
24/7
129 episodes — Page 3 of 3

S1 Ep 29Hermundur Sigmundsson
Hermundur Sigmundsson er prófessor í lífeðlislegri sálfræði. Í þættinum ræðir Hermundur þá sálfræðilegu eiginleika sem þarf til að verða frammúrskarandi, skólakerfið, þættina sem koma í veg fyrir elliglöp og margt margt fleira. Þátturinn er í boði: Spíran - https://www.kokkarnir.is/spiran/ Nettó - https://netto.is/

S1 Ep 28Kristrún Mjöll Frostadóttir
Kristrún Frostadóttir er hagfræðingur og í framboði fyrir Samfylkinguna. Í þættinum ræðir Kristrún efnahagsmál, stökkið frá fjármálageiranum í pólitík, samskipti kynjana, að maður viti ekki nema maður prófar, að gera það sem skiptir mann máli, samkennd og margt margt fleira. Þátturinn er í boði: Spíran - https://www.kokkarnir.is/spiran/ Nettó - https://netto.is/

S1 Ep 27Nökkvi Fjalar
Nökkvi Fjalar er það sem hann er hverju sinni. Í þættinum ræðir Nökkvi um að uppfylla möguleikana sína, gera það sem maður segir, fórna skammvinnri ánægju fyrir langtímaávinning, venjur, mikilvægi mentors og endurgjafar, ofskynjunarsveppi, bólusetningu og margt margt fleira. Þátturinn er í boði: Spíran - https://www.kokkarnir.is/spiran/ Nettó - https://netto.is/

S1 Ep 26Ásmundur Einar Daðason
Ásmundur Einar er félags- og barnamálaráðherra. Í þættinum ræðir Ásmundur um erfiða æsku, berskjöldun, elta hjartað sitt, tjá tilfininningar, athöfnina sweat, að vera maður sjálfur og margt margt fleira. Þátturinn er í boði: Spíran - https://www.kokkarnir.is/spiran/ Nettó - https://netto.is/

S1 Ep 25Margrét Pála
Margrét Pála er frumkvöðull, baráttukona, upphafskona Hjallastefnunar og rithöfundur. Í þættinum ræðir Margrét muninn á milli kynjana, vendipunktinn þegar hún skildi lífið miklu betur eftir að hún kyssti konu í fyrsta skiptið, uppeldi barna, þrautsiegju, kúgun kerfa, óvinsælu skoðunina að foreldrar láti börn í umsjón annarra eftir eins árs aldur og margt margt fleira. Þátturinn er í boði: Spíran - https://www.kokkarnir.is/spiran/ Nettó - https://netto.is/

S1 Ep 24Villi Neto
Vilhelm Neto er leikari. Í þættinum ræðir Villi leiklist, skilning fyrir ólíku fólki, símanotkun, það góða í mannverunni, bólusetningar og margt fleira. Það voru heldur betur hæðir og lægðir í þessu spjalli. Eina stundina var grenjaði úr hlátri en á þeirri næstu rætt um háalvarleg málefni. Þátturinn er í boði: Spíran - https://www.kokkarnir.is/spiran/ Nettó - https://netto.is/

S1 Ep 23Gestur Pálma
Gestur Pálmason er stjórnenda- og teymis þjálfari, með 16 ára reynslu úr lögreglunni og sérsveitinni og fyrrum lífvörður og tónlistarmaður. Í þættinum ræðum við Gestur um ákvarðanatöku, leiðtogahæfni, þroska, meðvitund, þörfina fyrir að aðlaga kerfin okkar að framtíðinni og margt fleira. Þátturinn er í boði: Spíran - https://www.kokkarnir.is/spiran/ Nettó - https://netto.is/

S1 Ep 22Þorsteinn Guðmundsson
Þorsteinn Guðmundsson er leikar og grínisti og nýlega orðinn sálfræðingur. Í þættinum ræðir Þorsteinn um þunglyndi, samkennd, skilgreiningar, hópaskiptingu, núvitund og margt fleira. Þátturinn er í boði: Spíran - https://www.kokkarnir.is/spiran/ Nettó - https://netto.is/

S1 Ep 21Svandís Svavarsdóttir
Svandís Svavarsdóttir er heilbrigðisráðherra. Í þættinum ræðir Svandís heilbrigðismál, heimsfaraldra, áskoranir framtíðarinnar, æðruleysi, öndun, líf og dauða, sköpunargleði íslenskunnar, ást, samskipti, ójöfnuð, augnsamband og svo margt margt fleira.

