausnir í geðheilsu í gegnum internetið. Guðmundur og Sölvi ræða hér mikilvægi þess að þora að elta draumana og setja sér háleit markmið. Þeir fara í þættinum yfir þróun sálfræði og geðheilsu og hvaða lausnir gætu nýst best á komandi árum til að bæta vellíðan og geðheilsu fólks. Þátturinn er í boði: Sjónlags - www.sjonlag.is Fitness Sport - www.fitnesssport.is Fjarðarkaup / Fræið - https://fjardarkaup.is/fraeid/ Lemon - https://www.lemon.is/ Þáttastjórnandi - Sölvi Tryggvason (@solvitrygg) Framleiðandi - KIWI (@kiwistofan) Hljóð - Eiður Steindórsson (@oathhljod)

S1 Ep 42#42 Magnús Scheving með Sölva Tryggva
Magnús Scheving er einn merkilegasti frumkvöðull Íslandssögunnar. Leikfimikennarinn sem endaði á sjónvarpsskjám milljóna manna um allan heim. Hér fara Magnús og Sölvi yfir ótrúlega atburðarrás Latabæjar, þar sem Magnús var með nánast stanslausa dagskrá frá morgni til kvölds á hverjum einasta degi í áraraðir. Þakklætið yfir því að sjá börn í Suður-Ameríku drekka í sig boðskap Íþróttaálfsins, hvað þarf að hafa til brunns að bera sem frumkvöðull, lykilatriðin í að vera hamingjusamur í lífinu og fleira og fleira. Þátturinn er í boði: Sjónlags - www.sjonlag.is Fitness Sport - www.fitnesssport.is Fjarðarkaup / Fræið - https://fjardarkaup.is/fraeid/ Lemon - https://www.lemon.is/ Þáttastjórnandi - Sölvi Tryggvason (@solvitrygg) Framleiðandi - KIWI (@kiwistofan) Hljóð - Eiður Steindórsson (@oathhljod)

S1 Ep 43#43 Ágústa Johnson með Sölva Tryggva
Ágústa Johnson er einn stærsti frumkvöðull í heilsurækt á Íslandi. Á unga aldri var hún á leið í nám í arkítektúr þegar hún ákvað að skipta um takt og elta ástríðuna. Eftir að hafa menntað sig í íþróttafræði og viðskiptum stofnaði hún sína fyrstu líkamsræktarstöð, Stúdíó Jónínu og Ágústu og eftir það var ekki aftur snúið. Hún hefur nú um árabil rekið Hreyfingu með góðum árangri. Hér ræða hún og Sölvi um feril Ágústu, lyklana í að vera frumkvöðull, mikilvægi heilsu og margt margt fleira. Þátturinn er í boði: Sjónlags - www.sjonlag.is Fitness Sport - www.fitnesssport.is Fjarðarkaup / Fræið - https://fjardarkaup.is/fraeid/ Lemon - https://www.lemon.is/ Þáttastjórnandi - Sölvi Tryggvason (@solvitrygg) Framleiðandi - KIWI (@kiwistofan) Hljóð - Eiður Steindórsson (@oathhljod)

S1 Ep 41#41 Frosti Logason með Sölva Tryggva
Frosti Logason hefur um árabil verið eins konar akkeri í íslensku útvarpi ásamt félaga sínum Þorkatli Mána Péturssyni. Þeir félagar hafa um árabil haldið úti þættinum Harmageddon, sem er þekktur fyrir að hleypa í loftið fólki með óvinsælar skoðanir og ræða málin tæpitungulaust. Hér ræða Frosti og Sölvi um mikilvægi þess að stoppa ritskoðun í fjölmiðlum, tímabilið þar sem Frosti var lykilmaður í hljómsveitinni Mínus, mikilvægi þessi að taka ábyrgð í lífinu og margt margt fleira. Þátturinn er í boði: Sjónlags - www.sjonlag.is Fitness Sport - www.fitnesssport.is Fjarðarkaup / Fræið - https://fjardarkaup.is/fraeid/ Lemon - https://www.lemon.is/ Þáttastjórnandi - Sölvi Tryggvason (@solvitrygg) Framleiðandi - KIWI (@kiwistofan) Hljóð - Eiður Steindórsson (@oathhljod)

