PLAY PODCASTS
Podcast með Sölva Tryggva

Podcast með Sölva Tryggva

851 episodes — Page 14 of 18

S3 Ep 185Páll Óskar (brot af því besta)

Páll Óskar Hjálmtýsson er poppstjarna Íslands. Hann hefur í áratugi verið einn vinsælasti tónlistarmaður Íslands. Í þættinum ræða Sölvi og Páll Óskar um magnaðan feril Páls, tímabilið þegar HIV veiran vofði eins og draugur yfir samkynhneigðu fólki, mannréttindabaráttu, andlega heilsu og margt margt fleira. Þátturinn er í boði; Narfeyrarstofa - https://narfeyrarstofa.is/ Nýja vínbúðin - https://nyjavinbudin.is/ Ofnasmiðja Reykjavíkur - https://ofnasmidja.is/

May 10, 202324 min

S3 Ep 185Sigursteinn Máson (brot af því besta)

Sigursteinn Másson varð þjóðþekktur sem ungur fréttamaður á Stöð 2. Þá var hann óviss um kynhneigð sína og gekk í gegnum erfiða tíma tengda því. Síðar seig á ógæfuhliðina þegar Sigursteinn endaði á geðsjúkrahúsi í Danmörku eftir að hafa gengið nærri sér í umfjöllun um Balkanstríðið. Hér ræða Sigursteinn og Sölvi um ferilinn í fjölmiðlum, Sönn íslensk sakamál, Covid, stöðuna í heiminum og margt margt fleira! Þátturinn er í boði; Narfeyrarstofa - https://narfeyrarstofa.is/ Nýja vínbúðin - https://nyjavinbudin.is/ Ofnasmiðja Reykjavíkur - https://ofnasmidja.is/

May 9, 202321 min

S3 Ep 185#185 Sigmundur Davíð með Sölva Tryggva

Nálagst má þáttinn í heild sinni inn á; https://solvitryggva.is/ Sigmundur Davíð Gunnlaugsson er fyrrverandi forsætisráðherra Íslands. Í þættinum ræða Sölvi og Sigmundur um menningarstríð, stjórnmálamenn, að þora að segja hug sinn og margt fleira. Þátturinn er í boði; Narfeyrarstofa - https://narfeyrarstofa.is/ Nýja vínbúðin - https://nyjavinbudin.is/ Ofnasmiðja Reykjavíkur - https://ofnasmidja.is/

May 8, 202320 min

S3 Ep 184Sara Piana (brot af því besta)

Sara Piana hefur í gegnum árin verið umtöluð á Íslandi, einkum og sér í lagi eftir að hún giftist vaxtarræktarkappanum Rich Piana og af þeim birtust reglulega fréttir. Sara hefur hingað til ekki farið í viðtöl í íslenskum fjölmiðlum, en fannst tími til kominn að segja sögu sína, einkum og sér í lagi þar sem hún er nú alfarið flutt til landsins og ætlar að hefja hér næsta kafla í sínu lífi. Í þættinum segir Sara frá því hvers vegna hún þurfti sem ung kona að flýja land eftir stöðuga ógn. Hvernig hún fór langt inn í Fitness-heiminn eftir að hún flutti til Bandaríkjanna og síðan frá skrautlegu líferni sínu með Rich Piana, sem oft var öðruvísi en það virkaði út á við. Sara lærir nú hjúkrunarfræði og hlakkar til næsta kafla í sínu lífi, eftir að hafa fengið margfaldan æviskammt af dramatík, eins og hún segir sjálf. Þátturinn er í boði; Narfeyrarstofa - https://narfeyrarstofa.is/ Nýja vínbúðin - https://nyjavinbudin.is/ Ofnasmiðja Reykjavíkur - https://ofnasmidja.is/

May 7, 202326 min

S3 Ep 184#158 Axel Pétur með Sölva Tryggva

Axel Pétur Axelsson hefur oft verið kallaður samsæringur Íslands. Hann hefur í áraraðir talað um hluti sem eru talsvert langt fyrir utan boxið. Í þættinum fara Axel og Sölvi yfir allt það helsta í samsæriskennigum. Allt frá stofnun seðlabankanna, hátíð aflanna sem ráða og ríkasta eina prósentinu yfir í næstu spádóma Axels.

May 6, 20231h 14m

S3 Ep 184Jón Ásgeir (brot af því besta)

Jón Ásgeir Jóhannesson er einn þekktasti viðskiptamaður Íslandssögunnar. Á árunum fyrir hrun var Baugur Group fyrirtæki hans með meira en 50 þúsund starfsmenn. Svo kom hrunið, og allt það sem á eftir fylgdi. Í þættinum ræða Sölvi og Jón um feril Jóns, eitt hatrammasta tímabil Íslandssögunnar, dómsmálin, seinni hálfleik og margt fleira. Þátturinn er í boði; Narfeyrarstofa - https://narfeyrarstofa.is/ Nýja vínbúðin - https://nyjavinbudin.is/ Ofnasmiðja Reykjavíkur - https://ofnasmidja.is/

May 5, 202323 min

S3 Ep 184#159 Þórarinn Ævars með Sölva Tryggva (Hluti 1)

Þórarinn Ævarsson er landsþekktur athafnamaður sem var kominn algjörlega á botninn í mikla lyfjafíkn og djúpt þunglyndi. Í þættinum lýsir hann ótrúlegri atburðarrás sem á endanum varð til þess að hann spyrnti sér frá botninum og náði bata.