Ep 20Séra Vigfús Bjarni
Séra Vigfús Bjarni er fyrrum sjúkrahúsprestur, forstöðumaður fjölskylduhjálp kirkjunnar og kennir sálgæslu í HÍ. í þættinum ræðir Vigfús um þrautseigju fólks í óbærilega erfiðum aðstæðum, að mannveran sé í grunninn öll eins, trúleysi og margt fleira. Þátturinn er í boði: Spíran - https://www.kokkarnir.is/spiran/ Nettó - https://netto.is/

S1 Ep 19Dr. Hafrún Kristjáns
Dr. Hafrún Kristjáns er vísindakona, sálfræðingur og deildarforseti íþróttadeildar HR. Í þættinum ræðir Hafrún um íþróttasálfræði, Ólympíuleikana, heimildarmyndina hækkum ránna, hugræna atferlismeðferð, fúskara sem telja sig geta hjálpað fólki í gegnum áföll eftir að hafa lesið 10 sjálfshjálparbækur og margt fleira. Þátturinn er í boði: Spíran - https://www.kokkarnir.is/spiran/ Nettó - https://netto.is/

S1 Ep 18Lukka Pálsdóttir
Lukka er sjúkraþjálfari, einkaþjálfari, jógakennari, stofnandi Greenfit og heilsuveitingarstaðarins Happ. Í þættinum ræðir Lukka I-in og M-in tvö í heilbrigði, það sem stjórnvöld hefðu getað gert betur í COVID-19 farldrinum, að heilsa sé ekki heppni og margt margt fleira. Þátturinn er í boði: Spíran - https://www.kokkarnir.is/spiran/ Nettó - https://netto.is/

S1 Ep 17Ólafur Stefánsson
Ólafur Stefánsson er einn besti handboltamaður í sögunni og mikill hugsuður. Í þættinum ræðir Óli goðsögur, kraftinn í plöntum líkt og Ayahuasca, jafnvægið í að ekki gefast upp og að gefast upp, leikinn sem lífið er, ákvörðunina um að vera fara í sálfræðinám og margt margt fleira. Þátturinn er í boði: Spíran - https://www.kokkarnir.is/spiran/ Nettó - https://netto.is/

S1 Ep 16Hjálmar Örn Jóhannsson
Hjálmar Örn er skemmtikraftur, áhrifavaldur og annar þáttastjórnandi hlaðvarpsins HæHæ. Í þættinum ræðir Hjálmar um húmor, að blómstra seinna í lífinu, góð áhrif samskiptamiðla, jákvætt sjálfstal, að fylgja sinni sannfæringu, að byrja einhverstaðar, dugnað, pressuna sem samfélagið lætur á heilbrigði út frá útliti, hvað margir eru að sinna mikilvægu hlutverki í lífinu og margt margt fleira. Þátturinn er í boði: Spíran - https://www.kokkarnir.is/spiran/ Nettó - https://netto.is/

S1 Ep 15Everestkappar - Heimir og Siggi
Heimir og Siggi eru vinir sem ákváðu að klífa Everest. Í þættinum ræða Heimir og Siggi ævintýrið sem því fyldi. Það er vægt til orða tekið að segja að ferðalagið hafi ekki beint gengið smurt fyrir sig. Eins og í góðri sögu voru fullt af erfiðleikum og mótlæti á leiðinni. Ef ég ætti að lýsa þeirra ferð með einu orði þá væri það: Þrautseigja. Þátturinn er í boði: Spíran - https://www.kokkarnir.is/spiran/ Nettó - https://netto.is/

S1 Ep 14Björgvin Páll
Björgvin Páll er landsliðsmarkvörður í handbolta og höfundur bókarinnar Án Filters. Í þættinum ræðir Björgvin um listina að vera meðvitaður, að hafa góð áhrif á aðra, geðheilsu og margt fleira. Þátturinn er í boði: Spíran - https://www.kokkarnir.is/spiran/ Nettó - https://netto.is/

S1 Ep 13Arnar Þór Jónsson
Arnar Þór Jónsson er dómari við Héraðsdóm Reykjavíkur og er nú í framboði fyrir sjálfstæðisflokkinn. Í þættinum ræðir Arnar sannleikann, lýðræði, hjarðhugsun, tjáningafrelsi, hópaskiptingu, rödd samvisku og skynsemarinnar og margt margt fleira. Þátturinn er í boði: Spíran - https://www.kokkarnir.is/spiran/ Nettó - https://netto.is/

S1 Ep 12Pétur Jóhann
Pétur Jóhann er grínisti og móralskur leiðbeinandi. Í þættinum ræðir Pétur um hlutverk móralska leiðbeinandans, krefjandi eiginleikann við að gefa af sér allan daginn, að flæða í lífinu, mikilvægi þess að vera drullu sama og margt margt fleira. Þátturinn er í boði: Spíran - https://www.kokkarnir.is/spiran/ Nettó - https://netto.is/

S1 Ep 11Magnús Scheving
Magnús Scheving er frumkvöðull, fyrirlesari, leikari og stofnandi Latabæ. Í þættinum ræðir Magnús um frumkvöðlastarfsemi, driftkraft, ytri ró, að bera sig saman við aðra, me too, ofbeldi og margt fleira. Þátturinn er í boði: Spíran - https://www.kokkarnir.is/spiran/ Nettó - https://netto.is/