S1 Ep 37#37 Jónas Sig með Sölva Tryggva
Jónas Sigurðsson varð vinsæll sem söngvari í ,,Sólstrandargæjunum", sem slógu í gegn með lagið ,,Rangur Maður" og sló síðan aftur í gegn mörgum árum síðar með lagið ,,Hafið er Svart". Það sem færri vita líklega um Jónas er að hann er afburðamaður í tölvuforritun og vann um árabil fyrir tölvurisann Microsoft. Þar var hann valinn í hóp efnilegasta fólks fyrirtækisins, en áður en það tók á flug var Jónas orðinn efins um það hvaða stefnu fyrirtækið væri að taka og kom aftur heim til Íslands. Hér ræða Sölvi og Jónas um stöðu upplýsingaflæðis í nútímanum, hvert gervigreind er komin, hversu öflugir algóritmarnir eru orðnir og svo auðvitað um tónlistina og ástríðurnar í lífinu. Þátturinn er í boði: Sjónlags - www.sjonlag.is Fitness Sport - www.fitnesssport.is Fjarðarkaup / Fræið - https://fjardarkaup.is/fraeid/ Þáttastjórnandi - Sölvi Tryggvason (@solvitrygg) Framleiðandi - KIWI (@kiwistofan) Hljóð - Eiður Steindórsson (@oathhljod)

S1 Ep 39#39 Jónína Ben með Sölva Tryggva
Áskrift og aðgangur að öllum þáttum í hljóði og mynd www.solvitryggva.is Jónína Benediktsdóttir hefur oft verið verulega umdeild á Íslandi. Ung fékk hún alls kyns verðlaun í Svíþjóð og á Íslandi fyrir frumkvöðlastarfsemi sína í líkamsrækt og rekstri líkamsræktarstöðva. Sölvi skrifaði ævisögu Jónínu og það vantar því ekki umræðuefnin. Tímabilin með Jóni Páli, íslenskt viðskiptalíf, baráttan við bakkus, hjónaskilnaðir og margt margt fleira. Allir þættir eru aðgengilegir inni á www.solvitryggva.is Þátturinn er í boði: Sjónlags - www.sjonlag.is Fitness Sport - www.fitnesssport.is Fjarðarkaup / Fræið - https://fjardarkaup.is/fraeid/ Þáttastjórnandi - Sölvi Tryggvason (@solvitrygg) Hljóð - Eiður Steindórsson (@oathhljod)

S1 Ep 40#40 Ásgeir Andri með Sölva Tryggva
Ásgeir Andri Guðmundsson er stórmerkilegur maður sem hefur farið óhefðbundnar leiðir í lífinu. Fyrir tvítugt var hann orðinn rótari hjá stærstu sveitaballaböndum Íslands og hoppaði fulla ferð inn í lífsstílinn sem því fylgir. Síðar menntaði hann sig sem áhættuleikari á Florída, þar sem honum var kennt að kveikja í sér og hoppa fram af byggingum. Helgarferðin til Danmerkur sem varð að veitingastaðarekstri á Mallorca, leiksýningin þar sem kveikt var í honum fyrir framan Ólaf Darra og margt margt fleira. Þátturinn er í boði: Sjónlags - www.sjonlag.is Fitness Sport - www.fitnesssport.is Fjarðarkaup / Fræið - https://fjardarkaup.is/fraeid/ Lemon - https://www.lemon.is/ Þáttastjórnandi - Sölvi Tryggvason (@solvitrygg) Framleiðandi - KIWI (@kiwistofan) Hljóð - Eiður Steindórsson (@oathhljod)