May 3, 202355 min

S3 Ep 183#183 Tryggvi Hjalta með Sölva Tryggva

Nálagst má þáttinn í heild sinni inn á; https://solvitryggva.is/ Tryggvi Hjaltason, greinandi og gagnasérfræðingur hefur vakið mikla athygli í þjóðmálaumræðunni undanfarið. Í þættinum ræða Tryggvi og Sölvi um menntakerfið, snjallsímanotkun, aga, trú og trúarbrögð og margt fleira. Þátturinn er í boði; Narfeyrarstofa - https://narfeyrarstofa.is/ Nýja vínbúðin - https://nyjavinbudin.is/ Ofnasmiðja Reykjavíkur - https://ofnasmidja.is/

May 1, 202320 min

S3 Ep 182#182 HJ Elite með Sölva Tryggva

Nálagst má þáttinn í heild sinni inn á; https://solvitryggva.is/ Hlynur Jónsson er hótelstjóri og skemmtikraftur sem hefur vakið mikla athygli fyrir skemmtileg innslög á samfélagsmiðlum. Í þættinum ræða Hlynur og Sölvi um álit annarra, ferðalög, baráttu Hlyns við bakkus og margt fleira. Þátturinn er í boði; Narfeyrarstofa - https://narfeyrarstofa.is/ Nýja vínbúðin - https://nyjavinbudin.is/ Ofnasmiðja Reykjavíkur - https://ofnasmidja.is/

Apr 24, 202320 min

S3 Ep 180#180 Guðjón Heiðar snýr aftur

Nálagst má þáttinn í heild sinni inn á; https://solvitryggva.is/ Guðjón Heiðar Valgarðsson hefur oft verið kallaður samsæringur Íslands. Hann hefur í áraraðir skoðað alls milli himins og jarðar þegar kemur að samsæriskenningum. Í þættinum ræða Sölvi og Guðjón um allt það helsta sem er að gerast í upplýsingaflæði fyrir utan meginstraumsfjölmiðlana. Þátturinn er í boði; Narfeyrarstofa - https://narfeyrarstofa.is/ Nýja vínbúðin - https://nyjavinbudin.is/ Ofnasmiðja Reykjavíkur - https://ofnasmidja.is/

Apr 17, 202320 min

S3 Ep 179#179 Guðmundur Ingi með Sölva Tryggva

Nálagst má þáttinn í heild sinni inn á; https://solvitryggva.is/ Guðmundur Ingi Þóroddsson er formaður Afstöðu, félags fanga. Hann sat sjálfur í fangelsi í 16 ár fyrir fíkniefnasmygl, bæði í Danmörku og á Íslandi, en er nú frjáls maður. Í þættinum ræða Sölvi og Guðmundur um fangelsi og fangelsismál og hliðar samfélagsins og mannlegs eðlis sem fæstir vilja skoða. Þeir fara yfir sögu Guðmundar sjálfs, hvernig hann endaði á rangri braut og hvað við getum gert til að bæta stöðuna almennt. Þátturinn er í boði; Narfeyrarstofa - https://narfeyrarstofa.is/ Nýja vínbúðin - https://nyjavinbudin.is/ Ofnasmiðja Reykjavíkur - https://ofnasmidja.is/

Apr 11, 202319 min

S3 Ep 177Frosti Logason (brot af því besta)

Frosti Logason hefur um árabil verið eins konar akkeri í íslensku útvarpi ásamt félaga sínum Þorkatli Mána Péturssyni. Þeir félagar hafa um árabil haldið úti þættinum Harmageddon, sem er þekktur fyrir að hleypa í loftið fólki með óvinsælar skoðanir og ræða málin tæpitungulaust. Hér ræða Frosti og Sölvi um mikilvægi þess að stoppa ritskoðun í fjölmiðlum, tímabilið þar sem Frosti var lykilmaður í hljómsveitinni Mínus, mikilvægi þessi að taka ábyrgð í lífinu og margt margt fleira. Þátturinn er í boði; Narfeyrarstofa - https://narfeyrarstofa.is/ Nýja vínbúðin - https://nyjavinbudin.is/ Ofnasmiðja Reykjavíkur - https://ofnasmidja.is/