S1 Ep 10Tryggvi Hjaltason
Tryggvi Hjaltason starfar sem greinandi hjá CCP og formaður Hugverkaráðs. Tryggvi og Háskóli Íslands byrjuðu nýverið með námskeið til að hjálpa einstaklingum að mynda mannleg tengsl í gegnum tölvuleiki. Í þættinum ræðir Tryggvi um ávinninga tölvuleikjanotkunar, að manneskjan sé slæm, takmörk fastmótaðra hugmyndafræða, sjálfsaga, auðmýkt, trú og margt fleira. Þátturinn er í boði: Spíran - https://www.kokkarnir.is/spiran/

S1 Ep 9Arnar Pétursson
Arnar Péturs er hlaupari, með fjórar háskólagráður og gaf út Hlaupabókina árið 2019. Í þættinum ræðir Arnar um hlaup, vinnuna sem þarf til að verða 38 sinnum Íslandsmeistari, tillöguna að prófa að hafa bara konur á þingi, álit annarra, að velja vini sína og margt fleira. Þátturinn er í boði: Spíran - https://www.kokkarnir.is/spiran/

S1 Ep 8Sigga Dögg
Sigga Dögg er kynfræðingur og rithöfundur. Í þættinum ræðir Sigga um kynheilbrigði, karlmennsku, ábyrgð, sjálfsþekkingu, opin sambönd, kynlíf, skömm og margt fleira. Þátturinn er í boði: Spíran - https://www.kokkarnir.is/spiran/

S1 Ep 7Birgitta Líf
Birgitta Líf er markaðsstjóri World Class, menntuð í Lögfræði og Alþjóðaviðskiptum og áhrifavaldur. Í þættinum ræðir Birgitta um mikilvægi World Class í hennar lífi, erfiða tíma, lexíuna sem hún lærði í covid, auðmýktina í að átta sig á að maður er ekki við stjórnvöllinn í lífinu, að allt gerist af ástæðu og margt fleira. Þátturinn er í boði: Spíran - https://www.kokkarnir.is/spiran/

S1 Ep 6Jón Gnarr
Jón Gnarr er listamaður, grínisti, leikari og fyrrum borgarstjóri Reykjavíkur. Í þættum ræðir Jón um upprisuna sína í lífinu eftir erfiða æsku, hvernig grínið er kjarni í hver hann er, harkið sem fylgir því að vera leikari, trúleysi, kærleika, muninn á að segja og gera, umhverfismál, mikilvægi íslenskunnar og margt margt fleira. Þátturinn er í boði: Spíran - https://www.kokkarnir.is/spiran/

S1 Ep 5Bjarni Ben
Bjarni Ben er fjármála- og efnahagsráðherra og formaður Sjálfstæðisflokksins. Í þættinum ræðir Bjarni um ástríðuna fyrir stjórnmálum, hvernig fótbolti mótaði hann, óumflýjanlega erfiðleika sem fylgja lífinu og margt fleira. Þátturinn er í boði: Spíran - https://www.kokkarnir.is/spiran/

S1 Ep 4Friðrik Dór
Friðrik Dór er einn af okkar vinsælustu tónlistarmönnum. Í þættinum ræðir Friðrik um sköpunarferlið bakvið tónlistina, að kyngja stoltinu, þroska, tilfinningar, ábyrgðarleysi í uppeldi, listina að grípa sig við andlegt niðurrif og margt fleira. Þátturinn er í boði: Spíran - https://www.kokkarnir.is/spiran/

S1 Ep 1Evert Víglunds
Evert hefur mikla ástríðu fyrir heilsusamlegu líferni og er stofnandi og eigandi Crossfit Reykjavíkur. Í þættinum ræðir Evert um heilsu, hvernig Crossfit breytti lífinu hans, misskilninginn að hann sé stundum pirraður og mikilvægi óvinsæla skoðana og margt fleira. Þátturinn er í boði: Spíran - https://www.kokkarnir.is/spiran/

S1 Ep 3Þórdís Kolbrún
Þórdís Kolbrún er ferðamála-, iðnaðar- og nýsköpunarráðherra og varaformaður Sjálfstæðisflokksins. Í þættinum ræðir Þórdís um að vera manneskjuleg manneskja í pólitík, jöfn tækifæri, mikilvægi þess að gera sitt besta þó svo að enginn viti neitt og margt fleira. Þátturinn er í boði: Spíran - https://www.kokkarnir.is/spiran/

S1 Ep 2Dr. Erla Björnsdóttir
Dr. Erla Björnsdóttir er vísindakona, sálfræðingur og framkvæmdastjóri Betri Svefns. Í þættinum ræðir Erla stuttlega um mikilvægi svefns en svo tekur þátturinn óvænta beygju þar við fáum að kynnast hvernig Erla horfir á lífið. Rætt er um andlitsblindu, kraftinn í að velja hvernig við bregðumst við aðstæðum, mikilvægi aga og að minna sig stöðugt á hvað maður hefur og margt fleira. Þátturinn er í boði: Spíran - https://www.kokkarnir.is/spiran/