S1 Ep 30#30 Nadía Sif & Lára Clausen með Sölva Tryggva
Lára Clausen og Nadía Sif Líndal eru umtöluðustu manneskjur Íslands, eftir að hafa hitt ensku landsliðsmennina Mason Greenwood og Phil Foden. Málið rataði á forsíður allra helstu fjölmiðla Bretlands á mánudaginn og síðan þá hefur áreitið á þær verið gríðarlegt. Hér mæta þær í sitt fyrsta viðtal á Íslandi eftir atburðina og segja söguna alla. Þátturinn er í boði: Sjónlags - www.sjonlag.is Fitness Sport - www.fitnesssport.is Þáttastjórnandi - Sölvi Tryggvason (@solvitrygg) Framleiðandi - KIWI (@kiwistofan) Hljóð - Eiður Steindórsson (@oathhljod)

S1 Ep 38#38 Björn Stefánsson með Sölva Tryggva
Björn Stefánsson var ungur orðinn einn hæfileikaríkasti trommuleikari sem Ísland hefur átt. Hann varð svo lykilmaður í hljómsveitinni Mínus, sem náði talsverðum hæðum erlendis á sínum tíma. Um þrítugt skipti Bjössi svo alveg um takt og fór í leiklistarnám í Danmörku og hefur síðan getið sér mjög gott orð sem leikari. Hér fara Sölvi og Björn yfir Mínus-tímabilið, sem var æði skrautlegt á köflum, ástríðuna fyrir leiklistinni og margt margt fleira. Þátturinn er í boði: Sjónlags - www.sjonlag.is Fitness Sport - www.fitnesssport.is Fjarðarkaup / Fræið - https://fjardarkaup.is/fraeid/ Þáttastjórnandi - Sölvi Tryggvason (@solvitrygg) Framleiðandi - KIWI (@kiwistofan) Hljóð - Eiður Steindórsson (@oathhljod)

S1 Ep 36#36 Einar Ágúst með Sölva Tryggva
Einar Ágúst Víðisson varð þjóðþekktur sem söngvari hljómsveitarinnar Skítamórals, sem var á sínum tíma vinsælasta band Íslands. Einar var á beinu brautinni sem tónlistarmaður, sjónvarps- og útvarpsmaður þegar það fór að halla verulega undir fæti. Hann missti öll tök á tilverunni, endaði í mjög slæmum félagsskap og fór á kaf í neyslu. Einar hefur gengið í gegnum hluti sem fæstir geta gert sér í hugarlund. Hér ræða hann og Sölvi um stærstu sigrana, myrkustu tímabilin, tengslin við glæpastarfsemi, endurkomu Skítamórals og þakklæti Einars fyrir að vera enn á lífi. Þátturinn er í boði: Sjónlags - www.sjonlag.is Fitness Sport - www.fitnesssport.is Fjarðarkaup / Fræið - https://fjardarkaup.is/fraeid/ Þáttastjórnandi - Sölvi Tryggvason (@solvitrygg) Framleiðandi - KIWI (@kiwistofan) Hljóð - Eiður Steindórsson (@oathhljod)

S1 Ep 34#34 Jóhanna Guðrún með Sölva Tryggva
Jóhanna Guðrún Jónsdóttir hefur verið þjóðþekkt síðan hún var aðeins 11 ára gömul, þegar fyrsta platan hennar kom út. Hún hefur síðan þá átt gífurlega farsælan feril og meðal annars náð besta árangri Íslands í lokakeppni Eurovision. Hér ræða hún og Sölvi um kostina og gallana við að vera barnastjarna, þátttökuna í Allir Geta Dansað, listina við að koma fram og gefa af sér og fjölmargt fleira. Þátturinn er í boði: Sjónlags - www.sjonlag.is Fitness Sport - www.fitnesssport.is Fjarðarkaup / Fræið - https://fjardarkaup.is/fraeid/ Þáttastjórnandi - Sölvi Tryggvason (@solvitrygg) Framleiðandi - KIWI (@kiwistofan) Hljóð - Eiður Steindórsson (@oathhljod)