Apr 5, 202328 min

S3 Ep 177#177 Helgi Áss með Sölva Tryggva

Nálagst má þáttinn í heild sinni inn á; https://solvitryggva.is/ Helgi Áss Grétarsson varð stórmeistari í skák aðeins 17 ára gamall. Hann er lögfræðingur og hefur vakið athygli fyrir sterkar skoðanir á samfélagsmálum sem oft ganga gegn meginstraumnum. Þátturinn er í boði; Narfeyrarstofa - https://narfeyrarstofa.is/ Nýja vínbúðin - https://nyjavinbudin.is/ Ofnasmiðja Reykjavíkur - https://ofnasmidja.is/

Apr 3, 202320 min

S3 Ep 176#176 Ferðin til Tansaníu

Nálagst má þáttinn í heild sinni inn á; https://solvitryggva.is/ Sölvi fór nýverið til Tansaníu, þar sem hann tók meðal annars viðtal við athafnamann sem fæddist þar í landi, flúði svo land til Bretlands þar sem hann bjó um tíma í almenningsgörðum og á meðal útigangsfólks. En smám saman náði hann að koma sér út úr erfiðleikunum og í dag á hann og rekur hótel og veitingastaði bæði á Ítalíu og Zanzibar. Þátturinn er í boði; Narfeyrarstofa - https://narfeyrarstofa.is/ Nýja vínbúðin - https://nyjavinbudin.is/ Ofnasmiðja Reykjavíkur - https://ofnasmidja.is/

Mar 30, 202320 min

S3 Ep 175Bubbi Morthens (brot af því besta)

Nálagst má þáttinn í heild sinni inn á; https://solvitryggva.is/ Bubbi Morthens er einn þekktasti tónlistarmaður Íslandssögunnar og eftir hann liggja nærri 50 hljómplötur. Hér ræða hann og Sölvi um ótrúlegan feril Bubba, nýja lífið í sveitinni, mikilvægi þess að halda sér í líkamlegu og andlegu formi, sögur af djamminu í den og margt margt fleira. Þátturinn er í boði; Narfeyrarstofa - https://narfeyrarstofa.is/ Nýja vínbúðin - https://nyjavinbudin.is/ Ofnasmiðja Reykjavíkur - https://ofnasmidja.is/

Mar 28, 202332 min

S3 Ep 175#175 Halldór Einarsson: Um ótrúlegt lífshlaup, viðskiptin og ástríðuna

Nálagst má þáttinn í heild sinni inn á; https://solvitryggva.is/ Halldór Einarsson oft kenndur við Henson er athafnamaður af lífi og sál sem hefur át ótrúlega viðburðarríkt líf. Í þættinum fer hann yfir magnaðar sögur úr öllum heimshornum og helstu sorgir og sigra í gegnum tíðina. Þátturinn er í boði; Narfeyrarstofa - https://narfeyrarstofa.is/ Nýja vínbúðin - https://nyjavinbudin.is/ Ofnasmiðja Reykjavíkur - https://ofnasmidja.is/

Mar 27, 202320 min

S3 Ep 173#173 Lukka Pálsdóttir með Sölva Tryggva

Nálagst má þáttinn í heild sinni inn á; https://solvitryggva.is/ Lukka Pálsdóttir er eigandi Greenfit, sem sérhæfir sig í heilsufarsmælingum. Lukka er menntaður sjúkraþjálfari sem hefur oftar en einu sinni skipt um takt í lífinu og tekið stökkið til að elta ástríðuna. Í þættinum fara Sölvi og Lukka yfir stórmerklegt lífshlaup Lukku, fyrirtækjarekstur, að þora að taka áhættur og auðvitað allt það helsta í lífsstíl og heilsu. Þátturinn er í boði; Narfeyrarstofa - https://narfeyrarstofa.is/ Nýja vínbúðin - https://nyjavinbudin.is/ Ofnasmiðja Reykjavíkur - https://ofnasmidja.is/

Mar 20, 202320 min

S3 Ep 172#172 Þór Guðna: Um Matrixið og andlega vakningu

Þór Guðnason hefur unnið við að hjálpa fólki að bæta heilsu sína í áratugi. Í þessum þætti ræða Sölvi og Þór um heilsu, menningarheima til forna, hugvíkkandi efni, kerfið og fleira. Nálagst má þáttinn í heild sinni inn á; https://solvitryggva.is/ Þátturinn er í boði; Narfeyrarstofa - https://narfeyrarstofa.is/ Nýja vínbúðin - https://nyjavinbudin.is/ Ofnasmiðja Reykjavíkur - https://ofnasmidja.is/

Mar 16, 202319 min

S3 Ep 171#171 Einar Carl með Sölva Tryggva

Einar Carl Axelsson er stofnandi Primal Iceland. Einar er einnig fyrrverandi landsliðsmaður í Taekeondo, sem skipti um takt eftir að hafa hryggbrotnað á 5 stöðum. Hann neyddist til að leita allra leiða til að geta hreyft sig eðlilega á ný. Það ferðalag endaði með stofnun Primal Iceland, þar sem unnið er með alla þætti heilsu. Þátturinn er í boði; Narfeyrarstofa - https://narfeyrarstofa.is/ Nýja vínbúðin - https://nyjavinbudin.is/ Ofnasmiðja Reykjavíkur - https://ofnasmidja.is/

Mar 13, 20231h 29m

S3 Ep 171Magnús Scheving (brot af því besta)

Magnús Scheving er einn merkilegasti frumkvöðull Íslandssögunnar. Leikfimikennarinn sem endaði á sjónvarpsskjám milljóna manna um allan heim. Hér fara Magnús og Sölvi yfir ótrúlega atburðarrás Latabæjar, þar sem Magnús var með nánast stanslausa dagskrá frá morgni til kvölds á hverjum einasta degi í áraraðir. Þakklætið yfir því að sjá börn í Suður-Ameríku drekka í sig boðskap Íþróttaálfsins, hvað þarf að hafa til brunns að bera sem frumkvöðull, lykilatriðin í að vera hamingjusamur í lífinu og fleira og fleira. Þátturinn er í boði; Narfeyrarstofa - https://narfeyrarstofa.is/ Nýja vínbúðin - https://nyjavinbudin.is/ Ofnasmiðja Reykjavíkur - https://ofnasmidja.is/

Mar 8, 202330 min

S3 Ep 170#170 Fiskikóngurinn: Um bisnessinn, geðheilsuna og drifkraftinn

Kristján Berg, oft kallaður Fiskikóngurinn hefur í áratugi verið einn stærsti fisksali Íslands. Í þættinum ræða Kristján og Sölvi um andlega heilsu, vinnusemi, reskstur fyrirtækja og auðvitað fiskinn. Nálagst má þáttinn í heild sinni inn á; https://solvitryggva.is/ Þátturinn er í boði; Narfeyrarstofa - https://narfeyrarstofa.is/ Nýja vínbúðin - https://nyjavinbudin.is/ Ofnasmiðja Reykjavíkur - https://ofnasmidja.is/

Mar 6, 202319 min

S3 Ep 169#169 Iva Adrichem: Um hatursorðræðu, slaufun og minnihlutahópa

Iva Marín Adrichem er söngkona og lögfræðinemi sem segir skoðanir sínar umbúðalaust. Iva, sem hefur verið blind frá fæðingu, var nýverið slaufað af Ferðamálastofu fyrir skoðanir sínar. Í þættinum ræða Iva og Sölvi um pólariseringu, hatursorðræðu, minnihlutahópa, frelsi til skoðana og margt fleira. Nálagst má þáttinn í heild sinni inn á; https://solvitryggva.is/ Þátturinn er í boði; Narfeyrarstofa - https://narfeyrarstofa.is/ Bakarameistarinn - https://bakarameistarinn.is/ Nýja vínbúðin - https://nyjavinbudin.is/ Ofnasmiðja Reykjavíkur - https://ofnasmidja.is/

Feb 28, 202319 min

S3 Ep 168#168 Brynjar Níelsson: Um stóra bróður og réttrúnaðinn

Brynjar Níelsson er lögfræðingur, aðstoðarmaður dómsmálaráðherra og fyrrverandi þingmaður. Í þættinum ræða Sölvi og Brynjar um umsvif ríkisins, stóra bróður, innflytjendamál, réttrúnað og margt fleira. Nálagst má þáttinn í heild sinni inn á; https://solvitryggva.is/ Þátturinn er í boði; Narfeyrarstofa - https://narfeyrarstofa.is/ Bakarameistarinn - https://bakarameistarinn.is/ Nýja vínbúðin - https://nyjavinbudin.is/ Ofnasmiðja Reykjavíkur - https://ofnasmidja.is/

Feb 23, 202319 min

S3 Ep 167#167 Evert Víglunds: Um bestun og heilbrigði

Evert Víglundsson er eigandi Crossfit Reykjavík og hefur í áraraðir unnið við allt sem snýr að hreyfingu og heilsu. Í þættinum fara Evert og Sölvi yfir alla helstu þætti í heilsu, ástríðu, leiðir til að framkvæma það sem við vitum að er gott fyrir okkur og margt fleira. Nálagst má þáttinn í heild sinni inn á; https://solvitryggva.is/ Þátturinn er í boði; Narfeyrarstofa - https://narfeyrarstofa.is/ Bakarameistarinn - https://bakarameistarinn.is/ Nýja vínbúðin - https://nyjavinbudin.is/ Ofnasmiðja Reykjavíkur - https://ofnasmidja.is/