S1 Ep 35#35 Ásgeir Brynjar Torfason með Sölva Tryggva
Ásgeir Brynjar Torfason, doktor í viðskiptafræði og fulltrúi í fjármálaráði Íslands hefur um árabil stundað rannsóknir á peningamálum og doktorsgráða hans fjallar um alþjóðlega fjármálastarfsemi. Hér ræða Sölvi og Ásgeir um stöðu hagkerfisins á Íslandi og í heiminum öllum, fara yfir það hvað peningar raunverulega eru og það hvort við séum á leiðinni inn í algjörlega nýja tíma þar sem veruleikinn verður allt annar en sá sem við höfum vanist. Þátturinn er í boði: Sjónlags - www.sjonlag.is Fitness Sport - www.fitnesssport.is Fjarðarkaup / Fræið - https://fjardarkaup.is/fraeid/ Þáttastjórnandi - Sölvi Tryggvason (@solvitrygg) Framleiðandi - KIWI (@kiwistofan) Hljóð - Eiður Steindórsson (@oathhljod)

S1 Ep 33#33 Bubbi Morthens með Sölva Tryggva
Bubbi Morthens er einn þekktasti tónlistarmaður Íslandssögunnar og eftir hann liggja nærri 50 hljómplötur. Hér ræða hann og Sölvi um ótrúlegan feril Bubba, nýja lífið í sveitinni, mikilvægi þess að halda sér í líkamlegu og andlegu formi, sögur af djamminu í den og margt margt fleira. Þátturinn er í boði: Sjónlags - www.sjonlag.is Fitness Sport - www.fitnesssport.is Fjarðarkaup / Fræið - https://fjardarkaup.is/fraeid/ Þáttastjórnandi - Sölvi Tryggvason (@solvitrygg) Framleiðandi - KIWI (@kiwistofan) Hljóð - Eiður Steindórsson (@oathhljod)

S1 Ep 32#32 Pálmi Gunnarsson með Sölva Tryggva
Pálmi Gunnarsson er einn dáðasti tónlistarmaður Íslandssögunnar. Maðurinn sem söng fyrstu orð Íslands í Eurovision á erlendri grundu þegar Gleðibankinn kom fyrir augu heimsbyggðarinnar. Hann segist sjálfur hafa farið langleiðina með að drepa sig á áfengisdrykkju og er þakklátur fyrir að hafa fengið annað líf. Hér fara Sölvi og Pálmi yfir magnaðan feril Pálma og ótrúlegt lífshlaup, sem hefur oft á tíðum verið verulega skrautlegt. Þátturinn er í boði: Sjónlags - www.sjonlag.is Fitness Sport - www.fitnesssport.is Fjarðarkaup / Fræið - https://fjardarkaup.is/fraeid/ Þáttastjórnandi - Sölvi Tryggvason (@solvitrygg) Framleiðandi - KIWI (@kiwistofan) Hljóð - Eiður Steindórsson (@oathhljod)

S1 Ep 31#31 Steindi Jr. með Sölva Tryggva
Steinþór Hróar Steinþórsson, eða Steindi Jr. er orðinn eins konar nýrrar kynslóðar Laddi eða Hemmi Gunn. Hann hefur lengi verið einn af þekktari grínistum Íslands, en á einnig mjög vinsæl lög, leikstjórnarverkefni, handritaskrif og leiklistarframmistöðu á ferilskránni. Steindi hefur allt frá fyrsta degi sýnt mikinn metnað í öllum sínum verkefnum, eins og augljóslega má sjá. Hér ræða Steindi og Sölvi um upphafið að þessu öllu, metnaðinn, hugrekkið til að prófa nýja hluti og margt margt fleira Þátturinn er í boði: Sjónlags - www.sjonlag.is Fitness Sport - www.fitnesssport.is Þáttastjórnandi - Sölvi Tryggvason (@solvitrygg) Framleiðandi - KIWI (@kiwistofan) Hljóð - Eiður Steindórsson (@oathhljod)