Feb 20, 202319 min

S3 Ep 166Einar Ágúst (brot af því besta)

https://solvitryggva.is/ Einar Ágúst Víðisson varð þjóðþekktur sem söngvari hljómsveitarinnar Skítamórals, sem var á sínum tíma vinsælasta band Íslands. Einar var á beinu brautinni sem tónlistarmaður, sjónvarps- og útvarpsmaður þegar það fór að halla verulega undir fæti. Hann missti öll tök á tilverunni, endaði í mjög slæmum félagsskap og fór á kaf í neyslu. Einar hefur gengið í gegnum hluti sem fæstir geta gert sér í hugarlund. Hér ræða hann og Sölvi um stærstu sigrana, myrkustu tímabilin, tengslin við glæpastarfsemi, endurkomu Skítamórals og þakklæti Einars fyrir að vera enn á lífi. Þátturinn er í boði; Narfeyrarstofa - https://narfeyrarstofa.is/ Bakarameistarinn - https://bakarameistarinn.is/ Nýja vínbúðin - https://nyjavinbudin.is/ Ofnasmiðja Reykjavíkur - https://ofnasmidja.is/

Feb 17, 202332 min

S3 Ep 166#166 Vilhjálmur Andri: Um botninn, batann, kælingu og öndun

Nálagst má þáttinn í heild sinni inn á; https://solvitryggva.is/ Vilhjálmur Andri Einarsson gjörbreytti lífi sínu með kælingu og öndun eftir að hafa verið orðinn illa haldinn af stanslausum verkjum, þunglyndi og mikilli notkun lyfja og áfengis. Í þættinum ræða Sölvi og Vilhjálmur ótrúlega sögu Vilhjálms, leiðina að bata og vinnuna við að hjálpa öðrum. Þátturinn er í boði; Narfeyrarstofa - https://narfeyrarstofa.is/ Bakarameistarinn - https://bakarameistarinn.is/ Nýja vínbúðin - https://nyjavinbudin.is/ Ofnasmiðja Reykjavíkur - https://ofnasmidja.is/

Feb 15, 202320 min

S3 Ep 165#165 Sara Pálsdóttir með Sölva Tryggva

https://solvitryggva.is/ Sara Pálsdóttir er menntaður lögfræðingur sem var komin langt inn í fíkn, stöðuga verki og sjálfshatur þegar hún fann leiðina út. Eftir það var ekki aftur snúið og í dag hefur hún lagt lögfræðistörfin á hilluna og vinnur nú við að hjálpa fólki. Þátturinn er í boði; Narfeyrarstofa - https://narfeyrarstofa.is/ Bakarameistarinn - https://bakarameistarinn.is/ Nýja vínbúðin - https://nyjavinbudin.is/ Ofnasmiðja Reykjavíkur - https://ofnasmidja.is/

Feb 13, 20231h 12m

S3 Ep 164#164 Gummi Emil: Um ástríðuna, að erfiða og finna tilganginn

Nálagst má þáttinn í heild sinni inn á; https://solvitryggva.is/ Guðmundur Emil Jóhannsson er einkaþjálfari og ástríðufullur um allt sem snýr að heilsu. Hann gjörbreytti lífi sínu eftir að hafa endað á spítala og glímt við erfið veikindi. Gummi Emil hefur vakið mikla athygli fyrir myndbönd sín á samfélagsmiðlum og segist brenna fyrir það að hjálpa öðrum. Þátturinn er í boði; Narfeyrarstofa - https://narfeyrarstofa.is/ Bakarameistarinn - https://bakarameistarinn.is/ Nýja vínbúðin - https://nyjavinbudin.is/ Ofnasmiðja Reykjavíkur - https://ofnasmidja.is/

Feb 9, 202319 min

S3 Ep 163Jónína Ben (brot af því besta)

Jónína Benediktsdóttir er nýjasti gestur Sölva Tryggvasonar í podcasti Sölva. Jónína, sem hefur oft verið verulega umdeild á Íslandi, var ung orðinn viðskiptakona í Svíþjóð, þar sem hún fékk alls kyns verðlaun fyrir frumkvöðlastarfsemi sína í líkamsrækt og rekstri líkamsræktarstöðva. Sölvi skrifaði ævisögu Jónínu og það vantar því ekki umræðuefnin. Tímabilin með Jóni Páli, íslenskt viðskiptalíf, baráttan við bakkus, hjónaskilnaðir og margt margt fleira. Þátturinn er í boði; Narfeyrarstofa - https://narfeyrarstofa.is/ Bakarameistarinn - https://bakarameistarinn.is/ Nýja vínbúðin - https://nyjavinbudin.is/ Ofnasmiðja Reykjavíkur - https://ofnasmidja.is/

Feb 7, 202328 min

S3 Ep 163#163 Sveinn Hjörtur: Um að missa 100 kíló og finna neistann

Nálagst má þáttinn í heild sinni inn á; https://solvitryggva.is/ Sveinn Hjörtur Guðfinnsson hefur marga fjöruna sopið. Sem barn upplifði hann morð á bróður sínum, sem markaði allt framhaldið. Hann fékk köllun til að hjálpa öðrum og starfaði lengi sem varðstjóri hjá 112, þar sem hann sá og upplifði hluti sem flestir sjá aldrei. Óafgreidd áföll enduðu svo með því að hann var orðinn 200 kíló og kominn í hjólastól. En eftir að hafa gjörbreytt lífi sínu hefur hann aftur fengið ástríðuna til að hjálpa öðrum, en núna í nýrri mynd. Þátturinn er í boði; Narfeyrarstofa - https://narfeyrarstofa.is/ Bakarameistarinn - https://bakarameistarinn.is/ Nýja vínbúðin - https://nyjavinbudin.is/ Ofnasmiðja Reykjavíkur - https://ofnasmidja.is/

Feb 6, 202320 min

S3 Ep 162#162 Arnar Þór: Um fasisma, réttrúnað og hætturnar í samfélaginu

Nálagst má þáttinn í heild sinni inn á; https://solvitryggva.is/ Arnar Þór Jónsson er lögfræðingur og varþingmaður. Í þættinum ræða Arnar og Sölvi um hlutverk ríkisnis, Mikilvægi þess að vera hugrakkur, fasisma, frelsi og fleira. Þátturinn er í boði; Narfeyrarstofa - https://narfeyrarstofa.is/ Bakarameistarinn - https://bakarameistarinn.is/ Nýja vínbúðin - https://nyjavinbudin.is/ Ofnasmiðja Reykjavíkur - https://ofnasmidja.is/

Feb 1, 202319 min

S3 Ep 161#161 Ásdís Olsen; Um hugrekki, ástríðu og óhefðbundnar leiðir

Nálagst má þáttinn í heild sinni inn á; https://solvitryggva.is/ Ásdís Olsen hefur um árabil starfað við fjölmiðla, kennslu og fleira. Hún er þekkt fyrir að fara óhikstað sínar eigin leiðir og varpa ljósi á minna þekktar hliðar samfélagsins. Í þættinum ræða Sölvi og Ásdís um fjölmiðlana, getuna til að fara eigin leiðir, samfélagsmál og margt fleira. Þátturinn er í boði; Narfeyrarstofa - https://narfeyrarstofa.is/ Bakarameistarinn - https://bakarameistarinn.is/ Nýja vínbúðin - https://nyjavinbudin.is/ Ofnasmiðja Reykjavíkur - https://ofnasmidja.is/

Jan 30, 202319 min

S3 Ep 160#141 Hjalti Úrsus með Sölva Tryggva

https://solvitryggva.is/ Hjalti Úrsus Árnason er einn öflugasti aflraunamaður Íslandssögunnar. Í þættinum ræðir hann um gullaldarárin í kraftasportinu, æfingarnar og ferðalögin með Jóni Páli og réttarmorðið á syni hans, sem nýlega lést aðeins 29 ára að aldri.

Jan 28, 20231h 7m

S3 Ep 160Óli Stef (brot af því besta)

Ólafur Stefánsson er löngu orðinn þjóðargersemi. Einn besti handboltamaður allra tíma, sem kom heim með silfurverðlaun frá Olympíuleikunum í Peking. Hèr ræða hann og Sölvi um ad viðhalda barninu í sér, mikilvægi þess að elta draumana og þora að vera ,,skrýtni kallinn". Þátturinn er í boði; Narfeyrarstofa - https://narfeyrarstofa.is/ Bakarameistarinn - https://bakarameistarinn.is/ Nýja vínbúðin - https://nyjavinbudin.is/ Ofnasmiðja Reykjavíkur - https://ofnasmidja.is/

Jan 27, 202338 min

S3 Ep 160#160 Þórarinn Ævars: Um skömm karlmanna, ofbeldið í grunnskóla og frelsi frá ritskoðun

Nálagst má þáttinn í heild sinni inn á; https://solvitryggva.is/ Þórarinn Ævarsson er landsþekktur athafnamaður sem þurfti að gjörbreyta lífi sínu eftir mikla erfiðleika. Í þættinum ræða Sölvi og Þórarinn ótrúlegt ferðalag Þórarins til bata, skömm hjá karlmönnum, frelsi frá áliti annarra og margt fleira. Þátturinn er í boði; Narfeyrarstofa - https://narfeyrarstofa.is/ Bakarameistarinn - https://bakarameistarinn.is/ Nýja vínbúðin - https://nyjavinbudin.is/ Ofnasmiðja Reykjavíkur - https://ofnasmidja.is/

Jan 26, 202320 min

S3 Ep 159#159 Þórarinn Ævars: Um lyfjafíkn, þunglyndi, hugvíkkandi efni og ævintýralegan bata

Nálagst má þáttinn í heild sinni inn á; https://solvitryggva.is/ Þórarinn Ævarsson er landsþekktur athafnamaður sem var kominn algjörlega á botninn í mikla lyfjafíkn og djúpt þunglyndi. Í þættinum lýsir hann ótrúlegri atburðarrás sem á endanum varð til þess að hann spyrnti sér frá botninum og náði bata. Þátturinn er í boði; Narfeyrarstofa - https://narfeyrarstofa.is/ Bakarameistarinn - https://bakarameistarinn.is/ Nýja vínbúðin - https://nyjavinbudin.is/ Ofnasmiðja Reykjavíkur - https://ofnasmidja.is/