S1 Ep 29#29 Svala Björgvins með Sölva Tryggva
Svala Björgvinsdóttir var orðin stjórstjarna í poppbransanum á unga aldri. Síðan þá hefur hún tekið alls kyns beygjur á ferlinum, en alltaf haldið í ástríðuna fyrir að búa til tónlist. Hún þekkir ekkert annað en að eiga einn frægasta einstakling Íslands sem pabba og fékk músíkina nánast í vöggugjöf. Hér ræða Svala og Sölvi um magnaðan feril Svölu, ótrúleg augnablik á ferðalaginu og nýja kaflann í lífi hennar eftir að hún flutti heim til Íslands á nýjan leik í eftir margra ára útlegð í Bandaríkjunum. Þátturinn er í boði: Sjónlags - www.sjonlag.is Fitness Sport - fitnesssport.is Þáttastjórnandi - Sölvi Tryggvason (@solvitrygg) Framleiðandi - KIWI (@kiwistofan) Hljóð - Eiður Steindórsson (@oathhljod)

S1 Ep 28#28 Kjartan Guðbrandsson með Sölva Tryggva
Kjartan Guðbrandsson einkaþjálfari er líklega eini Íslendingurinn sem hefur sigrað keppnir í kraftlyftingum, vaxtarækt aflraunum og fitness. Hann byrjaði að æfa með Jóni Páli Sigmarssyni, margföldum sterkasta manni heims, sem unglingur og var með honum á æfingunni þegar Jón Páll lét lífið. Kjartan fékk á því tímabili sinn skammt af dauðanum, þar sem hann missti fleiri nána vini og son sinn á aðeins nokkrum mánuðum. Kjartan hefur upplifað hluti sem eru lyginni líkastir, eins og tímabilið þegar hann þjálfaði einn ríkasta mann Grikklands. Þeir hittu kraftaverkafólk, keyrðu um Evrópu á Lamborghini og leituðu að geimskipum með leynisamtökum. Hér ræðir Sölvi við Kjartan um þetta magnaða lífshlaup, leiðirnar til að finna sátt og hamingju og margt fleira. Þátturinn er í boði Sjónlags - www.sjonlag.is Þáttastjórnandi - Sölvi Tryggvason (@solvitrygg) Framleiðandi - KIWI (@kiwistofan) Hljóð - Eiður Steindórsson (@oathhljod)
S1 Ep 26#26 María Birta með Sölva Tryggva
María Birta Bjarnadóttir leikkona hefur gert ótrúlega margt þó að hún sé rétt rúmlega þrítug. 16 ára gömul var hún byrjuð með netverslun og 19 ára velti hún 10 milljónum á mánuði í versluninni Maniu á Laugavegi. Skömmu síðar var hún búin að vinna Edduverðlaunin sem leikkona og þá var ekki aftur snúð og hún flutti til Bandaríkjanna, þar sem hún vinnur nú að fjölmörgum verkefnum. Hér ræða María og Sölvi um lygilegan feril Maríu, sálufélaga, sorgina eftir dauðsföll í fallhlífarstökk og margt margt fleira.