Jan 25, 202320 min

S3 Ep 158#158 Axel Pétur: Um ríkasta prósentið, öflin sem stjórna og stóra samsærið í heiminum

Nálagst má þáttinn í heild sinni inn á; https://solvitryggva.is/ Axel Pétur Axelsson hefur oft verið kallaður samsæringur Íslands. Hann hefur í áraraðir talað um hluti sem eru talsvert langt fyrir utan boxið. Í þættinum fara Axel og Sölvi yfir allt það helsta í samsæriskennigum. Allt frá stofnun seðlabankanna, hátíð aflanna sem ráða og ríkasta eina prósentinu yfir í næstu spádóma Axels. Þátturinn er í boði; Narfeyrarstofa - https://narfeyrarstofa.is/ Bakarameistarinn - https://bakarameistarinn.is/ Nýja vínbúðin - https://nyjavinbudin.is/ Ofnasmiðja Reykjavíkur - https://ofnasmidja.is/

Jan 23, 202319 min

S3 Ep 157Erpur Eyvindarson (brot af því besta)

solvitryggva.is Það er óhætt að kalla Erp Eyvindarson guðföður íslensku rappsenunnar. Maðurinn sem hefur alltaf farið eigin leiðir og gert það sem honum sýnist mætir hér í viðtal til Sölva þar sem þeir ræða allt frá anarkisma og ferðalögum, yfir í partý, tónlist og tilgang lífsins. Þátturinn er í boði; Narfeyrarstofa - https://narfeyrarstofa.is/ Bakarameistarinn - https://bakarameistarinn.is/ Nýja vínbúðin - https://nyjavinbudin.is/ Ofnasmiðja Reykjavíkur - https://ofnasmidja.is/

Jan 19, 202329 min

S3 Ep 157#157 Eva Hauks og Jón Steinar: Um réttarkerfið, lögregluríki og hugrekki

Nálagst má þáttinn í heild sinni inn á; https://solvitryggva.is/ Eva Hauksdóttir og Jón Steinar Gunnlaugsson eru bæði lögmenn og þekkt fyrir að gefa engan afslátt á sannfæringu sinni. Í þættinum ræða þau um réttarkerfið, getuna til að standa með sannfæringu sinni, hætturnar við lögregluríki og alræði og margt fleira. Þátturinn er í boði; Narfeyrarstofa - https://narfeyrarstofa.is/ Bakarameistarinn - https://bakarameistarinn.is/ Nýja vínbúðin - https://nyjavinbudin.is/ Ofnasmiðja Reykjavíkur - https://ofnasmidja.is/

Jan 16, 202320 min

S3 Ep 156#156 Matti Ósvald: Um karlmennsku, ástríðuna og tilganginn

Nálagst má þáttinn í heild sinni inn á; https://solvitryggva.is/ Matti Ósvald er markþjálfi og heilsuráðgjafi. Í þættinum ræða Sölvi og Matti um sögu Matta, karlmennsku í nútímanum, leiðir til að ná jafnvægi og margt fleira. Þátturinn er í boði; Narfeyrarstofa - https://narfeyrarstofa.is/ Bakarameistarinn - https://bakarameistarinn.is/ Nýja vínbúðin - https://nyjavinbudin.is/ Ofnasmiðja Reykjavíkur - https://ofnasmidja.is/

Jan 11, 202320 min

S3 Ep 155#155 Erla Bolladóttir: Um lífshlaupið, aðkastið á götum úti og örlögin

Nálagst má þáttinn í heild sinni inn á; https://solvitryggva.is/ Erla Bolladóttir sat mánuðum saman í gæsluvarðhaldi og eingangrun sem ung kona vegna eins umtalaðasta sakamáls Íslandssögunnar, Geirfinnsmálsins. Íslenska Ríkið greiddi henni nýlega miskabætur vegna málsins. Í þættinum fer Erla yfir málið allt, lífshlaup sitt, sátt við örlögin og fleira. Þátturinn er í boði; Narfeyrarstofa - https://narfeyrarstofa.is/ Bakarameistarinn - https://bakarameistarinn.is/ Nýja vínbúðin - https://nyjavinbudin.is/ Ofnasmiðja Reykjavíkur - https://ofnasmidja.is/

Jan 9, 202320 min

S3 Ep 154#154 Sara María með Sölva Tryggva

https://solvitryggva.is/ Sara María Júlíusdóttir er fatahönnuður og lífsstílsráðgjafi sem stundar nú mastersnám í hugvíkkandi efnum, fyrst Íslendinga. Í þættinum ræða Sara María og Sölvi um byltinguna sem er í gangi bæði hér og í heiminum öllum. Þátturinn er í boði; Narfeyrarstofa - https://narfeyrarstofa.is/ Bakarameistarinn - https://bakarameistarinn.is/ Nýja vínbúðin - https://nyjavinbudin.is/ Ofnasmiðja Reykjavíkur - https://ofnasmidja.is/

Jan 4, 20231h 10m

S3 Ep 153Ólafur Darri (brot af því besta)

solvitryggva.is Ólafur Darri Ólafsson er líklega þekktasti leikari Íslands. Hér ræða hann og Sölvi um listina, geðlyfjanotkun, dýpstu dalina og hæstu hæðirnar. Þátturinn er í boði; Narfeyrarstofa - https://narfeyrarstofa.is/ Bakarameistarinn - https://bakarameistarinn.is/ Nýja vínbúðin - https://nyjavinbudin.is/ Ofnasmiðja Reykjavíkur - https://ofnasmidja.is/

Jan 3, 202319 min

S3 Ep 153#153 Sigurjón Ernir: Um heilsu, ofurhlaup, að taka ábyrgð og verða sterkur

Nálagst má þáttinn í heild sinni inn á; https://solvitryggva.is/ Sigurjón Ernir Sturluson er ofurhlaupari og afreksíþróttamaður. Í þættinum fara Sigurjón og Sölvi yfir alla helstu þætti í heilsu, ástríðu, leiðir til að framkvæma það sem við vitum að er gott fyrir okkur og margt fleira. Þátturinn er í boði; Narfeyrarstofa - https://narfeyrarstofa.is/ Bakarameistarinn - https://bakarameistarinn.is/ Nýja vínbúðin - https://nyjavinbudin.is/ Ofnasmiðja Reykjavíkur - https://ofnasmidja.is/

Jan 2, 202320 min

S3 Ep 152#152 Herbert Guðmundsson: Um ótrúlegan feril, upprisu, fíkn og trú

Nálagst má þáttinn í heild sinni inn á; https://solvitryggva.is/ Herbert Guðmundsson er löngu orðinn goðsögn í íslensku tónlistarlífi. Þegar Herbert, sem er þekktur fyrir mikinn dugnað og gott hugarfar sat um tíma í fangelsi og missti allt eftir hrunið 2008. Í þættinum fara Sölvi og Herbert yfir magnaðan feril Herberts, ótrúlegt lífshlaup hans og margt fleira. Þátturinn er í boði; Narfeyrarstofa - https://narfeyrarstofa.is/ Bakarameistarinn - https://bakarameistarinn.is/ Nýja vínbúðin - https://nyjavinbudin.is/ Ofnasmiðja Reykjavíkur - https://ofnasmidja.is/

Dec 27, 202220 min

S3 Ep 151#151 Geir H.Haarde með Sölva Tryggva

https://solvitryggva.is/ Geir H.Haarde er fyrrverandi forsætisráðherra Íslands. Í þættinum ræða Geir og Sölvi um hrunið, landsdómsmálið, fundina með Pútín og Trump, pólariseringu í samfélaginu og margt fleira. Þátturinn er í boði; Narfeyrarstofa - https://narfeyrarstofa.is/ Bakarameistarinn - https://bakarameistarinn.is/ Nýja Vínbúðin - https://nyjavinbudin.is/ Ofnasmiðja Reykjavíkur - https://ofnasmidja.is/

Dec 18, 202256 min

S3 Ep 150#150 Óttar og Jóhanna með Sölva Tryggva (brot úr áskriftarþætti)

https://solvitryggva.is/ Hjónin Óttar Guðmundsson og Jóhanna Þórhallsdóttir höfðu þekkst í áratugi þegar þau urðu par. Í þættinum ræða þau um lykilinn að farsælu sambandi, hvað gefur lífinu gildi, pistla Óttars og margt fleira.

Dec 14, 202220 min

S3 Ep 149#149 Hannes Hólmsteinn:Um stjórnmál, hatursorðræðu, Landsdómsmálið og fleira

https://solvitryggva.is/ Hannes Hólmsteinn Gissurarson er háskólaprófessor og rithöfundur. Í þættinum ræða Sölvi og Hannes um hugrmyndafræði í stjórnmálum, stöðu upplýsingamiðla, nýja bók Hannesar og margt margt fleira.

Dec 11, 202220 min

S3 Ep 148#148 Sara Odds: Um ábyrgð, fyrirgefningu, meðvirkni og breyskleika.

https://solvitryggva.is/ Margrét Sara Oddsdóttir er lögfræðingur, yogakennari og markþjálfi. Í þættinum ræða hún og Sölvi um skuggavinnu, ástríðu, leiðir til að bæta sjálfan sig, stöðu drengja og margt fleira.

Dec 8, 202219 min

S3 Ep 147#147 Geir Ólafs: Um Kólumbíu, sönginn, kvíða og fundinn með Pútín

https://solvitryggva.is/ Geir Ólafs kom inn í íslenskt tónlistarlíf með krafti, svo að eftir var tekið. Í þættinum ræða Sölvi og Geir um feril Geirs, sönginn fyrir Pútín, tengingarnar við Kólombíu, kvíða, náungakærleik og margt fleira.

Dec 5, 202220 min