S1 Ep 27#27 Sigursteinn Másson með Sölva Tryggva
Sigursteinn Másson varð þjóðþekktur sem ungur fréttamaður á Stöð 2. Þá var hann óviss um kynhneigð sína og gekk í gegnum erfiða tíma tengda því. Síðar seig á ógæfuhliðina þegar Sigursteinn endaði á geðsjúkrahúsi í Danmörku eftir að hafa gengið nærri sér í umfjöllun um Balkanstríðið. Hér ræða Sigursteinn og Sölvi um ferilinn í fjölmiðlum, Sönn íslensk sakamál, Covid, stöðuna í heiminum og margt margt fleira! Þátturinn er í boði Sjónlags - www.sjonlag.is Þáttastjórnandi - Sölvi Tryggvason (@solvitrygg) Framleiðandi - KIWI (@kiwistofan) Hljóð - Eiður Steindórsson (@oathhljod)
S1 Ep 25#25 Sólveig Eiríksdóttir með Sölva Tryggva
Sólveig Eiríksdóttir eða Solla er löngu orðin þjóðargersemi. Ferill þessarrar mögnuðu konu spannar áratugi og ótrúlega fjölbreytt svið. Hér ræða hún og Sölvi um feril Sollu sem bisness-kona, bókaútgáfuna hjá stærstu forlögum heims, ástríðuna fyrir matnum, matreiðsluna fyrir heimsfrægt fólk og dansinn sem hjálpaði henni út úr ,,burnouti".
S1 Ep 23#23 Ingó Veðurguð með Sölva Tryggva
Ingólfur Þórarinsson kom inn á sjónarsvið íslensku tónlistarsenunnar eftir að hann keppti í Idolinu. En áður en hann keppti þar hafði hann stofnað hljómsveitina Veðurguðirnir og hringt í nánast alla veitingastaði landsbyggðarinnar og beðið um að fá að mæta til að spila með bandinu sínu. Eftir Idolið fór allt af stað og síðan þá er varla nokkur íslenskur tónlistarmaður sem hefur ,,giggað" jafn oft. Í dag er Ingó á krossgötum og segist vilja skoða aðeins betur listamanninn í sér. Hér ræða hann og Sölvi um ástríðuna við tónlistina, drykkjutímabilin, löngunina til að læra og þroskast sem einstaklingur og margt margt fleira.
S1 Ep 24#24 Ellý Ármanns með Sölva Tryggva
Ellý Ármannsdóttir varð þjóðþekkt þegar hún vann um árabil sem þula á Ríkissjónvarpinu. Þar kom strax í ljós að hún sker sig úr sama hvar hún kemur og sumt sem hún gerði sem þula þótti umdeilt. Síðan þá hefur Ellý unnið við ótal hluti, allt frá því að spá fyrir fólki yfir í að vera hóptímakennari í íþróttum. Hér ræða Sölvi og Ellý um tímabilin í fréttunum, spádómana, leiðir til þess að stíga út úr ótta og margt margt fleira.
S1 Ep 22#22 Mikael Torfason með Sölva Tryggva
Mikael Torfason er einn reyndasti fjölmiðlamaður Íslands, sem hefur í gegnum tíðina ritstýrt 3 af stærstu dagblöðum landsins. Hann breytti landslagi rithöfunda sem ungur maður þegar hann skrifaði bókina ,,Falskan Fugl", þar sem fjallað var um hluti sem aldrei höfðu áður birst í bókum á Íslandi. Mikael hefur alla tíð elskað ritmálið og nú býr hann í Vínarborg, þar sem hann vinnur þessa dagana mest við að skrifa handrit fyrir leikhús, bíómyndir og sjónvarpsþætti. Hér ræða hann og Sölvi um þennan stórmerkilega feril, stöðu íslenskra fjölmiðla í gegnum tíðina og margt margt fleira.
S1 Ep 21#21 Óttar Guðmundsson með Sölva Tryggva
Óttar Guðmundsson geðlæknir hefur í áraraðir starfað við að aðstoða fólk með geðsjúkdóma, fíknivanda og fleira. Eftir hann liggur fjöldi bóka, allt frá Ævisögu Megasar yfir í ,,Hetjur og Hugarvíl", þar sem Óttar skoðar geðsdjúkdóma og persónuleikaraskanir helstu hetjanna úr Íslendingasögunum. Óttar hefur auk þess verið yfir kynleiðréttingarteymi landsspítalans frá því það var stofnað. Hér ræða hann og Sölvi um geðsjúkdóma, bækurnar, Covid tímann, það hvort við séum farin að ofgreina allt og alla, hvort samfélagið sé orðið of bómullarvætt og margt margt fleira
S1 Ep 20#20 Gunni & Halli Nelson með Sölva Tryggva
Gunnar Nelson er eini Íslendingurinn sem hefur algjörlega lifað af keppni í bardagaíþróttum um árabil. Hann komst ungur í fremstu röð og fékk samning á UFC, þar sem aðeins allra öflugustu bardagamenn heims keppa. Faðir hans Haraldur Dean Nelson hefur stutt við bakið á vegferð sonarins frá fyrsta degi og er jafnframt umboðsmaður hans. Hér ræða þeir feðgar við Sölva um hæðirnar og lægðirnar í UFC, sambandið við Conor McGregor, stressið áður en farið er inn í búrið og margt margt fleira.
S1 Ep 19#19 HæHæ með Sölva Tryggva
Vinirnir Helgi Jean Claessen og Hjálmar Örn Jóhannsson hafa í áraraðir verið að gera grínefni saman, en á löngum köflum gekk það brösulega. Hjálmar fór að vinna á leikskóla og Helgi fór í jakkaföt og vildi verða bissnessmaður. En dropinn holar steininn og í dag eru þeir í fullri vinnu við að gera grínefni, bæði í Hlaðvarpinu Hæhæ og Hjálmar fer í gervi Hvítvínskonunnar nær daglega. Hér ræða þeir Sölvi um mikilvægi þess að elta draumana, gefast ekki upp, hætta að láta álit annarra stýra sér og margt margt fleira.
S1 Ep 18#18 Björgvin Páll með Sölva Tryggva
Björgvin Páll Gústafsson er einn litríkasti íþróttamaður síðari ára á Íslandi. Á stórmótum hefur hann vakið athygli fyrir Víkingalegt útlit og brjálæðislega framgöngu á vellinum. Sölvi skrifaði bók um Björgvin fyrir ári síðan og hér ræða þeir saman um ferilinn, barnæskuna, leiðir Björgvins til bata úr andlegu og líkamlegu hruni og margt margt fleira.
S1 Ep 16#16 Guðlaugur Victor með Sölva Tryggva
Guðlaugur Victor Pálsson fékk samning hjá Liverpool aðeins 17 ára gamall og var einn efnilegasti leikmaður sem sést hafði lengi á Íslandi. En æska hans var erfiðari en hjá flestum. Í dag er hann orðinn fastamaður í landsliðinu og hefur verið fyrirliði síðustu tveggja liða sem hann hefur spilað með. Hér ræða hann og Sölvi um hæðirnar, lægðirnar, rasisma, drauminn um að fara á stórmót með Íslandi og margt margt fleira.
S1 Ep 15#15 Ólafur Stefánsson með Sölva Tryggva
Ólafur Stefánsson er löngu orðinn þjóðargersemi. Einn besti handboltamaður allra tíma, sem kom heim með silfurverðlaun frá Olympíuleikunum í Peking. Hèr ræða hann og Sölvi um ad viðhalda barninu í sér, mikilvægi þess að elta draumana og þora að vera ,,skrýtni kallinn".
S1 Ep 14#14 Kristín Sif með Sölva Tryggva
Kristín Sif Björgvinsdóttir útvarpskona er magnaður einstaklingur. Sem ung kona vann hún á Falklandseyjum, þar sem hún ferðaðist med herflugvélum. Eftir að hafa misst manninn sinn á hræðilegan hátt hefur hún komist á verðlaunapall á Norðurlandamóti í boxi og verið valinn iðkandi ársins í Crossfit Reykjavík. Hér fara hún og Sölvi yfir allt þetta og margt margt fleira.
S1 Ep 13#13 Erpur Eyvindarson með Sölva Tryggva
Það er óhætt að kalla Erp Eyvindarson guðföður íslensku rappsenunnar. Maðurinn sem hefur alltaf farið eigin leiðir og gert það sem honum sýnist mætir hér í viðtal til Sölva þar sem þeir ræða allt frá anarkisma og ferðalögum, yfir í partý, tónlist og tilgang lífsins.
S1 Ep 12#12 Rúrik Gíslason með Sölva Tryggva
Rúrik Gíslason hefur í gegnum árin verið lykilmaður gullkynslóðarinnar í fótbolta. Á HM 2018 varð hann heimsfrægur á einni nóttu. Hér ræða hann og Sölvi um HM, Instagram ævintýrið, móðurmissi Rúriks, álit annarra og margt fleira.
S1 Ep 11#11 Gummi Ben með Sölva Tryggva
Guðmundur Benediktsson er almennt talinn einn efnilegasti knattspyrnumaður Íslandssögunnar, en lenti ungur margoft í slæmum meiðslum. Hann er nú orðinn heimsþekktur fyrir lýsingar sínar á knattspyrnuleikjum. Hér ræða hann og Sölvi um fjölmiðla, feril Gumma Ben og einstaklingana sem gera íþróttir að hreinni listgrein.
S1 Ep 10#10 Linda Pétursdóttir með Sölva Tryggva
Linda Pétursdóttir er löngu orðin landsþekkt sem frumkvöðull og alheims fegurðardrottning. Hér ræða hún og Sölvi um stórmerkilegt lífshlaup þessarar ótrúlegu konu.
S1 Ep 9#9 Emmsjé Gauti með Sölva Tryggva
Emmsjé Gauti er einn þekktasti rappari Íslandssögunnar. Hér ræða hann og Sölvi um ferilinn, áfengi, skoðanafrelsi, kvíða og löngunina til ad verða betri í dag en í gær.
S1 Ep 8#8 Björn Steinbekk með Sölva Tryggva
Björn Steinbekk var umdeildasti maður Íslands eftir EM 2016. Hèr ræða hann og Sölvi um tónleikahaldið, stóra miðamálið, drykkjuna og margt margt fleira.
S1 Ep 7#7 Jóhannes Kr. með Sölva Tryggva
Jóhannes Kr. Kristjánsson er maðurinn sem felldi forsætisráðherra með Panama skjölunum og kom upp um Guðmund í Byrginu. Hér ræða hann og Sölvi um blaðamennsku, dótturmissinn og snerta á hótunum og fleiru.
S1 Ep 6#6 Aron Mola með Sölva Tryggva
Aron Már Ólafsson er einn allra efnilegasti leikari þjóðarinnar. Hér ræða hann og Sölvi um systurmissinn, fíknir, leiklistina og fleira.
S1 Ep 5#5 Anníe Mist með Sölva Tryggva
Anníe Mist Þórisdóttir var fyrsta konan til þess að vinna heimsleikana í Crossfit tvö ár í röð. Hér ræða hún og Sölvi um fórnirnar, keppnisskapið, hæðirnar og lægðirnar.
S1 Ep 3#3 Logi Bergmann með Sölva Tryggva
Logi Bergmann er líklega þekktasti sjónvarpsmaður Íslands eftir áratugi á skjám landsmanna. Hér fáum við að heyra í honum hinum megin við borðið.
S1 Ep 2#2 Katrín Jakobsdóttir með Sölva Tryggva
Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra Íslands fer yfir starfið, samstarfið við Bjarna Ben, einkalífið og ástina á Liverpool.
S1 Ep 4#4 Ólafur Darri með Sölva Tryggva
Ólafur Darri Ólafsson er líklega þekktasti leikari Íslands. Hér ræða hann og Sölvi um listina, geðlyfjanotkun, dýpstu dalina og hæstu hæðirnar.
S1 Ep 1#1 Kári Stefánsson með Sölva Tryggva
Áskrift og aðgangur að öllum þáttum: www.solvitryggva.is Kári Stefánsson er löngu orðinn þjóðargersemi. Hér spjalla hann og Sölvi um hráan persónuleika Kára, óbeit hans á aumingjaskap og margt margt fleira. Aðgangur að öllum þáttum á www.solvitryggva.is